27 júní 2024

/

Úrskurður nr. 684/2024


Hinn 27. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 684/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020158

Mál [...] og barns hans

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 20. febrúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi) og barns hans, [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd og brottvísa þeim frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda og A til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi gerir kröfu um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir einnig kröfu um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi að mál þeirra verði tekin til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

2 Málsmeðferð

Kærandi og barn hans lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 24. nóvember 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Grikklandi. Hinn 7. desember 2023 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 4. janúar 2024, kom fram að honum hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi 4. september 2023 og að hann væri með dvalarleyfi með gildistíma til 3. september 2026. Kærandi og A komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. febrúar 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 20. febrúar 2024 að taka umsóknir kæranda og barns hans um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda sama dag og barst nefndinni greinargerð kæranda 5. mars 2024 ásamt fylgigögnum.

3 Málsástæður og rök kæranda

Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hann telji að aðstæður handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu heilt yfir slæmar. Vísar kærandi til alþjóðlegrar skýrslu og telur að frásögn hans fái stoð í henni. Handhafar alþjóðlegrar verndar mæti m.a. miklum hindrunum við að nálgast upplýsingar um hvar þeir geti sótt réttindi sín. Þá séu flóttamenn útilokaðir frá húsnæðisúrræðum, framfærslu, félagslegri þjónustu, atvinnumarkaðnum og heilbrigðiskerfinu og verði auk þess fyrir hatursglæpum og fordómum. Vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda og A falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til 32. gr. og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Þau viðmið sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðarinnar séu sett í dæmaskyni og því sé ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Atriði sem talin séu upp í dæmaskyni í umræddri reglugerð geti því ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Í ljósi þess beri íslenskum stjórnvöldum að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og A og þeim aðstæðum sem þeir muni standa frammi fyrir í Grikklandi. Með tilliti til uppruna kæranda og A, frásagnar þeirra og með hliðsjón af þeim upplýsingum um þær aðstæður sem bíði þeirra í Grikklandi muni þeir eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar á grundvelli kynþáttar og þeir geti vænst þess að staða þeirra verði verulegra síðri en almennings í viðtökuríki. Byggir kærandi á takmarkaðir möguleikar séu á löglegri atvinnu í Grikklandi sem leiði til þess að þeir muni enda heimilislausir. Jafnframt séu kröfur grískra stjórnvalda til þeirra sem sæki um félagslega aðstoð það miklar að þær geri þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd nær ómögulegt að uppfylla þær. Kærandi hafi ekki haft aðgang að félagsþjónustu í Grikklandi og upplifað fordóma og mismunun í Grikklandi. Kærandi og A séu í verulega síðri stöðu en aðrir til að sækja sér réttindi sín, framfleyta sér og fá viðeigandi stuðning félagsmálakerfis og þar með tryggja grunnþarfir sínar. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 466/2021, dags. 7. október 2021. Kærandi vísar til heilbrigðisaðstæðna sinna og telur að málin séu sambærileg. Jafnframt vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 429/2021, dags. 9. september 2021.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda og A falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi telur að með endursendingu þeirra verði brotið gegn meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement) sem lögfest hafi verið í 42. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi jafnframt til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins. Kærandi og A hafi búið á götunni án framfærslu og atvinnu meðan þeir hafi dvalið í Grikklandi auk þess sem heimildir styðji frásagnir þeirra. Kærandi vísar þá til þess að efnahagslegar ástæður einar og sér geti talist til brota á 3. gr. mannréttindasáttmálans, þ.e. þegar aðstæður nái ákveðnum alvarleikaþröskuldi, sbr. Tarakhel gegn Sviss, frá 4. nóvember 2014 og A.S. gegn Sviss frá 30. júní 2015. Kærandi vísar þá til dóma þýskra og hollenskra dómstóla máli sínu til stuðnings. Kærandi telji að þeir muni standa frammi fyrir ómannúðlegum aðstæðum í Grikklandi og því beri að taka mál þeirra til efnismeðferðar.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur kæranda er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra verði teknar til nýrrar meðferðar vegna annmarka á málsmeðferð Útlendingastofnunar. Frekari gagnaframlagning hafi verið boðuð í greinargerð til Útlendingastofnunar vegna andlegrar heilsu A. Kærandi telji að tilefni hafi verið til að afla skýrra upplýsinga frá sérfróðum aðila um hver þörf A væri fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fengi hann ekki þá þjónustu eða meðferð og afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu. Ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi verið birtar án þess að kæranda hafi verið gefið færi á að tryggja að gögn um andlega heilsu A lægju fyrir. Jafnframt sé engin umfjöllun um andlega heilsu A eða þörf hans á sálfræðiþjónustu. Ákvörðunin beri með sér að ekki hafi fullnægjandi grundvöllur verið lagður að einstaklingsbundnu mati á því hvort aðstæður A teljist til sérstakra ástæðna. Jafnframt hafi ekkert verið fjallað um áhrif heilsufars hans á flutning aftur til Grikklands eða afstaða tekin til þess hvort heilsu hans væri þannig háttað að flutningur til Grikklands hefði í för með sér verulegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans. Að mati kæranda sé um að ræða brot gegn 10. gr. og 22. gr. stjórnsýslulaga.

4 Umsókn um alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsókna kærenda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.

4.2 Aðstæður kæranda og barns hans

Kærandi er karlmaður á [...]sem kom hingað til lands ásamt A sem er [...]ára. Kærandi greindi frá því að eiginkona hans væri búsett í heimaríki ásamt fimm börnum þeirra. Kærandi hafi flúið heimaríki ásamt A og komið til Grikklands í júlí 2023. Kærandi og A hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi 4. september 2023 og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 24. nóvember sama ár. Kærandi viti ekki hvort hann hafi fengið skatt- og almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærandi hafi ekki fengið framfærslu og húsnæðisaðstoð frá grískum stjórnvöldum auk þess sem erfitt hafa verið að fá atvinnu. Kærandi sé hræddur við grísku lögregluna og hafi orðið vitni að fordómum gagnvart öðrum. A hafi ekki haft aðgang að menntun í Grikklandi. Kærandi greindi frá því að hafa [...] skotinn. Þá væri andleg heilsa hans slæm vegna aðstæðna fjölskyldu hans í heimaríki. Kærandi greindi frá því að [...].

4.3 Réttarstaða barns kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda og A hjá Útlendingastofnun og gögn málsins sem bera með sér að barn kæranda hafi góð tengsl við föður sinn og finni hjá honum öryggi. Það er því mat nefndarinnar að allt bendir til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða hans verði ákveðin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd föður síns og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

4.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

  1. umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda ásamt A veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 4. september 2023 og eru með dvalarleyfi þar í landi með gildistíma 3. september 2026. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi og A njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

4.5 Landaupplýsingar

Nefndin hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 22. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 8. júní 2023);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, mars 2023);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2023 – Greece (Freedom House,mars 2023);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/);
  • Upplýsingar af vefsíðu The Smile of the child(https://www.hamogelo.gr/gr/en/sos-1056/) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Grikkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Grikkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 9. ágúst 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Grikkland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 6. október 1988 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi árið 1997 og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1985 og barnasáttmálann árið 1993. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 5. apríl 1960.

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá júní 2023 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi, sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku, hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Allir eigi rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði.

Á heimasíðu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi þurfi viðkomandi að fara á næstu skattstofu og leggja fram umsókn. Umsóknareyðublaðið sé á grísku og sé bæði aðgengilegt á skattstofunum sjálfum og á rafrænu formi. Með umsókn þurfi að leggja fram frumrit og afrit af dvalarleyfi ásamt sönnun á búsetu. Varðandi útgáfu almannatrygginganúmera skuli leggja fram umsókn hjá skrifstofu almannatrygginga AMKA eða í þjónustumiðstöð borgarbúa KEP. Með umsókn skuli framvísa gildu dvalarleyfisskírteini og sönnun á búsetu. Reynsla einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi af því að sækja um almannatrygginganúmer sé mismunandi. Afgreiðsla sé í sumum tilvikum fljótvirk en í öðrum tilvikum óski yfirvöld eftir frekari gögnum. Hægt sé að fá aðstoð frá frjálsum félagasamtökum við umsóknarferlið, bæði varðandi útgáfu skatt- og almannatrygginganúmera.

Í skýrslu ECRE kemur fram að samkvæmt grískum lögum séskólaskylda fyrir börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi á grunnskólaaldri. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði. Árið 2022 gaf Grikkland út aðgerðabaráætlun til þess að bregðast við tilmælum frá European Child Guarantee sem hefur það að markmiði að hvert barn í Evrópu í hættu á fátækt eða félagslegri einangrun hafi aðgengi að grunnréttindum eins og heilbrigðisþjónustu og menntun.Gríska aðgerðaráætlun felur m.a. í sér aðgerðir gagnvart börnum til þess að tryggja aðgengi þeirra að ungbarnamenntun og umönnun, menntun á skólastigi, heilsugæslu, heilbrigðu matarræði og fullnægjandi húsnæði. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að undir embætti umboðsmanns Grikklands starfi fimm fulltrúar sem vinni að mannréttindum, réttindum barna, velferð, heilbrigðis- og félagsmálum. Grísk lög leggi bann við refsingum gegn börnum og barnaníði. Þó hafi ofbeldi gegn börnum, sérstaklega börnum innflytjenda, flóttafólks og heimilislausra barna verið vandamál í Grikklandi. Þá hafi grísk stjórnvöld gert forvarnaráætlun um fóstur, umönnun og vistun í athvörfum fyrir börn sem hafi sætt misnotkun eða vanrækslu. Þó hafi ríkisreknar stofnanir verið undirmannaðar og skort hafi fjármagn til að veita fullnægjandi þjónustu. Þá sé til staðar sérstök neyðarlína sem opin sé allan sólarhringinn, þar sem m.a. sé hægt að tilkynna neyðartilvik og fá félagslegan og sálrænan stuðning varðandi málefni sem snerti börn og unglinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá hafi borið á kvörtunum óskráðra innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd um ofbeldi við brottvísunaraðgerðir (e. pushbacks) grískra yfirvalda við landamærin. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram að grísk stjórnvöld hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, lögsækja og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot eða spillingu. Hins vegar hafi frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir gagnrýnt stjórnvöld fyrir skort á rannsókn og öðrum aðgerðum vegna ásakana um ofbeldi og illa meðferð lögreglu við brottvísunaraðgerðir á umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Grikklandi. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að 20. júlí 2022 hafi verið samþykkt lagabreyting sem hafi sett á fót sérstakt embætti innan ráðuneytisins um fólksflutninga og alþjóðlega vernd (e. Minstry of Migration and Asylum) til að hafa eftirlit með vernd mannréttinda við málsmeðferðir umsókna um alþjóðlega vernd. Með breytingunni hafi jafnframt verið innleitt verklag um að vísa kvörtunum til stofnunarinnar (e. National Transparency Authority, NTA) og þá hafi verið stofnuð sérstök nefnd innan ráðuneytisins sem hefur það hlutverk að tryggja að grundvallarréttindi séu virt og að samræmis sé gætt á milli innlendra laga og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins um landmæraeftirlit. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

4.6 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Kærandi er karlmaður á [...]sem kom hingað til lands ásamt A sem er [...]ára. Kærandi greindi frá því að hafa [...] skotinn. Andleg heilsa hans væri slæm vegna aðstæðna fjölskyldu hans í heimaríki. Kærandi greindi frá því að [...]. Í málunum liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 19. desember 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga á kæranda og A. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. desember 2023 til 16. febrúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því að vera líkamleg heilsuhraustur en hafa áhyggjur af fjölskyldu sinni í heimaríki vegna stríðsins sem taki á andlega. Kærandi hafi farið í tvær aðgerðir vegna kviðslits vinstra megin og sé með stoðnet þar auk þess sem hann hafi farið í eina aðgerð hægra megin. Kærandi fái verk í vinstri nára ef hann standi í dálítinn tíma eða lyfti einhverju þungu. Ekki hafi fundist kviðslit við skoðun. Óskað hafi verið eftir ómun á kvið og röntgenmynd. Kærandi lagði jafnframt fram heilsufarsgögn frá heimaríki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að [...]. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. til 19. desember 2023, kemur fram að A sé heilsuhraustur líkamlega en eigi erfitt andlega vegna aðstæðna fjölskyldu sinnar í heimaríki. [...].

Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 7. febrúar 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málanna hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 20. febrúar 2024, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda og A nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda og A geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda og A sé með þeim hætti að þeir teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda og A ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi og A hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda og A tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda og A geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega aðstoð frá grískum yfirvöldum auk þess sem aðeins hafi verið illa launuð atvinna í boði. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og A séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Skilyrði fyrir styrknum er m.a. að framvísa leigusamningi eða í tilviki heimilislausra, vottorði um heimilisleysi frá gistiskýli eða sveitarfélagi. Kærunefnd telur ljóst að sá stutti tími sem kærandi dvaldi í viðtökuríki beri ekki með sér að hann hafi gert fullnægjandi reka að því að sækjast eftir þeim réttindum sem hann eigi að lögum þar í landi.

Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 466/2021, dags. 7. október 2021, og telur að málin séu sambærileg. Í framangreindu máli leit kærunefnd til þess að kærandi væri aðskilin eiginmanni sínum með tvö börn á sínu framfæri. Eiginmaður kæranda hefði samkvæmt gögnum málsins verið ásakaður um að beita kæranda og börn hennar ofbeldi og vanrækslu. Þá hafi kærandi notið þjónustu sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna og leitað til bráðaþjónustu geðsviðs Landspítala vegna kvíða og sjálfsvígshugsana og fengið ávísað lyfjum vegna þess. Jafnframt hafi barnavernd Hafnarfjarðar haft aðkomu að málefnum fjölskyldunnar. Kærandi og börn hennar höfðu notið viðeigandi stuðnings á heimilinu af hálfu félagsráðgjafa vegna viðkvæmrar stöðu fjölskyldunnar. Þá hafði kærandi notið stuðnings kvennaathvarfs þar sem kærandi hafi dvalið með börnum sínum um tíma. Gögn málsins bentu til þess að kærandi og börn hennar væru í þörf fyrir áframhaldandi stuðning barnaverndarþjónustu en það kynni að vera vandkvæðum bundið fyrir kæranda og börn hennar að fá nauðsynlegan stuðning í Grikklandi. Kærunefnd telur að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda í framangreindu máli og aðstæður í fyrirliggjandi máli séu ekki sambærilegar.

Kærandi vísar jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. 429/2021 og telur að málið hafi fordæmisgildi. Kærandi var einstæður og einsamall karlmaður sem var lamaður fyrir neðan mitti og notaðist við hjólastól en auk þess notaðist hann við þvaglegg og hafði þörf fyrir þvagpoka. Var málið sent til efnismeðferðar, m.a. vegna aðgangshindrana að greiðri heilbrigðisþjónustu í Grikklandi sem hann hafði þörf fyrir. Þá leit kærunefnd til álags á gríska heilbrigðiskerfinu vegna Covid-19 og þeirra hindrana sem hann kæmi til með að þurfa yfirstíga. Kærunefnd telur að sú óvissa sem var á þeim tíma sem fyrrgreindur úrskurður var kveðinn upp vegna Covid-19 faraldursins og áhrifa hans á grískt heilbrigðiskerfi sé ekki lengur til staðar. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd að málin séu ekki sambærileg.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi að mestu heilbrigður og vinnufær. Kærandi greindi frá því að vita ekki hvort hann sé með skatt- og almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. sækja um skatt- og almannatrygginganúmer, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann óttist lögregluna í Grikklandi auk þess sem hann hafi orðið vitni að fordómum gagnvart öðru fólki. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir kæranda og A til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna umfjöllunar í greinargerð kæranda um reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum og beitingu 32. gr. a reglugerðarinnar tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telur að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mg. 32. gr. a reglugerðarinnar. Áréttað er í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kæranda og A og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg.

Í 5. til 8. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir í 1. málsl. 5. mgr. ákvæðisins:

Við mat á því hvort Útlendingastofnun sé heimilt að taka mál barns til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skulu hagsmunir barns hafðir að leiðarljósi.

Þá segir í niðurlagi 8. mgr. ákvæðisins að við mat á hagsmunum barns beri að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Líkt og að framan er rakið eru kærandi og A handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og eru með gild dvalarleyfi þar í landi. Að því er varðar aðgengi A að menntun tekur kærunefnd fram að börn eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi frá 5 til 15 ára aldurs og í kjölfarið rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Þá vekur kærunefnd athygli á dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, m.a. í máli M.T. og aðrir gegn Svíþjóð nr. 22105/18 frá 20. október 2022. Í dómnum er vísað til þeirrar meginreglu að þrátt fyrir að barni muni vegna betur í einu aðildarríki mannréttindasáttmálans en öðru teljist það ekki falla undir hugtakið bestu hagsmunir barnsins.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kæranda og A og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi samrýmist flutningur fjölskyldunnar til viðtökuríkis hagsmunum þeirra þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert sem gefur tilefni til að ætla að kærandi og barn hans muni aðskiljast, sbr. niðurlag 8. gr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds verður umsókn barns kæranda ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli framangreindra sérviðmiða um börn og ungmenni í reglugerð um útlendinga enda er það í samræmi við réttindi og hagsmuni þeirra.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barns hans verða umsóknir þeirra ekki teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 7. febrúar 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærandi lagði fram umsókn sína og barnsins um alþjóðlega vernd hér á landi 24. nóvember 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verða umsóknir kæranda og barnsins ekki teknar til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

4.7 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Gögn málsins bera með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Gögnin benda jafnframt til þess að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda og barns hans til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi og barn hans hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barnsins, hefur ekki verið sýnt fram á að þeir eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barnsins um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verða umsóknir kæranda og barnsins ekki teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

5 Brottvísun og endurkomubann

5.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.

5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Kærandi og A lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 24. nóvember 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barnsins um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barnsins til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi frá því að systir eiginkonu hans væri búsett í Brussel. Þá væri um ósanngjarna ráðstöfun að ræða því kærandi væri að sækja um vernd. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda og barnsins í Grikklandi telst brottvísun kæranda frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi og barn hans yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar heimfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar heimfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kærenda til sjálfviljugrar heimfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi og barn hans landið sjálfviljugir án tafar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.

6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Í greinargerð er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir kæranda og A verði teknar til nýrrar meðferðar. Frekari gagnaframlagning hafi verið boðuð í greinargerð til Útlendingastofnunar vegna andlegrar heilsu A. Kærandi telji að tilefni hafi verið til að afla skýrra upplýsinga frá sérfróðum aðila um hver þörf hans væri fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fengi hann ekki þá þjónustu eða meðferð og afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu. Ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi verið birtar án þess að kæranda hafi verið gefið færi á að tryggja að gögn um andlega heilsu A lægju fyrir. Jafnframt sé engin umfjöllun um andlega heilsu A eða þörf hans á sálfræðiþjónustu í ákvörðununum. Ákvarðanirnar beri með sér að ekki hafi fullnægjandi grundvöllur verið lagður að einstaklingsbundnu mati á því hvort aðstæður A teljist til sérstakra ástæðna. Jafnframt hafi ekkert verið fjallað um áhrif heilsufars hans á flutning aftur til Grikklands eða afstaða tekin til þess hvort heilsu hans væri þannig háttað að flutningur til Grikklands hefði í för með sér verulegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans. Að mati kæranda sé um að ræða brot gegn 10. gr. og 22. gr. stjórnsýslulaga.

Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og stöðu kæranda og A. Kærandi og A komu í viðtal hjá Útlendingastofnun 7. febrúar 2024. Kærandi greindi frá því að A liði illa andlega og að óskað hafi verið eftir sálfræðiþjónustu fyrir hann. A vilji vera inni í herbergi og ekki fara út. Af endurriti viðtals við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt út í andlegt og líkamlegt heilsufar A og hvort þeir hafi leitað til læknis í viðtökuríki eftir flutning þangað. Af ákvörðunum Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang handhafa alþjóðlegrar verndar að viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi með hliðsjón af þeim heilsufarsvandamálum sem kærandi og A kváðust glíma við. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda og A telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari þeirra og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli þeirra enda er ekkert sem bendir til þess að þeir glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 22. gr. og 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 20. febrúar 2024, var kæranda einnig leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu, engin frekari heilsufarsgögn bárust en kærunefnd tekur fram að heilsufarssaga kæranda og A var að öllu leyti lögð til grundvallar í málinu.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir

Sandra Hlíf Ocares