28 ágúst 2024

/

Nr. 809/2024 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 28. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 809/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24060175

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 27. júní 2024 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Taílands ( hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. júní 2022, um að fella niður ótímabundið dvalarleyfi hennar, sbr. 7. mgr. 58. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kæranda var tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar 28. júní 2022.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Hinn 23. júní 2022 var ákvörðun Útlendingastofnunar send kæranda með ábyrgðarbréfi en bréfið var móttekið 28. júní 2022. Í tölvubréfi þáverandi umboðsmanns kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 30. júní 2022, er einnig vísað til ákvörðunarinnar.

Með tölvubréfi kæranda, dags. 27. júní 2024, eru færðar skýringar á drætti á stjórnsýslukæru. Fram kemur að kærandi sé á níræðisaldri og hafi lítinn skilning á málum sem varði dvalarleyfi hennar hér á landi. Þar að auki hafi þáverandi umboðsmaður hennar tapað getunni til hagsmunagæslu fyrir hana vegna eigin heilsufars. Kærandi byggir á því að henni hafi ekki orðið ljóst fyrr en 3. júní 2024 að ótímabundið dvalarleyfi hennar hafi verið fellt niður og vísar til þess að ákvörðun hafi ekki verið birt fyrr en 21. júní 2024, en þá hafi núverandi umboðsmaður hennar fengið afrit af ákvörðuninni. Kærandi vísar m.a. til þess að hafa ekki gefist kostur á því að leggja fram andmæli vegna málsins og þá hafi birting, dags. 28. júní 2022, farið fram gagnvart  einstaklingi sem hafði ekki umboð til að taka við ákvörðuninni svo að bindandi væri.

Með tölvubréfi kæranda, dags. 5. júlí 2024, kemur fram að hin kærða ákvörðun hafi verið birt fyrir manni sem hafði umboð og var bær til þess að taka við ákvörðuninni, svo bindandi væri að lögum. Hann hafi hins vegar orðið fyrir heilaskaða og ekki náð að skilja hagsmunir kæranda né fylgja þeim eftir. Þá er byggt á því að fjarvera kæranda frá landinu á umræddum tíma hafi að mestu verið vegna sóttvarnarráðstafana yfirvalda hér og í heimaríki. Því óskar kærandi eftir því að kærunefnd úrskurði um hvort tilefni sé til að taka kæruna til meðferðar þrátt fyrir að kærufrestur sé liðinn, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.            Niðurstaða

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi. Í 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga kemur fram að kæru skuli þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.

Samkvæmt gögnum málsins var hin kærða ákvörðun sannanlega birt 28. júní 2022, fyrir einstaklingi sem hafði umboð til þess að móttaka ákvörðun með bindandi réttaráhrifum fyrir kæranda. Frá því tímamarki hafi hin kærða ákvörðun verið komin til vitundar kæranda í samræmi við reglur stjórnsýslulaga. Samkvæmt framansögðu er meira en ár liðið frá móttöku hinnar kærðu ákvörðunar. Ákvæði 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er afdráttarlaust en ekki er mælt fyrir um undanþágur frá ákvæðinu í stjórnsýslulögum eða öðrum lögum.

Að öllu framangreindu virtu er kæru þessari vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð:

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

 

The applicant‘s appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares