02 maí 2024
/
Nr. 442/2024 Úrskurður
Hinn 2. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 442/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24010059
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 22. janúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa honum frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, en til vara með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til nýrrar meðferðar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 3. júlí 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 12. júlí 2023 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Kýpur. Hinn 17. ágúst 2023 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Kýpur, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá kýpverskum yfirvöldum, dags. 21. ágúst 2023, kom fram að honum hefði verið veitt viðbótarvernd 15. nóvember 2017 og að hann hefði verið með gilt dvalarleyfi þar í landi til 14. mars 2024. Hinn 24. ágúst 2023 var annarri upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Kýpur, sbr. 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá kýpverskum yfirvöldum, dags. 1. september 2023, kom fram að kærandi hafi ekki framvísað skilríkjum þegar hann hafi sótt um alþjóðlega vernd og yfirvöld hefðu ekki upplýsingar um hvort aldursgreining hefði farið fram. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. 13. nóvember 2023 og 10. janúar 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 19. janúar 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi brottvísað frá landinu með endurkomubanni til tveggja ára. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 2. febrúar 2024. Frekari gögn bárust 14. apríl 2024.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Kýpur. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Kýpur ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kæranda var ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Var skorað á kæranda að yfirgefa landið án tafar og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann landið sjálfviljugur yrði endurkomubannið fellt niður.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð til kærunefndar vísar kærandi til viðtals síns hjá Útlendingastofnun 13. nóvember 2023, greinargerðar og viðbótargreinargerðar til stofnunarinnar hvað málavexti varðar. Í greinargerð til kærunefndar gerir kærandi athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar á aldri hans, rannsókn og röksæmdafærslu stofnunarinnar. Telur kærandi að samkvæmt 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga eigi niðurstöður aldursgreiningar að vera metnar í samhengi við önnur atriði málsins og allur vafi metinn kæranda í hag. Niðurstöðurnar eigi ekki að hafa úrslitaáhrif á úrlausn málsins. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna framangreindu til stuðnings og telur að ekki sé heimild til þess að ákvarða aldur hans alfarið út frá fyrirliggjandi rannsókn aldursgreiningar án þess að líta til annarra félagslegra þátta. Þá telji kærandi ástæðu til að draga í efa hlutleysi þeirra réttartannlækna sem framkvæmdu umrædda aldursgreiningu á kæranda, en í umsögn sem þau hafi skilað til Alþingis árið 2020 vegna frumvarps um breytingu á lögum um útlendinga, sem sneri að framkvæmd aldursgreiningar, komi fram skoðanir tannlæknanna í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd sem kærandi telur að beri með sér fordóma í garð þeirra. Kærandi telur aðfinnsluvert að Útlendingastofnun feli einstaklingum, sem hafa lýst skoðunum af þessu tagi opinberlega, það verkefni að framkvæma aldursgreiningar á þessum viðkvæma hópi. Sé þetta sérstaklega ámælisvert í ljósi þess hversu mikla þýðingu umræddar greiningar hafa við mat á aldri. Enn fremur gerir kærandi athugasemdir við að réttartannlæknar hafi metið aldur hans út frá röntgenmyndum af hönd og úlnlið, en ekki röntgenlæknar sem hafa sérþekkingu á þessu sviði. Þá vísar kærandi til umfjöllunar réttartannlækna í skýrslu þeirra um rannsókn vegna aldursgreiningar kæranda og bendir á nokkur atriði í skýrslunni sem hann telji vera áfátt og skorta heimildir fyrir. Heimildir sem kærandi hafi kynnt sér um beinþroska handabeina beri ekki saman við þær upplýsingar sem fram komi í framangreindri skýrslu. Telur kærandi að sú rannsóknaraðferð sem hafi verið lögð til grundvallar til að meta beinþroska sé úrelt.
Kærandi krefst þess aðallega að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem sérstakar ástæður séu uppi í málinu í skilningi ákvæðisins. Kærandi vísar til athugasemda með ákvæðinu í frumvarpi því sem varð að núgildandi lögum um útlendinga og viðmiðunarreglna 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi telur að þær aðstæður sem hann hafi upplifað á Kýpur, og muni standa frammi fyrir snúi hann þangað aftur, rími að öllu leyti við þau skilyrði sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærandi hafi ekki fengið inngöngu í grunnskóla á Kýpur þrátt fyrir að hafa verið barn þegar hann hafi komið til landsins og telur hann yfirvöld á Kýpur hafa ranglega skráð hann sem [...] við komu hans þangað. Hvað varðar aðgengi barna að menntun á Kýpur vísar kærandi til alþjóðlegrar skýrslu og heimilda. Kærandi bendir á að þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld meti hann sem fullorðinn einstakling þá liggi það fyrir að hann hafi verið barn að minnsta kosti hluta tímans þegar hann dvaldi á Kýpur. Vísar hann til þess að kýpversk yfirvöld hafi útilokað hann frá menntakerfinu í landinu í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga og þar með brotið gegn réttindum hans samkvæmt 28. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins frá 1989, sbr. lög nr. 19/2013.
Kærandi byggir á því að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þar sem hann sé þolandi langvarandi og alvarlegs ofbeldis sem hafi haft áhrif á geðheilsu hans. Kærandi hafi einnig átt erfitt uppdráttar á Kýpur vegna alvarlegrar mismununar, t.a.m. varðandi nauðsynlega þjónustu, atvinnumarkað, húsnæðismarkað og félagslega aðstoð. Staða kæranda hafi verið verulega síðri en staða almennings á Kýpur og hann hafi hlotið ómannúðlega meðferð og/eða vanvirðandi meðferð vegna kynþáttar síns í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi vísar til þess að frásögn hans sé í samræmi við heimildir um erfiðar aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Kýpur og þær hindranir sem umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk þar í landi mæti. Kærandi vísar jafnframt til þess að Útlendingastofnun hafi ekki framkvæmt heildstætt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Vísar kærandi til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem fram komi upptalning á viðmiðum í dæmaskyni við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Telur kærandi að staða handhafa verndar á Kýpur sé afar bág og vísar til fyrri reynslu sinnar í landinu. Kærandi hafi verið beittur kynferðisofbeldi af hálfu yfirmanns síns og kúgaður af samstarfsmönnum og hótað barsmíðum. Kærandi vísar til tveggja alþjóðlegra skýrslna um að kynferðisleg áreitni af hálfu yfirmanna gagnvart flóttamönnum á Kýpur sé víðtækt vandamál og að flóttafólk verði fyrir kynþáttafordómum og ofbeldi.
Kærandi krefst þess til vara að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til athugasemda með ákvæði 42. gr. í frumvarpi því sem varð að núgildandi lögum um útlendinga. Kærandi telur að endursending hans til Kýpur feli í sér hættu á því að hann verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á Kýpur sé að finna kerfisbundna galla á aðbúnaði einstaklinga með alþjóðlega vernd. Telur kærandi ljóst að miklir erfiðleikar bíði hans, þ. á m. heimilisleysi, útilokun frá grundvallarréttindum og hætta á að verða þolandi fordóma, mismununar og ofbeldis vegna uppruna síns.
Kærandi krefst þess til þrautavara að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi vegna brots á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telji ljóst, með vísan til alls þess sem hafi verið rakið í greinargerð til kærunefndar, að mat Útlendingastofnunar á raunverulegum aldri hans sé byggt á ónægum og ófullnægjandi upplýsingum. Auk þess sé ljóst að ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda. Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál hans til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Mat á aldri, sbr. 113. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 26. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ef grunur vaknar um að umsækjandi sem segist vera fylgdarlaust barn sé lögráða, og að ekki er hægt að staðfesta það á óyggjandi hátt, skuli gerð, eins fljótt og kostur er, aldursgreining samkvæmt 113. gr. laganna. Í 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ef grunur leiki á að umsækjandi um alþjóðlega vernd eða umsækjandi um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar villi á sér heimildir við meðferð máls eða segi rangt til um aldur við meðferð máls geti viðkomandi stjórnvald lagt fyrir útlending að hann gangist undir líkamsrannsókn til þess að ákvarða aldur hans. Niðurstaða úr slíkri líkamsrannsókn skuli metin í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn umsækjanda í hag. Samkvæmt 2. mgr. 113. gr. er óheimilt að þvinga viðkomandi til að gangast undir aldursgreiningu. Neiti útlendingur án fullnægjandi ástæðu að gangast undir aldursgreiningu skal honum gerð grein fyrir því hvaða áhrif neitun getur haft á meðferð málsins. Synjun á umsókn um alþjóðlega vernd getur ekki byggst á því eingöngu að viðkomandi hafi neitað að undirgangast aldursgreiningu. Í 1. mgr. 40. gr. reglugerðar um útlendinga, sbr. 3. mgr. 113. gr. laga um útlendinga, kemur jafnframt fram að við ákvörðun á aldri skuli fara fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar af ævi hans en auk þess megi beita líkamsrannsókn til greiningar á aldri. Leiki grunur á að umsækjandi segi rangt til um aldur skuli framkvæma líkamsrannsókn til greiningar.
Samkvæmt framansögðu hefur löggjafinn ákveðið að stjórnvöld á sviði útlendingamála skuli beita tilteknum rannsóknaraðferðum þegar upplýsa þarf um aldur umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þá hefur löggjafinn jafnframt ákveðið að mat á aldri skuli vera heildstætt og vera byggt, eftir atvikum, á fleiri gögnum en líkamsrannsókn.
Við komu kæranda hingað til lands 3. júlí 2023 greindi hann frá því að fæðingardagur hans væri [...]. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun aflaði stofnunin upplýsinga um kæranda frá kýpverskum yfirvöldum þar sem fram kom að kærandi hefði ekki framvísað skilríkjum þegar hann hafi sótt um alþjóðlega vernd og yfirvöld hefðu ekki upplýsingar um hvort aldursgreining hefði farið fram. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað kærandi yfirvöld á Kýpur hafa talið hann vera [...] árið 2017. Þegar niðurstöður aldursgreiningar hér á landi lágu fyrir lagði kærandi fram afrit af sómölsku fæðingarvottorði sínu þar sem fram kemur að fæðingardagur hans sé [...].
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun var kæranda leiðbeint um að leggja fram gögn sem staðfestu fæðingardag hans. Kvaðst kærandi ekki getað útvegað slík gögn. Hinn 28. júlí 2023 mætti kærandi ásamt löglærðum talsmanni sínum til Útlendingastofnunar og veitti samþykki fyrir aldursgreiningu. Kærandi undirgekkst aldursgreiningu 8. september 2023, sem fólst í stafrænni röntgenbreiðmynd og sérmynd af jöxlum og framtönnum. Þá var tekin röntgenmynd af hönd og úlnlið kæranda. Í niðurstöðum aldursgreiningar, dags. 25. september 2023, kemur fram að kærandi sé eldri en 18 ára. Kærandi mótmælti niðurstöðum aldursgreiningar með bréfi, dags. 17. október 2023, og lagði fram afrit af fæðingarvottorði frá Sómalíu sem hann telji renna stoðum undir að hann sé yngri en 18 ára. Með vísan til skýrslu greiningardeildar lögreglunnar um áreiðanleika skjala frá Sómalíu og niðurstaða áreiðanleikakannana annarra sómalskra skilríkja og skjala hefur Útlendingastofnun almennt ekki talið sómölsk gögn áreiðanleg. Með vísan til framangreinds hafi stofnunin ekki fallist á að leggja sómalskt fæðingarvottorð kæranda til grundvallar í málinu. Hinn 27. október og 1. nóvember 2023 var kæranda tilkynnt að með hliðsjón af niðurstöðum aldursgreiningar og heildarmati á gögnum málsins væri það mat Útlendingastofnunar að farið yrði með mál hans sem mál fullorðins einstaklings.
Kærandi byggir á því í greinargerð að niðurstöður líkamsrannsóknar sem hann hafi undirgengist taki ekki allan vafa af um hvort kærandi hafi náð 18 ára aldri. Útlendingastofnun hafi ekki framkvæmt heildstætt mat á aðstæðum kæranda heldur hafi eingöngu verið byggt á aldursgreiningu. Stofnunin hafi brotið gegn rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga. Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram fæðingarvottorð sitt frá Sómalíu þar sem fram kom að fæðingardagur kæranda væri [...] og samkvæmt því hafði kærandi verið [...] þegar hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 3. júlí 2023. Þar sem kærandi hafi ekki framvísað gögnum sem staðfestu fæðingardag hans við upphaf meðferð málsins var kærandi sendur í aldursgreiningu 8. september 2023. Niðurstöður aldursgreiningarinnar voru sem fyrr segir á þann veg að kærandi væri eldri en 18 ára. Með hliðsjón af gögnum málsins, frásögn og framlögðum gögnum kæranda, upplýsingum frá kýpverskum stjórnvöldum og niðurstöðum aldursgreiningar komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri eldri en 18 ára. Kærunefnd telur að Útlendingastofnun hafi með framangreindri framkvæmd uppfyllt rannsóknarskyldu sína samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og lagt heildstætt mat á gögn málsins við mat á aldri hans. Ekki eru forsendur til að draga í efa að niðurstöður sérfræðilegs mats á þroskastigi tanna, handar og úlnliðs séu byggðar á forsvaranlegum ályktunum byggðum á læknisfræðilegum gögnum. Líkt og fram kemur í aldursgreiningarskýrslu kæranda er nokkrum rannsóknaraðferðum beitt til að aldursgreina umsækjendur og eru þau viðmið sem lögð eru til grundvallar talin gefa raunsanna mynd af aldri barna og unglinga. Ekki er ástæða til að draga í efa hlutleysi þeirra réttartannlækna sem framkvæmdu aldursgreiningu kæranda líkt og kærandi vísar til í greinargerð sinni. Í umsögn réttartannlækna sem send var Alþingi 26. nóvember 2020, í tilefni af frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga (aldursgreining), sbr. þingskjal 233, og kærandi vísar til í greinagerð sinni, er fjallað um framkvæmd aldursgreininga, áreiðanleika úrræðisins, notkun þess í öðrum Evrópuríkjum og leitast við að svara helstu gagnrýni sem á þeim tíma hafði komið fram í umræðu. Í umsögninni er ekki að finna sérstaka afstöðu réttartannlæknanna til umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt niðurstöðum aldursgreiningarinnar hníga öll rök að því að kærandi sé eldri en 18 ára. Kærunefnd gerir þó athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé vísað til þess að kærandi kveðist vera fæddur [...], en hið rétta er að kærandi kvaðst vera fæddur [...]. Kærunefnd telur framangreindan annmarka þó ekki hafa áhrif á niðurstöðu málsins.
Þegar litið er með heildstæðum hætti til gagna málsins, þ. á m. aldursgreiningar, upplýsinga frá kýpverskum stjórnvöldum, tímasetningar framlagningar fæðingarvottorðs kæranda frá Sómalíu og skorts á áreiðanleika slíkra skjala frá Sómalíu, telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá verður að mati kærunefndar, ekki talið að vafi leiki þar á í skilningi 2. málsl. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður sem er staddur einsamall hér á landi. Samkvæmt niðurstöðum aldursgreiningar sem kærandi undirgekkst hér á landi var kærandi metinn eldri en 18 ára og verður aldursgreining kæranda lögð til grundvallar í málinu hvað varðar aldur hans. Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd á Kýpur í mars 2017 og hlaut viðbótarvernd þar í landi í nóvember sama ár. Kærandi hafi dvalið á Kýpur þar til hann kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 3. júlí 2023. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi fyrst um sinn dvalið í úrræði fyrir fylgdarlaus börn en hafi verið gert að yfirgefa úrræðið þegar kýpversk yfirvöld hafi metið kæranda [...] að aldri. Hann hafi ekki fengið fjárhags-, félags-, eða húsnæðisstuðning á Kýpur. Kærandi hafi ýmist verið heimilislaus, dvalið hjá öðru flóttafólki og síðar leigt húsnæði með öðru fólki. Kærandi hafi hvorki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu né menntun. Hann hafi þó verið með atvinnuleyfi og atvinnu. Kærandi greindi frá því að hann hafi orðið fyrir fordómum og ofbeldi á Kýpur, m.a. af hálfu yfirmanns og samstarfsfélaga, sem hafi haft áhrif á hann andlega. Kærandi hafi leitað aðstoðar kýpversku lögreglunnar vegna framangreinds sem ekkert hafi aðhafst. Þá sé kærandi ekki við góða andlega heilsu og glími við verk fyrir hjarta, vandamál í fótleggjum og sýkingu í tönnum.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
a. umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt viðbótarvernd á Kýpur 15. nóvember 2017 og var með gilt dvalarleyfi þar í landi til 14. mars 2024. Að mati kærunefndar, með vísan til eftirfarandi landaupplýsinga, telst sú vernd sem kærandi nýtur á Kýpur virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt eftirfarandi gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að alþjóðleg vernd kæranda haldi áfram að vera gild þótt dvalarleyfi hans renni út en sækja þurfi sérstaklega um endurnýjun á dvalarleyfi.
Aðstæður á Kýpur
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Kýpur, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.
- 2023 Country Report on Human Rights Practices – Cyprus (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- Asylum Information Database. Country Report: Cyprus (European Council on Refugees and Exiles, 11. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 Cyprus (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Freedom in the World 2023 – Cyprus (Freedom House, 2023);
- Trafficking in persons report (United States Department of State, júní 2021);
- Upplýsingar af vefsíðu European Commission - Cyprus Overview (https://eacea.ec.europa.eu/national-policies/eurydice/content/cyprus_en);
- Upplýsingar af vefsíðu European Commission – Cyprus - Guaranteed minimum income benefit (https://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=1105&intPageId=5009&langId=en);
- Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðiskerfis Kýpur (e. National Health System, (GESY)) (https://www.gesy.org.cy/launchpad.html);
- Upplýsingar af vefsíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á Kýpur (http://www.moec.gov.cy/) og
- Upplýsingar af vefsíðu UNHCR (https://help.unhcr.org/cyprus/refugees-rights-and-duties/refugee-rights/).
Kýpur er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Kýpur verið aðili að Evrópuráðinu frá 24. maí 1961 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1962. Kýpur fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 1991 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi árið og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969 og barnasáttmálann árið 1989. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 16. maí 1963.
Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá apríl 2023 fá einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns útgefið dvalarleyfi á Kýpur með gildistíma til þriggja ára sem sé endurnýjanlegt. Einstaklingar með viðbótarvernd fái útgefið dvalarleyfi sem gildi í eitt ár og sé endurnýjanlegt til tveggja ára. Í reynd geti tekið allt að sex mánuði að fá bókaðan tíma til að fá útgefið dvalarleyfi og tafir við útgáfu dvalarleyfa hafi aukist á árinu 2022. Frá því umsókn sé lögð fram geti liðið allt að fjórir til fimm mánuðir þar til leyfið sé gefið út. Umsækjendur um endurnýjun viðhaldi tilteknum réttindum sínum, s.s. fjárhagsaðstoð, á meðan málsmeðferð standi með því að framvísa staðfestingu á að þeir hafi umsókn um endurnýjun dvalarleyfis til meðferðar. Aftur á móti geti verið erfitt að nálgast tiltekin réttindi, svo sem fullnægjandi heilbrigðisþjónustu eða að opna bankareikning á meðan á málsmeðferð standi. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns og handhafar viðbótarverndar geti sótt um langtímadvalarleyfi eftir fimm ára löglega búsetu í landinu. Umsækjendur um langtímadvalarleyfi þurfi að uppfylla tiltekin skilyrði, s.s. sýna fram á fastar tekjur sem nægi til framfærslu, ráðningarsamning með gildistíma til a.m.k. 18 mánaða og vera með heilbrigðistryggingu. Handhafar alþjóðlegrar verndar hafi mætt hindrunum við að fá útgefið langtímadvalarleyfi þar sem þeim hafi reynst erfitt að uppfylla framangreind skilyrði.
Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geti sótt um fjölskyldusameiningu en aftur á móti eigi handhafar viðbótarverndar ekki þann rétt. Þá sé enginn sérstakur biðtími vegna umsóknar um fjölskyldusameiningu. Umsækjandi þurfi að sýna fram á fjölskyldutengsl en í vissum tilvikum, þegar umsókn um fjölskyldusameiningu berst að liðnum þremur mánuðum eftir að viðkomandi fékk réttarstöðu flóttamanns, þurfi að sýna fram á staðfestingu á framfærslu, heimilisfangi og heilbrigðistryggingu fyrir fjölskyldumeðlimi. Áður fyrr hafi fjölskyldumeðlimir fengið sömu réttindi og handhafar alþjóðlegrar verndar en á árinu 2019 hafi orðið breytingar á því með nýju verklagi þar sem nú sé metið sérstaklega hvort viðkomandi fjölskyldumeðlimur hafi þörf fyrir alþjóðlega vernd. Í reynd hafi slíkar ákvarðanir einungis verið teknar í málum ólögráða barna, sem hafi leitt til þess að fjölskyldumeðlimir dvelji í landinu án dvalarleyfis og réttinda. Þá hafi málsmeðferðartími fjölskyldusameiningar verið langur og hafi tekið að meðaltali tvö ár. Gerðar hafi verið tilraunir til að stytta málsmeðferðartímann.
Í skýrslu ECRE og á vef GESY kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar hafi sama aðgang að heilbrigðiskerfinu á Kýpur og ríkisborgarar landsins. Frá 1. júní 2019 hafi orðið breytingar á heilbrigðiskerfinu en nú sé fyrsti viðkomustaður sjúklinga hjá heimilislæknum, án endurgjalds, sem geti vísað einstaklingum til sérfræðinga. Aðgengi að sérfræðilæknum, sálfræðingum o.fl. og lyfjum sé háð hóflegu gjaldi. Einkastofur, apótek og greiningarstöðvar hafi verið settar upp í því skyni að veita heilbrigðisþjónustu. Helstu hindranir á aðgengi handahafa alþjóðlegrar verndar að heilbrigðisþjónustu á Kýpur hafi verið þegar einstaklingar sem hafi fengið alþjóðlega vernd bíði eftir útgáfu eða endurnýjun dvalarleyfis. Þá eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur rétt á bólusetningu á næstu heilsugæslu en ekki sé þörf á að bóka tíma fyrirfram.
Samkvæmt skýrslu ECRE eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur rétt á að dvelja í móttökumiðstöðvum ótímabundið en séu þó hvattir til að aðlagast samfélaginu sem allra fyrst eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þá séu engin sérstök húsnæðisúrræði fyrir handhafa alþjóðlegrar verndar. Handhafar alþjóðlegrar verndar geti sótt um fjárhagsaðstoð í gegnum velferðarkerfi Kýpur (e. the national Guaranteed Minimum Income, GMI) en á árinu 2020 hafi yfirvöld veitt einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð, s.s. við leigu á húsnæði, til að auðvelda þeim aðgengi að samfélaginu. Einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur hafi aðgang að atvinnumarkaðnum þar í landi undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þá sé ekki gerður greinarmunur á einstaklingum með réttarstöðu flóttamanns eða handhöfum viðbótarverndar. Handhafar alþjóðlegrar verndar geti leitað aðstoðar við atvinnuleit á skrifstofu atvinnumiðlunar (e. Public Employment Service, PES). Þá eigi handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á að fá starfsþjálfun á vegum viðeigandi félagsþjónustu. Aftur á móti geti handhafar alþjóðlegrar verndar mætt hindrunum á aðgengi að slíkum námskeiðum, m.a. vegna tungumálakunnáttu. Í fyrrgreindri skýrslu og á vef UNHCR kemur fram að börn með alþjóðlega vernd á Kýpur hafi sama rétt til þess að ganga í skóla á öllum menntastigum þar í landi og ríkisborgarar þess. Menntunin sé endurgjaldslaus fyrir öll börn á aldrinum 5 til 18 ára.
Í skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar eigi rétt á að sækja um aðstoð frá velferðarkerfinu á Kýpur (GMI) undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Undir aðstoðina falli m.a. fjárhagsaðstoð til grunnframfærslu og húsaleigubætur að vissum skilyrðum uppfylltum en afgreiðsla umsóknar geti tafist í allt að tólf mánuði. Þó sé hægt að leggja fram umsókn um bráðabirgðabætur meðan beðið sé eftir afgreiðslu umsóknar en þær bætur séu þó töluvert lægri og afgreiðsla þeirra geti tekið um eina til tvær vikur. Umsóknina þurfi að endurnýja í hverjum mánuði þar til ákvörðun um endanlegar bætur liggi fyrir. Þá hafi handhafar alþjóðlegrar verndar staðið frammi fyrir vissum hindrunum á möguleikum þeirra til að nálgast grunnréttindi sín og að uppfylla skilyrði fyrir fyrrgreindri aðstoð.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk hafi orðið fyrir kynþáttafordómum og ofbeldi á Kýpur, þ. á m. af hálfu opinberra starfsmanna. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Jafnframt hafi verið sett lög til að vernda meðlimi þjóðfélagshópa gegn hvers kyns ofbeldi eða mismunun á grundvelli kynþáttar, þjóðernis, tungumáls, kyns, trúarbragða o.fl. Einnig hafi verið sett lög sem geri kynferðislega áreitni á vinnustað refsiverða. Brot gegn lögunum geti varðað allt að þriggja ára fangelsi, sektum eða hvoru tveggja. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af kýpversku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Í skýrslunni kemur fram að sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá hafi jafnframt verið fregnir af spillingu meðal stjórnvalda en samkvæmt kýpverskum lögum sé spilling embættismanna refsiverð. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögunum með skilvirkum hætti.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. og 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi orðið fyrir fordómum og ofbeldi á Kýpur, m.a. af hálfu yfirmanns og samstarfsfélaga, sem hafi haft áhrif á hann andlega. Kærandi sé heilsuhraustur en glími stundum við verk fyrir hjarta þegar hann reyni að sofa, hann sé stundum andstuttur, glími við vandamál í fótleggjum og sé með sýkingu í tönnum. Kærandi hafi misst framtennurnar í slagsmálum í heimaríki þegar hann var barn og fengið gervitennur í staðinn. Þá liggur fyrir í komunótum kæranda frá Göngudeild sóttvarna, dags. 18. september 2023 til 5. apríl 2024, að kærandi hafi greint frá því að hafa dottið á tré áður en hann kom til Íslands og sé með verk í bringu eftir það, honum líði illa stöðu sinnar vegna og upplifi aukinn kvíða eftir að íslensk stjórnvöld hafi metið hann sem fullorðinn einstakling. Kærandi hafi greint frá því að hafa verið einmanna á Kýpur, orðið fyrir kynþáttafordómum og kynferðislegu áreiti eldri manns. Þá hafi kærandi greint frá því að tilhugsunin um að vera sendur til baka til Kýpur valdi honum streitueinkennum og vanlíðan. Kærandi hafi verið með sár á fótlegg. Hafi kærandi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í eitt skipti 7. desember 2023. Í komunótu kæranda frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að sjálfsmatslisti hafi leitt í ljós alvarleg þunglyndiseinkenni, alvarleg einkenni kvíða, einkenni áfallastreituröskunar og aukna sjálfsvígshættu. Kærandi geti ekki sofið, hann hafi misst alla von og taki lyf vegna andlegrar vanlíðan. Hann óttist að öll fjölskylda hans sé látin hans vegna. Á meðal gagna málsins er læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 29. september 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. nóvember 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 22. janúar 2024, um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust 14. apríl 2024. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Kýpur verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Kýpur að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Kýpur þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Handhafar alþjóðlegrar verndar hafa aðgang að heimilislækni, án endurgjalds, sem getur vísað þeim áfram til sérfræðilækna. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Kýpur kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi aðgang að atvinnumarkaðinum og velferðarkerfinu undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þá geti handhafar alþjóðlegrar verndar leitað aðstoðar við atvinnuleit á skrifstofu atvinnumiðlunar. Líkt og komið hefur fram hafa handhafar alþjóðlegar verndar einnig rétt á fjárhagsaðstoð til grunnframfærslu og húsaleigubótum að vissum skilyrðum uppfylltum. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann eigi að lögum rétt á og þarf á að halda á Kýpur. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa leigt húsnæði meðan hann dvaldi á Kýpur og haft löglega atvinnu um tíma.
Kærandi hefur jafnframt greint frá því að hann hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni á Kýpur af hálfu yfirmanns síns. Kærandi hafi einnig sætt áreiti á vinnustöðum vegna trúar sinnar og kynþáttar og samstarfsfélagar hans látið hann vinna verkin þeirra gegn hótunum um barsmíðar. Stundum hafi kærandi ekki fengið greidd full laun. Þá bar kærandi því við að verða fyrir mismunun og fordómum á Kýpur vegna uppruna síns. Af framangreindum gögnum verður ráðið að löggæslan sé virk á Kýpur og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Þá rannsaki embætti umboðsmanns meint brot lögreglu. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Kærandi telur sig vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Kærandi byggir á því að hin kærða ákvörðun sé haldin annmarka einkum vegna brota á rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og því beri að fella hana úr gildi. Kærandi gerir athugasemdir m.a. við mat Útlendingastofnunar á aldri hans, hvort hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu og umfjöllun stofnunarinnar þegar komi að aðstoð kýpverskra yfirvalda og réttarstöðu handhafa alþjóðlegrar verndar á Kýpur. Þá vísar kærandi til þess að á Kýpur séu dæmi um að kynferðisleg áreitni af hálfu yfirmanna gagnvart flóttafólki sé víðtækt vandamál og að árásir, kynþáttafordómar og ofbeldi í garð flóttafólks sé að færast í aukana í landinu. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki alltaf vísað til heimilda fullyrðingum sínum til stuðnings.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um réttindi handhafa alþjóðlegrar verndar á Kýpur telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar og fellst því ekki á að um brot sé að ræða gegn 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. nóvember 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hann hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að 2. málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 3. júlí 2023.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.
Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sú staðreynd að dvalarleyfi kæranda sé útrunnið hefur að mati kærunefndar ekki áhrif á þessa niðurstöðu enda nýtur kærandi áfram alþjóðlegrar verndar á Kýpur þrátt fyrir að þurfa að endurnýja dvalarleyfi sitt, sbr. framangreindar landaupplýsingar.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 3. júlí 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi frá því að hann væri ekki með tengsl við önnur lönd innan Schengen-svæðisins. Þá taldi hann brottvísun og endurkomubann fela í sér ósanngjarna ráðstöfun og tók það fram að Kýpur væri ekki innan Schengen-svæðisins. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kæranda á Kýpur telst brottvísun kæranda frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar heimfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar heimfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur án tafar. Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares