11 júlí 2024

/

Úrskurður nr. 726/2024


Hinn 11. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 726/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24050166 og KNU24050167

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. maí 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir M) og [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir K) og barna þeirra [...]fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgarar Venesúela, um alþjóðlega vernd og brottvísa þeim frá landinu. Var kærendum gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærendur gera kröfu um að hinar kærða ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.

2 Málsmeðferð

Kærendur og börn þeirra lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. september 2023. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 29. apríl 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá kom A til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. maí 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Samkvæmt framburði kærenda hafi þau dvalið í Kólumbíu frá árinu 2017 til ársins 2022 og verið með dvalar- og atvinnuleyfi þar í landi. Útlendingastofnun ákvað 28. maí 2024 að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærendur hefðu slík tengsl við Kólumbíu að eðlilegt og sanngjarnt væri að þau dvelji þar, ferðist eða séu flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærendur yrðu send til Kólumbíu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum sama dag og barst nefndinni greinargerð kærenda 11. júní 2024 ásamt fylgigagni.

3 Málsástæður og rök kærenda

Farið hefur verið yfir greinargerð kærenda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kærenda er vísað til greinargerðar til Útlendingastofnunar hvað málavexti varðar. Kærendur vísa til þess að nýleg heilsufarsgögn beri með sér að M þjáist af [...]. Kærendur telji að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að leggja beri mat á hagsmuni barna þeirra með hliðsjón af viðkvæmni þeirra og fyrri reynslu. Börn teljist ávallt til viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og stjórnvöldum sé skylt að hafa það sem börnum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá vísa kærendur til 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Kærendur vísa til þess að heimildir beri með sér að aðstæður barna frá Venesúela í Kólumbíu séu bágar og fari versnandi. Vísa kærendur til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings. Kærendur telji að Útlendingastofnun hafi ekki tekið nægilegt tillit til framlagðra gagna hvað varðar aðstæður barnanna í Kólumbíu og telja að um brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga sé að ræða. Vísa kærendur til þess að þau hafi lagt fram myndir og gögn um einelti sem A hafi orðið fyrir.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þau hafi hvorki heimild til dvalar í Kólumbíu né vegabréfsáritun þar í landi. Kærendur árétta rannsóknarskyldu stjórnvalda í þessu samhengi. Kærendur vísa til þess að ekkert í viljayfirlýsingu löggjafans við lögfestingu d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga bendi til þess að stafliðnum hafi átt að beita um útrunnin dvalarleyfi eða vegabréfsáritun sem ekki sé til staðar. Kærendur telji sig ekki hafa réttindi í Kólumbíu en þau myndu aðeins hafa heimild til að dvelja þar í 90 daga sem ferðamenn. Kærendur telji að ekki hafi farið fram fullnægjandi rannsókn á dvalarheimild þeirra. M hafi dvalið í Kólumbíu umfram dvalarleyfi sitt og því verið synjað um endurnýjun vegna þessa. Þá hafi Útlendingastofnun ekki fjallað um hvort það geti haft áhrif á frekari ferðir hans inn í landið. Vísa kærendur til 10. gr. stjórnsýslulaga í þessu samhengi. Kærendur fjalla þá um leiðbeiningar Flóttamannastofnunar við mat á fyrsta griðlandi. Kærendur vísa til þess að beiting reglunnar sé háð því skilyrði að þriðja ríki taki við umsækjanda. Ekki liggi fyrir staðfesting frá kólumbískum stjórnvöldum sem staðfesti að þau muni taka við kærendum og börnum þeirra. Allt bendi til þess að ef þau myndu ferðast þangað og fara umfram 90 daga dvöl yrðu þau í ólögmætri dvöl.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Vísa kærendur til 32. gr. a og b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærendur vísa til þess að þau njóti engra réttinda í Kólumbíu og þau hafi orðið fyrir útlendingaandúð, tilraun til mannráns, alvarlegri mismunun, skort á lögregluvernd og útilokun frá heilbrigðiskerfinu. Kærendur geri athugasemd við landaupplýsingar í heild sinni í hinum kærðu ákvörðunum en þar sé byggt á umsvifum hjálparsamtaka sem aðstoði flóttafólk í Kólumbíu. Kærendur vísa til þess að aðstoð frá hjálparsamtökum jafngildi ekki raunverulegri og virkri vernd stjórnvalda líkt og kröfur Flóttamannasamningsins séu úr garði gerðar og bregðist ekki heldur við sérstökum aðstæðum kærenda með nægilegum hætti.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærendur vísa til þess að stjórnvöld séu bundin af grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement). Jafnframt myndi ákvörðun um endursendingu brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins. Þá sé ekki tryggt að kærendum verði ekki snúið til heimaríkis við komuna til Kólumbíu.

4 Umsókn um alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.

4.2 Aðstæður kærenda og barna þeirra

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur par á [...]sem stödd eru hér á landi ásamt tveimur börnum sínum sem eru [...]og [...]ára. Kærendur hafi komið til Kólumbíu árið 2017 og haft atvinnu- og dvalarleyfi þar í landi. Kærendur hafi dvalið í Kólumbíu til ársins 2022 og snúið aftur til heimaríkis. Kærendur hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 21. september 2023. Kærendur hafi haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Kólumbíu á meðan þau höfðu dvalarleyfi þar í landi. M greindi frá því að vegabréfsáritun hans hafi runnið út á meðan Covid-19 faraldurinn geisaði og hann hafi ekki getað endurnýjað vegabréfsáritun sína og því hafi atvinnuleyfi hans runnið út. Kærendur vilji ekki snúa aftur til Kólumbíu þar sem börnum þeirra hafi verið rænt af herskáum hóp að nafni Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia, (FARC) árið 2021 og haldið í gíslingu í átta daga. Kærendur hafi þurft að greiða lausnargjald til að fá börn sín aftur. Kærendur hafi lagt fram kæru en lögregluyfirvöld ekkert aðhafst í málinu. M greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en andleg heilsa hans væri slæm eftir atburði sem hann hafi upplifað í heimaríki og Kólumbíu. Samkvæmt framlögðum gögnum hafi M sótt tíma hjá sálfræðingi hér á landi. K greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en væri með [...]. K ætti í vandræðum með svefn og að hún væri með kvíða en hefði ekki fengið greiningu hjá lækni. Kærendur greindu frá því að börn þeirra væru almennt við góða heilsu en glími við [...]. Þá hefði þeir atburðir sem A og B hafi upplifað í Kólumbíu haft áhrif á andlega heilsu þeirra.

4.3 Réttarstaða barna kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kærendur og A hjá Útlendingastofnun. Gögn málsins bera ekki annað með sér en að A og B séu við góða heilsu og hafi góð tengsl við foreldra sína. Allt bendir til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða þeirra verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

4.4 Landaupplýsingar

Nefndin hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur nefndin jafnframt kynnt sér þær heimildir sem kærendur vísa til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • A B C Temporary Protection Status For Venezuelan Migrants (Migración – Ministerio De Relaciones Exteriores);
  • Adapting public policies in response to an unprecedented influx of refugees and migrants: Colombia case study of migration from Venezuela. Background paper to the World Development Report 2023: Migrants, Refugees, and Societies (The World Bank Group, apríl 2023);
  • Americas: Growing exodus of Venezuelans highlights failure of Colombia, Peru, Ecuador and Chile to comply with obligations (Amnesty International, 21. september 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 - Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Contributions of the Center for Law, Justice, and Society (Dejusticia) to the questionnaire on how to expand and diversify regularization mechanisms and programs to enhance the protection of the human rights of migrants (OHCHR, 15. febrúar 2023);
  • Freedom in the World 2023 – Colombia (Freedom House, mars 2023);
  • Heimasíða kólumbískra stjórnvalda(http://www.gov.co);
  • Heimasíða utanríkisráðuneytis Kólumbíu (https://www.cancilleria.gov.co/);
  • The World Factbook – Colombia (CIA);
  • Vefsíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna - Colombia (https://help.unhcr.org/colombia);
  • Vefsíða InSight Crime (https://insightcrime.org/colombia-organized-crime-news/farc-profile/);
  • World Development Report 2023: Migrants, Refugees and Societies (The World Bank Group, apríl 2023) og
  • World Report 2023 – Colombia (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi í Suður-Ameríku og í landinu búa tæplega 50 milljónir. Kólumbía gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum árið 1945. Kólumbía fullgilti alþjóðasamning gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð árið 1987 og fullgilti alþjóðasamninga um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna árið 1961. Kólumbía er aðili að Cartagena yfirlýsingunni og mannréttindasáttmála Ameríku.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 eiga stjórnvöld í Kólumbíu í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og önnur mannréttindasamtök er varðar aðstoð m.a. við umsækjendur um alþjóðlega vernd og fólk á flótta. Landslög kveði á um veitingu alþjóðlegrar verndar. Til viðbótar hafi stjórnvöld komið á kerfi sem veiti flóttafólki langtímavernd. Þrátt fyrir að einstaklingum hafi boðist að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd í Kólumbíu hafi stór hluti fremur óskað eftir réttarstöðu tímabundinnar verndar í landinu. Á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að einstaklingar frá Venesúela geti lagt fram umsókn um tímabundna vernd (ETPV) í Kólumbíu sem er lagaráðstöfun sem komið var á fót fyrir innflytjendur frá Venesúela. Tímabundin vernd feli í sér tíu ára verndarstöðu og réttindi til löglegrar búsetu í Kólumbíu auk aðgangs að atvinnumarkaði, heilbrigðisþjónustu, lífeyriskerfinu og menntun. Einstaklingar með tímabundna vernd njóti grundvallarréttinda. Þeim sé jafnframt heimil stofnun bankareikninga og fjárhagslegar millifærslur. Þá veiti tímabundin vernd leyfi til þess að ferðast innanlands og til og frá landinu í allt að 180 daga í senn. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Kólumbíu sé unnt að afturkalla tímabundna vernd ef handhafi hefur brotið gegn kólumbískum lögum eða lögum um innflytjendur eftir að hafa verið veitt vernd, útlendingayfirvöld í Kólumbíu telji viðveru útlendings í landinu óviðeigandi eða þegar handhafi hefur verið utan yfirráðasvæðis Kólumbíu lengur en 180 daga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að spilling í opinberu starfi sé refsiverð og að stjórnvöld framfylgi lögunum með fullnægjandi hætti en þó hafi verið dæmi um að starfsmenn hafi komist upp með spillingu án refsingar. Fram kemur að ríkisstjórnin þar í landi hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst uppvísir að mannréttindabrotum. Lög í Kólumbíu leggi bann við mismunun í starfi vegna kynþáttar, húðlitar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, þjóðernisuppruna, ríkisborgararéttar, sjúkdóms eða félagslegrar stöðu. Þá sé kveðið á um jafnræði í kólumbískum lögum.

Á vefsíðu Flóttamannastofnunar kemur fram að öllum börnum sem stödd séu innan kólumbísks yfirráðasvæðis sé tryggður réttur til menntunar, óháð þjóðerni eða stöðu. Menntun sé aðgengileg öllum til 18 ára aldurs.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er glæpahópurinn Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia, (FARC) ofbeldisfullur andófsmannahópur sem starfi innan Kólumbíu. FARC hafi verið viðriðin kaup og sölu á eiturlyfjum auk eiturlyfjasmygls. Hópurinn hafi tekið þátt í fjölmörgum vopnuðum átökum við kólumbísk yfirvöld og önnur glæpasamtök. Glæpahópurinn starfi aðallega í suður- og norðausturhluta Kólumbíu auk þess sem einhverjir meðlimir hafi tengsl við Venesúela. Hópurinn sé þekktur fyrir vopnaðar líkamsárásir, morð, fjárkúganir og gíslatökur. Hópurinn beini árásum sínum að mestu að stjórnvöldum í Kólumbíu og hernaðarlegum skotmörkum en hafi þó einnig ráðist á almenna borgara og innviði ríkisins.

4.5 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að

nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.

Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.

Samkvæmt framburði kærenda hafi þau komið til Kólumbíu árið 2017 og dvalið þar í um fimm ár. Kærendur hafi haft dvalar- og atvinnuleyfi þar í landi sem þau hafi þurft að endurnýja. Kærendur hafi haft heimild til stunda atvinnu í Kólumbíu. Af framangreindri umfjöllun um aðstæður í Kólumbíu verður ekki annað ráðið en að kærendur hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að þau hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærendur geti ekki öðlast heimild til dvalar að nýju í viðtökuríki. Kærendur, sem ríkisborgarar Venesúela, eru undanþegnir kröfu um vegabréfsáritun til að ferðast til Kólumbíu. Verður því að telja að kærendur hafi möguleika á að sjá sér farborða með löglegum hætti og geti leitað aðstoðar yfirvalda verði brotið á rétti þeirra. Kærendur vísa til þess í greinargerð sinni að ekki hafi farið fram fullnægjandi rannsókn á dvalarheimild þeirra í Kólumbíu. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við ákvarðanir Útlendingastofnunar hvað þetta verðar og er því ekki um að ræða brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærendur hafa borið fyrir sig að börnum þeirra hafa verið rænt af glæpahópnum FARC og þau þurft að greiða lausnargjald til að fá þau til baka árið 2021. M hafi greint frá því að hann telji sig vera mögulegt skotmark glæpahópsins vegna starfa hans sem verkfræðingur, en hann telji að samtökin álíti að þekking hans og reynsla sem verkfræðingur geti nýst hópnum við eiturlyfjaframleiðslu.

Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um viðtökuríki telur kærunefnd að ekki sé hægt að útiloka að börnum kærenda hafi verið rænt af glæpahópnum FARC. Af frásögn kærenda verður ráðið að umrætt rán hafi ekki haft frekari eftirmála fyrir fjölskylduna eða að þeim hafi borist hótanir frá meðlimum FARC eða stjórnvöldum. Verður ekki talið að framangreindur atburður sem kærendur hafi lýst nái því markmiði að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Jafnframt bendi framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé virk og að kærendur geti leitað til hennar telji þau þörf á því. Samkvæmt framburði kærenda hafi þau lagt fram kæru hjá lögreglu vegna framangreinds atburðar. Samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki teljast kærendur ekki hafa ástæðu til að óttast ofsóknir í Kólumbíu, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að þau séu í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Nefndin hefur við framangreint mat m.a. litið til þess að stjórnvöld í Kólumbíu eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Kólumbíu aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærendur geti leitað til hennar telji þau þörf á því. Falla því aðstæður kærenda og barna þeirra í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Engar lögformlegar hindranir eru á því að kærendur geti ferðist til Kólumbíu. Verða umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki teknar til efnismeðferðar. Teljast kærendur því hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að þau dvelji þar, ferðist eða séu flutt þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kærenda er því mótmælt að ekki þurfi að liggja fyrir samskipti við viðkomandi móttökuríki.

Samkvæmt orðalagi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki gerð krafa um öflun samþykkis viðtökuríkis til að endursending þangað sé heimil. Í gildistíð þágildandi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga var túlkun kærunefndar á þá leið að gilt dvalarleyfi væri forsenda beitingar ákvæðisins með þeim fyrirvara að kærandi hefði ekki sjálfur afturkallað dvalarleyfi sitt. Þá var það jafnframt túlkun nefndarinnar á þágildandi a-lið ákvæðisins að samþykki viðtökuríkis þyrfti ekki, sbr. orðalag þess. Með framangreindum breytingarlögum var lögfest fyrrgreint ákvæði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ekki leiðir af orðalagi d-liðar að samþykki frá viðtökuríki þurfi að liggja fyrir. Er því ekki um að ræða brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

4.6 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Kærendur eru par um [...]sem stödd eru hér á landi ásamt tveimur börnum sínum sem eru [...]og [...]ára. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða líkamlega heilsu en andleg heilsa hans væri slæm eftir atburði sem hann hafi upplifað í heimaríki og Kólumbíu. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. til 30. október 2023, kemur m.a. fram að M taki inn [...] eftir þörfum en hann þurfi endurnýjun þessara lyfja. M hafi greint frá [...] sem tengist því en hann fái skyndilega þvaglátsþörf. M vakni 2-3 sinnum á nóttu og líði eins og þvagblaðra tæmi sig ekki að fullu. M hafi fengið tíma hjá heimilislækni á Göngudeild sóttvarna. M fái stundum verki og bólgu í vinstri úlnlið eftir árás sem hann hafi orðið fyrir. Við skoðun á Göngudeild sóttvarna hafi M ekki verið með bankeymsli eða eymsli yfir nýrum. M hafi farið í þvagprufu og óskað hafi verið eftir þvagrannsókn. Þvagræktun hafi komið eðlilega út. M hafi verið ráðlagt að stunda hreyfingu og slaka á. Í samskiptaseðli sálfræðings á Göngudeild sóttvarna, dags. 5. júní 2024, kemur m.a. fram að sjálfsmatslistar sem lagðir hafi verið fyrir M hafi leitt í ljós [...]. M hafi greint frá því að fá endurteknar martraðir og endurupplifanir frá fortíðinni. K greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en að hún væri með [...]. K ætti í vandræðum með svefn og að hún væri með kvíða en hefði ekki fengið greiningu hjá lækni. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. til 5. október 2023, kemur fram að K sé með [...]. K hafi greint frá því að vera heilsuhraust. K sé með [...] og noti innúðalyf eftir þörfum en hún finni fyrir auknum astmaeinkennum eftir komuna til Íslands. K hafi fengið endurnýjun á astmalyfi.

Kærendur greindu frá því að börn þeirra væru almennt við góða heilsu en glími við [...]. Þá hefði þeir atburðir sem A og B hafi upplifað í Kólumbíu haft áhrif á andlega heilsu þeirra. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. til 30. október 2023, kemur fram að A hafi fengið viðeigandi bólusetningar hér á landi. A sé með [...] og noti innúðalyf. A hafi fengið útbrot og ráðlagt að taka inn ofnæmislyf en þau ekki virkað. A hafi farið til nýrnalæknis þegar hún var 7 ára og henni sagt að hún væri að [...] og hún tekið inn lyf vegna þessa. Þá hafi A verið í eftirliti hjá bæklunarskurðlækni í heimaríki vegna beinabyggingar á fótleggjum en [...]. A hafi verið ráðlagt að nota innlegg og hún verið í sjúkraþjálfun þar til fyrir þremur árum. A finni fyrir verkjum í hnjám, sérstaklega þegar hún labbi mikið eða geri æfingar. A hafi þá fengið endurnýjun á astmalyfi. A hafi jafnframt skilað inn þvagprufu og verið send í blóðprufu auk þess sem tilvísun hafi verið gerð til sjúkraþjálfara. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. til 5. október 2023, kemur fram að B sé með [...] og noti innúðalyf. Þá hafi B fengið viðeigandi bólusetningar hér á landi. Jafnframt hafi B fengið endurnýjun á astmalyfi. Samkvæmt niðurstöðum úr blóð- og þvagprufu hafi kalk verið í jafnvægi og hún ekki í þörf fyrir nánari skoðun að svo stöddu.

Í málunum liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 5. og 9. október 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram á kærendum og börnum þeirra í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Kærendur hafa einnig lagt fram myndir af áverkum á M og A og B.

Kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 29. apríl 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 28. maí 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd með greinargerð kærenda. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kærenda og barna þeirra nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kærenda og barna þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kærenda sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kærenda og barna þeirra er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Kólumbíu verður ráðið að kærendur hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá greindu kærendur frá því að hafa verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki en hafa þurft að greiða fyrir hana. Verður því að líta svo á að aðstæður kærenda og barna þeirra tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kærenda og barna þeirra ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærendur hafa greint frá því að óttast glæpahópinn FARC í viðtökuríki sem hafi rænt börnum þeirra og þau hafi þurft að greiða lausnargjald til að fá þau til baka. Þá greindu kærendur frá því að hafa mætt fordómum vegna þjóðernis síns í Kólumbíu. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún geti vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærendur haft atvinnu á meðan þau dvöldu í Kólumbíu.

Vegna umfjöllun kærenda í greinargerð um sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga áréttar kærunefnd að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.

Í 5. til 8. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir í 1. málsl. 5. mgr. ákvæðisins:

Við mat á því hvort Útlendingastofnun sé heimilt að taka mál barns til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skulu hagsmunir barns hafðir að leiðarljósi.

Þá segir í niðurlagi 8. mgr. ákvæðisins að við mat á hagsmunum barns beri að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Samkvæmt framangreindum heimildum kveða lög í viðtökuríki á um að öll börn þar í landi eigi rétt á skyldubundinni menntun til 18 ára aldurs án endurgjalds. Samkvæmt framangreindum upplýsingum sem nefndin hefur kynnt sér hafa börn kærenda jafnframt aðgang að heilbrigðiskerfinu í viðtökuríki. Samkvæmt framburði kærenda hafi börn þeirra gengið í skóla og haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í viðtökuríki.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í í Kólumbíu samrýmist flutningur fjölskyldunnar til Kólumbíu hagsmunum þeirra þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert sem gefur tilefni til að ætla að kærendur og börn þeirra muni aðskiljast, sbr. niðurlag 8. gr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds verða umsóknir barna kærenda ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli framangreindra sérviðmiða um börn og ungmenni í reglugerð um útlendinga enda er það í samræmi við réttindi og hagsmuni þeirra.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra verða umsóknir þeirra ekki teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun 29. apríl 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærendur og börn þeirra lögðu fram umsóknir sínar um alþjóðlega vernd hér á landi 21. september 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verða umsóknir kærenda og barna þeirra ekki teknar til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

4.7 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Gögn málsins bera með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Gögnin benda jafnframt til þess að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kærenda og barna þeirra til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Meðal annars er til þess að líta að Kólumbía er aðili að Cartagena yfirlýsingunni, þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement), og mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra, hefur ekki verið sýnt fram á að þau eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verða umsóknir kærenda og barna þeirra ekki teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

5 Brottvísun og endurkomubann

5.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.

5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 21. september 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Kærendum var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærendur greindu frá því að hafa engin tengsl innan Schengen-svæðisins. Þá greindi M frá því að um ósanngjarna ráðstöfun væri að ræða þar sem hann þyrfti að snúa aftur til staðar þar sem líf þeirra væri í hættu. K greindi frá því að hún teldi slíkt ekki vera ósanngjarna ráðstöfun ef um væri að ræða lögin í landinu. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kærenda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kærenda í Kólumbíu telst brottvísun þeirra frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan þess frests.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.

6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir

Gunnar Páll Baldvinsson