13 september 2024
/
Nr. 918/2024 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn
úrskurður nr.
í
stjórnsýslumáli nr.
Kæra
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Af kærum má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðnir þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsóknum, dags. 13. júní 2024, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 11 daga dvöl frá 15. til 25. ágúst 2024. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 2. júlí 2024. Hinn 5. júlí 2024 barst kærunefnd kærur frá kærendum ásamt fylgigögnum.
III. Málsástæður og rök kærenda
Í röksemdum kærenda er vísað til fyrirliggjandi ákvarðana Útlendingastofnunar þar sem fram kemur að kærendur hafi ekki sýnt fram á gilda ferðasjúkratryggingu. Kærendur andmæla synjunarástæðu Útlendingastofnunar og telja að þau hafi lagt fram gilda ferðasjúkratryggingu sem uppfylli þau lagaskilyrði m.t.t. gildistíma, tryggingaverndar, og svæðisbundins gildissviðs. Því fara kærendur fram á að kærunefnd meti fylgigögn umsókna þeirra að nýju. Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru afrit af vátryggingarskírteini kærenda ásamt yfirliti yfir vátryggingarskilmála.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga
þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema
annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í málum kærenda er merkt í reit 16, þ.e. að kærendur hafi ekki fært sönnur á handhöfn viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Ákvörðuninni fylgdu ekki viðbótarathugasemdir. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kærenda.
Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Í málatilbúnaði sínum vísa kærendur til þess að ferðasjúkratryggingar þeirra séu fullnægjandi, m.t.t. reglna sem um það gilda. Samkvæmt gögnum málsins lögðu kærendur fram sameiginlega ferðatryggingu fyrir þau ásamt barni sínu. Vátryggingarskilmálar tryggingarinnar eru meðal gagna málsins sem innihalda m.a. bótafjárhæðatöflu. Samkvæmt töflunni eru kærendur tryggðir fyrir sjúkrakostnaði sem numið getur allt að 20.000.000 sterlingspunda en samkvæmt 3. mgr. 15 gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir skal slík vátryggingarvernd nema 30.000 evrum að lágmarki. Í málaskrá Útlendingastofnunar kemur fram að trygging kærenda sé ófullnægjandi að því leyti að hún tilgreinir ekki með nákvæmum hætti hvaða upphæð kærendur séu tryggðir fyrir. Frekari skýringar eru ekki gefnar á ástæðum synjunar umsóknar kærenda um vegabréfsáritun. Með hliðsjón af ítarlegri bótafjárhæðatöflu í ferðasjúkratryggingu kærenda er ljóst að skýring utanríkisþjónustunnar og Útlendingastofnunar gengur í berhögg við gögn málsins.
Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til meðferðar að nýju.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kærenda til meðferðar á ný.
The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellants‘ cases.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður