27 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 866/2024


Hinn 27. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 866/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24060129

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. júní 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. maí 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 30. apríl 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir tíu daga dvöl frá 25. maí til 3. júní 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. maí 2024. Hinn 14. júní 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi kvaðst hafa lagt fram öll nauðsynleg gögn með umsókn sinni. Kærandi kvaðst hafa pantað flug 26. maí 2024 en hann hafi fengið vegabréf sitt afhent 29. maí 2024. Því hafi hann þurft að afbóka flugið þar sem hann hafi ekki getað ferðast án vegabréfs.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 til 11, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Í íslenskri útgáfu synjunarformsins hefur gleymst að tilgreina efni þeirra yfirlýsinga sem dregnar voru í efa. Kærunefnd gerir athugasemd við vinnubrögð Útlendingastofnunar hvað það varðar, sbr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, þar sem segir að umsækjanda skuli tilkynnt um ákvörðun og synjun og ástæður fyrir henni á íslensku og öðru opinberu tungumáli meginstofnana Sambandsins. Í enskri útgáfu eyðublaðsins kemur þó fram að rökstudd ástæða sé til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ætlun til að ferðast til Íslands séu áreiðanlegar. Kærunefnd telur því ekki ástæðu til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar þótt rökstuðning í lið 11 hafi vantað í íslensku útgáfunni.

Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókun hafi verið afpöntuð. Umsókn kæranda hafi fylgt ferðaáætlun. Í símaviðtali hafi kærandi þó ekki getað lýst ferðaáætluninni. Því hafi vaknað rökstuddur grunur um að kærandi hygðist ekki í reynd ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Nýju Delí, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Samkvæmt framangreindu hafði kærandi afbókað flug sitt áður en Útlendingastofnun tók hina kærðu ákvörðun. Á kærustigi hefur ekki verið bætt úr framangreindum annmarka. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii. tölul. 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands og réttmæti upplýsinga sem kærandi hafði veitt, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður