16 maí 2024
/
Úrskurður nr. 496/2024
Hinn 16. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 496/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040108
Mál [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 15. apríl 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa henni frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 25. júní 2023. Samkvæmt framburði kæranda hafi hún dvalið í Kólumbíu í um þrjú ár og verið með dvalarleyfi þar í landi sem hún hafi átt kost á að endurnýja. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. apríl 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 11. apríl 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði slík tengsl við Kólumbíu að eðlilegt og sanngjarnt sé að hún dvelji þar, ferðist eða sé flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði send til Kólumbíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst nefndinni greinargerð kæranda 24. apríl 2024.
3 Málsástæður og rök kæranda
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi dvalið í Kólumbíu á árunum 2017 til 2019 en flutt aftur til heimaríkis.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hún sé ekki með gilt dvalarleyfi í Kólumbíu auk þess sem langt sé síðan hún hafi yfirgefið landið og hafi engin tengsl þar, fyrir utan fjarskylda ættingja. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 722/2023. Kærandi vísar til þess að forsenda þess að reglunni um fyrsta griðland sé beitt sé sú að hlutaðeigandi ríki samþykki að taka við viðkomandi. Gögn málsins beri ekki með sér að Útlendingastofnun hafi rannsakað hvort yfirvöld í Kólumbíu séu reiðubúin að taka á móti kæranda
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna sem beri með sér að innflytjendur og flóttafólk í Kólumbíu verði fyrir fordómum og mismunun þar í landi. Kærandi hafi orðið fyrir áreiti og hótunum í Kólumbíu og telji sig því vera í lífshættu verði hún endursend þangað. Kærandi hafi þar engin tengsl og standi því alein uppi. Kærandi hafi ekki sótt um alþjóðlega vernd í Kólumbíu og þekki ekki til flóttamannakerfisins þar í landi. Kærandi hafi hvorki fengið nauðsynlega aðstoð né notið sömu réttinda og almennir borgarar landsins. Kærandi hafi átt erfitt uppdráttar í Kólumbíu hvað varði atvinnu og aðgengi að húsnæði. Fimm ár séu síðan kærandi hafi verið í Kólumbíu. Kærandi glími við andlega erfiðleika vegna þeirra áfalla sem hún hafi orðið fyrir í heimaríki og Kólumbíu. Kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum, ofbeldi og fordómum þar í landi.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Kærandi telur að málsmeðferð og ákvörðun stofnunarinnar brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga.
Nefndin hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við hana.
5 Umsókn um alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
5.2 Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæð kona á [...]. Kærandi hafi komið til Kólumbíu árið 2017 og dvalið þar í landi í um þrjú ár. Kærandi hafi verið með dvalarleyfi þar í landi til tveggja ára sem hún hafi átt möguleika á að fá framlengt. Kærandi hafi snúið aftur til heimaríkis að þeim tíma loknum. Kærandi hafi komið hingað til lands og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd 25. júní 2023. Kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Kólumbíu og þekki ekki til flóttamannakerfisins þar í landi. Kærandi hafi haft aðgang að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu og haft heimild til að stunda atvinnu en erfitt hafi verið að fá atvinnu þar í landi þar sem hún sé innflytjandi. Kærandi greindi frá því að fordómar ríktu gagnvart útlendingum og að hún hafi yfirgefið Kólumbíu þar sem hún hafi upplifað sig óörugga og að mikið væri um glæpi. Kærandi greindi frá því að andleg og líkamleg heilsa sín væri góð en hún væri með [...] og tæki inn lyf vegna þess.
5.3 Landaupplýsingar
Nefndin hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- A B C Temporary Protection Status For Venezuelan Migrants (Migración – Ministerio De Relaciones Exteriores);
- Adapting public policies in response to an unprecedented influx of refugees and migrants: Colombia case study of migration from Venezuela. Background paper to the World Development Report 2023: Migrants, Refugees, and Societies (The World Bank Group, apríl 2023);
- Americas: Growing exodus of Venezuelans highlights failure of Colombia, Peru, Ecuador and Chile to comply with obligations (Amnesty International, 21. september 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 - Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Contributions of the Center for Law, Justice, and Society (Dejusticia) to the questionnaire on how to expand and diversify regularization mechanisms and programs to enhance the protection of the human rights of migrants (OHCHR, 15. febrúar 2023);
- Freedom in the World 2023 – Colombia (Freedom House, mars 2023);
- Heimasíða kólumbískra stjórnvalda(http://www.gov.co);
- Heimasíða utanríkisráðuneytis Kólumbíu (https://www.cancilleria.gov.co/);
- The World Factbook – Colombia (CIA);
- Vefsíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna - Colombia (https://help.unhcr.org/colombia);
- World Development Report 2023: Migrants, Refugees and Societies (The World Bank Group, apríl 2023) og
- World Report 2023 – Colombia (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi í Suður-Ameríku og í landinu búa tæplega 50 milljónir. Kólumbía gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum árið 1945. Kólumbía fullgilti alþjóðasamning gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð árið 1987 og fullgilti alþjóðasamninga um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna árið 1961. Kólumbía er aðili að Cartagena yfirlýsingunni og mannréttindasáttmála Ameríku.
Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 eiga stjórnvöld í Kólumbíu í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og önnur mannréttindasamtök er varðar aðstoð m.a. við umsækjendur um alþjóðlega vernd og fólk á flótta. Landslög kveði á um veitingu alþjóðlegrar verndar. Til viðbótar hafi stjórnvöld komið á kerfi sem veiti flóttafólki langtímavernd. Þrátt fyrir að einstaklingum hafi boðist að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd í Kólumbíu hafi stór hluti fremur óskað eftir réttarstöðu tímabundinnar verndar í landinu. Á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að einstaklingar frá Venesúela geti lagt fram umsókn um tímabundna vernd (ETPV) í Kólumbíu sem er lagaráðstöfun sem komið var á fót fyrir innflytjendur frá Venesúela. Tímabundin vernd feli í sér tíu ára verndarstöðu og réttindi til löglegrar búsetu í Kólumbíu auk aðgangs að atvinnumarkaði, heilbrigðisþjónustu, lífeyriskerfinu og menntun. Einstaklingar með tímabundna vernd njóti grundvallarréttinda. Þeim sé jafnframt heimil stofnun bankareikninga og fjárhagslegar millifærslur. Þá veiti tímabundin vernd leyfi til þess að ferðast innanlands og til og frá landinu í allt að 180 daga í senn. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Kólumbíu sé unnt að afturkalla tímabundna vernd ef handhafi hefur brotið gegn kólumbískum lögum eða lögum um innflytjendur eftir að hafa verið veitt vernd, útlendingayfirvöld í Kólumbíu telji viðveru útlendings í landinu óviðeigandi eða þegar handhafi hefur verið utan yfirráðasvæðis Kólumbíu lengur en 180 daga.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að spilling í opinberu starfi sé refsiverð og að stjórnvöld framfylgi lögunum með fullnægjandi hætti en þó hafi verið dæmi um að starfsmenn hafi komist upp með spillingu án refsingar. Fram kemur að ríkisstjórnin þar í landi hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst uppvísir að mannréttindabrotum. Lög í Kólumbíu leggi bann við mismunun í starfi vegna kynþáttar, húðlitar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, þjóðernisuppruna, ríkisborgararéttar, sjúkdóms eða félagslegrar stöðu. Þá sé kveðið á um jafnræði í kólumbískum lögum.
5.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að
nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.
Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.
Samkvæmt framburði kæranda hafi hún komið til Kólumbíu árið 2017 og dvalið þar í þrjú ár. Kærandi hafi haft dvalarleyfi þar í landi sem hafi gilt í tvö ár og hún hafi átt möguleika á að endurnýja dvalarleyfi. Kærandi hafi haft heimild til að stunda atvinnu í Kólumbíu. Af framangreindri umfjöllun um aðstæður í Kólumbíu verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að hún hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi geti ekki öðlast heimild til dvalar að nýju í viðtökuríki. Kærandi, sem ríkisborgari Venesúela, er undanþegin kröfu um vegabréfsáritun til að ferðast til Kólumbíu. Kærandi greindi frá því að hún hafi upphaflega komið til Kólumbíu til að heimsækja ættingja en fengið atvinnu og því ílengst í landinu. Verður því að telja að kærandi hafi möguleika á að sjá sér farborða með löglegum hætti og geti leitað aðstoðar yfirvalda verði brotið á rétti hennar.
Kærandi hefur borið fyrir sig að mikið sé um glæpi í Kólumbíu og að hún hafi lifað við óöryggi í landinu. Samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki telst kærandi ekki hafa ástæðu til að óttast ofsóknir í Kólumbíu, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að hún sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Nefndin hefur við framangreint mat m.a. litið til þess að stjórnvöld í Kólumbíu eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Kólumbíu aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærandi geti leitað til hennar telji hún þörf á því. Falla því aðstæður kæranda í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Engar lögformlegar hindranir eru á því að kærandi ferðist til Kólumbíu. Verður umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki tekin til efnismeðferðar. Telst kærandi því hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hún dvelji þar, ferðist eða sé flutt þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kæranda mótmælir hún þeirri túlkun Útlendingastofnunar að ekki þurfi að liggja fyrir samskipti við viðkomandi móttökuríki. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 722/2023, dags. 7. desember 2023, máli sínu til stuðnings.
Samkvæmt orðalagi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki gerð krafa um öflun samþykkis viðtökuríkis til að endursending þangað sé heimil. Mál kærenda í tilvísuðum úrskurði sætti meðferð samkvæmt áðurgildandi a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en kærendur málsins sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi fyrir gildistöku laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 14/2023. Í gildistíð þágildandi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga var túlkun kærunefndar á þá leið að gilt dvalarleyfi væri forsenda beitingar ákvæðisins með þeim fyrirvara að kærandi hefði ekki sjálfur afturkallað dvalarleyfi sitt. Þá var það jafnframt túlkun nefndarinnar á þágildandi a-lið ákvæðisins að samþykki viðtökuríkis þyrfti ekki, sbr. orðalag þess. Með framangreindum breytingarlögum var lögfest fyrrgreint ákvæði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þegar að því sögðu eiga umrædd sjónarmið um beitingu þágildandi a-liðar ekki við. Ekki leiðir af orðalagi d-liðar að samþykki frá viðtökuríki þurfi að liggja fyrir. Er því ekki um að ræða brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi er einstæð kona á [...]. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að andleg og líkamleg heilsa sín væri góð. Kærandi væri með [...] og hafi fengið ávísað lyfi vegna þess hér á landi. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 17. ágúst 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 2. apríl 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 15. apríl 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Kólumbíu verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki en hafa þurft að greiða fyrir hana. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Samkvæmt framburði kæranda hafi hún haft aðgang að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu í Kólumbíu.
Kærandi hefur greint frá því að hún upplifi sig ekki örugga í Kólumbíu og þar sé mikið um glæpi. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi haft atvinnu á meðan hún dvaldi í Kólumbíu.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hennar ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 2. apríl 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 25. júní 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
5.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.
Gögn málsins bera með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Gögnin benda jafnframt til þess að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Meðal annars er til þess að líta að Kólumbía er aðili að Cartagena yfirlýsingunni, þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement), og mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.
Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að hún verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hún eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
6 Brottvísun og endurkomubann
6.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
6.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 25. júní 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi frá því að hafa engin tengsl innan Schengen-svæðisins. Þá taldi kærandi að um ósanngjarna ráðstöfun væri að ræða og greindi frá því að það væri ekki réttlátt að einhver geti bannað sér að ferðast til landsins. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda í Kólumbíu telst brottvísun hennar frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan þess frests.
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir Gunnar Páll Baldvinsson