13 september 2024

/

Úrskurður nr. 919/2024


Hinn 13. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 919/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070087 og KNU24070090

Kæra [...]og [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 27. júní 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Indlands (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. júní 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðnir þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 10. júní 2024, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir níu daga dvöl frá 29. júní til 7. júlí 2024. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 22. júní 2024. Hinn 27. júní 2024 barst kærunefnd kæra frá kærendum.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru til kærunefndar kvað K það ósanngjarnt að ætlast til þess að umsækjendur um vegabréfsáritun greiði flugfargjald þegar þeir hafi ekki fengið svar við umsókn sinni um vegabréfsáritun. K kvaðst ekki skilja hvers vegna ferðatrygging hafi verið metin ófullnægjandi. M kvað eiginkonu sína ekki hafa verið að fullu meðvitaða um framlagða ferðaáætlun sem M hafi undirbúið. Að öðru leyti uppfylli kærendur skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana.

Kærendur lögðu fram ný gögn á kærustigi sem hafa ekki áhrif á úrlausn málsins.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli K er m.a. merkt í reit tvö, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar ferðar. Í ákvörðunum bæði M og K er merkt í reiti tíu og ellefu, þ.e. að upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun. Í íslenskri útgáfu synjunarformsins hefur gleymst að tilgreina efni þeirra yfirlýsinga sem dregnar voru í efa. Kærunefnd gerir athugasemd við vinnubrögð Útlendingastofnunar hvað það varðar, sbr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, þar sem segir að umsækjanda skuli tilkynnt um ákvörðun og synjun og ástæður fyrir henni á íslensku og öðru opinberu tungumáli meginstofnana Sambandsins. Í enskri útgáfu eyðublaðsins kemur fram að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar. Ekki er ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar þótt rökstuðning í lið 11 hafi vantað í íslensku útgáfunni.

Ákvörðununum fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að M hygðist ferðast með fjölskyldu sinni en þegar hann hafi verið spurður í viðtali um framlagða ferðaáætlun hafi hann ekki getað lýst henni. Ekki hafi verið unnt að staðfesta flugbókun. Rökstuddur vafi væri á því að M hygðist ferðast til Íslands. Í ákvörðun K kom fram að gögn vantaði til að staðfesta atvinnu. K hafi ekki getað lýst framlagðri ferðaáætlun eða getað greint frá dagsetningum ferðalagsins. Ekki hafi verið unnt að staðfesta flugbókun. Rökstuddur vafi væri á því að M hygðist ferðast til Íslands. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kærenda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Samkvæmt framangreindu var ekki unnt að staðfesta flugbókanir kærenda. Á kærustigi hefur ekki verið bætt úr framangreindum annmarka. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii. tölul. 1. mgr. og b-lið 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands og réttmæti upplýsinga sem kærendur höfðu veitt, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kærendum um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður