09 júlí 2024

/

Úrskurður nr. 736/2024


Hinn 9. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 736/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23080039

Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. ágúst 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Tyrklands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. júlí 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins með flugi frá Stokkhólmi 10. janúar 2023 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 11. janúar 2023. Kvaðst kærandi vera kúrdískur múslimi og að stjórnvöld í Tyrklandi hafi verið að ofsækja hann þar sem hann hafi tekið þátt í mótmælum. Þá væru yfirvöld að ofsækja kæranda og mismuna honum af því hann væri Kúrdi. Kærandi kvaðst munu vera settur í fangelsi ef hann yrði sendur aftur til baka. Stjórnvöld séu að leita að kæranda í heimaríki, hann hafi verið foringi heimavistar í háskóla og þeir hafi verið að mótmæla. Stjórnvöld hafi lokað öllum heimasíðum og afmáð allt sem þeir hafi skrifað. Þeir hafi verið stuðningsmenn Gullano og forseti Tyrklands hafi verið að fangelsa alla stuðningsmenn hans. Kærandi hafi farið frá Tyrklandi 25. desember 2022. Kærandi hafi farið með vörubíl til einhvers lands og hafi komið með flutningaskipi til Íslands. Þeir hafi verið þrír saman og falið sig neðan þilja í skipinu. Bátur hafi svo komið og sótt þá og farið með þá í fjöru hér á landi þannig að myndavélar myndu ekki ná mynd af þeim. Kærandi hafi borgað 5000 evrur fyrir ferðina.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. febrúar og 25. apríl 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, 7. febrúar 2023, greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í [...] þar sem hann hafi búið þegar hann hafi yfirgefið heimaríki 25. nóvember 2022. Kærandi kvaðst fyrst hafa farið til Bosníu og eytt öllum peningunum sínum í ferðalagið til Íslands. Hann hafi ferðast innan landsins til að komast að landamærunum en ekki haft neinn stað til að gista á og hafi þar af leiðandi sofið á götum úti. Kærandi greindi frá því að hafa misst foreldra sína, systkini og hús fjölskyldunnar í jarðskjálftum í Tyrklandi tveimur dögum fyrir viðtalið. Kærandi greindi frá því að hann hafi fengið upplýsingar um andlát fjölskyldu sinnar frá háttsettum einstaklingi í heimaþorpinu sínu […] í Tyrklandi. Kærandi greindi frá því að hann hafi átt yfir höfði sér handtökuskipun í Tyrklandi samkvæmt ákvörðun frá dómstól. Ástæður handtökuskipunarinnar hafi verið þær að kærandi hafi átt bankareikning í banka Gülen hreyfingarinnar, hann hafi verið meðlimur hreyfingarinnar og hafi búið í húsnæði á vegum hennar þegar hann hafi verið í háskóla. Kærandi hafi fengið upplýsingar um handtökuskipunina frá fjölskyldu sinni þar sem bróðir hans hafi verið í sömu stöðu og kærandi, en bróðir hans hafi ekki fengið tækifæri til að flýja Tyrkland. Kærandi kvaðst ekki vera meðlimur í stjórnmálaflokki en að hann hafi verið í hópi sem hafi stutt Gülen hreyfinguna áður en valdaránstilraun hafi verið gerð í Tyrklandi. Eftir valdaránstilraunina hafi hann reynt að fela sig meðal almennings í Tyrklandi. Kærandi hafi búið í húsnæði á vegum Gülen hreyfingarinnar sem ætlað var fyrir nemendur og fólk í neyð. Hlutverk kæranda hafi verið að aðstoða fólk sem hafi komið í húsnæðið. Síðar hafi hann tekið að sér starf sem hafi falist í að fá fólk til aðstoðar við hreyfinguna sem og til að ganga til liðs við hana. Kærandi hafi fengið greitt fyrir síðara hlutverkið fyrir hreyfinguna frá Gülen bankanum Bank Asya. Kærandi hafi einnig starfað við að dreifa blaðinu Zaman sem hafi verið í eigu Fetullah Gülen. Kærandi greindi frá því að hafa lent í vandamálum eftir valdaránstilraunina vegna tengsla sinna við Gülen hreyfinguna, honum hafi verið mismunað og forseti landsins væri grimmur. Kærandi greindi frá því að tilheyra minnihluta sem kúrdískur alevi. Kærandi hafi misst störf þegar að vinnuveitendur hafi komist að því að hann væri Kúrdi og alevi og tækifæri hans væru færri vegna uppruna hans og trúar. Kærandi og fjölskylda hans hafi sætt mismunun og líf þeirra verið erfitt. Þau hafi haft lítið aðgengi að félagslegri aðstoð og vinnumarkaði. Kærandi greindi frá því að áður en Gülen hafi komið fram og aðstoðað hafi kúrdískir alevar verið reknir úr störfum vegna uppruna síns og trúar og að þeim hafi verið slátrað. Eftir valdaránstilraunina hafi lífið orðið erfiðara. Yfirvöld hafi farið að fylgjast með einstaklingum sem hefðu tengsl við Gülen hreyfinguna og gefið út handtökuskipanir af litlum sökum. Kærandi kvaðst óttast að fá ósanngjarna málsmeðferð fyrir tyrkneskum dómsstólum þar sem hann hafi verið meðlimur í Gülen hreyfingunni og telja að refsing hans yrði þyngd vegna þess að hann væri kúrdískur alevi. Kærandi greindi frá því að hafa verið með bankareikninga í Gülen bönkum og skjöl um að hann hafi búið í húsnæði á vegum Gülen hreyfingarinnar þegar hann hafi verið í háskóla. Þá hafi hreyfingin haldið úti spjallhópum á samskiptaforritum líkt og WhatsApp þar sem kærandi gæti mögulega nálgast skjöl sem staðfestu tengsl hans við hreyfinguna. Kærandi hafi verið ábyrgur fyrir að halda úti spjallþræði á spjallforritinu WhatsApp til að leiða fólk í hús Gülen hreyfingarinnar. Yfirvöld hafi hins vegar lokað þessum spjallþráðum og hann væri ekki viss að hann hefði aðgang að þeim lengur. Þá hafi Gülen bankanum verið lokað og allir viðskiptavinir hans færðir yfir í annan nafngreindan banka í ríkiseigu sem hafi enga tengingu við hreyfinguna. Kærandi kvaðst óttast að fara í fangelsi í Tyrklandi þar sem hann ætti á hættu að sæta pyndingum. Þá væri ekki vitað hvað hefði orðið um fólk sem hafi haft tengingu við Gülen hreyfinguna og hafi verið dæmt til fangelsisvistar. Kærandi greindi frá því að yfirmaður í háskóla kæranda, sem hafi haft tengingu við hreyfinguna, hafi verið handtekinn. Ef kærandi myndi snúa til baka til Tyrklands yrði hann sakaður um að vera föðurlandssvikari. Kærandi kvaðst óttast yfirvöld, reglur þeirra og mismunun.

Í síðara viðtali sínu hjá Útlendingastofnun, 25. apríl 2023, greindi kærandi frá því að hann hafi notað spjallforritið WhatsApp fyrir samskipti í tengslum við störf sín fyrir Gülen hreyfinguna en að hann gæti ekki framvísað neinum samskiptum þaðan þar sem yfirvöld hafi aftengt allt á forritinu. Kærandi greindi frá því að hafa starfað í eitt ár í banka og eitt ár við kennslu áður en hann hafi flúið heimaríki. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið í hernum en hafi verið rekinn þaðan 2018. Kærandi greindi frá því að hafa verið í hernum í eitt og hálf ár, þar af sex mánuði í herskyldu og í eitt ár hafi hann starfað sem hermaður. Herskyldan hafi byrjað árið 2020. Þegar herskyldu hafi verið lokið og hann hafi byrjað að starfa í hernum hafi þeir komist að því að hann væri í Gülen hreyfingunni. Yfirvöld hafi byrjað að skoða kæranda árið 2019 og árið 2020, þegar hann hafi verið að vinna hjá hernum, hafi allt sprungið. Kærandi hafi ekki verið handtekinn, en þeir hafi verið að skoða kæranda og hann hafi fengið tilkynningu um málið og hafi þá farið frá Tyrklandi. Aðspurður í síðara viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun kvaðst hann annars vegar hafa farið frá Tyrklandi 10. janúar 2023 og hins vegar í september 2022. Kærandi hafi verið í Tyrklandi til ársins 2022 þar sem það hafi ekki verið komið á hreint fyrr en 2022 að það ætti að handtaka kæranda. Kærandi greindi frá því að hafa starfað í svartri vinnu hjá alevum eftir að hann hætti í hernum og að hann hafi getað framfleytt sér. Kærandi hafi búið á heimili foreldra sinna. Aðspurður sagðist kærandi ekki hafa gögn til að sýna að hann hafi búið í húsnæði á vegum Gülen hreyfingarinnar þegar hann hafi verið í háskólanum, hann hafi ekki tekið nein svona gögn með sér þegar hann hafi flúið heimaríki. Hann hafi verið að reyna að bjarga sér og ekki hugsað um að taka gögn með sér. Þá hafi hús foreldra hans hrunið í jarðskjálfta og þar af leiðandi gæti hann ekki fundið nein slík gögn. Kærandi gæti heldur ekki framvísað afriti af úrskurði dómstóls um handtökuskipun á hendur honum. Kærandi greindi frá því að hafa fengið skriflega tilkynningu um að það hafi átt að handtaka hann árið 2020, hann hefði ekki afrit af tilkynningunni og að hún finnist ekki á netinu. Kærandi kvaðst enn vera eftirlýstur af tyrkneskum stjórnvöldum en gæti ekki framvísað neinum gögnum þess efnis. Spurður nánar út í störf sín fyrir dagblaðið Zaman greindi kærandi frá því að hafa ekki starfað hjá dagblaðinu heldur hafi hann verið áskrifandi af því. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi verið með spjallhópa á samskiptalforritinu WhatsApp. Meðlimir hópanna hafi hist í húsum á vegum Gülen hreyfingarinnar þar sem nemendur í háskólanum hafi einnig komið til að lesa um Gülen. Aðspurður um hvernig hann hafi getað ferðast á skilríki sínu frá Tyrklandi og aftur til baka í ágúst 2022 kvaðst kærandi aldrei hafa farið til Tyrklands, hann hafi farið til Bosníu. Kærandi kvaðst ekki hafa getað fengið útgefið vegabréf sjálfur vegna tengsla sinna við Gülen hreyfinguna. Kærandi hafi greitt mönnum sem hann hafi ekki þekkt fyrir að fá útgefið vegabréf. Kærandi greindi frá því að hafa sætt miklum fordómum sem kúrdískur alevi. Nágrannar hafi komið fram við hann eins og skít. Forseti Tyrklands hafi sagt að það mætti drepa aleva og homma. Kærandi kvað erfitt að vera alevi í Tyrklandi. Lögreglan hafi beitt hann og fleiri aleva ofbeldi og sprautað á þá piparúða. Þá megi alevar ekki hittast í hóp í Tyrklandi þá megi skjóta þá með byssu fyrir neðan mitti og á opinberum stöðum væru þeir settir aftarlega í raðir eftir þjónustu.

Hinn 30. ágúst 2023, eftir að ákvörðun Útlendingastofnunar lá fyrir og talsmaður hafði lagt fram kæru til kærunefndar fyrir hönd kæranda, sendi kærandi sjálfur frekari gögn í máli sínu til Útlendingastofnunar. Útlendingastofnun gerði talsmanni kæranda viðvart um framlagningu framangreindra gagna og sendi þau til talsmanns með öruggum rafrænum hætti samdægurs. Talsmaður lagði framangreind gögn hins vegar ekki fram hjá kærunefnd. Með tölvubréfi, dags. 18. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir framangreindum gögnum frá Útlendingastofnun.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 10. ágúst 2023. Greinargerð barst kærunefnd 19. júní 2024. Með tölvubréfi, dags. 20. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 26. júní 2024, bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá kæranda. Kærandi óskaði eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð vísar kærandi til greinagerðar sinna til Útlendingastofnunar hvað málavexti varðar. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé rúmlega þrítugur karlmaður sem hafi yfirgefið heimaríki 25. nóvember 2022. Ástæða flótta frá heimaríki hafi verið ofsóknir stjórnvalda gegn kæranda. Vegna tengsla kæranda við Gülen hreyfinguna hafi verið gefin út handtökuskipun á hendur honum. Kærandi hafi fengið upplýsingar um handtökuskipunina frá fjölskyldu sinni þar sem bróðir hans hafi verið í sömu stöðu. Kærandi sé ekki hluti eða meðlimur í stjórnmálaflokki og hafi ekki verið virkur meðlimur Gülen hreyfingarinnar síðan fyrir valdaránstilraunina 15. júlí 2016. Kærandi sé Alawite- Kúrdi og hafi upplifað mismunun í heimaríki vegna uppruna síns. Kærandi hafi verið útilokaður frá vinnumarkaði og orðið fyrir ofbeldi af hálfu lögreglu og fjöldamorð hafi verið framin gegn Alawite- Kúrdum á grundvelli uppruna þeirra. Að mati kæranda hafi Gülen hreyfingin komið Kúrdum til bjargar. Kærandi hafi hafið störf hjá hreyfingunni við að aðstoða þá sem minna mega sín. Um hafi verið að ræða húsnæðis- , matar- og annars konar nauðsynlega aðstoð við fátækt fólk og námsmenn. Síðar hafi kærandi farið að vinna við að leiðbeina fólki hvar hægt væri að fá aðstoð hjá hreyfingunni og hvetja fólk til að ganga til liðs við hreyfinguna. Þá hafi kærandi starfað við að gefa út fréttablöð fyrir félagið Zaman sem hafi verið í eigu Fethullah Gülen. Kærandi hafi verið með spjallhópa á samskiptaforritum og miðlum, s.s. eins og WhatsApp, til að tengja meðlimi hreyfingarinnar saman og upplýsa þá um hvar hægt væri að fá nauðsynlega aðstoð. Stjórnvöld hafi eytt hópunum á samskiptaforritum og miðlum sem kærandi hafi verið með. Eftir valdaránstilraun hafi líf Kúrda orðið mun verra. Stjórnvöld hafi fylgst náið með meðlimum Gülen hreyfingarinnar og handtekið af minnsta tilefni. Kærandi telji að handtökur hafi verið vegna tengsla þeirra við hreyfinguna. Enn í dag séu stjórnvöld að handtaka einstaklinga sem hafi tengst Gülen hreyfingunni. Kærandi hafi ekki verið í tengslum við hreyfinguna eftir valdaránstilraunina en hann eigi bankareikninga í banka í eigu Gülen hreyfingarinnar. Kærandi hafi misst fjölskyldu sína og húsnæði þeirra í jarðskjálftum í Tyrklandi í febrúar 2023. Kærandi hafi greint frá því í viðtali að eiga ekki við nein heilsufarsvandamál að stríða en taka þurfi tillit til þess að kærandi hafi verið nýbúinn að komast að miklum harmleik sem muni lita framtíð hans. Kærandi viti ekki hvað bíði hans í Tyrklandi ef hann yrði dæmdur til refsivistar en hann sé viss um að hann verði stimplaður föðurlandssvikari, stimpill sem muni fylgja honum allt hans líf.

Í greinargerð er vísað til niðurstöðu Útlendingastofnunar í máli kæranda og henni mótmælt. Kærandi telur að skort hafi á rökstuðning í niðurstöðu Útlendingastofnunar hvað varðar 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem ekki hafi verið fjallað um heimabæ kæranda. Í greinargerð er einnig vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Kærandi telji að gallar á málsmeðferð og niðurstöðu Útlendingastofnunar séu verulegir. Um sé að ræða brot á form- og efnisreglum laga um útlendinga sem og form- og efnisreglum stjórnsýsluréttarins, óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttarins auk þess sem málsmeðferðin hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að skort hafi á rökstuðning í niðurstöðu Útlendingastofnunar hvað varðar niðurstöðu um 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem ekki hafi verið fjallað um heimabæ kæranda í ákvörðun. Ógilda beri hina kærðu ákvörðun þar sem brotið hafi verið gegn málsmeðferðarreglum stjórnvalda þ.m.t. rannsóknarreglunni og reglunni um réttmætar væntingar borgara. Gallar á málsmeðferð og niðurstöðu Útlendingastofnunar séu að mati kæranda verulegir. Um sé að ræða brot á form- og efnisreglum útlendingalaga sem og form- og efnisreglum stjórnsýsluréttarins, óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttarins auk þess sem málsmeðferðin hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.

Fallast má á það með kæranda að skort hafi á umfjöllun Útlendingastofnunar um heimasvæði kæranda hvað varðar 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í ákvörðun stofnunarinnar. Eins og hér stendur sérstaklega á verður þó ekki séð að framangreindur annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Kærunefnd hefur með málsmeðferð sinni bætt úr umræddum annmarka og þykir því ekki ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar af þeim sökum. Að öðru leyti hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað tyrknesku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé tyrkneskur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Alevis in Türkiye (Minority Rights Group, June 2018);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Alevis (UK Home Office, ágúst 2017);
  • Country Policy and Information Note: Gülenist movement (UK Home Office, febrúar 2018);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Gulenists (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note – Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. September 2020);
  • Freedom in the World 2024 – Turkey (Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,9. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Report on the human rights situation covering 2022 – Türkiye (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, 6. desember 2019);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, Skoðað 27. júní 2024);
  • Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S. International Trade Administration. Sótt 27. júní 2024);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 27. júní 2024);
  • Who Are the Alevis in Turkey? (Britannica, https://www.britannica.com/story/who-are-the-alevis-in-turkey. Sótt 27. júní 2024);
  • World Report Turkey 2023 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples - Turkey: Kurds (Minority Rights Group International, júní 2018).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.

Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.

Samkvæmt skýrslu alþjóðlegs hóps um réttindi minnihluta (Minority Rights Group International) sé alevi hugtak sem sé notað yfir stóran hóp óhefðbundinna sjía-múslima. Alevar séu stærsti trúarlegi minnihlutinn í Tyrklandi. Formlega tilheyri alevar sjía-múslimum en grundvallarmunur sé á trúarlegri túlkun þeirra og annarra sjía-múslimasafnaða. Þá séu þeir einnig mjög frábrugðnir súnní múslimum í trúariðkun sinni og túlkun á íslömskum trúarbrögðum. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúarbrögð í Tyrklandi frá 2023 kemur fram að áætlaður íbúafjöldi í Tyrklandi sé um 83 milljónir. Samkvæmt tyrkneskum stjórnvöldum sé um 99% íbúa múslimar, þar með taldir alevar. Könnun hafi leitt í ljós að af 99% múslima séu um 4% alevar. Leiðtogar stofnana aleva áætli hins vegar að múslimskir alevar séu um 25 til 31% íbúa. Samkvæmt vefsíðu Britannica hafi forsetaframbjóðandinn og leiðtogi CHP flokksins, Kemal Kılıçdaroğlu, tilkynnt í apríl 2023 að hann sé alevi, en fram að þeim tíma hafi það verið skammarmark fyrir fjölda einstaklinga í Tyrklandi að vera alevi. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins um stöðu aleva í Tyrklandi frá 2017 kemur fram að í kjölfar dóms mannréttindadómstóls Evrópu árið 2015 hafi tyrknesk yfirvöld tilkynnt að bænahús aleva fái lagalega viðurkenningu en sú framkvæmd hafi ekki gengið eftir að fullu og aðeins tyrknesk stjórnvöld á ákveðnum svæðum hafi lýst því yfir að cemevi séu formleg bænahús. Samkvæmt skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 2023 mælir stjórnarskráin fyrir um kennslu trúarbragðafræði í almennum- og einkaskólum. Alevum sé sjaldan veitt undanþága frá því að sitja kennslustundir í trúarbragðafræði. Árið 2023 hafi tyrknesk yfirvöld lagt fram áætlun til Evrópuráðsins um fullnustu dóma mannréttindadómstólsins sem samfélag aleva hafi höfðað fyrir dómstólnum vegna trúarbragðafræðslu í skólum og stöðu bænahúsa aleva. Þá hafi ráðherranefnd Evrópuráðsins tekið málin til skoðunar og í kjölfarið hafi orðið jákvæðar breytingar á stöðu trúarlegra athafna aleva en ekki hafi verið gripið til neinna ráðstafana hvað varðar trúarbragðafræðslu í skólum. Ný ríkisstofnun í málefnum aleva hafi verið sett á fót með forsetatilskipun í nóvember 2022. Stofnunin eigi að halda utan um og fjalla um mál tyrkneskra aleva. Tilskipun viðurkenni þó ekki cemievi sem bænahús aleva. Stofnanir aleva hafi haldið mótmæli í fjölda borga og krafist lagalegra réttinda og viðurkenningu á bænahúsum aleva. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 verði Armenar, alevar og kristnir fyrir hatursorðræðu og mismunun og samkvæmt skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 2023 verði bænahús og trúarleiðtogar þeirra fyrir árásum. Árið 2022 hafi maður ráðist á aleva í bænahúsi þeirra, stungið starfsmenn hjá stofnun aleva og eyðilagt þrjá aðrar stofnanir aleva í Ankara. Árásarmaðurinn hafi verið handtekinn og dæmdur til fangelsisvistar. Þá hafi verið ráðist á leiðtoga aleva fyrir utan heimili hans í Istanbul. Yfirvöld og stjórnarandstaða hafi fordæmt árásirnar. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2017 kemur fram að almennt sé ekki hætta á ofsóknum gegn aleveum og þeim sé frjálst að stunda sína trú. Þrátt fyrir að alevar verði fyrir mismunun, t.d. hvað varðar fjármögnun bænahúsa þeirra og menntun, nái hún ekki því marki að teljast ofsóknir. Hætta á ofsóknum af hálfu annarra en yfirvalda sé tiltölulega lítil og í þeim tilvikum sem einstaklingar óttist ofsóknir af hálfu aðila ótengdum ríkinu hafi yfirvöld almennt vilja og getu til að veita fullnægjandi vernd.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og PKK hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi fram lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2023 um kúrdíska lýðræðisflokkinn (HDP flokkinn) í Tyrklandi kemur fram að flokkurinn og Verkamannaflokkur Kúrda (PKK) starfi að ólíkum markmiðum. HDP flokkurinn hafi verið stofnaður með það að markmiði að stuðla að réttindum Kúrda og annarra minnihlutahópa. PKK flokkurinn sé aftur á móti talinn hryðjuverkahópur af tyrkneskum yfirvöldum. PKK hafi upphaflega verið kúrdískur aðskilnaðarflokkur sem hafi haft það að markmiði að stofna sjálfstætt ríki Kúrda í suðausturhluta Tyrklands. HDP flokkurinn hafi neitað tengslum við PKK flokkinn og gefið sig út fyrir að berjast fyrir auknum réttindum Kúrda með friðsamlegum hætti. Þá kemur fram í skýrslunni að hryðjuverkalöggjöf landsins hafi verið beitt ítrekað á andstæðinga ríkisstjórnarinnar. Þá kveði tyrknesk lög á um að allir þeir sem smáni forseta landsins geti átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Meðlimir HDP flokksins sem vinni að mannréttindamálum eigi á hættu að vera handteknir og ákærðir fyrir brot gegn hryðjuverkalöggjöf landsins. Í skýrslunni kemur fram að upplýsingar bendi til þess að stjórnvöld kunni að líta svo á að þeir sem gagnrýni stjórnvöld eða öryggissveitir séu meðlimir í hryðjuverkasamtökum. Aðgerðarsinnar sem starfi innan raða HDP flokksins hafi margir hverjir hlotið refsingu án beinnar tengingar við ákveðinn glæp eða brot gegn lagaákvæðum. Frá árinu 2015 hafi tugþúsundir verið til rannsóknar af hálfu yfirvalda vegna meintra brota gegn hryðjuverkalögum landsins sem síðar hafi leitt til ákæru. Ættingjar meðlima HDP flokksins geti einnig átt á hættu afskipti yfirvalda sér í lagi ef fjölskyldumeðlimur er áberandi innan flokksins, hafi verið ákærður fyrir brot, ættingjar sýni áhuga á dómsmáli fjölskyldumeðlima sinna, geri pólitískar athugasemdir á samfélagsmiðlum eða mæti á pólitíska fundi. Það eitt og sér að vera meðlimur HDP flokksins geri það þó ekki að verkum að viðkomandi eigi á hættu afskipti yfirvalda. Aftur á móti aukist líkurnar með frekari þátttöku í starfi flokksins, s.s. með því að taka þátt í mótmælum, láta skoðun sína á stjórnvöldum opinberlega í ljós eða dreifa bæklingum fyrir flokkinn. Meðlimir HDP flokksins sem settir hafa verið í varðhald séu oft látnir lausir gegn því að viðkomandi veiti yfirvöldum í té upplýsingar um flokkinn. Jafnframt tíðkist að aðilar sem hafi verið handteknir og síðar sleppt séu áfram undir eftirliti yfirvalda.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í febrúar 2018 kemur fram að Fethullah Gülen hafi fæðst árið 1941 í norðausturhluta Tyrklands. Hann hafi komið fram á áttunda áratug síðustu aldar m.a. sem múslímskur predikari og talsmaður nútíma menntunar. Gülen hreyfingin (einnig kölluð FETÖ og Hizmet) sé ekki sérstakur stjórnmálaflokkur heldur frekar skipulagt samfélag þeirra sem fylgi Gülen. Hreyfingin aðgreini sig frá öðrum íslömskum hreyfingum með því að leggja áherslu á mikilvægi siðfræði í menntun, fjölmiðlum, viðskiptum og opinberu lífi. Hreyfingin samanstandi af fjölda fólks sem sett hafi á fót hundruð skóla, kennslumiðstöðva, sjúkrahúsa og hjálparstofnana. Samkvæmt skýrslunni megi rekja samband Fethullah Gülen og Erdogan forseta Tyrklands langt aftur en þeir hafi deilt sameiginlegri andstöðu við hersveitir Kemalista í Tyrklandi í mörg ár og haft það að sameiginlegu markmiði að koma flokknum frá völdum. Það hafi svo tekist með sigri AKP flokksins í kosningum árið 2007. Samband Erdogan og Gülen hafi farið versnandi í kjölfar kosninganna og hafi að endingu lokið árið 2013 þegar meðlimir Gülen hreyfingarinnar hafi rannsakað spillingu innan flokks Erdogan forseta og hafi m.a. dómarar hliðhollir Gülen hreyfingunni tekið fyrir kærur á hendur forsetanum fyrir spillingu. Þá hafi Gülen sjálfur gagnrýnt Erdogan fyrir meðhöndlun sína á mótmælum í Gezi garðinum árið 2013. Síðar það sama ár hafi Erdogan sagt Gülen og stuðningsmenn hans hafa reynt að koma ríkisstjórn sinni frá með spillingarrannsókn sem leitt hafi til afsagnar ráðherra AKP flokksins. Í kjölfarið hafi Erdogan forseti og flokkur hans skilgreint Gülen hreyfinguna sem hryðjuverkasamtök og pólitískar aðfarir gerðar að hinum ýmsu einstaklingum og stofnunum vegna gruns um tengsl við hreyfinguna, s.s. menntastofnunum, embættismönnum, dómurum og fjölmiðlum.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í október 2023 kemur fram að Gülen hreyfingin sé hópur af trúar-, mennta- og félagslegum stofnunum í Tyrklandi og öðrum löndum. Ríkisstjórn Tyrklands hafi haldið því fram að Gülen hreyfingin hafi staðið að baki valdaránstilrauninni 15. júlí 2016. Í kjölfar valdaránstilraunarinnar hafi stjórnvöld í Tyrklandi beint aðgerðum gegn einstaklingum og hópum sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna og hafi það m.a. leitt af sér að hundruð þúsunda einstaklinga hafi verið handteknir, og settir í gæsluvarðhald, yfir 117.000 sakfellingar undir hryðjuverkalögum landsins, brottrekstri um 130.000 ríkisstarfamanna, afturköllun um 230.000 vegabréfa, lokun fyrirtækja og stofnanna og eignarupptöku hjá þeim. Flestar handtökur hafi átt sér stað fyrstu tvö árin þegar neyðarástandi hafi verið lýst yfir í landinu, 21. júlí 2016 til 18. júlí 2018. Þá hafi hundruð einstaklinga verið handteknir og settir í gæsluvarðhald sem séu taldir tengjast hreyfingunni, t.d. fyrrum kennarar, hermenn og lögreglumenn, einstaklingar sem hafi aðstoðað fjölskyldur þar sem ættingi hafi verið fangelsaður vegna tengsla við hreyfinguna og einstaklingar sem hafa verið ásakaðir um að taka við og dreifa fjárhagsaðstoð sem stuðningsmenn hreyfingarinnar erlendis hafa veitt, frá miðju ári 2022 til ársins 2023. Þessar tölur eru þó settar fram með þeim fyrirvara að einstaklingar hafi einnig verið sakaðir um aðild að öðrum hryðjuverkahópum svo sem PKK. Mat á því hvort að einstaklingar þarfnist verndar vegna tengsla sinna eða meintra tengsla sinna við Gülen hreyfinguna ræðst af fjölda þátta og fara þarf fram einstaklingabundið mat í hverju máli fyrir sig. Við mat á því hvort að einstaklingur sem hafi tengsl eða meint tengsl við Gülen hreyfinguna eigi á hættu ofsóknir kemur til skoðunar hversu mikið eiginleg eða meint tengsl við hreyfinguna séu og hversu líklegt sé að yfirvöld hafi vitneskju um eða gætu hafa grun um tengsl einstaklinga við hreyfinguna. Þá þurfi að líta til þess hvort að einstaklingur hafi einhvern tímann verið handtekinn eða settur í varðhald og þá undir hvaða kringumstæðum sem og hvort að einstaklingur hafi verið ákærður, sakfelldur og dæmdur til refsingar eða hafi þurft að hlíta öðrum viðurlögum. Skoða þarf hvort að einstaklingur hafi átt í öðrum samskiptum við yfirvöld, sérstaklega hvað varðar ásakanir um tengsl þeirra við hreyfinguna, einkum skyldu til að hafa á sér kennivottorð og hvernig sú skylda tengist m.a. því að geta unnið, fá aðgang að heilbrigðis- og félagsþjónustu, skráningu á kjörskár, aðgengi að tyrkneskum dómstólum, aðgang að skólum og háskólum, að fá að eiga fasteign eða bíla og að fá síma og net. Þá skal litið til trúverðugra samskipta við tyrknesk yfirvöld eftir að einstaklingur yfirgaf heimaríki og starfsgreinar viðkomandi. Einkum skal skoða hvort um sé að ræða blaðamenn eða fjölmiðlamenn sem hafi birt neikvæða umfjöllun um yfirvöld, kennara í Gülen menntastofnunum, dómara og lögfræðinga, hermenn og lögreglumenn sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna, umsvif samfélagsmiðla reikninga viðkomandi og fjölda ferðalaga til Pennsylvaníu þar sem Fetullah Gülen sé búsettur. Aðrir þættir sem geta aukið hættu á ofsóknum séu m.a. notkun á ByLock smáforritinu, að vera í viðskiptum við Asya Bank, vera áskrifandi að Zaman dagblaðinu, eign á lesefni um Gülen, að hafa gengið í eða sent barn sitt í Gülen skóla, hafa verið meðlimur að eða hafa styrkt fjárhagslega samtök sem séu tengd Gülen hreyfingu og að eiga fjölskyldumeðlimi sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna. Tilteknar aðgerðir sem beinist gegn meðlimum Gülen hreyfingarinnar, s.s. missir atvinnu, nægja ekki einar og sér til þess að teljast ofsóknir eða til að uppfylla þröskuld undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Einstaklingur sem hefur ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna tengsla sinna eða meintra tengsla við hreyfinguna munu almennt ekki fá vernd frá yfirvöldum heimaríkis.

Samkvæmt 1. gr. tyrkneskra herlaga nr. 1111/1997 eru allir tyrkneskir karlmenn skyldugir til að gegna herþjónustu í samræmi við ákvæði laganna. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2023 um herskyldu í Tyrklandi kemur fram að herþjónusta sé skyldubundin fyrir tyrkneska karlmenn á aldrinum 20 til 41 árs í sex til tólf mánuði. Þeir sem sinni herskyldu séu einn mánuð í herþjálfun og séu síðan sendir til þjónustu og frekari þjálfunar og fái greitt fyrri uppihald þann tíma sem þeir sinni skyldunni. Nýliðar og einstaklingar sem ekki séu starfandi hermenn séu ekki sendir á átakasvæði eða í sérstakar aðgerðir gegn hryðjuverkum nema rík nauðsyn sé til, þar sem nóg sé um atvinnuhermenn til að sinna slíkum verkefnum. Eftir að hafa lokið eins mánaðar grunnþjálfun, hafi hermenn kost á að koma sér undan síðustu fimm mánuðum skyldubundinnar herþjónustu með því að greiða ákveðna peningaupphæð (í júlí 2023 var upphæðin 122.351 tyrknesk líra). Þeir sem hafi þegar hafið herþjónustu, komið sér undan herskyldu eða séu í felum geti ekki nýtt sér þennan valmöguleika. Þá séu sumir karlmenn undanþegnir skyldubundinni herþjónustu, svo sem vegna heilsufarsástæðna og öðrum geti verið heimilt að fresta herþjónustu vegna sérstakra aðstæðna, þar á meðal ef þeir séu að sækja sér framhaldsmenntun. Aðrar undanþágur frá herskyldu eru ekki heimilaðar, s.s vegna trúar eða sannfæringar. Samkvæmt ákvæðum herlaga liggi refsing við því að koma sér undan herskyldu (a-liður 1. mgr. 63. gr. laganna) og að yfirgefa stöðu sína í hernum (a-liður 1. mgr. 66. gr. laganna). Þeir sem gefi sig ekki fram við skráningarskrifstofur hersins séu sektaðir þann tíma sem yfirvöld telji aðilann vera að koma sér undan herskyldu. Sektirnar hækki í hlutfalli við fjölda þeirra ára sem aðili komi sér undan skyldunni. Þrátt fyrir að lögin heimili fangelsisrefsingu við því að koma sér undan herskyldu þá sé slíkri refsingu ekki beitt í framkvæmd. Þá kunni undanskot frá herskyldu að hafa aðrar afleiðingar í för með sér, s.s. að aðili sé skráður í eftirlitsgagnagrunn yfirvalda, geti ekki sótt um vegabréf, gift sig, opnað bankareikning, tekið þátt í kosningum eða gegnt opinberum störfum.

Í febrúar 2023 urðu tveir öflugir jarðskjálftar og margir eftirskjálftar í suðausturhluta Tyrklands. Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kemur fram að jarðskjálftarnir hafi valdið dauða tugþúsunda manna og leitt til víðtækrar eyðileggingar á opinberum og einkareknum innviðum, þar á meðal skólum og heilsugæslustöðvum. Hafi Evrópusambandið strax brugðist við og veitt umtalsverða neyðaraðstoð bæði með mannúðarstyrkjum og með aðstoð frá almannavarnarkerfi sambandsins. Í mars 2023 hafi Evrópusambandið í samvinnu við tyrknesk yfirvöld haldið alþjóðlega ráðstefnu til að afla fjár frá alþjóðasamfélaginu til að styðja við neyðaraðstoð og enduruppbyggingu á viðkomandi svæðum. Á ráðstefnunni hafi safnast meira en 6 milljarðar evra og sé uppbyggingarstarf hafið. Þá kemur fram í skýrslunni að þau héruð sem verst hafi orðið úti vegna skjálftanna hafi verið Kahramanmaraş, Hatay, Gaziantep, Malatya, Kilis, Osmaniye, Diyarbakir, Adana, Adıyaman og Sanliurfa þar sem flestir innflytjendur og flóttamenn landsins séu búsettir. Samkvæmt yfirlýsingu innanríkisráðherra hafi tæplega sjö þúsund útlendingar, aðallega Sýrlendingar, látið lífið vegna jarðskjálftanna.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænu lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almanntryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar og tæknifrjóvgun sé aðeins greitt að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi orðið fyrir mismunun, áreiti og ofbeldi af hálfu lögreglu og almennra borgara á grundvelli þess að hann sé Kúrdi og alevi. Kærandi byggir umsókn sína einnig á því að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna þess að hann hafi verið meðlimur í Gülen hreyfingunni og að hann sé eftirlýstur af tyrkneskum stjórnvöldum vegna þess.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera Kúrdi og alevi og hafa orðið fyrir mismunun og sætt ofbeldi af hálfu lögreglu vegna þess. Kærandi greindi einnig frá því að hafa verið meðlimur og starfað fyrir Gülen hreyfinguna fyrir valdaránstilraunina sem gerð hafi verið í Tyrklandi árið 2016. Dómstóll hafi gefið út handtökuskipun á hendur honum og hann sé eftirlýstur af yfirvöldum í heimaríki.

Kærandi lagði fram fjölda skjala við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun. Kærandi lagði fram skjöl sem hann kveður vera bankayfirlit frá Gülen bankanum Asya Bank og staðfestingu á útskrift kæranda úr háskóla. Þá lagði kærandi fram skjáskot af fréttamiðli þar sem fram koma nöfn brottrekinna starfsmanna skóla, skjáskot af frétt af tyrkneskum miðli, myndbönd frá jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi, mynd af lögreglumanni, mynd af kæranda úti að borða með fleiri einstaklingum, mynd af konu í bókabúð og mynd af einstaklingi í bókabúð sem virðist vera kærandi með grímu. Meðal gagna sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun var mynd af tölvuskjá með heimasíðu tyrkneskra stjórnvalda þar sem kærandi hefur fyllt út umsókn um húsnæðisaðstoð vegna jarðskjálfta og þar sem fram kemur að umsókn sé í skoðun, skjáskot af samfélagsmiðlum af látnu fólki undir teppum, skjáskot af því sem virðist vera staðfesting á dauða foreldar kæranda og staðfestingu á lögheimili kæranda í Tyrklandi.

Líkt og að framan hefur verið rakið var nokkuð misræmi í frásögn kæranda í viðtölum hans hjá Útlendingastofnun og hjá lögreglu. Einkum varðar misræmið tímalínu flótta kæranda frá heimaríki, tímasetningu starfa hans fyrir herinn auk misræmis er varðar störf hans fyrir Gülen hreyfinguna og hvernig hann hafi komist hingað til lands. Af þeirri ástæðu taldi kærunefnd ástæðu til þess að afla frekari upplýsinga frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 19. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kæranda m.a. um handtökuskipun á hendur kæranda og aðild hans að Gülen hreyfingu. Í svörum kæranda, sem bárust 26. júní 2024, greindi kærandi frá því að hafa orðið fyrir mismunun vegna tengsla sinna við hreyfinguna. Árið 2017 hafi kærandi fengið tveggja ára samning sem kennari í skóla en að hann hafi verið rekinn eftir eitt ár í starfi. Þá hafi hann ekki getað unnið hjá öðrum ríkisstofnunum. Kærandi greindi frá því að hafa verið með launareikning í Bank Asya sem hafi verið færður í FIBA Bank. Kærandi hafi lagt fram yfirlit yfir greiðslukortafærslur sína hjá Bank Asya. Kærandi greindi frá því að annars vegar árið 2020 og hins vegar árið 2021 hafi verið gefin út skipun um að hann ætti að mæta í skýrslutöku hjá yfirvöldum en ekki hafi verið gefin út handtökuskipun á hendur honum. Skjöl hvað þetta varðar hafi orðið eftir í húsnæði hans sem hafi orðið jarðskjálfta að bráð. Kærandi hafi fengið upplýsingar um boðun í skýrslutöku frá fjölskyldu sinni áður en þau hafi látist í jarðskjálftanum og að einungis þeim hafi borist umræddar upplýsingar. Kærandi greindi frá því að hafa yfirgefið Tyrkland í september 2021, hann hafi verið boðaður í skýrslutöku og hann hafi vitað að hann yrði handtekinn og því hafi hann yfirgefið heimaríki. Kærandi greindi frá því að stjórnvöld hafi ekki haft nægar upplýsingar í byrjun og því hafi þau boðað hann í skýrslutöku aftur vegna nýrra upplýsinga. Kærandi kvaðst ekki vita hvort hann þyrfti að mæta í skýrslutöku eða ekki ef hann sneri aftur til Tyrklands en hann væri hjálparlaus í heimaríki sínu þar sem hann hafi misst fjölskyldu sína. Kærandi greindi frá því að geta ekki lagt fram neinar upplýsingar um handtökuskipun eða um að hann sé eftirlýstur í Tyrklandi þar sem það hafi allt verið í húsinu sem hrundi í jarðskjálftanum. Kærandi kvaðst ekki geta greint frá upplýsingum um mótmæli sem hann hafi tekið þátt í vegna þess andlega álags sem hann hafi verið undir við að missa fjölskyldu sínu. Af svörum kæranda má þó ráða að þátttaka hans í mótmælum hafi verið vegna baráttu gegn því að loka bænahúsum aleva. Kærandi hafi orðið fyrir munnlegu áreiti og sprautað hafi verið á hann piparúða. Kærandi greindi frá því að hann muni ekki hvað hann hafi sagt í seinna viðtali hjá Útlendingastofnun um starf sitt og viðveru í tyrkneska hernum þar sem hann hafi þá nýlega verið búinn að missa fjölskyldu sína í jarðskjálftum. Aðspurður um misræmi í ártölum um störf sín í hernum greindi kærandi frá því að vegna aðstæðna árið 2020 þá hafi hann þurft að fara frá Tyrklandi í september 2020 þar sem hann hefði verið boðaður í skýrslutöku. Kærandi greindi frá því að hafa starfað í [...] og auk þess sem hann hafi starfað hjá menntamálastofnun í Tyrklandi árið 2018 við málefni tengd grunnskólum. Kærandi kvaðst einnig hafa starfað í bókhaldsdeild einkafyrirtækis þegar hann hafi yfirgefið heimaríki. Aðspurður um misræmi í svörum um hvenær kærandi hafi yfirgefið heimaríki kvaðst hann hafa flúið heimaríki í september 2020. Kærandi greindi frá því að hafa búið í húsnæði á vegum Gülen hreyfingarinnar árið 2016 þegar hann hafi verið háskólanemi. Hann hafi búið í húsnæði á vegum hreyfingarinnar vegna fjárhagsörðugleika og vegna þess að hann hafi þarfnast fjárhagsaðstoðar hreyfingarinnar. Kærandi greindi frá því það hafi verið starfmenn Gülen hreyfingarinnar sem hafi eytt út WhatsApp spjallgrúppum eftir valdaránstilraunina árið 2016. Kærandi kvaðst vera kúrdískur alevi og að hann hafi verið rekinn úr fjölmörgum störfum hjá einkareknum fyrirtækjum á árunum 2017-2018. Kærandi greindi frá því að hafa sent dánarvottorð fjölskyldu sinnar og staðfestingu á heimilisfangi sínu til talsmanns síns. Án frekari útskýringa greindi kærandi frá því að vegabréf sem hann hafi greitt ótilgreindum mönnum fyrir að útvega honum sé gilt og löglega útgefið vegabréf.

Kærunefnd telur fjölmargt í frásögn kæranda í viðtölum hjá Útlendingastofnun, í svörum til kærunefndar og í lögregluskýrslu draga úr trúverðugleika hennar einkum hvað varðar aðild kæranda að Gülen hreyfingunni, störf fyrir hana og aðgerðir stjórnvalda gegn kæranda vegna tengsla hans við hreyfinguna. Kærandi hefur annars vegar greint frá því að dómstóll hafi gefið út handtökuskipun á hendur honum og hins vegar að hann hafi verið boðaður í skýrslutöku hjá stjórnvöldum vegna aðildar og starfa hans fyrir Gülen hreyfinguna. Mikið misræmi er í frásögn kæranda um það hvenær handtökuskipun hafi verið gefin út sem og hvenær hann hafi verið boðaður í skýrslutöku, hvenær og hvernig hann hafi fengið vitneskju um framangreint. Þá kvaðst kærandi annars vegar hafa borist skriflegt bréf um handtökuskipun á hendur sér og hins vegar hafa fengið vitneskju um handtökuskipun eða boðun í skýrslutöku frá fjölskyldu sinni. Frásögn kæranda og svör hans til kærunefndar um hvaða mismunun og vandamál hafi komið upp í tengslum við aðild hans að Gülen hreyfingu bera m.a. með sér að kærandi hafi ekki getað fengið störf hjá ríkisstofnunum og að hann hafi verið rekinn úr kennarastarfi árið 2017. Kærandi greindi hins vegar einnig frá því að hafa starfað hjá menntastofnun í Tyrklandi árið 2018 og hafa verið í hernum á einhverjum árum eftir 2016. Kærandi greindi frá því að hafa haft umsjón með spjallhópum á samskiptaforritinu WhatsApp fyrir einstaklinga sem hafi komið og leitað aðstoðar í húsnæði á vegum Gülen hreyfingarinnar og að hann hafi veitt aðstoð til nemanda og bágstaddra. Kærandi greindi frá því að ríkið hafi lokað á spjallhópana og því hafi hann ekki getað lagt fram gögn um aðild sína að þessu starfi fyrir hreyfinguna. Í svörum til kærunefndar kvað kærandi það þó hafa verið starfsmenn Gülen hreyfingarinnar sem hafi starfað í húsunum á vegum hreyfingarinnar sem hafi búið til spjallhópana og eytt þeim eftir valdaránstilraunina í Tyrklandi árið 2016. Kærandi greindi einnig frá því að hafa fengið greiðslur fyrir starf sitt fyrir hreyfinguna á launareikning í Bank Asya. Við meðferð málsins lagði kærandi fram skjöl sem hann kveður vera yfirlit yfir færslur á greiðslukorti hans frá Bank Asya. Skjölin eru almenn Excel skjöl sem bera ekki með sér að vera formleg yfirlit útgefin af bankastofnun. Þá gefa þær hreyfingar á greiðslukorti kæranda sem fram koma á þessum skjölum engar vísbendingar um greiðslur sem honum eiga að hafa borist frá Gülen hreyfingunni fyrir störf hans. Kærandi greindi frá því í lögregluskýrslu að hafa verið foringi heimavistar í skóla. Nemendur hafi verið stuðningsmenn Gülen og þeir hafi verið að mótmæla. Stjórnvöld væru því á eftir honum í heimaríki. Svör kæranda til kærunefndar bera með sér að mótmæli sem hann hafi tekið þátt í á ótilgreindum tíma hafi tengst trúaruppruna hans sem aleva en ekki aðild hans að Gülen hreyfingu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, 25. apríl 2023, greindi kærandi frá því að hafa verið í tyrkneska hernum en töluverðs misræmis gætir í frásögn kæranda um tímasetningar varðandi hvenær hann hafi verið í hernum og ástæður þess að hann hafi hætt. Kærandi greindi annars vegar frá því að hafa verið rekinn úr hernum árið 2018 og hins vegar að hafa starfað í hernum í eitt og hálft ár á árunum 2019 og 2020. Fyrst hafi hann sinnt sex mánaða herskyldu og síðan hafi hann starfað sem hermaður í eitt ár. Kærandi kvað stjórnvöld hafa komist að því að hann hafi verið hluti af Gülen hreyfingunni eftir að hann hafi lokið herskyldu árið 2019. Þá hafi stjórnvöld farið að skoða kæranda og allt hafi sprungið árið 2020, þegar hann hafi starfað sem hermaður að herskyldu lokinni. Kærandi kvað þá í sama viðtali herskylduna hafa byrjað árið 2020. Töluvert misræmi er einnig í frásögn kæranda hvað varðar aðra hluta hennar, m.a. hvort hann hafi starfað fyrir eða einungis verið áskrifandi af blaðinu Zaman sem er í eigu Fethullah Gülen, um ferðamáta hans frá heimaríki til Íslands og hvenær hann hafi yfirgefið heimaríki sitt. Kærandi greindi frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun og hjá lögreglu að hann hafi farið frá heimaríki í september 2022, 25. nóvember 2022, 25. desember 2022 og 10. janúar 2023. Í svörum til kærunefndar kvaðst kærandi hins vegar hafa farið frá heimaríki í september 2020 þegar hann hafi lent í vandræðum í hernum. Kærandi greindi einnig frá því að hafa starfað í Tyrklandi eftir að hann hafi hætt í hernum. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki gefið fullnægjandi útskýringar á framangreindu misræmi í frásögn sinni. Er framangreint misræmi til þess fallið að draga verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda af ástæðu flótta hans frá heimaríki.

Kærandi greindi frá því að hafa hætt í Gülen hreyfingunni og ekki hafa verið virkur í starfi fyrir hana síðan fyrir valdaránstilraunina í Tyrklandi sem átti sér stað árið 2016. Kærandi hefur einnig greint frá því að hafa starfað í tyrkneska hernum eftir valdaránstilraunina. Að mati kærunefndar er ósennilegt að einstaklingur sem stjórnvöld hafi talið hafa tengsl við Gülen hreyfinguna hafi starfað í hernum. Sérstaklega er litið til þess að frásögn kæranda ber með sér að vandamál hans í hernum vegna aðildar kæranda að hreyfingunni eigi að hafa byrjað árið 2019. Þá hefur kærandi getað nálgast upplýsingar frá yfirvöldum í Tyrklandi hvað varðar dauða foreldra sinna og staðfestingu á lögheimili sínu í Tyrklandi auk þess sem kærandi hefur óskað eftir bótum vegna eyðileggingar á húsnæði hans og fjölskyldu hans hjá tyrkneskum yfirvöldum. Framangreint ber ekki með sér að kærandi eigi í útistöðum við yfirvöld í Tyrklandi eða að yfirvöld séu á eftir kæranda.

Í ljósi framangreinds trúverðugleikamats hefur kæranda ekki tekist að sýna fram á það með trúverðuglegum hætti að hann hafi verið meðlimur í Gülen hreyfingunni eða starfað fyrir hreyfinguna í Tyrklandi. Verður því ekki lagt til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi hafi verið meðlimur í Gülen hreyfingunni og starfað fyrir hana eða að yfirvöld hafi talið kæranda hafa tengsl við hreyfinguna. Þá verður ekki lagt til grundvallar að gefin hafi verið út handtökuskipun á hendur kæranda, að hann hafi verið boðaður í skýrslutöku vegna tengsla sinna við hreyfinguna eða að kærandi hafi sætt áreiti að einhverju öðru leyti af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila vegna tengsla hans eða meintra tengsla við Gülen hreyfinguna.

Kærandi ber fyrir sig að hafi orðið fyrir mismunun af hálfu almennings í Tyrklandi og mismunun og ofbeldi af hálfu stjórnvalda í Tyrklandi vegna þess að hann tilheyri minnihlutahópum Kúrda og aleva. Af framburði kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun og greinargerðum hans til Útlendingastofnunar, og kærunefndar, má ráða að hann og aðrir Kúrdar og alevar hafi orðið fyrir fordómum, mismunun og ofbeldi í heimaríki, svo sem af hálfu almennings og yfirvalda. Renna heimildir stoðum undir þann framburð kæranda og er ekki tilefni til að draga í efa að hann hafi orðið fyrir einhverju áreiti eða fordómum af hálfu yfirvalda og almennings í heimaríki. Kærandi hefur hins vegar ekki lýst neinu sem talist gæti til ofsókna gagnvart honum eða á annan hátt leitt að því líkur að tyrknesk yfirvöld beini sjónum sínum sérstaklega að honum eða hann sé á annan hátt í verri stöðu í heimaríki en aðrir einstaklingar sem aðhyllist sömu trúarbrögð eða séu af sama þjóðernisuppruna. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að Kúrdar og alevar kunni að eiga á hættu einhverja mismunun í heimaríki kæranda af þeirri ástæðu að þeir stundi trúarbrögðin eða tilheyri þjóðarbrotinu. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Líkt og áður hefur komið fram eru refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni eða trúarbrögðum. Þá geti einstaklingar er verði fyrir áreiti af hálfu aðila ótengdum ríkinu leitað til m.a. umboðsmanns og stofnunar mannréttinda og jafnréttismála (NHREI). Þó hlutleysi þeirra og skilvirkni hafi sætt gagnrýni verður ekki fallist á að Kúrdar né alevar sæti kerfisbundinni mismunun þar í landi eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1.mgr. 37. gr. laga um útlendinga eingöngu á grundvelli trúarbragða sinna eða þjóðarbrots síns. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki orðið fyrir eða eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í Tyrklandi sem nái því marki að teljast ofsóknir skv. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli trúarbragða sinna eða þjóðarbrots síns.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi telur að hann muni eiga á hættu að sæta meðferð í Tyrklandi sem tilgreind er í ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi verið meðlimur og stafað fyrir Gülen hreyfinguna og vegna þess að hann sé kúrdískur alevi.

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa búið í þorpinu […] í [...] héraði í Tyrklandi áður en hann yfirgaf heimaríki sitt. Með vísan í ofangreindra landaupplýsinga er [...] eitt af þeim héruðum sem verst hafi orðið úti vegna skjálftanna sem riðu yfir Tyrkland í febrúar 2023. Líkt og að framan er rakið brást tyrkneska ríkið, með aðstoð Evrópusambandsins, við afleiðingum þeim sem urðu af völdum jarðskjálftans sem reið yfir Tyrkland 6. febrúar 2023 og hefur hafið uppbyggingu á svæðinu. Þá hefur kærandi lagt fram skjáskot af umsókn sinni til Tyrkneskra yfirvalda um húsnæðisaðstoð vegna eyðileggingar á húsnæði hans og fjölskyldu hans í jarðskjálftunum sem bendir til þess að kærandi geti og hann telji sig geta fengið aðstoð tyrkneska ríkisins vegna eyðileggingar eftir jarðskjálftana. Með vísan til framangreindra heimilda er það mat kærunefndar að ástandið í heimaborg kæranda nái ekki því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, í heimaborg sinni, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Tyrklands.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Kærandi kvaðst vera heilsuhraustur. Kærandi greindi frá því að hafa misst foreldra sína og systkini í jarðskjálfta sem varð í Tyrklandi í febrúar 2023 og telji að líta verði til þess áfalls sem kærandi hafi orðið fyrir vegna þessa. Af framburði kæranda verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Af upplýsingum um heimaríki kæranda verður ekki annað ráðið en að kærandi muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki snúi hann til baka, m.a. sálfræðiþjónustu. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Líkt og áður greinir hefur kærandi greint frá því að hafa misst foreldra sína og systkini og að hús fjölskyldu hans, þar sem hann hafi verið búsettur, hafi eyðilagst í jarðskjálftanum sem varð í Tyrklandi í febrúar 2023. Líkt og að framan er rakið brást tyrkneska ríkið, með aðstoð Evrópusambandsins, við afleiðingum þeim sem urðu af völdum jarðskjálftans sem reið yfir Tyrkland 6. febrúar 2023 og hefur hafið uppbyggingu á svæðinu. Verður ekki séð af heimildum að aðstæður á heimasvæði kæranda séu slíkar að þær hafi verulegar afleiðingar fyrir félagslegar aðstæður hans. Af gögnum málsins má ráða að kærandi sé háskólamenntaður og hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 11. janúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki á Schengen-svæðinu. Kærandi kvað brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir gegn honum þar sem hann óttist að vera fangelsaður við komu til heimaríkis og að líf hann sé í hættu.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Valgerður María Sigurðardóttir


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir