04 júlí 2024
/
Nr. 715/2024 Úrskurður
Hinn 4. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 715/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23100062
Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. október 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. október 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Ítalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 9. janúar 2023. Kvaðst kærandi hafa farið frá Nígeríu 2014 og þá til Ítalíu og verið í Róm í sex ár og síðan farið til Möltu í tvö ár. Hann hafi komið til þess að vera með unnustu sinni og dóttur sem búi hér á landi. Hún hafi verið hér í næstum fjögur ár og þau eigi þriggja ára dóttur. Hann hafi dvalarleyfi á Ítalíu. Hann eigi son í Nígeríu sem sé 13 ára gamall.
Barnsmóður kæranda og dóttur þeirra var veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. […], á grundvelli þess að hún væri einstæð móðir sem ekki væri í sambandi við barnsföður sinn.
Í fyrstu sætti umsókn kæranda svokallaðri Dyflinnarmeðferð hjá Útlendingastofnun og var kærandi kallaður til viðtals hjá Útlendingastofnun 31. janúar 2023. Síðar var ákveðið að umsókn hans skyldi sæta efnismeðferð með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 6. september 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá atburði sem hafi átt sér stað 5. júní 2014. Hann hafi unnið við húsbyggingar og verið að flytja sand af byggingarsvæði. Hann hafi verið farþegi í vörubíl þegar bílstjórinn hafi misst stjórn á bílnum og ekið á húsvegg með þeim afleiðingum að tveir hafi látist. Kærandi hafi misst meðvitund og verið fluttur á spítala. Annar þeirra sem hafi látist í slyslinu hafi unnið fyrir konung Auchi og því væri ekki öruggt fyrir kæranda í heimaríki. Í hefndarskyni hafi átt að myrða kæranda og hann því flúið. Hann hafi flúið til Kano með hjálp móður sinnar og bróður þar sem hann hafi dvalið í um viku og síðar flúið landið.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 12. október 2023. Greinargerð barst kærunefnd 22. október 2024 ásamt fylgigögnum.
Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að barnsmóðir hans og dóttir séu með dvalarleyfi hér á landi og barnsmóðir hans eigi von á öðru barni. Kærandi hafi flúið frá heimaríki sínu árið 2014 og búið í Róm í sex ár og farið þaðan til Möltu í tvö ár þar sem hann hafi unnið ólöglega. Á Ítalíu hafi hann verið með dvalarleyfi á grundelli atvinnuleyfis. Kærandi og barnsmóðir hans hafi verið saman frá árinu 2018 og þau hafi kynnst á Ítalíu. Hún hafi flúið frá Ítalíu til Íslands þegar hún hafi verið ófrísk að barni þeirra. Atvik það sem hafi leitt til þess að hann hafi neyðst til að flýja heimaríki sitt hafi verið vinnuslys árið 2014. Háttsettur aðili innan konungsríkisins Auchi hafi látist í slysinu. Kærandi hafi slasast en aðilar hafi komið og brennt hús fjölskyldunnar til grunna á meðan hann hafi verið á spítalanum. Kærandi hafi með aðstoð bróður síns flúið heimaríki. Hann hafi ekki leitað til lögreglu enda sé spilling mikil í Nígeríu, konungur Auchi hafi mikil völd og kærandi geti ekki fengið vernd. Hann óttist að vera tekinn af lífi en einnig að hann geti ekki framfleytt sér í heimaríki.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Nígeríu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi talið að kæranda hafi ekki tekist að færa sönnur á því að hann sé eftirlýstur í heimaríki eða í hættu snúi hann aftur. Hann hafi greint frá því að hann komi frá litlu þorpi þar sem tilkynningar og fréttir hafi verið bornar út í hátölurum en ekki hafi verið netsamband og fréttamiðlar. Atburðirnir hafi gerst fyrir löngu síðan eða 2014 og því væri erfitt fyrir kæranda að leggja fram gögn til stuðnings frásögn sinni. Þá byggir kærandi á því að hann geti ekki fengið aðstoð frá lögreglu né flutt innanlands enda hafi Auchi konungsríkið tengsl um allt landið. Auk þess byggir kærandi á því að þó svo að hann eigi ættingja í Nígeríu séu tengsl hans sterkari hér á landi við kærustu sína og barn.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann sæti ofsóknum í heimaríki sínu og grundvallarmannréttindi hans séu ekki tryggð. Þá geti hann ekki leitað aðstoðar eða verndar hjá lögreglu eða yfirvöldum vegna ofsókna og hættu á að verða tekinn af lífi af konungi Auchi eða aðilum tengdum honum.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri meðferð eða hreinlega verða tekinn af lífi af konungi í Auchi eða aðilum tengdum honum sem kenni honum um að hafa valdið dauða manns sem hafi starfað fyrir konunginn.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann hafi ríkari tengsl við Ísland en heimaríki. Hann hafi haldið ríku og stöðugu sambandi við kærustu sína og dóttur.
Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Alþjóðleg vernd
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024),
- 2022 Country Repors on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
- Actors of Protection – Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
- Amnesty International Report 2021/22 – Nigeria (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Country Guidance: Nigeria (EUAA, október 2021);
- Country Information Note – Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021;
- Country of Origin report – Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 22. júní 2021);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
- DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
- EASO COI Meeting Report: Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 22. ágúst 2017);
- EU-IOM Joint Initiative marks five years of supporting migrants and their communities across Africa (Neyðarsjóður Evrópusambandsins fyrir Afríku, frétt sótt af heimasíðu 9. febrúar 2023, https://ec.europa.eu/trustfundforafrica/all-news-and-stories/eu-iom-joint-initiative-marks-five-years-supporting-migrants-and-their_en);
- Freedom in the World 2022 – Nigeria (Freedom House, 24. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, 2024);
- Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
- Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, júní 2017);
- Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 9. september 2019);
- Nigeria Security Situation (EUAA, júní 2021);
- Nigeria. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
- Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, http://www.wipo.int/edocs/lexdoc/lawa/en/ng/ng014en.pdf);
- Targeting of individuals – Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
- The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
- The World Factbook (CIA, uppfært 7. maí 2024) og
- World Report 2024 – Nigeria: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðsamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 1004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.
Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldsslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérsakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá árinu 2021 kemur fram að átök hafi verið viðvarandi árið 2020 milli Fulani herdsmen, sem séu að mestu múslimar, og bænda, sem séu að mestu kristnir, í Norður og Mið-Nígeríu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá árinu 2022 að samkvæmt frjálsu félagasamtökunum International Crisis Group hafi óöryggi og ofbeldi milli framangreindra hópa aukist árið 2021. Þó sé erfitt að rekja orsök átakanna eingöngu til trúarbragða. Alþjóða- og félagasamtök hafi gagnrýnt stjórnvöld í Nígeríu fyrir getuleysi til að koma í veg fyrir eða draga úr ofbeldi milli kristinna og múslimskra samfélaga. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá janúar 2020 og skýrslu International Crisis Group frá september 2017 kemur fram að þessi átök snúist fyrst og fremst um baráttu þessara tveggja hópa um landsvæði, þar sem að þurrkar hafi leitt til skorts á beitilandi í norðri og vaxandi landbúnaður hafi leitt til aukinnar þarfar á ræktarlandi í svokölluðu miðjubelti Nígeríu.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt verið að gera vart við sig í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið sé að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópum, þ. á m. Boko Haram, en með takmörkuðum árangri.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess .
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu neyðarsjóðs Evrópusambandsins fyrir Afríku frá 16. desember 2021 kemur fram að verkefnið hafi aðstoðað um 106 þúsund manns við að snúa aftur til heimkynna sinna í Afríku á öruggan hátt.
Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna ótta við hefndir konungsins í Auchi Í Edo fylki.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Áður en mál kæranda hlaut efnismeðferð fór kærandi í viðtal hjá Útlendingastofnun, dags. 31. janúar 2023, þar sem mál hans sætti Dyflinnarmeðferð. Þá greindi kærandi frá því að barnsmóðir hans og dóttir byggju hér á landi. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að barnsmóðir kæranda og dóttir hafi fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með ákvörðunum Útlendingastofnunar dags. 24. september 2020. Kærandi hefur greint frá því að þau hafi verið saman í fimm ár og þau búið saman á Ítalíu. Seinna í viðtalinu kvaðst kærandi hafa hitt hana snemma árs 2018 og hann hafi farið til Möltu í atvinnuleit árið 2019 og verið í tvö ár og farið til Ítalíu á milli. Hann hafi týnt símanum sínum og misst samband við kærustu sína þar til hann hafi frétt af henni hér á landi. Hann hafi komið tvívegis í heimsókn til Íslands, árið 2020 og 2021. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 6. september 2023 kvað kærandi þau ekki hafa búið saman sem sambúðaraðilar eða hjón enda hafi hún búið í flóttamannabúðum á Ítalíu og verið í umsóknarferli um alþjóðlega vernd og því ekki farið með honum til Möltu. Þá hafi kærandi greint frá því að kærasta hans væri ólétt að öðru barni þeirra.
Varðandi ástæður flótta frá Nígeríu hafi kærandi greint frá því að hann hafi verið að vinna við húsbyggingar. Hinn 5. júní 2014 hafi viðskiptamaður óskað eftir að fá afhentan sand frá byggingarsvæði þar sem hann hafi verið að vinna. Hann hafi útvegað vörubílstjóra til verksins frá nálægu þorpi. Sá hafi ekki þekkt heimilisfang byggingarinnar þangað sem hafi átt að afhenda sandinn og hafi kærandi því farið með. Eftir um 15 km akstur hafi bílstjórinn sagt að þeir kæmust ekki lengra því bremsurnar virkuðu ekki. Hann hafi misst stjórn á bílnum og ekið á húsvegg með þeim afleiðingum að tveir hafi látist. Kærandi hafi misst meðvitund í slysinu og verið fluttur á spítala. Aðili sem hafi látist hafi verið háttsettur og unnið fyrir konunginn í Auchi. Konungurinn hafi tilkynnt að það ætti að drepa kæranda og bílstjórann í hefndarskyni. Móðir kæranda og bróðir hans hafi farið með kæranda til Kano þar sem hann hafi dvalið í viku áður en hann hafi flúið Nígeríu. Menn konungs hafi komið á sjúkrahúsið eftir flóttann en gripið í tómt og því farið að heimili föður hans og brennt hús hans til grunna. Fjölskylda kæranda hafi í kjölfarið flúið til annars þorps. Kærandi kvaðst eiga son í heimaríki, fæddan 2010 sem systir hans hafi alið upp. Hann ætti tvo bræður og fjórar systur. Kærandi greindi frá því að hann ætti ekki myndir eða gögn sem styddu frásögn hans vegna þess að ekkert af atburðunum hafi ratað í fjölmiðla og að í svo litlu þorpi hafi menn tilkynnt fréttir með því að kalla þær í gegnum hljóðkerfi um þorpið. Kærandi óttist að vera drepinn snúi hann aftur til Nígeríu.
Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn til stuðnings frásögn sinni, svo sem fréttir í nígerískum fjölmiðlum eða öðrum staðbundnum fjölmiðlum varðandi bílslys eða mannslát vegna þeirra, eða heilsufarsgögn varðandi meiðsl. Skýringar á því að ekki hafi verið eiginlegir fjölmiðlar s.s. prentmiðlar í heimaþorpi kæranda árið 2014 eru ótrúverðugar og ekki í samræmi við upplýsingar um heimaríki hans. Kærandi hefur lagt fram gögn sem hann kveður sýna hús fjölskyldunnar eftir bruna. Hafa umræddar myndir ekki sönnunargildi í málinu þar sem ekki er hægt að sjá hvar þær voru teknar eða hvenær.
Að mati kærunefndar er þó ekki unnt að útiloka að kærandi kunni að hafa lent í bílslysi í heimaríki sínu árið 2014 þar sem að aðili tengdur konungnum í Auchi hafi látist. Heimildir benda til þess að hefðir hafi verið viðhafðar í heimaríki kæranda og séu viðurkenndar í Nígeríu svo lengi sem þær séu innan marka laganna og stangist ekki á við réttlæti, sanngirni og góða samvisku. Konungar í ýmsum konungsríkjum í landinu, s.s. í Auchi og Benín gegni aðallega fulltrúarhlutverki en geti þó haft áhrif á nígerísk yfirvöld. Konungar geti ekki refsað neinum löglega. Konungur geti haft milligöngu í málum en hann geti ekki dæmt í þeim. Með vísan til framangreinds verður að telja ólíklegt að konungur í Auchi geti krafist þess að kærandi verði myrtur án dóms og laga. Auk þess eru 10 ár liðin frá því kærandi flúði heimaríki sitt og benda gögn málsins og frásögn kæranda ekki til þess að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu konungsins, aðila á hans vegum eða öðrum aðilum í heimaríki sínu.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Auchi í Edo fylki og hafa verið búsettur þar alla tíð þar til hann hafi yfirgefið heimaríki sitt árið 2014. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Auchi séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Nígeríu.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann sé í hættu verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Þar sem hann hafi ekki verið búsettur í Nígeríu frá árinu 2014 hafi hann lítið félagslegt net eða bakland þar. Hann óttist að hann geti ekki framfleytt sér í heimaríki. Kærandi hefur greint frá því að hafa búið lengst af á Ítalíu og dvalið um tíma á Möltu. Kærandi hefur greint frá því að foreldrar hans séu látnir en að hann eigi son í heimaríki sem systir hans hafi alið upp. Hann eigi fjórar systur og tvo bræður í heimaríki. Þau hafi öll flutt frá Auchi vegna meintra ofsókna konungsins og séu ekki í hættu. Hann eigi kærustu og dóttur hér á landi og hafi komið til að vera með þeim. Þá eigi kærandi og kærasta hans von á öðru barni. Barnsmóðir hans og dóttir hafi fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Af ákvæðum laga um útlendinga verður ekki ráðið að dvalarleyfi kærustu hans og dóttur þeirra veiti honum sjálfstæðan rétt til hins sama.
Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljast svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. Kærandi á fjölskyldumeðlimi og má ráða af gögnum málsins að samband þeirra sé gott. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar og félagslegar aðstæður sem bíða kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Kærandi kveður sig vera við góða heilsu. Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt i heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Krafa kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga er m.a. reist á því að kærandi eigi börn sem séu búsett hérlendis og að hann hafi því rík tengsl við landið. Hvað þetta atriði varðar tekur kærunefnd fram að við mat á því hvort útlendingi verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarjónarmiða koma aðeins til álita atriði þar sem útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. heilbrigðisástæðum, vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Geta fjölskyldutengsl útlendings við landið því ekki orðið grundvöllur fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.
Að mati kærunefndar og að virtum landaupplýsingum eru aðstæður í Nígeríu ekki með þeim hætti að kærandi búi við ríka þörf á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónamiða þar sem ekki verði litið svo á að fyrir hendi séu aðstæður sem telja megi almennt erfiðar í umræddu ríki.
Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 9. janúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við Ísland né önnur lönd Schengen-svæðisins nema við fjölskyldu sína. Þá telji kærandi að um yrði að ræða ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér þar sem að fjölskylda hans búi hérlendis og að hann eigi von á öðru barni og að hann beri ábyrgð á þeim. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi verið í sambandi við barnsmóður sína frá árinu 2018 en að þau hafi orðið viðskila um tíma. Hann hafi svo frétt að hún væri komin hingað til lands og ákveðið að koma einnig. Samkvæmt gögnum málsins hafa kærandi og barnsmóðir hans verið með dvalarleyfi á Ítalíu. Dvalarleyfi kæranda var með gildistíma til 15. september 2023 og barnsmóðir hans nýtur stöðu flóttamanns á Ítalíu. Kann kærandi því að geta endurnýjað dvalarheimild sína þar í landi og eftir atvikum ferðast hingað til lands og heimsótt börn sín í 90 daga á hverju 180 daga tímabili, svo fremi sem hann yfirgefi Ísland innan veitts frests. Kærandi og börn hans eru öll nígerískir ríkisborgarar og er því ljóst að þau geti sameinast á Ítalíu sem og í Nígeríu enda er það mat stjórnvalda að aðstæður í heimaríki kæranda séu ekki slíkar að kærandi eða börn hans geti ekki búið þar. Með vísan til þess verður því ekki séð að brottvísun kæranda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frests sem honum er gefinn.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir