27 júlí 2024

/

Nr. 701/2024 Úrskurður

Hinn 27. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 701/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010075

 

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. janúar 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. janúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. desember 2022. Kvaðst kærandi hafa farið frá Sómalíu 2. febrúar 2022 til Eþíópíu, síðan til Grikklands, Frakklands og loks til Íslands. Kærandi hafi ferðast þessa leið með aðstoð smyglara. Kærandi hafi talið að hann væri á Írlandi og kvaðst engin tengsl hafa við Ísland. Kærandi kvaðst vera heilsuhraustur og eiga eiginkonu í heimaríki.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. mars 2023 ásamt löglærðum talsmanni. Þar greindi kærandi frá því að fæddur og uppalinn í Geed Weyne á landsvæði Gedo í Suður-Sómalíu. Kærandi kvaðst hafa verið verslunareigandi í heimaríki og að hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab hafi tekið allan hagnaðinn af söluvarningi hans. Kærandi hafi lent í deilum við ótilgreindan aðila á vegum samtakanna sem hafi leitt til þess að lögregla handtók aðilann. Í kjölfarið hafi kærandi verið beittur ofbeldi og kveikt hafi verið í verslun hans. Kærandi hafi flúið til Mógadisjú þar sem hann hafi dvalið í einn og hálfan mánuð áður en hann yfirgaf heimaríki sitt. Eftir að kærandi flúði hafi Al-Shabaab beitt systur kæranda ofbeldi og hótað kæranda símleiðis.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 22. janúar 2024. Greinargerð barst kærunefnd 5. febrúar 2024. Þá bárust frekari upplýsingar frá kæranda 24. júní 2024.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa greinargerðina frekar.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.

Samkvæmt tölvubréfi sem kærunefnd barst frá Útlendingastofnun 13. júní 2024 var kærandi skráður horfinn og eftirlýstur frá og með 29. febrúar 2024. Með vísan til þess hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda 24. júní 2024 og greindi honum frá því að nefndinni hafi borist upplýsingar um að kærandi væri skráður horfinn og eftirlýstur. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi og ef svo væri var talsmanni veittur frestur til að leggja fram staðfestingu á því. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd sama dag kom fram að talsmaður vissi ekki hvar umbjóðandi hans væri staddur og að umbjóðandi hans hafi ekki svarað ítrekuðum skilaboðum frá talsmanni þrátt fyrir að talsmaður hafi gert honum grein fyrir því hvaða afleyðingar það gæti haft í för með sér. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi verður, með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að kærandi hafi yfirgefið landið.

Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.

 

Úrskurðarorð:

Kæru kæranda er vísað frá.

The Appeal is dismissed.

 

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga, 

 

Valgerður María Sigurðardóttir

varaformaður