05 september 2024
/
Úrskurður nr. 870/2024
Hinn 5. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 870/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24010081
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 24. janúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Jemen (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 12. nóvember 2023. Þar sem kærandi var með vegabréfsáritun til Frakklands var send beiðni 14. nóvember 2023 um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda þar í landi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 10. janúar 2024, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 21. nóvember 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 22. janúar 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til viðtökuríkis. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 23. janúar 2024 og barst greinargerð kæranda 6. febrúar 2024. Viðbótargögn bárust 7. mars 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er vísað til viðtals kæranda hjá Útlendingastofnun og greinargerðar hans til stofnunarinnar hvað málsatvik varða.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laganna þar sem meginreglan sé að taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Þrátt fyrir að til staðar séu undantekningar frá meginreglunni beri að skýra þær heimildir þröngt og aldrei með víðtækari hætti en leiði af orðanna hljóðan. Vísar kærandi til 2. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar í þessu samhengi.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi gerir athugasemd við skort á umfjöllun í ákvörðun Útlendingastofnunar um að hann sé samkynhneigður ungur karlmaður af arabískum uppruna sem sé þolandi pyndinga í heimaríki. Kærandi óttist ofsóknir ættingja sinna og bandamanna þeirra. Þá hafi kærandi orðið fyrir fordómum í Frakklandi sem rekja megi til uppruna hans og kynhneigðar. Af þeim sökum geti hann vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærandi vísar til þess að heimildum beri saman um að of lítið framboð sé af húsnæði í Frakklandi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en af þeim sökum endi umsækjendur oft á götunni. Vísar kærandi til alþjóðlegrar skýrslu máli sínu til stuðnings. Jafnframt sé atvinna af skornum skammti og nær útilokað að hann geti fundið sér lífsviðurværi í Frakklandi. Kærandi byggir á því að hann yrði einhleypur ungur maður í sérstaklega viðkvæmri stöðu en sá hópur falli gjarnan milli skips og bryggju þegar komi að réttarvernd í Frakklandi. Kærandi vísar til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.H. o.fl. gegn Frakklandi frá 2. júlí 2020 máli sínu til stuðnings. Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna en hann telur að endursending til Frakklands muni leiða til brots gegn 42. gr. sömu laga, sbr. meginregluna um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi vísar til 2. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og byggir á því að kerfisgallar séu á málsmeðferð og móttökuskilyrðum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi, sem leiði til þess að þessi hópur verði fyrir ómannúðlegri eða lítillækkandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarmannréttindi. Kærandi telji að Ísland skuli bera ábyrgð á umsókn hans enda hafi hann fyrst lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna hvað varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi. Kærandi vísar jafnframt til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli K.I. gegn Frakklandi frá árinu 2021. Kærandi byggir á því að íslenskum stjórnvöldum beri að sýna fram á að þau réttindi sem umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð samkvæmt lögum sé í raun framfylgt. Kærandi vísar til þess að hann kunni að þurfa leita skjóls í óformlegum flóttamannabúðum þar sem hann eigi á hættu að verða fyrir mannréttindabrotum og meðferð sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi vísi til þess að margir óþekktir einstaklingar séu meðvitaðir um samkynhneigð hans og reiðubúnir að framselja upplýsingar um staðsetningu hans til ættingja sem vilji gera honum illt. Kærandi telji að frönsk stjórnvöld virði ekki regluna um bann við endursendingu og því fari endursending hans til viðtökuríkis í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 62/1994, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmálans, 6. og 7. gr. samnings um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins.
4 Umsókn um alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er einstæður karlmaður á [...]. Kærandi hlaut vegabréfsáritun til Frakklands 13. ágúst 2023 með gildistíma til 14. febrúar 2024 en hann dvaldi þar í landi í eina viku að sögn. Kærandi fór þaðan hingað til lands og héðan til Dublin á Írlandi 11. nóvember 2023. Þar sem Írland er ekki hluti af Schengen-svæðinu, og þar sem kærandi var ekki með vegabréfsáritun til Írlands var honum neituð innganga í landið og endursendur til Íslands 12. nóvember 2023 enda hafi hann ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar sinnar þar í landi. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 12. nóvember 2023. Kærandi hefur ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Frakklandi og þekkir ekki til kerfisins fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi greindi frá því að vera samkynhneigður og óttast ættingja sína sem búsettir séu í Frakklandi en þeir hafi hótað honum. Þá óttist hann Araba sem búsettir séu í Frakklandi m.a. vegna kynhneigðar sinnar. Kærandi greindi frá því að axlir hans hefðu brotnað eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í heimaríki og hann fari reglulega úr lið sem hafi áhrif á svefn hans. Þá greindi hann frá því að andleg heilsa hans væri góð.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Kærandi vísar í greinargerð sinni til 2. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og telur að þar sem Ísland sé fyrsta ríkið þar sem hann leggur fram umsókn um alþjóðlega vernd skuli íslensk stjórnvöld bera ábyrgð á umsókn hans um alþjóðlega vernd.
Í 2. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar segir að ef ekki sé unnt að tilnefna eitthvert aðildarríki til að bera ábyrgð á grundvelli þeirra viðmiða sem finna má í reglugerðinni skuli það ríki þar sem umsókn var fyrst lögð fram bera ábyrgð á umsókninni. Í 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar kemur fram að ef umsækjandi er handhafi gildrar vegabréfsáritunar skuli aðildarríkið, sem gaf út vegabréfsáritunina, bera ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Ljóst er að beiðni um að taka mál kæranda í umsjá var beint að frönskum yfirvöldum sem samþykktu þá beiðni. Af þeim sökum skulu kærandi endursendur til Frakklands enda bera frönsk yfirvöld ábyrgð á umsókn hans á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Getur beiting 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar ekki átt við.
Í greinargerð kæranda er vísað til þess að ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar feli í sér heimild en ekki skyldu til að endursenda einstaklinga. Samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar. Þá er vísað til þess í greinargerð að kerfisbundinn galli sé í móttökukerfinu í Frakklandi. Í eftirfarandi umfjöllun hefur verið lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Með vísan til neðangreindrar umfjöllunar verður þeirri málsástæðu kæranda að kerfisbundinn galli sé fyrir hendi í móttökukerfi Frakklands hafnað.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Jafnframt hefur verið lagt mat á þær heimildir sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- Amnesty International Report 2022/23 – France (27. mars 2023);
- Annual Report 2021 (International Committee of the Red Cross (ICRC), 27. júlí 2022);
- Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 30. ágúst 2021);
- Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 10. júlí 2024);
- France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 24. september 2020);
- France 2022 – International religious freedom report (United States Department of State, 15. maí 2023);
- Freedom in the World 2024 – France (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Guide for Asylum Seekers in France (Directorate General for Foreign Nationals in France, september 2020);
- Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/);
- Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðisráðuneytis Frakklands (www.solidarites-sante.gouv.fr);
- Upplýsingar af vefsíðu utanríkisráðuneytis Frakklands (www.diplomatie.gouv.fr);
- Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
- World Report 2024 – European Union (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Frakkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Frakkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 3. maí 1974. Frakkland gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 18. febrúar 1986 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1980 og barnasáttmálann árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 1954.
Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júlí 2024 kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fái umsókn þeirra hefðbundna meðferð í umsóknarkerfi landsins um alþjóðlega vernd. Umsækjendur geti sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fari greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Samkvæmt frönsku útlendingalöggjöfinni (f. Code de l‘entreée et du séjour des étrangers et du roit d‘asile) séu tilteknir hópar nefndir í dæmaskyni sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ. á m. einstæðir foreldrar með ung börn á framfæri sínu, einstaklingar sem eiga við alvarleg veikindi að stríða, þ. á m. geðræn veikindi, einstaklingar sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og þolendur mansals. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), taki svo efnisákvörðun í málinu.
Umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni hjá stofnun um vernd flóttamanna og ríkisborgaralausra einstaklinga (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides (OFPRA)) geti kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins fresti almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoði bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA sé hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fari formleg endurskoðun. Þeir umsækjendur sem synjað hafi verið um alþjóðlega vernd eigi möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir í máli umsækjenda geti skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eigi almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína en það fari þó eftir því í hvaða móttökumiðstöð þeir séu vistaðir. Þegar umsókn hafi verið lögð fram geti þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skuli leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geti einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veiti lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð sé í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi einnig rétt á því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.
Í skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum móttökumiðstöðvum, PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Þeir sem séu endursendir til Frakklands njóti sömu réttinda til húsnæðis og þeir umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð. Árið 2017 hafi einnig verið komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geti verið á meðan beðið sé eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á umsóknarkerfinu í Frakklandi hafi þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fái úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fái gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildi í eitt ár, en slíkt vottorð geri umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti þeir leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt rétt á framfærslu frá franska ríkinu.
Í skýrslunni kemur einnig fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi sé tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfi þó að sækja um aðgang að kerfinu og að hafa dvalið í Frakklandi í þrjá mánuði. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá geti umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd nýtt sér aðgang að sjúkratryggingakerfinu í ákveðinn tíma eftir synjun og í framhaldi af því hafi þeir aðgang að opinberri aðstoð(f. Aide médicale d‘Etat (AME)) sem geri þeim kleift að fá ókeypis meðferð á sjúkrahúsum sem og á læknastofum. Á grundvelli AME eða PUMA eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum komi þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tali frönsku þjónustu. Í umsóknarferlinu sé skimað eftir einstaklingum sem séu í viðkvæmri stöðu, m.a. vegna alvarlegra veikinda og hafi sérþarfir vegna þess.
Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá apríl 2024 kveða lög á um vernd minnihlutahópa, svo sem á grundvelli kynþáttar, þjóðernis, kynhneigðar og gegn hvers kyns ofbeldi og mismunun og stjórnvöld í landinu framfylgi lögunum með skilvirkum hætti. Stjórnvöld hafi almennt sótt gerendur til saka og refsað fyrir ofbeldi á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þá sé ofbeldi gegn slíkum einstaklingum refsivert brot samkvæmt þarlendum refsilögum og sé það virt til refsiþyngingar sé brot framið á þeim grundvelli. Skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins bendir til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist. Þá kemur fram í skýrslunni að í stjórnarskrá Frakklands og landslögum sé kveðið á um sjálfstæði dómsvalds og um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar. Þá starfi í Frakklandi miðstöðvar fyrir LGBT+ einstaklinga sem bjóði upp á lögfræðiaðstoð og margvíslega ráðgjöf.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi er einstæður karlmaður á [...]. Kærandi greindi frá því að axlir hans hefðu brotnað eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás með byssum í heimaríki og hann fari reglulega úr lið sem hafi áhrif á svefn hans. Kærandi greindi frá því að andleg heilsa hans væri góð. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 28. nóvember 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Þá liggur fyrir stuðningsbréf félagsráðgjafa frá Samtökunum ’78, dags. 7. mars 2024, þar sem m.a. kemur fram að kærandi hafi sótt ráðgjöf á vegum samtakanna.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 21. nóvember 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 24. janúar 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Ekki eru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Frakklandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Kæranda mun standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi, en hann muni e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur. Áréttað skal það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Eru aðstæður kæranda tengdar heilsufari ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá teljast heilbrigðisaðstæður kæranda ekki til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærandi hafi ekki þurft að leita til heilbrigðiskerfisins þann tíma sem hann dvaldi í viðtökuríki.
Kærandi greindi frá því að vera samkynhneigður og því óttist hann ættingja sína frá heimaríki sem búsettir séu í Frakklandi. Þá sýndu Arabar í Frakklandi honum ekki virðingu vegna kynhneigðar hans. Framangreindar landaupplýsingar gefa til kynna að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd. Kærandi geti því leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum óttist hann um öryggi sitt eða telji sér mismunað að einhverju leyti. Gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, bera ekki með sér að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hans ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 21. nóvember 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 12. nóvember 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð viðtökuríkis og aðbúnaður umsækjanda þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Gögn málsins bera með sér að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, þ.m.t. möguleika kæranda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá frönskum yfirvöldum. Landaupplýsingar bera með sér að í Frakklandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Kærandi hefur ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Frakklandi.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði í Frakklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Kærandi vísar til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá 2. júlí 2020 í málum nr. 2880/13, 75547/13 og 13114/15, N.H. o.fl. gegn Frakklandi. Málið varðaði fimm einstaklinga sem sóttu um alþjóðlega vernd í Frakklandi árið 2013. Skráning umsókna þriggja þeirra tafðist um meira en þrjá mánuði og á þeim tíma þurftu þeir að mestu að búa á götunni án aðstoðar, án aðgangs að hreinlætisaðstöðu, án möguleika á að sjá sér farborða og í stöðugum ótta við að verða fyrir ofbeldi. Dómurinn taldi að þær aðstæður sem þessir þrír einstaklingar þurftu að búa við hefðu verið þess eðlis og náð því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Atvik þessi áttu sér stað fyrir rúmum áratug í Frakklandi og hefur kæranda ekki tekist að sýna fram á að líkur séu á því að sambærilegt muni henda hann við endursendingu hans þangað til lands. Jafnframt vísar kærandi til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá 15. apríl 2021 í máli nr. 5560/19, K.I. gegn Frakklandi. Í málinu komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að endursending tétjenskra ríkisborgara til Rússlands vegna afturköllunar á alþjóðlegri vernd þeirra vegna hryðjuverkadóms hefði verið brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefðu frönsk yfirvöld átt að taka tillit til þess að viðkomandi væri ennþá flóttamaður. Verður umsókn kæranda ekki jafnað til þeirra atvika sem fram koma í síðarnefnda dómnum enda ljóst að umsókn kæranda mun sæta efnismeðferð við komu hans til Frakklands. Líkt og ráða má af framangreindri umfjöllun um málsmeðferð og aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi, hefur mat verið lagt á þær aðstæður sem kærandi megi búast við þar í landi. Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 12. nóvember 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Frakklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Gunnar Páll Baldvinsson