22 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 822/2024


Hinn 22. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 822/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030138

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. mars 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa henni frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Jafnframt krefst kærandi þess að endurkomubann samkvæmt 101. gr. laga um útlendinga verði fellt úr gildi. Þá er gerð krafa um að kæra fresti réttaráhrifum.

Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga frestar kæra réttaráhrifum.

2 Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 29. október 2023. Kærandi kom m.a. til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. mars 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi fyrst komið til Kólumbíu árið 2018 og dvalið þar í um tíu mánuði þar til hún snéri aftur til heimaríkis. Kærandi hafi farið aftur til Kólumbíu árið 2021 og dvalið þar í nokkra mánuði. Kærandi hafi verið með tímabundið dvalarleyfi þar í landi sem nú sé runnið út. Útlendingastofnun ákvað 22. mars 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði slík tengsl við Kólumbíu að eðlilegt og sanngjarnt væri að hún dveldi þar, ferðaðist eða yrði flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði send til Kólumbíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 4. apríl 2024 ásamt fylgigagni.

3 Greinargerð til kærunefndar

Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi dvalið í Kólumbíu undanfarin ár en hún hafi ekki réttarstöðu flóttamanns þar í landi. Kærandi hafi ekki fengið viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Kólumbíu eða mannúðaraðstoð og þá hafi hún ekki getað stundað atvinnu í Kólumbíu, m.a. vegna veikinda sinna. Kærandi hafi upplifað öryggisleysi og streitu auk þess sem hún hafi ekki getað séð fyrir sér þar í landi. Hún hafi orðið fyrir ítrekuðu ofbeldi af hálfu mágs síns sem glími við vímuefna- og áfengisvanda og hún hafi ekki fengið aðstoð lögreglu í Kólumbíu. Kærandi hafi upplifað fordóma vegna þjóðernis síns. Kærandi sé samkynhneigð og telji sig því tilheyra minnihlutahóp í heimaríki og Kólumbíu. Hún hafi greinst með [...] í heimaríki árið 2009 og undirgengist lyfjameðferð, geislameðferð og opna heilaskurðaðgerð. Í kjölfarið hafi hún glímt við [...] og taki inn lyf vegna þess og vegna [...]. Kærandi hafi ekki fengið greiningu vegna andlegrar heilsu sinnar í heimaríki eða Kólumbíu. Í fyrirliggjandi heilsufarsgögnum komi fram að kærandi sé í sjálfsvígshættu. Telur kærandi að aðstæður í Kólumbíu séu með þeim hætti að hún óttist ofsóknir, m.a. vegna þjóðernis síns og hún geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda enda hafi yfirvöld þar í landi ekki veitt henni nauðsynlega vernd. Kærandi telji öryggi sínu ógnað í Kólumbíu og að enga aðstoð sé þar að fá til að hún eigi möguleika á mannsæmandi lífi.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem ekki sé sanngjarnt að hún dvelji í Kólumbíu. Jafnframt telji kærandi skilyrði ákvæðisins um að hún þurfi ekki að sæta ofsóknum þar í landi ekki vera uppfyllt og telur sig ekki geta sótt um alþjóðlega vernd. Kærandi vísar til þess að ákvæðið kveði einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja umsækjendum um alþjóðlega vernd um efnismeðferð, en ekki skyldu. Kærandi vísar jafnframt til þess að ekkert formlegt samstarf sé á milli íslenskra yfirvalda og yfirvalda í Kólumbíu hvað varði meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og því sé ekki rétt að beita ákvæðinu í máli hennar. Kærandi vísar til þess að dvalarleyfi hennar í Kólumbíu hafi aðeins verið tímabundið og sé nú fallið úr gildi.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna þar sem sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna þar sem hún standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 42. gr. laganna og. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, í Kólumbíu. Kærandi telji ljóst að hún sæti ofsóknum og ofbeldi í Kólumbíu og að grundvallarmannréttindi hennar séu ekki tryggð þar í landi. Þá geti hún ekki leitað aðstoðar hjá yfirvöldum.

Kærandi telur að viðunandi málsmeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd í Kólumbíu auk aðstoðar í umsóknarferlinu sé ekki tryggð. Kærandi telji öryggi sínu ógnað í Kólumbíu og að engin aðstoð fáist þar til að lifa mannsæmandi lífi. Enn fremur telji kærandi nauðsynlegt að mál hennar verði að fullu rannsakað áður en ákvörðun verði tekin þannig að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir um þær aðstæður sem bíði hennar í Kólumbíu verði henni gert að snúa þangað aftur, einkum með tilliti til þess hvort hún eigi raunverulega möguleika á að fá viðunandi heilbrigðisþjónustu og leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd.

Þá gerir kærandi þá kröfu að endurkomubann hennar samkvæmt 101. gr. laga um útlendinga verði fellt úr gildi enda sé það sérstaklega ósanngjarnt gagnvart henni. Þá skorti rökstuðning fyrir endurkomubanni kæranda í ákvörðun Útlendingastofnunar.

4 Umsókn um alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.

4.2 Aðstæður kæranda

Kærandi er einstæð kona á [...]. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi fyrst komið til Kólumbíu árið 2018 og dvalið þar í um tíu mánuði þar til hún snéri aftur til heimaríkis. Hún hafi farið aftur til Kólumbíu árið 2021 og dvalið þar í nokkra mánuði. Kærandi hafi verið með tímabundið dvalarleyfi þar í landi sem hafi verið í gildi til 30. maí 2031 sem hún hafi afturkallað 11. september 2023. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 29. október 2023. Kærandi hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu eða mannúðaraðstoð í Kólumbíu. Hún hafi þó fengið nauðsynleg lyf þar í landi. Kærandi hafi einnig átt erfitt með að fá atvinnu vegna veikinda sinna. Kærandi hafi orðið fyrir mismunun og fordómum vegna þjóðernis síns þar í landi. Jafnframt óttist kærandi mág sinn sem búsettur sé þar í landi en hann glími með vímuefna- og áfengisvanda. Hún telji sig ekki getað leitað til lögreglunnar í Kólumbíu vegna framangreinds. Kærandi greindi frá því að vera hraust og sterk en glíma við andleg vandamál í kjölfar illkynja æxlis sem hafi verið fjarlægt í heimaríki árið 2009. Kærandi taki inn lyf vegna [...] auk lyfs við [...]. Kærandi greindi frá því að vera samkynhneigð.

4.3 Landaupplýsingar

Lagt hefur verið mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • A B C Temporary Protection Status For Venezuelan Migrants (Migración – Ministerio De Relaciones Exteriores);
  • Adapting public policies in response to an unprecedented influx of refugees and migrants: Colombia case study of migration from Venezuela. Background paper to the World Development Report 2023: Migrants, Refugees, and Societies (The World Bank Group, apríl 2023);
  • Americas: Growing exodus of Venezuelans highlights failure of Colombia, Peru, Ecuador and Chile to comply with obligations (Amnesty International, 21. september 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 - Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Contributions of the Center for Law, Justice, and Society (Dejusticia) to the questionnaire on how to expand and diversify regularization mechanisms and programs to enhance the protection of the human rights of migrants (OHCHR, 15. febrúar 2023);
  • Freedom in the World 2023 – Colombia (Freedom House, mars 2023);
  • Heimasíða kólumbískra stjórnvalda(http://www.gov.co);
  • Heimasíða utanríkisráðuneytis Kólumbíu (https://www.cancilleria.gov.co/);
  • The World Factbook – Colombia (CIA);
  • Vefsíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna - Colombia (https://help.unhcr.org/colombia);
  • World Development Report 2023: Migrants, Refugees and Societies (The World Bank Group, apríl 2023) og
  • World Report 2024 – Colombia (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi í Suður-Ameríku og í landinu búa tæplega 50 milljónir. Kólumbía gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum árið 1945. Kólumbía fullgilti alþjóðasamning gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð árið 1987 og fullgilti alþjóðasamninga um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna árið 1961. Kólumbía er aðili að Cartagena yfirlýsingunni og mannréttindasáttmála Ameríku.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 eiga stjórnvöld í Kólumbíu í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og önnur mannréttindasamtök er varðar aðstoð m.a. við umsækjendur um alþjóðlega vernd og fólk á flótta. Landslög kveði á um veitingu alþjóðlegrar verndar. Til viðbótar hafi stjórnvöld komið á kerfi sem veiti flóttafólki langtímavernd. Þrátt fyrir að einstaklingum hafi boðist að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd í Kólumbíu hafi stór hluti fremur óskað eftir réttarstöðu tímabundinnar verndar í landinu. Á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að einstaklingar frá Venesúela geti lagt fram umsókn um tímabundna vernd (ETPV) í Kólumbíu sem er lagaráðstöfun sem komið var á fót fyrir innflytjendur frá Venesúela. Tímabundin vernd feli í sér tíu ára verndarstöðu og réttindi til löglegrar búsetu í Kólumbíu auk aðgangs að atvinnumarkaði, heilbrigðisþjónustu, lífeyriskerfinu og menntun. Einstaklingar með tímabundna vernd njóti grundvallarréttinda. Þeim sé jafnframt heimil stofnun bankareikninga og fjárhagslegar millifærslur. Þá veiti tímabundin vernd leyfi til þess að ferðast innanlands og til og frá landinu í allt að 180 daga í senn. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Kólumbíu sé unnt að afturkalla tímabundna vernd ef handhafi hefur brotið gegn kólumbískum lögum eða lögum um innflytjendur eftir að hafa verið veitt vernd, útlendingayfirvöld í Kólumbíu telji viðveru útlendings í landinu óviðeigandi eða þegar handhafi hefur verið utan yfirráðasvæðis Kólumbíu lengur en 180 daga.

Í skýrslu Alþjóðabankans frá árinu 2023, um stöðu innflytjenda og flóttamanna um allan heim, kemur fram að öll börn sem hafi fæðst í Kólumbíu frá 19. ágúst 2015, og seinna, og eigi foreldra með venesúelskt ríkisfang hafi fengið kólumbískan ríkisborgararétt þar sem þau hafi annars átt á hættu að verða ríkisfangslaus. Í maí 2022 höfðu rúmlega 78.000 börn venesúelskra foreldra fengið kólumbískan ríkisborgararétt. Jafnframt eigi börn sem séu fædd í Kólumbíu og eigi erlenda foreldra, sem hafi verið í löglegri dvöl í landinu við fæðingu barnsins, rétt á kólumbísku ríkisfangi. Á heimasíðu utanríkisráðuneytis Kólumbíu er að finna upplýsingar um heimild foreldra kólumbískra ríkisborgara til að dvelja í ríkinu á grundvelli vegabréfsáritana til dvalar, en handhafar slíkra áritana hafa heimild til ótímabundinnar dvalar í Kólumbíu í samræmi við þau skilyrði sem sett eru fram í reglum um vegabréfsáritanir. Áður en foreldri getur öðlast ótímabundið leyfi til dvalar verður það að hafa dvalið í Kólumbíu á tímabundnu dvalarleyfi í a.m.k. tvö ár. Að þessum tveimur árum liðnum getur foreldri lagt fram umsókn um ótímabundna heimild til dvalar og ríkisborgararétt tveimur árum eftir það, en að liðnu einu ári sé foreldri ríkisborgari ríkis í Suður-Ameríku. Dvelji foreldri utan Kólumbíu samfleytt í eitt ár eða meira á meðan það er ekki komið með ríkisborgararétt kemur rof í umsóknarferlið. Ekki er þó nauðsynlegt að sækjast eftir ríkisborgararétti þar sem ótímabundið leyfi til dvalar gildir í fimm ár í senn og hægt að endurnýja það ótakmarkað. Handhafi ótímabundins dvalarleyfis getur dvalið utan ríkisins í allt að tvö ár án þess að það hafi áhrif á stöðu viðkomandi í Kólumbíu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að spilling í opinberu starfi sé refsiverð og að stjórnvöld framfylgi lögunum með fullnægjandi hætti en þó hafi verið dæmi um að starfsmenn hafi komist upp með spillingu án refsingar. Fram kemur að ríkisstjórnin þar í landi hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst uppvísir að mannréttindabrotum. Lög í Kólumbíu leggi bann við mismunun í starfi vegna kynþáttar, húðlitar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, þjóðernisuppruna, ríkisborgararéttar, sjúkdóms eða félagslegrar stöðu. Þá sé kveðið á um jafnræði í kólumbískum lögum. Þá sé jafnframt lagt bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum nægilega vel og þá sérstaklega hvað varði transfólk. Lögin viðurkenni LGBTQI+ pör og fjölskyldur þeirra og veiti þeim jafnan rétt.

4.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að

nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.

Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi fyrst komið til Kólumbíu árið 2018 og dvalið þar í um tíu mánuði þar til hún snéri aftur til heimaríkis. Kærandi hafi farið aftur til Kólumbíu árið 2021 og dvalið þar í nokkra mánuði. Kærandi hafi verið með tímabundið dvalarleyfi þar í landi sem hafi verið í gildi til 30. maí 2031 en hún hafi óskað niðurfellingar þess 11. september 2023.

Af framangreindri umfjöllun um aðstæður í Kólumbíu verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi átt þess kost að óska eftir tímabundinni eða alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að hún hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi jafnframt verið handhafi dvalarleyfis þar í landi og í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað hún stjórnvöld í Kólumbíu veita tímabundna vernd. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi geti ekki öðlast heimild til dvalar að nýju í viðtökuríki. Þá er kærandi, sem ríkisborgari Venesúela, undanþegin kröfu um vegabréfsáritun til að ferðast til Kólumbíu. Verður að telja að kærandi hafi möguleika á að sjá sér farborða með löglegum hætti og geti leitað aðstoðar yfirvalda verði brotið á rétti hennar.

Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir fordómum á grundvelli þjóðernis síns í viðtökuríki. Þá óttist kærandi mág sinn sem glími við vímuefna- og áfengisvanda. Verður ekki talið að málsástæður kæranda nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki telst kærandi ekki hafa ástæðu til að óttast ofsóknir í Kólumbíu, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að hún sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Litið hefur verið til þess að stjórnvöld í Kólumbíu eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Kólumbíu aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærandi geti leitað til hennar telji hún þörf á því. Falla því aðstæður kæranda í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og verður umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki tekin til efnismeðferðar. Telst kærandi því hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hún dvelji þar, ferðist eða sé flutt þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda er vísað til þess að lög um útlendinga feli í sér heimild en ekki skyldu til að synja umsókn um efnismeðferð og senda einstaklinga úr landi. Í eftirfarandi umfjöllun hefur verið lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Tekið skal fram að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.

Í greinargerð kæranda er vísað til þess að ekkert formlegt samstarf sé á milli íslenskra yfirvalda og yfirvalda í Kólumbíu hvað varði meðferð umsókn um alþjóðlega vernd og því sé ekki rétt að beita framangreindu ákvæði í máli hennar. Samkvæmt orðalagi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki gerð krafa um öflun samþykkis viðtökuríkis til að endursending þangað sé heimil. Í gildistíð þágildandi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga var túlkun kærunefndar á þá leið að gilt dvalarleyfi væri forsenda beitingar ákvæðisins með þeim fyrirvara að kærandi hefði ekki sjálfur afturkallað dvalarleyfi sitt. Þá var það jafnframt túlkun nefndarinnar á þágildandi a-lið ákvæðisins að samþykki viðtökuríkis þyrfti ekki, sbr. orðalag þess. Með framangreindum breytingarlögum var lögfest fyrrgreint ákvæði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ekki leiðir af orðalagi d-liðar að samþykki frá viðtökuríki þurfi að liggja fyrir.

Samkvæmt framlögðum gögnum málsins óskaði kærandi niðurfellingar dvalarleyfis síns í Kólumbíu. Kærandi getur lagt fram umsókn um dvalarleyfi að nýju þar í landi þrátt fyrir að hafa óskað eftir niðurfellingu á dvalarleyfi sínu. Þrátt fyrir að kærandi hafi farið fram á það við yfirvöld í Kólumbíu að dvalarleyfi hennar yrði fellt úr gildi, og hafi þar með afsalað sér dvalarrétti sínum þar í landi, leiðir það hvorki til þess að umsókn hennar skuli hljóta efnismeðferð hér á landi á þeim grundvelli né að kærandi geti með þeirri háttsemi öðlast frekari rétt hér á landi. Þá gefa gögn málsins til kynna að hún geti átt í samskiptum við yfirvöld í Kólumbíu og styður það þá niðurstöðu um að hún eigi kost á því að leggja fram umsókn um dvalarleyfi að nýju.

4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Kærandi er einstæð kona á [...]. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera hraust og sterk en glíma við andleg vandamál í kjölfar illkynja æxlis sem hafi verið fjarlægt í heimaríki árið 2009. Kærandi taki inn lyf vegna [...] auk lyfs við [...]. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 7. nóvember 2023 til 25. janúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi sé með flogasögu og [...]. Þá hafi kærandi greint frá því að fá krampa en að lyfin hjálpi sér. Kærandi finni fyrir málstoli og eigi erfitt með að finna réttu orðin. Kærandi hafi einnig fundið fyrir brjóstsviða og bakflæði og fengið ávísað lyfi vegna þess. Þá hafi kærandi fengið krem vegna kláða á brjóstum. Í samskiptaseðlum frá taugalækningum, dags. 6. til 21. nóvember 2023, kemur m.a. fram að kærandi hafi komið á bráðamóttöku vegna krampa. Framkvæmd hafi verið tölvusneiðmynd af heila en engar bráðar breytingar fundist. Jafnframt hafi verið framkvæmd segulómun af höfði en sú rannsókn ekki leitt í ljós bráðar breytingar eða æxli. Kærandi hafi útskrifast, fengið lyfseðil sem duga ætti fyrir 300 daga og henni ráðlagt að taka lyfin inn reglulega sem hún hafi ekki verið að gera. Í komunótu bráðalækninga, dags. 24. nóvember 2023, kemur m.a. fram að kærandi hafi nýverið verið útskrifuð af taugadeild en leiti nú til bráðamóttöku vegna sama vandmáls. Þegar tekin hafi verið saga af kæranda hafi vaknað grunur um að hún væri að lýsa ofsakvíðakasti. Ekki hafi verið talin þörf á innlögn á taugalækningadeild. Grunur hafi verið um sálfélagslegan vanda og hún þurfi aðstoð við að komast í betra úrræði. Félagsráðgjafi þurfi að líta á hennar mál. Kærandi hafi fengið með sér lyf við [...] og [...]. Í komunótu frá bráðalækningum, dags. 2. til 3. janúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað þangað vegna krampa. Kærandi hafi greint frá þreytu og að henni líði illa í höfðinu sem hún hafi tengt við flogalyfin en skammturinn hafi nýverið verið hækkaður. Skammtur af flogaveikislyfi hafi verið lækkaður og henni ráðlagt að taka inn lyfið reglulega í tveimur skömmtum á dag. Í komunótu frá Slysa- og bráðamóttöku, dags. 9. janúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað þangað vegna krampa og floga. Kærandi hafi einnig ofandað sem hafi bent til kvíðakasts. Kærandi hafi verið útskrifuð þar sem blóðprufa og taugaskoðun hafi komið eðlilega út. Kærandi sé í þörf fyrir eftirfylgni og ráðlagt að leita til bráðaþjónustu geðsviðs vegna nánari skoðunar. Í göngudeildarskrá Geðlækninga, dags. 15. janúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað þangað vegna þunglyndis, svefnvanda, [...] og sjálfsvígshugsana. Kærandi hafi greint frá því að hafa glímt við [...] frá árinu 2021 en andleg veikindi hafi byrjað eftir að hún hafi greinst með [...]. Kærandi hafi í tvígang gert sjálfsvígstilraunir. Kærandi hafi verið metin í krónískri sjálfsvígshættu vegna stöðu sinnar sem umsækjanda um alþjóðlega vernd og óvissu um framtíðina. Kærandi hafi verið bent á að fá tíma hjá Domus og að athuga með félagsleg úrræði. Kærandi hafi fengið með sér svefnlyf. Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. febrúar 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið örvingluð og talað um dauðann. Kærandi taki inn lyf vegna [...] en upplifi kvíðaköst og vanlíðan auk þess sem hún finni fyrir stöðugum ótta við að fá krampa. Kærandi hafi samþykkt að taka inn lyf við [...] samhliða áður ávísuðu lyfi auk þess sem hún taki inn kvíðastillandi lyf. Í meðferðarseðli frá bráðalækningum, dags. 1. mars 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað þangað vegna meðvitundaskerðingar og floga. Kæranda hafi verið ráðlagt að taka inn áður ávísuð lyf og leita til heilsugæslunnar fyrir frekari eftirfylgni. Í komunótu sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna, dags. 4. mars 2024, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið stjörf til augnanna og verið óstöðug á fótum. Kærandi hafi lýst auknum [...] yfirleitt með tuttugu daga millibili en þau hafi áður verið með átta mánaða millibili. Mögulega valdi streita tíðari köstum að mati læknis.

Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 8. mars 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 22. mars 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Kærandi greindi frá því að hún hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Kólumbíu verður ráðið að umsækjendur um tímabundna og alþjóðlega vernd hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir fordómum í Kólumbíu vegna þjóðernis síns auk þess sem hún óttist mág sinn sem glími við vímuefna- og áfengisvanda. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hennar ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 8. mars 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að hún hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 29. október 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Gögn málsins bera með sér að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til þess að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Meðal annars er til þess að líta að Kólumbía er aðili að Cartagena yfirlýsingunni, þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement), og mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að hún verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hún eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

5 Brottvísun og endurkomubann

5.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.

5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 29. október 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi m.a. frá því að hafa ekki tengsl við önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi greindi frá því að una þeirri niðurstöðu sem tekin yrði í máli hennar og að ekki væri um óréttláta ráðstöfun að ræða. Í greinargerð kæranda er gerð sú krafa að endurkomubann hennar verði fellt úr gildi enda ósanngjarnt, án þess þó að rökstyðja hana frekar. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda í Kólumbíu telst brottvísun hennar frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan þess frests.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.

6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir

Sandra Hlíf Ocares