12 júlí 2024

/

Úrskurður nr. 757/2024


Hinn 12. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 757/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23120036

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. desember 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. desember 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. desember 2022.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 21. febrúar 2023 og 6. mars 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þar greindi kærandi frá því að vera uppalinn í [...] á landsvæði Gedo í Sómalíu. Kærandi hafi sett á laggirnar knattspyrnustarfsemi í [...] umdæmi árið 2021 og hafi í kjölfarið borist hótanir frá hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab. Al-Shabaab hafi m.a. frelsissvipt kæranda og föður hans en kærandi hafi komist undan. Kærandi sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu samtakanna.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. desember 2023. Greinargerð barst kærunefnd 27. desember 2023 ásamt fylgiskjölum.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa greinargerðina frekar.

4 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.

Samkvæmt tölvubréfum sem kærunefnd barst frá Útlendingastofnun 5. og 8. júlí 2024 er kærandi skráður horfinn en hann hafi látið sig hverfa úr búsetuúrræði á vegum Vinnumálastofnunar 25. mars 2024. Með vísan til þess hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda 5. júlí 2024 og greindi honum frá því að nefndinni hafi borist upplýsingar um að kærandi væri skráður horfinn og eftirlýstur. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi og ef svo væri var talsmanni veittur frestur til að leggja fram staðfestingu á því. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd samdægurs kom fram að talsmaður viti ekki hvar kærandi sé niðurkominn. Talsmaður kæranda hafði jafnframt áður greint frá því í tölvubréfi til kærunefndar, dags. 26. júní 2024, að hann hafi ekki heyrt frá kæranda um nokkurt skeið. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi verður, með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að kærandi hafi yfirgefið landið.

Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.


Úrskurðarorð:

Kæru kæranda er vísað frá.

The Appeal is dismissed.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Valgerður María Sigurðardóttir

varaformaður