29 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 869/2024


Hinn 29. ágúst 2024 kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 869/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24050187 og KNU24050188

Kæra [...] og barna þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. maí 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 16. maí 2024, um að synja þeim og börnum þeirra, […], fd. […] (hér eftir A), […], fd. […] (hér eftir B) og […], fd. […] (hér eftir C), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela 8. maí 2023 og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 9. maí 2023. Kváðust kærendur sækja um vernd vegna ofsókna í Venesúela því þau séu á móti yfirvöldum í heimaríki. Hópur glæpamanna hafi ofsótt þau og hótað þeim lífláti. Elsta barn þeirra sé orðið taugaveiklað vegna ástandsins í heimaríkinu. M hafi starfað sem þjálfari, K hafi verið heimavinnandi og börnin hafi verið í skóla í heimaríki. M kvaðst eiga þrjár systur og K kvaðst eiga foreldra og systkini í heimaríki. Kærendur og börn þeirra séu öll heilsuhraust nema elsta barnið sem sé slæmur á taugum eftir hótanir og ofsóknir.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. mars 2023 ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur greindu frá að hafa verið fædd og uppalin í […] í Yaracuy fylki í Venesúela þar sem þau hafi verið búsett í eigin húsnæði þar til þau hafi flúið heimaríki í maí 2023. Kærendur greindu frá því að vera hvorki af sérstökum þjóðernisuppruna né hluti af minnihlutahópi í heimaríki. Kærendur kváðust ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki. M greindi frá því að vera á móti ríkjandi stjórnvöldum og hafa tekið þátt í kröfugöngum. M greindi frá því að hann hafi einkum flúið heimaríki af fjárhagslegum ástæðum. M kvað heilbrigðiskerfið í Venesúela vera mjög slæmt. Opinbera heilbrigðiskerfið sé gjaldfrjálst en það hafi ekki virkað sem skyldi, einstaklingar sem þarfnist heilbrigðisþjónustu hafi þurft að leita til einkarekinna heilbrigðisstofnana sem hafi verið mjög kostnaðarsamt. A, barn kæranda, hafi þurft að undirgangast fjölda rannsókna sem hafi verið mjög dýrar. Það hafi verið erfitt fyrir M að finna lyf og heilbrigðisþjónustu sem A hafi þarfnast og það hafi verið mjög kostnaðarsamt. M hafi verið sannfærður um það að ef fjölskyldan hefði ekki yfirgefið heimaríki hefði A dáið. A hafi fengið [...] 13. júlí 2022. Kærendur hafi farið með hann til taugasérfræðings sem hafi ekki getað aðstoðað þau en hafi sagt þeim að A yrði [...] allt hans líf. M hafi farið til mágkonu sinnar í Karakas, sem sé hjúkrunarfræðingur, til að leita annarra úrræða. Í Karakas hafi kærendur tekið þátt í kröfugöngu 27. janúar 2023 þar sem einstaklingar á mótorhjólum, meðlimir Colectívos, hafi hótað kærendum og sagt þeim að fara aftur heim í þorpið þeirra. Síðar hafi kærendur farið til borgarinnar Barquesimeto þar sem þau hafi komist að hjá sérfræðilækni, barnataugalækni, sem hafi sent A í segulómun. Þá hafi komið í ljós að A væri með […] i (e. […]) og hafi fengið lyf við því. A hafi farið aftur í segulómun síðar og þá hafi komið í ljós að […] hafi verið horfnir, en hann hafi þurft að halda áfram að taka lyf vegna […]. A hafi undirgengist rannsóknir hér á landi sem hafi staðfest sjúkdómsgreiningu og staðfest að hann þyrfti að halda áfram að taka lyfin. Fyrir utan framangreint hafi ástæða flótta fjölskyldunnar frá Venesúela verið dagleg vandamál m.a. með rafmagn, gas og óöryggi á götunum. Þá hafi M starfað við að selja kaffi og lögreglan hafi oft kúgað af honum fé á lögreglueftirlitsstöðvum. M kvaðst óttast allt við almennt ástand í Venesúela, sérstaklega í tengslum við veikindi A, að M geti ekki séð honum fyrir mat og öðru sem hann þarfnist. M kvaðst óttast um líf sitt í Venesúela vegna óöryggis þar í landi og vegna þess að lögreglan og stjórnvöld leiti að einstaklingum sem séu á móti yfirvöldum og skaði þá. Hann óttist ofbeldi vegna þess að hann hafi tekið þátt í mótmælum í Karakas og hafi verið hótað af meðlimum Colectívos. M greindi einnig frá því að óttast að vera fangelsaður þar sem lögreglan stundi fjárkúganir og ef einstaklingar borgi þeim ekki geti lögreglan búið til falskar kærur gegn þeim og fangelsað. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að ástæður flótta fjölskyldunnar frá Venesúela hafi verið heilsufar A og atvik sem hafi átt stað í Karakas í tengslum við glæpahópinn Colectívos. Kærendur hafi heyrt um þennan glæpahóp en þetta hafi verið í fyrsta og eina skiptið sem þau hafi upplifað eitthvað þessu líkt. Í þorpinu sem þau búi í hafi allt verið rólegt. Heimaþorp þeirra sé fátækt, lífsgæði fólks sem þar búi séu slæm og margir líði matarskort. Það séu ekki vandamál með yfirvöld í heimaþorpi kærenda. Síðar í viðtali greindi K frá því að í heimaþorpi kærenda hafi verið mikið um kynferðislega áreitni, sérstaklega gegn börnum sem þurfi að afla matar á götunni. K nefndi dæmi af manni sem hafði rænt og myrt unga stúlku og nauðgað konu og verið fangelsaður. K greindi frá því að 27. janúar 2023 hafi kærendur óvænt tekið þátt í kröfugöngu. Í kröfugöngunni hafi 300 dollurum og síma hennar hafi verið stolið. Einstaklingar sem hafi rænt hana hafi reynt að kúga fé út úr M til að fá símann afhentan. Meðlimir hópsins hafi hringt í M og reynt að kúga af honum fé og þau hafi leitað til lögreglu vegna þessa sem hafi ekkert gert í málinu. Kærendur hafi ekki borgað meðlimum hópsins og farið frá Karakas aftur í heimaþorp þeirra. Kærendur hafi ákveðið að selja hús sitt og fara til Íslands. Aðspurð um hvað K hræddist helst við almennt ástands í Venesúela kvaðst hún hafa rætt þetta við börn sín, þau vilji ekki snúa til baka. Þau hafi vitað af öryggi, ástandi mannréttinda og von um betri framtíð og menntun hér á Íslandi síðastliðin fimm ár. Guðfaðir K hafi flutt til Íslands fyrir fimm árum og hafi sagt þeim frá landinu. K óttist að fara aftur til baka í það slæma ástand sem sé í Venesúela þar sem hún þurfi að byrja upp á nýtt allslaus. Eins vegna ástandsins sem sé nú í Venesúela, hún hafi heyrt af því hjá systur sinni að yfirvöld hafi ætlað að taka tiltekin fríðindi í starfi af systur hennar, sem hjúkrunarfræðingur sem vinni hjá almannatryggingum, ef hún kjósi ekki yfirvöld. Þá hafi K eitt sinn ekki fengið aðstoð í formi matarkassa frá yfirvöldum þar sem hún hafi ekki ætlað að kjósa. K greindi frá því að tvær systur hennar og systursonur hafi farið frá Venesúela og einungis móðir hennar og önnur systir byggju þar enn. K greindi frá því að hún hafi þurft að fylgja börnum sínum í skóla og þau hafi ekki getað leikið sér úti vegna þess að það væri mikið um barnaníð í heimaþorpi þeirra og að barnaníð hafi verið algengara í heimaþorpi þeirra en annars staðar í Venesúela.

A kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 26. mars 2023 ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum og túlki. A greindi frá því að vera fæddur og uppalinn í Yaracuy fylki í Venesúela. A greindi frá því að eiga frænkur, frændur og ömmu sem búi enn í Venesúela en margir fjölskyldumeðlimir hans, sem hafi átt náið og gott samband við fjölskyldu hans, hafi flúið frá Venesúela, einkum yfir til Kólumbíu. A kvaðst ekki hafa liðið vel í Venesúela vegna öryggisástandsins og skertra möguleika á að leika sér úti með vinum sínum. Hann hafi haft aukið frelsi fyrir COVID-19 faraldurinn þegar að hann hafi getað leikið sér úti og fjölskyldan hafi staðið betur fjárhagslega. A greindi frá því að hafa gengið í skóla og að hafa líkað hann ágætlega. Með auknu óöryggi hafi orðið fólksflutningar frá Venesúela sem hafi haft áhrif á gæði námsins og kennara. A kvaðst hafa þurft fylgd úr og í skóla vegna aukinnar tíðni mannrána í Venesúela. Allt hafi leikið í lyndi fyrir COVID-19 faraldurinn, áður en settar hafi verið á samkomutakmarkanir. Þeim hafi fylgt aukin einangrun, óöryggi og takmarkað fæðuöryggi. A greindi frá því að hafa veikst vegna […]. […] og valdið taugakippum og [...]. Eftir fyrsta [...] kastið hafi hann farið á spítala þar sem hafi tekið við mikið af rannsóknum. Foreldrar hans hafi reynt að leita lausna við vandanum en það hafi haft mikil áhrif á fjárhag heimilisins og foreldrar hans hafi selt húsið sitt og eldavél til að fjármagna rannsóknirnar. Rannsóknirnar hafi að lokum leitt til greiningar og þá hafi tekið við lyfjameðferð sem hafi unnið bug á […] og meðhöndlað einkenni sjúkdómsins. A kvaðst líða vel í dag og að læknar á Íslandi telji að líklega geti hann hætt á [...] innan tveggja ára. A hafi haft nægt aðgengi að mat framan af en í kjölfar COVID-19 faraldurs og uppskerubrests í landbúnaði föður hans hafi mataraðgengi versnað. A greindi frá því að foreldrar hans hafi tilkynnt honum að þau væru að fara til Íslands til að tryggja fjölskyldunni meiri lífsgæði í landi þar sem efnahagurinn sé góður, öryggi mikið og aðgengi að menntun sé gott.

B kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 26. mars 2023 ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum og túlki. B greindi frá því að hafa verið fædd og uppalin í Yaracuy fylki í Venesúela. B hafi búið í litlum bæ á heimili foreldra hennar ásamt systkinum sínum. B greindi frá því að eiga frænkur og ömmu í Venesúela og eiga náið og gott samband við fjölskyldu sína. B kvað heimaríki hennar hafa verið hættulegt, börnum hafi verið rænt og nýru þeirra seld, þá hafi verðlag verið hátt í landinu. A kvaðst hafa gengið í skóla og hún hafi notið þess. Henni hafi verið fylgt úr og í skóla vegna hættu á að henni yrði rænt og að hún hafi mestmegnis leikið sér heima við systkini hennar vegna öryggisástandsins í landinu. A greindi frá því að vera heilbrigð og hafa aldrei þurft að leita til læknis. A kvað mataraðgengi hafa verið misjafnt og að þau hafi haft aðgang að drykkjarvatni. A greindi frá því að ástæða flótta fjölskyldunnar megi rekja til veikinda A og erfiðleika foreldra hennar að fjármagna heilbrigðisþjónustu fyrir bróður hennar, að faðir hennar hafi verið laminn í mótmælagöngu sem hann hafi tekið þátt í og vegna öryggis- og efnahagsástands í heimaríki.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í máli C kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 30. maí 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 14. júní 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærendur séu bæði fædd og uppalin í borginni […] í fylkinu Yaracuy í Venesúela. Kærendum hafi borist hótanir og símtöl þegar þau hafi tímabundið verið stödd í Karakas og í kjölfarið hafi þau lagt fram kæru hjá lögreglunni 2. febrúar 2023. Daginn eftir hafi kærendur yfirgefið Karakas og hafi flúið heimaríki 7. maí 2023. Um málsatvik sé að öðru leyti vísað til fyrirliggjandi gagna málsins.

Í greinargerðum kærenda er vísað til umfjöllunar um landaupplýsingar í greinargerð til Útlendingastofnunar og er mati stofnunarinnar á aðstæðum í Venesúela mótmælt.

Kærendur gera athugasemdir við úrlausn í máli A sem hafi verið greindur með […]og hafi umfangsmikla sjúkrasögu. Það hafi verið fjallað með afar takmörkuðum hætti um stöðu barnsins í ákvörðunum Útlendingastofnunar og hafi staða hans ekki verið borin saman við annað en almennar landaupplýsingar frá Venesúela. Með greinargerð til kærunefndar séu lögð fram gögn frá Venesúela og Íslandi sem staðfesti sjúkrasögu og greiningu A. Undirliggjandi séu réttindi eins viðkvæms einstaklings og hugsast geti, barns á flótta með alvarlega veikindi og flóknar og miklar stuðningsþarfir. Hin kærða ákvörðun hafi ekki með nokkrum hætti tekið mið af raunverulegri stöðu A í Venesúela og brjóti því gegn landslögum um réttindi barna og lögum um útlendinga, svo og fullgiltum þjóðarréttarlegum samningum. Kærendur vísa einnig til 24. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins þar sem sé tekið fram að börn eigi rétt á bestu heilbrigðisþjónustu sem völ sé á. Aðstæður A við endursendingu séu í bestu falli óljósar og kærendur hafi greint frá því að nauðsynleg meðferð standi honum ekki til boða í heimaríki. Aðgengi A að heilbrigðis- og félagsþjónustu sé miðuð út frá landaupplýsingum um almenna stöðu barna í heimaríki.

Kærendur vísa til þess að í trúverðugleikamati í hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki verið komist að þeirri niðurstöðu að frásögn þeirra eða einstaka þættir í henni hafi verið ótrúverðugir. Það eina sem hafi verið gerð athugasemd við hafi verið að kærendur hafi ekki lagt fram frekari gögn máli sínu til stuðnings. Kærendur vísa til þess að þau hafi borið fyrir sig ofsóknir af hálfu glæpahópsins Colectívos, nánar tiltekið glæpahópsins [...], og hafa lagt fram afrit af kæru sinni til lögreglunnar hjá kærunefnd. Kærendur hafi borið fyrir sig að þeim hafi verið hótað munnlega og símleiðis og geti þ.a.l. ekki sýnt fram á hótanirnar með hlutlægum hætti. Þá benda kærendur á samkvæmt eðli lögregluskýrslna frá kærendum ofbeldisglæpa feli þær í sér einhliða frásögn. Það ætti ekki að vera metið kærendum í óhag að lögregla hafi ekki aðhafst frekar í máli þeirra og því liggi ekki fyrir frekari gögn um málið. Síður en svo, sé slíkt merki um athafnaleysi lögreglunnar gegn ofbeldisglæpum. Kærendur vísa til landaheimilda máli sínu til stuðnings og telja fulla ástæðu til að leggja framangreinda skýrslu til grundvallar í málinu og ganga út frá því að kærendur hafi bæði sætt ofsóknum af hálfu Colectívos og aðgerðarleysi af hálfu lögreglu í kjölfarið.

Kærendur telja að börn þeirra, einkum A, sem sé með staðfesta greiningu á […] og umfangsmikla sjúkrasögu, teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem sé börnum fyrir bestu að leiðarljósi þegar þau taki ákvarðanir um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eiga og kveðið er á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- og mannúðarmála. Kærendur hafni túlkun stjórnvalda á landaupplýsingum um skólagöngu barna og vísa til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings. Menntunarmögulegar barnanna séu því almennt séð ekki tryggðir í Venesúela. Kærendur hafi með gagnaframlagningu varpað ljósi á að A þurfi á aðstoð sérfræðinga að halda og að hann hafi ekki hlotið viðeigandi heilbrigðisþjónustu eða stuðning í heimaríki. Með hliðsjón af einstaklingsbundnu mati á væntanlegum aðstæðum barnanna beri að veita þeim alþjóðlega vernd hér á landi. Kærendur minna einnig á að hluti af ofsóknargrundvelli kærenda byggi á hótunum sem hafi varðað börn þeirra. Með tilliti til heimilda um aðstæður barna í Venesúela og framlögð gögn varðandi veikindi A telja kærendur að það sé börnunum ekki fyrir bestu að vera endursend til Venesúela.

Kærendur kalla eftir því að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af þeirri óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023 og þeirri staðreynd að ekki hafi hlotist lendingarleyfi í Karakas fyrir flutninga fólks til landsins sem hafi átt að fara fram í lok febrúar s.l. Þá virðist einungis hafa farið fram takmörkuð rannsókn stjórnvalda, enn sem komið er, á því hvað nákvæmlega hafi átt sér stað við endursendingu ríkisborgara til Venesúela og ekki hafi verið athugað hvort sú atburðarrás hafi haft áhrif á meðferð mála sem nú séu til vinnslu á kærustigi hjá kærunefnd útlendingamála. Við endurkomu fólks til Venesúela þann 15. nóvember 2023 hafi venesúelsk yfirvöld, þ.m.t. vopnaðir lögreglumenn, tekið á móti þeim, fólk hafi ekki verið frjálst ferða sinna, hafi þurft að fara í löng viðtöl við fulltrúa yfirvalda og hafi verið komið fyrir í varðhaldi í meira en sólarhring við afar bágar aðstæður. Þá hafi komið fram upplýsingar um að fólki hafi verið gert að skrifa undir skjöl og bannað að taka myndir af þeim skjölum. Þau atvik sem hér um ræði kunni að hafa áhrif á úrlausn um skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og skilyrði fyrir banni við endursendingu.

Kærendur vísa til þess að nýlega hafi stjórn Maduro rekið starfsfólk Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi í kjölfar þess að Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu að áætlanir stjórnarinnar til að takast á við hungur í Venesúela færu eftir því hvort að einstaklingar séu pólitískir stjórnarandstæðingar í landinu eða ekki. Landaupplýsingar í hinni kærðu ákvörðun um umsvif sameinuðu þjóðanna hvers lags verkefni og átök í Venesúela séu því að mati kæranda á brostnum grundvelli og það hafi sérstaka þýðingu í tilviki þeirra verkefna sem séu nefnd í sambandi við réttindi barna.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur séu flóttamenn samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a- til c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggi á því að þau séu þolendur ofbeldisglæpa af hálfu glæpahópsins Colectívos og að þau séu stjórnarandstæðingar sem hafi gagnrýnt stefnumótun stjórnvalda opinberlega og búi við ástæðuríkan ótta við að ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi lagt fram lögregluskýrslu sem staðfesti að þau hafi tilkynnt hótanir af hálfu Colectívos til lögreglu í febrúar 2023, þegar þau hafi verið stödd í kröfugöngu á vegum stjórnarandstöðuflokksins […]. Frásögn kærenda sé í verulegu samræmi við skýrsluna, bæði er varðar atburðina sjálfa og tímasetningu. Í kjölfarið hafi kærendur sætt líflátshótunum. Með þátttöku sinni hafi kærendur verið stimpluð stjórnarandstæðingar og orðið fyrir ofbeldi og hótunum af hálfu glæpahóps með náin tengsl við þarlend stjórnvöld. Kærendur telja að hótanir og ofbeldi af hálfu glæpahópsins Colectívos jafnist á við ofsóknir. Kærendur hafi hlutlægan ótta um ofsóknir þar sem þau hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu glæpahópsins af eigin reynslu, en einnig af huglægum grundvelli sem nægi til þess að uppfylla skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Frásagnir kærenda hafi verið skýrar og í samræmi frá upphafi til enda og falli að gögnum málsins. Verði ekki fallist á að atvik sem kærendur hafi lýst varði við ofsóknir telja kærendur tilefni til að meta málið út frá samsafni athafna. Kærendur hafi fjölþættar, en samverkandi, ástæður fyrir flótta sínum þegar litið sé til þeirra aðstæðna sem kunni að bíða þeirra í heimaríki. Kærendur standi frammi fyrir öðru mótlæti í landinu sem stafi af refsileysi sem viðgengast þar og ónógum aðgerðum gegn glæpatíðni. Þá hafi einnig áhrif kerfisbundin mismunun gegn börnum með sérþarfir, tíðni ofbeldis, staða kærenda sem stjórnarandstæðinga og skert aðgengi að heilbrigðis-, mennta- og félagslega kerfinu í landinu. Fyrir liggi að kærendur geti ekki hlotið vernd yfirvalda í Venesúela enda séu yfirvöld sjálf valdur af ofsóknum með ýmsum hætti sbr. a- liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur óttist ofbeldi af hálfu glæpahópsins Colectívos, sbr. b- og c- liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, en landaupplýsingar sýni ótvíræð tengsl hópsins við venesúelsk stjórnvöld.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til framangreindra málsástæðna og málsástæðna sem settar hafi verið fram í greinargerð fyrrum talsmanns kærenda til Útlendingastofnunar. Í greinargerð til Útlendingastofnunar hafi komið fram að kærendur byggju auk þess við almennt óöryggi í landinu og aðstæður í landinu hafi ekki batnað á undanförnum mánuðum. Kærendur vísa til einstaklingsbundinna aðstæðna sinna, einkum í ljósi stöðu barnanna og synjun á grunnþjónustu fyrir A sem hafi afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf hans. Synjun eða aðgerðarleysi stjórnvalda hvað varðar slíka grunnþjónustu geti jafnast á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í Venesúela. Þá hafi kærendur orðið fyrir hótunum og ofbeldi af hálfu glæpahópsins Colectívos og landaupplýsingar sýni að glæpahópar ógni öryggi venesúelskra borgara með handahófskenndum árásum og glæpum í skjóli refsileysis. Hættan á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð gegn kærendur hafi aukist í ljósi þess að þau séu stjórnarandstæðingar. Morðtíðni í landinu sé sérstaklega há og stjórnarandstæðingum hafi verið mismunað hvað varðar mataraðstoð og peningaúthlutum frá venesúelskum stjórnvöldum. Kærendur byggja á því að aðgerðir og aðgerðarleysi sem hafa áhrif á öryggi þeirra hafi ekki farið batnandi á síðustu tveimur árum þannig að það varði við breytta framkvæmd á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og vísa til nýrra upplýsinga frá Sameinuðu þjóðunum frá árinu 2024 þar sem stjórnvöld hafi neitað að afhenda gögn um stöðu mála þar í landi.

Kærendur telji hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að þau og börn þeirra, setjist að annars staðar í heimaríki sínu sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í ljósi þess að yfirvöld í heimaríki þeirra séu ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríki.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Um þetta vísast til framangreindra röksemda við aðal- og varakröfu kærenda og landaupplýsinga, einkum er varðar athafnaleysi stjórnvalda gagnvart ofbeldisglæpum sem stjórnvöld hafi ekki verið fús að veita rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna upplýsingar um í mars 2024. Kærendur telja að í Venesúela blasi við ófullnægjandi aðgangur barna þeirra að menntun, félagsþjónustu og öllum þeim stuðningsúrræðum sem þau hafi haft brýna þörf fyrir allt sitt líf, og komi aðeins til með að njóta hér á landi, og verði staða fjölskyldunnar því slík að varði við erfiðar félagslegar aðstæður. Barnið A hafi auk þess tilteknar sérþarfir og þurfi bæði á meðferð og lyfjum að halda sem ekki séu aðgengileg í heimaríki. Kærendur óttast um líf A ef þeim verður gert að snúa aftur til heimaríkis. Bágar félagslegar aðstæður og fyrri reynsla af ofbeldi geri kærendur auk þess útsettari fyrir mannréttindabrotum í landinu. Staðan sé sérstaklega alvarleg í ljósi þess að meðal kærenda sé barn sem þurfi auðsjáanlega á framfærslu foreldra sinna að halda enda með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Skert aðgengi A að viðunandi heilbrigðis- og félagslegum stuðningi á tímamarki sem hann sé móttækilegur fyrir meðferð sé óafturkræft. A sé barn á flótta, [...], foreldar hans eru stjórnarandstæðingar og þau hafa öll upplifað ofbeldi af hálfu vopnahóps í heimaríki. Ástand í mannréttindamálum í Venesúela sé bágborið. Um erfiðar félagslegar og efnahagslegar aðstæður sé að ræða auka almenns ótryggs ástands í landinu og ríkjandi mannréttindabrota. Ástandið hafi valdið kærendum þjáningu, ótta og óöryggi sem varði við mannúðaraðstæður. Möguleiki kærenda á vernd yfirvalda er útilokaður og lögregluvernd sé engin. Með tilliti til alls framangreinds uppfylli kærendur skilyrði dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærendur telja að með endursendingu þeirra og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og skyldubundið mat vegna þess að hvorki hafi farið fram ítarlegt né einstaklingsbundið mat á aðstæðum barna kærenda.

Kærunefnd bendir á að í viðtali hjá Útlendingastofnun voru kærendur spurðir ítarlega um aðstæður barna þeirra í Venesúela og hvernig aðstæður þeirra yrðu yrði þeim gert að snúa aftur til Venesúela. Þá voru A og B bæði spurð um aðstæður sínar í viðtali hjá Útlendingastofnun og var ákvörðun stofnunarinnar sú að kærendur og börn þeirra væru ekki flóttamenn, sbr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. ágúst 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 18. ágúst 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 22. ágúst 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectívos af frumkvæði stjórnvalda.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins. Talið sé að 100 til 150 þúsund íbúar Venesúela séu múslimar eða 0,3 til 0,5 prósent af íbúum landsins. Af þeim séu sjía múslimar í minnihluta.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun í júlí 2024 höfðu um 530 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 520 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau og börn þeirra séu í hættu í heimaríki vegna almenns ástands í Venesúela. Þá byggja kærendur á því að þau og börn þeirra séu í hættu í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana þeirra, ofsókna glæpahópa og vegna fjárkúgana af hálfu lögreglu. Þar að auki byggja kærendur umsókn sína um alþjóðlega vernd á efnahagslegum aðstæðum og vegna ástands í heimaþorpi þeirra þar sem kynferðisleg áreiti, einkum gegn börnum, sé algeng. Þá byggja kærendur á því að þau eigi á hættu ofsóknir af þeirri ástæðu einni að þau snúi til baka til heimaríkis.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 14. mars 2023, greindu kærendur frá því að vera ekki aðilar að stjórnmálaflokki. M greindi frá því að vera á móti ríkjandi stjórnvöldum. Þau greindu frá því að hafa farið til Karakas þar sem systir K hafi búið og að hafa óvænt tekið þátt í einni kröfugöngu í Karakas 27. janúar 2023. Í kröfugöngunni hafi meðlimir glæpahópsins Colectívos hótað þeim og skipað þeim að snúa aftur til síns heima. M kvaðst óttast um líf sitt í Venesúela þar sem yfirvöld og lögreglan leiti að stjórnarandstæðingum og skaði þá og að hann óttaðist ofbeldi í heimaríki þar sem hann hafi tekið þátt í mótmælum gegn yfirvöldum og hafi verið hótað af meðlimum Colectívos. K greindi frá því að þau hafi heyrt um Colectívos en hafi ekki upplifað neitt þessu líkt fyrr en í kröfugöngunni. Í heimaþorpi þeirra væru ekki vandamál með yfirvöld einungis fátækt. Þá greindi K frá því að hún hafi einu sinni ekki fengið aðstoð í formi matarkassa frá yfirvöldum þar sem hún hafi ekki kosið. K greindi frá því að í framangreindri kröfugöngu hafi meðlimir Colectívos rænt af henni 300 dollurum, sem ætlaðir hafi verið í heilbrigðisþjónustu fyrir A, og þá hafi þeir einnig rænt farsíma hennar. Síðar hafi sömu einstaklingar hringt í M og reynt að kúga af honum fé í skiptum fyrir farsímann. Kærendur hafi leitað til lögreglu vegna þessa en ekkert hafi verið gert í málinu. Aðspurð kvaðst K ekki hafa afrit af lögregluskýrslunni. Kærendur hafi ekki borgað glæpahópnum og farið aftur til heimaþorps þeirra.

Við meðferð máls þeirra hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit af lögregluskýrslu frá lögreglunni CICPC, dags. 2. febrúar 2023, sem ber með sér að vera kvörtun M vegna hótana og ráns sem kærendur hafi orðið fyrir í kröfugöngu og vegna símhringinga sem hafi fylgt í kjölfarið frá glæpahóp þar sem reynt hafi verið að kúga af þeim fé auk þess sem þeim og börnum þeirra hafi verið hótað lífláti.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til landaupplýsinga er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur séu á móti stjórnvöldum í heimaríki og hafi tekið þátt í kröfugöngu í Karakas í janúar 2023. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur hafi orðið fyrir ráni og hótunum í kröfugöngunni og fjárkúgun í kjölfar hennar af hendi ótilgreindra einstaklinga sem kunni að hafa verið meðlimir glæpahóps.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colectívos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Þrátt fyrir að kærendur hafi mætt á mótmæli þá verður ekki séð að þau hafi gegnt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar eða séu útsettari en aðrir mótmælendur fyrir árásum eða hótunum. Fyrir liggur að fjölskyldan hafi orðið sér út um vegabréf í janúar og febrúar 2023 og farið úr landi án vandkvæða. Þá hafi M fengið útgefið sakarvottorð, dags. 22. febrúar 2023, eftir að kærendur hafi tekið þátt í mótmælum, sem er útgefið fyrir íslensk stjórnvöld. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki til kynna að kærendur séu eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þau eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Hvað varðar rán, hótanir og fjárkúgun af hálfu meðlima glæpahóps sem kærendur kveða hafa verið Colectívos ber til þess að líta að um einangrað atvik hafi verið að ræða sem hafi átt sér stað þegar kærendur hafi tekið þátt í einni kröfugöngu í Karakas þar sem þau hafi ekki verið búsett. Ekki er hægt að ráða annað en að tilviljun hafi ráðið því að kærendur hafi verið fórnarlömb ráns, hótana og fjárkúgana. Kærendur hafi leitað til lögreglu vegna framangreindra atvika en fljótlega farið aftur til síns heimaþorps og yfirgefið heimaríki tæpum þremur mánuðum síðar án þess að fá vitneskju um hvernig málinu hafi fleytt fram af hálfu lögreglunnar. Af frásögn K má einnig ráða að glæpahópar hafi ekki verið með starfsemi í heimaþorpi kærenda og þar hafi ekki verið nein vandamál með yfirvöld. Það sé því ekkert sem bendi til þess að kærendur séu eða hafi verið sérstök skotmark yfirvalda eða glæpahópa af neinum þeim ástæðum sem talin eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 14. mars 2023, greindi M frá því að lögreglumenn hafi kúgað af honum fé við eftirlitsstöðvar lögreglu í tengslum við störf hans við að selja kaffi.

Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Þá hafi fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum felist í að krafist sé greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslna sé krafist af vörubílstjórum og nautgripabændum auk greiðslna við vegatálma. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgunum séu ófullnægjandi og þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum.

Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um heimaríki kæranda er ekki hægt að útiloka að M hafi mátt sæta fjárkúgunum af hendi spilltra lögreglumanna á eftirlitsstöðvum lögreglu. Þó verður ekki talið að þau atvik sem M hefur lýst nái því marki að teljast ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í skilningi 38. gr. laga um útlendinga. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að M eigi þær á hættu snúi hann til baka til heimaríkis.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 14. mars. 2023, greindi K frá því að það hafi verið mikið um kynferðislega áreitni í heimaþorpi kærenda, sérstaklega gegn börnum sem færu úti á götu að afla sér matar. K nefndi dæmi um andlega veikan einstaklinga sem hafi rænt og myrt unga stúlku og nauðgað konu. Farið hafi verið með einstaklinginn og hann lokaður inni á geðheilbrigðisstofnun. K greindi frá því að kærendur og börn þeirra hafi ekki orðið fyrir áreiti en að hún hafi þurft að fylgja börnum sínum í skólann og að börnin hafi ekki getað leikið sér úti þar sem barnaníð sé algengt í heimaþorpi þeirra og algengara en annars staðar í Venesúela. K greindi frá því að þetta væri alkunna í fréttum og óskaði fulltrúi Útlendingastofnunar eftir því að hún legði fram gögn máli sínu til stuðnings. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn um það að barnaníð sé algengt í heimaþorpi kærenda eða algengara þar en annars staðar í Venesúela.

Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að farið hafi verið í sérstakt átak gegn barnaníð af hálfu saksóknara í Venesúela árið 2022 og að hámarksrefsingum, allt að 30 ára fangelsi, hafi verið beitt í mörgum málum. Þá bera heimildir með sér að sett hafi verið á fót stofnun í Venesúela sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Sett hafi verið saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Í desember 2021 hafi verði gerð breyting á lögum um rétt kvenna til lífs án ofbeldis þar sem refsingar hafi m.a. verið þyngdar og sérhæfðir dómstólar sem fást við mál er varða kynbundið ofbeldi hafi verið settir á fót og starfi víðsvegar í Venesúela. Er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn kynbundnu ofbeldi eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá verður ekki talið að það sé bundið erfiðleikum fyrir einstaklinga sem telja þörf á að leita aðstoðar lögreglu eða framangreindra yfirvalda í landinu vegna kynferðislegs áreitis sem þau kunna að sæta.

Kærendur hafa borið fyrir sig erfiðum efnahagslegum aðstæðum í heimaríki. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert i gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kærenda.

Kærendur bera fyrir sig að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda snúi þau til baka til Venesúela. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda við það að snúa til baka eða fyrir hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við börnin og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á að þau búi við almennt óöryggi í Venesúela og að aðstæður í landinu hafi ekki batnað á undanförnum mánuðum. Kærendur vísa til einstaklingabundinna aðstæðna sinna, einkum stöðu barnanna og synjun á grunnþjónustu fyrir A sem hafi afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf hans. Synjun eða aðgerðarleysi stjórnvalda í Venesúela hvað varðar slíka grunnþjónustu geti jafnast á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Þá hafa kærendur orðið fyrir hótunum og ofbeldi af hálfu glæpahópsins Colectívos og landaupplýsingar sýna að glæpahópar ógni öryggi venesúelskra borgara með handahófskenndum árásum og glæpum í skjóli refsileysis. Hættan á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð gegn kærendur hafi aukist í ljósi þess að þau séu stjórnarandstæðingar. Kærendur byggja á því að aðgerðir og aðgerðarleysi sem hafi áhrif á öryggi þeirra hafi ekki farið batnandi á síðustu tveimur árum að það varði við breytta framkvæmd á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Í greinargerð kærenda er vísað til þess að nýlega hafi stjórn Maduro rekið starfsfólk Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi. Landaupplýsingar í ákvörðun Útlendingastofnunar séu því að mati kæranda á brostnum grundvelli. Samkvæmt þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér átti sér stað ágreiningur milli stjórnar landsins og tækniráðgjafarskrifstofu Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Venesúela sem leiddi til þess að skrifstofunni var lokað í febrúar 2024 og starfsfólki hennar gert að yfirgefa landið. Samkvæmt landaupplýsingum tilkynnti Maduro í apríl 2024 að samkomulag hefði náðst á milli stjórnar landsins og Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um að skrifstofan yrði opnuð í landinu að nýju.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðna kærenda um þátttöku þeirra í kröfugöngu og aðstæðna barna þeirra í heimaríki, einkum aðstæðna A.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í þorpinu […] í Yaracuy fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Yaracuy fylki í norðvestur Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og börn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 14. mars 2024, greindi M frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu. M hafi þurft að leita sér læknisþjónustu í heimaríki vegna [...] og sýndi fulltrúa Útlendingastofnunar röntgenmynd af neðanverðum hrygg þar sem hafi verið [...]. M greindi frá því að hafa farið í [...]. M greindi frá því að heilbrigðiskerfið í Venesúela sé mjög slæmt. Opinbera heilbrigðiskerfið sé gjaldfrjálst en það virki ekki sem skyldi. Einstaklingar sem þarfnist heilbrigðisþjónustu þurfi að leita til einkarekinna heilbrigðisstofnana sem sé mjög kostnaðarsamt. A, barn kærenda, hafi þurft að gangast undir mikið af rannsóknum sem hafi verið dýrar. Það hafi verið erfitt fyrir M að finna lyf og heilbrigðisþjónustu sem A hafi þarfnast og það hafi verið mjög kostnaðarsamt. A hafi fengið fyrsta [...] 13. júlí 2022 og aftur í september 2022. Kærendur hafi farið með hann til taugasérfræðings sem hafi ekki getað aðstoðað þau en hann hafi sagt þeim að A yrði [...] allt hans líf. Kærendur hafi síðar farið til sérfræðilæknis, barnataugasérfræðings, í borginni Barquesimeto sem hafi sent A í segulómun. Þá hafi komið í ljós að A væri með […] (e. […]) og hafi fengið lyf við því. A hafi aftur farið í segulómun síðar og þá hafi komið í ljós að […] hafi verið horfnir, en að hann hafi þurft að taka lyfin áfram. A hafi undirgengist rannsóknir hér á landi sem hafi staðfest sjúkdómsgreininguna og staðfest að A þyrfti að halda áfram að taka lyfin. M greindi frá því að sonur hans taki lyfið [...] við flogum og að hann væri betri. M greindi frá því að þau hafi getað fengið lyf fyrir A í Venesúela en að lyfin hafi verið dýr, um 60 dollarar á 15 daga fresti. Þau hafi ekki getað fengið þá heilbrigðisþjónustu sem A hafi þarfnast í opinbera heilbrigðiskerfinu og það hafi verið mjög dýrt að nýta sér einkarekna heilbrigðisþjónustu en þau hafi fært fórnir fyrir son sinn.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 14. mars 2023, greindi K frá því að vera með [...]. K hafi verið með [...]. K greindi frá því að hafa þurft að bíða eftir blóðþrýstingslyfjum í sex ár í gegnum almannatryggingakerfið en þau hafi aldrei komið. Heimaþorp kæranda hafi verið einangrað og það hafi verið erfitt að finna þessi lyf þar. Lyfin hafi verið fáanleg í stærri borgum og systir hennar hafi sent henni lyf á þriggja til fjögurra mánaða fresti. K greindi frá því að A sé [...]. A hafi eitt kvöld fengið [...] og hafi blánað upp. K hafi farið út á götu og reynt að biðja um aðstoð. K staðfesti frásögn M af veikindum A, að hann hafi verið greindur með […] (e. […]) sem gæti valdið [...], að almenna heilbrigðiskerfið hafi ekki veitt A þá þjónustu sem hann hafi þarfnast og þau hafi þurft að leita til einkarekinna heilbrigðisstofnanna sem hafi verið dýrt og að þau hafi þurft að kaupa lyfin hans á 15 daga fresti og þau hafi verið dýr. K greindi frá því að [...] og að B væri við góða heilsu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 26. mars 2024, greindi A frá því að veikst af […][…] (e. […]). A kvað […] hafa sest að í heilanum og valdið taugakippum og [...]. Þegar hann hafi fengið fyrsta [...] hafi móðir hans komið honum á spítala og við hafi tekið mikið af læknisrannsóknum. Foreldrar hans hafi gert það sem þau gátu til að leita lausna á vandanum sem hafi þrengt mjög að fjárhagi heimilisins. Foreldar hans hafi selt húsið sitt og eldavél til að fjármagna rannsóknirnar. Rannsóknir hafi að lokum leitt til greiningar og lyfjameðferð hafi tekið við sem hafi unnið bug á […] og meðhöndlað einkenni sjúkdómsins. A kvaðst líða vel í dag og að læknar á Íslandi telji hann geta hætt á [...] innan tveggja ára.

Kærendur lögðu fram heilsufarsgögn varðandi A frá Venesúela og Íslandi. Kærendur lögðu fram nótur úr sjúkraskrá A, dags. 5. júní til 14. október 2023, frá Landspítalanum þar sem fram kemur að A hafi líklega fengið […] í taugakerfinu (e. […]) og þurfi ekki frekari meðferð með lyfinu […] við þessu […]. Það þurfi hins vegar eftirfylgni vegna EP-meðferðar. Af heilbrigðisgögnum frá Venesúela, dags. 14. mars 2022 til 14. mars 2023, má ráða að A hafi verið greindur með […] í taugakerfinu og fengið flog í tengslum við sjúkdóminn. A hafi farið í segulómun á heila í júlí 2022 og mars 2023 auk frekari rannsókna. A hafi verið ávísað lyfjum og settur undir frekara eftirlit.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Áréttað er að meðferð telst almennt ekki óaðgengileg þó að greiða þurfi fyrir hana. Verður ekki annað séð en að kærendur og A hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Vísar kærunefnd einkum til þess að samkvæmt framburði kærenda og gögnum sem þau hafa lagt fram hafi A fengið greiningu á veikindum sínum og meðferð hjá sérfræðilæknum í heimaríki og lyf hafi verið aðgengileg í Venesúela. Þá ber frásögn A einnig með sér að hann geti mögulega hætt á þeim lyfjum sem hann taki í dag eftir um tvö ár. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærendur og börn þeirra muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 14. mars 2024, greindu kærendur frá því að þau hafi fjármagnað ferðalag sitt til Íslands með því að selja húsið sitt og að þau séu skuldlaus. M greindi frá því að þau hafi selt húsið fyrir 8000 dollara. M greindi frá því að eiga systkini og K greindi frá því að eiga móður og systur í Venesúela. M greindi frá því að hafa verið með sjálfstæðan atvinnurekstur á býli sínu og hafa selt kaffi en hann hafi hætt um sex mánuðum áður en þau hafi flúið til Íslands þar sem reksturinn hafi gengið illa. K greindi frá því að hafa verið heimavinnandi en síðustu mánuði áður en þau hafi flúið til Íslands hafi hún unnið í lítilli kínverskri matvörubúð. Börnin hafi verið í skóla. Kærendur greindu frá því að þau hafi haft aðgang að drykkjarvatni og að þau hafi haft efni á mat og annarri nauðsynjavöru framanaf en það hafi verið erfitt síðustu mánuði áður en þau hafi flúið til Íslands.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 26. mars 2024, greindu A og B frá því að hafa gengið í skóla, hafa almennt fengið nóg að borða og haft aðgang að læknisþjónustu. Þá greindu þau frá því að eiga fjölskyldu í heimaríki og vera í nánu sambandi við fjölskyldumeðlimi þeirra.

Kærendur hafa greint frá því að að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau séu almennt heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 9. maí 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðu K eiga systur og systurson á Spáni. Þá kváðu kærendur brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér og börnum sínum.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Valgerður María Sigurðardóttir