13 júní 2024
/
Úrskurður nr. 602/2024
Hinn 13. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 602/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24030053
Mál [...]
1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 8. mars 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Úsbekistan (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar, sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Þá er gerð krafa um að kæra fresti réttaráhrifum á ákvörðun Útlendingastofnunar. Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga frestar kæra réttaráhrifum.
2. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. desember 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Hinn 18. janúar 2024 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 23. janúar 2024, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 21. febrúar 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 6. mars 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 8. mars 2024 og barst nefndinni greinargerð kæranda 13. mars 2024 ásamt fylgigögnum.
3. Málsástæður og rök kæranda
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hann hafi flúið heimaríki árið 2018 og farið til Svíþjóðar. Kærandi hafi verið handtekinn í heimaríki fyrir það eitt að vilja ekki láta fasteign sína og landareign af hendi til stjórnvalda þar í landi. Kærandi hafi mótmælt eignaupptökunni sem hafi leitt til þess að hann hafi verið fangelsaður. Í fangelsinu hafi kærandi verið beittur barsmíðum og pyndingum. Ofbeldið hafi haft varanleg áhrif á kæranda, bæði andlega og líkamlega og hefur hann verið greindur með [...]. Kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og stjórnvöld þar í landi hyggist senda hann aftur til heimaríkis. Kærandi hafi verið með atvinnuleyfi í Svíþjóð og ráðið sig til starfa hjá byggingafyrirtæki. Kærandi hafi verið látinn vinna alla daga vikunnar í 12 til 15 tíma fyrir lágmarkslaun. Kærandi hafi leitað til stéttarfélags sem hafi aðstoðað hann við að leita réttar síns. Talsmaður kæranda í Svíþjóð hafi beitt hann fjárkúgun og krafist greiðslu vegna vinnu við umsókn hans um alþjóðlega vernd sem væri hærri en stjórnvöld greiði talsmönnum þar í landi. Kærandi hafi ekki getað greitt þá upphæð og því hafi talsmaður hans klúðrað umsókn hans viljandi. Kærandi telji sig ekki hafa fengið réttláta málsmeðferð í Svíþjóð. Kærandi hafi jafnframt ekki fengið læknismeðferð í Svíþjóð, s.s. viðtalsmeðferð og lyfjameðferð vegna áfallastreituröskunar sem hann glími við.
Í greinargerð gerir kærandi athugasemdir við mat Útlendingastofnunar hvað varðar frásögn hans af þeirri málsmeðferð sem hann hlaut í Svíþjóð. Kærandi telur að stofnunin hafi ekki kannað þá vankanta sem hafi verið á meðferð málsins í Svíþjóð og hann hafi greint frá í viðtali sínu. Vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi gerir athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að honum standi til boða heilbrigðisþjónusta í Svíþjóð. Kærandi vísar til þess að ekkert bendi til þess að hann hafi haft eða komi til með að hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í Svíþjóð. Þá vísar kærandi til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur að ástæða hafi verið til að athuga hvers vegna hann hafi ekki fengið viðeigandi læknismeðferð í Svíþjóð. Jafnframt hafi ekki verið litið til þess að hann sé í viðkvæmri og lífshættulegri stöðu, við meðferð umsóknar hans. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki kannað aðstæður sínar í Svíþjóð og er ósammála mati stofnunarinnar þegar komi að málsmeðferð þar í landi, en hann telur að kerfisgalli hafi verið til staðar.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar m.a. til 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem fram komi að aðildarríki sé heimilt að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna þar sem aðstæður hans séu viðkvæmar. Ekki sé fyrirséð hvað verði um hann og því sé líf hans og heilsa í húfi. Kærandi hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun í viðtökuríki af hendi fyrrum vinnuveitanda, sem hafi misnotað aðstöðu sína gagnvart honum. Þá hafi kærandi orðið fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar í viðtökuríki. Kærandi sé í viðkvæmri stöðu og mikilvægt sé að meta einstaklingsbundnar aðstæður hans með hliðsjón af gögnum málsins og taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, sbr. skilyrði 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi eigi yfir höfði sér áframhaldandi pyndingar verði hann endursendur frá Svíþjóð til heimaríkis.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og 33. gr. flóttamannasamningsins.
4. Umsókn um alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæður karlmaður á [...]. Kærandi hafi farið frá heimaríki til Svíþjóðar árið 2018 og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi í október s.á. Í heimaríki hafi kærandi verið fangelsaður og mátt þola pyndingar. Kærandi hafi verið búsettur í Svíþjóð í rúm fimm ár þar til hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 21. desember 2023. Kærandi hafi fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð 24. mars 2022. Kærandi greindi frá því að mál hans hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð í Svíþjóð þar sem talsmaður hans og túlkur hafi óskað eftir peningagreiðslum af hendi hans en þar sem hann hafi ekki orðið við því hafi umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað af sænskum stjórnvöldum. Kærandi hafi starfað fyrir byggingafyrirtæki í Svíþjóð en hann hafi þurft að vinna langa daga fyrir lágmarkslaun. Kærandi hafi leitað til stéttarfélags í Svíþjóð sem hafi aðstoðað hann og í kjölfarið hafi mál hans ratað í fjölmiðla og því óttist kærandi fyrrum vinnuveitanda sinn sem hafi hótað honum. Kærandi óttist einnig að leyniþjónustan í heimaríki hafi uppi á honum í Svíþjóð. Kærandi hafi orðið fyrir kynþáttafordómum í Svíþjóð. Kærandi glími við afleiðingar pyndinga í heimaríki bæði líkamlegar og andlegar en að hans sögn þjáist hann m.a. af [...], streitu og svefntruflunum. Kærandi hafi sótt tíma hjá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð kæranda er vísað til þess að 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar feli í sér heimild en ekki skyldu til að endursenda einstaklinga. Ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar kveða á um undanþáguákvæði frá meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram komi í reglugerðinni. Í eftirfarandi umfjöllun er lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd samkvæmt 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.
4.4 Landaupplýsingar
Nefndin hefur lagt mat á aðstæður í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Sweden (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- Amnesty International Report 2022/23 – Sweden (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Asylum Information Database. National Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 30. apríl 2024);
- EASO Asylum Report 2022. Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (European Asylum Support Office, júní 2023);
- Freedom in the World 2023 – Sweden (Freedom House, mars 2023);
- Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, ágúst 2019);
- Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016) og
- Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).
Svíþjóð er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Svíþjóð verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 3. september 1953. Svíþjóð gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 8. janúar 1986 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971 og barnasáttmálann árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 26. október 1954.
Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) tekur sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Samkvæmt sænskum lögum þurfa að vera gildar ástæður fyrir því að upplýsingar eða gögn hafi ekki verið lögð fram fyrr í málsmeðferðinni. Ef réttmæt ástæða er til að telja að útlendingur sé í hættu á að hljóta dauðarefsingu, líkamlega refsingu eða sæta pyndingum, eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu við endurkomu sína til heimaríkis, þurfi þó ekki að sýna fram á að gildar ástæður séu fyrir því eða ný gögn eða nýjar upplýsingar komi svo seint fram. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Á vef sænsku útlendingastofnunarinnar kemur fram að sænsk lög kveði á um skyldu útlendingayfirvalda í Svíþjóð til að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi við málsmeðferð þeirra. Þá séu barnaverndarnefndir starfandi til að gæta að hagsmunum barna.
Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á áðurnefndri heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í skýrslu ECRE að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða eigi hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en kostnaður vegna innlagnar á spítala er mismunandi eftir svæðum. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu, hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf. Þá missa umsækjendur rétt sinn til húsnæðis og framfærslu en geta þó leitað til hjálparsamtaka. Þó séu veittar undanþágur ef um er að ræða einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu og ósanngjarnt teljist að svipta þá réttar til húsnæðis. Af framangreindum skýrslum má ráða að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds þegar lögð sé fram viðbótarumsókn en þeir geti átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við málsmeðferð viðbótarumsókna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka sem veita lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.
Samkvæmt skýrslu ECRE eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716) eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun. Ákvarðanir um varðhald séu almennt endurskoðaðar af dómstólum og við meðferð slíkra mála hjá dómstólnum eigi einstaklingar rétt á lögfræðiaðstoð.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að sænska stjórnarskráin krefjist þess af opinberum stofnunum að þær stuðli að jöfnuði í samfélaginu og komi í veg fyrir mismunun. Þarlend stjórnarskrá leggi jafnframt bann við óhagstæðri meðferð byggðri á þjóðernisuppruna, litarhætti eða öðru álíka og yfirvöld þar í landi hafi almennt virt þessi réttindi. Þá kemur fram að rómafólk og aðrir minnihlutahópar hafi orðið fyrir fordómum og mismunun en sænska lögreglan rannsaki slík brot. Í grunnþjálfun lögreglumanna felist m.a. þjálfun í að bera kennsl á og rannsaka hatursglæpi. Þá hafi lögreglan jafnframt verið í samstarfi við félaga- og hjálparsamtök sem hjálpi og styðji við eftirlifendur, vitni og aðra sem verði fyrir hatursglæpum.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi er einstæður karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið fangelsaður í heimaríki og mátt þola pyndingar og ofbeldi á árunum 2016 og 2017. Kærandi glími við líkamlegar og andlegar afleiðingar þess en að hans sögn þjáist hann m.a. af [...], streitu, svefntruflunum og martröðum. Kærandi upplifi sársauka í fótleggjum, baki, maga og höndum. Kærandi hafi fengið heilahristing og í kjölfarið verið með verk í höfði og baki.
Í samskiptaseðli hjúkrunar á Göngudeild sóttvarna, dags. 3. til 26. janúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi telji að hann sé með [...] auk þess sem hann sé með höfuðverk eftir pyndingar í heimaríki. Kærandi hafi tekið eftir svörtum hægðum og finni blóðbragð í munni. Kærandi hafi jafnframt greint frá blóði í þvagi og að hann væri með hita. Kærandi hafi verið ávísað sýklalyfi og ráðlagt að leita á bráðamóttöku ef einkenni myndu versna. Í komunótu heimilislæknis á Göngudeild sóttvarna, dags. 29. janúar 2024, kemur fram að kæranda hafi liðið betur eftir sýklalyfjaskammtinn. Jafnframt kemur fram að kærandi hafi greint frá atburðum sem gerðust þegar hann var fangelsaður í heimaríki. Hann hafi verið laminn endurtekið með barefli í höfuð og sé með 2,5 sentímetra ör á höfði. Kærandi hafi kjálkabrotnað eftir barsmíðarnar. Þá hafi verið borað með nál undir nögl en kærandi beri enn ör eftir það. Kærandi sé jafnframt með kringlótt ör við ökkla sem gæti samrýmst öri eftir rafstuð. Kæranda hafi orðið fyrir hótunum um nauðgun. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram myndir af framangreindum áverkum.
Í komunótu heimilislæknis frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. febrúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi kunni að vera með [...]. Í komunótu sálfræðings á Göngudeild sóttvarna, dags. 15. febrúar 2024, kemur fram að líðan kæranda hafi farið batnandi og hann hafi tekið inn lyf í nokkra daga sem hjálpi. Kærandi hafi verið með sjálfsvígshugsanir í Svíþjóð en ekki hér á landi. Kærandi hafi verið hvattur til að láta vita ef slíkar hugsanir kæmu aftur.
Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 28. febrúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi sé með alvarleg einkenni áfallastreituröskunar vegna þeirra pyndinga sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Einkenni kæranda hafi verið verri í Svíþjóð og einkenni hans myndu versna aftur ef hann yrði endursendur þangað. Kærandi hafi hitt heimilislækni í fimm skipti auk þess sem hann hafi hitt sálfræðing 15. febrúar 2024. Kærandi hafi fengið ávísað [...] auk svefnlyfs. Áfallastreituröskunareinkenni kæranda séu alvarleg og telur heimilislæknir að lífi hans yrði verulega ógnað með flutningi úr landi. Gerð hafi verið beiðni um sjúkraþjálfun og röntgenmyndatöku auk tilvísunar til þvagfæraskurðlæknis. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 11. janúar 2024, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 21. febrúar 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 8. mars 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Svíþjóð verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið með aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu í Svíþjóð. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu. Nefndin hefur farið yfir framlögð heilsufarsgögn og afstöðu þeirra sérfræðinga sem þar koma fram. Nefndin sem hefur jafnframt farið yfir aðstæður í Svíþjóð telur að kærandi geti fengið fullnægjandi heilbrigðisaðstoð þar í landi. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um heilbrigðisþjónustu sem umsækjendum um alþjóðlega vernd stendur til boða í Svíþjóð telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við ákvörðun Útlendingastofnunar hvað þetta varðar. Hið sama á við um þá túlka- og lögfræðiþjónustu sem í boði er í málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð. Fellst kærunefnd því ekki á með kæranda að brotið hafi verið gegn 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga.
Kærunefnd áréttar að Útlendingastofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við síðasta málslið 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga skulu stjórnvöld gæta að þeirri stöðu við framkvæmd ákvörðunar, enda er mat á henni ekki bundið við þann tíma sem sótt er um og ekki skal takmarka rétt kæranda til sérstakrar aðstoðar þótt sérþarfir, sem stafa af viðkvæmri stöðu hans, komi fram síðar en við umsókn. Við framangreint mat hjá stjórnvöldum sem annast framkvæmd ákvörðunar skal eftir fremsta megni tryggja að heilsufari kæranda verði ekki stefnt í hættu og að gætt verði að hann hafi meðferðis öll viðeigandi lyf við endursendingu.
Kærandi greindi frá því að hafa starfað fyrir byggingafyrirtæki í Svíþjóð og hann hafi þurft að vinna langa daga fyrir lágmarkslaun. Kærandi hafi leitað til stéttarfélags í Svíþjóð sem hafi aðstoðað hann og í kjölfarið hafi mál hans leitað í fjölmiðla og því óttist kærandi fyrrum vinnuveitanda sinn. Kærandi óttist einnig að leyniþjónustan í heimaríki hafi uppi á honum í Svíþjóð. Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir fordómum í Svíþjóð m.a. þegar hann leitaði til útlendingastofnunar þar í landi. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hans ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 21. febrúar 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 21. desember 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.
Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.
Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Kærunefnd leggur þá áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstaklinginn til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) til að tryggja að einstaklingar verði ekki sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. til hliðsjónar dóm Mannréttindadómstóls Evrópu frá 21. janúar 2011 í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09). Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að í Svíþjóð sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað.
Kærandi hefur ekki lagt fram gögn önnur en framburð sinn sem bendi til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Kærandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð. Kærunefnd vísar til þess sem áður hefur komið fram að fái umsækjandi um alþjóðlega vernd endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænskum yfirvöldum eigi hann þess kost að leggja fram viðbótarumsókn, svo sem ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans. Kærandi gæti þannig lagt fram viðbótarumsókn vegna breyttra aðstæðna sinna, s.s. vegna aðstæðna í heimaríki hans. Engin takmörk séu á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig kost á því að bera synjunina undir dómstóla. Þá geti hann lagt fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji hann endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5. Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 20. desember 2023 og sótti um alþjóðlega vernd 21. desember 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
6. Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Gunnar Páll Baldvinsson