27 júní 2024

Úrskurður nr. 676/2024

Hinn 27. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 676/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010017

Mál [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. janúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íran (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.

2 Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 17. september 2023. Við leit af fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu. Hinn 10. október 2023 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans beint til yfirvalda þar í landi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá belgískum yfirvöldum, dags. 20. október 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 25. október 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 2. janúar 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst nefndinni greinargerð kæranda 8. janúar 2024.

3 Málsástæður og rök kæranda

Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kæranda er vísað til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar hvað varðar málavexti. Kærandi hafi dvalið í Belgíu undanfarin fjögur ár og fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum í heimaríki sínu. Kærandi hafi dvalið í flóttamannabúðum í Belgíu og aðeins fengið fimm evrur á viku í framfærslu. Eftir að hann fékk neikvæða niðurstöðu hafi hann búið ólöglega í landinu og ekki fengið fjárhagslega aðstoð eða heilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi aðeins fengið lögfræðiþjónustu í fyrsta viðtali sínu hjá belgískum yfirvöldum. Kærandi hafi unnið í óskráðri atvinnu sem bifvélavirki Kærandi hafi orðið fyrir fordómum og ekki náð að aðlagast samfélaginu. Þá hafi kærandi ekki fengið aðstoð lögreglu þegar síma hans hafi verið stolið, sökum þess að hann væri ekki lengur múslímatrúar en lögreglumaðurinn hafi verið af arabískum uppruna. Kærandi glími við [...] sem hann finni helst fyrir þegar hann sé undir álagi. Kærandi hafi setið í fangelsi í heimaríki og verið beittur ofbeldi. Kærandi óttist að belgísk yfirvöld sendi hann aftur til heimaríkis en hann hafi tekið þátt í mótmælum í Belgíu gegn stjórnvöldum í heimaríki. Kærandi hafi fengið hótanir á samfélagsmiðlum frá einstaklingum sem tengist ríkisstjórn heimaríkis. Kærandi telji líf sitt í hættu verði hann endursendur til Belgíu en verði hann sendur til heimaríkis verði hann að öllum líkindum ráðinn af dögum.

Í greinargerð kæranda er fjallað um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu. Kærandi vísar til þess að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi ekki verið nægilega góðar hvað varði móttökuaðstoð og meðferð mála dregist á langinn vegna mikils álags á flóttamannakerfinu þar í landi. Jafnframt fjallar kærandi um aðstæður í heimaríki og vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að aðstæður hans falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til 1. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar en þar komi fram að hverju aðildarríki sé heimilt að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd jafnvel þótt það beri ekki ábyrgð á slíkri umsókn samkvæmt þeim viðmiðum sem fram komi í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar. Því sé ekki um að ræða skyldu til að synja umsókn um alþjóðlega vernd og allar undantekningar beri að skýra þröngt.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til 1. mgr. 33. gr. flóttamannasamningsins. Kærandi fjallar um aðstæður í heimaríki sínu og þá staðreynd að hann hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Belgíu. Að sögn kæranda hafi belgísk stjórnvöld tjáð honum að til stæði að senda hann aftur til heimaríkis. Kærandi telji að lífi, heilsu og velferð hans yrði stofnað í hættu yrði hann sendur til Belgíu og þaðan til heimaríkis. Kærandi hafi við meðferð málsins lagt fram gögn sem sýni fram á sannleiksgildi frásagnar hans hvað varðar fangelsisvist hans í heimaríki og þau mótmæli sem hann hafi tekið þátt í. Kærandi mótmælir því mati Útlendingastofnunar sem fram kemur í umfjöllun um málsmeðferð hans í Belgíu. Kærandi telur að kerfisbundinn galli sé á málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í þar í landi og einstaklingar fái synjun þrátt fyrir að hafa mikla þörf fyrir vernd. Kærandi telji að ekki fari fram einstaklingsbundið mat á umsóknum um alþjóðlega vernd hjá belgískum stjórnvöldum.

Kærandi vísar til þess að belgísk stjórnvöld hafi tjáð honum að til stæði að endursenda hann til heimaríkis þar sem líf hans sé í hættu. Kærandi sé best til þess fallinn að skýra frá því hvers vegna hann vilji ekki fara aftur til Belgíu. Kærandi vísar til þess að framburður hans hafi verið stöðugur og trúverðugur í viðtali hjá Útlendingastofnun og þau gögn sem hann hafi lagt fram staðfesti frásögn hans. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Jafnframt vísar kærandi til greina 203-205 í handbók um réttarstöðu flóttamanna, þar sem fram kemur að umsækjendur um alþjóðlega vernd skuli njóta vafans og ómögulegt sé fyrir umsækjendur að sanna öll atriði í máli sínu.

4 Umsókn um alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.

4.2 Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæður karlmaður á [...]. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Belgíu árið 2019 og verið búsettur þar í um fjögur ár. Kærandi hafi einnig lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Danmörku, Þýskalandi og Austurríki. Kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni í Belgíu og telji því að belgísk stjórnvöld muni senda hann aftur til heimaríkis. Kærandi geti ekki snúið aftur til heimaríkis þar sem hann hafi mótmælt stjórnvöldum þar í landi og í kjölfarið borist hótanir í gegnum samfélagsmiðla frá einstaklingi á vegum ríkisstjórnarinnar. Kærandi hafi fengið lága upphæð í framfærslu frá belgískum stjórnvöldum fyrstu átta mánuðina. Kærandi hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu og því þurft að nýta sér einkarekna heilbrigðisþjónustu. Kærandi greindi frá því að hann væri með [...] sem versni þegar hann sé kvíðinn en andleg heilsa hans sé góð. Kærandi hafi setið í fangelsi í heimaríki og verið beittur líkamlegu ofbeldi.

4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Belgíu á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja belgísk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi vísar til þess að ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar feli í sér heimild en ekki skyldu til að endursenda einstaklinga. Kærunefnd hefur í eftirfarandi umfjöllun lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.

4.4 Landaupplýsingar

Nefndin hefur lagt mat á aðstæður í Belgíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

2023 Country Reports on Human Rights Practices – Belgium (United States Department of State, 22. apríl 2024);

Amnesty International Report 2022/23 – Belgium (Amnesty International, 27. mars 2023);

Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, 21. apríl 2023);

Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, 16. maí 2024);

Freedom in the World 2023 – Belgium (Freedom House, mars 2023);

Upplýsingar af vefsíðu belgísku útlendingastofnunarinnar Fedasil (www.fedasil.be) og

Upplýsingar af vefsíðu Global Detention Project(www.globaldetentionproject.org).

Belgía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Belgía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1955. Belgía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 25. júní 1999 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1983 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 22. júlí 1953.

Í framangreindri skýrslu European Council of Refugees and Exiles (ECRE) kemur fram að einstaklingar geti sótt um alþjóðlega vernd á flugvellinum við komuna til Belgíu eða hjá belgísku útlendingastofnuninni (f. Office des étrangers) þar í landi. Stofnun sem fari með umsóknir um alþjóðlega vernd (f. Commissariat général aux réfugiés et aux apatrides (CGRA)) taki ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi. Stofnunin taki þó ekki ákvörðun um endursendingu umsækjanda til heimaríkis heldur sé slík ákvörðun í höndum útlendingastofnunarinnar. Útlendingastofnunin geti tekið ákvörðun um endursendingu eftir að kærufrestur til stjórnsýsludómstóls (f. Conseil du contentieux des étrangers (CCE)) sé liðinn eða eftir að neikvæð ákvörðun dómstólsins liggi fyrir. Útlendingastofnunin geti þó tekið ákvörðun um endursendingu þegar neikvæð ákvörðun CGRS liggi fyrir sé um að ræða þriðju viðbótarumsókn viðkomandi eða meira. Ákvarðanir CGRA séu kæranlegar til CCE. Möguleiki sé á því að kæra ákvarðanir CCE til æðra setts stjórnsýsludómstóls. Æðri dómstóllinn taki þó ekki efnislega á málum að öðru leyti en að úrskurða um það hvort CCE hafi fylgt formkröfum. Hafi formkröfum ekki verið fylgt geti dómstóllinn ógilt úrskurð CCE og sent málið til nýrrar endurskoðunar. Fái umsækjendur endanlega synjun á umsókn sinni eigi þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá útlendingastofnun. Þá geti jafnframt verið litið á umsóknir umsækjenda sem séu endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sem viðbótarumsóknir. CGRA leggi mat á það hvort viðbótarumsókn sé tæk til meðferðar og skuli það gert innan 10 daga. Grundvallist matið m.a. á því hvort nýjar upplýsingar liggi fyrir í málinu sem auki möguleika viðkomandi umsækjanda á því að fá alþjóðlega vernd. Sé umsóknin samþykkt fari málið í flýtimeðferð og ákvörðun skuli tekin innan 15 virkra daga. Málsmeðferðin hafi þó tekið lengri tíma þegar fjöldi endurtekinna umsókna hafi aukist. Sé viðbótarumsókn samþykkt eigi umsækjandi rétt á félagslegri aðstoð, en umsækjendur eigi þó alltaf rétt á heilbrigðisþjónustu og lögfræðiaðstoð. Umsækjendur geti borið mál sitt undir belgíska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds á öllum stigum málsins, þ. á m. við að leggja fram viðbótarumsókn.

Af framangreindum upplýsingum um málsmeðferð í Belgíu má ráða að þar fari fram fullnægjandi mat á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu t.d. með því að leggja fyrir umsækjendur skimunarpróf. Þá geti læknar sem þjónusta umsækjendur þar í landi komið á framfæri tillögum að breyttri og bættri þjónustu fyrir umsækjendur í viðkvæmri stöðu. Þá séu starfandi hópar innan CGRA sem aðstoði starfsfólk við að meta einstaklingsbundnar aðstæður og þjónustustörf umsækjenda um alþjóðlega vernd sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þessir hópar séu þjálfaðir í að meta aðstæður einstaklinga í viðkvæmri stöðu m.a. með viðtölum.

Í fyrrgreindri skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eigi rétt á vasapeningum og húsaskjóli á vegum stjórnvalda en flestir umsækjendur dvelji í móttökumiðstöðvum eða íbúðum. Þá kemur fram í skýrslunni að síðan um miðjan október 2021 hafi Belgía staðið frammi fyrir vandamálum varðandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Umsækjendur, aðallega einstæðir karlmenn, hafi ekki haft tækifæri til að skrá umsóknir sínar hjá stjórnvöldum. Einstaklingar í viðkvæmri stöðu, ungmenni og fjölskyldur gangi alltaf fyrir. Einstæðir karlmenn sem ekki nái að skrá umsókn sína á tilteknum degi fá útgefið skjal þar sem þeim er gefinn ákveðinn tími til að skrá umsóknina innan þriggja daga. Ríkisstjórnin hafi þá í mars árið 2023 lagt fram fjögur lagafrumvörp og sett á stað þrjár aðgerðaráætlanir til að leysa þá stöðu sem upp hafi komið í móttökumálum umsækjanda um alþjóðlega vernd. Lagafrumvörpin hafi verið samþykkt af þinginu í maí 2024. Þá hafi verið boðaðar frekari aðgerðir í móttökumálum, s.s. með því að auka pláss með opnun gáma í tveimur hlutum annars vegar júlí 2024 og hins vegar í desember 2024 sem veita eigi samanlagt 750 pláss, koma á fót plássi fyrir 2.000 manns til viðbótar með breytingu á lagaramma fyrir sveitarstjórnir sem beri ábyrgð á miðstöðvunum og auka leiðir fyrir einstaklinga með langtímabúsetu í landinu til að komast út úr móttökukerfinu.

Hafi umsækjandi fengið lokasynjun á umsókn sinni, og möguleikar hans til að kæra ákvörðunina séu fullnýttir, eigi hann rétt á húsnæði á vegum yfirvalda þar til frestur hans til að yfirgefa landið hefur runnið út en slíkur frestur sé að jafnaði 0 til 30 dagar. Sé umsækjanda veitt vernd eigi hann rétt á að dvelja áfram í húsnæðisúrræði sínu í tvo mánuði á meðan hann finni sér annað húsnæði. Þá sé umsækjendum um alþjóðlega vernd tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þeim að kostnaðarlausu, á meðan mál þeirra er til meðferðar en einnig eftir að umsókn er synjað. Aðgengi umrædds hóps að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sé tryggt með þarlendri löggjöf sem sé fylgt eftir í framkvæmd. Í sumum tilvikum geti það þó verið vandkvæðum bundið fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að nálgast téða heilbrigðisþjónustu, t.a.m. fyrir þá umsækjendur sem búi ekki í móttökumiðstöðvum. Þá geti umsækjendur þurft að leggja út fyrir lækniskostnaði. Í framangreindum gögnum kemur fram að rekin séu úrræði, m.a. miðstöðvar á vegum stjórnvalda, vegna andlegra veikinda en þar séu gjarnan langir biðlistar sem takmarki oft á tíðum aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að þeim.

Í skýrslu ECRE kemur fram að í einhverjum tilvikum séu umsækjendur um alþjóðlega vernd settir í varðhald við komuna til Belgíu. Þessir einstaklingar eigi möguleika á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla og eigi þeir rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð.

Á vefsíðu belgísku útlendingastofnunarinnar kemur fram að umsækjendur sem leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd eigi rétt á að stofna bankareikninga en til þess þurfi að sanna auðkenni með gögnum frá stofnuninni og framvísa staðfestingu á dvalarstað frá viðeigandi sveitarfélagi. Þá sé umsækjendum heimilt að byrja að vinna fjórum mánuðum eftir að hafa lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd. Jafnframt kemur fram á vefsíðunni að belgísk stjórnvöld hafi undanfarið ekki getað annað eftirspurn í móttökumiðstöðvum sem hafi leitt til þess að einstæðir karlmenn hafi ekki fengið pláss þar. Sem standi séu 2.500 karlmenn á biðlista eftir gistirýmum en unnið sé að því að því að bjóða þessum hópi pláss í móttökumiðstöðvum. Til samanburðar var fjöldinn tæplega 3.000 manns í maí 2023. Þá hafi ríkisstjórn Belgíu samþykkt nýjar tillögur til að auka móttökugetu landsins en til standi að opna fleiri móttökumiðstöðvar auk þess sem unnið sé að því að finna frekari lausnir á vandanum. Þá kemur fram á vefsíðunni að móttökumiðstöðvar á vegum útlendingastofnunarinnar séu um hundrað talsins og anni um 75% af afkastagetu móttökukerfisins. Til viðbótar séu móttökumiðstöðvar á vegum sveitarfélaga og hjálparsamtaka. Í september 2023 hafi metfjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd fengið pláss í búsetuúrræðum á vegum stjórnvalda og fyrir fjölskyldur sem bíði eftir varanlegu húsnæði var gripið til þeirra ráða að koma þeim tímabundið fyrir á gistiheimilum. Þá hafa belgísk stjórnvöld sett á laggirnar aðgerðarteymi sem gegnir því hlutverki að finna húsnæði og opna tímabundnar móttökumiðstöðvar til að koma a.m.k. 2.000 manns í húsaskjól yfir veturinn.

4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Kærandi er einstæður karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri með [...] sem versni þegar hann sé kvíðinn en andleg heilsa hans væri góð. Kærandi hafi verið lagður inn á sjúkrahús í [...] og læknir greint honum frá því að hann þyrfti að forðast streituvalda. Kærandi hafi setið í fangelsi í heimaríki og verið beittur líkamlegu ofbeldi en hann hafi m.a. nefbrotnað og sin í hendi slitnað. í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 9. til 17. október 2023, kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því að hafa fæðst með [...] og fái [...]. Kærandi hafi farið á bráðamóttöku tveimur vikum áður vegna hjartaverkja en ekkert fundist athugavert við skoðun. Þá hafi kærandi átt tíma í viðtal vegna mats á þörf fyrir sálfræðiþjónustu en ekki mætt. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. október 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Kærandi hefur jafnframt lagt fram heilbrigðisgögn frá heimaríki.

Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 25. október 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 3. janúar 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Belgíu verður ráðið að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þá geta læknar í móttökumiðstöðvum m.a. vísað umsækjendum um alþjóðlega vernd til sérfræðinga telji þeir þörf á því. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Líkt og framangreindar heimildir bera með sér hafa belgísk stjórnvöld undanfarið ekki getað annað eftirspurn í móttökumiðstöðvum sem hefur leitt til þess að einstæðir karlmenn hafi ekki fengið pláss þar. Ríkisstjórn Belgíu hefur samþykkt nýjar tillögur til að auka móttökugetu landsins en til stendur að opna fleiri móttökumiðstöðvar auk þess sem unnið er að því að finna frekari lausnir á vandanum. Þá kemur fram á vefsíðu útlendingastofnunar Belgíu að móttökumiðstöðvar á vegum stofnunarinnar séu um hundrað talsins og anni um 75% af afkastagetu móttökukerfisins. Til viðbótar séu móttökumiðstöðvar á vegum sveitarfélaga og hjálparsamtaka. Það er mat kærunefndar með hliðsjón af þeim heimildum nefndin hefur kynnt sér að þær aðstæður sem hafi verið til staðar í móttökukerfinu í Belgíu undanfarið séu tímabundnar. Þá bendi umræddar heimildir ekki til annars en að belgísk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 25. október 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 17. september 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis teljist fela í sér brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að til að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“). Þá þurfi að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli auk stöðu einstaklingsins. Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins kemur jafnframt fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar.

Þá hefur Evrópudómstóllinn talið að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn.

Gögn málsins bera með sér að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Belgíu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Belgíu. Kærunefnd vísar til þess að sem áður hefur komið fram að fái umsækjandi um alþjóðlega vernd endanlega synjun á umsókn sinni hjá belgískum yfirvöldum eigi hann þess kost að leggja fram viðbótarumsókn, líkt og kærandi hefur gert, svo sem ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig kost á því að bera synjunina undir dómstóla. Þá geti kærandi lagt fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji hann endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði í Belgíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

6 Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 16. september 2023 og sótti um alþjóðlega vernd 17. september 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Belgíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir

Sandra Hlíf Ocares