04 september 2024

/

Úrskurður nr. 891/2024


Hinn 4. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 891/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070099

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 8. júlí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. júní 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 17. apríl 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 12 daga dvöl frá 20. september til 1. október 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. apríl 2024. Með úrskurði nr. 560/2024 frá 24. maí 2024 felldi kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda dags. 30. apríl 2024 úr gildi og lagði fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný, þar sem kærandi hafði á kærustigi lagt fram ný gögn sem haft gætu áhrif á niðurstöðu máls hennar. Umsókn kæranda var aftur synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. júní 2024. Hinn 8. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 8. ágúst 2024.

III. Málsástæður og rök kæranda

Á kærustigi lagði kærandi enn á ný fram nýja flugbókun.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit tíu, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að alvarlegur vafi leiki á því að kærandi hyggist ferðast til Íslands í reynd. Þrátt fyrir að kærandi hafi lagt fram ný gögn hafi ekki verið unnt að staðfesta flugbókun. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Nýju Delí, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Upphaflegri umsókn kæranda var hafnað með ákvörðun Útlendingastofnunar dags. 30. apríl og er sú ákvörðun á meðal gagna málsins. Niðurstaða Útlendingastofnunar í þeirri ákvörðun var í fyrsta lagi að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Í öðru lagi var rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í þriðja lagi hafði kærandi ekki fært sönnur á að hún væri handhafi viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar, en kærandi virðist hafa bætt úr því á síðari stigum málsins, sbr. hina kærðu ákvörðun. Í málaskrá Útlendingastofnunar kemur fram það mat stofnunarinnar að fyrsta flugbókunin sem kærandi lagði fram hafi verið fölsuð. Stafsetningarvillu hafi verið að finna í bókuninni auk þess sem bókunar- og pöntunarnúmer hafi ekki verið í samræmi við snið hlutaðeigandi flugfélags.

Þegar hin kærða ákvörðun var tekin 26. júní 2024 hafði kærandi í tvígang lagt fram flugbókanir sem ekki var hægt að staðfesta. Kærandi lagði á kærustigi fram þriðju flugbókunina en Útlendingastofnun hefur eðli máls samkvæmt ekki tekið afstöðu til þeirrar bókunar. Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Því hefur kærunefnd útlendingamála í vegabréfsáritunarmálum almennt ekki tekið afstöðu til nýrra gagna sem lögð eru fram á kærustigi, ef gögnin gætu haft áhrif á niðurstöðu málsins, heldur fellt ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál fyrir á ný.

Eins og háttar til í þessu máli og með heildarmati á gögnum þess þykir það ekki vera í þágu skilvirkrar stjórnsýslu að senda málið aftur til Útlendingastofnunar. Kærunefnd útlendingamála hefur ekki aðstöðu til að kanna áreiðanleika flugbókana með sama hætti og Útlendingastofnun og þær stofnanir sem hún er í samskiptum við. Réttaröryggi kæranda yrði betur tryggt með því að leiðbeina henni um að leggja fram nýja umsókn um vegabréfsáritun á fyrsta stjórnsýslustigi.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi vegna umræddra flugbókana ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii. tölul. 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands og réttmæti upplýsinga sem kærandi hafði veitt, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður