30 maí 2024
/
Úrskurður nr. 568/2024
Hinn 30. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 568/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU23050067 og KNU23050066
Kæra [...]
[…]
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 10. maí 2023 kærðu […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir K) og […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir M), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 26. apríl 2023 um að synja kærendum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 24. janúar 2023. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 15. febrúar 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 26. apríl 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendum var jafnframt brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 10. maí 2023. Kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgigögnum 24. maí 2023. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum frá kærendum 5. apríl 2024. Hinn 12. apríl 2024 bárust kærunefnd frekari upplýsingar og fylgigögn frá kærendum.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna ofríkis glæpahópa og hótana sem þau hafi fengið frá glæpahópnum Clan Del Golfo.
Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður.
Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kærenda
Kærunefnd hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í sameiginlegri greinargerð til kærunefndar kemur fram að kærendur séu frá […] í Medellín borg þar sem þau hafi búið þar til þau fóru frá heimaríki. K eigi tvö börn sem séu búsett hjá frænkum þeirra í Kólumbíu. Kærendum hafi byrjað að berast hótanir frá glæpahópnum Clan del Golfo í maí 2022 og í kjölfarið hafi þau ekki talið sér vært í Kólumbíu. Þau hafi komið börnum K fyrir hjá frænkum þeirra. Í júlí 2022 hafi M farið til Galecia á Spáni þar sem hann hafi dvalist í sjö mánuði. K hafi síðar farið til Valencia á Spáni og dvalið hjá móður sinni í tvo mánuði áður en kærendur hafi komið til Íslands. Kærendur hafi ekki sótt um vernd á Spáni þar sem þau hafi vonast til þess að aðstæður í heimaríki myndu batna og þau gætu snúið aftur. Kærendum hafi haldið áfram að berast hótanir á meðan þau hafi dvalið á Spáni. Í kjölfar [...] M í janúar 2023 hafi þau komið til Íslands. Eftir að kærendur hafi farið frá heimaríki hafi meðlimir glæpahópsins Clan del Golfo hótað börnum K. Lögreglan hafi reynt að bregðast við tilkynningu um hótanir með því að keyra í kringum hús barnanna. Sú vernd hafi ekki dugað til og frænkur barnanna telji sig ekki geta gætt öryggis barnanna og að þau séu í hættu.
Kærendur vísa til umfjöllunar í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar varðandi hlutlægar landaupplýsingar sem renni stoðum undir málsástæður kærenda. Í greinargerð til Útlendingastofnunar reifa kærendur ástand mála í Kólumbíu og vísa til fjölda alþjóðlegra skýrslna og heimilda máli sínu til stuðnings.
Kærendur gera ýmsar athugasemdir við málsmeðferð og trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Kærendur telja verulega annmarka á ákvörðunum stofnunarinnar og að aðeins verði leyst úr þeim með því að ógilda hinar kærðu ákvarðanir. Annmarkar feli í sér brot á lögmætis-, meðalhófs- og rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins og grundvallarmannréttindum kærenda, nánar tiltekið réttinum til réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1994 og 6. gr. laga nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu. Kærendur telja að trúverðugleikamat Útlendingastofnunar hafi ekki snúið að kjarna málsins líkt og trúverðugleikamat eigi að gera, ekki hafi verið spurt nægilega ítarlega út í tiltekin atriði sem talin hafi verið óskýr í matinu og ekki hafi verið tekið tillit til aðstæðna kærenda og þess uppnáms sem M hafi verið í þegar viðtal hafi farið fram vegna nýlegrar [...]. Kærendur telja að frásögn þeirra fái stuðning í gögnum málsins, bæði almennum gögnum um aðstæður í heimaríki og í framlögðum gögnum kærenda. Kærendur vísa til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um trúverðugleikamat máli sínu til stuðnings. Þá telja kærendur rökstuðning í ákvörðunum Útlendingastofnunar hvað varðar möguleika á innri flótta vera ónægan og ekki taka tillit til einstaklingsbundinna aðstæðna þeirra. Ákvarðanir Útlendingastofnunar séu haldnar þeim annmörkum að þær feli í sér endurkomubann á öllu Schengen-svæðinu, sbr. 1. mgr. 101. gr. laga um útlendinga þrátt fyrir að kærendur hafi upplýst stofnunina um að K eigi náin skyldmenni á Spáni. Kærendur telji um ósanngjarna ráðstöfun að ræða að ákveða þeim endurkomubann.
Hvað varðar aðalkröfu sína vísa kærendur til þess að þau falli undir skilgreiningu þess að teljast flóttamenn samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem þau hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsótt af glæpahóp vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi verði þau send aftur til heimaríkis sbr. d-lið 3. mgr. og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Máli sínu til stuðnings vísa kærendur til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um hælisleitendur sem kveðast vera fórnarlömb skipulagðra glæpahópa. Kærendum stafi hætta af meðlimum glæpahópsins Clan del Golfo annars vegar vegna þess að M hafi neitað að ganga til liðs við hópinn og hafi persónuleg tengsl við leiðtoga hópsins í heimahverfi þeirra og hins vegar vegna þess að meðlimir hópsins telji að M hafi ljóstrað upp um þá við lögregluna. Meðlimir hópsins hafi ítrekað hótað M og kveikt í mótorhjóli hans. Hótanir hafi ekki hætt þrátt fyrir að kærendur hafi fært sig um set innanlands og flúið land. Eftir að M hafi yfirgefið heimaland sitt hafi hótunum verið beint að K sem einnig hafi flúið heimaríki. Þá hafi meðlimir hópsins beint hótunum að börnum kærenda. Engar tilraunir kærenda til að koma sér undan ofsóknum glæpahópsins hafi borið árangur. M hafi gripið til þess örþrifa ráðs að reyna að taka eigið líf til að binda enda á ofsóknir í garð fjölskyldunnar. Meðlimir glæpahópsins hafi einarðan ásetning til að annað hvort myrða M eða fá hann til liðs við hópinn. Þá sé M einnig sérstakt skotmark hópsins þar sem hann hafi starfað í efnaverksmiðju og þeir telji hann búa yfir þekkingu sem gagnist hópnum í fíkniefnastarfsemi. Kærendur óttist ofsóknir sem feli í sér líflát, ofbeldi, þrælkun og hótanir. Framangreint feli í sér brot á grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs, bann við ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og banni við þrældómi eða þrælkun sbr. 1. mgr. 38. gr. og líkamlegu og andlegu ofbeldi sbr. a-liður 2. mgr. 38. gr. laga um útlendingalag. Ótti kærenda sé ástæðuríkur og þau telja yfirvöld í heimaríki ekki geta veitt þeim vernd þar sem ofsóknir gegn þeim hafi aukist þegar þau hafi lagt fram kæru til lögreglu. Kærendur vísa til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um verndarþarfir umsækjenda um alþjóðlega vernd frá Kólumbíu máli sínu til stuðnings.
Varakrafa kærenda er sú að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem þau eigi á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð verði þau send aftur til heimaríkis. Kærendur hafi sætt ofsóknum glæpahópsins Clan del Golfo sem hafi haft þær afleiðingar í för með sér að M hafi þurft að hætta öllu sem tengist daglegu lífi, hafi sagt upp starfi sínu, einangrað sig og flúið heimasvæði sitt. Það hafi þó leitt til þess að hótunum hafi verið beint að K og síðar börnum K sem hafi verið í umsjá skyldmenna eftir að K hafi flúið land. Ótti kærenda hafi valdið þeim ólýsanlegum sálarkvölum sem hafi knúið M til að reyna að taka eigið líf. Kærendur óttist um líf og heilsu sína og barna K. Þá telja kærendur að meta verði stöðu þeirra með hliðsjón af öllum viðeigandi gögnum um Kólumbíu, þar sem óöruggt ástand hafi ríkt í fjölda ára. Þá sé ekki hægt með sanngjörnum hætti að ætlast til þess að þau leiti verndar stjórnvalda í Kólumbíu.
Hvað varðar möguleika á innri flótta kveða kærendur að aðstæður þeirra við flutning innanlands hafi í för með sér óöruggar aðstæður fyrir þau. Glæpahópurinn Clan del Golfo sé stærsti vopnaði hópurinn í Kólumbíu og hafi tengsl við mexíkóska og evrópska fíkniefnahópa og hafi staðið að mannshvörfum, morðum og nauðgunum. Meðlimir hópsins hafi getað fundið börn kærenda eftir að þau hafi verið færð í umsjá skyldmenna og hafi vitneskju um flótta kærenda til Spánar þar sem meðlimir hópsins þar í landi hafi þekkt til foringja hópsins í hverfi kærenda. Meðlimir hópsins hafi haldið áfram ofsóknum gegn kærendum þrátt fyrir að þau hafi ítrekað fært sig um set. Kærendur telji að hópurinn muni geta fengið vitneskju um staðsetningu þeirra hvar sem er í heimaríki þeirra og kærendur muni ekki geta fengið vernd stjórnvalda. Kærendur eigi því á hættu ofsóknir hvar sem þau séu stödd í Kólumbíu. Það sé því hvorki sanngjarnt né raunhæft að gera þeim að flytja innan landsins.
Þrautavarakrafa kærenda er sú að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærendur byggja á að þau myndu búa við erfiðar almennar og félagslega aðstæður í heimaríki. Fyrir liggi að glæpahópurinn Clan del Golfo hafi verið sakaður um stríðsglæpi og að hafa framið mannréttindabrot á borð við morð, mannshvörf og nauðganir. Þá geti yfirvöld ekki veitt þegnum sínum nægilega vernd gegn ofbeldi og glæpum. Hvað heilbrigðisástæður varðar þá liggi fyrir að M hafi gert tilraun til sjálfsvígs til að binda enda á ofsóknir gegn fjölskyldunni, hann hafi verið vistaður á [...] vegna sjálfsvígshugsana í maí 2023 og því sé ekki hægt að ætla annað en að lífi M standi bráð hætta af flutningi til heimaríkis. Erfiðar almennar og félagslegar aðstæður kærenda í heimaríki séu fyrir hendi í máli kærenda, ástand mannréttindamála í heimaríki sé afar bágborið auk efnahagslegra og félagslegra aðstæðna kærenda.
Í viðbótarupplýsingum frá kærendum, dags. 12. apríl 2024, ítreka kærendur kröfu sína um ógildingu ákvarðana Útlendingastofnunar vegna annmarka á þeim.
Kærendur telja að með endursendingu þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu kólumbískir ríkisborgarar.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- ACLED Dashboard, 24. febrúar 2022 – 24. febrúar 2023.
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia, Cundinamarca (ACLED Dashboard, 3. mars 2023);
- Colombia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 2023);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 2. janúar 2024);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 31. janúar 2024);
- Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 18. apríl 2024);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
- Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Resolution 2573(2023) (United Nations Security Council, 11. janúar 2023);
- Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 7. maí 2024);
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
- World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
- World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- 2021 Country Report on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 County Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, sótt 14. maí 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Insurance (Overview of Colombia Healthcare System | International Insurance, sótt 14. maí 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army).Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu Insight Crime frá 2023, kemur fram að starfsemi Gaitanists, (Gaitanist Self-Defence Forces of Colombia - AGC), einnig þekkt sem Gulf Clan eða Urabenos, sé einkum á sviði alþjóðlegs eiturlyfjasmygls. Nafnið Urabenos sé dregið af svæðinu Urabá í norðvesturhluta Kólumbíu við landamæri við Panama sem sé verðmætt land fyrir eiturlyfjasmyglara. Svæðið bjóði uppá aðgengi að ströndum við karabíska- og kyrrahafið frá Antioquia og Chocó héruðum í Kólumbíu. Samtökin séu ein sterkustu glæpasamtök í Kólumbíu og séu með net staðbundinna glæpahópa. Annars vegar glæpahópum sem séu undir stjórn leiðtoga samtakanna í Urabá og aðra glæpahópa á sama svæði sem fái að nota nafn samtakanna og veiti þess í stað þjónustu og fylgi skipunum þegar eftir því sé kallað. Hóparnir séu fjárhagslega sjálfstæðir og hafi sumir þeirra tekið upp aðra ólöglega iðju líkt og ólöglegan námugröft, mansal og smygl á minna magni eiturlyfja. Þá stýri þeir eða skattleggi annarri glæpastarfsemi innan þeirra svæða. AGC eru staðsett í a.m.k. tuttugu héruðum Kólumbíu og í öðrum löndum. Helsta vígi samtakanna sé um og í kringum Urabá flóa í héruðunum Antioguia og Chocó, og teygi sig til Córdoba. Samtökin hafa mikla viðveru í þessum héruðum, meðfram karabísku strandlengjunni, í borginni Medellín og í héruðum líkt og La Guajira, Santander, Valle del Cauca og Norte de Santander. Þá hafa samtökin barist um yfirráð við landamæri Venesúela án árangurs. Átök hafi átt sér stað á milli samtakanna og ELN í héruðunum Chocó, Antioquia, Bolívar og Norte de Santander. Samtökin hafi nýtt friðarviðræður yfirvalda og annara glæpasamtaka til að taka yfir landsvæði þeirra en hafa einnig sýnt vilja til að taka þátt í friðarviðræðum að undirlagi forseta landsins. Nýlegar heimildir sýna að yfirvöld hafi slitið vopnahléi við samtökin þar sem þau hafi brotið gegn því og skipað her að ráðast gegn samtökunum á þeim svæðum sem samtökin hafi helst yfirráð.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin ilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN dags. 20. febrúar 2024 sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst sé með framhaldið.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 10,5% árið 2022 og minnkaði frá árinu 2021 er það var 14,3%. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum sé heilbrigðiskerfið í Kólumbíu með þeim bestu í heiminum og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er Kólumbía í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu rekur heilbrigðiskerfið sjúkratryggingar sem beri heitið Entidades Promotoras de Salud (EPS). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Ofbeldi gegn konum og nauðganir, þ. á m. nauðganir í hjónaböndum, séu vandamál í landinu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jafnrétti kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20 prósent þingsæta í hverri þingdeild sé í höndum kvenna og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi lög verið samþykkt sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum varðandi þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi lög verið sett árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um 21 til 50 ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu kemur m.a. fram að stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sé starfrækt í landinu. Stofnunin vinni að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra og reki svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum landsins. Skrifstofa umboðsmanns standi auk þess vörð um mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sé hægt að tilkynna kynbundið ofbeldi. Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá 2023 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hafi áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.
Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu á ofsóknum frá glæpahópnum Clan Del Golfo vegna þess að M hafi neitað að ganga til liðs við hópinn, vegna persónulegra tengsla hans við leiðtoga hópsins í heimahverfi kæranda og vegna þess að meðlimir hópsins telji að M hafi ljóstrað upp um þá við lögreglu. Kærendum og börnum K hafi borist hótanir frá meðlimum glæpahópsins og þeir hafi kveikt í mótorhjóli M.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. febrúar 2023 greindi M frá því að vera fæddur í […] í Medellín borg í Antioquia héraði í Kólumbíu. M greindi frá því að vera uppalinn í hverfinu […] í […] í Medellín borg þar sem hafi verið mikið um fíkniefnasölu og glæpahópa. Hverfið hafi verið lítið og allir í hverfinu hafi starfað með glæpahópnum Clan Del Golfo. Hinn 4. júní 2022 hafi M byrjað að fá símhringingar frá meðlimum glæpahópsins Clan del Golfo sem hafi viljað hitta hann og fá hann til að vinna fyrir sig. M hafi ekki orðið við því en þeir hafi ítrekað sett sig í samband við hann, m.a. nafngreindur leiðtogi hópsins, og hafi M að endingu ákveðið að fara á fund þessara aðila. Þegar M hafi hitt þá hafi þeir m.a. spurt hann í hvaða glæpagengi hann væri og hvaðan hann væri að fá peninga en kærandi kvaðst þá bara verið í heiðarlegri vinnu. Eftir fundinn hafi M verið mjög hræddur, farið heim til sín og ákveðið að leggja fram kæru hjá lögreglunni 15. maí 2022. M hafi sagt lögreglunni frá glæpahóp í hverfinu sem hafi verið að áreita hann en hafi ekki nefnt nein nöfn í því samhengi. M hafi síðan farið heim til K og sagt henni frá því að glæpahópur hafi verið að bjóða honum vinnu og upplýst hana um að hann hafi lagt fram kæru hjá lögreglu. Stuttu eftir kæruna hafi lögreglan handtekið leiðtoga hópsins og haldlagt fíkniefni og vopn. Meðlimir glæpahópsins hafi tekið þessu mjög illa kennt M um, byrjað að áreita hann og kallað hann svikara. Þeir hafi sent M hótanir og myndbönd á samfélagsmiðlum og þá hafi hann hætt að nota samfélagsmiðla. Eftir að hann hafði lokað aðgangi sínum á samfélagsmiðlum hafi meðlimir hópsins komið til M að tala við hann. Í kjölfar hótananna hafi M hætt að vinna og flutt til […]til frænku K í lok maí og verið þar í 15 til 20 daga og flakkað svo á milli vina sinna þangað til hann hafi yfirgefið landið. Hinn 30. júní 2022 hafi meðlimir glæpahópsins kveikt í mótorhjóli M sem hann hafi geymt heima hjá móður hans í hverfinu […]. M hafi verið hræddur við að snúa aftur í hverfið, hann hafi fengið ítrekaðar hótanir og ákveðið að fara til lögreglunnar og draga kæruna til baka. Kærandi kvaðst hafa fengið síðustu hótunina í lok júní 2022 rétt áður en hann hafi farið til Spánar. Hinn 12. júlí 2022 hafi hann farið til Spánar og skilið K og börn hennar eftir í Kólumbíu. Í október 2022 hafi K hringt í M og sagt honum að meðlimir glæpahópsins hafi komið heim til hennar, reynt að fá upplýsingar um staðsetningu M og hótað sér. K hafi í kjölfarið farið til Spánar án barnanna sem hafi orðið eftir hjá tveimur frænkum K í öðru hverfi í Medellín. Hinn 30. desember 2022 hafi frænka K hringt frá Kólumbíu og sagt þeim að glæpamennirnir hafi komið til þeirra að leita að börnunum. Börnin hafi hætt að mæta í skólann og væru núna í gæslu hjá lögreglunni. Lögreglan hafi verið að passa börnin og sinna þeim. M hafi orðið hræddur á Spáni þar sem glæpahópurinn hafi tengsl við Spán en M kvaðst ekki hafa neina staðfestingu fyrir því að hópurinn hafi vitað að hann hafi verið á Spáni. M hafi verið mjög andlega veikur. M og K hafi ákveðið að koma til Íslands af þessum sökum. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að tveir einstaklingar hafi komið heim til ættingja í heimaríki þar sem börn K dvelji 30. desember 2022. Umræddir einstaklingar hafi verið að leita að M og hótað börnunum. Vegna hótana gegn börnunum fylgist lögreglan betur með hverfinu þar sem börnin séu búsett og keyri fram hjá húsi þeirra reglulega. M óttist glæpahópinn Clan del Golfo og um líf sitt og barnanna. Glæpahópurinn sé út um allt Antioquia héraði og að lögreglan geti ekki veitt þeim vernd þar sem það sé mikil spilling innan lögreglunnar í Kólumbíu og telji hann lögregluna hafa greint meðlimum hópsins frá kæru sinni.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. febrúar 2023 greindi K frá því að hafa búið í […] í Antioquia héraði áður en hún hafi yfirgefið heimaríki sitt í nóvember 2022. K greindi frá því að þau M hafi búið á svæði í Kólumbíu þar sem stór glæpahópur ráði öllu, Clan del Golfo. M hafi verið að vinna með efni hjá nafngreindu fyrirtæki og umræddur glæpahópur hafi viljað fá hann til að starfa fyrir þá. Hinn 4. maí 2022 hafi M komið mjög hræddur heim af því að glæpahópurinn Clan Del Golfo hafi byrjað að elta hann og bjóða honum vinnu. Glæpahópurinn hafi gengið á eftir M um að hittast og hann hafi ekki þorað annað en að verða við því. Eftir að M hafi hitt aðilana hafi hann komið til hennar, verið mjög hræddur og sagt henni að hann þyrfti að fara af svæðinu í smá stund. Daginn eftir hafi M farið til frænku K í […] í Medellín borg og verið þar í nokkra daga. Fjölskyldan hafi þá hist og ráðlagt M að leggja fram kæru hjá lögreglunni sem hann hafi gert á milli 15. og 20. maí 2022. Aðspurð greindi K frá því að glæpamennirnir hafi ekki haft samband við M eftir þann tíma því annars væri hann ekki á lífi. Eftir að M hafi kært hafi aðstæður orðið verri, það hafi mögulega verið tilviljun að lögreglan hafi einmitt verið í eftirfylgni með glæpahópnum en lögreglan hafi farið til þeirra, handtekið meðlimi glæpahópsins og haldlagt fíkniefni. Meðlimir glæpahópsins hafi fengið vitneskju um að M hafi lagt fram kæru og hafi farið að áreita M þar sem þeir hafi talið að hann hafi gefið lögreglunni upplýsingar um þá. Þeir hafi viljað drepa M og í lok júní 2022 hafi þeir kveikt í mótorhjóli hans sem hafi verið heima hjá móður hans. M hafi orðið hræddur, ákveðið að draga kæruna til baka og ákveðið að fara til Spánar. Um miðjan september hafi meðlimir glæpahópsins komið til K og barnanna í heimaríki að leita að M og hótað K. K hafi ákveðið að fara til Spánar en þrátt fyrir að hún hafi selt allar eigur sínar hafi ekki verið nægur peningur til að taka börnin með. Síðar í viðtalinu greindi K frá því að hún hafi haft samband við M og móður sína sem hafi keypt fyrir hana flugmiða til Spánar. K hafi skilið börnin eftir hjá tveimur frænkum hennar í Kólumbíu og farið til Spánar í lok október 2022. Hinn 30. desember 2022 hafi frænkur K, sem annist börn hennar í Kólumbíu, farið að hafa áhyggjur af mönnum sem hafi verið að ganga nálægt húsinu þeirra. Tveir menn með hjálma hafi komið til þeirra að leita að K og hafi séð börnin í húsinu, hótað þeim og sagt að þeir vissu hvar kærendur væru. Málið væri alvarlegt og lögreglan væri að fylgjast með börnunum með því að keyra reglulega fram hjá húsinu sem þau búi í. Aðspurð hvort að kærendur gætu einnig fengið lögregluvernd í Kólumbíu líkt og börn þeirra, kvað K svo ekki vera vegna spillingar í lögreglunni og að þau fengju ekki stöðuga lögregluvernd. K greindi frá því að eftir að hún hafi rætt hótanir gagnvart börnunum við M hafi hún einn daginn komið að honum á heimili þeirra á Spáni þar sem hann hafi legið í rúminu með fullt af lyfjum í kringum sig. Hún hafi hringt í lögreglu sem hafi hringt á sjúkrabíl. M hafi í kjölfarið byrjað að haga sér undarlega og verið eins og ókunnugur maður. K hafi talið kærendur óörugg á Spáni þar sem glæpahópurinn hafi tengsl þar. M hafi sagt að hópurinn hafi vitað hvar þau væru á Spáni. Þá kvaðst K hafa farið til lögreglu á Spáni og tilkynnt áreiti glæpahópsins í Kólumbíu.
Með tölvubréfi, dags. 5. apríl 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum m.a. um hótanir frá glæpahópnum Clan del Golfo. Í svörum kærenda sem bárust kærunefnd 12. apríl 2024, greindu kærendur frá því að hafa búið í hverfinu [...] í borginni […] í Antioquia héraði áður en þau hafi yfirgefið heimaríki. Móðir M hafi búið í […] hverfinu og hún hafi aðstoðað þau með börnin svo heimili móður M hafi verið þeirra annað heimili. Kærendur greindu frá því að meðlimir glæpahópsins Clan del Golfo hafi fyrst haft samband við M í apríl 2022 í gegnum meðlimi hópsins. Þeir hafi oft reynt að hafa samband við hann áður og hann hafi að lokum hitt þá. Kærendur hafi vitað að þetta hafi verið meðlimir framangreinds hóps því þeir hafi stjórnað í bænum í langan tíma og móðir M hafi búið í hverfinu þar sem þeir hafi verið með mesta viðveru. Skilja má af svörum kærenda að M hafi þekkt suma meðlimi hópsins sem séu háttsettir í glæpahópnum en ekki haft nein tengsl við þá. Hann hafi fyrst hitt þá í maí 2022 að þeirra beiðni. Þeir hafi haft samband við M þar sem algengt sé að hópurinn reyni að fá meðlimi til liðs við sig sem þeir telji að geti gagnast þeim og líklega talið M geta gagnast þeim vegna þekkingar hans á efnum. Kærendur greindu frá því að hótanir glæpahópsins hafi falið í sér að kalla M svikara. Þeir sem hafi verið kallaðir þetta eða hafi kært glæpahópinn hafi ýmist horfið, verið pyntaðir eða drepnir. M hafi þekkt nokkra af þeim sem hafi hótað honum, meðal annars nafngreindan foringja hópsins í hverfinu. Glæpahópurinn starfaði um alla Kólumbíu og í hverjum bæ eða borg sé foringi. Kærendur hafi talið að sami hópur hafi brennt mótorhjólið hans vegna þess að þeir hafi þá þegar verið að hóta honum. Hópurinn hafi verið ógn við samfélagið í lengri tíma og sagst tilheyra glæpahópnum Clan del Golfo. Á þessum tíma hafi fjöldi faratækja verið brennd. Kærendur greindu frá því að M hafi fengið skilaboð á samfélagsmiðlum frá glæpahópnum í janúar 2023 þegar þau hafi verið búsett á Spáni. Kærendur kváðu skilaboðin koma frá samfélagsmiðlareikningi með lítið af fylgjendum. Þau hafi tekið skilaboðin alvarlega og talið þau vera frá meðlimum glæpahópsins þar sem í skilaboðunum hafi verið myndir af húsi móður M, vegna orðalags skilaboðanna og vegna fyrri hótana frá glæpahópnum sem þeim hafi borist. Kærendur greindu frá því að tveir menn á mótorhjólum hafi komið til K eftir að M hafi farið til Spánar. K hafi verið á leið út með börnin og þeir hafi hrópað að henni. K hafi tekið börnin í fangið og falið sig. K hafi talið þetta meðlimi Clan del Golfo vegna fyrri hótana gegn M og hvernig þeir hafi nálgast hana. Kærendur greindu frá því að börnin búi um þessar mundir í […] í Antioquia héraði og nafngreindu þrjár frænkur sem annist börnin. Kærendur hafi talið að sami glæpahópur hafi hótað börnunum. Kærendur greindu frá því að frænka barnanna hafi lagt fram kæru til til kólumbísku lögreglunnar vegna hótana sem hafi verið send áfram til saksóknara og málið væri enn í meðferð þar. Þá væri málið til meðferðar hjá barnamálayfirvöldum sem hefðu ekki boðið fram neina lausn og því gætu börnin ekki lifað eðlilegu lífi. Börnunum hafi verið veitt lögregluvernd 12. janúar 2023 þegar lögreglan hafi verði upplýst um aðstæður þeirra. Verndin felist í því að lögreglan keyri í kringum hverfið, þar sem börnin búi, nokkrum sinnum á sólarhring og að þau hafi neyðarnúmer til að hringja í en þau hafi sólarhringsvernd. Kærendur kváðu kólumbísk yfirvöld vera í stríði við glæpahópinn og lögðu fram fréttir máli sínu til stuðnings.
Nokkurs misræmis gætir í frásögnum kærenda hjá Útlendingastofnun. Felst það misræmi einkum í aðdraganda flótta þeirra frá heimaríki og tímalínu atburða. Kærendur greina t.a.m. mismunandi frá því hvenær M hafi lagt inn kæru vegna áreitis glæpahópsins. M greindi frá því að hann hafi farið til lögreglunnar og lagt fram kæru eftir að hann hafi hitt meðlimi glæpahópsins og síðan farið heim og upplýst K um það. Í viðtali sínu greindi K frá því að hún og fjölskylda þeirra hafi hvatt kæranda til að fara til lögreglu og kæra meðlimi glæpahópsins einhverjum dögum eftir að hann hafði hitt þá. Frásagnir M og K í viðtölum þeirra og í viðbótarupplýsingum til kærunefndar bera með sér töluvert misræmi í tímasetningum veigamikilla atburða í frásögn þeirra. M greinir frá því að hafa fengið fyrsta símtal frá meðlimum glæpahópsins 4. júní 2022. Frásögn K ber hins vegar með sér að meðlimir glæpahópsins hafi byrjað að hafa samband við M 4. maí 2022. Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar greina kærendur frá því að glæpahópurinn hafi byrjað að hafa samband við M í apríl 2022. M greindi einnig frá því að honum hafi borist hótanir frá glæpahópnum eftir að hann hafi lagt fram kæru hjá lögreglu og að þeir hafi sent honum skilaboð og myndbönd á samfélagsmiðlum og þá hafi hann hætt á samfélagsmiðlum. K greindi frá því að meðlimir glæpahópsins hafi ekki haft samband við M eftir að hann hefði lagt fram kæru hjá lögreglunni í maí 2022 því annars væri hann ekki á lífi. M greindi frá því að hafa fengið síðustu hótunina í júní 2022 áður en hann hafi flutt til Spánar. Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar greindu kærendur frá því að meðlimir glæpahópsins hafi sent M myndbönd á samfélagsmiðlum í janúar 2023, stuttu áður en þau hafi mætt í viðtal hjá Útlendingastofnun, þegar hann hafi þegar verið búsettur á Spáni í nokkra mánuði og eftir að M kvaðst hafa verið hættur á samfélagsmiðlum. Er framangreint misræmi til þess fallið að draga úr trúverðugleika kærenda.
Í ljósi framangreinds trúverðugleikmats og heimilda um heimaríki kærenda er þó ekki hægt að útiloka að kærendur hafi orðið fyrir einhverju áreiti af hálfu glæpahóps í heimaborg þeirra sem mögulega hafi tengsl við glæpahópinn Clan del Golfo. Ekki verður þó talið að kærendur hafi sýnt fram á að þau hafi verið eða séu sérstök skotmörk hópsins og frásögn þeirra ber ekki með sér að glæpahópurinn hafi áreitt þau til lengri tíma. Byggir það mat m.a. á því að frásögn kærenda og viðbótarupplýsingar kærenda til kærunefndar bera ekki með sér að glæpahópur hafi haft beint samband við kærendur, börn þeirra eða aðra fjölskyldumeðlimi þeirra síðan í desember 2022. Þá ber frásögn kærenda með sér að á sama tíma og mótorhjól M hafi verið brennt þá hafi mörg önnur ökutæki verið brennd og því líkur til þess að sá verknaður hafi ekki tengst kærendum persónulega heldur verið tilfallandi atvik.
Af frásögnum kærenda og framlögðum gögnum má einnig ráða að frænkur K hafi leitað til lögreglu vegna hótana gegn börnum K í heimaríki. Lögðu þau fram afrit af lögregluskýrslu vegna kærunnar þar sem m.a. kemur fram að lögregla hafi sent málið til rannsóknar hjá saksóknara. Kváðu kærendur að ekkert hafi verið gert frekar hvað framangreint varðar en börnum K hafi verið veitt vernd hjá lögreglu og hafi neyðarnúmer til að hringja í. Af afriti kærunnar má ráða að einungis hafi verið um að ræða tvö atvik er varðar börn K sem hafi átt sér stað 16. og 30. desember 2022. Er talað um að hettuklæddir aðilar hafi komið og spurt um foreldra barnanna og haft uppi hótanir í garð barnanna. Ekki væri vitað um hvaða aðila væri að ræða. Ekki verður séð að minnst hafi verið á tengsl aðilanna við sérstök glæpasamtök í Kólumbíu. Kærendur lögðu ekki fram gögn um að börnunum hafi verið veitt vernd eða frekari upplýsingar um málsmeðferð kærunnar hjá kólumbískra yfirvalda. Þá verða þau atvik sem greinir í lögregluskýrslu ekki talin þess eðlis að ástæða hafi verið fyrir lögreglu að veita sérstaka vernd. Þykir sú frásögn kærenda því ekki styðja við frásagnir þeirra um ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu meðlima glæpasamtaka í heimaríki þeirra.
Samkvæmt frásögnum kærenda, framlögðum gögnum þeirra og heimildum sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins vinna stjórnvöld í Kólumbíu að því að uppræta glæpahópa í landinu, m.a. á heimasvæði kærenda. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað, m.a. skýrslur frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 12. apríl 2021 og um stöðu mannréttinda frá árinu 2024, kemur fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera m.a. með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, er það mat kærunefndar að gögnin sýni fram á að á öðrum svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna og veita borgurum sínum vernd gegn ofbeldi og glæpum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Heimildir benda ennfremur ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík á heimasvæði kærenda, Caldas eða í borginni Medellin og úthverfum hennar að ómögulegt sé fyrir kærendur að leita aðstoðar yfirvalda telji þau þörf á því.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að kærendur eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærendur til baka.
Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í borginni […] í Antioquia fylki í Kólumbíu. Samkvæmt heimildum hafa glæpasamtökin Clan del Golfo mesta viðveru á svæðinu Urabá í norðvesturhluta Kólumbíu við landamæri Panama en ekki á heimasvæði kærenda. Með vísan til framangreindra heimilda og að teknu tilliti til gagna málsins bendir ekkert til þess að kærendur séu útsettari en aðrir einstaklingar á heimasvæði þeirra fyrir þeirri hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefnd að aðstæður kærenda þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærendur og aðstæður í heimaríki þeirra er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. febrúar 2023 greindi K frá því að hún hafi verið við góða heilsu þegar hún hafi verið búsett í Kólumbíu en að líði nú illa yfir aðstæðum fjölskyldunnar og væri [...]. Þá kvaðst K halda að hún væri með þvagfærasýkingu en að öðru leyti væri líkamleg heilsa hennar góð. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. febrúar 2023 greindi M frá því að vera við góða líkamlega heilsu en andlega liði honum mjög illa. M sé [...] og að hann hafi reynt að taka sitt eigið líf á Spáni í janúar 2023. M hafi farið til læknis á Spáni og hann hafi vísað honum til geðlæknis. M hafi hins vegar ekki farið og ákveðið að koma til Íslands. M kvaðst taka lyfið [...] til að sofa og vera rólegur sem hann hafi fengið lyfseðil fyrir á Spáni. M ætti tíma hjá geðlækni hér á landi nokkrum dögum eftir viðtalið. M greindi frá því að hafa ekki aðgang að læknisþjónustu í Kólumbíu nema ef hann væri að vinna og greiddi sjúkratryggingar. Í viðtali sínu greindi K frá því að M taki lyfið [...] að hún passi upp á lyfjainntöku hjá honum.
Kærendur lögðu fram heilsufarsgögn frá Spáni og Íslandi. Heilsufarsgögn frá Spáni, dags. 18. - 19. janúar 2023 bera m.a. með sér að M hafi komið á spítala eftir að hafa innbyrt m.a. [...] og Ibuprofen í þeim tilgangi að fremja [...] og að hann hafi fengið aðhlynningu á spítala þar. Í nótum frá Göngudeild sóttvarna er varða M, dags. 31. janúar til 12. maí 2023 og 26. maí til 15. júní 2023, kemur m.a. fram að M hafi fengið lyfið [...] á Spáni til að geta sofið. M sé [...] og hafi reynt að taka sitt eigið líf fyrir sex mánuðum þegar hann hafi búið í Valencia á Spáni og sé kominn á lyfið [...]. M sýni [...] og sé með [...]. Í maí 2023 hafi M mætt í bráðaviðtal vegna sjálfsvíghættu eftir að honum hafi borist fyrsta neitun í máli sínu hjá Útlendingastofnun. M hafi verið sendur á bráðaþjónustu [...]. M hafi mætt í viðtal hjá sálfræðingi í 12. maí 2023 og 15. júní 2023 þar sem fram kemur að hann sé vonbetri og reyni að hugsa jákvætt. M lagði einnig fram sjúkraskrá frá Landspítala þar sem fram kemur að M hafi mætt í mat á geðdeildarsviði í febrúar 2023. Samkvæmt geðskoðun hafi M ekki lýst [...] en hafi áhyggjur af framtíð fjölskyldunnar. Hann sé ekki metinn í bráðri sjálfsvígshættu. M hafi mætt aftur í mat í maí 2023 þar sem hann hafi verið metinn í lítilli sjálfsvígshættu þann daginn en í aukinni hættu til lengri tíma vegna félagslegrar stöðu.
Ekki verður annað séð en að kærendur séu almennt líkamlega heilsuhraust. Með vísan til framangreindra heimilda um heilbrigðiskerfið í Kólumbíu verður ekki annað ráðið en einstaklingum sé tryggð heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu óháð efnahagslegri stöðu og þá sé einngi til staðar sjúkratryggingakerfi sem hægt sé að fá aðgang að með litlum tilkostnaði. Aðgangur að geðheilbrigðiþjónustu sé tryggður og meirihluti fólks sem sæki sér þjónustu þurfi ekki að greiða fyrir hana. að Því verður ekki annað ráðið en að kærendur muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki m.a. geðheilbrigðisþjónustu. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kærendur verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærendur hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.
Af gögnum málsins má ráða að kærendur séu almennt heilsuhraust og vinnufær. Kærendur hafa greint frá því að eiga fjölskyldu í Kólumbíu sem þau séu í sambandi við. Af frásögn kærenda má einnig ráða að kærendur hafi verið í launuðum störfum í heimaríki og vel stödd fjárhagslega. Með vísan til þessa og framangreindrar umfjöllunar telur kærunefnd að félagslegar aðstæður kærenda við endurkomu til heimaríkis séu ekki með þeim hætti að þær teljist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Aðstæður kærenda í heimaríki eru ekki með þeim hætti að veita beri þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 24. janúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar
Kærendur gera ýmsar athugasemdir við málsmeðferð og mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna þeirra. Kærunefnd bendir á að kærendum gafst kostur á að koma á framfæri öllum sínum málsástæðum í ítarlegum viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þá hafi kærendur notið liðsinnis löglærðs talsmanns og haft tækifæri til að koma að frekari upplýsingum og leggja fram frekari gögn við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun og kærunefnd. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Með vísan til framangreinds og þess að kærunefnd hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun er ekki ástæða til að gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kærenda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 24. janúar 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins og K kvaðst eiga móður á Spáni. Kærendur kváðu það ósanngjarnar ráðstafanir að ákveða þeim brottvísun og endurkomubann.
Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kærenda eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga en móðir K telst ekki til nánustu aðstandenda í skilningi 17. tölul. 3. gr. laganna. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda er þeim brottvísað og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Sandra Hlíf Ocares