03 maí 2024

Úrskurður nr. 467/2024

Hinn 3. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 467/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060143

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 15. júní 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. maí 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela með viðkomu í öðrum löndum og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 5. nóvember 2022. Kvaðst kærandi hafa farið frá Venesúela 10. október 2022 til Istanbúl, þaðan til Amman, aftur til Istanbúl og til Barcelona 4. nóvember 2022. Kærandi kvaðst hafa verið í viðskiptum við slæma aðila hjá venesúelska ríkinu og það hafi farið illa fyrir hann. Hann hafi komist í skuld við ríkið og skuldað 80.000 dollara. Kærandi hafi reynt að greiða þá skuld með því að selja bíl sinn og hús fyrir um 7.000 dollara en hann ætti ekkert eftir. Kærandi kvað glæpamenn hafa verið á eftir sér til þess að innheimta skuldina því þeir hafi talið hann vera milljónamæring en hann ætti í raun enga peninga. Kærandi sé af sýrlenskum uppruna og eigi land í Sýrlandi. Hafi hann ætlað að selja landið til að greiða skuld en honum hafi ekki verið hleypt inn í landið þar sem hann hafi ekki sinnt herskyldu. Kærandi kvaðst eiga eiginkonu og fimm börn í Venesúela sem hann myndi vilja fá til Íslands.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 15. desember 2022 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærandi greindi frá því að vera fæddur í Líbíu og hafa búið þar til sex ára aldurs þegar hann hafi flutt til Sýrlands. Kærandi hafi farið frá Sýrlandi 18 ára gamall og flutt til Venesúela. Kærandi hafi búið í [...] í Sucre fylki í Venesúela síðan og eigi þar eiginkonu og börn. Kærandi kvaðst ekki vera trúaður en væri Drúsi. Kærandi kvað helstu ástæður flótta síns vera spillingin í landinu og að glæpahópar hafi stöðugt hótað kæranda og fjölskyldu hans og krafist peninga frá þeim í skiptum fyrir það að þau yrðu látin í friði. Kærandi hafi rekið fyrirtæki í Venesúela og skuldi glæpahópi 28 þúsund dollara. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu því hún tilheyrði mafíunni. Lögreglan starfi með glæpahópum og maður neyðist til að greiða þeim. Kærandi greindi frá því að glæpahópar gætu rænt börnum hans ef hann greiddi þeim ekki umbeðnar fjárhæðir. Meðlimir þessara hópa standi í þeirri trú að arabar séu ríkir, sérstaklega þeir sem séu með sama ættarnafn og kærandi. Kærandi óttist um öryggi barna sinna og að þeim verði rænt. Þá óttist kærandi ofbeldi glæpahópa og almennt óöryggi í landinu. Kærandi hafi rekið fyrirtæki í Venesúela og hafi greitt lögreglu fyrir vernd á þeim tíma. Kærandi hafi þó ekki tök á að greiða fyrir slíka vernd lengur.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 15. júní 2023. Greinargerð barst kærunefnd 28. júní 2023. Kærunefnd bárust tölvubréf frá kæranda 24. og 25. ágúst 2023 þar sem hann lýsir áhyggjum sínum.

Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi flúið Sýrland 18 ára gamall til að komast hjá herskyldu. Kærandi hafi búið í Venesúela síðan þá ásamt fjölskyldu sinni. Kærandi hafi ekki haft efni á nauðsynjavörum og að ástandið í Venesúela færi versnandi dag frá degi. Ástæða flótta kæranda væri persónulegar ofsóknir og almennt ástand í Venesúela. Kærandi kvaðst hafa verið tilneyddur að flýja frá Venesúela vegna ofsókna af hálfu hættulegs glæpagengis. Kærandi greindi frá því að glæpagengi hafi stöðugt verið að kúga af honum fé og hóta honum í Venesúela. Kærandi skuldi þeim 28 þúsund bandaríkjadollara. Kærandi telji sig ekki geta snúið aftur til Venesúela vegna glæpagengis sem sé á eftir honum, en kærandi óttist t.a.m. að gengið muni ræna börnum hans og óska eftir lausnargjaldi. Margir Venesúelabúar telji að arabar séu milljónamæringar, sérstaklega fólk sem beri sama eftirnafn og kærandi, þ.a.l. sé hann sérstakt skotmark glæpagengja. Lögreglan í landinu sé afar spillt og kúgi fé af almennum borgurum við hvert tækifæri og ekki sé hægt að treysta á að fá aðstoð eða hjálp frá lögreglunni eða yfirvöldum. Yfirvöld séu hluti af mafíunni í landinu og vinni með glæpagengjunum. Kærandi óttist um líf sitt og fjölskyldu sinnar í Venesúela og telji engan stað öruggan í landinu. Kærandi telji sig vera í stöðugri hættu í Venesúela vegna ofsókna af hálfu glæpagengja. Ástandið í Venesúela sé afar alvarlegt og ótryggt, m.a. vegna takmarkaðs aðgengis að heilbrigðisþjónustu, rafmagni, og drykkjarvatni. Þá sé ekki hægt að fá neina aðstoð frá yfirvöldum eða lögreglu í landinu vegna spillingar. Kærandi telji sig vera í stöðugri hættu í Venesúela vegna almennra aðstæðna í landinu. Þá kvaðst kærandi tilheyra þjóðarbroti Drúsa. Kærandi kvaðst vera ágætlega heilsuhraustur líkamlega og andlega. Hann sé þó með [...] sem hafi áhrif á daglegt líf hans. Um málsatvik að öðru leyti væri vísað til viðtals við kæranda og annarra gagna málsins.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Þá gerir kærandi athugasemdir við tilvísun Útlendingastofnunar í dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khasanov og Rakhmanov gegn Rússlandi frá 29. apríl 2022 og í máli FG. gegn Svíþjóð frá 23. mars 2016, og telur að stofnunin taki röksemdarfærsluna úr samhengi til að styðja við úrlausn sína. Framangreindir dómar séu ekki sambærilegir máli kæranda eða aðstæðum í Venesúela, en frekar eigi að horfa til dóms Mannréttindadómstólsins í máli Sufi og Elmi gegn Bretlandi. Kærandi undirstrikar að kærunefnd útlendingamála hafi komist að þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum nr. 231/2022, að endursending einstaklinga til Venesúela næði því marki að rétt væri að veita þeim viðbótarvernd hér á landi. Kærandi telji að nýlegar alþjóðlegar skýrslur bendi ekki til þess að almennt ástand hafi batnað síðan framangreindur úrskurður kærunefndar var kveðinn upp. Alþjóðlegar skýrslur beri það með sér að einstaklingar sem séu endursendir til Venesúela eigi á hættu illa meðferð sem fari í bága við 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til þess að nýlegar alþjóðlegar skýrslur séu sambærilegar eldri skýrslum um ástandið í Venesúela, sem veiting alþjóðlegrar verndar hafi verið byggðar á, telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki getað vísað til þess að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að skilyrði viðbótarverndar hafi ekki verið uppfyllt. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki fjallað nægilega vel um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður ríkisborgara Venesúela sem snúi aftur til landsins. Útlendingastofnun hafi vísað til þess að kærandi hafi stundað atvinnu, dvalið í húsnæði og hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum. Kærandi hafi hins vegar ekki verið spurður út í möguleika sína á að nálgast grundvallarþjónustu í Venesúela eftir að hafa flúið þaðan, en af fyrirliggjandi heimildum sé ljóst að ríkisborgarar Venesúela sem snúi aftur til Venesúela eigi erfitt með að fá aðgang að félagsþjónustu, húsnæði og störfum.

Fallist kærunefnd ekki á að lögum nr. 136/2022 hafi verið beitt afturvirkt í máli kæranda byggir hann á því að um ósanngjarna ráðstöfun sé að ræða. Kærandi telji að brottvísun og endurkomubann sé ósanngjörn ráðstöfun gagnvart honum og nánustu aðstandendum hans. Ráðstöfunin skerði ferðafrelsi kæranda óhóflega og hindri það að kærandi geti heimsótt landið og vini sína.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé sérstakt skotmark ofsókna í Venesúela vegna þjóðernis síns, þar sem hann sé arabi og vegna ættarnafns sem hann beri, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Algengt sé að glæpahópar kúgi fé af fyrirtækjum og notist við hótanir um ofbeldi til að ná sínu fram, líkt og í tilviki kæranda. Þeir eigendur fyrirtækja sem geti ekki eða vilji ekki gangast undir fjárkúganir eða aðrar ólögmætar kröfur glæpagengjanna um peninga eða þjónustu eigi á hættu á að vera ofsóttir af glæpahópunum og geti samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna talist til tiltekins þjóðfélagshóps, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá teljist kærandi jafnframt aðili tiltekins þjóðfélagshóps með vísan til þess að hann sé einstaklingur sem hafi flúið frá Venesúela og sótt um alþjóðlega vernd. Nýlegar heimildir sýni að þeir sem snúi aftur til Venesúela verði fyrir mismunun og eigi erfitt með að fá aðgang að félagsþjónustu, húsnæði og störfum. Þá eigi einstaklingar sem flýi landið vegna ofsókna af hálfu glæpagengja í aukinni hættu á að verða fyrir ofsóknum við endursendingu. Þar sem öryggisástandið í Venesúela sé slæmt, gróf mannréttindabrot viðgangist í Venesúela, yfirvöld veiti borgurum landsins enga vernd og yfirvöld beiti kúgun og mismunun, hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna samsafns athafna. Kærandi hafi ekki getað fengið vernd frá lögreglu eða yfirvöldum vegna spillingar og fyrirliggjandi heimildir sýni að yfirvöld í Venesúela geti og/eða vilji ekki vernda almenna borgara landsins gegn ofsóknum, sbr. a-, b- og c-liði 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Um málsástæður og lagarök því til stuðnings vísar hann m.a. til greinargerðar til Útlendingastofnunar, auk þess sem áður er rakið. Flutningur innan Venesúela sé hvorki raunhæfur né sanngjarn kostur fyrir kæranda.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Grundvallarmannréttindi kæranda verði ekki nægilega tryggð snúi hann aftur til Venesúela. Kærandi hafi ekki haft efni á nauðsynjavörum, aðgangur að drykkjarvatni sé takmarkaður og heilbrigðiskerfið sé í molum, auk þess sem áður er rakið.

Endursending kæranda væri brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Er regla þessi lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, en þar kemur m.a. fram að ekki sé heimilt samkvæmt lögunum að senda útlending til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr. laganna, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu, sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmála réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn 10. og 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að vera einnig ríkisborgari Sýrlands. Lagði Útlendingastofnun það til grundvallar að kærandi væri venesúelskur og sýrlenskur ríkisborgari. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og leggur til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi sé með ríkisfang bæði í Venesúela og Sýrlandi.

Þar sem kærandi er ríkisborgari Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kæranda í Venesúela, sbr. 2. mgr. A-liðar 1. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);

2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);

‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);

Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);

Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);

Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);

Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);

Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);

Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);

Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);

Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);

Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);

Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);

Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);

General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);

Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);

Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);

Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);

Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);

Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);

Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);

Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);

Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);

Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);

Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);

International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);

Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);

Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);

Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);

Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);

Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);

Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);

Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);

Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);

RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);

RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);

RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);

Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);

Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);

Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);

Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);

The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 1. maí 2024);

UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);

UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);

Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);

Venezeula (Britannica, síðast uppfært 29. apríl 2024);

Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);

Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);

Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;

Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);

Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);

Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);

Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);

Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);

Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);

Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 24. apríl 2024);

Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);

Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);

Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);

Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);

Venezuela Protection Analysis Update (Global Protection Cluster, 19. desember 2023);

Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);

Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);

Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);

Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);

Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);

Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);

Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);

Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);

Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);

Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);

What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);

World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og

World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins. Talið sé að 100 til 150 þúsund íbúar Venesúela séu múslimar eða 0,3 til 0,5 prósent af íbúum landsins. Af þeim séu sjía múslimar í minnihluta.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi kveðst vera sérstakt skotmark ofsókna í Venesúela vegna þjóðernis síns, þar sem hann sé arabi og vegna ættarnafns sem hann beri, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá teljist kærandi vera aðili tiltekinna þjóðfélagshópa, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Annars vegar sem eigandi fyrirtækis sem sætir fjárkúgun, en hins vegar sem einstaklingur sem hafi flúið frá Venesúela og sótt um alþjóðlega vernd. Þá hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna samsafns athafna, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ekki getað fengið vernd frá lögreglu eða yfirvöldum vegna spillingar og fyrirliggjandi heimildir sýni að yfirvöld í Venesúela geti og/eða vilji ekki vernda almenna borgara landsins gegn ofsóknum, sbr. a-, b- og c-liði 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærandi hefur greint frá því að hafa rekið fyrirtæki í Venesúela og standi í skuld við venesúelska ríkið vegna slæmra viðskipta. Þá standi hann í skuld við glæpahópa í Venesúela sem hafi krafist peninga frá kæranda og fjölskyldu hans í skiptum fyrir að að vera látin í friði. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að meðlimir mafíunnar væru á eftir honum vegna fyrrnefndra skulda. Lögreglan geti ekki aðstoðað í slíkum tilvikum þar sem hún sé í samstarfi við glæpahópana. Kærandi kvaðst hafa greitt glæpahópum verndarfé en hafi síðan ekki haft tök á því lengur. Kærandi kvað glæpahóp geta rænt börnum hans til að krefjast lausnarfjár, enda standi meðlimir slíkra hópa í þeirri trú að arabar séu ríkir, sérstaklega þeir sem beri sama ættarnafn og kærandi. Kærandi kvaðst óttast um líf sitt og barna sinna.

Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um heimaríki kæranda telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi orðið fyrir fjárkúgunum og hótunum í heimaríki af hendi ótilgreindra aðila vegna fyrirtækjareksturs hans. Af heimildum um heimaríki kæranda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Þá hafi fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum felist í að krafist sé greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiða vörubílstjórum og frá nautgripabændum. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgunum séu ófullnægjandi og þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna. Jafnframt er til þess að líta að samkvæmt frásögn kæranda varð hann m.a. fyrir fjárkúgun vegna fyrirtækjareksturs síns en hann hefur greint frá því að hafa nú selt reksturinn. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa ekki haft tök á að greiða glæpahópunum en hafi ekki lýst neinum eftirmálum þess.

Með vísan til framangreinds og landaupplýsinga verður ekki talið að kærandi hafi leitt líkur að því að framangreind háttsemi sem hann hefur lýst feli í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, hvorki í eðli sínu né vegna þess að hún sé endurtekin. Framangreind háttsemi lögreglu og annarra ótilgreindra einstaklinga sem kærandi hefur lýst nær þar af leiðandi ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 38. gr. laga um útlendinga.

Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Getur kærandi því leitað til lögreglu telji hann ástæðu til þess.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa búið í Sýrlandi á yngri árum og væri Drúsi. Hann hefði orðið fyrir áreiti vegna uppruna síns og eftirnafns en glæpahópar álíti araba ríka. Heimildir um Venesúela benda ekki til að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri þeir öllum stéttum samfélagsins. Þá bendi heimildir ekki til þess að Drúsar verði fyrir mismunun eða öðru áreiti sem jafna megi við ofsóknir.

Í greinargerð vísar kæranda til þess að raunveruleg hætta sé á að umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Venesúela verði fyrir illri meðferð við endursendingu til Venesúela. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í [...] í Sucre fylki í Venesúela. Samkvæmt landaheimildum er Sucre fylki staðsett í norðausturhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi almennt vera við góða heilsu en hann væri með [...]. Hann geti ekki gengið eða setið lengi. Hann hafi tekið verkjalyf vegna þessa. Andlega heilsu sína kvað kærandi vera góða. Kærandi kvaðst þurfa á sérstakri verkjameðferð að halda og hafi tekið verkjalyf í Venesúela. Hann hafi fengið greiningu eftir að hafa hitt þrjá fræga lækna í Venesúela fyrir fimm eða sex árum. Þeir hafi mælt með skurðaðgerð sem kostaði 26.000 dollara og hann hefði ekki efni á því. Engin læknisfræðileg gögn hafa verið lögð fram um [...] kæranda.

Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali greindi kærandi frá því að hafa búið í húsi og átt bíl og fyrirtæki. Kærandi hafi ekki haft efni á mat. Eiginkona hans og börn búi í Venesúela. Kærandi kvaðst í viðtali ekki tilheyra minnihlutahópi í Venesúela. Af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er á miðjum aldri og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 5. nóvember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 3. febrúar 2023, var kæranda leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í andmælum kæranda, dags. 10. febrúar 2023, kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur ríki á Schengen-svæðinu. Þá kvað hann ákvörðun um brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarna og afar íþyngjandi fyrir sig. Kærandi hafi myndað félagsleg tengsl hér á landi og eigi hér stóra fjölskyldu. Með brottvísun og endurkomubanni væri farið gegn meðalhófi.

Í greinargerð kæranda og andmælum hans er því haldið fram að beiting brottvísunar og endurkomubanns feli í sér afturvirkni og skerðingu á ferðafrelsi. Í lögum um landamæri kemur ekki annað fram en að lögin taki þegar gildi. Lög um landamæri voru undirrituð af forseta Íslands 28. desember 2022 og birt í A-deild Stjórnartíðinda 9. janúar 2023 og höfðu því tekið gildi þegar hin kærða ákvörðun var tekin. Kærandi var upplýstur um lagabreytinguna og gefið færi á að koma að andmælum við mögulegri brottvísun og endurkomubanni. Verður því ekki fallist á málsástæðu kæranda um að óheimilt hafi verið að ákvarða brottvísun í máli hans í samræmi við lagabreytinguna. Af þeim sökum telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar hvað þetta varðar.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga

Þorsteinn Gunnarsson

formaður