19 júní 2024

/

Nr. 661/2024 Úrskurður

Hinn 19. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 661/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24050158

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnuna

r

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. maí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. maí 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 29. apríl 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir tíu daga dvöl frá 21. til 30. júní 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. maí 2024. Hinn 25. maí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi dags. 27. maí 2024.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í röksemdum kæranda vísar hún til boðs utanríkisþjónustunnar um að leggja fram staðfestingu á bókuðum tíma hjá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi vegna framlengingar dvalarheimildar í Bandaríkjunum eða afrit af flugmiða alla leið til heimaríkis. Tölvubréf utanríkisþjónustunnar hafi aftur á móti farið í ruslhólf kæranda og hafi hún því ekki haft nægar upplýsingar um til hvaða ráðstafana hún hefði þurft að grípa áður en ákvörðun væri tekin í málinu. Með hliðsjón af framangreindu hafi kærandi lagt fram flugmiða frá Íslandi til heimaríkis hjá kærunefnd þar sem hún hyggst framlengja dvalarheimild sína í Bandaríkjunum. Kærandi kveðst munu flytja erindi á ráðstefnu í Reykjavík sem fram fari 22. til 26. júní 2024, en erindi kæranda fjallar um kórónaveiruna. Því hafi hún ekki tök á því að færa til ferðaáætlunina sína og vonast til að málið verði leyst sem fyrst.

Meðal fylgigagna sem kærandi lagði fram á kærustigi er flugbókun, dags. 25. maí 2024, þar sem fram kemur að kærandi fljúgi frá Íslandi til heimaríkis á tímabilinu 30. júní til 1. júlí 2024.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að kærandi hefði ekki sýnt fram á dvalarheimild í Bandaríkjunum lengur en þremur mánuðum umfram dvöl á Schengen-svæðinu. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá Utanríkisráðuneytinu en hún var lögð fram á skrifstofu VFS Global í San Francisco í Bandaríkjunum, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kærandi hafi ekki sýnt fram á dvalarheimild í Bandaríkjunum til a.m.k. þriggja mánaða umfram fyrirhugaða dvöl á Schengen-svæðinu. Samkvæmt b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga er meðal skilyrða fyrir útgáfu vegabréfsáritunar að kærandi hafi heimild til þess að ferðast aftur til heimaríkisins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar. Dvalarheimild kæranda í Bandaríkjunum rennur út 9. júní 2024 en samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi stundað nám þar í landi. Samkvæmt tölvubréfi fulltrúa Utanríkisráðuneytisins, dags. 6. maí 2024, var kærandi upplýst um framangreint og veitt færi á að leggja fram frekari gögn vegna málsins innan fimm daga. Kærandi svaraði tölvubréfi Utanríkisráðuneytisins 25. maí 2025 og lýsti aðstæðum sínum. Þá hafði Útlendingastofnun þegar tekið ákvörðun um umsókn kæranda.

Samkvæmt því sem þegar hefur verið rakið lagði kærandi fram nýja flugbókun vegna málsins. Samkvæmt bókuninni yfirgefur kærandi Ísland 30. júní 2024 og kemur til heimaríkis 1. júlí 2024, með millilendingum í London og Istanbúl. Í ljósi þess stendur b-liður 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga ekki í vegi fyrir að kæranda skuli veitt vegabréfsáritun. Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar að nýju, með tilliti til nýrra ganga í málinu.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellants’ case.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður