24 maí 2024
/
Nr. 556/2024 Úrskurður
Hinn 24. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 556/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24050031
Kæra [...]
og barna hans
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 28. apríl 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 24. apríl 2024, um að synja honum og börnum hans, [...], fd. [...], og [...], fd. [...], ríkisborgurum Indlands, um vegabréfsáritanir til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á umsóknir þeirra kæranda um vegabréfsáritanir til Íslands.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsóknum, dags. 11. apríl 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritunum fyrir sig og börn sín til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fimm daga dvöl frá 28. júní til 2. júlí 2024. Umsóknum þeirra var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, 24. apríl 2024. Hinn 28. apríl 2024 bárust kærunefnd kærur frá kæranda og börnum hans. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 12. maí 2024.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í röksemdum kæranda er vísað til fyrirliggjandi ákvarðana Útlendingastofnunar. Fram kemur að kærandi hafi bókað flug að nýju. Ástæða þess að fyrri farmiðakaup hafi verið afbókuð sé sú að kærandi hafi viljað finna ódýrari farmiða til Íslands. Í ljós hafi komið að farmiðar með lággjaldaflugfélögum eru almennt óendurgreiðanlegir og því hafi kærandi bókað ný flug sem séu endurgreiðanleg, verði þeim synjað um útgáfu vegabréfsáritana. Um símaviðtalið vísar kærandi til þess að sér hafi verið brugðið enda símtöl í sviksamlegum tilgangi algeng um þessar mundir. Þar að auki hafi fulltrúi utanríkisþjónustunnar hringt utan hefðbundins skrifstofutíma. Kærandi kveðst hafa verið á veitingastað og að símtalið hafi slitnað vegna slæms símasambands. Þá hafi kærandi reynt að hringja til baka en að símtali hans hafi ekki verið svarað. Kærandi hafi þá beðið maka sinn að senda utanríkisþjónustunni tölvubréf til að fá staðfest að símtalið væri ósvikið og hvort hans biðu viðbótarspurningar. Fulltrúi utanríkisþjónustunnar hafi svarað þessu erindi á þá leið að viðtalinu hefði verið lokið og að ekki væru frekari spurningar sem leggja þyrfti fyrir kæranda.
Kærandi vísar til fyrra ferðalags maka síns til Íslands sem hafi verið svo töfrandi að fjölskyldan hafi ákveðið að ferðast öll saman til Íslands í sumar. Vegna fyrri dvalar hafi maki kæranda stýrt ferðaáætluninni og því hafi kærandi haft takmarkaðar upplýsingar í símaviðtalinu. Kærandi og fjölskylda hans hafi ferðast áður til Schengen-svæðisins án trafala og vilji gera það að nýju, en nú með ferðalagi til Íslands og síðan annarra landa.
Á kærustigi lagði kærandi fram nýja flugbókun, bókanir fyrir dagsferðir á Íslandi ásamt tölvubréfasamskiptum við utanríkisráðuneytið.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimild, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í málum kæranda og barna hans er merkt í reit 10, þ.e. að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru óáreiðanlegar. Ákvörðununum fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókun hafi verið afpöntuð. Þegar það hafi verið borið undir kæranda í viðtalinu hafi hann vísað til fyrri bókunar. Kærandi hafi ekki getað greint frá ferðaáætlun sinni og hafi slitið símtalinu. Þar af leiðandi hafi ekki tekist að klára viðtalið. Skynsamlegur vafi væri um ásetning kæranda um að ferðast til Íslands. Uppfylltu kærandi og börn hans þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Meðferð umsókna kæranda og barna hans fór fram hjá Utanríkisráðuneytinu en umsóknirnar voru lagðar fram á skrifstofu VFS global í London, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Líkt og fram kemur í hinum kærðu ákvörðunum var kærandi tekinn í símaviðtal. Af gögnum málsins virðist sem sú ákvörðun hafi verið tekin með vísan til þess að skort hafi á fylgiskjöl með umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Í röksemdum sínum á kærustigi hafi kærandi fært fram skýringar á aðstæðum sínum í umræddu viðtali. Þar að auki hafi hann reynt að hringja aftur í fulltrúa utanríkisþjónustunnar og maki hans sent tölvubréf stuttu eftir að viðtalinu lauk. Með svarbréfi utanríkisþjónustunnar, dags. 22. apríl 2024, má ráða að viðtalinu hafi verið lokið og að fulltrúar utanríkisþjónustunnar hafi ekki haft frekari spurningar fyrir kæranda. Af endurriti viðtalsins, dags. 22. apríl 2024, má á hinn bóginn ráða að viðtalið hafi leitt í ljós takmarkaðar upplýsingar. Að mati kærunefndar hafi utanríkisþjónustunni borið að boða kæranda til nýs viðtals með umræddu tölvubréfi eða reyna að ná aftur í hann símleiðis, hafi þjónustunni á annað borð þótt ástæða til að taka viðtal við kæranda, sbr. 8. mgr. 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Það hafi ekki verið gert án skýringa og er það niðurstaða kærunefndar að framangreint viðtal og skrásetning þess sé ófullnægjandi og verði ekki byggt á því við úrlausn málsins.
Þar að auki liggur fyrir að kærandi hafi lagt fram nýjar flugbókanir en um er að ræða gögn sem kærunefnd leggur ekki mat á. Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kæranda og barna hans sem áhrif geta haft á niðurstöðu mála þeirra, er það niðurstaða kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.
Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda og barna hans til nýrrar meðferðar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda og barna hans til meðferðar á ný.
The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case of the appellant and his children.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður