08 júlí 2024
/
Nr. 740/2024 Úrskurður
Hinn 8. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 740/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24020095
Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 13. febrúar 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. janúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 22. desember 2022. Kvaðst kærandi koma hingað til lands vegna vandamála í heimaríki og til að öðlast öruggara líf.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. desember 2023 og 23. janúar 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þar greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Calcadde í umdæmi Garbahaarey á Gedo landsvæðinu en hafa flutt til Dhamasa í umdæmi Ceel Waq á sama landsvæði árið 2015 og hafa verið búsettur þar þangað til hann yfirgaf heimaríki sitt árið 2022. Kærandi kvaðst hafa unnið fyrir frjáls félagasamtök að nafni Kaalmo Relief And Development og hafa mátt þola ofsóknir af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab af þeim sökum.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 13. febrúar 2024. Greinargerð barst kærunefnd 27. febrúar 2024.
Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa greinargerðina frekar.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.
Útlendingastofnun barst dags. 30. maí 2024 beiðni frá stjórnvöldum í Þýskalandi um að taka við kæranda á grundvelli b-liðar 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) og samþykktu íslensk stjórnvöld viðtöku kæranda samdægurs. Hinn 6. júní 2024 sendi kærunefnd tölvubréf á Útlendingastofnun og óskaði eftir upplýsingum um hvort kærandi væri staddur hér á landi, þ.e. hvort hann væri kominn aftur til landsins frá Þýskalandi. Útlendingastofnun framsendi erindið til stoðdeildar Ríkislögreglustjóra og barst kærunefnd svar dags. 6. júní 2024 þess efnis að stoðdeild hefði ekki upplýsingar um hvar kærandi væri staddur. Með vísan til þess hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda 27. júní 2024 og greindi honum frá því að nefndinni hafi borist upplýsingar um að kærandi væri skráður horfinn. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi og ef svo væri var talsmanni veittur frestur til að leggja fram staðfestingu á því. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd 3. júlí 2024 kom fram að talsmaður hafi ekki náð sambandi við kæranda þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi verður, með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að kærandi hafi yfirgefið landið.
Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.
Úrskurðarorð:
Kæru kæranda er vísað frá.
The Appeal is dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Valgerður María Sigurðardóttir
varaformaður