13 september 2024

/

Nr. 921/2024 Úrskurður

Hinn 13. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 921/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070097

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. júlí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Gana (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 20. júní 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fimm daga dvöl frá 4. til 8. júlí 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2024. Hinn 7. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari gögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 10. júlí 2024.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í röksemdum sínum vísar kærandi til fyrirliggjandi ákvörðunar Útlendingastofnunar sem byggist á afbókunum kæranda á fyrirhugaðri flugferð og hótelgistingu. Kærandi hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun skömmu fyrir fyrirhugaða ferð og hafi hún ekki verið viss hvort vinnslu umsóknar hennar um vegabréfsáritun yrði lokið í tæka tíð. Til þess að komast hjá fjártjóni hafi kærandi afbókað flugferð og hótelgistingu. Að sögn kæranda hafi hún bókað sveigjanlegan miða hjá tilteknu flugfélagi og sé því í aðstöðu til þess að gera breytingar á bókun sinni, ef umsóknarferlið tæki lengri tíma en búist var við. Á kærustigi lagði kærandi fram nýjar bókanir fyrir flug og hótel, ásamt öðrum fylgigögnum.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Gana þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn. Samkvæmt gögnum málsins tók fulltrúi utanríkisþjónustunnar viðtal við kæranda 29. júní 2024, þar sem m.a. kom fram að kærandi vildi leggja fram uppfærða flugbókun og sjúkratryggingu.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru óáreiðanlegar. Þar að auki væri rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika yfirlýsinga um ferðaáætlun kæranda. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að bókanir kæranda fyrir flug og hótel hefðu verið afbókaðar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að bókanir kæranda fyrir flug og hótel hafi verið afbókaðar. Í röksemdum kæranda á kærustigi vísar hún til þess að hún hafi sjálf afbókað framangreindar bókanir til þess að komast hjá fjártjóni. Vísar kærandi jafnframt til þess að hún hafi sótt um áritun skömmu fyrir fyrirhugaða ferð og var óviss hvort vinnslu umsóknarinnar yrði lokið í tæka tíð. Á kærustigi hafi kærandi jafnframt lagt fram nýjar bókanir fyrir flugi og gistingu á Íslandi, sem tóku mið af nýjum ferðadagsetningum, og ætlaði kærandi sér þá að ferðast til Íslands frá 20. til 23. júlí 2024.

Mælt er fyrir um málsmeðferðartíma umsókna um vegabréfsáritanir í reglugerð um vegabréfsáritanir. Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar er umsækjendum ekki heimilt að leggja fram umsókn um vegabréfsáritun fyrr en sex mánuðum fyrir upphaf áætlaðrar ferðar, og að jafnaði ekki seinna en 15 almanaksdögum fyrir upphaf áætlaðrar ferðar. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar ber stjórnvöldum almennt að taka ákvörðun um umsókn, sem telst tæk til meðferðar í samræmi við 19. gr. reglugerðarinnar, innan 15 daga frá framlagningu umsóknarinnar. Með vísan til framangreinds ætti umsókn, sem lögð er fram ekki seinna en 15 almanaksdögum fyrir upphaf áætlaðrar ferðar að jafnaði að hafa hlotið afgreiðslu fyrir upphaf áætlaðrar ferðar.

Líkt og fram kom í málsatvikalýsingu lagði kærandi fram umsókn 20. júní 2024 vegna ferðar sem átti að hefjast 4. júlí 2024. Með því að leggja fram umsókn um vegabréfsáritun svo skömmu fyrir upphaf fyrirhugaðrar ferðar hafi kærandi teflt á tæpasta vað, enda ljóst að hún hafi getað sótt um áritun með allt að sex mánaða fyrirvara til að draga úr líkum á fjártjóni. Lög um útlendinga og reglugerð um vegabréfsáritanir mæla fyrir um tiltekin hlutlæg skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar og ber stjórnvöldum að meta fylgigögn umsókna gagnvart umræddum skilyrðum. Gögn sem sýna fram á flug og hótel eru jafnan án undantekninga meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. og 6. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Bretlandi, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Með því að afbóka flug og hótel hafi kæranda mátt vera ljóst að hún setti umsókn sína um vegabréfsáritun úr skorðum. Úr framangreindum ágöllum verði ekki bætt með framlagningu nýrra fylgigagna á kærustigi. Þar að auki snýst stjórnsýslukæra kæranda um niðurstöðu umsóknar um vegabréfsáritun vegna ferðar sem liðin var undir lok fyrir uppkvaðningu úrskurðar kærunefndar. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hefði hún áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022.

Í ljósi framangreinds, og eins og háttar í þessu tiltekna máli, telur kærunefnd ekki forsendur fyrir því að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Þess í stað verður kæranda leiðbeint um að hún geti sótt um vegabréfsáritun að nýju og er henni jafnframt bent á áðurnefndar réttarheimildir sem gilda um málsmeðferðartíma umsókna um vegabréfsáritun.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii. tölul. 1. mgr. og b-lið 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður