22 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 824/2024


Hinn 22. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 824/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24060035 og KNU24060036

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. júní 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir M) og [...], fd. [...], ríkisborga Venesúela (hér eftir K), um alþjóðlega vernd og brottvísa þeim frá landinu. Var kærendum gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærendur gera kröfu um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.

2 Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 22. október 2023. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 30. apríl 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Í viðtali greindu kærendur frá því að hafa dvalið í Perú á árunum 2018 til 2023 og hafa verið með dvalarleyfi þar í landi sem þau hafi þurft að endurnýja árlega. M hefur framvísað dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 2. janúar 2024 og K með gildistíma til 30. október 2023. Útlendingastofnun ákvað 6. júní 2024 að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærendur hefðu slík tengsl við Perú að eðlilegt og sanngjarnt væri að þau dveldu þar, ferðuðust eða yrðu flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærendur yrðu send til Perú. Ákvörðunin var birt fyrir kærendum sama dag og barst greinargerð kærenda 21. júní 2024 ásamt fylgigögnum.

3 Greinargerð til kærunefndar

Farið hefur verið yfir greinargerð kærenda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Kærendur hafi yfirgefið heimaríki og farið til Perú. Í Perú hafi þeim ekki verið tryggð nauðsynleg heilbrigðisþjónusta sem hafi m.a. haft í för með sér að K missti fóstur árið 2019. Kærendur hafi jafnframt ekki haft aðgang að félagslegri aðstoð í Perú. Kærendur hafi orðið fyrir útlendingahatri vegna þjóðernis síns og orðið fyrir áreiti frá almenningi. Kærendur óttist almennt ofbeldi og glæpagengi í Perú en þau hafi verið fjárkúguð af glæpagenginu [...]. Dvalarleyfi kærenda í Perú séu ekki lengur í gildi og hafi þau lagt fram gögn því til sönnunar. Kærendur telji sig ekki eiga möguleika á að endurnýja dvalarleyfin og ekki sé hægt að fá varanlegt dvalarleyfi án þess að hafa fasta atvinnu sem þau hafi ekki haft. Kærendur geti ekki ferðast til Perú þar sem þau hafi ekki dvalarleyfi í gildi.

Kærendur gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir, m.a. þegar komi að túlkun Útlendingastofnunar á d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að þrátt fyrir að ekki standi berum orðum í ákvæðinu að ekki sé gert skilyrði að fyrir liggi samskipti við viðkomandi móttökuríki eða staðfesting á því að umsækjandi hafi gilda heimild til dvalar, séu engar forsendur til að sú krafa sé ekki lengur gerð líkt og fyrir gildistöku laga nr. 14/2023. Vísa kærendur til sjónarmiða sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi sett fram um fyrsta griðland. Þá vísa kærendur til þess að ekkert liggi fyrir um það að kærendur geti ferðast til Perú, en þau hafi enga heimild til að dvelja þar í landi. Útlendingastofnun geti þ.a.l. ekki lagt til grundvallar að engar lögformlegar hindranir séu á því að kærendur geti snúið sjálfviljug aftur til Perú. Hvergi í hinum kærðu ákvörðunum fjalli Útlendingastofnun um það hvort raunhæfur möguleiki sé fyrir kærendur til að ferðast til Perú. Íslensk stjórnvöld geti ekki sett kærendur í þá stöðu að synja þeim um efnismeðferð sem feli í sér brottvísun og endurkomubann ef kærendur geti ekki ferðast til Perú. Kærendur vísi til þess að óhjákvæmilegt sé að gera þá kröfu að Útlendingastofnun fullvissi sig um að umsækjendur geti ferðast til þess ríkis sem mat samkvæmt d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga taki til. Þá vísa kærendur til þess að Útlendingastofnun hafi ekki aflað upplýsinga um stöðu kærenda hjá perúskum stjórnvöldum og telja að þau geti ekki verið látin bera hallan af skorti á sönnun sem kunni að leiða af því.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laganna. Kærendur fjalla um beitingu a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir gildistöku laga nr. 14/2023. Kærendur vísa til þess að þau hafi hvorki heimild til dvalar í Perú né eigi þau raunhæfa möguleika á að ferðast þangað. Þau dvalarleyfi sem þau hafi haft séu fallin úr gildi. Heimildir beri með sér að ríkisborgarar Venesúela þurfi vegabréfsáritun til Perú til að ferðast þangað. Jafnframt geti handhafar varanlegs dvalarleyfis ekki endurnýjað það nema í eigin persónu innan landamæra Perú. Því geti kærendur ekki ferðast til Perú og dvalið þar löglega. Kærendur telji ekki sanngjarnt og eðlilegt að endursenda þau til Perú og vísa til þess að þau séu flóttamenn vegna aðstæðna sinna í heimaríki. Kærendur telji að Perú uppfylli ekki skilyrði 38. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/32/ESB, um lágmarkskröfur til málsmeðferðar í aðildarríkum við veitingu og afturköllun á stöðu flóttamanns. Kærendur vísa jafnframt til umsagnar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2008 um reglugerð 2005/85/EC þar sem fram komi ýmis sjónarmið stofnunarinnar um regluna um fyrsta griðland. Þar komi m.a. fram að geta móttökuríkis til að veita virka vernd í raun skuli tekin til skoðunar, sérstaklega ef móttökuríkið sé þegar með mikinn fjölda flóttamanna, en mestur fjöldi flóttafólks frá Venesúela sé í Perú af löndum Suður-Ameríku. Yfirvöld í Perú hafi m.a. brugðist við þessu með því að herða innflytjendalöggjöf og framkvæma ólögmætar brottvísanir.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Kærendur fjalla um reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærendur hafi greint frá því að hafa orðið fyrir ofbeldi og fjárkúgunum af hálfu glæpagengja, útlendingahatri vegna uppruna þeirra, mismunun og skort á þjónustu, m.a. heilbrigðisþjónustu sem hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir þau. Frásagnir kærenda fái stoð í heimildum um stöðu fólks frá Venesúela í Perú. Kærendur fjalla um aðstæður ríkisborgara Venesúela í Perú og vísa til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings. Kærendur byggja á því að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í Perú og að staða þeirri verði verulega síðri en staða almennings í landinu.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna þar sem endursending til Perú myndi fela í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga sem fjalli um grundvallaregluna um bann við endursendingu (non-refoulement). Með vísan til frásagna kærenda og heimilda sem þau hafi vísað til um stöðu venesúelskra innflytjenda í Perú telja kærendur að líf þeirra og frelsi sé í hættu. Með vísan til heimilda um hótanir og framkvæmd yfirvalda í Perú um að brottvísa fólki frá Venesúela sem dvelji þar í landi byggja á kærendur á því að ekki sé tryggt að þau verði ekki endursend til heimaríkis.

4 Umsókn um alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.

4.2 Aðstæður kærenda

Kærendur eru par á [...]. Samkvæmt framburði kærenda hafi þau verið búsett í Perú á árunum 2018 til 2023 og haft dvalarleyfi þar í landi sem þau hafi þurft að endurnýja árlega. Kærendur hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 22. október 2023. Kærendur telji sig ekki geta endurnýjað dvalarleyfi sín í Perú. Jafnframt hafi þau orðið fyrir fordómum og mismunun vegna þjóðernis síns þar í landi. Kærendur óttist nafngreint glæpagengi sem hafi fjárkúgað þau í Perú. Kærendur greindu frá því að hafa lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Perú en ekki fengið svar við umsóknum sínum. Kærendur hafi rekið sölubás með skyndibita í Perú auk þess sem K hafi um tíma unnið við þrif og á veitingastað. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera með [...] og [...] en hún taki [...] að staðaldri. Þá hafi K [...]. K hafi óskað eftir tíma hjá sálfræðingi en hún finni m.a. fyrir [...]. M greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en andleg heilsa hans væri ekki góð, hann væri m.a. leiður vegna fósturmissis sem þau hafi upplifað og aðskilnaðar við fjölskyldu sína.

4.3 Landaupplýsingar

Lagt hefur verið mat á aðstæður í Perú, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur mat verið lagt á þær heimildir sem kærendur vísa til í greinargerð sinni.

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Peru (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Peru (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • A/HRC/46/35/Add.2: Visit to Peru - Report of the Special Rapporteur on the situation of human rights defenders, Michel Forst (OHCHR, 22. desember 2020);
  • Amnesty International Report 2022/23 - Peru (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
  • Freedom in the World 2022 – Peru (Freedom House, 24. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Peru (Freedom House, mars 2023);
  • Healthcare Resource Guide – Peru (International Trade Administration);
  • Heimasíða perúskra stjórnvalda, upplýsingar um SIS kerfið (https://www.gob.pe/131-seguro-integral-de-salud-sis-gratuito);
  • Primary Health Care Systems (PRIMASYS), Case study from Peru (World Health Organization, 6. janúar 2017);
  • Peru: Refugees in Peru face impossible deadline (Amnesty International, 6. nóvember 2023);
  • The World Factbook – Peru (https://www.cia.gov/the-world-factbook/countries/peru, síðast uppfært 13. mars 2024);
  • Vefsíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/peru/solicitando-la-condicion-de-refugiado/como-solicitar-la-condicion-de-refugiado/);
  • Vefsíða stjórnvalda í Perú (https://www.gob.pe/);
  • Vefsíða Amnesty International, Peru: Refugees in Peru risk mass expulsions (https://www.amnesty.org/en/documents/amr46/7417/2023/en/) og
  • World Report 2024 – Peru (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Perú er lýðveldi í Suður-Ameríku og í landinu búa um 33 milljónir manna. Árið 1956 gerðist Perú aðili að Sameinuðu þjóðunum. Árið 1978 gerðist ríkið aðili að bæði alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Perú gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1988 og samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1982. Þá gerðist Perú aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 21. desember 1964 og mannréttindasáttmála Ameríku 28. júlí 1978. Þá fullgilti Perú barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1990.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að stjórnvöld í Perú eigi í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og önnur mannréttindasamtök er varðar aðstoð við m.a. umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meira en 1,5 milljónir innflytjenda séu búsettir í Perú en ríkisborgarar Venesúela séu þar langstærsti hlutinn. Jafnframt sé kveðið á um veitingu alþjóðlegrar verndar eða stöðu flóttamanns í lögum í Perú auk þess sem að stjórnvöld hafi komið á fót kerfi til að veita flóttamönnum vernd. Þá kemur fram að frá september 2023 hafi perúsk stjórnvöld byrjað að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd tímabundna vernd á meðan þeir bíði eftir niðurstöðu umsókna sinna. Venesúelskum ríkisborgurum hafi jafnframt verið veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á meðan umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hafi verið til meðferðar. Á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að hægt sé að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá landamæraeftirliti eða á vefsíðu utanríkisráðuneytisins í Perú. Þá hafi umsækjendur um alþjóðlega vernd aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun og heimild til að stunda atvinnu í Perú á meðan beðið sé eftir niðurstöðu. Á vefsíðu mannréttindasamtakanna Amnesty International frá 6. nóvember 2023, kemur fram að frá og með 10. nóvember 2023 hafi ríkisborgarar Venesúela ekki getað óskað eftir tímabundinni vernd í Perú.

Á vefsíðu stjórnvalda í Perú kemur fram að venesúelskir ríkisborgarar geti lagt fram umsókn um tímabundið dvalarleyfi (CPP) í samræmi við perúsk lög. Leyfið veiti þeim aðgang að félagslegum réttindum og þjónustu, svo sem á vegum heilbrigðis, mennta- og skattkerfi landsins.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í Perú séu m.a. takmarkanir á fjölmiðlafrelsi, ofbeldi, hótanir, spilling innan stjórnkerfis, refsileysi, skortur á rannsókn á ofbeldi gagnvart konum og stúlkum og mansal. Yfirvöld hafi þó á undanförnum árum ákært og sakfellt opinbera starfsmenn vegna spillingar og misnotkunar valds, þ. á m. háttsetta embættismenn. Heimildir beri með sér að lögregluyfirvöld í Perú séu að jafnaði fagleg en þó viðgangist spilling innan lögreglunnar. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að ríkislögreglan heyri undir innanríkisráðuneyti landsins og viðhaldi öryggi innanlands. Perúski herinn, sem heyri undir varnarmálaráðuneyti landsins, sé einkum ábyrgur fyrir ytra öryggi landsins en beri einnig ábyrgð á að tryggja öryggi innan tiltekinna svæða innanlands. Samkvæmt skýrslunni hafi perúsk yfirvöld viðhaldið skilvirkri stjórn yfir öryggissveitum landsins. Fram kemur að tilkynningar hafi borist um brot af hálfu meðlima öryggissveitanna.

Í 11. gr. stjórnarskrár Perú er kveðið á um aðgang að endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar frá árinu 2017 kemur fram að heilbrigðiskerfið í Perú samanstandi af fjórum þáttum, opinberu kerfi (s. Seguro Integral de Salud, SIS), kerfi fyrir lögreglu og vopnaðar sveitir, sjúkratryggingakerfi og einkaaðilum sem samanstandi bæði af hagnaðardrifnum rekstri sem og sjálfstæðum félagasamtökum, s.s. trúfélögum. Heilbrigðiskerfið hafi tekið ýmsum breytingum frá árinu 2003. Breytingarnar hafi miðað að því að bæta grunnheilbrigðisþjónustu og mæta betur þörfum fjölskyldna og íbúa í dreifbýli. Best sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu í stærri borgum landsins. SIS tryggi margvíslegum hópum aðgang að heilbrigðiskerfinu m.a. fólki sem sé ekki með sjúkratryggingu. Þá kemur fram á vefsíðu stjórnvalda í Perú að þeir útlendingar sem dvelji löglega í landinu og séu með sérstakt dvalarleyfiskort (s. carné de extranjería) hafi aðgang að atvinnumarkaðnum og opinbera heilbrigðiskerfinu, geti stofnað fyrirtæki og sótt um bankalán.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að lög í Perú leggi bann við mismunun í starfi vegna kynþáttar, húðlitar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, þjóðernisuppruna, ríkisborgararéttar, félagslegs uppruna, fötlunar, aldurs eða félagslegrar stöðu. Þó hafi félagasamtök greint frá mismunun í atvinnulífinu hjá framangreindum hópum og mörg tilvik ekki verið tilkynnt. Þá sé kveðið á um jafnræði í stjórnarskrá Perú. Þrátt fyrir það hafi framkvæmd stjórnvalda við að framfylgja því verið misjöfn. Mismunun á grundvelli kynþáttar- eða þjóðernis sé refsiverð samkvæmt hegningarlögum í Perú. Þá séu refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Mismunun á grundvelli tungumáls, trúarbragða, aldurs, kyns eða félagslegrar stöðu einnig refsiverð. Við framangreindum brotum sé refsiramminn fjögur ár auk sektargreiðslna en lögunum hafi þó ekki verið framfylgt í öllum tilvikum. Í Perú hafi dómsmála- og mannréttindaráðuneyti yfirumsjón með stefnu landsins í mannréttindamálum. Þá hafi innanríkisráðuneytið og ráðuneyti sem starfi á sviði málefna kvenna og einstaklinga í viðkvæmri stöðu, gegnt mikilvægu hlutverki á sviði mannréttindamála í Perú. Jafnframt kemur fram að þjónustumiðstöðvar séu starfsræktar af ráðuneytinu fyrir þolendur heimilis- og kynferðisofbeldis og annarra brota. Um helmingur miðstöðvanna séu staðsettar á lögreglustöðvum. Þá sé unnt að leita athvarfs hjá ákveðnum miðstöðvum auk lögfræðilegrar, sálfræðilegrar og félagslegrar aðstoðar. Þessar opinberu stofnanir hafi almennt verið taldar áhrifaríkar á þessu sviði. Þá hafi embætti umboðsmanns starfað án afskipta stjórnvalda eða annarra aðila og frjáls félagasamtök og almenningur talið störf umboðsmanns áhrifarík.

4.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að

nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.

Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.

Samkvæmt framburði kærenda hafi þau verið búsett í Perú á árunum 2018 til 2023. Kærendur kváðust hafa verið með tímabundið dvalarleyfi þar í landi sem þau hafi þurft að endurnýja árlega. Kærendur hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Perú en ekki fengið svar við þeim umsóknum frá stjórnvöldum. Kærendur hafi framfleytt sér með því að reka sölubás með mat í Perú auk þess sem K hafi um tíma unnið við þrif og á veitingastað. Samkvæmt framangreindum upplýsingum um aðstæður í Perú verður ekki annað ráðið en að kærendur hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að þau hafi möguleika á því við endurkomu þangað. K greindi frá því að hafa upphaflega verið með CPP leyfi í Perú en síðar fengið dvalarleyfi til fjögurra ára. Samkvæmt framangreindum upplýsingum veitir leyfið CPP aðgang að félagslegum réttindum og þjónustu, svo sem á vegum heilbrigðis, mennta- og skattkerfi landsins. Fyrir liggur fullnægjandi sönnun þess að kærendur hafi möguleika á að öðlast heimild til dvalar í viðtökuríki af framangreindum sökum. Enn fremur geti kærendur öðlast heimild til atvinnu og verður því að telja að þau hafi möguleika á að sjá sér farborða með löglegum hætti og geti leitað aðstoðar yfirvalda verði brotið á rétti þeirra.

Kærendur vísa til þess að þau hafi orðið fyrir fordómum frá almenningi í Perú vegna þjóðernis síns auk þess sem þau hafi upplifað mismunun þar í landi. Kærendur óttist glæpagengið [...] sem hafi fjárkúgað þau en þeim hafi verið gert að greiða tiltekna fjárhæð til glæpagengisins vikulega til að koma í veg fyrir áreiti. Kærendur óttist jafnframt lögregluna í Perú sem þau kveði að starfi með glæpasamtökum.

Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um viðtökuríki er ekki hægt að útiloka að kærendur hafi mátt sæta fjárkúgunum og hótunum af hálfu tiltekins glæpagengis. Ekki verður þó talið að framangreind atvik sem kærendur hafi lýst nái því markmiði að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé virk og að kærendur geti leitað til hennar telji þau þörf á því. Samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki teljast kærendur ekki hafa ástæðu til að óttast ofsóknir í Perú, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að þau séu í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Litið hefur verið til þess að stjórnvöld í Perú eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Perú aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærendur geti leitað til hennar telji þau þörf á því. Falla því aðstæður kærenda í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og verða umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki teknar til efnismeðferðar. Teljast kærendur því hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að þau dvelji þar, ferðist eða séu flutt þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur vísa til þess að þrátt fyrir að ekki standi berum orðum í d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að ekki sé gert skilyrði að fyrir liggi samskipti við viðkomandi móttökuríki eða staðfesting á því að umsækjandi hafi gilda heimild til dvalar, séu engar forsendur til að sú krafa sé ekki lengur gerð líkt og fyrir gildistöku laga nr. 14/2023.

Samkvæmt orðalagi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki gerð krafa um öflun samþykkis viðtökuríkis til að endursending þangað sé heimil. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins og í samræmi við þau meginsjónarmið sem ráðandi eru við beitingu um reglunnar um fyrsta griðland, eru því gerðar vægari kröfur til stjórnvalda við að ákvarða hvaða ríki endursenda eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd til, að gættum þeim sjónarmiðum sem almennt eiga við um slíkar endursendingar, einkum meginregluna um bann við endursendingu (non-refoulement). Líkt og fram hefur komið hefur mat verið lagt á aðstæður í Perú og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og eru skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Kærendur eru par á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera með [...] og [...] en hún taki [...] að staðaldri. Þá hafi K [...]. K hafi óskað eftir tíma hjá sálfræðingi en hún finni m.a. fyrir [...]. K hafi misst fóstur í Perú árið 2019. M greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en andleg heilsa hans væri ekki góð, hann væri m.a. leiður vegna fósturmissis sem þau hafi upplifað og aðskilnaðar við fjölskyldu sína. Í málunum liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. og 6. nóvember 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram á kærendum í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Kærendur hafa lagt fram heilsufarsgögn frá Perú þar sem fram kemur að K hafi farið í ómskoðun í kjölfar fósturmissis.

Kærendum var leiðbeint í viðtölum hjá Útlendingastofnun, 30. apríl 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau teldu hafa þýðingu fyrir mál sín, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málanna hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 10. júní 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málunum eru mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kærenda geti haft áhrif á niðurstöðu málanna.

Af gögnum málanna verður ekki ráðið að heilsufar kærenda sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kærenda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Perú verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafar tímabundins dvalarleyfis í Perú hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Verður því að líta svo á að aðstæður kærenda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kærenda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærendur greindu frá því að hafa haft aðgang að einkarekinni heilbrigðisþjónustu sem þau hafi þurft að greiða fyrir.

Kærendur greindu frá því að hafa orðið fyrir fordómum og mismunun í Perú vegna þjóðernis þeirra. Kærendur óttist glæpasamtökin [...] sem hafi fjárkúgað þau og hótað þeim. Kærendur hafi ekki leitað til lögreglunnar í Perú þar sem þau óttist lögregluyfirvöld þar í landi og hafi orðið fyrir fjárkúgun af þeirra hálfu. K greindi jafnframt frá því að óttast kynbundið ofbeldi í Perú en hún hafi orðið vitni að ofbeldi gegn konum þar í landi. Kærendur greindu frá því að nafngreindur vinur þeirra hefði verði ráðinn af dögum af framangreindum glæpasamtökum. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða þau geti vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærendur rekið sölubás með skyndibita í Perú á grundvelli atvinnuleyfis síns. Kærendur greindu frá því að hafa fengið félagslega aðstoð í viðtökuríki frá nafngreindum hjálparsamtökum.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda verða umsóknir þeirra ekki teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun 30. apríl 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland nema að bróðir M væri staddur hér á landi í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Í 4. mgr. 32. gr. b reglugerðar um útlendinga kemur fram að umsækjandi teljist ekki hafa sérstök tengsl við Ísland nema aðstandandi hans sé búsettur hér á landi í lögmætri dvöl. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærendur lögðu fram umsóknir sínar um alþjóðlega vernd hér á landi 22. október 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verða umsóknir kærenda ekki teknar til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Gögn málsins bera með sér að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til þess að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Meðal annars er til þess að líta að Perú er aðili að Cartagena yfirlýsingunni, þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi er ógnað (non-refoulement), og mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Perú og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, hefur ekki verið sýnt fram á að þau eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verða umsóknir kærenda ekki teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

5 Brottvísun og endurkomubann

5.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.

5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 22. október 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Kærendum var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. K greindi frá því að vera ekki með tengsl innan Schengen-svæðisins en henni fyndist ákvörðun um brottvísun og endurkomubann vera ósanngjörn þar sem hún óttist aðstæður í viðtökuríki. M greindi frá því hafa ekki tengsl innan Schengen-svæðisins fyrir utan bróður sinn sem sé umsækjandi um alþjóðlega vernd hér á landi. M taldi að um ósanngjarna ráðstöfun væri að ræða þar sem hann væri í hættu í heimaríki og Perú og vilji ekki fara þangað aftur. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kærenda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kærenda í Perú telst brottvísun þeirra frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan þess frests.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann eru staðfestar.

6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir

Sandra Hlíf Ocares