27 maí 2024
/
Úrskurður nr. 325/2024
Hinn 27. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 325/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU23110063 og KNU23110062
Kæra […]
[…]
og barna þeirra
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. nóvember 2023 kærðu […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir K) og […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir M), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2023, um að synja kærendum og börnum þeirra, […], fd. […], (hér eftir A) og […], fd. […], (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim og börnum þeirra verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautaþrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að lokum er þess krafist að endurkomubann kærenda sbr. 101. gr. laga um útlendinga verði fellt niður.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 30. nóvember 2022 fyrir sig og börn þeirra. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 23. maí 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Börn kærenda, A og B, komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 20. júní 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 31. október 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendum og börnum þeirra var jafnframt brottvísað frá landinu og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 14. nóvember 2023. Kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgigögnum 28. nóvember 2023. Kærunefnd bárust frekari gögn frá kærendum 12. desember 2023 og 15. janúar 2024. Í greinargerð óskuðu kærendur eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kærenda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kærendum kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að vera í hættu í heimaríki sínu vegna almenns ástands og heilsufarsástæðna. Kærendur byggja einnig á því að þau séu í hættu vegna hótana í tengslum við störf M í Venesúela.
Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kærenda, kom fram að þau hafi mætt í viðtal hjá Útlendingastofnun 20. júní 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í máli A og B kom fram að umsóknir barna kærenda væru einnig grundvallaðar á framburði foreldra þeirra og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að börnum kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.
Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu.
Útlendingastofnun tilkynnti kærendum og börnum þeirra jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kærenda
Kærunefnd hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð til kærunefndar greina kærendur frá því að ástæða flótta þeirra frá heimaríki sé vegna persónulegra ofsókna og vegna almennra aðstæðna þar í landi.
M kvaðst hafa verið [...], dótturfyrirtæki stærsta olíudreifingafyrirtækisins í Venesúela, á árunum 2007-2019. Hann hafi starfað sem rafvirki um borð í skipum fyrirtækisins á árunum 2007-2013. Seinna hafi hann fengið stöðuhækkun og verið færður í aðra deild þar sem hann hafi borið ábyrgð á tækni og rafmagni fyrir nokkur skip. Eitt sinn hafi forseti X skipað honum að leysa af rafvirkja um borð í tilteknu skipi. M hafi neitað því þar sem slíkt hafi farið gegn reglugerðum og gildum M. Þá hafi M sagt starfi sínu lausu 11. júní 2019. Hinn 17. júní 2019 hafi M komið í fyrirtækið til að fá greitt en þá hafi honum verið meinaður aðgangur. Nokkrum dögum síðar hafi M borist símhringingar þar sem honum hafi verið tjáð að hann fengi ekki aftur starf hjá ríkinu. Eftir það hafi M átt erfitt með að fá störf og hafi verið atvinnulaus í nokkra mánuði. Árið 2020 hafi birst fréttir um að forseti X og aðrir starfsmenn hafi verið fangelsaðir vegna eldsneytissmygls. Í kjölfar þess hafi M farið að berast hótanir í síma og reynt hafi verið að kúga hann af óþekktum aðilum. Kærendur hafi viljað flýja frá Venesúela árið 2020 en það hafi verið erfitt vegna COVID 19 faraldursins og vegna vandamála með vegabréf þeirra. Árið 2020 hafi M fengið starf á skipi sem hafi séð um að dreifa vatni í önnur skip. Stuttu eftir að kærandi hafi endurnýjað samning sinn við nýja fyrirtækið hafi það byrjað í samstarfi með olíudreifingarfyrirtæki. Eitt sinn hafi kærandi verið að flytja slöngur yfir í tvö ómerkt skip er slöngurnar hafi brotnað og tveir stórir brúnir pakkar hafi dottið út úr þeim. M hafi verið ljóst að um væri að ræða eitthvað ólöglegt. Yfirmenn olíudreifingarfyrirtækisins hafi verið á staðnum þegar atvikið hafi átt sér stað og séð að M hafi orðið vitni að þessu atviki. M hafi sagt skipstjóra skipsins frá þessu sem hafi ráðlagt M að skipta sér ekki af þessu. Þremur dögum síðar hafi M verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Þremur mánuðum síðar hafi M fengið smáskilaboð þar sem fram hafi komið að þeir hafi vitað hvað hann hafi séð í bátnum og væru að fylgjast með fjölskyldu hans og þeir ætli að myrða M. M hafi síðar komist að því að olíudreifingarfyrirtækið hafi verið í eigu nafngreinds einstaklings og barna hans. Þessi einstaklingur og fjölskylda hans hafi tengst háttsettum aðilum innan ríkisstjórnarinnar og eiturlyfjasölu. Þau hafi einnig fengið á sig kærur vegna leigumorða árið 2014 og hafi verið eftirlýst af Interpol. Eitt skipti hafi M tekið eftir því að hann og fjölskylda hans hafi verið elt og þau hafi þurft að keyra smá spöl til að afvegaleiða þá sem hafi veitt þeim eftirför. Fjölmargir samstarfsmenn M hafi horfið og margir flúið frá Venesúela og sótt um alþjóðlega vernd í öðrum ríkjum. Þá hafi sumir samstarfsmenn M verið fangelsaðir. Kærendur hafi ekki getað leitað til lögreglu eða yfirvalda af því að aðilarnir sem hafi verið að hóta þeim og fyrirtækið sem M hafi unnið fyrir séu tengd yfirvöldum. Kærendur óttist um líf sitt og barna sinna og telji sig í stöðugri hættu vegna framangreindra ofsókna.
Almennt ástand í Venesúela sé einnig alvarlegt og ótryggt m.a. vegna takmarkaðs aðgengis að heilbrigðisþjónustu, nauðsynjavörum, hreinu drykkjarvatni og rafmagni. Yfirvöld og lögregla séu spillt og ekki sé hægt að treysta á aðstoð frá þeim. Börn kærenda hafi að mestu verið lokuð inni vegna framangreindra ofsókna. Kærendur hafi ekki viljað taka neina áhættu þar sem einstaklingar sem hafi verið að ofsækja fjölskylduna hafi vitað hvar börn kærenda hafi verið í skóla. Kærendur telja sig einnig eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum yfirvalda í heimaríki sínu, að þau verði álitin föðurlandssvikarar og andstæðingar stjórnvalda fyrir það eitt að hafa flúið land og leitað verndar hér á landi.
Kærendur vísa til fjölda nýlegra alþjóðlegra skýrslna og heimilda hvað varða ástand öryggis og mannréttinda í Venesúela. Kærendur vísa til frétta af sjálfviljugri brottför umsækjanda um alþjóðlega vernd á Íslandi til Venesúela. Umsækjendum hafi verið haldið föngnum á flugvellinum við endurkomu, vegabréf og önnur skjöl hafi verið gerð upptæk og einstaklingar sakaðir um að vera föðurlandssvikarar. Þá vísa kærendur til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna vegna umsókna venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd árið 2019. Kærendur vísa til þess að íslensk stjórnvöld hafi að meginstefnu fylgt leiðbeiningum Flóttamannamannastofnunar varðandi endursendingar til annarra ríkja og að þeirra mati sé ekki ástæða til að víkja frá því.
Kærendur gera ýmsar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærendur telja að ákvarðanirnar séu haldnar verulegum annmörkum sem kunni að hafa efnisleg áhrif á niðurstöðu í máli þeirra og því beri að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd til meðferðar að nýju. Kærendur gera m.a. athugasemdir við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að kærendur geti leitað til lögreglu í heimaríki sínu eftir vernd og að þau hafi ekki sýnt fram á að óttast tiltekna einstaklinga með tengsl við yfirvöld. Kærendum hafi hins vegar borist hótanir frá aðilum tengdum yfirvöldum og telji það því ekki raunhæfan kost fyrir sig að leita verndar hjá yfirvöldum í Venesúela. Þá gera kærendur einnig athugasemdir við niðurstöður Útlendingastofnunar hvað varðar ástand í [...] og að ekki hafi verið fjallað nægilega um einstaklingsbundnar aðstæður kærenda í ákvörðum stofnunarinnar. Kærendur séu berskjaldaðri en almenningur í Venesúela vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna samansafns athafna. Kærendur vísa til nýlegra heimilda og telji að almenningur í heimaríki þeirra eigi á hættu að verða fyrir ofbeldi sem nái því stigi að þau eigi rétt á viðbótarvernd með tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna sinna og því að stjórnvöld í Venesúela hvorki geti né vilji veita almennum borgurum landsins vernd. Kærendur gera athugasemdir við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að K hafi ekki lagt fram nein gögn sem styðji það að hún hafi ríka þörf fyrir vernd af heilbrigðisástæðum. K hafi lagt fram fjölda gagna um að hún glími við alvarlegan [...] og greint frá því að hafa ekki getað nálgast lyf í heimaríki sínu. Kærendur telji að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað heilsufar og heilsufarsgögn K nægilega og það fari í bága við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá telja kærendur rökstuðning Útlendingastofnunar hvað varðar rétt kærenda til verndar á grundvelli almennra og félagslegra aðstæðna í Venesúela ekki samræmast 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem ekki hafi verið fjallað um sérstakar aðstæður þeirra og ekki hafi verið nein umfjöllun um stöðu einstaklinga sem hafi starfað fyrir yfirvöld. Þá telji kærendur að hin kærða ákvörðun brjóti í bága við 10., 11. og 22. gr. stjórnsýslulaga. Einnig telja kærendur að endursending þeirra til heimaríkis hafi ekki verið nægilega rannsökuð af Útlendingastofnun og að endursending barna þeirra samræmist ekki ákvæðum barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, barnaverndarlaga og útlendingalaga. Börn teljast til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem sé barni fyrir bestu í forgangi þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess. Kærendur vísa m.a. til almennra athugasemda barnaréttarnefndar Sameinuðu Þjóðanna nr. 14 hvað það varðar. Útlendingastofnun hafi lagt óeðlilega mikla áherslu á einingu fjölskyldunnar á kostnað þess að leggja heildstætt mat á hagsmuni barnsins.
Þá gera kærendur athugasemdir við rökstuðning kærunefndar í úrskurðum 525/2023, 535/2023, 539/2023 og 526/2023 sem Útlendingastofnun vísar til í ákvörðunum kærenda. Kærendur telji nefndina draga of víðtækar ályktanir af heimildum og telja rökstuðnings nefndarinnar brjóta gegn 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga. Rökstuðningur kærunefndar um batnandi ástand haldi ekki vatni og rökstuðningur nefndarinnar um breytingar á stjórnarfari og bætt pólitískt jafnvægi eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum.
Hvað varðar aðalkröfu sína vísa kærendur til þess að þau falli undir skilgreiningu þess að teljast flóttamenn samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem þau óttist ofsóknir í heimaríki sínu vegna aðildar að tilteknum hópi og vegna samansafns athafna af hálfu stjórnvalda eða annara aðila sbr. a-, b- og c.-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi orðið fyrir alvarlegum ofsóknum nú þegar og megi samkvæmt heimildum gera ráð fyrir að svo verði aftur verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Frásögn kærenda sé studd gögnum og hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki þeirra. Kærendur telji sig í fyrsta lagi tilheyra tilteknum þjóðfélagshópi þar sem M hafi starfað fyrir yfirvöld og það sé bakgrunnur sem hann geti ekki breytt og vegna þess að hann hafi orðið vitni af ólöglegu athæfi og að þeim standi ógn af yfirvöldum og einstaklingum tengdum yfirvöldum vegna þess sbr. d-lið. 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi lifað í stöðugum ótta vegna þessa og þau telji að yfirvöld geti ekki veitt þeim vernd. Í öðru lagi telja kærendur sig tilheyra sérstökum þjóðfélagshóp vegna þess að þau gætu orðið fórnarlömb ofsókna glæpagengja vegna almenns ástands í Venesúela og vegna þess að M hafi orðið vitni að ólöglegu athæfi sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega vernd vegna gengjaofbeldis máli sínu til stuðnings. Í þriðja lagi telja kærendur sig tilheyra tilteknum þjóðfélagshóp á grundvelli þess að þau séu einstaklingar sem hafi flúið frá Venesúela og dvalið erlendis í langan tíma sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá vísa kærendur til þess að samansafn athafna geti einnig flokkast sem ofsóknir. Kærendur vísa til heimilda um almennt öryggisástand í Venesúela, gróf mannréttindabrot sem þar viðgangist og að líta verði til sérstöðu þeirra, starfa M fyrir yfirvöld, ólöglegra atvika sem M hafi orðið vitni af, fyrri hótana og ofsókna gegn þeim. Þá beri að líta til takmarkaðs aðgengis kærenda að heilbrigðisþjónustu. Kærendur telji mikilvægt að kærunefnd skoði vel framlögð gögn og almennar heimildir um Venesúela sem styðji við frásögn þeirra.
Varakrafa kærenda er sú að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur eigi á hættu að missa lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna gríðarlegrar óaldar og víðtækra mannréttindabrota sem viðgangist almennt í landinu. Kærendur vísa til umfjöllunar um landaheimildir í greinargerð þeirra til kærunefndar máli sínu til stuðnings. Þá hafi kærendur sýnt fram á sérstaka hættu hið minnsta vegna persónulegra aðstæðna. Kærendur hafi haft réttmætar væntingar til þess að þeim yrði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga. Þau hafi sótt um vernd 30. nóvember 2022 og á þeim tíma hafi nær öllum umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Venesúela verið veitt skilyrðislaus alþjóðleg vernd á Íslandi á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Tilkynning um breytta framkvæmd hafi ekki verið birt fyrr en 14. apríl 2023. Að mati kærenda hafi aðstæður í Venesúela ekki breyst til hins betra.
Hvað varðar möguleika á innri flótta kveða kærendur að ástandið í Venesúela sé alls staðar það sama og kærendur óttist m.a. stjórnvöld, aðila tengda stjórnvöldum og glæpagengi. Það sé því hvorki sanngjarnt eða raunhæft að gera þeim að flytja innan landsins.
Þrautavarakrafa kærenda er sú að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærendur vísa í erfiðar almennar og félagslegar aðstæður sínar í heimaríki og heilsufars K. Kærendur vísa til heimilda um almennt ástand í Venesúela, fyrri ákvarðana Útlendingastofnunar og úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 535/2023 máli sínu til stuðnings.
Kærendur telja að með endursendingu þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
Þrautaþrautavarakrafa kærenda er sú að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað hvort afstaða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafi breyst varðandi endursendingar einstaklinga til Venesúela og hafi ekki rannsakað einstaklingsbundnar aðstæður kærenda nægilega vel m.a. það fyrirtæki sem M hafi starfað fyrir og heilsufar K.
Þrautaþrautaþrautavarakrafa kæranda er sú að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kærenda um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Útlendingastofnun hafi ekki tilkynnt um breytta framkvæmd á mati umsókna umsækjenda frá Venesúela fyrr en 14. apríl 2023. Að mati kærenda hafi breytingarnar ekki verið grundvallaðar á málefnalegum sjónarmiðum, ekki hafi verði tekið tillit til réttmætra væntinga kærenda, mati á aðstæðum hafi verið beitt með afturvirkum hætti og breytt framkvæmd hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.
Lokakrafa kærenda er sú að endurkomubann þeirra skv. 101. gr. laga um útlendinga verði fellt úr gildi. Kærendur telja að gildistöku laga nr. 136/2022 hafi verið beitt með afturvirkum hætti í máli kærenda. Þess sé krafist að þeim verði gefin 30 daga frestur til sjálfviljugrar heimfarar verði umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hafnað. Þetta sé ósanngjörn ráðstöfun gagnvart kærendum og þeirra nánustu aðstandendum. Þau hafi dvalið hér á landi í um eitt ár, eignast góða vini og bundist landinu nánum tengslum. Þá gangi það gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensks stjórnsýsluréttar ætli stjórnvöld að nota sér neyð kærenda til að gera þau að fordæmi til að ná fram því markmiði að fækka umsóknum um alþjóðlega vernd.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.
Réttarstaða barna kærenda
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. mars 2024);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 21. mars 2024);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 20. mars 2024);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum.Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Fjárkúgunargjöld séu ákveðin í samræmi við kaupmátt þolandans ven geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Samkvæmt skýrslu EUAA voru þrír sjómenn myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og voru morðin tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.
Í viðtölum sínum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í […] í [...] þegar þau hafi flúið heimaríki sitt í nóvember 2022. Hvorugt þeirra kvaðst hafa tilheyrt stjórnmálaflokki né verið virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki sínu. Þá hafi þau ekki tilheyrt minnihlutahópi né sérstöku þjóðarbroti í heimaríki sínu.
M greindi frá því að hann hafi verið að vinna sem rafeindafræðingur og rafvirki á árunum 2007-2019 hjá nafngreindu fyrirtæki, X, sem hafi verið dótturfyrirtæki nafngreinds fyrirtækis, Y, sem hafi verið stærsta olíudreifingarfyrirtæki í Venesúela. Á árunum 2007-2013 hafi M unnið sem rafvirki um borð í skipum en hafi síðan starfað sem yfirmaður tæknideildar. Forseti X hafi eitt sinn hringt í M og beðið hann um að hitta sig á fundi. Forseti X hafi sagt M að hann ætti að leysa af rafvirkja um borð í tilteknu skipi. M hafi liðið eins og honum hafi verið hótað og neitaði að gera það. Nokkrum dögum síðar hafi M fengið tölvupóst um að hann hafi verið færður til í starfi og að hann ætti nú að leysa af annan rafvirkja. M hafi talað við yfirmann sinn sem tjáði honum að þetta hafi verið skipun frá olíumálaráðherra landsins. M hafi neitað að gera þetta þar sem þetta hafi farið yfir öll mörk og reglur og M hafi sagt upp starfi sínu 11. júní 2019. Hinn 17. Júní 2019 hafi M farið og reynt að fá greitt það sem honum hafi verið lofað en þá hafi hann fengið þau skilaboð að forseti fyrirtækisins hafi meinað honum aðgang að fyrirtækinu. Í kjölfarið hafi M borist símhringingar um að hann fengi ekki aftur vinnu hjá ríkinu. M hafi lengi verið atvinnulaus þar sem ríkið hafi útilokað hann alls staðar en M hafi árið 2020 fengið starf hjá öðru fyrirtæki, Z, sem starfsmaður á skipi sem hafi séð um að dreifa vatni til annarra skipa. Síðar hafi hann frétt að forseti X, allir rafvirkjar sem hann hafi átt að leysa af og þeir sem hafi verið um borð í því skipi sem hann hafi átt að leysa af á, hafi verið fangelsaðir fyrir eldsneytissmygl á alþjóðlegu hafsvæði. Þegar rannsókn á því máli hafi byrjað hafi M farið að fá hótanir og reynt hafi verið að kúga hann í síma. M hafi viljað fara strax frá Venesúela en þá hafi vegabréfin þeirra ekki verið í gildi, það hafi verið COVID 19 faraldur og þetta álag hafi haft áhrif á hjarta K sem hafi þurft að fara í aðgerð. K hafi átt að lifa rólegu og streitulausu lífi vegna hjartans. M hafi fengið endurnýjaðan samning hjá fyrirtækinu Z og þá hafi fyrirtækið verið komið í samstarf með olíudreifingafyrirtæki í eigu ríkisins. Í eitt skipti þegar M hafi verið að ferja slöngur út í tvö skip hafi hann séð þegar að slöngur úr öðru skipinu brotnuðu í sundur og stórir brúnir pakkar hafi dottið út úr slöngunum. M hafi grunað að hér væri á ferð eitthvað ólöglegt. Yfirmenn olíufyrirtækisins hafi tekið eftir því að M hafi séð atvikið og flýtt sér að taka saman slöngurnar og dótið í ómerktan bát. M hafi sagt skipstjóra skipsins frá þessu þegar þeir hafi komið í land sem hafi sagt M að vera ekki að skipta sér af þessu. Þremur eða fjórum dögum síðar hafi M verið sagt upp störfum. Þremur mánuðum síðar hafi hann fengið smáskilaboð í símann um að þeir viti að M hafi orðið vitni að atvikinu, að þeir séu að fylgjast með honum og fjölskyldu hans og þeir ætli að myrða M. Í kjölfarið hafi M kannað hver væri eigandi fyrirtækisins sem hann hafi verið að starfa hjá og komist að því að þetta hafi verið tiltekin nafngreindur einstaklingur og börn hans sem hafi fengið alls konar ákærur á sig vegna leigumorða og árið 2014 hafi Interpol lýst eftir þeim. Þessir einstaklingar tengist háttsettum einstaklingum í ríkisstjórn Venesúela og fíkniefnasölu. Nokkrum dögum síðar hafi kærendur verið í matvörubúð og tekið eftir því að einstaklingar á mótorhjóli væru að elta þau og ofsækja og þau hafi þurft að keyra í smá stund til að losna við mótorhjólið. K hafi liðið illa í hjartanu og þau hafi aftur farið til læknis sem hafi vísað þeim til sérfræðings. Sérfræðingur hafi sagt að K þyrfti að fara í aðra aðgerð en þeir hefðu ekki tækni til að framkvæma þá aðgerð. K hafi verið sett á lyf til að hjálpa til og mælt hafi verið með friðsömu lífi fyrir hana. M hafi áfram fengið smáskilaboð úr mismunandi símanúmerum. Kærendur hafi hætt að senda börn sín í skóla því í einu skilaboðanna hafi komið fram að þeir vissu í hvaða skóla börn kærenda væru. Kærendur hafi því flúið vegna heilsu konunnar og öryggis fjölskyldunnar. M greindi einnig frá því að margir rafvirkjar sem hafi starfað með honum hafi þurft að flýja land og sækja um vernd í öðrum löndum, svo hafi margir farið í fangelsi.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera með [...] og að þessar hótanir sem þeim hafi borist vegna starfa M hafi haft mikil áhrif á hana. K taldi vendipunktinn hafa verið þegar að hótanir hafi beinst að börnum þeirra. K sé hrædd í landi eins og Venesúela þar sem sé ekkert tjáningarfrelsi og ekkert sem verndi þau. K hafi ekki fengið persónulegar hótanir vegna þessa en það hafi verið brotist inn í bíl hennar og rænt úr honum. K hafi leitað til lögreglu en þeir hafi ekkert gert. K kvað þau hafa verið mikið inni og einungis farið mánaðarlega til að versla í matinn, þau hafi einangrað sig frá vinafólki og í apríl 2022 hafi þau hætt að nota samfélagsmiðla.
Kærendur hafa lagt fram fjölmörg gögn við meðferð mála sinna hjá íslenskum stjórnvöldum. Kærendur hafa m.a. lagt fram afrit af sjóbók M, afrit af starfsskírteini M hjá móðurfyrirtæki X og starfsskírteini M útgefnu 31. desember 2017 af […]. Einnig myndir af ótilgreindu skipi, myndir af M um borð í ótilgreindu skipi og upplýsingar um tiltekið skip hjá fyrirtæki sem M hafi starfað hjá áður en hann flúði frá Venesúela. Þá hafa kærendur lagt fram afrit af starfsuppgjöri M og tengla á fréttir af fyrirtækinu X sem M hafi starfað hjá, afrit af sakavottorðum sínum útgefnum 30. maí og 2. júní 2023. Ennfremur hafa kærendur lagt fram skjáskot af símaskilaboðum dags. 9. júní 2022, 17. júní 2022, 6. september 2022 og 15. nóvember 2022.
Kærunefnd telur ýmislegt í frásögn kærenda draga úr trúverðugleika þeirra. Einkum hvað varðar ástæður þess og þær aðstæður sem hafi leitt til þess að M hafi fengið hótanir og standi ógn af yfirvöldum og einstaklingum tengdum yfirvöldum vegna starfa sinna. M greindi frá því að þegar hann hafi starfað sem yfirmaður tæknimála hjá X, dótturfyrirtæki nafngreinds olíuflutningafyrirtækis í ríkiseigu, hafi hann í tvígang verið beðinn um að leysa af rafvirkja á tilteknum skipum. M hafi neitað þessum verkefnum og að lokum sagt upp störfum 11. júní 2019. Kærandi greinir einnig frá því að hann hafi síðar heyrt af því að forseti X, fjöldi samstarfsmanna um borð og þeir sem hann hafi átt að leysa af hafi verið handteknir og dæmdir í fangelsi vegna eldsneytissmygls og M hefði getað lent í fangelsi hefði hann farið í seinni ferðina. M leggur fram tengla á nokkrar fréttir máli sínu til stuðnings sem bera með sér að forseti X og fleiri starfsmenn hafi verið handteknir í mars 2020 vegna spillingar og eldsneytissmygls. Handtökur hafi átt sér stað í kjölfar ferðar tiltekins skips 6. mars 2020 eða tæpum níu mánuðum eftir að M kvaðst hafa látið af störfum hjá fyrirtækinu. Þá greina framangreindar fréttir frá því að hundruð handtakna og rannsókna vegna spillingar og slæmrar stjórnunar hafi verið gerðar undanfarin ár í olíufyrirtækjum í Venesúela. Af framangreindum fréttum má einnig ráða að það hafi verið nefnd skipuð af forseta Venesúela í febrúar 2020 sem hafi ráðist í framangreindar aðgerðir gegn spillingu í olíufyrirtækjum þ. á m. fyrirtækinu X. Sú nefnd hafi hins vegar ekki verið skipuð fyrr en átta mánuðum eftir að kærandi kvaðst hafa lokið störfum hjá fyrirtækinu X. Þá greindi M frá því að hafa fengið símhringingar í kjölfar uppsagnar sinnar um að hann fengi aldrei aftur starf hjá ríkinu. Kærandi greindi þó einnig frá því að hann hafi fengið starf hjá tilgreindu fyrirtæki sem hafi verið í samstarfi með ríkisfyrirtæki. Þá greindi kærandi einnig frá því að hann hafi fengið hótanir og reynt hafi verið að kúga hann í síma eftir að rannsókn hafi byrjað í framangreindum máli. Meðal gagna sem M hefur lagt fram er starfsuppgjör frá fyrirtækinu X þar sem fram kemur að M hafi starfað hjá fyrirtækinu frá 11. september 2007 til 12. júní 2019. Framangreint uppgjör er hins vegar útgefið og stimplað 19. september 2022 sem bendir til þess að M hafi átt í samskiptum við fyrirtækið til þess að óska eftir og fengið gögn án vandkvæða. M greindi frá því að hafa í störfum sínum hjá tilteknum vatnsdreifingafyrirtæki unnið við að fara með vatn og slöngur út í önnur skip. Í eitt sinn hafi þeir átt að fara með slöngur í tvö tiltekin skip. M hafi verið á skipi en búnaður hafi verið settur í ómerktan bát. Þetta hafi verið stórar slöngur, þær hafi dottið í bátinn við hlið M og brotnað og hann hafi séð brúna pakka, augljóslega eitthvað ólöglegt, inni í slöngum. Eigendur olíudreifingafyrirtækisins hafi séð að M hafi orðið vitni af þessu atviku og drifið sig að setja þetta í ómerktan bát. Í fylgiskjali sem kærandi lagði fram hjá kærunefnd greinir hann hins vegar frá því hann hafi orðið vitni að því að fíkniefni hafi verði flutt um borð í skip móðurfyrirtækis X sem hann hafi starfað fyrir áður.
Með vísan til framlagðra gagna verður lagt til grundvallar að M hafi starfað hjá X, dótturfyrirtæki ríkisrekins olíuflutningafyrirtækis í Venesúela. Af gögnum málsins og frásögn kærenda má ráða að handtökur hafi átt sér stað fyrir um fjórum árum fyrir tilstilli yfirvalda sem hafi verið að berjast gegn spillingu í eigin fyrirtæki. Þrátt fyrir að aðilar innan X kunni að hafa verið ósáttir við að M hafi ekki tekið að sér umbeðin verkefni verður ekki fallist á, í ljósi framangreinds, að ríkisstjórn landsins sé á móti honum vegna þess að fyrirtækið hafi verið blandað í smygl og spillingarmál. Af frásögn M og gögnum málsins má einnig ráða að handtökur samstarfsmanna hans og forseta fyrirtækisins hafi komist í hámæli og átt sér stað um níu mánuðum eftir að M kvaðst hafa hætt störfum hjá fyrirtækinu. Þá bera gögn málsins og frásögn kæranda ekki með sér M hafi ekki verið viðriðin þessi mál, verið handtekinn eða yfirheyrður af yfirvöldum áður en hann flúði heimaland sitt í nóvember 2022, eða rúmu einu og hálfu ári síðar.
Þá verður ekki dregið í efa að M hafi starfað hjá fyrirtækinu Z og geti hafa borist hótanir í tengslum við störf sín þar. Af þeim gögnum sem kærandi hefur lagt fram má þó ráða að honum hafi borist fjögur skilaboð á fimm mánaða tímabili áður en kærendur flúðu heimaríki og af frásögn kærenda verður ekki ráðið að þessar hótanir hafi haft neinar afleiðingar aðrar. Þá bera þau gögn sem kærendur hafa lagt fram við meðferð málsins og gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér við meðferð málsins með sér að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við ólöglegri starfsemi olíufyrirtækja m.a. hjá ríkisfyrirtækjum. Verður að telja að þær aðgerðir beri með sér að einstaklingar og fyrirtæki sem stundi ólöglega starfsemi í tengslum við olíustarfsemi í landinu njóti ekki verndar yfirvalda í Venesúela. Að mati kærunefndar verður ekki annað ráðið af framangreindu en að kærendur geti leitað til yfirvalda í Venesúela varðandi þær hótanir sem þeim kann að hafa borist. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu aðila er tengist framangreindum fyrirtækjum eða aðilum með tengsl við stjórnvöld.
Ennfremur er það mat kærunefndar að þær landaupplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér gefi ekki til kynna að opinberir starfsmenn í Venesúela eigi á hættu áreiti eða annars konar meðferð af hálfu stjórnvalda sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. sömu laga eingöngu á grundvelli stöðu þeirra sem opinberir starfsmenn eða fyrra starfi þeirra fyrir stjórnvöld.
Kærendur bera fyrir að eiga hættu að verða álitin föðurlandssvikarar og andstæðingar stjórnvalda og eigi af þeim sökum á hættu að sæta ofsóknum af hendi yfirvalda fyrir það að hafa flúið frá Venesúela og dvalið lengi erlendis. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu. Þá bera gögn málsins einnig með sér að kærendur hafi fengið útgefin sakavottorð frá yfirvöldum í Venesúela í maí og júní 2023, sex til sjö mánuðum eftir að þau flúðu frá heimaríki sínu sem bendir ekki til þess að kærendur hafi lent í erfiðleikum í samskiptum sínum við stjórnvöld. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur og börn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ljósi þess, og að virtum gögnum málsins, telur kærunefnd að samlegðaráhrif þeirra atriða sem kærendur hafa vísað til sem hugsanlegar ástæður ofsókna séu ekki þess eðlis eða nái því marki að þau teljist eiga á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í málum barna kærenda, kom fram að þau hafi mætt til viðtals 20. júní 2023. A og B greindu frá því að hafa búið með foreldrum sínum og systkini á heimili þeirra í [...]. Þeir ættu ömmu og afa sem hafi búð nálægt þeim og annað frændfólk víðsvegar um Venesúela. A hafi liðið vel í Venesúela og verið öruggur á heimili fjölskyldunnar. A og B hafi verið í skóla. Foreldar þeirra hafi báðir verið að vinna, faðir þeirra allt þar til þau flúðu frá Venesúela. A og B hafi fengið nægan mat og átt föt til skiptanna. B hafi liðið vel í Venesúela og hafi verið öruggur á heimili fjölskyldunnar. B hafi átt vini sem hann hafi leikið sér við eftir skóla, spilað körfubolta og fótbolta og verið úti að leika þar til fimm mánuðum áður en þau hafi farið frá Venesúela. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A og B samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þess. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnanna A og B nægilega komið á framfæri með framburði þeirra, kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að A og B fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis.
Þau börn sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru almennt heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir standa A og B til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki sínu. Þá bera gögn málsins og frásagnir kærenda og barna þeirra með sér að þau hafi fengið læknisþjónustu í Venesúela. Einstaklingsbundnar aðstæður barna kærenda eru ekki með þeim hætti að þau teljist í hættu við endursendingu til heimaríkis. Þá bendir ekkert til þess að börnum kærenda verði mismunað eða þau útilokuð frá réttindum sem almennt bjóðast börnum í Venesúela. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að það sé þeim fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur og börn þeirra hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kærenda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærendur séu í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærendur verði þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kærenda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í framangreindum úrskurðum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglu.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði til þess að þau og börn þeirra eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera fæddur í […] borg í [...] og uppalinn í […] í [...]. K greindi frá því að vera fædd í […] í [...] og uppalin í borginni […] í [...] í Venesúela. Kærendur hafi búið í […] í [...] í Venesúela þar til þau hafi flúið heimaríki sitt í nóvember 2022. Samkvæmt landaheimildum er [...] staðsett í norðvesturhluta Venesúela og er Coro höfuðborg þess. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í [...]. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt.
Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þau send aftur til heimaríkis.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kærenda og barna þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda og barna þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera með [...] og að hún hefði getað lifað eðlilegu lífi með hann ef kærendur hefðu ekki lent í þeim atburðum sem hafi leitt til flótta þeirra frá Venesúela. K kvaðst hafa verið greind í Venesúela árið 2019. K hafi verið sett á [...] sem hún hafi ekki getað fengið í Venesúela en hafi pantað frá Spáni, Bandaríkjunum og Panama. K greindi frá því að hafa farið í [...] (e. cardiac ablation) og hafi liðið vel í um tvö ár eftir aðgerðina eða þar til M hafi byrjað í nýju starfi. Það hefði þurft að gera aðra aðgerð en það hafi ekki verið gert út af þessu veseni með M. K greindi frá því að hún væri ekki á lyfjum á Íslandi þar sem framangreind lyf fáist ekki hér á landi. Hún hafi hitt hjartalækni sem hygðist ræða við hana síðar og skoða hvort hún þyrfti „hjartahreinsun“ (e. cardiac ablation) hér á landi.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða líkamlega heilsu en að blóðsykur hafi eitthvað hækkað samkvæmt fyrstu læknisskoðun hér á landi. Andleg heilsa hans sé verri vegna áfalla sem hann þurfi að vinna úr og hann sofi illa. M greindi frá því að hafa þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela en að því hafi verið mjög ábótavant þannig að þau hafi þurft að leita eftir þjónustu einkasjúkrahúsa. Hann hafi keypt heilsutryggingu sem hafi greitt fyrir ýmsa heilbrigðisþjónustu. Þá kváðu kærendur börn sín vera við góða heilsu.
Kærendur lögðu fram ýmis heilsufarsgögn frá heimaríki sínu og frá Íslandi við meðferð mála sinna hjá Útlendingstofnun og hjá kærunefnd. Í heilsufarsgögnum frá heimaríki kemur m.a. fram að K hafi farið í [...] (e. radiofrequency catheter ablation) í febrúar 2020 og í kjölfar þess verið sett á [...]. Þá bera gögnin með sér að K hafi aftur leitað til lækna vegna hjartsláttaróreglu árið 2022 og verið ávísað lyfjum og send í frekari rannsóknir. Í heilsufarsgögnum frá Íslandi kemur fram að K hafi hitt nafngreindan hjartalækni frá maí 2023. Í upphafi hafi læknir ákveðið að bíða með að gefa K lyf en í júní það ár hafi henni verið gefið lyfið [...] og að skammtur hafi verið aukin í október. Þá kemur fram að mikið andlegt álag hafi verið á K, hún hafi enn einkenni þrátt fyrir betahemilsmeðferð og að mati læknisins sé ólíklegt að lyf muni bæta ástand K vegna andlegs álags, K þurfi að lifa við frið og ró. Í tölvubréfi, dags. 12. desember 2023, kvað hjartalæknirinn ekki forsvaranlegt að rjúfa betahemilsmeðferð, með lyfinu [...], vegna ríkulegra slegla aukaslaga og auk þess væri K á lyfinu [...]. K hafi mikil óþægindi af hjartsláttaróreglunni og ef einkennum létti ekki gæti verið að hún þyrfti í [...] (e. ablatio) vegna aukaslaga.
Í heilsufarsgögnum sem M lagði fram við meðferð máls síns kemur fram að hann hafi verið settur á [...] í október 2022, áður en kærendur hafi flúði heimaríki sitt. Þá kemur fram að M hafi mætt í tíma hjá sálfræðingi á göngudeild sóttvarna í júlí og október 2023. M hafi fyllt út skimunarlista fyrir tíma í júlí og fengið stig sem bendi til [...] einkenni áfallastreitu. Í nótum fyrir tíma í október 2023 kemur fram M hafi fyllt út skimunarlista fyrir tíma í október og fengið stig sem bendi til [...]. Þá kemur fram að M sé að sofa mjög lítið og fái martraðir, vegna svefnleysis detti inn þessar hugsanir, en hann myndi ekkert gera vegna fjölskyldu sinnar. Áhætta telst því aukin en ekki yfirvofandi.
Ekki verður annað ráðið en að kærendur og börn þeirra hafi geti leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Framlögð gögn og frásögn kærenda bera með sér að K hafi m.a. farið í [...]. Þá ber frásögn K með sér að hún hafi haft aðgang að þeim lyfjum sem hún hafi þurft þó hún hafi þurft að panta þau frá öðrum löndum og M hafi haft aðgang að lyfi við sykursýki. Kærendum og börnum þeirra standi því læknisaðstoð til boða í heimaríki sínu s.s. sálfræðiþjónustu, jafnvel þó að greiða þurfi fyrir hana. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur og börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kærendur og börn þeirra verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærendur og börn þeirra hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa búið í einbýlishúsi á tveimur hæðum í þeirra eigu. Þá kvaðst M hafi starfað sem rafvirki um borð í skipi sem hafi verið í flutningum og hann hafi fengið um 1000 dollara í mánaðarlaun. K greindi frá því að hafa starfað sem ferðaráðgjafi á ferðaskrifstofu og hafi haft breytileg mánaðarlaun eftir sölu en stundum hafi það verið 500-1500 dollarar. Þau hafi átt peninga fyrir mat og öðrum nauðsynjum. Þau hafi ekki þegið aðstoð frá stjórnvöldum en það hafi verið þau sem hafi aðstoðað aðra. Þá hafi kærendur ekki verið skuldug. M greindi frá því að eiga foreldra og bróður í Venesúela og K kvaðst eiga foreldra, fjögur systkini, frændfólk og fleiri skyldmenni í heimaríki. K greindi frá því að börn kærenda hafi gengið í einkarekinn skóla þar til árið 2022 þegar kærendur hafi þurft að taka þau úr skólanum. Það hafi þurft að keyra þau fram og til baka því það hafi verið reglur skólans. K hafi verið dugleg að fara með börnin til vina og í búðir áður en hótanir hafi hafist. Þá hafi K ekki leyft börnunum að fara út en leyfði frekar einhverjum að heimsækja börnin.
Frásögn kærenda ber með sér að kærendur hafi haft góðar tekjur af atvinnu í heimaríki og að þau hafi getað keypt mat og aðrar nauðsynjar. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærendur séu heilsuhraust og vinnufær og eigi bakland í heimaríki. Er því ljóst að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við mat á þörf fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur kærunefnd litið sérstaklega til aðstæðna barna í Venesúela. Eins og áður greinir er menntun gjaldfrjáls til 18 ára aldurs í Venesúela, skólaskylda er á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barna kærenda í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita því dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kærenda og barna þeirra í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.
Athugasemdir kærenda við málsmeðferð Útlendingastofnunar
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Útlendingastofnun hafi m.a. ekki rannsakað nægilega aðstæður í Venesúela, leitað eftir afstöðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á endursendingu til Venesúela og rannsakað einstaklingbundnar aðstæður kærenda nægilega vel. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við hana.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 30. nóvember 2022 fyrir sig og börn sín. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum og börnum þeirra úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Í greinargerð kærenda er því haldið fram að beiting brottvísunar og endurkomubanns feli í sér afturvirkni og fela í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kærenda sem hafi lagt fram umsóknir sínar 30. nóvember 2022. Þá vísa kærendur til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og réttmætisreglu stjórnsýsluréttar. Í lögum um landamæri kemur ekki annað fram en að lögin taki þegar gildi. Lög um landamæri voru undirrituð af forseta Íslands 28. desember 2022 og birt í A-deild Stjórnartíðinda 9. janúar 2023 og höfðu því tekið gildi þegar hinar kærðu ákvarðanir voru teknar. Kærendur voru upplýst um lagabreytinguna og gefið færi á að koma að andmælum við mögulegri brottvísun og endurkomubanni. Verður því ekki fallist á málsástæðu kærenda um að óheimilt væri að ákvarða brottvísun í máli þeirra í samræmi við lagabreytinguna.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðust ekki hafa neina tengingu við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærendur kváðu brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér og börnum sínum vegna almennra mannréttinda. Í greinargerð til kærunefndar kemur fram að kærendur telji brottvísun og endurkomubann ganga gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þau hafi dvalið á landinu í nokkurn tíma, eignast hér góða vini og bundist landinu nánum tengslum.
Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kærenda eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra er þeim brottvísað og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Komi til flutnings kærenda af landinu mælist kærunefnd til þess að tryggt verði að kærendur hafi nægilegt magn nauðsynlegra lyfja með sér til heimaríkis, einkum vegna [...] K og [...], svo ekki verði rof á þeirri meðferð við endursendingu þeirra til heimaríkis.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and their children are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. [...] Þorbjörg I. Jónsdóttir
Frumrit:
Frumrit úrskurðarins verður sent talsmanni kærenda með öruggum rafrænum hætti.
Ljósrit:
Útlendingastofnun
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ríkislögreglustjóri
Skúlagötu 21
101 Reykjavík