04 júlí 2024
/
Nr. 723/2024 Úrskurður
Hinn 4. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 723/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23070028
Kæra […]á ákvörðun Útlendingastofnunar
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. júlí 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. júní 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Í lögregluskýrslu kemur fram að kærandi hafi komið til Íslands 9. janúar 2023 og sótt um alþjóðlega vernd þar sem kærasta hans búi hér og sé ólétt. Hann hafi áður sótt um alþjóðlega vernd á Ítalíu og væri með dvalarleyfi þar.
Í fyrstu sætti umsókn kæranda svokallaðri Dyflinnarmeðferð hjá Útlendingastofnun og var kærandi kallaður til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. febrúar 2023. Greindi kærandi frá því að hann hafi flúið frá Líbíu árið 2011. Hann hafi farið til Ítalíu og dvalið þar síðan. Síðar var ákveðið að umsókn kæranda skyldi sæta efnismeðferð með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í viðtal hjá Útlendingastofnun, dags. 16. febrúar 2023, greindi kærandi frá því að hann hafi elt kærustu sína hingað til lands. Þau hafi búið saman á Ítalíu og einn daginn hafi hún horfið og hann ekki náð í hana fyrr en mánuði seinna. Þá hafi hún verið komin til íslands, ólétt að barni þeirra. Kærandi kvaðst að eiga barn í Nígeríu sem væri barn skyldmennis sem hann hafi gengið í föðurstað. Barnið dveldist hjá frænku hans í Nígeríu.
Sú kona er kærandi kveður kærustu sína sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 29. nóvember 2022. Sætti umsókn hennar fyrst meðferð á grundvelli a-liðar 36. gr. þar sem henni hefur verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Með ákvörðun Útlendingastofnunar dags. 26. apríl 2023 var henni synjað um efnismeðferð og mál hennar sjálfkrafa kært til kærunefndar útlendingamála. Var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest með úrskurði kærunefndar nr. 397/2023, dags. 13. júlí 2023. Mál meintrar kærustu kæranda var tekið til efnismeðferðar þar sem það féll á lögbundnum tímafresti 2. mgr. 36. gr. laganna og var henni og barni hennar veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Sætir sú ákvörðun nú kærumeðferð hjá kærunefnd útlendingamála.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 25. apríl 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og kvað helstu ástæður flótta síns frá heimaríki vera að hann óttist stjúpmóður sína og föður sinn. Móðir kæranda hefði látist og í kjölfarið hafi faðir hans og stjúpmóðir breyst. Greindi kærandi frá því að stjúpmóðir hans hafi einungis verið á eftir eignum föður hans og ekki viljað una því sem fram kæmi í erfðaskrá. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu. Eftir andlát móður hans hafi kærandi ekki viljað fara út úr húsi. Kærandi viti ekki hvað bíði hans snúi hann aftur til heimaríkis. Kærandi hafi verið ungur þegar hann yfirgaf heimaríki árið 2010 og farið til Líbíu, dvalist þar í eitt ár áður en hann hafi farið til Ítalíu. Systir hans hafi farið til móðursystur þeirra í Lagos og búi þar enn. Kærandi greindi frá því að vera í einhverju sambandi við systur sína og föður sinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 4. júlí 2023.
Greinargerð til kærunefndar
Kærandi lagði ekki fram sérstaka greinargerð vegna kæru sinnar hjá kærunefnd útlendingamála. Í greinargerð sem kærandi lagði fram hjá Útlendingastofnun, dags. 22. febrúar 2023 kemur fram að kærandi eigi kærustu hér á landi og þau eigi von á barni. Hann hafi flúið frá Líbíu til Ítalíu árið 2011 vegna stríðs sem þá hafi geisað í Líbíu. Hann hafi verið með dvalarleyfi á Ítalíu. Starfsmaður Útlendingastofnunar hafi greint kæranda frá því að dvalarleyfiskort hans á Ítalíu væri falsað en kærandi hafi ekki kannast við það. Ítalía hafi ekki viljað taka við honum og því væri hann eflaust ekki með dvalarleyfi þar í landi.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 25. apríl 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá atburði sem hafi átt sér stað í heimaríki árið 2010. Móðir hans hafi látist og seinni eiginkona föður hans hafi hótað honum og systur hans. Í greinargerð kemur fram að stjúpmóðir hans hafi beitt hann og systur hans andlegu ofbeldi. Hann hafi óttast um líf sitt og flúið og einnig systir hans. Hann geti ekki snúið aftur til Nígeríu enda óttist hann að eiginkona föður hans drepi hann vegna eigna föður hans. Hann hafi flúið frá heimaríki til Líbíu og þaðan til Ítalíu. Hann hafi kynnst kærustu sinni á Ítalíu og þau hafi búið saman í rúm tvö ár en hún hafi svo farið til Íslands án þess að láta hann vita. Eftir komuna til Íslands hafi kærandi búið með kærustu sinni í Grindavík en þegar hún hafi fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafi hann ætlað að draga umsókn sína til baka en hætt við þegar í ljós hafi komið að hann gæti ekki fengið alþjóðlega vernd á Ítalíu. Kærandi vilji búa hér ásamt kærustu sinni.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir og geti ekki kallað eftir aðstoð yfirvalda og lögreglu. Hann hafi ekki lengur rétt til dvalar á Ítalíu. Þá geti kærasta hans ekki heldur farið til Ítalíu.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Alþjóðleg vernd
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi fyrir sig. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024),
- 2022 Country Repors on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
- Actors of Protection – Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
- Amnesty International Report 2021/22 – Nigeria (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Country Guidance: Nigeria (EUAA, október 2021);
- Country Information Note – Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021;
- Country of Origin report – Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 22. júní 2021);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
- DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
- EASO COI Meeting Report: Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 22. ágúst 2017);
- EU-IOM Joint Initiative marks five years of supporting migrants and their communities across Africa (Neyðarsjóður Evrópusambandsins fyrir Afríku, frétt sótt af heimasíðu 9. febrúar 2023, https://ec.europa.eu/trustfundforafrica/all-news-and-stories/eu-iom-joint-initiative-marks-five-years-supporting-migrants-and-their_en);
- Freedom in the World 2022 – Nigeria (Freedom House, 24. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, 2024);
- Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
- Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, júní 2017);
- Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 9. september 2019);
- Nigeria Security Situation (EUAA, júní 2021);
- Nigeria. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
- Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, http://www.wipo.int/edocs/lexdoc/lawa/en/ng/ng014en.pdf);
- Targeting of individuals – Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
- The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
- The World Factbook (CIA, uppfært 7. maí 2024) og
- World Report 2024 – Nigeria: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamnning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðsamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 1004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.
Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldsslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérsakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá árinu 2021 kemur fram að átök hafi verið viðvarandi árið 2020 milli Fulani herdsmen, sem séu að mestu múslimar, og bænda, sem séu að mestu kristnir, í Norður og Mið-Nígeríu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá árinu 2022 að samkvæmt frjálsu félagasamtökunum International Crisis Group hafi óöryggi og ofbeldi milli framangreindra hópa aukist árið 2021. Þó sé erfitt að rekja orsök átakanna eingöngu til trúarbragða. Alþjóða- og félagasamtök hafi gagnrýnt stjórnvöld í Nígeríu fyrir getuleysi til að koma í veg fyrir eða draga úr ofbeldi milli kristinna og múslimskra samfélaga. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá janúar 2020 og skýrslu International Crisis Group frá september 2017 kemur fram að þessi átök snúist fyrst og fremst um baráttu þessara tveggja hópa um landsvæði, þar sem að þurrkar hafi leitt til skorts á beitilandi í norðri og vaxandi landbúnaður hafi leitt til aukinnar þarfar á ræktarlandi í svokölluðu miðjubelti Nígeríu.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt verið að gera vart við sig í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið sé að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópum, þ. á m. Boko Haram, en með takmörkuðum árangri.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess .
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu neyðarsjóðs Evrópusambandsins fyrir Afríku frá 16. desember 2021 kemur fram að verkefnið hafi aðstoðað um 106 þúsund manns við að snúa aftur til heimkynna sinna í Afríku á öruggan hátt.
Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna stjúpmóður sinnar.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hans.
Varðandi ástæður flótta frá Nígeríu hafi kærandi greint frá því að vera fæddur og uppalinn í borginni […] í Edo fylki þar sem hann hafi búið þar til hann flúði heimaríki í mars 2010. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi haft það fínt en faðir hans hafi hvorki verið ríkur né fátækur. Kvað kærandi föður hans hafa átt tvær eiginkonur. Fyrri eiginkona hans hafi verið móðir kæranda en þegar hún hafi látist hafi faðir hans og stjúpmóðir breyst til hins verra. Að sögn kæranda hafi stjúpmóðir hans einungis verið á eftir eignum föður hans og hafi ekki viljað una upplýsingum úr erfðaskrá. Af þeirri ástæðu hafi kærandi ákveðið að fara til Líbíu þar sem hann hafi dvalið í eitt ár áður en hann hafi farið til Ítalíu. Systir hans hafi farið á sama tíma til móðursystur þeirra í Lagos og búi þar enn. Kærandi hafi greint frá því að hann óttist stjúpmóður sína og óttist föður sinn því honum standi á sama um hann eftir að móðir hans hafi látist. Hann hafi þó greint frá því að hann sé enn í sambandi við föður sinn og í reglulegu sambandi við systur sína.
Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn til stuðnings frásögn sinni. Að mati kærunefndar er þó ekki unnt að útiloka að kæranda kunni að hafa stafað ógn af stjúpmóður sinni. Kærunefnd lítur til þess að langt er liðið frá umræddum atvikum, systir hans býr enn í Nígeríu og gögn málsins og frásögn kæranda benda ekki til þess að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum á vegum stjúpmóður eða annarra aðila í heimaríki sínu.
Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Þá benda gögn um heimaríki kæranda og frásögn hans ekki til þess að hann sé í sérstakri hættu á að sæta ofsóknum af ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hann geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það með öðrum hætti.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Með vísan til umfjöllunar um 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í […] í Edo-fylki og hafa verið búsettur þar alla tíð þar til hann hafi yfirgefið heimaríki sitt árið 2010. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í […] séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Nígeríu.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi verið með dvalarleyfi á Ítalíu en að hann hafi átt erfitt með að ná endum saman. Þar sem hann hafi ekki verið búsettur í Nígeríu frá árinu 2010 hafi hann lítið sem ekkert félagslegt net eða bakland þar. Hann óttist stjúpmóður sína og að faðir hans hafi ekki stutt hann eftir að móðir hans lést. Kærandi sé þó í einhverju sambandi við systur sína og föður.
Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalaleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. Þá horfir kærunefnd til þess að kærandi á fjölskyldumeðlimi, m.a. föður og systur í heimaríki og má ráða að hann sé í einhverju sambandi við. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar og félagslegar aðstæður sem bíða kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Kærandi kveður sig vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Krafa kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga er m.a. reist á því að kærandi eigi barn og kærustu hérlendis. Við mat á því hvort útlendingi verður veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða koma aðeins til álita atriði þar sem útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. heilbrigðisástæðum, vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Geta fjölskyldutengsl útlendings við landið því ekki orðið grundvöllur fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.
Að mati kærunefndar og að virtum landaupplýsingum eru aðstæður í Nígeríu ekki með þeim hætti að kærandi búi við ríka þörf á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða þar sem ekki verði litið svo á að fyrir hendi séu aðstæður sem telja megi almennt erfiðar í umræddu ríki.
Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 9. janúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við hvað varðar umsókn hans.
Líkt og að framan greinir kveðst kærandi vera faðir barns sem fæddist hér á landi og var veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga með ákvörðun Útlendingastofnunar dags. 30. maí 2024. Var móður þess einnig veitt slíkt leyfi sama dag. Þær ákvarðanir sæta nú kærumeðferð hjá kærunefnd útlendingamála og í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi búið um tíma með framangreindri konu en hafi ekki búið með þeim í marga mánuði og sé ekki í samskiptum við þær. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem sýna fram á að hann sé faðir framangreinds barns. Verður því ekki talið að hagsmunir barnsins eða meginreglan um einingu fjölskyldunnar krefjist þess að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að framangreind kona og barn hennar eru nígerískir ríkisborgarar og standi vilji fjölskyldunnar til þess að dvelja saman geta þau sameinast í Nígeríu eða mögulega á Ítalíu á grundvelli fjölskyldusameiningar þar sem konan nýtur alþjóðlegrar verndar. Þá getur kærandi lagt inn umsókn um dvalarleyfi hér á landi eftir að hann yfirgefur landið, telji hann sig uppfylla skilyrði fyrir slíku dvalarleyfi. Með þessum leiðbeiningum er kærunefnd þó ekki að taka afstöðu til þess hvernig meðferð slíkrar umsóknar verði háttað.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi greindi frá því að hann hafi komið hingað til að hitta þungaða kærustu sína og að hann teldi það ósanngjarna ráðstöfun að brottvísa honum. Ef hann hefði ekki ástæðu til að vera hér þá væri hann að eigin sögn á Ítalíu.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um fjölskyldutengsl kæranda hér á landi og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hann staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir