29 apríl 2024

/

Úrskurður 3/2024 Framboð til forseta Íslands


Tilvísun lks2024040007

 


Ár 2024, 29. apríl kl. 11:00 kom landskjörstjórn saman á fundi í Þjóðminjasafni Íslands til að úrskurða um gildi framkominna framboða til kjörs forseta Íslands 1. júní 2024.   


Fyrir er tekið framboð Ástþórs Magnússonar Wium til kjörs forseta Íslands og kveðinn um það svofelldur


ú r s k u r ð u r  nr. 3/2024:


Hinn 26. apríl 2024 kl. 11:05 kom Ástþór Magnússon Wium á fund landskjörstjórnar og skilaði  tilkynningu um framboð til forseta Íslands. Tilkynningin var undirrituð af Ástþóri og henni fylgdi undirskriftalisti meðmælenda til stuðnings framboðinu, samtals 62 blaðsíður. Á tilkynningarblaðinu kom fram að meðmælum væri einnig safnað rafrænt. 


Landskjörstjórn hefur kannað framboðstilkynningu Ástþórs Magnússonar Wium til til kjörs forseta Íslands og þau meðmæli sem framboðinu fylgja. Könnunin leiddi í ljós að framboðið uppfyllir bæði skilyrði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og kosningalaga nr. 112/2021.


Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð Ástþórs Magnússonar Wium til kjörs forseta Íslands sé gilt. 


 


Ú R S K U R Ð A R O R Ð


Framboð Ástþórs Magnússonar Wium til forsetakjörs 1. júní 2024 er gilt.


 


Landskjörstjórn 


 


Kristín Edwald, formaður


Arnar Kristinsson

Ebba Schram

Hulda Katrín Stefánsdóttir


Magnús Karel Hannesson