12 september 2024
/
Úrskurður nr. 897/2024
Hinn 12. september 2024 kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 897/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24050005 og KNU24050006
Kæra [...] og barna þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 30. apríl 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. apríl 2024, um að synja þeim og börnum þeirra, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvarðanir Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom M til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 21. mars 2023. K kom til landsins frá Venesúela og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn kærenda 10. júlí 2023. M kvaðst vera kominn hingað til lands til að sækja um alþjóðlega vernd vegna ástandsins í Venesúela. M hafi hlotið þjálfun og starfað sem lögreglumaður í Venesúela þar til árið 2022 þá hafi hann starfað sem hárgreiðslumaður. M hafi borgað fyrir farmiða hingað til lands fyrir sig, móður sína og systkini sín. M kvaðst eiga föður og þrjú börn í Venesúela. M sé við góða heilsu og bólusettur við Covid-19. K kvaðst vera sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem hún sé í hættu í Venesúela og vegna þess að barnsfaðir hennar væri á Íslandi. K hafi starfað í snyrtivörubúð í heimaríki og hafi borgað fyrir farmiða til Íslands. K sé með nýrnasteina en hún og börnin séu að öðru leyti heilsuhraust.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 25. október 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. M greindi frá því að hafa verið fæddur í Karakas og uppalinn í Karakas og […] í Miranda fylki. K greindi frá því að hafa verið fædd og uppalin í Karakas. Kærendur hafi verið búsettir í Karakas og Miranda fylki þegar þau hafi flúið heimaríki, M í mars 2023 og K og börn kærenda í júlí 2023. Kærendur kváðust hvorki vera af sérstökum þjóðernisuppruna né hluti af minnihluta hópi í heimaríki. Kærendur greindu einnig frá því að hafa hvorki verið aðilar að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki.
M greindi frá því að hafa verið lögreglumaður hjá PNB (s. Policia Nacional Bolivariana) í heimaríki í 11 ár. Hann hafi hætt í því starfi um miðjan nóvember 2022 og þá byrjað að vinna sem hárgreiðslumaður heimavið. M greindi frá því að 16. október 2022 hafi hann ásamt þremur öðrum lögreglumönnum handtekið þrjá meðlimi glæpahópsins 300 sem hafi starfað í Miranda fylki og annars staðar í Venesúela. Við handtökuna hafi þessir einstaklingar hótað þeim og reynt að bjóða M mútur. M og hinir lögreglumennirnir hafi farið með þá í fangaklefa yfir nóttina og til hafi staðið að leiða þá fyrir dómara daginn eftir. Þegar M hafi komið til starfa daginn eftir hafi hann verið upplýstur um að meðlimum glæpahópsins hafi verið sleppt þar sem þeir hafi borgað lögreglustjóranum mútur. Eftir eina viku hafi M farið að berast hótanir frá meðlimum glæpahópsins. M hafi tilkynnt hótanirnar til lögreglustjórans en hann hafi sagt M að hafa ekki áhyggjur. Þegar M hafi borist nokkrar hótanir til viðbótar hafi hótanir glæpahópsins farið að snúast um fjölskyldu M, svo sem um að þeir vissu hvar K ynni, hvenær hún byrjaði og hætti í vinnunni og í hvaða skóla barnið hans væri. M hafi orðið áhyggjufullur og þá hafi kærendur ákveðið að flytja til móður K. Í desember, þegar M var á leið í vinnu, hafi þungvopnaðir menn í svörtum bíl bundið fyrir munn hans og neytt M inn í bílinn. Mennirnir hafi sett eitthvað yfir höfuð M, keyrt í hringi í um tvær klukkustundir og krafið hann um 5000 dollara greiðslu. Mennirnir hafi verið klæddir í einkennisbúninga sem svipuðu til einkennisbúninga leyniþjónustunnar en M hafi ekki verið viss um að það hafi verið sömu búningar. Að lokum hafi þeir hent M út úr bílnum á ferð. M hafi leitað sér aðhlynningar á lítilli neyðarmóttöku og síðan hafi hann farið á lögreglustöðina þar sem hann starfaði til að sýna áverkana. Lögreglustjórinn hafi sent M í tveggja vikna hvíld frá störfum. M hafi orðið hræddur því að hann vissi að glæpahópurinn hafði tengsl við yfirvöld í Venesúela, hann hafði enga vernd og lögreglustjórinn hafi ekki gert neitt. Hótanirnar hafi haldið áfram og orðið alvarlegri þar sem M hafi ekki greitt glæpahópnum. Meðlimir glæpahópsins hafi byrjað að hóta móður M og bróður. M hafi flutt til móður sinnar og K hafi flutt til systur sinnar og eftir 15 daga leyfi hafi M mætt aftur til vinnu. M hafi sýnt lögreglustjóranum skilaboð með hótunum. Lögreglustjórinn hafi þá sent M í frí til að rannsaka málið. Þar sem lögreglustjórinn hafi tekið við mútum frá meðlimum glæpahópsins og M fannst hann ekki hafa neina vernd ákvað hann að leggja fram kæru hjá CICPC lögreglunni í desember 2022. M hafi haft samband við CICPC aftur en ekki fengið nein svör. Eftir eins mánaða frí hafi M mætt aftur til starfa. M hafi sýnt lögreglunni fleiri skilaboð og sagt þeim frá símtölum sem K hafi fengið, þá hafi M verið færður í aðra deild innan lögreglunnar. Á þeim tímapunkti hafi M ákveðið að biðjast lausnar frá störfum sínum hjá lögreglunni, þar sem hann hafi ekki fengið nein svör frá CICPC og lögreglustjórinn hafi ekki getað verndað hann. Beiðni hans hafi verið hafnað af mannauðsdeildinni en það hafi ekki verið gert skriflega. M hafi mætt til starfa í einn til tvo daga og síðan hætt og farið að undirbúa það að fara burtu ásamt fjölskyldu sinni. M greindi frá því að hann og hinir tveir lögreglumennirnir sem hafi handtekið meðlimi glæpahópsins hafi allir fengið hótanir og að móðir hans hafi einnig fengið hótanir. Faðir hans, sem hafi orðið eftir í Venesúela að annast aldraða ömmu M, hafi ekki átt síma og því ekki fengið hótanir. Hótanir til kærenda hafi byrjað í skilaboðum en svo hafi þau fengið símtöl. M hafi borist síðasta hótunin í lok febrúar 2023. M kvaðst ekki vita af hverju hótanirnar hafi hætt í febrúar, svo hafi hann skipt um símanúmer þegar hann hafi komið til Íslands í mars 2023. Hótanirnar hafi ekki hætt þrátt fyrir að kærendur og börn þeirra hafi flutt til móður K. M greindi frá því að hafa eytt mörgum af skilaboðunum áður en hann hafi flúið heimaríki þar sem leitað sé á einstaklingum og símar þeirra jafnvel skoðaðir á flugvellinum í Karakas til að sjá hvort fólk sé að yfirgefa landið til að sækja um vernd í öðrum löndum. Það hafi hins vegar ekki hent M, en hann kvaðst ekki hafa fengið að fara úr landi ef þeir hafi vitað að hann væri að fara sækja um vernd í öðru landi. M kvaðst hafa vitað að glæpahópurinn sem hafi hótað þeim og rænt honum hafi verið tengdur stjórnvöldum því hópurinn hafi haft mikil völd og til að hafa slík völd verði glæpahópur að hafa tengsl við yfirvöld í Venesúela. M greindi frá því að hafa farið til Íslands með móður sinni og systkinum á undan K og börnum þeirra af því að hann hafi óttast um heilsu móður sinnar og vegna þess að K og börnin hafi ekki átt vegabréf og hafi þurft að selja hús þeirra og slíkt. M kvaðst óttast að meðlimir glæpahópsins myndu drepa hann og fjölskyldu hans ef þau sneru aftur til Venesúela, þeir muni vita af því um leið og hann kæmi á flugvöllinn í Venesúela. Það yrði skráð í kerfið að hann væri að koma til baka og hafi verið lögreglumaður.
M greindi einnig frá því að almennt ástand í Venesúela og félagsleg- og fjárhagsleg staða hans og fjölskyldu hans hafi verið ástæða flótta þeirra frá heimaríki. Venesúelabúar séu hins vegar að aðlagast almenna ástandinu, ef þeir fái ekki að borða einn daginn þá borði þeir næsta dag en það sé ekkert hægt að gera varðandi hótanirnar. M greindi frá því að þar sem hann hafi ekki fengið vernd yfirvalda í heimaríki áður hafi hann ekki trú á að fá hana snúi hann til baka.
K greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að í október 2022 hafi M handtekið meðlimi glæpahópsins 300 en þeim hafi verið sleppt fljótlega samkvæmt fyrirmælum lögreglustjórans. Fljótlega eftir það hafi M borist símtal frá meðlimum hópsins og fjölskyldunni hafi verið hótað lífláti. Í nóvember hafi K farið að berast símtöl frá meðlimum glæpahópsins. Þeir hafi sagst vita í hvaða skóla A væri og í hverju K klæddist þann daginn. Í desember hafi M verið rænt, K hafi fengið símtal frá meðlimum glæpahópsins og M hafi fengið að tala við hana. M hafi verið í haldið í um tvær klukkustundir og hann hafi hringt í K þegar meðlimir glæpahópsins hafi sleppt honum. Þá hafi kærendur ákveðið að flytja í hús vina sinna í Santa Teresa og þar hafi þau verið í um mánuð. Þeim hafi hætt að berast hótanir í þennan mánuð en þá hafi meðlimir glæpahópsins fundið þau aftur og byrjað að hóta þeim, sagst vita hvar þau væru og að börnin væru með þeim. Síðar í viðtalinu greindi K frá því að kærendum hafi borist símtöl þennan mánuð en meðlimir glæpahópsins hafi bara einu sinni lýst fyrir þeim staðsetningu þeirra í símtali. Eftir þetta hafi M farið til móður sinnar og K til systur sinnar. Móður M hafi farið að berast símtöl frá meðlimum glæpahópsins og í eitt skipti hafi hún orðið svo hrædd að hálft andlit hennar hafi lamast. M, móðir hans og systkini hafi farið til Íslands í mars því það hafi ekki verið til nægir peningar fyrir alla til að ferðast. K hafi verið áfram hjá systur sinni og einn daginn eftir að M hafi farið hafi K borist símtal þar sem meðlimir glæpahópsins hafi sagt henni að þeir vissu hvar hún væri og í hvernig fötum barn hennar væri. Þeir hafi vitað að M væri farinn. K hafi borist skilaboð um hverju hún klæddist þrátt fyrir að hún hafi verið inni á heimili systur sinnar. Í apríl hafi hún selt íbúð kærenda og þá hafi henni borist símtal frá meðlimum glæpahópsins sem hafi krafist greiðslu vegna M. K hafi sótt um vegabréf og fyllt út skjöl til að yfirgefa Venesúela. Þegar K hafi verið að fylla út pappírana hafi hún fengið annað símtal frá glæpahópnum sem hafi verið að fylgjast með henni. K hafi lokið við að fylla út pappírana og farið frá landinu, nánast án þess að kveðja fjölskyldu sína. K greindi frá því að M hafi leitað til lögreglu vegna hótana en það hafi ekki neitt komið út úr því. K greindi frá því að hún hafi eyðilagt símakortið sitt þegar hún hafi komið til Íslands og þá hafi hótanirnar hætt. K kvaðst óttast að þau yrðu öll drepin ef fjölskyldan sneri aftur til Venesúela. K greindi frá að geta lifað með almennu ástandi í Venesúela en ekki óörygginu og glæpunum. K óttist um líf sitt og fjölskyldu sinnar og að vera sett að ósekju í fangelsi. K teldi enga aðstoð að fá frá lögreglu eða yfirvöldum í Venesúela.
A mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 1. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. A kvaðst hafa búið með foreldum sínum og litlu systur í íbúð í Venesúela. Faðir hennar hafi starfað sem lögreglumaður og móðir hennar hafi verið heimavinnandi. A greindi frá því að eiga stóra móðurfjölskyldu í Venesúela sem hún hafi ekki hitt mikið en talað við í síma. A hafi liðið ágætlega í Venesúela en ekki verið örugg þar eftir að faðir hennar hafi lent í ofsóknum. A hafi eitt sinn verið með móður sinni á leikvelli og móðir hennar hafi gripið í handlegg hennar því það hafi menn verið að fylgjast með þeim. A hafi ekki séð mennina. Eitt sinn hafi faðir hennar komið heim marinn og stuttu síðar hafi faðir hennar farið frá Venesúela. A greindi frá því að móðir hennar hafi fengið námsskrá og gögn úr skólanum og kennt henni heima daglega. A hafi gengið í skóla þegar hún hafi verið 6 og 7 ára en ekki eftir það. A hafi ekki farið mikið út eftir atvik á leikvellinum, en fyrir það hafi hún farið með móður sinni og systur. A hafi ekki leikið mikið við vini sína og ekki verið í miklu sambandi við þá þar sem þeir hafi átt síma en ekki hún. A kvaðst vera við góða heilsu og að móðir hennar hafi læknað hana ef hún hafi fengið flensur. A hafi fengið nóg að borða og átt föt til skiptanna. A kvaðst ekki vita í hvaða borg eða fylki hún hafi búið. Hún hafi flutt þrisvar sinnum en hafi ekki vitað hvort það hafi verið á sama svæði eða í sömu borg. A greindi frá því að hún hafi haldið að faðir sinn hafi verið lögreglumaður, hún hafi oft spurt hann út í það en hann hafi ekki viljað svara því. A kvaðst ekki vita hvort hann hafi verið í lögreglubúning, hann hafi alltaf verið í venjulegum fötum en alltaf með tösku með sér. A hafi ekki vitað neitt um ofsóknir á hendur föður sínum, einungis að hann hafi verið ofsóttur.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins B kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.
Kærendur lögðu fram nokkur skjöl við meðferð mála þeirra hjá Útlendingastofnun. Kærendur lögðu m.a. fram skjöl sem þau kveða vera afrit af lögregluskírteini M, háskólaskírteini um að M hafi tekið grunnnámskeið í lögregluþjálfun, hótanir í símaskilaboðum og kæru til CICPC lögreglunnar. Kærendur lögðu einnig fram myndir sem þau kveða vera af áverkum M eftir að honum hafi verið rænt.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 30. apríl 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 13. maí 2024. Hinn 20. ágúst 2024 barst kærunefnd viðbótarathugasemdir frá kærendum.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kærenda til kærunefndar er vísað til greinargerðar þeirra til Útlendingastofnunar hvað málsatvik, kröfur, málsástæður og lagarök varðar. Þar kemur m.a. fram að kærendur og börn þeirra séu ríkisborgarar Venesúela. M hafi starfað sem lögreglumaður í heimaríki. Í kjölfar atviks við störf hans, þar sem M hafi handtekið meðlimi glæpahóps, hafi M byrjað að berast hótanir frá stjórnvöldum og/eða glæpahópum, bæði í skilaboðum og símtölum. Hótanir hafi síðar raungerst þegar M hafi verið rænt og hótanir hafi haldið áfram að berast eftir það. Enga aðstoð hafi verið að fá frá lögreglu eða yfirvöldum og hafi kærendur og börn þeirra því réttmætar ástæður til að óttast um líf, öryggi, heilsu og velferð sína.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærendur mótmæla hinum kærðu ákvörðunum sem efnislega röngum, enda hafi ekki legið fyrir ríkar né veigamiklar ástæður eða nýlegar áreiðanlegar heimildir sem réttlæti breytta framkvæmd frá því sem var, sbr. úrskurðir kærunefndar útlendingamála nr. 274/2022 og 231/2022. Þvert á móti sé staðan verri í dag en hún hafi verið þegar framangreindir úrskurðir hafi verið kveðnir upp. Kærendur mótmæla nýlegum úrskurðum kærunefndar sem hafi staðfest breytta framkvæmd Útlendingastofnunar sem efnislega röngum og telja þá ekki geta haft fordæmisgildi um almennt ástand í Venesúela. Kærendur vísa til jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins hvað varðar breytta framkvæmd. Systir M hafi verið veitt vernd hér á landi og því eigi einnig að veita kærendum og börnum þeirra vernd. Þá byggja kærendur á því að með vísan til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, séu gerðar ríkar kröfur á Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála til rannsóknar á ástandi innan landsins og aðstæðum kærenda. Með vísan til framangreinds sé þess krafist að tekin sé skýr afstaða til niðurstöðu Bandaríkjamanna frá 2023 þar sem ástandið í Venesúela hafi verið metið svo alvarlegt að vernd ríkisborgara Venesúelabúa hafi verið framlengd sjálfkrafa um 18 mánuði, sem og nýjustu frétta og skýrslna. Kærendur byggja einnig á því að ef niðurstaða kærunefndar verði sú að staðfesta breytta framkvæmd og að meta skuli einstaklingsbundnar aðstæður kærenda, þá eigi það sama við. Mál kærenda nái því alvarleikastigi að þau falli undir verndarsvið laga um útlendinga, a.m.k. ákvæði hinnar svokölluðu viðbótarverndar, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja heimildir um almennt ástand í samræmi við frásögn kærenda, sem geri frásögn þeirra trúverðuga og sé framangreint til marks um raunverulegt og núverandi ástand í Venesúela. Flóttafólk frá Venesúela sé ekki einungis að flýja verðbólguna heldur miklu fremur ógnarstjórn, ofbeldi og pólitískar ofsóknir. Kærendur hafi greint frá hörmulegri lífsreynslu sem þau hafi orðið fyrir vegna starfa M í viðtölum hjá Útlendingastofnun.
Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Kærendur leggja fram frekari gögn til stuðnings frásögn þeirra. Krafa Útlendingastofnunar um framlagningu gagna hvað varðar handtökur meðlima glæpahóps séu að mati kærenda óraunhæfar og ekki í samræmi við meðalhófsreglu.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þau falli undir verndarsvið laga um útlendinga. Þeim hafi borist hótanir frá meðlimum glæpahóps, M hafi verið rænt og hann beittur ofbeldi í tengslum við störf sín sem lögreglumaður. Kærendur hafi ekki getað treyst á vernd lögreglu eða yfirvalda. Kærendur hafi óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að ástandið í Venesúela hafi ekki breyst til hins betra, heldur þvert á móti sé það verra en það hafi verið. Venesúela sé ríki sem hafi brugðist að öllu leyti frá öllum sjónarhornum, þar sem ríkið tryggi ekki velferð, öryggi og heilsu borgara sinna. Fólk sé ekki bara að flýja verðbólgu í Venesúela heldur ógnarstjórn, ofbeldi og pólitískar ofsóknir. Almennt ástand í Venesúela eigi að fullum fetum við einstaklingsbundið mat á aðstæðum kærenda og nái því alvarleikastigi að falla undir viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. og 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur telji að ástandið í Venesúela sé alls staðar hið sama og að þeim og börnum þeirra yrði áfram hætta búin í landinu óháð búsetu. Kærendur telji því ekki raunhæft né sanngjarnt að telja að þau geti sest að annars staðar í heimaríki, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærendur vísa til frétta af brottflutningi ríkisborgara Venesúela í nóvember 2023 þar sem staðfest hafi verin sú hætta sem felist í ferðalögum til Venesúela og innan landsins. Heimferðin hafi ekki verið farsæl þrátt fyrir að fólk hafi sýnt samvinnu með stjórnvöldum á Íslandi. Af fréttum megi herma að heimferðarstyrkur hafi í einhverjum tilvikum lent í höndum venesúelskra stjórnvalda og að sumir einstaklingar eigi yfir höfði sér ákæru fyrir landráð. Umræddir einstaklingar hafi verið frelsissviptir við heimkomu, settir í varðhald og vegabréf og fjármunir þeirra haldlagðir. Einstaklingar hafi verið yfirheyrðir af lögreglu vegna málsins og knúnir gegn vilja sínum til að undirrita skjöl þess efnis að þeir hafi framið föðurlandssvik, sem sé refsivert brot þar í landi, fyrir það eitt að hafa sótt um vernd. Samkvæmt yfirlýsingu frá dómsmálaráðuneytinu og Útlendingastofnun vegna málsins liggi ljóst fyrir að framangreindir einstaklingar hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti við komu til Venesúela þvert gegn því sem hafi verið lofað og rætt um af hálfu yfirvalda í Venesúela. Síðbúnar skýringar stjórnvalda um COVID próf verði að teljast vægast sagt ótrúverðugar, einkum í ljósi þess að stjórnvöld í Venesúela hafi haft svigrúm og fullt tilefni til að nefna það í aðdraganda brottflutnings. Þá séu frásagnir þeirra brottfluttu einstaklinga sem hafi sagst vera frjálsir ferða sinna og með eignir sínar í fórum sínum, að engu marki takandi í ljósi ofbeldissögu og ógnarstjórnunar yfirvalda í Venesúela. Framangreint mál sé ekki nægilega upplýst svo að uppfyllt séu skilyrði 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 68 gr. stjórnarskrár Íslands. Eigi það sérstaklega við þar sem ákvæði 42. gr. laga um útlendinga áskilji litlar sem engar sönnunarkröfur, en þar sé einungis tilgreint að bannað sé að brottflytja fólk þangað sem líf þeirra og frelsi kunni að vera í hættu eða sá hinn sami einstaklingur hafi ástæðu til þess að óttast ofsóknir, líflát eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Dugi því minnstu líkindi til þess að skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt. Líkt og mál kærenda sé vaxið séu að þeirra mati skilyrði ofsókna og ómannúðlegrar og vanvirðandi meðferðar í skilningi umrædds ákvæðis uppfyllt. Kærendur vísa til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar hvað varðar kröfu á Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála um rannsókn á málum brottfluttra einstaklinga í Venesúela og framangreinda meðferð stjórnvalda þar í landi í kjölfar brottflutningsins. Kærendur krefjist þess að tekin sé skýr afstaða til framangreinds í úrskurði kærunefndar útlendingamála.
Kærendur telja að með endursendingu þeirra og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
Hvað varðar lagarök að öðru leyti vísa kærendur almennt til laga um útlendinga, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög 62/1994, stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, stjórnsýslulaga nr. 37/1993, alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, barnalaga nr. 76/2003 og annarra alþjóðlegra skuldbindinga á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Kærendur lögðu fram sjö myndir við meðferð máls þeirra hjá kærunefnd. Kærendur lögðu m.a. fram myndir af M í lögreglufatnaði, starfsskírteini M sem Supervisor de Escolta í Unidad Tactica de Combata U.T.C. ogstarfskírteini M hjá FAES lögreglusveitinni.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu í 10. gr. stjórnsýslulaga og meðalhóf hvað varðar sönnunarkröfur sem lagðar hafi verið á kærendur um framlagningu gagna.
Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. þ. á. m. trúverðugleikamat, málsmeðferð Útlendingastofnunar og mat stofnunarinnar á almennu ástandi í Venesúela. Með vísan til alls framangreinds og þess að kærunefnd hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun er ekki ástæða til að gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. ágúst 2024);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezeula (Britannica, síðast uppfært 4. september 2024);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 4. september 2024);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun í júlí 2024 höfðu um 530 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 520 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau og börn þeirra séu í hættu í heimaríki vegna almenns ástands. Þar að auki byggja kærendur umsóknir sínar á því að þau hafi orðið fyrir ofbeldi og hótunum í heimaríki af hálfu glæpahóps á vegum stjórnvalda vegna starfa M. Þá byggja kærendur á því að þau eigi á hættu ofsóknir af þeirri ástæðu einni að þau snúi til baka til heimaríkis.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þeim hafi ítrekað borist hótanir frá meðlimum glæpahópsins 300 og að M hafi verið rænt og hann beittur ofbeldi í tengslum við störf hans sem lögreglumaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa starfað sem lögreglumaður í venesúelsku ríkislögreglunni. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði M fram afrit af skjali sem ber með sér að vera útprent úr tölvukerfi. Skjalið sýnir ekki hvaðan það sé tekið en af því má ráða að M hafi byrjað störf hjá CPNB árið 2011 og hafi starfað sem lögreglumaður í 11 ár. Þá ber skjalið með sér að M hafi starfað í DAET-DIP deild lögreglunnar, sem sé glæparannsóknadeild CPNB lögreglunnar samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd hefur kynnt sér. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur m.a. fram myndir af M í lögreglubúningi, afrit af starfsskírteini M sem Supervisor de Escolta í Unidad Tactica de Combata U.T.C. ogstarfskírteini M hjá FAES lögreglusveitinni. Af afriti af fyrra starfsskírteininu verður ekki ráðið í hvaða deild lögreglu eða annarrar stofnunar M hafi starfað hjá UTC eða á hvaða tíma M hafi sinnt þar störfum. Þá er afrit af FAES starfsskírteini M það óskýrt að ekki verður ráðið hvenær M hafi starfað þar en skírteinið bendir til þess að hann hafi sinnt þar yfirmannsstöðu. Með vísan til framlagðra gagna telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi starfað sem lögreglumaður í heimaríki. Kærunefnd telur þó ýmislegt draga úr trúverðugleika þeirra frásagnar kærenda að þeim hafi ítrekað borist hótanir frá glæpahópnum 300 og að þau hafi ekki getað leitað verndar vegna þess áreitis frá yfirvöldum.
Að mati kærunefndar er töluvert misræmi í frásögn M í viðtali hjá Útlendingastofnun. Má þar helst vísa til misræmis í tímaröð atburða, m.a. hvað varðar handtöku meðlima glæpahópsins 300, hótanir og áreiti af þeirra hálfu og starfslok M hjá lögreglunni. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa handtekið þrjá meðlimi glæpahópsins 300 16. október 2022 og hafa hætt störfum hjá lögreglunni um miðjan nóvember 2022 eða um einum mánuði síðar. M greindi hins vegar frá því á öðrum stað í viðtalinu að honum hafi byrjað að berast hótanir viku eftir handtökuna og að meðlimir glæpahópsins hafi rænt honum á leið til vinnu í desember 2022. M hafi farið á lögreglustöðina þar sem hann hafi starfað þegar honum hafi verið sleppt og tilkynnt þetta til lögreglustjórans sem hafi sent hann í tveggja vikna frí. Hann hafi snúið til baka til starfa eftir 15 daga og hann hafi aftur verið sendur í frí í einn mánuð. Þá hafi M mætt til vinnu aftur og eftir að hafa sýnt samstarfsfólki hótanirnar og símtölin sem kærendum hafi borist hafi hann óskað eftir lausn frá störfum. Þegar að beiðni hans hafi verið hafnað hafi hann starfað í einn til tvo daga og síðan hætt og farið að undirbúa það að fara burtu með fjölskylduna. Ber framangreint ekki með sér að um mánuður hafi liðið á milli þess sem hann hafi handtekið meðlimi glæpahópsins og að hann hafi hætt störfum hjá lögreglunni.
Kærendur gefa einnig misvísandi upplýsingar um það hvernig þeim hafi borist hótanir frá framangreindum glæpahópi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að honum hafi byrjað að berast símtöl frá glæpahópnum um viku eftir handtöku meðlima hópsins. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að hótanirnar hafi byrjað í skilaboðum en seinna hafi meðlimir glæpahópsins byrjað að hringja í kærendur. Af frásögn M má einnig ráða að K hafi farið að berast hótanir á árinu 2023, eða eftir að honum hafi verið rænt í desember 2022 og farið eftir það í einn og hálfan mánuð í leyfi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K hins vegar frá því að M hafi borist símtal fljótlega eftir að hann hafi handtekið meðlimi framangreinds glæpahóps og í nóvember hafi K farið að berast símtöl frá glæpahópnum. Kærendur lögðu fram afrit af tveimur símaskilaboðum. Skilaboðin bera með sér að vera frá tveimur mismunandi símanúmerum, ekki verður þó séð hvenær skilaboðin bárust eða í hvaða númer þau hafi borist. Af fyrri skilaboðum má ráða að verið sé að hóta fjölskyldu móttakanda lífláti, að sendandi hafi vitneskju um hvar fjölskyldan sé staðsett og að viðtakandi sé lögreglumaður. Af seinni skilaboðunum má ráða að rætt sé um að sendandi viti að þau séu stödd í […] og þau verði öll drepin. Í ljósi framangreinds hafa því framangreind skilaboð takmarkað sönnunargildi. Þá greindi M frá því í viðtali að hann hafi eytt flestum skilaboðum sem hann hafi fengið áður en hann hafi farið frá Venesúela vegna ótta við að sími hans yrði skoðaður við brottför frá Karakas flugvelli. Kærunefnd telur framangreinda skýringu ótrúverðuga þar sem ólíklegt þykir að M hafi haldið eftir einhverjum skilaboðum hafi hann óttast viðbrögð yfirvalda við þeim.
Þá gætir misræmis í frásögn kærenda hvað varðar það hvert þau hafi flutt og hvar þau hafi dvalið eftir að þeim hafi byrjað að berast hótanir í október 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að þegar vandamálin hafi byrjað, í október 2022, hafi þau fyrst flutt til móður K í Karakas og síðar til móður hans í Miranda fylki þar sem þau hafi búið í um þrjá mánuði. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að þegar þeim hafi byrjað að berast hótanir hafi þau flutt til móður K. Eftir að M hafi verið rænt í desember hafi hann flutt til móður sinnar og K hafi flutt með börn kærenda til systur sinnar. M greindi einnig frá því að hann hafi búið hjá móður sinni áður en hann hafi farið frá Venesúela í mars 2023. Í viðtali hjá Útlendingstofnun greindi K frá því að hafa flutt til systur sinnar í Miranda fylki vegna hótana og hafi búið þar þangað til hún hafi flúið til Íslands. Síðar í viðtalinu greindi K frá því að kærendur hafi flutt í hús vina sinna eftir að M hafi verið rænt í desember 2022 þar sem þau hafi dvalið í um mánuð. Þegar þeim hafi haldið áfram að berast hótanir hafi þau ákveðið að K myndi flytja til systur sinnar og M til móður sinnar.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram afrit af kæru til CICPC lögreglunnar, dags. 6. desember 2022, þar sem fram kemur að M hafi lagt fram kæruna vegna þriggja ótilgreindra aðila sem hafi sagst vera meðlimir SEBIN, leyniþjónustunnar í Venesúela. Þeir hafi hótað honum því hann hafi handtekið nokkra meðlima glæpahóps þeirra. Í kæru er hvorki tilgreint að M sé lögreglumaður né að um meðlimi glæpahópsins 300 sé að ræða líkt og frásögn M ber með sér að hann hafi vitað frá því honum hafi byrjað að berast hótanirnar.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að glæpahópurinn 300 hafi verið með tengsl við stjórnvöld þar sem hann hafi verið mjög valdamikill í Venesúela. Af landaupplýsingum má þó ráða að glæpahópurinn 300 sé ekki einn af valdamestu og stærstu glæpahópum í Venesúela. Glæpahópurinn sé einkum starfræktur í Miranda fylki í Venesúela og hafi yfirvöld þar barist gegn glæpahópnum. Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats og framlagðra gagna er það mat kærunefndar að kærendur hafi ekki rennt stoðum undir þá frásögn sína að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu glæpahópsins 300 eða að glæpahópurinn hafi tengsl við yfirvöld í Venesúela.
Með vísan til upplýsinga um heimaríki kærenda telur kærunefnd þó ekki hægt að útiloka að M hafi borist hótanir og orðið fyrir einhverju ofbeldi í tengslum við lögreglustörf sín í heimaríki. Kærunefnd hefur litið til landaupplýsinga um heimaríki kærenda sem benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki þeirra sem stundi glæpi á við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Venesúelsk stjórnvöld hafi þó ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu og bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna.
M hefur borið fyrir sig að geta ekki leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki vegna þess áreitis sem hann hafi orðið fyrir í starfi sínu. Landaupplýsingar bera með sér að FAES hafi verið sérsveit innan ríkislögreglunnar sem hafi verið stofnuð árið 2015 og hafi verið leyst upp árið 2021 vegna alvarlegra ásakana um mannréttindabrot s.s. aftökur án dóms og laga. Embættismenn FAES hafi haldið áfram störfum fyrir ríkislögregluna, í nýrri deild, DAET (e. Directorate of Strategic and Tactical Actions), sem hafi verið stofnuð í stað FAES. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd ólíklegt að kærandi, sem fyrrum lögreglumaður, hafi ekki getað leitað verndar lögreglu í heimaríki vegna áreitis glæpahóps. Þá má ráða af frásögn M að lögreglusveitin sem hann hafi starfað fyrir hafi beint aðgerðum sínum að glæpahópum og m.a. handtekið meðlimi þeirra. Leggur kærunefnd það því til grundvallar að kærendur geti leitað til lögreglu vegna þess áreitis sem þau hafi orðið fyrir í heimaríki vegna starfa M.
Kærendur bera einnig fyrir sig að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda snúi þau til baka til Venesúela. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda eða tengda aðila við það að snúa til baka eða fyrir hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við A og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að ástandið í Venesúela hafi ekki breyst til hins betra, heldur þvert á móti sé það verra en það hafi verið. Venesúela sé ríki sem hafi brugðist frá öllum sjónarhornum þar sem ríkið tryggi ekki velferð, öryggi eða heilsu borgara sinna. Fólk sé ekki bara að flýja verðbólgu í Venesúela heldur ógnarstjórn, ofbeldi og pólitískar ofsóknir. Almennt ástand í Venesúela eigi við fullum fetum í einstaklingbundnu mati á aðstæðum kærenda sem nái því alvarleikastigi að falla undir viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Karakas í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. skýrslu Landinfo frá árinu 2023, eru almennar aðstæður í höfuðborginni mun betri en á strjálbýlli stöðum í landinu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, kemur fram að ríkislögreglan sé aðallega við störf í höfuðborginni og nágrenni hennar og þá bera heimildir ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimaborg kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur kveðast koma frá eða í Venesúela almennt.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu, en hann svæfi illa vegna óvissu og fengi martraðir. M greindi frá því að hafa leitað sér heilbrigðisþjónustu í Venesúela en ekki út af neinu alvarlegu. Hann hafi ekki þurft að greiða fyrir þjónustuna en hafi þurft að kaupa það sem læknar hafi þurft til þess að veita honum heilbrigðisþjónustuna og að hann hafi haft efni á því. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera með „sand“ í nýrunum og hafa fengið meðferð við því í Venesúela. K hafi tekið sýklalyf við veikindum þar sem þau valdi þvagfærasýkingu. K hafi verið greind þegar hún hafi verið 6 ára í Venesúela og hún hefði stöðuga verki í nýrunum. Að öðru leyti væri líkamleg heilsa hennar góð. K kvaðst hafa verið með mikinn kvíða þegar M hafi starfað sem lögreglumaður, blóðþrýstingurinn hafi hækkað og æð á hálsi hennar hafi bólgnað. Læknar í Venesúela hafi sagt þetta tengjast kvíða og hún hafi ekki fengið aðra greiningu á þessu.
Kærendur greindu frá því að börn þeirra væru við góða heilsu. M greindi frá því að A hafi farið til læknis vegna einhvers sem hún hafi gleypt og að A og M hafi farið til tannlæknis í Venesúela. K greindi frá því að B hafi ekki verið bólusett og að hún hafi eitt sinn farið til læknis með vírus sem hún hafi fengið lyf við. Lyfin hafi verið aðgengileg í heimaríki.
Af framburði kærenda verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og börn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa starfað sem lögreglumaður í 11 ár og hafa haft 7 dollara í mánaðarlaun. M hafi þá starfað við hársnyrtistörf áður en hann hafi flúið heimaríki. K greindi frá því að hafa verið með eigin rekstur við að selja snyrtivörur og hafa haft um 20 dollara í mánaðarlaun. Kærendur greindu frá því að A hafi verið í skóla í Venesúela en B hafi verið of ung og það hafi verið dýrt að setja hana í leikskóla. M greindi frá því að hin tvö börn hans í Venesúela væru í skóla þar. Kærendur greindu frá því að vera ekki skuldug og að þau hafi selt íbúð sína til að fjármagna ferðalag þeirra til Íslands. M greindi frá því að hafa fengið íbúðina gefins frá stjórnvöldum vegna starfa hans sem lögreglumaður. Kærendur hafi haft efni á mat, vatni og annarri nauðsynjavöru og hafi fengið mataraðstoð frá stjórnvöldum og aðstoð frá móður K. M greindi frá því að eiga föður, ömmu, afa og tvö börn í Venesúela og K greindi frá því að eiga móður og systkini í Venesúela. K greindi frá því að geta séð fyrir sér og fjölskyldunni sneri hún aftur til Venesúela. Þau ættu hins vegar ekki hús til að búa í og að það yrði erfitt að finna hús til leigu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi A frá því að hafa fengið nóg að borða og hafa átt föt til skiptanna.
Kærendur hafa greint frá því að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
M sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig 21. mars 2023. K sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn kærenda 10. júlí 2023. Líkt og að framan greinir er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. M sótti um alþjóðlega vernd 21. mars 2023, fyrir tæplega 18 mánuðum síðan, K og börn kærenda sóttu um alþjóðlega vernd 10. júlí 2023, fyrir um 14 mánuðum síðan, og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M kvað systur sína vera búsetta hér á landi. K kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærendur kváðu það vera ósanngjarnar ráðstafanir að brottvísa þeim og börnum þeirra og veita kærendum endurkomubann.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir