27 júní 2024
/
Úrskurður nr. 682/2024
Hinn 27. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 682/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24020119
Mál [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 15. febrúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir kærandi), og brottvísa henni frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Til vara er gerð krafa um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og stofnuninni verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 17. september 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 23. janúar 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærandi greindi frá því að hafa verið búsett í um fjögur ár í Perú og verið með dvalar- og atvinnuleyfi þar í landi. Útlendingastofnun ákvað 7. febrúar 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði slík tengsl við Perú að eðlilegt og sanngjarnt væri að hún dvelji þar, ferðist eða sé flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði send til Perú. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 21. febrúar 2024.
3 Málsástæður og rök kæranda
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hún hafi greinst með [...] og fengið meðferð með [...] árið 2004. Í kjölfarið hafi kærandi þurft stöðuga lyfjameðferð, auk eftirlits á sex mánaða fresti til að sporna gegn sjúkdómnum. Kærandi hafi ekki haft greitt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum í Perú en auk reglulegrar meðferðar sökum [...] þarfnist hún lyfja við [...] og [...].
Kærandi gerir athugasemd við ákvörðun Útlendingastofnunar þegar komi að mati á viðkvæmri stöðu hennar og vísar til þess að hún glími við veikindi. Telur kærandi að skautað hafi verið yfir sjúkdóm hennar sem hún hafi greinst með árið 2004 og sé ólæknandi. Þá sé ekki fjallað um aðgengi þeirra útlendinga í Perú að heilbrigðiskerfinu, sem ekki séu handhafar sérstaks dvalarleyfiskorts eða aðgengi þeirra að sértækum lyfjum, líkt og kærandi sé í þörf fyrir, til að koma í veg fyrir að mergæxlissjúkdómurinn taki sig upp að nýju. Telur kærandi að í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið tekið mið af einstaklingsbundnum aðstæðum hennar eða verið með fullnægjandi hætti fjallað um almennar aðstæður í Perú í því ljósi. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við fullyrðingu Útlendingastofnunar um að hún hafi afturkallað dvalarleyfi sitt. Kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í Perú en yfirvöld hafi ekki afgreitt umsóknina og hún fengið dvalarheimild á grundvelli dvalarleyfis sem hafi verið afturkallað. Kærandi vísar til þess að heimildir beri með sér að yfirvöld í Perú sinni ekki umsóknum um alþjóðlega vernd sem hafi í för með sér að kærandi eigi ekki kost á að leitast eftir vernd í Perú á þeim forsendum. Þá sé í hinni kærðu ákvörðun vísað til þess að í læknisvottorði frá Landspítala hafi komið fram að ekki hafi fundist merki um [...] og dregin sú ályktun að kærandi þjáist ekki af miklum og alvarlegum veikindum. Vísar kærandi til þess að um sé að ræða ólæknandi sjúkdóm og hún sé í þörf fyrir stuðningsmeðferð með lyfjainntöku með reglulegu millibili. Kærandi sé ekki endanlega laus við sjúkdóminn en í sama læknisvottorði sé vísað til þess að kærandi hafi verið í viðhaldsmeðferð síðan hún hafi fengið meðferð við sjúkdómnum árið 2004. Kærandi þurfi að taka þau lyf til frambúðar til að viðhalda heilsu. Kærandi telji að einstaklingsbundnar aðstæður hennar hafi ekki verið rannsakaðar með fullnægjandi hætti. Kærandi vísar þá til þess að í hinni kærðu ákvörðun hafi stofnunin vísað til heimilda sem allar séu dagsettar fyrir nýlegar vendingar í málefnum innflytjenda og flóttamanna af hálfu perúskra yfirvalda. Vísar kærandi til tiltekinnar skýrslu Amnesty International þar sem fram komi að yfirvöld í Perú hafi alfarið meinað venesúelskum ríkisborgurum um aðgengi að tímabundinni vernd sem hafi í för með sér útilokun þeirra frá stöðu sem flóttamenn frá og með 10. nóvember 2023. Þá beri heimildir með sér að yfirvöld í Perú hafi frá árinu 2020 vísað ríkisborgurum Venesúela frá og slíkar aðgerðir standi enn yfir. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, þá einkum með vísan til fyrirliggjandi heilsufarsgagna og heilsufars hennar geti það ekki talist eðlilegt eða sanngjarnt að hún ferðist eða sé flutt til Perú. Kærandi telji að Perú geti ekki talist vera griðland hennar þar sem hún njóti ekki réttinda þar eða tryggt sé að hún eigi rétt á að sækja um alþjóðlega vernd. Engin skýr lagaheimild eða gildandi alþjóðlegir samningar séu á milli Íslands og Perú sem geti réttlætt endursendingu hennar þangað. Þá telur kærandi að hún sé útilokuð frá verndarkerfi landsins. Jafnframt vísar kærandi til nýlegrar laga- og reglusetningar í Perú.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Telur kærandi að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þar sem hún sé með langvarandi sjúkdóm sem þarfnist daglegrar lyfjainntöku auk þess sem hún sé með [...] og [...]. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi sem vísar til frásagnar sinnar og fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar sitt telur með vísan til opinberra heimilda að hún muni eiga erfitt uppdráttar í Perú. Aðstæður í Perú séu þess eðlis að venesúelskir ríkisborgarar verði fyrir miklum fordómum og útlendingaandúð og þeim mismunað, m.a. með útilokun frá réttindum sem ríkisborgarar Perú njóti. Kærandi sé í þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og lyfjainntöku sem henni sé ekki tryggður aðgangur að í Perú. Kærandi hafi einnig lýst því að hafa sætt mismunun af hálfu yfirvalda, hún hafi ekki fengið aðgang að verndarkerfi eða átt þess kost að sækja um alþjóðlega vernd.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna. Með vísan til frásagnar kæranda sé ljóst að staða hennar í Perú sé verulega síðri en staða almennings þar í landi. Kæranda sé ekki tryggðar mannsæmandi aðstæður, t.a.m. hvað varðar aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum. Endursending kæranda myndi því brjóta gegn meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement).
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og að mál hennar verði sent til nýrrar meðferðar á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulega. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi ekki framkvæmt fullnægjandi mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hennar og ekki rannsakað aðstæður hennar með fullnægjandi hætti. Þá hafi Útlendingastofnun ekki fjallað um aðstæður í Perú með tilliti til núverandi aðstæðna þar í landi með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Kærandi telji að umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður í Perú hafi byggst á eldri heimildum sem endurspegli ekki núverandi ástand sem lýst sé í fyrrgreindum heimildum sem kærandi hefur vísað til í greinargerð sinni um aðstæður venesúelskra flóttamanna í Perú.
4 Umsókn um alþjóðlega vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]sem stödd er hér á landi ásamt skyldmennum sínum þ. á m. uppkomnum syni sínum. Kærandi greindi frá því að hafa komið til Perú 22. desember 2018 og verið búsett þar í rúm fjögur ár. Kærandi hafi verið handhafi dvalarleyfis sem hafi þurft að endurnýja árlega. Kærandi hafi verið með atvinnuleyfi í Perú og unnið í verslun þar í landi. Kærandi telji að líf sitt sé í hættu í Perú þar sem hún hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu sem hún sé í þörf fyrir. Kærandi hafi aðeins haft aðgang að einkarekna heilbrigðiskerfinu og hún hafi þurft að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu úr eigin vasa. Kærandi greindi frá því að hún hafi ekki orðið sjálf fyrir fordómum í Perú en þar ríki fordómar gagnvart ríkisborgurum Venesúela. Kærandi greindi frá því að hafa greinst með [...] árið 2003 og undirgengist [...] árið 2004. Kærandi hafi í kjölfarið fengið lyf sem hún taki inn að staðaldri og þurfi að fara í eftirlit á sex mánaða fresti. Þá sé kærandi með [...] og [...]. Kærandi greindi frá því að andleg heilsa hennar væri í lagi.
4.3 Landaupplýsingar
Nefndin hefur lagt mat á aðstæður í Perú, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Peru (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Peru (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- A/HRC/46/35/Add.2: Visit to Peru - Report of the Special Rapporteur on the situation of human rights defenders, Michel Forst (OHCHR, 22. desember 2020);
- Amnesty International Report 2022/23 - Peru (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Freedom in the World 2022 – Peru (Freedom House, 24. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Peru (Freedom House, mars 2023);
- Healthcare Resource Guide – Peru (International Trade Administration);
- Heimasíða perúskra stjórnvalda, upplýsingar um SIS kerfið (https://www.gob.pe/131-seguro-integral-de-salud-sis-gratuito);
- Primary Health Care Systems (PRIMASYS), Case study from Peru (World Health Organization, 6. janúar 2017);
- Peru: Refugees in Peru face impossible deadline (Amnesty International, 6. nóvember 2023);
- The World Factbook – Peru (https://www.cia.gov/the-world-factbook/countries/peru, síðast uppfært 13. mars 2024);
- Vefsíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/peru/solicitando-la-condicion-de-refugiado/como-solicitar-la-condicion-de-refugiado/);
- Vefsíða stjórnvalda í Perú (https://www.gob.pe/);
- Vefsíða Amnesty International, Peru: Refugees in Peru risk mass expulsions (https://www.amnesty.org/en/documents/amr46/7417/2023/en/) og
- World Report 2024 – Peru (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Perú er forsetalýðveldi í Suður-Ameríku og í landinu búa um 33 milljónir manna. Árið 1956 gerðist Perú aðili að Sameinuðu þjóðunum. Árið 1978 gerðist ríkið aðili að bæði alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Perú gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1988 og samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1982. Þá gerðist Perú aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 21. desember 1964 og mannréttindasáttmála Ameríku 28. júlí 1978. Þá fullgilti Perú barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1990.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að stjórnvöld í Perú eigi í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og önnur mannréttindasamtök er varðar aðstoð við m.a. umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meira en 1,5 milljónir innflytjenda séu búsettir í Perú en ríkisborgarar Venesúela séu þar langstærsti hlutinn. Jafnframt sé kveðið á um veitingu alþjóðlegrar verndar eða stöðu flóttamanns í lögum í Perú auk þess sem að stjórnvöld hafi komið á fót kerfi til að veita flóttamönnum vernd. Þá kemur fram að frá september 2023 hafi perúsk stjórnvöld byrjað að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd tímabundna vernd á meðan þeir bíði eftir niðurstöðu umsókna sinna. Venesúelskum ríkisborgurum hafi jafnframt verið veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á meðan umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hafi verið til meðferðar. Á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að hægt sé að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá landamæraeftirliti eða á vefsíðu utanríkisráðuneytisins í Perú. Þá hafi umsækjendur um alþjóðlega vernd aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun og heimild til að stunda atvinnu í Perú á meðan beðið sé eftir niðurstöðu. Á vefsíðu mannréttindasamtakanna Amnesty International frá 6. nóvember 2023, kemur fram að frá og með 10. nóvember 2023 hafi ríkisborgarar Venesúela ekki getað óskað eftir tímabundinni vernd í Perú.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í Perú séu m.a. takmarkanir á fjölmiðlafrelsi, ofbeldi, hótanir, spilling innan stjórnkerfis, refsileysi, skortur á rannsókn á ofbeldi gagnvart konum og stúlkum og mansal. Yfirvöld hafi þó á undanförnum árum ákært og sakfellt opinbera starfsmenn vegna spillingar og misnotkunar valds, þ. á m. háttsetta embættismenn. Heimildir beri með sér að lögregluyfirvöld í Perú séu að jafnaði fagleg en þó viðgangist spilling innan lögreglunnar. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að ríkislögreglan heyri undir innanríkisráðuneyti landsins og viðhaldi öryggi innanlands. Perúski herinn, sem heyri undir varnarmálaráðuneyti landsins, sé einkum ábyrgur fyrir ytra öryggi landsins en beri einnig ábyrgð á að tryggja öryggi innan tiltekinna svæða innanlands. Samkvæmt skýrslunni hafi perúsk yfirvöld viðhaldið skilvirkri stjórn yfir öryggissveitum landsins. Fram kemur að tilkynningar hafi borist um brot af hálfu meðlima öryggissveitanna.
Í 11. gr. stjórnarskrár Perú er kveðið á um aðgang að endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar frá árinu 2017 kemur fram að heilbrigðiskerfið í Perú samanstandi af fjórum þáttum, opinberu kerfi (s. Seguro Integral de Salud, SIS), kerfi fyrir lögreglu og vopnaðar sveitir, sjúkratryggingakerfi og einkaaðilum sem samanstandi bæði af hagnaðardrifnum rekstri sem og sjálfstæðum félagasamtökum, s.s. trúfélögum. Heilbrigðiskerfið hafi tekið ýmsum breytingum frá árinu 2003. Breytingarnar hafi miðað að því að bæta grunnheilbrigðisþjónustu og mæta betur þörfum fjölskyldna og íbúa í dreifbýli. Best sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu í stærri borgum landsins. SIS tryggi margvíslegum hópum aðgang að heilbrigðiskerfinu m.a. fólki sem sé ekki með sjúkratryggingu. Þá kemur fram á vefsíðu stjórnvalda í Perú að þeir útlendingar sem dvelji löglega í landinu og séu með sérstakt dvalarleyfiskort (s. carné de extranjería) hafi aðgang að atvinnumarkaðnum og opinbera heilbrigðiskerfinu, geti stofnað fyrirtæki og sótt um bankalán.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að lög í Perú leggi bann við mismunun í starfi vegna kynþáttar, húðlitar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, þjóðernisuppruna, ríkisborgararéttar, félagslegs uppruna, fötlunar, aldurs eða félagslegrar stöðu. Þó hafi félagasamtök greint frá mismunun í atvinnulífinu hjá framangreindum hópum og mörg tilvik ekki verið tilkynnt. Þá sé kveðið á um jafnræði í stjórnarskrá Perú. Þrátt fyrir það hafi framkvæmd stjórnvalda við að framfylgja því verið misjöfn. Mismunun á grundvelli kynþáttar- eða þjóðernis sé refsiverð samkvæmt hegningarlögum í Perú. Þá séu refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Mismunun á grundvelli tungumáls, trúarbragða, aldurs, kyns eða félagslegrar stöðu einnig refsiverð. Við framangreindum brotum sé refsiramminn fjögur ár auk sektargreiðslna en lögunum hafi þó ekki verið framfylgt í öllum tilvikum. Í Perú hafi dómsmála- og mannréttindaráðuneyti yfirumsjón með stefnu landsins í mannréttindamálum. Þá hafi innanríkisráðuneytið og ráðuneyti sem starfi á sviði málefna kvenna og einstaklinga í viðkvæmri stöðu, gegnt mikilvægu hlutverki á sviði mannréttindamála í Perú. Þessar opinberu stofnanir hafi almennt verið taldar áhrifaríkar á þessu sviði. Þá hafi embætti umboðsmanns starfað án afskipta stjórnvalda eða annarra aðila og frjáls félagasamtök og almenningur talið störf umboðsmanns áhrifarík.
4.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að
nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.
Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.
Samkvæmt framburði kæranda hafi hún verið búsett í Perú í rúm fjögur ár og verið með dvalar-og atvinnuleyfi þar í landi sem hún hafi þurft að endurnýja árlega. Kærandi hafi haft atvinnu á meðan hún dvaldi þar í landi.
Samkvæmt framangreindum upplýsingum um aðstæður í Perú verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að hún hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Fyrir liggur fullnægjandi sönnun þess að kærandi hafi möguleika á að öðlast heimild til dvalar í viðtökuríki af þeim sökum. Enn fremur hafi kærandi haft heimild til atvinnu og verður því að telja að hún hafi möguleika á að sjá sér farborða með löglegum hætti og geti leitað aðstoðar yfirvalda verði brotið á rétti hennar.
Kærandi greindi frá því að hafa mætt fordómum og mismunun í Perú. Samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki telst kærandi ekki hafa ástæðu til að óttast ofsóknir í Perú, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að hún sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Nefndin hefur við framangreint mat m.a. litið til þess að stjórnvöld í Perú eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Perú aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærandi geti leitað til hennar telji hún þörf á því. Falla því aðstæður kæranda í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og verður umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki tekin til efnismeðferðar. Telst kærandi því hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hún dvelji þar, ferðist eða sé flutt þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi greindi frá því að hún hafi afturkallað dvalarleyfi sitt í Perú. Kærunefnd tekur fram að kærandi geti lagt fram umsókn um dvalarleyfi að nýju þar í landi þrátt fyrir að hafa óskað eftir niðurfellingu á dvalarleyfi sínu. Þrátt fyrir að kærandi hafi farið fram á það við yfirvöld í Perú að fella dvalarleyfi sitt úr gildi og þar með afsalað sér dvalarrétti sínum þar í landi, leiðir það ekki til þess að umsókn hennar skuli hljóta efnismeðferð hér á landi og kærandi geti ekki með þeirri háttsemi öðlast frekari rétt hér á landi. Gögn málsins gefa til kynna að kærandi geti átt í samskiptum við yfirvöld í Perú og styður það mat nefndarinnar um að hún eigi kost á því að leggja fram umsókn um dvalarleyfi.
Í greinargerð kæranda er vísað til skýrslu Amnesty International þar sem m.a. komi fram að frá 10. nóvember 2023 hafi ríkisborgarar Venesúela ekki kost á að sækja um tímabundna vernd í Perú. Gerir kærandi athugasemd við skort á umfjöllun um framangreint í ákvörðun Útlendingastofnunar.
Kærunefnd tekur fram að í skýrslunni er fjallað um lögfestingu löggjafartilskipunar nr. 1582 frá 14. nóvember 2023, sem kveður á um brottvísun allra útlendinga innan yfirráðasvæðis Perú sem ekki eru með skilgreinda réttarstöðu. Samkvæmt þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér er meginmarkmið tilskipunarinnar að heimila brottvísun óskráðra einstaklinga sem þegar séu staddir innan landamæra Perú, sem ekki hafi gefið sig fram við yfirvöld við komuna til landsins eða einstaklinga sem grunaðir séu um starfsemi sem stofni allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða öryggi borgara í hættu. Tilskipunin hafi áhrif á um 200.000 ríkisborgara Venesúela sem staddir séu innan landamæra Perú og hafi ekki sótt um tímabundna vernd fyrir 10. nóvember 2023. Kemur framangreind tilskipun ekki í veg fyrir að kærandi geti sótt um alþjóðlega vernd í Perú við komuna þangað. Líkt og framan er rakið var kærandi í lögmætri dvöl í Perú áður en hún yfirgaf landið og gefi hún sig fram við yfirvöld við komuna til landsins og óski eftir vernd mun þessi tilskipun ekki eiga við um hana. Þá starfi sérstök nefnd um réttarstöðu flóttamann (s. Comisión Especial para los Refugiados (CEPR)) í landinu sem hefur heimild til þess að úrskurða um hugsanlega brottvísun flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærunefnd gerir athugasemd við skort á umfjöllun Útlendingastofnunar um framangreindar lagabreytingar en telur að bætt hafi verið úr annmarkanum á kærustigi. Fellst kærunefnd því ekki á með kæranda að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi er kona á [...]sem stödd er hér á landi m.a. ásamt uppkomnum syni sínum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa greinst með [...] árið 2003 og undirgengist [...] árið 2004. Kærandi hafi í kjölfarið fengið lyf sem hún taki inn að staðaldri og þurfi að fara í eftirlit á sex mánaða fresti. Þá sé kærandi með [...] og [...]. Kærandi greindi frá því að andleg heilsa hennar væri í lagi. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 26. september til 7. nóvember 2023, kemur m.a. fram að kærandi taki inn tiltekin lyf í kjölfar beinmergsskipta. Þá sé kærandi með [...] og [...]. Kærandi hafi greint frá því að líða almennt vel og vera heilsuhraust. Kærandi hafi skilað inn þvagprufu og tekin hafi verið blóðprufa og lyf hennar endurnýjuð auk þess sem gerð hafi verið tilvísun til sérfræðings. Í komunótum frá heimilislækni á Göngudeild sóttvarna, dags. 14. nóvember 2023 til 4. janúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið send í blóðrannsókn. Þá hafi kæranda verið ávísað sykursýkislyfi og ráðlagt að endurskoða matarræði. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 5. október 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Í læknisvottorði blóðlækninga, dags. 2. febrúar 2024, kemur fram að kærandi hafi verið í rannsóknum á Landspítala síðan í október árið 2023. Samkvæmt kæranda og gögnum sem hún hafi framvísað hafi hún verið greind með [...] árið 2003 og fengið meðferð við því, m.a. háskammtameðferð og eiginstofnfrumugjöf árið 2004. Kærandi hafi verið í viðhaldsmeðferð með krabbameinslyfi. Við ítarlegar rannsóknir á Landspítala hafi ekki fundist merki um [...] hjá henni núna. Kærandi hefur jafnframt lagt fram heilsufarsgögn frá heimaríki.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 23. janúar 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 15. febrúar 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telst mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðrar einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Perú verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Samkvæmt framburði kæranda hafi hún verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki en þurft að greiða fyrir þjónustuna. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærandi telur að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Í greinargerð gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar þegar komi að heilsufari hennar og aðgengi útlendinga að heilbrigðiskerfinu sem ekki séu handhafar sérstaks dvalarleyfiskorts eða aðgengi þeirra að sértækum lyfjum sem hún sé í þörf fyrir. Telur kærandi að í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið tekið mið af einstaklingsbundnum aðstæðum hennar eða verið með fullnægjandi hætti fjallað um almennar aðstæður í Perú í því ljósi.
Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og stöðu kæranda. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 23. janúar 2024. Aðspurð kvaðst kærandi m.a. hafa greinst með [...] og undirgengist meinbergsskipti. Kærandi væri í þörf fyrir inntöku lyfja vegna þessa. Jafnframt væri kærandi með [...] og [...]. Af endurriti viðtals við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt út í andlegt og líkamlegt heilsufar hennar, s.s. hvernig líkamlegir og andlegir kvillar hefðu áhrif á daglegt líf, hvort hún gæti lagt fram gögn um heilsufar sitt, hvort hún hefði upplifað ofbeldi og hvort hún hefði haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í viðtökuríki. Þá var kæranda leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Af ákvörðun Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang útlendinga sem dvelji löglega í Perú að viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari hennar og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hennar enda er ekkert sem bendir til þess að hún glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 15. febrúar 2024, var kæranda einnig leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu, engin frekari heilsufarsgögn bárust en kærunefnd tekur fram að heilsufarssaga kæranda var að öllu leyti lögð til grundvallar í málinu.
Kærandi greindi frá því að almennt ríki fordómar og mismunun í Perú gagnvart einstaklingum af venesúelskum uppruna. Hún hafi ekki sjálf orðið fyrir fordómum og óttist ekki neinn í Perú enda hafi hún ekki gert neitt af sér. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt framburði kæranda hafi hún verið með atvinnu í Perú.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hennar ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 23. janúar 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 17. september 2023. Ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst íslenskum stjórnvöldum. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.
Gögn málsins bera með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Gögnin benda jafnframt til þess að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Meðal annars er til þess að líta að Perú er aðili að Cartagena yfirlýsingunni, þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement), og mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.
Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Perú og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Brottvísun og endurkomubann
5.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 17. september 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi kvaðst ekki vera með tengsl við önnur Schengen-ríki. Kærandi greindi frá því að hún myndi ekki fara gegn slíkri ákvörðun og stjórnvöldum væri í sjálfvald sett hvaða ákvörðun væri tekin í máli hennar. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda í Perú telst brottvísun hans frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan þess frests.
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Sandra Hlíf Ocares