21 júní 2024

/

Nr. 672/2024 Úrskurður

Hinn 21. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 672/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23080084

 

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. ágúst 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Kenía (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. ágúst 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Auk þess gerir kærandi kröfu um veitingu alþjóðlegrar verndar sem maki útlendings sem nýtur verndar, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 25. desember 2022. Kvaðst kærandi koma hingað til lands með aðstoð smyglara frá Sádí-Arabíu með millilendingu í London. Kærandi kvað eiginkonu sína vera búsetta hér á landi.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. febrúar 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þar greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í bænum Mandera í Kenía en hafa verið búsettur í höfuðborginni, Nairobi, áður en hann flúði heimaríki sitt 16. desember 2022. Kærandi kvaðst hafa mátt þola fordóma og mismunun í heimaríki þar sem hann eigi uppruna sinn að rekja til Sómalíu. Kærandi kvaðst hafa komið hingað til lands til þess að vera með eiginkonu sinni sem sé búsett hér á landi en þau hafi gengið í hjónaband í Kenía 8. september 2023. Kærandi kvaðst hafa flúið heimaríki vegna fordóma og hótanna sem honum hafi borist frá fjölskyldu sinni vegna þess að hann giftist konu sem tilheyri minnihlutaættbálk. Kæranda hafi verið hótað lífláti ef hann skildi ekki við eiginkonu sína. Kærandi hafi leitað til lögreglunnar en þar sem hann hafi ekki haft neinar sannanir hafi hún ekki getað veitt honum aðstoð. Kærandi kvaðst óttast fjölskyldu sína í heimaríki en vera í sambandi við föður sinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 28. ágúst 2023. Greinargerð barst kærunefnd 11. september 2023.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa greinargerðina frekar.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.

Samkvæmt tölvubréfum sem kærunefnd barst frá Útlendingastofnun 3. janúar og 8. febrúar 2024 var kærandi skráður horfinn og eftirlýstur frá og með 3. janúar 2024. Með vísan til þess hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda 12. júní 2024 og greindi honum frá því að nefndinni hafi borist upplýsingar um að kærandi væri skráður horfinn og eftirlýstur. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi og ef svo væri var talsmanni veittur frestur til að leggja fram staðfestingu á því. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd 14. júní 2024 kom fram að talsmaður hafi ekki náð sambandi við kæranda undanfarna daga og hann muni láta nefndina vita ef hann nái í hann. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi verður, með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að kærandi hafi yfirgefið landið.

Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.

 

Úrskurðarorð:

Kæru kæranda er vísað frá.

The Appeal is dismissed.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Þorsteinn Gunnarsson

formaður