05 september 2024
/
Úrskurður nr. 888/2024
Hinn 5. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 888/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24020025 og KNU24020026
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. febrúar 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Íran (hér eftir M), og [...], fd. [...], ríkisborgara Íran (hér eftir K) um alþjóðlega vernd og vísa þeim frá landinu.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærendur lögðu ekki fram greinargerð til kærunefndar.
2 Málsmeðferð
Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 2. nóvember 2023. Þar sem kærendur voru með vegabréfsáritanir til Frakklands var beiðni dags. 23. nóvember 2023, um viðtöku kærenda og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd, beint til yfirvalda þar í landi, sbr. 4. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 23. janúar 2024, samþykktu þau viðtöku kærenda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. desember 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 26. janúar 2024 að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærendur yrðu send til viðtökuríkis. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum 26. janúar 2024. Frekari gögn bárust kærunefnd 22. ágúst 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Kærendur lögðu ekki fram greinargerð til kærunefndar. Verður því úrskurðað í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
4 Umsókn um alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsókna kærenda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kærenda
Kærendur eru par á [...]. Kærendur fengu útgefnar vegabréfsáritanir til Frakklands þar sem þau dvöldu frá 17. til 21. október 2023. Kærendur komu hingað til lands 21. október 2023 og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 2. nóvember 2023. Kærendur hafa ekki lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Frakklandi og þekkja ekki til kerfisins fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærendur hafa greint frá því að þau óttist íranska sendiráðið í Frakklandi en írönsk stjórnvöld hafi beitt ofbeldi í öðrum Evrópuríkjum. Þá sé einstaklingur innan fjölskyldu M háttsettur innan íranskra stjórnvalda og því sé auðvelt fyrir stjórnvöld þar í landi að fylgjast með þeim í Frakklandi. K greindi frá því að vera með [...] sem hún hafi fengið lyf við auk þess sem hún hafi þurft að undirgangast [...] í heimaríki. Jafnframt væri K með [...] eftir ofbeldi af hálfu tengdafjölskyldu hennar. K glími við [...] auk þess sem hún hafi miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni sem sé undir þrýstingi frá fjölskyldu M. K eigi í vandræðum með svefn. M greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en vegna aðstæðna í heimaríki væri hann með [...] sem hann taki inn lyf vegna. Jafnframt sé M með [...]. M hafi farið í sálfræðimeðferð í heimaríki og notað þunglyndislyf um tíma en hætt því.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsóknum kærenda er byggð á 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærendur hafi fengið útgefnar vegabréfsáritanir til viðtökuríkis. Er því heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kærendum, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017);
- Amnesty International Report 2022/23 – France (27. mars 2023);
- Annual Report 2021 (International Committee of the Red Cross (ICRC), 27. júlí 2022);
- Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 30. ágúst 2021);
- Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 10. júlí 2024);
- First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015);
- France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 24. september 2020);
- France 2022 – International religious freedom report (United States Department of State, 15. maí 2023)
- Freedom in the World 2023 – France (Freedom House, mars 2023);
- Guide for Asylum Seekers in France (Directorate General for Foreign Nationals in France, september 2020);
- Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/);
- Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðisráðuneytis Frakklands (www.solidarites-sante.gouv.fr);
- Upplýsingar af vefsíðu utanríkisráðuneytis Frakklands (www.diplomatie.gouv.fr);
- Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
- World Report 2024 – European Union (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Frakkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Frakkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 3. maí 1974. Frakkland gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 18. febrúar 1986 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1980 og barnasáttmálann árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 1954.
Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júlí 2024 kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fái umsókn þeirra hefðbundna meðferð í umsóknarkerfi landsins um alþjóðlega vernd. Umsækjendur geti sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fari greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Samkvæmt frönsku útlendingalöggjöfinni (f. Code de l‘entreée et du séjour des étrangers et du roit d‘asile) séu tilteknir hópar nefndir í dæmaskyni sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ. á m. einstæðir foreldrar með ung börn á framfæri sínu, einstaklingar sem eiga við alvarleg veikindi að stríða, þ. á m. geðræn veikindi, einstaklingar sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og þolendur mansals. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), taki svo efnisákvörðun í málinu.
Umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni hjá stofnun um vernd flóttamanna og ríkisborgaralausra einstaklinga (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides (OFPRA)) geti kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins fresti almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoði bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA sé hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fari formleg endurskoðun. Þeir umsækjendur sem synjað hafi verið um alþjóðlega vernd eigi möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir í máli umsækjenda geti skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eigi almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína en það fari þó eftir því í hvaða móttökumiðstöð þeir séu vistaðir. Þegar umsókn hafi verið lögð fram geti þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skuli leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geti einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veiti lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð sé í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi einnig rétt á því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.
Í skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum móttökumiðstöðvum, PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Þeir sem séu endursendir til Frakklands njóti sömu réttinda til húsnæðis og þeir umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð. Árið 2017 hafi einnig verið komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geti verið á meðan beðið sé eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á umsóknarkerfinu í Frakklandi hafi þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fái úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fái gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildi í eitt ár, en slíkt vottorð geri umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti þeir leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt rétt á framfærslu frá franska ríkinu.
Í skýrslunni kemur einnig fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi sé tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfi þó að sækja um aðgang að kerfinu og að hafa dvalið í Frakklandi í þrjá mánuði. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá geti umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd nýtt sér aðgang að sjúkratryggingakerfinu í ákveðinn tíma eftir synjun og í framhaldi af því hafi þeir aðgang að opinberri aðstoð(f. Aide médicale d‘Etat (AME)) sem geri þeim kleift að fá ókeypis meðferð á sjúkrahúsum sem og á læknastofum. Á grundvelli AME eða PUMA eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum komi þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tali frönsku þjónustu. Í umsóknarferlinu sé skimað eftir einstaklingum sem séu í viðkvæmri stöðu, m.a. vegna alvarlegra veikinda og hafi sérþarfir vegna þess.
Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá apríl 2024 kveða lög á um vernd minnihlutahópa, svo sem á grundvelli kynþáttar, þjóðernis, kynhneigðar og gegn hvers kyns ofbeldi og mismunun og stjórnvöld í landinu framfylgi lögunum með skilvirkum hætti. Þá sé ofbeldi gegn slíkum einstaklingum refsivert brot samkvæmt þarlendum refsilögum og sé það virt til refsiþyngingar sé brot framið á þeim grundvelli. Skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins bendir til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist. Þá kemur fram í skýrslunni að í stjórnarskrá Frakklands og landslögum sé kveðið á um sjálfstæði dómsvalds og um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærendur eru par á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera með [...] sem hún hafi fengið lyf við auk þess sem hún hafi þurft að undirgangast [...] í heimaríki eftir ofbeldi tengdafjölskyldu. Tengdafaðir hafi hrint henni svo [...] og mágkona hennar hafi hrint henni niður stiga. . Jafnframt væri K með [...] í kjölfar þess að tengdafjölskylda hennar hafi látið hana setja hluti upp í leggöng sín eftir íslamskri læknisfræði til að auka líkur á að hún yrði barnshafandi. K hafi fengið sýkingu og þurft að leita til læknis vegna þessa og [...]. K glími við [...] auk þess sem hún hafi miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni sem sé undir þrýstingi frá fjölskyldu M. K eigi í vandræðum með svefn. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 20. nóvember 2023 til 23. apríl 2024, kemur m.a. fram að K hafi greint frá því að hafa farið í nokkrar aðgerðir vegna brjóskloss í mjóbaki. K hafi undirgengist [...] en á endanum hafi hún farið í legnám. K hafi tekið inn þunglyndislyf í kjölfarið en hafi hætt á þeim fyrir þremur árum síðan. K hafi leitað til Göngudeildar sóttvarna vegna þess að hún hafi klárað blóðþrýstingslyf sín og kvartað undan höfuðverk. K hafi verið með blóðþrýsting í efri mörkum. Þá hafi K komið í eftirlit vegna blóðþrýstings og greint frá því að vera með [...] (e. rhinitis). K hafi verið ávísað blóðþrýstingslyfjum. K hafi jafnframt komið í nokkur skipti í eftirlit á Göngudeild sóttvarna vegna blóðþrýstings. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 7. maí til 14. ágúst 2024, kemur m.a. fram að K hafi greint frá mæði og hröðum hjartslætti þegar hún hreyfi sig. Lungnahlustun hafi verið hrein. K hafi greint frá því að reykja og að hún stundi ekki hreyfingu. Sennilega hafi því verið um þrekleysi að ræða. K hafi verið flutt í annað búsetuúrræði og fundið fyrir streitu og kvíða í kjölfarið. K sé í þörf fyrir ómun á hjarta vegna ættarsögu um hjartasjúkdóma. Samkvæmt Hjartavernd hafi ekki verið um [...] að ræða. Þá hafi K hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna.
M greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en vegna aðstæðna í heimaríki væri hann með [...] sem hann taki inn lyf vegna. Jafnframt sé M með [...]. M hafi farið í sálfræðimeðferð í heimaríki og notað þunglyndislyf um tíma en hætt því. Í málunum liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 28. nóvember 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 20. nóvember 2023 til 2. janúar 2024, kemur m.a. fram að M hafi leitað þangað vegna verkjar í vinstri síðu og nára auk þess sem hann hafi tekið eftir blóði í þvagi og séð [...]. M hafi verið með mikla verki en verið hitalaus. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 29. febrúar 2024 til 27. júní 2024, kemur fram að M hafi hitt sálfræðing þar í þrjú skipti. M hafi farið í mikið uppnám í viðtali 23. maí 2024 og óskað eftir að blóðþrýstingur yrði mældur hjá hjúkrunarfræðingi. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 9. júlí til 2. ágúst 2024, kemur m.a. fram að M hafi greint frá miklu álagi sem hafi aukist til muna eftir að þau hafi verið flutt í búsetuúrræði í öðru bæjarfélagi. Kærendur hafi þó verið flutt aftur til Reykjavíkur. M hafi greint frá [...], svima og höfuðverk í hnakka og herðum. M hafi fengið ráðleggingar um hreyfingu og hugleiðslu auk þess sem hann hafi fengið ávísað svefnlyfi. Þá hafi M komið í eftirlit og greint frá því að líða betur en fá martraðir af og til. M sé virkari og vinni sjálfboðavinnu hjá Rauða krossinum. Ekki hafi verið talið þörf á frekari eftirliti með M.
Kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 7. desember 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau teldu hafa þýðingu fyrir mál sín, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málanna hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 5. febrúar 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd 22. ágúst. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málunum eru mál kærenda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kærenda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kærenda sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Ekki eru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Frakklandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærendur geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Samkvæmt framangreindu kemur kærendum því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi, þótt þau muni e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálf. Áréttað skal það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Eru aðstæður kærenda tengdar heilsufari ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kærenda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærendur hafi ekki þurft að leita til heilbrigðiskerfisins þann tíma sem þau dvöldu í Frakklandi.
Kærendur greindu frá því að óttast íranska sendiráðið í Frakklandi en írönsk stjórnvöld hafi beitt ofbeldi í öðrum Evrópuríkjum að þeirra sögn. Kærendur vísa til þess að einstaklingur innan fjölskyldu M sé háttsettur innan íranskra stjórnvalda og því sé auðvelt fyrir stjórnvöld þar í landi að fylgjast með þeim í Frakklandi. Framangreindar landaupplýsingar benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd. Kærendur geti því leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum óttist þau um öryggi sitt eða telji sér mismunað að einhverju leyti. Að framangreindu virtu bera gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, ekki með sér að þau muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda verða umsóknir þeirra ekki teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun 7. desember 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærendur lögðu fram umsóknir sínar um alþjóðlega vernd hér á landi 2. nóvember 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verða umsóknir kærenda ekki teknar til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð viðtökuríkis og aðbúnaður umsækjanda þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Gögn málsins bera með sér að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kærenda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði í Frakklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, hefur ekki verið sýnt fram á að þau eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verða umsóknir kærenda ekki teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Frávísun
Kærendur komu hingað til lands 21. október 2023 og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 2. nóvember 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærendur skulu flutt til Frakklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Gunnar Páll Baldvinsson