27 júní 2024
/
Úrskurður nr. 608/2024
Hinn 27. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 608/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24060006
Mál [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 3. júní 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa honum frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 5. júlí 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 15. apríl 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Samkvæmt framburði kæranda hafi hann dvalið í Panama í um sex mánuði árið 2016. Kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun til Panama með gildistíma frá 22. maí 2019 til 22. maí 2024. Kærandi greindi frá því að hafa aldrei verið með atvinnu í Panama og einungis dvalið þar sem ferðamaður. Útlendingastofnun ákvað 3. júní 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði slík tengsl við Panama að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til Panama. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst nefndinni greinargerð kæranda 19. júní 2024.
3 Málsástæður og rök kæranda
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu nefndarinnar verður greinargerð kæranda ekki reifuð hér.
4 Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]sem kom hingað til lands m.a. ásamt eiginkonu sinni og börnum hennar. Eiginkona kæranda og börn hennar hafi dregið umsóknir sínar um alþjóðlega vernd til baka og snúið aftur til heimaríkis. Samkvæmt framburði kæranda hafi hann dvalið í Panama í sex mánuði árið 2016. Hafi kærandi framvísað vegabréfsáritun til Panama með gildistíma frá 22. maí 2019 til 22. maí 2024. Kærandi hafi dvalið í Panama sem ferðamaður en ekki fengið útgefið dvalarleyfi þar í landi eða haft atvinnu. Kærandi telji sig ekki getað snúið aftur til Panama þar sem vegabréfsáritun hans sé útrunnin. Kærandi greindi frá því að óttast glæpagengið Tren de Aragua sem væri með tengsl víða í Suður-Ameríku, þ. á m. Panama. Kærandi greindi frá því að vera með [...] og [...] og tæki inn lyf vegna þessa. Að öðru leyti væri hann hraustur og virkur og andleg heilsa hans góð.
5 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga, kemur m.a. fram að með frumvarpinu sé lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Við mat á því hvað teljist sanngjarnt og eðlilegt skuli m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Geti ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hafi ekki dvalið í ríkinu en hafi náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjanda sé ríkisborgari þess ríkis og geti á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi dvalið í um sex mánuði í Panama. Kærandi hafi verið með gilda vegabréfsáritun frá 22. maí 2019 til 22. maí 2024. Kærandi hafi greint frá því að eiginkona hans og börn hafi farið til Panama árið 2022 þar sem hún hafi sótt um dvalarleyfi fyrir sig og börnin. Þá sé mágkona kæranda búsett í Panama. Þar að auki sé móðurmál kæranda spænska, sem og opinbert tungumál í Panama. Þrátt fyrir að kærandi þurfi vegabréfsáritun eða tímabundið dvalarleyfi til að ferðast til Panama sé að mati Útlendingastofnunar ekki um slíkar hindranir að ræða sem leiði til þess að taka beri málið til efnismeðferðar.
Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Þá mælir 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga fyrir um að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð mála. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.
Meðal gagna málsins er mynd af panamskri vegabréfsáritun kæranda sem er útgefin á grundvelli [...]. Áritunin hafði gildistíma frá 22. maí 2019 til 22. maí 2024. Kærandi kom hingað til lands frá heimaríki þar sem hann hafði fengið útgefið nýtt [...] með gildistíma frá 6. júní 2023 til 5. júní 2033. Liggur þannig fyrir að framangreind vegabréfsáritun er útgefin á grundvelli vegabréfs sem ekki er meðal gagna málsins. Samkvæmt framburði kæranda hafi eldra vegabréf hans fallið úr gildi. Samkvæmt upplýsingum sem aðgengilegar eru á vefsvæði sendiráðs Panama í Venesúela eru vegabréfáritanir einungis gefnar út í vegabréf sem hefur gildistíma í að minnsta kosti sex mánuði umfram gildistíma áritunarinnar. Með vísan til þess að gildistími vegabréfsáritunar kæranda, sem er meðal gagna málsins, var til 22. maí 2024 verður ekki lagt til grundvallar að eldra vegabréf kæranda, það sem vegabréfsáritun hans var gefin út á, hafi verið útrunnið og hann þar af leiðandi þurft að sækja um nýtt. Án eldra vegabréfs kæranda er ekki hægt að staðreyna frásögn hans um að hann hafi einungis í eitt skipti fyrir átta árum farið til Panama sem ferðamaður. Þá er ekki hægt að staðreyna gildi vegabréfsáritunarinnar með óyggjandi hætti.
Af þessum sökum er ekki hægt að fullyrða á grundvelli fyrirliggjandi gagna að kærandi hafi slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Rannsókn Útlendingastofnunar var að þessu leyti ófullnægjandi þar sem á skorti að upplýsa um atriði sem haft gætu áhrif á matið. Kærunefnd telur ekki unnt að bæta úr framangreindum annmörkum á kærustigi.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er að mati kærunefndar ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Sandra Hlíf Ocares