20 júní 2024

/

Úrskurður nr. 648/2024


Hinn 20. júní 2024 kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 648/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU23110074 og KNU23110075

Kæra [...] og barns þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 15. nóvember 2023 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 1. og 2. nóvember 2023, um að synja þeim og barni þeirra, […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og barn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 21. febrúar 2023. Kváðust kærendur vera að sækja um alþjóðlega vernd vegna ástandsins í Venesúela og vegna þess að hópar á vegum stjórnvalda hafi hótað þeim.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 17. júlí 2023 og greindu frá ástæðum flótta síns. Í viðtölum sínum greindu kærendur frá því að vera fædd og uppalin í Karakas og hafa verið búsett þar þegar þau hafi flúið heimaríki í febrúar 2023. Í viðtali sínu greindi M frá því að vera hvorki meðlimur í stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Aðspurður kvaðst kærandi ekki vera sammála neinu sem yfirvöld í heimaríki geri og að hann telji sig vera í hættu vegna þeirra skoðana. M greindi frá því að hafa rekið matvöruverslun í um eitt ár. Lögreglumenn hafi komið daglega og fjárkúgað kærendur, þeir hafi beðið um fimm til tíu dollara. Þegar kærendur hafi ekki átt nægan pening til að borga lögreglumönnunum hafi þau gefið þeim vörur. Eftir að kærendur hafi lokað verslun sinni hafi þau byrjað að selja grænmeti á [...]. Þá hafi „þeir“ hringt í kærendur og krafist greiðslu. Þeir hafi komið í verslun sem kærendur hafi rekið, krafist peninga og hótað að drepa þau ef þau myndu ekki borga. M hafi farið til lögreglu og gefið skýrslu en lögreglan hafi sagt M að glæpahópurinn væri hluti af stjórnvöldum og því væri ekkert hægt að gera. Í kjölfar þess að M hafi farið til lögreglunnar hafi meðlimir glæpahópanna oft hringt í kærendur og hótað þeim lífláti. Kærendur hafi flutt til Tachira til að vera örugg og dvalið þar í nóvember og desember. Í janúar hafi kærendur farið aftur til Karakas og síðar flúið til Íslands. Aðspurður greindi M frá því að „þeir“ hafi verið glæpahóparnir Collectívos og Tupamaros. M hafi talið að þetta væri sami hópurinn og að þeir hafi verið að vinna saman. M greindi frá því að hóparnir sem hafi hótað þeim hafi verið á vegum yfirvalda og ástæða hótananna hafi verið peningar. M kvað hópana vera með yfirráð yfir Karakas og að allir þekktu hópana þar. Kærendur hafi verið skotmörk hópana þar sem þau hafi rekið verslun, verið ný á svæðinu og þeir hafi haft stjórn á þessu svæði. M greindi frá því að kærendum hafi fyrst borist hótanir í febrúar eða mars 2022 þegar þau hafi byrjað að vinna á götumarkaði og að meðlimir glæpahópanna hafi hringt vikulega. Kærendum hafi borist síðasta hótun í október 2022 þegar meðlimir glæpahópanna hafi komið í verslun þeirra. M greindi frá því að hótanirnar hafi hætt þegar hann hafi tilkynnt málið til lögreglu og kærendur hafi flutt til Tachira. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að hótanirnar hafi haldið áfram eftir að hann hafi tilkynnt málið til lögreglu og kærendur hafi flutt til Tachira en hótanir hafi hætt þegar M hafi skipt um símanúmer. Kærendur hafi aldrei greitt glæpahópunum. Aðspurður greindi M frá því að glæpahópurinn hafi vitað að þau hafi farið til lögreglunnar því að lögreglan hafi sagt þeim það. Kærendur hafi búið hjá frænku K í Tachira. Ekkert hafi komið fyrir kærendur í Tachira en þar hafi verið mafíuhópar og kærendur hafi farið aftur til Karakas. Þegar kærendur hafi flutt aftur til Karakas hafi þau verið í felum. M kvaðst óttast um lífs sitt og að verða fyrir ofbeldi sneri hann aftur til Venesúela. Kærendur gætu ekki búið annars staðar í heimaríki vegna þess að hóparnir gætu fundið M og drepið hann og vegna þess að hóparnir séu alls staðar í landinu.

Í viðtali sínu greindi K frá því að vera hvorki meðlimur í stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. K greindi frá því að hún væri á móti ríkisstjórninni og tilheyrði minnihlutahópi þess vegna. K kvað stundum vera bankað á dyrnar hjá einstaklingum sem væru á móti ríkisstjórninni til að segja þeim að kjósa rétt og það hafi stundum gerst fyrir K. K telji sig vera í hættu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld. K greindi frá því að kærendur hafi byrjað að reka verslun fyrir tveimur árum, árið 2021. Mismunandi lögreglumenn hafi komið daglega á fyrsta árinu og krafist greiðslu fimm til tíu dollara fyrir að leyfa kærendum að starfa í friði. Kærendur hafi greitt þeim og þegar þau hafi ekki getað greitt þeim með peningum hafi þau greitt lögreglumönnunum með vörum úr versluninni. Lögreglumenn hafi einnig tvisvar sinnum stolið úr verslun kærenda. Þá hafi M ákveðið að loka versluninni. Árið 2022 hafi kærendur ákveðið að opna nýja verslun á nafngreindri verslunargötu þar sem þau hafi selt ávexti og grænmeti. Í götunni hafi verið selt mikið af ávöxtum og grænmeti frá mismunandi borgum og þar hafi verið mikið af peningum í umferð. Meðlimir glæpahópsins Collectívos hafi komið til kærenda og krafist greiðslu frá þeim í skiptum fyrir að fá að vera þarna. Kærendur hafi ekki getað borgað þeim og þá hafi þeir byrjað að hringja í kærendur og hótað þeim lífláti. Meðlimir glæpahópsins hafi hringt oft en þau hafi haldið áfram að starfa í versluninni. Einn daginn hafi tveir einstaklingar komið til kærenda þar sem þau hafi verið með barn sitt. Einstaklingarnir hafi hótað þeim lífláti ef þau myndu ekki borga þeim eða að kærendur ættu að fara af svæðinu. Kærendur hafi farið til lögreglunnar til að gefa skýrslu en lögreglan hafi sagt þeim að þeir gætu ekki gert skýrslu heldur þyrftu þau að hringja til að fá vernd. Lögreglan hafi ráðlagt þeim að fara frá þessu svæði þar sem glæpahópurinn sem væri að hóta þeim væri að vinna með stjórnvöldum. Í kjölfar þess að kærendur hafi farið til lögreglunnar hafi meðlimir glæpahópsins byrjað að hringja í þau og hóta þeim vegna þess að þau hafi leitað til lögreglunnar. Þá hafi kærendur ákveðið að flytja til Tachira þar sem þau hafi búið hjá frænku K í um einn og hálfan mánuð. Staðan í Tachira hafi verið erfið þar sem þetta svæði sé við landamæri Kólumbíu og einungis hafi verið hægt að greiða með pesóum. Í Tachira hafi verið fólk sem hafi búið í þorpum og upp í fjöllum sem beitti fjárkúgun, þar væri annars konar tegund af mafíu og það hafi verið erfitt að komast af þar. Kærendur hafi ákveðið að snúa aftur til Karakas og flýja til Íslands. Kærendur hafi verið í Karakas í um einn mánuð áður en þau hafi flúið til Íslands. Þá hafi kærendur verið búin að skipta um símanúmer, fáir hafi vitað að þau væru þar og því hafi þeim ekki borist hótanir eftir að þau sneru til baka til Karakas. Kærendum hafi fyrst borist hótanir frá meðlimum Colectívos um mitt árið 2022 og síðasta hótun hafi borist í október 2022. K greindi frá því að meðlimir glæpahópa hafi hringt í þau eftir að þau hafi flutt og sagst vita af þeim í Tachira. Hótunarsímtöl hafi hætt þegar þau hafi breytt um símanúmer. Síðar í viðtalinu greindi K frá því að þeir hafi haldið áfram að hringja eftir að þau hafi skipt um símanúmer, en hún hafi ekki vitað hvernig þeir hafi fengið nýju símanúmerin þeirra. Kærendur hafi þurft að gefa upp persónuupplýsingar þegar þau hafi fyllt á mínútur í farsíma og K hafi haldið að þeir hafi fengið númerin þannig. K greindi frá því að meðlimir glæpahópsins hafi tilkynnt í símanum að þeir tilheyrðu Colectívos og þegar þeir hafi komið til þeirra hafi þeir verið í sérstökum klæðnaði, með merki um að þeir væru frá forsetanum og með rauða stjörnu. Fyrr í viðtalinu greindi K frá því að hópurinn sem hafi verið að hóta kærendum og kúga af þeim fé í verslun þeirra hafi kallað sig Chavista og hafi starfað fyrir stjórnvöld. K greindi frá því að hafa búið með foreldrum hennar og systur. Faðir K hafi verið reiður við K, öskrað á hana og K hafi áhyggjur af því að faðir hennar gæti beitt son kærenda andlegu ofbeldi eins og hana. Kærendur hafi flutt til fjölskyldu K vegna fjárhagsvandræða. Þá greindi K frá því að það hafi verið gerð ránstilraun á heimili hennar og foreldar hennar árið 2016. Faðir K hafi verið rænt og fjölskyldan hafi greitt lausnargjald fyrir hann og flutt svo í burtu. Fjölskyldan hafi lokað sig inni í húsinu í fjóra mánuði og einstaklingar sem hafi rænt föður hennar hafi komið og barið á glugga og hurðir. Faðir K hafi hringt í vin sinn og frænda sem hafi komið og náð í þau og farið með þau í hús guðmóður K. Fjölskyldan hafi svo farið til baka og faðir K hafi leyst málið.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í máli barns kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og barni þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 15. nóvember 2023 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 30. nóvember 2023.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærendur séu fædd og uppalin í Karakas. M hafi búið í Karakas í leiguhúsnæði ásamt fjölskyldu sinni og unnið sjálfstætt við sölu ýmis konar matvöru. Þannig hafi M séð fyrir fjölskyldunni en það hafi alltaf eitthvað vantað. M glími við [...], og þurfi að fara í aðgerð vegna þessa en aðgerðin hafi ekki staðið M til boða í Venesúela. Þessi aðgerð hafi ekki verið það eina sem fjölskyldan hafi þurft að neita sér um þegar komið hafi að heilsu þeirra. Ástæður flótta frá Venesúela hafi M sagt vera vegna hótana, fjárkúgana og ofsókna af hálfu einstaklinga á vegum stjórnvalda. Kærendur hafi leitað til lögreglu en hún hafi enga aðstoð viljað veita heldur sagt þeim að glæpahópurinn starfi með stjórnvöldum og hefði meiri völd en lögreglan. M hafi talið að einstaklingarnir sem hafi hótað honum með skotvopni hafi annað hvort tilheyrt glæpahópnum Colectívos eða Tupamaro, en hafi ekki verið viss um hvort einhver munur væri þar á. Þar sem kærendur hafi ekki getað greitt glæpahópnum hafi þau ákveðið að flýja, fyrst innan Venesúela en svo frá heimaríki. Þá sé lögreglan einnig afar spillt og hafi lögreglumenn kúgað M til að greiða peninga þar sem hann hafi starfað áður. K hafi greint frá því að hafa unnið með M og hafa búið með honum og barni sínu heima hjá foreldrum hennar og systur. Kærendur hafi getað lifað frá degi til dags með því að neita sér um hluti m.a. læknisþjónustu, hafi staðið illa á. K sé með [...] og hafi glímt við andleg vandamál, [...], í heimaríki. Þá glími barn kærenda oft við sýkingar. K greindi frá því að hafa verið ofsótt af svokölluðum Chavistas sem vinni fyrir stjórnvöld, stundi fjárkúganir og þvingi stjórnarandstæðinga eins og K jafnvel til þess að kjósa stjórnvöld. K hafi opnað verslun með M fyrir tveimur árum en hafi neyðst til að loka henni vegna ágangs lögreglunnar sem hafi heimtað peninga og vörur af þeim fyrir vernd. Lögreglan hafi einnig rænt kærendur tvisvar sinnum og þá hafi þau gefist upp á rekstri verslunarinnar. Þegar kærendur hafi ætlað að opna aðra verslun annars staðar hafi þau lent í klóm glæpahópsins Colectívos.* Glæpahópurinn hafi ógnað þeim öllum, jafnvel barni þeirra. Kærendur hafi reynt að kæra hótanir og fjárkúgun til lögreglunnar en þá hafi hótanir glæpahópsins versnað. Kærendur hafi því flúið, fyrst til Táchira, en svo frá landinu. Þá hafi faðir K beitt hana andlegu ofbeldi og K og fjölskylda hennar hafi orðið fyrir frekari ofbeldi m.a. hafi föður K verið rænt. Kærendur telja hræðilegt almennt öryggisástand í Venesúela og það væri engin öruggur þar.

Kærendur vísa jafnframt til þess að þau séu í viðkvæmri stöðu með vísan til heilsufarsvandamála sinna. Með greinargerð fylgi nýtt vottorð vegna alvarlegs augnsjúkdóms M þar sem fram kemur nauðsyn á eftirfylgni og meðferð, þ. á m. möguleg aðgerð. Kærendur vísa til þess að Útlendingastofnun hafi virt að vettugi frumkvæðisskyldu sína og rannsóknarskyldu samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, þegar stofnunin hafi ekki tryggt að öll nauðsynleg gögn og vottorð lægju fyrir áður en ákvörðun stofnunarinnar var tekin. Kærendur telja að þar sem íslensk stjórnvöld hafi virt að vettugi framangreinda lögbundna skyldu sína verði að leggja til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. mgr. laga um útlendinga og hafi öll þörf fyrir vernd vegna heilbrigðisástæðna í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærendur vísa til þess að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar séu ákvarðanir í málefnum þess, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Reglan sé ítrekuð í lögum um útlendinga, reglugerð um útlendinga og í alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins. Grundvallarreglan um það sem sé barni fyrir bestu skal þannig ávallt höfð að leiðarljósi og meta þarf þá hagsmuni áður en ákveðið er hvar eining fjölskyldunnar skuli tryggð. Við mat á hagsmunum barnsins sé eðlilegt að meta aðstæður þess í þeim löndum þar sem búseta þess sé möguleg, þar sem það hefur eða getur haft, vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd, löglegan rétt til dvalar. Í tilfelli A er það á Íslandi og í Venesúela. Þá er réttast að velja þann kost, það land, þar sem hag barnsins sé best borgið. Afar mikilvægt sé að tryggja kærendum aðstæður sem geri þeim kleift að veita A þá umönnun og það öryggi sem hann þarfnast og hefur rétt á. Brýnt sé fyrir andlega og líkamlega heilsu A og framtíð hans að hann geti alist upp í umhverfi sem uppfyllt geti þarfir hans um öryggi, velferð og félagslegan þroska. Að mati kærenda þjóni brottvísun A ekki hagsmunum hans. Í Venesúela bíði hans öryggisleysi, óvissa, fátækt og skortur. Kærendur gera athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar þar sem ekkert mat hafi verið gert á bestu hagsmunum A. Kærendur mótmæli því sem fram kemur í hinum kærðu ákvörðunum um að yfirvöld í Venesúela hafi stigið mikilvæg skref til að tryggja réttindi og lífsgæði barna í Venesúela og telji slíkt enga tryggingu fyrir A við mögulega endursendingu. Þær aðstæður muni ekki uppfylla kröfu grundvallarreglu barnaréttar um bestu hagsmuni A. Kærendur vísa til skýrslu samtakanna Humanium frá árinu 2022 um stöðu barna í Venesúela.

Kærendur vísa til þess að Útlendingastofnun hafi fryst umsóknir frá ríkisborgurum Venesúela um alþjóðlega vernd á Íslandi. Kærendur telji að um brot gegn málshraðareglu og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga sé að ræða.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærendur telji að aðstæður í Venesúela hafi ekki breyst til hins betra og að íslenskum stjórnvöldum beri að skoða raunverulega stöðu mála í Venesúela nú um stundir. Flutningur 180 umsækjenda um alþjóðlega vernd til Venesúela staðfesti þetta. Hafi þessir einstaklingar verið látnir skrifa undir ýmis skjöl við heimkomuna, þeir hnepptir í varðhald og yfirheyrðir og ekkert liggi enn fyrir um hvaða áhrif þetta muni hafa til lengri tíma fyrir þessa einstaklinga. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og barni þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja sig vera flóttafólk vegna ofsókna sem þau hafi orðið fyrir frá lögreglu og glæpahópum í Venesúela en einnig vegna stjórnmálaskoðana sinna. Ljóst sé að kærendur séu á móti stjórnvöldum og hafa þau lýst ofsóknum vegna þess, s.s. að vera þvinguð til að kjósa ríkjandi stjórnmálaflokk. Kærendur hafi orðið fyrir ítrekuðum og grófum hótunum og ofsóknum vegna vinnu sinnar, bæði af hálfu lögreglu, þ.e. stjórnvalda, og glæpahópa sem starfi með samþykki ef ekki á vegum stjórnvalda. Kærendur hafi ekki fengið neina vernd í Venesúela og megi þau búast við að verða fyrir frekari ofsóknum af sama tagi sem feli í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum þeirra snúi þau til baka til Venesúela. Að mati kærenda sé ljóst að þau megi óttast að missa lífið sem og að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð verði þeim gert að snúa aftur til Venesúela. Kærendur vísa til landaupplýsinga sem styðji þá frásögn kærenda að ótti þeirra sé ástæðuríkur. Kærendur séu utan heimaríkis síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsótt, sbr. 1. mgr. a-, b- og c- lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, vegna stjórnmálaskoðana sinna, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, og aðildar þeirra að tilteknum þjóðfélagshóp, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, og geti ekki vegna slíks ótta fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Venesúela enda standi þau sjálf að ofsóknum gegn kærendum, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sem og glæpahópar í landinu, sbr. b- og c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá vísar K einnig til alþjóðlegra skuldbindinga ríkisins þegar kemur að kyni hennar og vísar m.a. til ákvæða samnings sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismunar gagnvart konum og samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi en þeir hafi báðir verið fullgiltir hér á landi. Kærendur vísa til þess að fólk sem snúi til baka til Venesúela sé stimplað svikarar og eigi á hættu að verða fyrir slæmri meðferð af hálfu yfirvalda við heimkomu. Einstaklingar geti átt erfitt með að fá vinnu, vegabréf þeirra geti verið felld úr gildi og eða þau verið fangelsuð án dóms og laga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þeirrar raunhæfu hættu á að þau láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, vegna hinnar gríðarlegu óaldar og víðtæku mannréttindabrota sem viðgangist almennt í heimaríki þeirra, verði þau send aftur til Venesúela, sem og þeirra raunhæfu hættu á að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófkennds ofbeldis vegna vopnaðar átaka glæpahópa í landinu og ofbeldisfullra viðbragða stjórnvalda við gagnrýni. Kærendur vísa til þess að líta verði til persónulegra aðstæðna þeirra, hagsmuna ungs barns þeirra, stjórnmálaskoðana þeirra og atvinnu þeirra sem geri þau útsettari fyrir fjárkúgunum. Kærendur vísa einnig til þess að þau hafi sótt um vernd hér á landi 21. febrúar 2023. Á þeim tíma vissu þau ekki betur en að nær öllum umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Venesúela væri veitt skilyrðislaust alþjóðleg vernd á Íslandi. Útlendingastofnun hafi þannig virt að vettugi réttmætar væntingar kærenda, jafnræðisreglu og málshraðareglu stjórnsýslulaga.

Kærendur telji hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að kærendur setjist að annars staðar í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, í ljósi persónubundinna þátta kærenda, viðkvæmrar stöðu þeirra vegna stjórnmálaskoðana, efnahagsástands og meðferð yfirvalda á einstaklingum sem dvalið hafi erlendis.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærendur vísa m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga um að það dugi til að grundvallarmannréttindi séu ekki nægilega tryggð. Af rökstuðningi kærunefndar megi sjá að aðstæður í Venesúela séu enn ótryggar og grundvallarmannréttindi séu ekki nægilega tryggð. Kærendur hafi ekki getað lagt fram öll gögn sem þau hafi viljað um heilsufar sitt en leggi fram vottorð frá augnlækni hér á landi. Þá sé ljóst að fjölskyldan glími við félagsleg vandamál, sbr. samband K við föður sinn sem hún hafi þurft að búa með og vegna kyns hennar. Kærendur myndu eiga erfitt uppdráttar í heimaríki vegna öryggisleysis, skorts á nauðsynjum og skorts á virðingu fyrir lífi og mannréttindum einstaklinga sem ríki í Venesúela. Þá samræmist það ekki bestu hagsmunum barns kærenda að snúa til baka í þetta ástand. Kærendur telji að ekki megi beita þröngum skilyrðum 43. gr. a reglugerðar nr. 540/2017 um útlendinga í máli kærenda þar sem ákvæðið hafi ekki verið sett í reglugerð um útlendinga fyrr en nokkru eftir að kærendur hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Hvað varðar þrautaþrautavarakröfu kærenda um að fella beri úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann vísa kærendur til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensks stjórnsýsluréttar og telji slík refsikennd viðurlög verulega íþyngjandi ráðstafanir. Kærendur vísa til 3. mgr. 102. gr. laga um úrlendinga og telja með hliðsjón af málsatvikum, þeirri staðreynd að kærendur leituðu til Íslands í neyð sinni og að umsóknir þeirra séu ekki á nokkurn máta bersýnilega tilhæfulausar skuli kærendum ekki ákveðin brottvísun.

Kærendur telja að með endursendingu þeirra og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti m.a. gegn frumkvæðisskyldu stjórnvalda, málshraðareglu og rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins. Kærendur telja að þar sem ekki hafi verið framkvæmt mat á mannúðarsjónarmiðum með réttmætum hætti hafi ekki verið rannsökuð atriði sem skipt hafi máli við töku hinna kærðu ákvarðana.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 4. júní 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 11. júní 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela: Pro-government groups (also known as Colectivos), including the Tupamaros [also known as the Revolutionary Tupamaros Movement (Movimiento Revolucionario Tupamaro, MRT);] their areas of operation, objectives, activities, and relationship with the government, including instances of collusion:whether these groups operate under a unified command and the nature of cooperation among the different cells throughout the country (2021-January 2023)(Immigration and Refugee Board of Canada, febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 6. júní 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Kanada frá 7. febrúar 2023 kemur fram að Tupamaros sé bæði stjórnmálaflokkur og vopnaður hópur sem fari ekki með yfirráð landsvæða. Heimildir beri með sér að hópurinn hafi tengsl við vopnaða hópa á landsbyggðinni, erlend skæruliða- og hryðjuverkasamtök og venesúelsk stjórnvöld. Markmið hópsins séu pólitísk og beini hópurinn athygli sinni að háttsettum stjórnmálamönnum og öðrum háttsettum einstaklingum. Hópurinn sé aðallega með aðsetur í höfuðborginni Karakas en starfi einnig í Lara fylki, Barinas og Mérida

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna ofsókna yfirvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna og hótana og fjárkúgana af hálfu glæpahóps.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera á móti því sem stjórnvöld í heimaríki geri og að hann telji sig vera í hættu vegna þeirra skoðana. K greindi frá því að tilheyra minnihlutahópi vegna þess að hún væri á móti ríkisstjórn í heimaríki og væri í hættu þar sem hún hefði aðra skoðun en yfirvöld. Stundum hafi verið bankað á hurðina hjá henni til að segja henni að kjósa rétt. Kærendur greindu frá því að hafa opnað verslun árið 2021. Þegar þau hafi rekið verslunina hafi lögreglumenn komið í verslun þeirra og krafið þau daglega um greiðslu fimm til tíu dollara. Þegar kærendur hafi ekki átt peninga til að borga lögreglumönnunum hafi þau látið þá hafa vörur úr versluninni. Þá hafi lögreglumenn einnig stolið tvisvar úr búð kærenda. Kærendur hafi opnað aðra verslun í byrjun ársins 2022. Þá hafi glæpahópur krafist greiðslu frá kærendum fyrir að fá að reka verslunina og þegar þau hafi ekki getað borgað þeim hafi þeim farið að berast hótanir frá meðlimum glæpahópsins.

Kærendur bera fyrir sig að ótilgreindir lögreglumenn hafi kúgað fé og stolið af kærendum þegar þau hafi rekið verslun í heimaríki árið 2021.

Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúgun hefur aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hefur slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá hefur fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum felst í að krafist er greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslu frá vörubílstjórum og frá nautgripabændum. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ónæg. Þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum.

Það er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur hafi verið áreitt að einhverju leyti af ótilgreindum lögreglumönnum og krafin um greiðslur. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna. Þegar litið er til þess að kærendur kváðu að um hóp ótilgreindra lögreglumanna hefði verið að ræða og þess sem að framan greinir um aðgerðir yfirvalda verður því talið að kærendur geti leitað aðstoðar lögreglu telji þau þess þörf jafnvel þó svo þau kunni að hafa orðið fyrir áreiti einstakra lögreglumanna. Frásagnir kæranda bera með sér að fjárkúgun af hendi lögreglumannanna hafi hætt þegar þau hafi lokað verslun sinni árið 2021 sem bendir ekki til þess að þau séu nú sérstakt skotmark lögregluyfirvalda í heimaríki. Þá bera frásögn kærenda og framlögð gögn með sér að eftir að framangreind fjárkúgun af hendi lögreglumannana hafi átt sér stað hafi kærendur talið sig geta leitað til lögreglu og lagt fram kæru gegn meðlimum glæpahóps sem hafi reynt að fjárkúga þau og hótað þeim.

Kærendur bera fyrir sig að vera á móti stjórnvöldum í heimaríki og að þau séu í hættu vegna þeirra skoðana. Stundum hafi verið bankað á hurðina hjá K til að segja henni að kjósa rétt.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Að mati kærunefndar er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur séu á móti stjórnvöldum í heimaríki og að K hafi fengið heimsókn þar sem hún hafi verið hvött til að kjósa ríkjandi stjórnmálaflokk. Frásagnir kærenda bera ekki með sér að þau hafi komið að starfsemi stjórnmálaflokka eða hafi verið áberandi fyrir hönd slíkra flokka í heimaríki. Þá bera frásagnir kærenda með sér þau hafi ekki tekið þátt í mótmælum. Frásagnir kærenda bera ekki með sér að þau hafi sætt ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna af hálfu stjórnvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærendur eigi ekki frekar á hættu að verða fyrir áreiti en aðrir einstaklingar í heimaríki þeirra sem séu mótfallnir stjórnvöldum en heimildir bera með sér að einkum áberandi aðilar í stjórnarandstöðuflokkum, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir eru andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Að mati kærunefndar benda gögn málsins og framburðir kærenda samkvæmt framangreindu ekki til þess að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá bera gögn málsins með sér að kærendur hafi fengið útgefið vegabréf fyrir barn sitt í september 2022, stuttu áður en þau flúðu heimaríki, sem bendir ekki til þess að þau hafi sætt eða eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu venesúelskra stjórnvalda.

Kærunefnd telur ýmislegt í frásögnum kærenda draga úr trúverðugleika þeirra, einkum hvað varðar hvaða glæpahópur hafi reynt að kúga fé af kærendum og hótað þeim og hversu lengi hótanir hafi staðið yfir. Í viðtölum sínum hafa kærendur greint frá þremur mismunandi glæpahópum sem eigi að hafa reynt að kúga af kærendum fé og hótað þeim. Í lögregluskýrslu við umsókn sína um alþjóðlega vernd greindu kærendur frá því að hafa flúið frá heimaríki vegna þess að hópar á vegum yfirvalda hafi hótað þeim. Í viðtölum sínum kvað M aðspurður um þetta atriði að þetta hafi verið hópur á vegum stjórnvalda, án þess að gefa nafn hópsins. M kvað hópinn ekki hafa verið að hóta kærendum vegna stjórnmálaskoðana þeirra heldur fyrir peninga. Aðspurð greindi K frá því að hópurinn sem hafi verið að hóta þeim og hún hafi nefnt í lögregluskýrslu við umsókn sína um alþjóðlega vernd hafi kallaði sig Chavista. Í greinargerð er því haldið fram að K hafi greint frá því að vera ofsótt af svokölluðum hóp Chavistas sem vinni fyrir stjórnvöld og stundi fjárkúganir og þvingi stjórnarandstæðinga eins og K til að kjósa stjórnvöld. Í viðtali sínu tók K sérstaklega fram að Chavista hópurinn hafi ekki verið að eltast við kærendur vegna stjórnmálaskoðana þeirra heldur hafi reynt að kúga af þeim fé í tengslum við rekstur verslunar kærenda. Síðar í viðtalinu greinir K svo frá því að það hafi verið glæpahópurinn Colectívos sem hafi reynt að kúga af kærendum fé og hótað þeim í tengslum við rekstur verslunar þeirra. Í viðtali sínu greindi M frá því að það hafi verið glæpahóparnir Colectívos og Tupemaros sem hafi reynt að kúga af þeim fé og hótað kærendum. M greindi svo frá því að hann héldi að þetta væri sami hópurinn sem ynni saman sem er ekki í samræmi við þær landaheimildir sem kærunefnd hefur kynnt sér. Í viðtali sínu greindi K frá því að kærendum hafi byrjað að berast hótanir um mitt árið 2022 og M greindi frá því að þeim hafi byrjað að berast hótanir í febrúar eða mars 2022. Þá er töluvert misræmi í frásögnum kærenda um hvenær þeim hafi hætt að berast hótanir. Í viðtali sínu greindi K ýmist frá því að kærendum hafi hætt að berast hótanir vegna þess að þau fluttu frá Karakas, að kærendum hafi borist hótanir eftir að þau hafi flutt frá Karakas og glæpahópar hafi vitað hvar þau væru stödd, að glæpahópar hafi hætt að hringja og hóta kærendum þegar þau hafi skipt um símanúmer og að kærendum hafi haldið áfram að berast hótanir eftir að þau hafi skipt um símanúmer. Þá þykir útskýring K á því að meðlimir glæpahópsins hafi mögulega fengið ný símanúmer kærenda í tengslum við kaup kærenda á mínútum fyrir farsíma þeirra þar sem þau hafi þurft að gefa upp persónuupplýsingar, ótrúverðugar. Í viðtali sínu greindi M ýmist frá því að kærendum hafi hætt að berast hótanir þegar hann hafi farið og gefið skýrslu hjá lögreglu og kærendur flutt frá Karakas, að kærendum hafi haldið áfram að berast hótanir eftir að þau hafi gefið skýrslu hjá lögreglunni og eftir að þau hafi flutt frá Karakas og að hótanir hafi hætt þegar kærendur hafi skipt um símanúmer. M greindi einnig frá því að kærendur hafi flutt frá Karakas í nóvember 2022. Kærendur greindu frá því að þeim hafi hætt að berast hótanir frá glæpahópnum í október 2022, sem hefur þá verið mánuði áður en þau hafi flutt frá Karakas.

Í ljósi heimilda um heimaríki kærenda telur kærunefnd þó ekki ástæðu til að útiloka að kærendur hafi orðið fyrir einhverju áreiti af hálfu ótilgreinds glæpahóps í heimaríki vegna verslunarreksturs þeirra. Kærendum hefur hins vegar ekki tekist að leiða líkum af því að framangreindar hótanir og fjárkúgun hafi tengst vandamálum með yfirvöld eða hafi verið vegna stjórnmálaskoðana þeirra. Frásagnir kærenda bera með sér að ástæða hótana hafi verið greiðsla gjalds fyrir að fá að reka verslun sína á tilteknu verslunarsvæði sem hafi verið undir stjórn glæpahópa. Þá bera frásagnir kærenda með sér að meðlimir glæpahópsins hafi fyrst og fremst haft samband við kærendur í síma og hótanir virðast hafa hætt þegar kærendur skiptu um símanúmer. Þá bera frásagnir kærenda með sér að meðlimir glæpahópsins hafi komið einu sinni til þeirra í verslun og hótað þeim með byssu, en kærendur hafi farið og kært atvikið til lögreglu, haldið áfram að reka verslun sína og borist hótanir frá meðlimum glæpahópsins. Meðlimir glæpahópsins hafi hins vegar ekki komið aftur eða gert tilraun til að láta verða af líflátshótunum. Kærunefnd hefur litið til landaupplýsinga í heimaríki kærenda sem benda til þess að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu og bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna.

K ber fyrir sig að vera í viðkvæmri stöðu vegna kyns síns og eigi á hættu að sæta mismunun og ofbeldi í heimaríki á þeim grundvelli. Í viðtali sínu lýsti K andlegu ofbeldi af hálfu föður síns sem kærendur og barn þeirra hafi búið hjá áður en þau hafi flúið heimaríki. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 njóta konur sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og megi vinnuveitendur ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Þá kemur fram í skýrslunni að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Að mati kærunefndar verður hvorki af landaupplýsingum né frásögn K ráðið að hún verði í erfiðari stöðu en aðrar konur í Venesúela á grundvelli kyns. Verður því ekki lagt til grundvallar að K eigi á hættu að sæta mismunun eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli kyns síns.

K greindi frá því að föður hennar hafi verið rænt árið 2016 og fjölskylda hennar hafi borgað lausnargjald til honum yrði sleppt úr haldi. Fjölskyldan hafi verið lokuð inni í húsi sínu í fjóra mánuði og í eitt sinn hafi þessir einstaklingar komið og barið á hurðir og glugga í húsinu. Faðir hennar hafi svo leyst málið. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að K og fjölskylda hennar hafi orðið fyrir fyrrnefndum áreiti í heimaríki og að föður K hafi verið rænt. Af frásögn K er þó ekki hægt að ráða annað en að tilviljun hafi ráðið því að þau hafi verið fórnarlömb umrædds áreitis og mannráns. Atvikin hafi átt sér stað fyrir fjölmörgum árum og það sé ekkert sem bendi til þess að K hafi verið sérstakt skotmark þessara einstaklinga af neinum þeim ástæðum sem talin eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá ber frásögn K ekki með sér að hún sé sérstaklega berskjölduð eða eigi á sérstakri hættu að sæta aftur þeim atvikum sem hún hafi lýst.

Kærendur bera fyrir sig að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda snúi þau til baka til Venesúela. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda við það að snúa til baka eða fyrir hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barnið sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru að mestu heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barns þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að það sé raunhæf hætta á að þau láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, vegna hinnar gríðarlegu óaldar og víðtæku mannréttindabrota sem viðgangist almennt í heimaríki þeirra sem og þeirra raunhæfu hættu á að þau verði fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófkennds ofbeldis vegna vopnaðar átaka glæpahópa í landinu og ofbeldisfullra viðbragða stjórnvalda við gagnrýni verði þau send aftur til Venesúela. Kærendur telja að líta verði til persónulegra aðstæðna þeirra, hagsmuna ungs barns þeirra, stjórnmálaskoðana kærenda og atvinnu þeirra sem geri þau útsettari fyrir fjárkúgunum.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barns þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst nái ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Karakas í Venesúela. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum, m.a. skýrslu Landinfo frá árinu 2023, eru almennar aðstæður í höfuðborginni mun betri en á strjálbýlli stöðum í landinu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, kemur fram að ríkislögreglan sé aðallega við störf í höfuðborginni og nágrenni hennar og þá bera heimildir ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimaborg kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur koma frá eða í Venesúela almennt.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð kemur fram sú afstaða kærenda að mat Útlendingastofnunar á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða feli í sér afturvirkni þar sem stofnunin hafi lagt 43. gr. a reglugerðar um útlendinga til grundvallar við matið en ákvæðið hefði ekki tekið gildi er kærendur lögðu fram umsókn sína. Hafi með ákvæðinu verið settar frekari skorður en áður við mat stjórnvalda á því hvort einstaklingur skuli hljóta dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Reglugerð nr. 808/2023 um breytingu á reglugerð um útlendinga, kveður á um viðmið vegna mats stjórnvalda við veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Reglugerðin var birt í B-deild stjórnartíðinda 25. júlí 2023 og í henni kemur fram að hún öðlist þegar gildi. Hafði reglugerðar breytingin því tekið gildi þegar hinar kærðu ákvarðanir voru teknar. Kærunefnd hefur beitt ákvæðinu frá gildistöku þess og telur það ekki brjóta gegn hagsmunum þeirra umsækjenda sem voru í sambærilegri stöðu og kærendur. Verður á þeim grundvelli ekki fallist á málsástæðu kærenda um að það hafi brotið gegn reglum stjórnsýsluréttar að beita reglugerðarákvæðinu við mat Útlendingastofnunar á því hvort kærendur og barn þeirra ættu rétt á dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barns þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða andlega heilsu. M greindi frá því að hafa verið greindur með augnsjúkdóminn [...]* í Venesúela fyrir um 15 árum. M greindi frá því að þurfa að fara í aðgerð vegna sjúkdómsins en að hann hafi ekki getað það í Venesúela vegna þess að aðgerðin hafi verið kostnaðarsöm. M greindi frá því að hafa getað unnið en að hann þyrfti að fara varlega því að hann gæti misst sjón hvenær sem er og orðið blindur. M teldi að ástand augnanna hafi versnað eftir að hann hafi komið til Íslands. M greindi frá því að heilsa A væri góð. M hafi ekki alltaf getað greitt fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir A og hann hafi stundum farið heim aftur af heilbrigðisstofnun ef hann hafi ekki getað borgað. En í öll skiptin hafi ekkert alvarlegt verið að, vökvi í nefinu og smá vökva í lungunum. Stundum hafi M getað spurt nágranna um lyf. M greindi frá því að það væru ekki lengur vandamál með lungu A en það væri oft vandamál með nefið. A væri ekki í neinni meðferð og tæki ekki lyf vegna þessa. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera við góða líkamlega heilsu en að hún fengi stundum bakverki við að halda á barni sínu og höfuðverk sem væri slæmur þegar hún væri með [...], en að hún gæti stjórnað því. K hafi fengið [...] á meðgöngu þar sem hún hafi fengið [...]. K kvaðst ekki taka nein lyf að staðaldri en taka verkjalyf við höfuðverk. K greindi frá því að hafa þurft að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu í Venesúela þar sem almenna heilbrigðiskerfið væri ekki gott. K hafi borgað fyrir einkalækna þegar hún hafi getað það. K greindi frá því að andlega heilsan væri ekki góð, hún hafi verið stressuð í langan tíma og ekki haft tækifæri til að leita aðstoðar vegna þess. K hafi ekki leitað til sálfræðings þar sem það hafi verið kostnaðarsamt. K greindi frá því að A væri alltaf með sýkingu í lungunum, hafi fengið hana fyrst tveggja mánaða, og væri með mikinn vökva í nefinu, en það væri innan eðlilegra marka. K hafi farið með A til læknis í Venesúela og eftir að hann hafi komið til Íslands hafi hann tvisvar orðið veikur. K hafi þurft að greiða fyrir læknisþjónustu fyrir A í Venesúela og hafi unnið mikið til að geta greitt fyrir hana. Stundum hafi hún ekki getað greitt fyrir þjónustuna og þá hafi hún leitað til opinberra heilbrigðisstofnana með A, en gæði þjónustu hafi ekki verið góð.

Kærendur lögðu fram vottorð fyrir M frá Sjónvernd, dags. 21. nóvember 2023. Þar kemur fram að M hafi greinst með [...] 15 ára. M hafi verið með harðar linsur um tíma en hafi ekki notað þær í mörg ár og að M eigi ekki gleraugu. Þá kemur fram M sé með [...]. Mælt sé með linsumátun með hörðum keratokonus snerti linsum og að M noti gleraugu. Þá sé mælt með annarri skoðun eftir sex mánuði m.t.t. þess hvort ábending sé fyrir cross linking meðferð sem getur stöðvað frekari versnun sjúkdómsins.

Samkvæmt landaupplýsingum eru innviðir heilbrigðiskerfisins í Venesúela veikburða og skortur á heilbrigðisvörum og lyfjum. Stjórnvöld hafi stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2023 hefur Venesúela glímt við lyfjaskort á undanförnum árum en aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Þá sé aðgengi að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum. Kærendur greindu frá því að K hafi ekki getað leitað sér sálfræðiþjónustu og að M hafi ekki getað farið í aðgerð í tengslum við augnsjúkdóminn vegna þess að það hafi verið of kostnaðarsamt. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Verður ekki annað séð en að kærendur og barn þeirra hafi getað leitað sér almennrar heilbrigðisaðstoðar í heimaríki. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis jafnvel þó að greiða þurfi fyrir hana. Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða barn þeirra glími við skyndilega og lífshættulega sjúkdóma og að meðferð við þeim sé aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki kærenda. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kærendur verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða barn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að skulda ekki og að þau hafi selt tæki og tól úr fyrirtæki sínu til að fjármagna ferð til Íslands. M greindi frá því að hafa búið með fjölskyldu sinni og systur K í einbýlishúsi sem kærendur hafi leigt. Kærendur hafi rekið verslun og hafi haft um 1000 dollara í mánaðartekjur. Kærendur hafi almennt haft efni á mat, vatni og helstu nauðsynjum en það hafi alltaf vantað eitthvað. A hafi verið of ungur til að fara í leikskóla. M greindi frá því að það yrði erfitt að lifa sem venjulegur launþegi í Venesúela og að fá vinnu ef hann sneri aftur til heimaríkis. M kvaðst hafa verið hræddur um barn sitt í Venesúela og líf sonar hans yrði í hættu ef þau færu aftur til Venesúela. K greindi frá því að hafa búið í einbýlishúsi sem kærendur hafi leigt. Kærendur hafi búið með foreldum K og systur vegna fjárhagserfiðleika kærenda. Kærendur hafi átt fyrirtæki og hafi haft um 100 dollara í mánaðartekjur. Það hafi verið erfitt að lifa af innkomu þeirra, þau hafi getað keypt mat og slíkt frá degi til dags, lítið í einu. Móðir K hafi stundum aðstoðað þau ef A hafi vantað eitthvað. A hafi ekki farið í leikskóla þar sem það hafi verið of kostnaðarsamt. K greindi frá því að eiga foreldra í Venesúela. K greindi frá því að hafa sætt andlegu ofbeldi af hálfu föður síns. K kvaðst ekki hugsa út í atvinnumöguleika sína í Venesúela en teldi að hún gæti ekki farið að gera neitt ef hún sneri til baka til Venesúela. K vilji gefa barni sínu gott líf og menntun og vilji ekki fara með A aftur til Venesúela.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafi ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þeim athugasemdum. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og barni sínu í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé að mestu heilsuhraust og vinnufær. Þá verður gengið út frá því að K standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda vegna kynbundins ofbeldis sem hún hafi sætt eða kunni að sæta líkt og áður greinir. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barns þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki kærenda séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 21. febrúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Í greinargerð kærenda er því haldið fram að beiting brottvísunar og endurkomubanns feli í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kærenda sem gangi gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og réttmætisreglu stjórnsýsluréttar. Kærendur telji að með hliðsjón af málsatvikum, það að kærendur hafi leitað til Íslands í neyð sinni og að umsóknir þeirra hafi ekki verið bersýnilega tilhæfulausar séu skilyrði 3. mgr. 102 gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og barni þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur greindu frá því að hafa engin tengsl við Ísland eða önnur ríki á Schengen- svæðinu. Kærendur kváðu ósanngjarnt að loka öllum dyrum í Evrópu fyrir þeim með brottvísun og endurkomubanni.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um málsatvik, aðstæður kærenda og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barns þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir