24 apríl 2024
/
Úrskurður nr. 415/2024
Hinn 24. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 415/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23100005
Kæra […]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 2. október 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. september 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 6. nóvember 2022. Kærandi bar því við að vera fæddur […] og því yngri en 18 ára við komuna til landsins. Hinn 6. janúar 2023 mætti kærandi í viðtal vegna aldursgreiningar ásamt þáverandi talmanni sínum og fulltrúa barnaverndar. Kærandi mætti í aldursgreiningu 12. janúar 2023 og í viðtali 3. mars 2023 var kæranda kynnt niðurstaða hennar þess efnis að hann hafi verið metinn eldri en 18 ára og að málsmeðferð umsóknar hans um alþjóðlega vernd tæki mið af þeirri niðurstöðu. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 5. september 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 20. september 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 2. október 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda og fylgigögn 19. október 2023. Með tölvubréfi, dags. 14. apríl 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 21. apríl 2024, bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá kæranda. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna af hálfu hryðjuverkahópsins Al-Shabaab.
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.
Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð til kærunefndar er trúverðugleikamati Útlendingastofnunar alfarið mótmælt og hafnað. Kærandi geri athugasemdir við matið í heild sinni, frásögn kæranda af uppruna sínum og ótta við ofsóknir hafi verið samkvæm og hafi kærandi svarað ítarlegum spurningum Útlendingastofnunar fúslega og fumlaust.
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé frá […] þorpi í neðra Shabelle landsvæðinu í Sómalíu. Kærandi hafi flúið þaðan ásamt fjölskyldu sinni og hafi dvalið í […] í um eitt ár þar til kærandi hafi flúið frá heimaríki sínu. Kærandi tilheyri minnihlutaættbálknum Jiido. Kærandi sé ofsóttur af hryðjuverkahópnum Al-Shabaab og hafi orðið fyrir mismunun og illri meðferð af hálfu meðlima meirihlutaættbálks á heimasvæði sínu. Kennari kæranda hafi reynt að fá hann til að vinna fyrir Al-Shabaab og beitt til þess þrýstingi. Þegar kærandi hafi sagt móður sinni frá því sem hafi gerst hafi hún notað tengsl sem hún hafi haft til að koma upplýsingum um kennarann á framfæri sem hafi orðið til þess að kennarinn hafi verið handtekinn af yfirvöldum. Þar sem það hafi verið hætta á að Al-Shabaab myndi leita kæranda hafi hann farið huldu höfði heima fyrir. Meðlimir Al-Shabaab hafi komið til móður kæranda að leita að honum og í kjölfarið hafi fjölskyldan talið rétt að flytja frá heimabæ þeirra. Fjölskyldan hafi flúið til […] með viðkomu í Mógadisjú. Í […] hafi fjölskyldan orðið fyrir árásum. Faðir kæranda hafi verið skotinn til bana á leið heim frá mosku. Komið hafi verið á heimili fjölskyldunnar í leit að kæranda og bróðir hans hafi verið skotinn til bana í hans stað. Fjölskyldunni hafi einnig borist hótanir símleiðis frá Al-Shabaab á meðan kærandi hafi dvalið í […]. Þá hafi kærandi upplifað mikla fordóma í Sómalíu í sinn garð vegna stöðu sinnar sem meðlimur í minnihlutaættbálknum Jiido. Kærandi hafi t.a.m. orðið fyrir líkamsárás árið 2017 sem hafi staðið yfir í sjö klukkustundir af hálfu einstaklinga sem hafi tilheyrt meirihlutaættbálki eftir að kærandi hafi komið í veg fyrir að systur hans yrði nauðgað af einum þeirra.
Til stuðnings aðalkröfu sinni um að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Sómalíu á grundvelli aðildar að tilteknum þjóðfélagshóp og uppfylli skilyrði þess að teljast flóttamaður sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 57/2023 um Al-Shabaab í Sómalíu og vangetu yfirvalda til að veita borgurum vernd undan ofsóknum þeirra. Kærandi vísar til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um verndarþörf umsækjenda um alþjóðlega vernd frá Sómalíu frá 2022 og bendir á skyldu íslenskra stjórnvalda samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga til að eiga samvinnu við Flóttamannastofnunina. Einnig vísar kærandi til skýrslna EUAA um mat á þörf tiltekinna hópa fyrir alþjóðlega vernd.
Kærandi mótmælir því mati Útlendingastofnunar að hann sé eldri en 18 ára. Persónuleg staða kæranda geri hann líklegan til að Al-Shabaab reyni að gera hann að meðlim hryðjuverkahópsins eða refsi honum sýni hann mótþróa líkt og kærandi hafi greint frá að hafi gerst. Kærandi hafi veikt bakland og hann njóti ekki verndar stærri ættbálka. Kærandi sé af minnihlutaættbálknum Jiido og sé því sérstaklega berskjaldaður gagnvart ofsóknum Al-Shabaab. Vegna stöðu sinnar verði hann einnig fyrir mismunun og aukinni hættu á slæmri meðferð. Kærandi vísar til framangreindra leiðbeininga Flóttamannastofnunar hvað varðar stöðu einstaklinga af minnihlutaættbálkum og úrskurðar kærunefndar nr. 57/2023 máli sínu til stuðnings.
Kærandi krefst þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, enda sé hann frá neðra Shabelle, tilheyri minnihlutaættbálknum Jiido og hafi upplifað ofsóknir Al-Shabaab. Kærandi vísar til framangreindra leiðbeininga Flóttamannastofnunar, úrskurðar kærunefndar nr. 138/2023 og heimilda um heimaríki máli sínu til stuðnings.
Í ljósi stöðu sinnar og fjölskylduaðstæðna telur kærandi að innri flutningur sé hvorki raunhæft né sanngjarnt úrræði fyrir sig sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 138/2023 máli sínu til stuðnings.
Kærandi byggir á því til þrautavara að honum skuli veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi vísar til athugasemda í frumvarpi sem varð að núgildandi lögum um útlendinga þar sem m.a. komi fram að líta verði til þess hve alvarlegar aðstæður í heimaríki séu og þá t.d. hvort um viðvarandi mannréttindabrot sé að ræða í ríkinu eða þá afstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Á heimasvæði kæranda séu erfiðar almennar aðstæður og viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað sem yfirvöld veiti þeim ekki vernd gegn. Þá vísar kærandi til þess að vera frá neðra Shabelle og af minnihlutaættbálknum Jiido, faðir hans og bróðir hafi verið drepnir, aðrir fjölskyldumeðlimir hafi flúið heimasvæði kæranda og hann hafi misst samband við þau. Kærandi glími einnig við heilsufarsvandamál, hafi verið greindur með [...] og glími við andlega erfiðleika vegna þeirra áfalla sem hann hafi upplifað.
Kærandi byggir á því til þrautaþrautavara að mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda hafi verið tilhæfulaust og ómálefnalegt. Fyrir vikið hafi rannsókn stofnunarinnar ekki tekið mið af frásögn kæranda og málsmeðferð því í andstöðu við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem og réttmætisreglu stjórnsýsluréttarins. Kærandi bendir á að samkvæmt meginreglu eigi kærandi rétt á að fá umfjöllun um mál sitt á tveimur stjórnsýslustigum.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á honum deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari þó að öðru leyti sé auðkenni hans óþekkt.
Mat á aldri, sbr. 113. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 26. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ef grunur vaknar um að umsækjandi sem segist vera fylgdarlaust barn sé lögráða, og að ekki er hægt að staðfesta það á óyggjandi hátt, skuli gerð, eins fljótt og kostur er, aldursgreining samkvæmt 113. gr. laganna. Í 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ef grunur leiki á að umsækjandi um alþjóðlega vernd eða umsækjandi um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar villi á sér heimildir við meðferð máls eða segi rangt til um aldur við meðferð máls geti viðkomandi stjórnvald lagt fyrir útlending að hann gangist undir líkamsrannsókn til þess að ákvarða aldur hans. Niðurstaða úr slíkri líkamsrannsókn skuli metin í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn umsækjanda í hag. Í 1. mgr. 40. gr. reglugerðar um útlendinga, sbr. 3. mgr. 113. gr. laga um útlendinga, kemur jafnframt fram að við ákvörðun á aldri skuli fara fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar af ævi hans en auk þess megi beita líkamsrannsókn til greiningar á aldri. Leiki grunur á að umsækjandi segi rangt til um aldur skuli framkvæma líkamsrannsókn til greiningar.
Samkvæmt framansögðu hefur löggjafinn ákveðið að stjórnvöld á sviði útlendingamála skuli beita tilteknum rannsóknaraðferðum þegar upplýsa þarf um aldur umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þá hefur löggjafinn jafnframt ákveðið að mat á aldri skuli vera heildstætt og vera byggt, eftir atvikum, á fleiri gögnum en líkamsrannsókn.
Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að vera fæddur […] en lagði engin gögn fram sem staðfestu auðkenni hans. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun var kæranda leiðbeint um að leggja fram gögn sem staðfestu fæðingardag hans. Kvaðst kærandi ekki geta útvegað slík gögn. Hinn 6. janúar 2023 mætti kærandi ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum til Útlendingastofnunar og veitti samþykki fyrir aldursgreiningu. Kærandi undirgekkst aldursgreiningu 11. janúar 2023, sem fólst í stafrænni röntgenbreiðmynd og sérmynd af jöxlum og framtönnum. Þá var tekin röntgenmynd af hönd og úlnlið kæranda. Í niðurstöðum aldursgreiningar, dags. 3. febrúar 2023, kemur fram að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá kemur fram að þroskaferli allra tanna kæranda sé lokið og allir forjaxlar og jaxlar séu í bitsnertingu. Samkvæmt aldursgreiningu af beinvexti handar og úlnliðs sé kærandi 19 ára eða eldri. Langtíma vannæring geti seinkað beinþroska og hefur þá þau áhrif að fullum beinþroska sé náð seinna á ævinni og þeir einstaklingar þá greindir yngri en þeir eru í raun. Hjá kæranda hafi fullum samruna beinenda verið náð. Hinn 2. mars 2023 kom kærandi í viðtal hjá Útlendingastofnun, ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum, þar sem honum voru kynntar niðurstöður aldursgreiningarinnar og tilkynnt að með hliðsjón af niðurstöðum hennar, gögnum málsins og þess að kærandi hafi ekki getað lagt fram skilríki sem sanni á honum deili eða aldri hans var það mat Útlendingastofnunar að farið yrði með mál hans sem mál fullorðins einstaklings.
Kærandi mótmælir niðurstöður aldursgreiningar í greinargerð til kærunefndar.
Líkt og fram kemur í niðurstöðunum eru umræddir tannlæknar sérmenntaðir í aldursgreiningum og hafa þá sérfræðikunnáttu sem þarf til að greina úr röntgenmyndum af tönnum og beinum. Þá vísar kærunefnd til framangreindrar niðurstöðu aldursgreiningar þar sem fram kemur að fullum beinþroska hafi verið náð. Vannæring geti haft áhrif á aldursgreiningu en leiði þá frekar til þess að viðkomandi sé metinn yngri en hann raunverulega er. Auk þess verður ekki annað ráðið en að niðurstöður sérfræðilegs mats á þroskastigi tanna, handa og úlnliðs séu byggðar á ályktunum fagmanna af læknisfræðilegum gögnum. Líkt og fram kemur í aldursgreiningarskýrslu kæranda er nokkrum rannsóknaraðferðum beitt til að aldursgreina umsækjendur og eru þau viðmið sem lögð eru til grundvallar talin gefa raunsanna mynd af aldri barna og unglinga. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn umræddum fullyrðingum sínum til stuðnings. Samkvæmt niðurstöðu aldursgreiningarinnar hníga öll rök að því að kærandi sé eldri en 18 ára.
Þegar litið er með heildstæðum hætti til gagna málsins, einkum aldursgreiningar, telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá verður að mati kærunefndar, ekki talið að vafi leiki þar á í skilningi 2. málsl. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. júní 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023)
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. eptember 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Women fearing gender-based violence (UK Home Office, apríl 2018);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. eptember 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Forms and prevalence of repeated FGM/C (EUAA, 21. apríl 2023);
- Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
- Hepatitis B (Centers for Disease Control and Prevention, síðast skoðað 19. apríl 2024);
- Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, . september 2022);
- Jiido in Somalia ( Joshua Project, síðast skoðað 19. apríl 2024);
- Key socio-economic indicators (EUAA, eptember 2021);
- Lifrarbólga (Heilsuvera, síðast skoðað 19. apríl 2024);
- ‘On a rampage’: the African women fighting to end FGM
(https://www.theguardian.com/global-development/2021/jun/08/on-a-rampage-the-african-women-fighting-to-end-fgm, 9. júní 2021);
- Overview of Gender-Based Violence in Somalia – Advocacy Brief, 2021 (UNFPA Somalia, 5. mars 2021);
- Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. eptember 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
- Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Somalia: Health care services in Mogadishu (The Danish Immigration Service, mars 2024);
- Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- Somalia: The Security situation in Mogadishu and al-shabaab’s influence in the city, (Landinfo, 8. september 2022);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, eptember 2023);
- Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- The Jido (Jiido clan; traditional areas of occupation; affiliated clans; protection available to members of this clans; whether members of the clan have any conflicts with the Hawyie clans (Immigration and Refugee Board of Canada, 19. janúar 2005);
- The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 9. janúar 2024);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í maí 2018);
- Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, . september 2021) og
- World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2023 er Sómalía eitt hættulegasta land í heimi fyrir börn. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 öðlast barn sómalskt ríkisfang við fæðingu ef faðir barnsins er sómalskur ríkisborgari. Börn sómalskra mæðra geti öðlast sómalskt ríkisfang eftir tvö ár. Lágt hlutfall fæðinga sé skráð í landinu. Samkvæmt skýrslunni mæla sómölsk lög fyrir um endurgjaldslausa grunnmenntun barna. Þrátt fyrir það sé menntun ekki endurgjaldslaus. Jafnframt séu börn ekki skyldug til að ganga í skóla og á mörgum svæðum innan Sómalíu hafi börn ekki aðgang að skóla. Nærri tveir þriðju hlutar barna á skólaaldri gangi ekki í skóla, m.a. af öryggisástæðum, vegna fátæktar og skorts á skólum. Þá þurfi börn oft að þola barnaþrælkun vegna fátæktar fjölskyldunnar, auk þess sem stúlkubörn séu þvinguð í hjónaband samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2023. Barnaníð og kynferðisbrot gegn börnum, þ.m.t. nauðgun, sé alvarlegt vandamál. Engin lög séu í Sómalíu sem leggi bann við eða vinni gegn ofbeldi gagnvart börnum, þ.m.t. barnaníði. Ennfremur hafi sómölsk stjórnvöld ekki tekið nein skref til að berjast gegn misnotkun barna. Börn séu meðal helstu fórnarlamba samfélagslegs ofbeldis (e. societal violence) í Sómalíu. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2022 eru börn á innri flótta í Sómalíu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Börn og konur sem dvelji í flóttamannabúðum í Sómalíu eigi sérstaklega á hættu nauðganir af hálfu vopnaðra manna, þ. á m. hermanna.
Samkvæmt skýrslu aðalframkvæmdastjóra sem lögð var fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, dags. 15. júní 2023, bitna þurrkar og átök í landinu verst á konum og börnum sem séu rúmlega 80% þeirra sem séu á innri flótta. Þá sé talið að um 1,7 milljón barna á skólaaldri séu á vergangi og að einungis 20% þeirra hafi aðgang að grunnmenntun. Frá 8. febrúar 2023 til 31. maí 2023 hafi 482 brot gegn 376 börnum verið tilkynnt til sérstaks starfshóps um eftirlit með alvarlegum brotum gegn börnum. Tilkynnt hafi verið um tólf árásir á skóla og tíu árásir á sjúkrahús. Þá hafi verið tilkynnt um 139 börn sem hafi verið þvinguð til liðs við ólöglega vopnaða hópa, 145 börn sem hafi verið rænt, 43 börn sem hafi verið myrt, 79 börn sem hafi verið limlest og 50 stúlkur sem beittar hafi verið kynferðisofbeldi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá ágúst 2023 geta börn í Sómalíu sætt athöfnum sem eru svo alvarlegar í eðli sínu að þær jafngilda ofsóknum, t.a.m. kynferðisofbeldi, mansali og barnaþrælkun. Þegar athafnir séu hins vegar eingöngu mismunun í eðli sínu skuli einstaklingsbundið mat á því hvort slíkt geti talist ofsóknir taka mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafnanna eða því hvort þær stafi af samsafni athafna. Einstaklingsbundið mat skuli m.a. taka mið af búsetusvæði barnsins innan Sómalíu, fjölskylduhögum þess og þeim stuðningi sem barninu standi til boða frá fjölskyldu og ættbálki. Svipaða umfjöllun er að finna í afstöðu Flóttamannastofnunar til fólks á flótta frá Sómalíu frá september 2022.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í júní 2022 skiptist Rahanweyn ættbálkurinn upp í tvær stórar ættir, Digil og Mirifle. Meðlimir Rahanweyn séu aðallega staðsettir í umdæmum Bay, Bakool og Gedo á milli ánna Jubba og Shabelle og lifi að mestu af búskap. Að hluta til sé litið á Rahanweyn ættbálkinn sem lágsettan ættbálk af meðlimum annarra ættbálka, en hann tilheyri meirihlutaættbálkum. Ættbálkurinn sé fjölmennur og meðlimir hans geti gengið í hjónaband með meðlimum Hawiye og Darood. Þá hafi ættbálkurinn öðlast virðingu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi stofnað sína eigin hersveit og svæðisstjórn. Meðlimir Rahanweyn hafi jafnframt gegnt áhrifamiklum stöðum innan ríkisstjórnar Sómalíu. Meðlimir ættbálksins hafi þó mátt sæta mismunun af hálfu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi sest að á stöðum þar sem aðrir ættbálkar séu ríkjandi. Árið 2017 hafi um helmingur þeirra 396.000 einstaklinga sem dvalið hafi í Mógadisjú eftir að hafa lagt á flótta innan Sómalíu tilheyrt Rahanweyn eða Bantu ættbálknum. Þá séu meðlimir af ýmsum Rahanweyn ætternum hluti af Al-Shabaab samtökunum af efnahagslegum ástæðum. Heimildir benda til þess að ættbálkurinn Jido, einnig þekktur sem Jiido, Jiddo og Jiiduu, sé einkum búsettur í suður Sómalíu og sé undirættbálkur Digil ættbálksins.
Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Landinfo greinir frá því í skýrslunni að heimildir gefi til kynna að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við sig á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða séu virk. Framangreind skýrsla og skýrsla EUAA frá 2023, benda til þess að markhópur Al-Shabaab séu aðallega drengir og ungir karlmenn á aldrinum 12-24 ára. Al-Shabaab miði enn að nýliðun drengja og unglinga í gegnum menntakerfið á svæðum sem þeir stjórni eða hafi veruleg áhrif á. Al-Shabaab krefjist þess að ættir greiði fyrir íslamskar stofnanir á vegum Al-Shabaab og útvegi ákveðinn fjölda nemanda á hverju ári. Fjöldi nemanda sé ekki fastur heldur miðaður við þörf Al-Shabaab hverju sinni. Dæmigerð aðferð við slíka ráðningu sé að Al-Shabaab hafi samband við öldunga í ættbálkum á staðnum og fram fari samningaviðræður um hversu marga drengi ættin muni senda til Al-Shabaab. Heimildarmenn hafi greint frá því að þeir reyni að dreifa byrgðum á milli hinna ýmsu undirætta og fjölskyldna. Þá geti áhrifamiklar ættir varið sig fyrir slíkum ráðningu, t.d. með því að greiða bætur til Al-Shabaab í formi reiðufjár eða vopna. Þá hafi efnaðri fjölskyldur borgað fátækari fjölskyldum fyrir að senda börnin sín í stað þeirra. Heimildir bendi þó til þess að slíkar framkvæmdir við ráðningar eigi sér síður stað á kjarnasvæðum Al-Shabaab, líkt og í mið-Juba. Ungt fólk sem alist upp þar sem Al-Shabaab hafi óumdeilanlega yfirráð sé að miklu leyti berskjaldað fyrir hugmyndafræði Al-Shabaab þar sem samtökin séu líkt og ríkisvald sem hafi rétt til að ráða hermenn. Íbúar á slíkum kjarnasvæðum hafi því síður möguleika á að forðast eða þagga niður ákvörðun samtakanna um ráðningu. Þá hafi þeim sem neiti beiðni samtakanna um að ráða yngri fjölskyldumeðlimi til samtakanna verið hótað og þeir stimplaðir sem vantrúarmenn sem hafni íslamstrú og lögum. Sumir hafi verið drepnir sem viðvörun fyrir aðra í samfélaginu.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónustu gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Kærandi byggir á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki af hálfu hryðjuverkahópsins Al-Shabaab og meðlima ættbálks kennara hans í heimþorpi hans [...].
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023 greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í þorpinu […] í [...] umdæmi á neðra Shabelle landsvæðinu. Kærandi hafi yfirgefið heimasvæði sitt árið 2021 og flutt til borgarinnar […] á Mudug landsvæðinu þar sem hann hafi búið ásamt fjölskyldu sinni þar til hann flúði heimaríki sitt ári síðar.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. september 2023, kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram gögn til staðfestingar á auðkenni sínu. Útlendingastofnun hafi ekki talið sérstaka ástæðu til þess að láta kæranda þreyta tungumála- og staðháttapróf hjá tungumálaþjónustunni Verified þar sem að mati stofnunarinnar geti tungumála- og staðháttapróf að verulega takmörkuðu leyti veitt vísbendingar um hvaðan umsækjandi kunni að eiga uppruna sinn að rekja og því hafi verið leyst úr framangreindu á grundvelli trúverðugleika. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun var kærandi spurður um staðhætti á heimasvæði sínu í neðra Shabelle og á Mudug landsvæðunum. Að mati Útlendingastofnunar hafi kæranda ekki tekist að greina frá staðháttum í heimasvæði sínu með skýrum og ýtarlegum hætti. Þá hafi kærandi að mati Útlendingastofnunar veitt rangar upplýsingar um Facebook aðganga sína og þær upplýsingar um heimasvæði hans sem hafi komið þar fram. Útlendingastofnun lagði því til grundvallar að kærandi ætti uppruna sinn að rekja til […] umdæmis á landsvæði Mudug líkt og fram hafi komið á einum Facebook aðgangi kæranda en eftir sem áður teldi stofnunin auðkenni hans óstaðfest.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar er því haldið fram að kæranda hafi ekki tekist að greina frá staðháttum í og kringum meint heimasvæði sitt í Sómalíu með skýrum og ítarlegum hætti. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023 greindi kærandi frá því heimaþorp sitt […] væri staðsett í [...] umdæmi á neðra Shabelle landsvæðinu. Aðspurður greindi kærandi rétt frá því að landsvæðið neðra Shabelle sé staðsett í South West ríki í Sómalíu og að höfuðborg landsvæðisins sé Marka. Aðspurður greindi kærandi einnig rétt frá því að þorpin Aalafuutow og Lafoole væru staðsett í nálægð við […], heimaþorp kæranda. Kærandi greindi hins vegar ranglega frá því að höfuðborg South West aðildarríkisins væri Baydhabo og gat ekki lýst fána aðildarríkisins nema að takmörkuðu leyti. Þá gat kærandi einungis greint réttilega frá tveimur af sjö umdæmum á neðra Shabelle landsvæðinu og gat ekki greint frá því hvaða umdæmi væru næst heimaumdæmi hans [...]. Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun 5. september 2023 greindi kærandi aðspurður réttilega frá því að borgin […] sé staðsett á landsvæði Mudug og sé höfuðborg landsvæðisins. Kærandi gat einungis greint réttilega frá einu umdæmi af fimm á Mudug landsvæðinu.
Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now, bæði frá því frá því í desember 2021 og janúar 2023, er […] staðsett á svæði sem Al-Shabaab fer með yfirráð á. Yfirráð yfir Gaalkayo, þar sem kærandi og fjölskylda hans voru búsett áður en hann flúði heimaríki sitt, skiptast á milli sómalskra stjórnvalda/ATMIS og sjálfstæðra yfirvalda í Puntland.
Að framangreindu virtu og með tilliti til ungs aldurs kæranda þegar hann yfirgaf heimaríki og þess að kærandi hafi ekki getað gefið ítarleg svör um […] og Mudug landsvæðið, sem Útlendingastofnun leggur til grundvallar að sé heimasvæði kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé hægt að útiloka að kærandi sé fæddur og uppalinn í þorpinu […] í [...] umdæmi á neðra Shabelle landsvæðinu í Sómalíu. Verður því lagt til grundvallar að kærandi sé fæddur og uppalinn í […] í [...] umdæmi á neðra-Shabelle landsvæðinu í Sómalíu. Þá verður lagt til grundvallar að kærandi hafi verið búsettur í […] á Mudug landsvæðinu ásamt fjölskyldu sinni þegar hann yfirgaf heimaríki sitt. Kærandi hefur ekki sýnt fram á annað en að fjölskylda hans sé búsett þar enn og leggur kærunefnd því til grundvallar að kærandi geti sameinast fjölskyldu sinni þar snúi hann til baka til heimaríkis.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 6. janúar 2023 voru lagðar fyrir kæranda spurningar um heilsufar til undirbúnings aldursgreiningar hans. Kærandi greindi frá við því að vera fæddur […] og að hafa verið 16 ára og 8 mánaða þegar hann hafi flúið heimaríki sitt. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023 kvaðst kærandi ekki verið viss um hvenær hann hafi flúið heimaríki en taldi það hafi verið í júlí eða ágúst 2022. Aðspurður um misræmi þess sem hann hafi sagt lögreglunni og í viðtali um það hvenær hann hafi flúið heimaríki greindi kærandi frá því að hafa hafi orðið fyrir andlegu áfalli og hafi lent í erfiðleikum á leið sinni frá Sómalíu og hann myndi því ekki nákvæmlega hvenær hann hafi yfirgefið heimaríki sitt. Kærandi kvaðst ekki vita hvort að fjölskylda hans væri enn búsett í borginni […] þar sem hann væri ekki í sambandi við þau. Kærandi greindi frá því að tilheyra Jiido ættbálknum, og undirbættbálkunum Waajis, Surubo og Gaceyte, sem væri minnihlutaættbálkur. Það væru tvær kvíslir af Jiido ættbálknum, önnur sem tilheyrði höfuðættbálknum Dir og hin tilheyrði höfuðættbálknum Hawiye. Höfuðættbálkarnir Dir og Hawyie viðurkenni ekki Jiido ættbálkinn og afneiti honum. Kærandi kvaðst tilheyra höfuðættbálknum Dir. Kærandi kvaðst ekki vita til þess að Jiido ættbálkurinn gengi undir öðru nafni þar sem hann hafi verið ungur og hafi ekki lært meira um ættbálka. Ættbálkar sem væru ráðandi á heimasvæði kæranda hafi verið Dir, Hawyie og Raxanwayn (Digil og Mirafle). Almenningur sýni meðlimum Jiido ættbálksins ekki virðingu og komi illa fram við þá. Kærandi hafi orðið fyrir mismunun og pyntingum vegna aðildar sinnar að ættbálknum. Annað fólk hafi sagt kæranda að gera hluti fyrir þau og ef hann hafi neitað þá hafi þau minnt kæranda á hvaða ættbálki hann tilheyrði. Í skólanum hafi sumir nemendur beðið kæranda um að sitja annars staðar og kennarinn hafi t.d. sagt honum að þrífa stóla í kennslustofunni eftir skóla. Árið 2017 hafi kærandi verið að ganga með systur sinni og strákur úr öðrum ættbálki hafi komið og viljað snerta hana. Kærandi hafi beðið hann um að hætta og þá hafi strákurinn og fjórir aðrir strákar beitt kæranda ofbeldi í sjö klukkustundir. Kærandi hafi ekki tilkynnt atvikið þar sem strákarnir sem hafi pyntað hann og fólkið sem stjórnaði í þorpinu, Al-Shabaab, hafi verið í sama ættbálki. Síðar hafi þessir sömu einstaklingar nauðgað systur hans. Kærandi greindi frá því að einn dag árið 2021, líklega um mitt árið, þegar hann hafi verið í skólanum hafi kennarinn hans sagt kæranda að hann væri með starf fyrir hann. Eftir skóla hafi kærandi ekið með kennaranum að húsi fyrir utan heimaþorp hans. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að þeir hafi farið í hádegishléinu. Kennarinn hafi sýnt kæranda sprengjur og byssur og sagt honum að þetta væri starfið sem hann hefði fyrir kæranda. Kennarinn greindi kæranda frá því að þetta væri lítið og létt verkefni, kennarinn myndi fara með hann til góðrar borgar og kærandi myndi vinna þar. Að verki loknu myndi kennarinn fara með kæranda aftur heim. Kennarinn hafi tjáð kæranda að hann ætti að vinna fyrir meðlimi Al-Shabaab. Kærandi hafi viljað hugsað málið en kennarinn hafi viljað sannfæra hann um að kærandi gæti unnið verkefnið af hendi. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa vitað hvaða verkefni hann hafi átt að vinna eða hvar það hafi átt að fara fram, einstaklingar sem hann hafi átt að vinna fyrir hafi átt að sýna honum það. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að hann haldi að hann hafi átt að drepa fólk fyrir Al-Shabaab. Að þeir hafi ætlað að láta kæranda hafa sprengju til að framkvæma sjálfsvígsárás og þess háttar verkefni. Kennarinn hafi svo beðið kæranda um að hitta sig við sólsetur og kærandi hafi farið heim. Síðar í viðtalinu sagði kærandi að kennarinn hafi ætlað að kynna hann fyrir einstaklingum sem hann ætti að vinna með þegar þeir myndu hittast við sólsetur. Þegar móðir kæranda hafi séð að hann væri í uppnámi hafi kærandi sagt henni hvað kennarinn hafi sagt. Móðir kæranda hafi þá haft samband við fólk sem hún hafi þekkt í Buulo Madhed (Buulamareer) umdæmi, þar sem kennarinn hafi rekið verslun og þar sem sómölsk stjórnvöld væru við völd, og sagt þeim hvað kennarinn hafi sagt við kæranda. Í kjölfar þess hafi yfirvöld tekið yfir búð kennarans og handsamað hann. Móður kæranda hafi þá grunað að meðlimir Al-Shabaab kæmu að leita að honum og sagt kæranda að fela sig á sveitabýli fjölskyldunnar. Þegar kærandi hafi dvalið þar hafi tveir meðlimir Al-Shabaab komið til móður hans að leita að honum. Móðir hans hafi tekið þá ákvörðun að yfirgefa heimaþorp þeirra eftir að kennari kæranda hafi sagt nokkrum Al-Shabaab meðlimum að kærandi og móðir hans hafi átt hlut í því að yfirvöld hafi handsamað sig. Kærandi og fjölskylda hans hafi farið í nærliggjandi þorp nálægt Buulo Mahed og ekið þaðan til Mógadisjú. Faðir kæranda og bróðir hans, sem hafi verið veikur, hafi verið í Mógadisjú þegar þau hafi komið þangað. Þar sem Al-Shabaab hafi verið mjög virkt í Mógadisjú hafi þau orðið hrædd um öryggi sitt og ákveðið að fara til […] í Mudug umdæmi. Faðir kæranda og bróðir hans hafi orðið eftir í Mógadisjú. Kærandi hafi búið í […] í u.þ.b. eitt ár þar til hann hafi flúið frá Sómalíu. Kærandi hafi gengið í skóla þar í þrjá mánuði en hafi hætt vegna þeirrar mismununar sem hann hafi orðið fyrir. Þegar fjölskyldan hafi verið í […] hafi móðir kæranda fengið upplýsingar um að kennarinn hafi verið tekinn af lífi af stjórnvöldum og að meðlimir Al-Shabaab og meðlimir ættbálks kennara kæranda væru á eftir kæranda. Nokkru síðar hafi óþekktir einstaklingar drepið föður kæranda þegar hann var á leið heim úr mosku. Aðspurður kvaðst kærandi ekki vita nákvæmlega hvenær faðir hans hafi verið drepinn en að það hafi líklega verið í maí 2022. Um einum og hálfum mánuði eftir að faðir kæranda hafi verið drepinn hafi þeir komið á heimili fjölskyldunnar í leit að kæranda. Þeir hafi stokkið yfir hliðið fyrir framan hús kæranda, farið inn í húsið, hrópað nafn kæranda, beint byssu að bróður kæranda og skotið hann. Þá hafi einn þeirra hrópað að þetta væri ekki kærandi. Þeir hafi hótað móður hans og slegið hana með byssuskefti, spurt um kæranda og leitað hans í húsinu. Á meðan á þessu stóð hafi kærandi verið að hugsa um hænur sem þau hafi átt og þegar hann hafi heyrt raddirnar og skothljóðin hafi hann falið sig. Síðan hafi hann farið inn í húsið og séð bróður sinn dáinn. Kærandi hafi ekki tekið þátt í að jarða föður sinn og bróður og kvað aðspurður að þeir hafi verið grafnir nálægt flugvellinum í […] en hann myndi ekki í hvaða kirkjugarði. Kærandi greindi frá því að eftir að fjölskyldan hafi flutt til […] hafi móðir hans fengið hótanir í símaskilaboðum og símtölum frá meðlimum Al-Shabaab þar sem þeir hafi sagt að þeir vissu hvar þau væru. Kærandi hafi ekki átt síma í heimaþorpi sínu þar sem Al-Shabaab hafi bannað það. Þegar hann hafi keypt sér síma í […] hafi honum farið að berast hótanir frá Al-Shabaab. Kærandi greindi frá því að óttast einnig meðlimi ættbálks kennara síns sem hafi ofsótt hann. Kennarinn hafi tilheyrt Hawyie ættbálknum. Kærandi kvaðst óttast að vera drepinn af meðlimum Al-Shabaab eða ættbálki kennarans ef hann sneri aftur til Sómalíu. Í framhaldsviðtali 5. september 2023 greindi kærandi frá því að hafa búið í hverfinu […] í […]. Hann hafi búið þar með móður sinni og systkinum. Kærandi greindi frá því að hafi fengið hótanir frá hryðjuverkahópnum Al-Shabaab eða meðlimum ættbálks kennara hans á gömlum Facebook aðgangi hans. Kærandi hafi eytt út skilaboðum, ákveðið að hætta að nota aðganginn og búið til nýjan Facebook aðgang.
Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun og kærandi telur m.a. að ef Útlendingastofnun hafi ekki talið frásögn kæranda um ástæður flótta hans nægilega ítarlega hefði stofnuninni verið í lófa lagið að spyrja nánar út í frásögn hans.
Með tölvubréfi, dags. 12. apríl 2024, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri upplýsingum um frásögn kæranda, einkum hvað varðar samskipti kæranda við kennara sinn, handtöku kennarans, flutning fjölskyldunnar til […], atburði sem hafi átt sér stað í […], hótanir sem kæranda og móður hans hafi borist í síma og á Facebook og um samband kæranda við fjölskyldu sína í Sómalíu. Í svörum kæranda, sem bárust 21. apríl 2024, greindi kærandi frá því að hann hafi farið með kennaranum í hús utan bæjarins vegna þess að kennarinn hafi beðið hann um það. Kærandi hafi ekki vitað hver hafi átt húsið. Hann kvaðst hafa verið áður með kennaranum í bíl hans. Kennarinn hafi sagt kæranda í morgunfrímínútum að hann ætti að verða eftir í lok skóladagsins. Skólinn hafi verið búinn um hádegisbilið og þá hafi kennarinn farið með hann í húsið fyrir utan bæinn. Kærandi hafi átt að hitta kennarann við sólsetur sama dag í skólanum. Kærandi greindi frá því að hann hafi síðar komist að því að kennarinn væri meðlimur hryðjuverkahópsins Al-Shabaab . Hvað varðar lokun verslunar kennarans og handtöku hans greindi kærandi frá því að móðir hans hafi ekki fengið að vita nákvæmlega hvenær þetta hafi átt sér stað. Þar sem þau hafi vitað að kennarinn hafi verið meðlimur Al-Shabaab og meðlimur meirihlutaættbálks hafi kennarinn getað gefið bæði hryðjuverkahópnum og Al-Shabaab upplýsingar um kæranda og móður hans svo þeir gætu komið fram hefndum gegn kæranda og refsað þeim fyrir að hlýða þeim ekki. Kærandi kvað það hafa verið meðlimi Al-Shabaab sem hafi komið að leita hans í […] áður en fjölskyldan hafi flúið. Kærandi greindi frá því að faðir hans hafi farið til Mógadisjú í byrjun árs 2021 ásamt nafngreindum bróður hans, X, vegna heilsufarsvandamála. Kærandi myndi einungis eftir því að fjölskyldan hafi verið í nokkrar vikur í Mógadisjú og svo hafi þau öll farið saman frá Mógadisjú til […]. Kærandi greindi frá því að hann teldi það hafa verið meðlimi Al-Shabaab sem hafi verið að leita hans í […]. Fjölskyldan hafi verið í sambandi við fólk í gamla heimabæ sínum […] til að athuga með bóndabýlið sitt þar og hann telji að meðlimir Al-Shabaab og ættbálks kennarans hafi fengið upplýsingar frá þessu fólki um kæranda og fjölskyldu hans. Jafnvel þó að einstaklingar sem hafi drepið föður hans og bróður hafi falið auðkenni sín hafi það verið skilningur kæranda að þetta hafi verið annað hvort meðlimir Al-Shabaab eða ættbálks kennarans. Kærandi kvað einn af árásarmönnum sem hafi drepið bróður hans hafi þekkt kæranda vel og því hafi þeir vitað að þeir hafi drepið rangan einstakling. Þessir einstaklingar hafi reynt að finna kæranda þar sem honum hafi borist stanslausar hótanir frá þeim. Kærandi kvaðst hafa búið í Sómalíu í einn mánuð eftir að bróðir hans hafi verið drepinn. Kærandi greindi frá því að hótanir í síma hafi falið í sér að þeir sögðust hafa vitneskju um hvert skref kæranda og hafi hótað að drepa hann og að kæranda hafi byrjað að berast hótanir í síma þegar hann hafi haft samband við fólk úr gamla heimabæ hans […]. Kærandi kvaðst ekki vita hvernig þessir einstaklingar hafi fengið símanúmerið hans en líklega hafi þeir fengið það frá fólkinu í […]. Kærandi greindi frá því að eftir atvikið hafi ættbálkur kennarans farið að drepa fjölskyldu hans, hóta þeim og verið staðráðinn í að þurrka þau út í heild sinni. Áður hafi þau einnig upplifað hótanir, einelti í skóla, ónauðsynlega frelsissviptingu og einhvers konar útilokun frá samfélaginu. Kærandi kvaðst ekki hafa neitt samband við fjölskyldu sína í Sómalíu og enga vitneskju um hvar fjölskylda hans væri búsett.
Það er mat kærunefndar að frásögn kæranda um ástæður flótta hans sé ekki nákvæm. Þá er það mat kærunefndar að ýmislegt í frásögn kæranda dragi úr trúverðugleika hennar. Einkum hvað varðar tímasetningar atburða, ástæður, aðstæður og staðsetningar áreitis, ofbeldis og hótana sem kærandi greinir frá gegn honum og fjölskyldu hans. Í umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hjá lögreglunni greindi kærandi frá því að hafa flúið heimaríki sitt tveimur mánuðum áður, í september 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023 greindi kærandi frá því að hafa farið frá Sómalíu til Tyrklands, Grikklands, Danmörku og Belgíu áður en hann hafi komið til Íslands. Hann greindi frá því að hafa dvalist í Grikklandi í um einn og hálfan mánuð og í öðrum framangreindum löndum í einn eða tvo daga. Þetta styður við þá frásögn kæranda í umsókn um alþjóðlega vernd að hann hafi farið frá heimalandi í september 2022. Í aldursgreiningarviðtali hjá Útlendingastofnun 6. janúar 2023, greindi kærandi frá því að vera fæddur [...] og hafa yfirgefið heimaríki sitt þegar hann hafi verið 16 ára og 8 mánaða. Samkvæmt framangreindum afmælisdegi kæranda hefur það þá verið í apríl 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023, kvaðst kærandi ekki vita nákvæmlega hvenær hann hafi yfirgefið heimaríki sitt vegna þess að hann hafi orðið fyrir miklum áföllum, en taldi það hafa verið í júlí eða ágúst 2022. Kærandi gat ekki greint frá því nákvæmlega hvenær faðir hans og bróðir hafi verið myrtir, en taldi föður sinn hafa verið myrtan í maí 2022 og bróður sinn um einum og hálfum mánuði síðar. Í svörum til kærunefndar greindi kærandi frá því að hafa flúið frá Sómalíu mánuði eftir að bróðir hans hafi verið myrtur. Þá dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda að hann hafi gleymt því hvar faðir hans og bróðir séu jarðaðir. Kærandi greindi frá því að hann hafi átt að hitta kennara sinn við sólsetur sama dag og kennarinn hafi farið með hann í hús fyrir utan heimaþorp hans. Kærandi hafi ekki hitt kennarann og meðlimi Al-Shabaab á framangreindum tíma. Einhverju síðar hafi verslun kennarans verið tekin yfir af stjórnvöldum og kennarinn handtekinn. Enn síðar hafi meðlimir Al-Shabaab leitað að kæranda á heimili hans í heimaþorpi hans. Frásögn kæranda ber með sér að það hafi ekki haft neinar afleiðingar fyrir hann að koma ekki að hitta kennara og meðlimi Al-Shabaab daginn sem kennarinn hafði beðið hann um að hitta þá og kærandi hefur ekki gefið neinar skýringar á því hvar hann hafi verið á því tímabili sem framangreindir atburðir áttu sér stað þar til að meðlimir Al-Shabaab hafi komið að leita að honum. Að mati kærunefndar dregur framangreint úr trúverðugleika frásagnar kæranda. Þá er það mat kærunefndar að sú frásögn kæranda að eftir að stjórnvöld hafi yfirtekið verslun kennarans í Bulo Madhed og handtekið hann hafi kennarinn getað upplýst meðlimi hryðjuverkahópsins Al-Shabaab og meðlimi ættbálks kennarans um að kærandi og móðir hans hafi staðið að baki þessum aðgerðum en óljóst er hvernig kennarinn gæti hafa vitað að yfirvöld hafi handtekið hann eftir ábendingu frá móður kæranda. Í svörum til kærunefndar greinir kærandi frá því að hann hafi talið að einstaklingar sem hafi verið að leita að honum í […] hafi verið meðlimir Al-Shabaab og að það hafi verið skilningur kæranda að það hafi verið annað hvort meðlimir Al-Shabaab eða ættbálks kennara kæranda sem hafi myrt föður hans og bróður og sent kæranda stanslausar hótanir símleiðis. Þá hafi einn af þeim einstaklingum sem hafi drepið bróður hans þekkt kæranda vel. Misræmis gætir um hver hafi leitað kæranda, hótað honum og myrt föður hans og bróður og kærandi sjálfur virðist óviss um það. Frásögn hans ber með sér að þar sé um getgátur hans sjálfs að ræða og óljóst hvernig einhver af þessum einstaklingum hafi þekkt kæranda persónulega en kærandi sjálfur hafi hvorki hugmynd um hver sá aðili var né á hvers vegum. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun og í svörum kæranda til kærunefndar greinir kærandi frá því að hafa fengið endalausar hótanir í skilaboðum bæði á Facebook aðgangi hans og í síma frá því að hann hafi keypt sér síma í […]. Skýringar kæranda í svörum til kærunefndar á því hvernig meðlimir Al-Shabaab og/eða ættbálks kennara kæranda úr heimaþorpi hans hafi fengið upplýsingar um símanúmer hans og búsetustað eftir að hann hafi flúið fyrrum heimaþorp sitt eru óskýrar og bera með sér að um getgátur hans sjálfs sé að ræða. Þá hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn máli sínu til stuðnings s.s. skjáskot af hótunum sem honum hafi borist. Þá dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda, í ljósi heimilda um mikilvægi ættbálka í Sómalíu, að kærandi greindi frá því að Jiido, ættbálkur kæranda, tilheyri höfuðættbálknum Dir en samkvæmt framangreindum heimildum tilheyrir Jiddo ættbálkurinn höfuðættbálknum Digil. Digil er einn af þeim ættbálkum sem heyra undir höfuðættbálkinn Raxanwayn sem kærandi kvað hafa verið í meirihluta í heimaþorpi hans.
Í ljósi framangreindra heimilda um heimaríki kæranda þá er að mati kærunefndar ekki hægt að útiloka að kærandi hafi átt á hættu að vera þvingaður til að starfa fyrir hryðjuverkahópinn Al-Shabaab í […] og að kennarar hafi reynt að þvinga nemendur til að starfa fyrir samtökin. Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats er það niðurstaða kærunefndar að frásögn kæranda af samskiptum kæranda við kennara hans, yfirtöku stjórnvalda á verslun kennarans og handtöku og lífláti kennarans sé að öllu leyti ótrúverðug. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi sé sérstakt skotmark Al-Shabaab eða Hawyie ættbálksins. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að útiloka að faðir og bróðir kæranda séu látnir en í ljósi framangreinds trúverðugleikamats og heimilda um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að andlát þeirra tengist ekki því sem reifað er í framangreindri frásögn kæranda. Þá verður af framangreindum heimildum ekki talið að kærandi eigi á hættu að vera þvingaður til að ganga til liðs við hryðjuverkahópinn Al-Shabaab í […] þar sem hann var búsettur ásamt fjölskyldu sinni áður en hann flúði heimaríki sitt enda fari hópurinn ekki með yfirráð á svæðinu.
Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kæranda hafi ekki tekist að sýna fram á með rökstuddum hætti að hann hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum af hálfu Al-Shabaab, meðlima Hawyie ættbálksins eða annarra einstaklinga í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.
Kærandi hefur einnig greint frá því að tilheyra minnihlutaættbálknum Jiido og að hann hafi mátt þola mismunun og ofbeldi af þeim sökum. Þrátt fyrir að kærandi hafi ekki getað gefið nákvæm svör um ættbálk sinn í viðtölum hjá Útlendingastofnun telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi verið meðlimur ættbálksins Jiido. Heimildir benda til þess að ættbálkurinn Jido, einnig þekktur sem Jiido, Jiddo og Jiiduu, sé einkum búsettur í suður Sómalíu og sé undirættbálkur Digil ættbálksins. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í júní 2022 skiptist Rahanweyn (Raxanwayn) ættbálkurinn upp í tvær stórar ættir, Digil og Mirifle. Jafnvel þó ættbálkur kæranda kunni að sæta mismunun og aðrir meirihlutaættbálkar hafi litið niður á hann á þeim svæðum þar sem aðrir meirihlutaættbálkar eru ríkjandi bendir frásögn kærandi ekki til þess að hann hafa orðið fyrir eða eigi á hættu mismunun eða ofbeldi sem nái því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður meðlima Digil ættbálksins er það mat kærunefndar að aðstæður hans séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1.mgr. 37. gr. laganna..
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna.
Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hann eigi í hættu á að vera þvingaður til að starfa fyrir hryðjuverkahópinn Al-Shabaab eða sé í sérstakri hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab, meðlima Hawyie ættbálksins eða annarra aðila. Líkt og rakið hefur verið leggur kærunefnd til grundvallar að heimasvæði kæranda sé […] á Mudug landsvæðinu í Sómalíu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara sómölsk stjórnvöld eða sjálfstæð stjórnvöld í Puntland með full yfirráð yfir heimasvæði kæranda og svæðum þar í kring. Samkvæmt leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 eru vísbendingar um að ofbeldi eigi sér stað í fylkinu en þó ekki á háu stigi. Þurfi að liggja fyrir verulegar einstaklingsbundnar ástæður svo viðkomandi myndi teljast eiga á raunverulegri hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive) verði hann sendur aftur til Mudug landsvæðisins.
Með vísan til framangreinds og fyrirliggjandi gagna málsins verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hans fyrir þeirri hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Kærandi byggir á því að félagslegar aðstæður hans í heimaríki séu erfiðar auk þess sem almennar aðstæður á heimasvæði hans, neðra Shabelle, séu þess eðlis að hann eigi í hættu á að vera drepinn eða þvingaður til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab. Þá hafi kærandi misst tengsl við fjölskyldu sína eftir að þau hafi flúið heimasvæði hans.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Með vísan til niðurstöðu kærunefndar að framan verður ekki talið að aðstæður kæranda nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023 greindi kærandi frá því að eiga við vandamál að stríða í lifur og að hann biði eftir læknatíma hér á landi. Andlega liði honum vel en að áfall vegna þeirra atburða sem hafi hent hann í heimaríki hafi enn áhrif á hann.
Við málsmeðferð hjá kærunefnd lagði kærandi fram nótur frá göngudeild sóttvarna dags. 28. nóvember 2022 til 2. ágúst 2023. Þar kemur m.a. annars fram að kærandi hafi greinst með […] en að niðurstöður veirumagns í blóði sé ekki komið. Þá kemur fram að hann hafi átt að fara í eftirfylgni hjá lækni. Þá hafi kærandi átt erfitt með svefn vegna þeirra atburða sem hafi hent hann í heimaríki. Í tölvubréfi, dags. 12. apríl 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari gögnum varðandi heilsufar kæranda. Kærandi hefur ekki lagt fram frekari gögn varðandi heilsufar sitt.
Heimildum samkvæmt er […] veirusýking og flestir sem smitist jafni sig á nokkrum mánuðum. Hluti þeirra sem smitist af […] losi sig ekki við veiruna og fái langvinna sýkingu. Einstaklingar sem smitist ungir af [...], til dæmis frá móður við fæðingu, séu í mestri hættu á að fá langvinna sýkingu sem geti leitt til skorpulifur eða krabbameins í lifur. Sjúkdómurinn sé greindur með blóðprufu og hægt sé að meðhöndla sjúkdóminn með veirulyfjum. […] vegna […] -, […] -, […] -, […] - eða inflúensuveiru sé skammvinn og þarfnast sjaldan meðferðar.
Samkvæmt framangreindum gögnum er ekkert sem bendir til þess að kærandi sé sýktur af langvinnri sýkingu vegna […]. Þá er ekkert sem bendir til þess að kærandi þjáist af skyndilegum eða lífshættulegum sjúkdóm. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu er í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kæranda verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki talið að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi er ungur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga móður og systkini í heimaríki sínu. Þá benda heimildir ekki til þess að ættbálkur kæranda sé minnihlutaættbálkur þrátt fyrir að hann sæti mismunun á sumum svæðum innan Sómalíu.
Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 6. nóvember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kæranda til kærunefndar er því haldið fram að beiting brottvísunar feli í sér afturvirkni og að kærandi hafi haft réttmætar væntingar um að farið yrði eftir eldri lögum þar sem hann hafi sótt um vernd fyrir gildistöku laga nr. 136/2022 um landamæri. Í lögum um landamæri kemur ekki annað fram en að lögin taki þegar gildi. Lög um landamæri voru undirrituð af forseta Íslands 28. desember 2022 og birt í A-deild Stjórnartíðinda 9. janúar 2023 og höfðu því tekið gildi þegar hinar kærðu ákvarðanir voru teknar. Kærandi var upplýstur um lagabreytinguna og gefið færi á að koma að andmælum við mögulegri brottvísun. Verður því ekki fallist á málsástæðu kæranda um að óheimilt hafi verið að ákvarða í máli hans í samræmi við lagabreytinguna.
Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 6. nóvember 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi kvað endursendingu og brottvísun vera ósanngjarnar ráðstafanir vegna þess að hann hafi komið til Íslands til að leita verndar og ef hann yrði sendur til baka til heimaríkis yrði hann drepinn.
Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. [...] Þorbjörg I. Jónsdóttir
Frumrit:
Frumrit úrskurðarins verður sent talsmanni kæranda með öruggum rafrænum hætti.
Ljósrit:
Útlendingastofnun
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ríkislögreglustjóri
Skúlagötu 21
101 Reykjavík