19 september 2024
/
Úrskurður nr. 820/2024
Hinn 19. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 820/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040092
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 11. apríl 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Kólumbíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa honum frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði vísað aftur til meðferðar hjá Útlendingastofnun.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 30. október 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. 27. mars 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi handhafi gildrar vegabréfsáritunar til Bandaríkjanna en hann hafi dvalið þar í um fimmtán daga á árinu 2023. Útlendingastofnun ákvað 11. apríl 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði slík tengsl við Bandaríkin að eðlilegt og sanngjarnt væri að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til Bandaríkjanna. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 11. apríl 2024 og barst nefndinni greinargerð kæranda 26. apríl 2024. Frekari upplýsingar bárust frá kæranda 5. september 2024.
3 Málsástæður og rök kæranda
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er vísað til viðtala kæranda hjá Útlendingastofnun og greinargerðar til stofnunarinnar hvað málavexti varða. Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. hvað varðar heilsufar hans, gengið sé út frá því að kærandi þjáist ekki af miklum og alvarlegum veikindum en hann hafi lagt fram heilsufarsgögn frá heimaríki sem beri með sér að hann hafi verið greindur með [...]. Kærandi mótmælir þessu mati Útlendingastofnunar og telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að í báðum viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi hann verið illa áttaður og frásögn hans samhengislaus og slitrótt.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi einungis dvalið í Bandaríkjunum í skamma stund. Kærandi telji að Bandaríkin geti ekki talist griðland hans í skilningi d-liðar ákvæðisins enda hafi hann ekki búið þar eða dvalið til lengri tíma. Kærandi telji ljóst með vísan til þeirrar sérstaklega viðkvæmu stöðu sem hann sé í auk þeirra sjúkragagna og bágborinna aðstæðna umsækjenda um alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum, þá einkum þeirra sem þjáist af andlegum veikindum, að það geti hvorki talist sanngjarnt né eðlilegt að endursenda kæranda þangað. Þá hafi kærandi ekki sérstök tengsl við Bandaríkin að öðru leyti en að frænka hans búi þar með fjölskyldu sinni en hann hafi ekki færi á að dvelja hjá þeim.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Ljóst sé af frásögn kæranda að hann þjáist af alvarlegum sjúkdómi sem sé þess eðlis að hann sé í hættu á að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í Bandaríkjunum enda séu þar engin úrræði eða aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Sökum andlegra veikinda kæranda eigi hann á hættu að verða fyrir skaða og geti ekki fengið lífsnauðsynlega meðferð við sjúkdómi sínum þar í landi.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna. Staða kæranda í Bandaríkjunum muni verða verulega síðri en staða almennings þar í landi og honum verði ekki tryggðar mannsæmandi aðstæður og að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð sem brjóti í bága við meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement).
Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að málinu verði vísað aftur til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreindra athugasemda telur kærandi að umfjöllun stofnunarinnar um einstaklingsbundnar aðstæður hans og þá einkum í ljósi þess sjúkdóms sem hann þjáist af, hafi verið verulega ábótavant. Í hinni kærðu ákvörðun sé ekki lagt til grundvallar að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu og ekki tekið tillit til andlegra veikinda hans. Vísar kærandi til 2. mgr. 28. gr. laga um útlendinga í þessu samhengi. Með tilliti til fyrirliggjandi gagna málsins og frásagnar kæranda sé full ljóst að hann þjáist af alvarlegum sjúkdómi sem taka hefði átt tillit til við mat á umsókn hans hjá Útlendingastofnun.
4 Umsóknir um alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er einstæður karlmaður á [...]. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi með vegabréfsáritun fyrir ferðamenn til Bandaríkjanna með gildistíma frá 23. febrúar 2016 til 21. febrúar 2026. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa dvalið í fimmtán daga í Atlanta í Bandaríkjunum á árinu 2023 þar sem hann hafi heimsótt móðursystur sína og fjölskyldu hennar í október 2023 áður en hann fór til Washington og þaðan til Íslands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 30. október 2023. Kærandi hafi getað sótt um alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum en hann telji kerfið fyrir flóttafólk ekki vera gott vegna mikils álags og því væri biðtími eftir þjónustu langur. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hans væri að skána eftir að hann hafi komið hingað til lands. Kærandi hafi glímt við [...] og taki inn lyf að staðaldri vegna þess. Kærandi sé [...] og finni fyrir [...] en hafi fengið sálfræðiaðstoð. Jafnframt hefur kærandi lagt fram heilsufarsgögn frá heimaríki sem bera með sér að hann hafi glímt við [...].
4.3 Landaupplýsingar
Aðstæður í Bandaríkjunum
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Bandaríkjunum, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- Freedom in the World 2024 – United States (Freedom House, febrúar 2024);
- World Report 2023 – United States (Human Rights Watch, 21. mars 2023);
- World Report 2024 – United States (Human Rights Watch, 7. febrúar 2024);
- Stjórnarskrá Bandaríkjanna (https://billofrightsinstitute.org/);
- Vefsíða ACP – American College of Physicians (https://www.acponline.org/);
- Vefsíða Asylum Seeker Advocacy Project (https://help.asylumadvocacy.org/health-care/);
- Vefsíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/usa/rights-and-duties/asylum-seekers/) og
- Vefsíða U.S. Citizenship and Immigration Services (https://www.uscis.gov/humanitarian/refugees-and-asylum/asylum/the-affirmative-asylum-process).
Bandaríki Norður-Ameríku mynda stjórnarskrárbundið sambandslýðveldi 50 ríkja. Bandaríkin fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og samning Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Þá er lagt bann við pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð í fimmta, áttunda og fjórtánda viðauka við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Jafnframt er lagt bann við mismunun í fjórtánda viðauka við stjórnarskrána. Stjórnvöld í Bandaríkjunum veita samkvæmt landslögum vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkja þar sem þeir eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi sé ógnað (non-refoulement). Bandaríkin undirrituðu alþjóðasáttmála um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1966 og fullgiltu hann árið 1994. Löggjöf um flóttamenn er byggð á Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna frá 1951 en Bandaríkin eru jafnframt aðilar að viðauka við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna frá 1967. Lög um flóttamenn voru sett í Bandaríkjunum árið 1980 og hefur löggjöfin þróast með dómafordæmum Hæstaréttar Bandaríkjanna. Heimavarnarráðuneytið (e. Department of Homeland Security) er æðsta stofnun innflytjendamála í Bandaríkjunum en undir henni sinna undirstofnanir mismunandi verkefnum innan málaflokksins. Stofnun ríkisborgararéttar og innflytjendamála (e. U.S. Citizenship and Immigration Services, USCIS) er sú stofnun sem einkum sinnir umsóknum um dvalarleyfi og alþjóðlega vernd.
Á vefsíðu USCIS í Bandaríkjunum og vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að einstaklingur geti lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd sé viðkomandi staddur innan yfirráðasvæðis Bandaríkjanna. Umsækjendur þurfi að fylla út svokallað I-589 eyðublað sem í flestum tilvikum sé hægt að gera rafrænt innan eins árs frá komu. USCIC tekur ákvörðun um dvalarleyfi og alþjóðlega vernd. Fái umsækjendur neikvæða niðurstöðu sé hægt að kæra málið til dómara innflytjendamála. Þeirri niðurstöðu sé hægt að áfrýja til kærunefndar. Þá kemur fram á vefsíðunni að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sjaldnast settir í varðhald. Fái umsækjendur jákvæða niðurstöðu þurfi þeir að fylla út tiltekið eyðublað. Veiting alþjóðlegrar verndar í Bandaríkjunum nær til maka og ólögráða barna, hafi viðkomandi verið staddir í Bandaríkjunum meðan umsókn um alþjóðlega vernd var lögð fram. Einstaklingar sem hljóta alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum fá jafnframt atvinnuleyfi, almannatryggingakort og græna kortið sem veitir heimild til fastrar búsetu. Yfirvöld í Bandaríkjunum bjóða ekki upp á gjaldfrjálsa lögfræðiþjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd en til staðar séu hjálparsamtök sem bjóði upp á slíkt fyrir efnalitla einstaklinga. Umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa ekki atvinnuleyfi í Bandaríkjunum en hægt er að sækja um atvinnuleyfi 150 dögum eftir að umsókn um alþjóðlega vernd hefur verið lögð fram.
Á upplýsingasíðu fyrir innflytjendur í Bandaríkjunum kemur fram að ótryggðir einstaklingar geti leitað á bráðamóttöku en kunni að þurfa greiða fyrir slíka þjónustu. Ákveðin sjúkrahús bjóði þó upp á niðurgreidda eða eftir atvikum gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu og læknishjálp, þ. á m. fyrir innflytjendur. Hægt er að leita til heilbrigðisstarfsfólks eða félagsráðgjafa til að sjá hvort viðkomandi uppfylli skilyrði fyrir gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu. Hafi umsækjendur um alþjóðlega vernd atvinnuleyfi bjóða vinnuveitendur yfirleitt upp á sjúkratryggingu. Þá séu mismunandi reglur eftir ríkjum Bandaríkjanna hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgang að gjaldfrjálsri þjónustu, s.s. í gegnum Medicaid verkefnið. Jafnframt hafi verið sett á fót verkefnið Refugee Medical Assistance (RMA) sem veiti flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd tímabundna heilbrigðistryggingu falli þeir utan skilyrða fyrir Medicaid.
Í skýrslu Freedom House fyrir árið 2023 kemur fram að samkvæmt alríkislögreglunni hafi glæpatíðni í heild sinni lækkað í Bandaríkjunum síðan á tíunda áratugnum. Hins vegar sé glæpatíðni enn mikil í samanburði við önnur stöndug lýðræðisríki. Tíðni manndrápa hafi hækkað um þriðjung á árunum 2019-2021 í helstu stórborgum landsins. Stjórnvöld hafi unnið að endurbótum á réttarkerfinu á undanförnum árum, m.a. vegna aðgerða lögreglu sem hafi leitt til dauða óbreyttra borga. Þó hafi aðeins lítill hluti manndrápa lögreglu leitt til saksóknar og mörg mála endað með sýknudómi. Bandaríkin njóti góðs af öflugum verndarráðstöfunum gegn opinberri spillingu, m.a. þegar komi að löggæslu- og réttarkerfi auk fjölmiðla. Ýmsar reglugerðir og eftirlitsstofnanir á vegum stjórnvalda vinni að hagsmunaárekstrum. Jafnframt hafi ríkisstjórn landsins unnið að því að styrkja siðareglur innan framkvæmdavaldsins og sett á fót eftirlitsaðila með það að markmiði að takmarka hagsmunaárekstra. Jafnframt hafi verið settar á fót siðareglur fyrir Hæstarétt. Dómskerfið sé að mestu leyti sjálfstætt þó uppi hafi verið áhyggjur af skipunar- og staðfestingarferli dómara undanfarin ár.
4.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
d. umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Í frumvarpi til laga nr. 14/2023, um breytingu á lögum um útlendinga kemur m.a. fram að
nýr d-liður 1. mgr. 36. gr. laganna mæli fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Ákvæðinu um fyrsta griðland í gildandi lögum hefur ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að ákvæðið mæli fyrir um þau tilvik þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur slík tengsl við annað ríki að sanngjarnt og eðlilegt geti talist að hann dvelji þar. Í orðalagi ákvæðisins koma fram skilyrði þess að ákvæðið eigi við, þar á meðal að stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að verði umsækjandi sendur til ríkisins þurfi hann ekki að óttast ofsóknir eða að verða sendur áfram til heimalands síns í andstöðu við meginregluna um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Við mat á því hvað telst sanngjarnt og eðlilegt skal m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu. Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess ríkis og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.
Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið um beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða.
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi með vegabréfsáritun fyrir ferðamenn til Bandaríkjanna með gildistíma frá 23. febrúar 2016 til 21. febrúar 2026. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa dvalið í fimmtán daga í Atlanta í Bandaríkjunum á árinu 2023 þar sem hann hafi heimsótt móðursystur sína og fjölskyldu hennar áður en hann fór til Washington og þaðan til Íslands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd. Kærandi greindi frá því að hann teldi sig hafa möguleika á að ferðast til Bandaríkjanna og leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd þar.
Samkvæmt framangreindum upplýsingum um aðstæður í Bandaríkjunum verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og að hann hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Fyrir liggur fullnægjandi sönnun þess að kærandi hafi möguleika á að öðlast heimild til dvalar í viðtökuríki af þeim sökum. Enn fremur geti kærandi sótt um atvinnuleyfi í Bandaríkjunum sem umsækjandi um alþjóðlega vernd og geti leitað aðstoðar yfirvalda verði brotið á rétti hans.
Samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki telst kærandi ekki hafa ástæðu til að óttast ofsóknir í Bandaríkjunum, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að hann sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.
Við framangreint mat hefur m.a. verið litið til þess að landslög í Bandaríkjunum veita vernd gegn endursendingu einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá hafa bandarísk stjórnvöld fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, auk þess sem bann sé lagt við pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð í viðaukum við stjórnarskránna. Jafnframt benda framangreindar landaupplýsingar til þess að löggæsla í viðtökuríki sé skilvirk og að kærandi geti leitað til hennar telji hann þörf á því. Kærandi greindi frá því að hafa leitað til lögreglunnar í Bandaríkjunum og bera traust til hennar.
Meðal gagna málsins er vegabréf kæranda, sem hann lagði fram við komuna til Íslands. Í vegabréfinu er einungis að finna komustimpil til Bandaríkjanna frá febrúar 2023 en ekki er komustimpill sem staðfestir komu kæranda til Bandaríkjanna haustið 2023 líkt og framburður hans ber með sér. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 5. september 2024, var kæranda veitt færi á að leggja fram frekari skýringar og gögn sem gætu staðfest framburð hans. Í tölvubréfi kæranda sem barst kærunefnd samdægurs lagði hann fram afrit flugmiða sem þegar var hluti af gögnum málsins. Þá greindi kærandi frá því að geta ekki gefið nákvæma skýringu á því hvers vegna vegabréf hans hafi ekki verið stimplað við komuna til Bandaríkjanna 14. október 2023 en hugsanlega kunni það að vera vegna þess að til hafi staðið að kærandi tæki annað tengiflug frá öðrum flugvelli innan Bandaríkjanna til Íslands, sem síðar hafi ekkert orðið úr þar sem lestinni hafi seinkað og hann misst af fluginu. Kærandi hafi því ekki komist til Íslands fyrr en með öðru flugi síðar.
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi með langtímavegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Ljóst er að ekki er að finna innstimpil í vegbréfi kæranda frá því í október 2023 til að staðfesta komu hans til Bandaríkjanna. Kærandi hefur að framangreindu virtu ekki sýnt fram á að rof hafi orðið á dvöl hans í Bandaríkjunum árið 2023.
Falla því aðstæður kæranda í viðtökuríki undir skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og verður umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki tekin til efnismeðferðar. Telst kærandi því hafa slík tengsl við viðtökuríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað í skilningi d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi er einstæður karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hans hafi skánað eftir komuna hingað til lands. Kærandi hafi glímt við [...] og taki inn lyf að staðaldri vegna þess. Hann sé [...] og finni fyrir [...] en hafi fengið sálfræðiaðstoð. Jafnframt hefur kærandi lagt fram heilsufarsgögn frá heimaríki sem bera með sér að hann hafi glímt við [...] og [...]. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. nóvember 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 27. mars 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 12. apríl 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Bandaríkjunum verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi en það fari þó eftir því í hvaða ríki umsækjandi sé staddur. Kærandi nýtur samkvæmt vegabréfsáritun sinni ferðafrelsis innan Bandaríkjanna. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærandi greindi frá því að hafa ekki orðið upplifað fordóma í Bandaríkjunum og að hann óttist engan þar í landi. Kærandi hafi í eitt skipti leitað til lögreglunnar þar í landi þegar hann hafi týnst og síminn hans verið batteríslaus. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að málinu verði vísað aftur til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að umfjöllun stofnunarinnar um einstaklingsbundnar aðstæður hans og þá einkum í ljósi þess sjúkdóms sem hann þjáist af, hafi verið ábótavant. Með tilliti til fyrirliggjandi gagna málsins og frásagnar kæranda telji hann fulljóst að hann þjáist af alvarlegum sjúkdómi sem taka hefði átt tillit til við mat á umsókn hans hjá Útlendingastofnun.
Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Kærandi kom í viðtöl hjá Útlendingastofnun dagana 28. febrúar og 27. mars 2024. Aðspurður kvaðst kærandi vera við góða líkamlega heilsu en hann hefði fundið fyrir kvíða og leitað til sálfræðings vegna þess. Þá væri hann með [...] og tæki inn lyf vegna þess. Kærandi hafi jafnframt verið greindur með [...] í heimaríki. Af endurriti viðtala við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt út í andlegt og líkamlegt heilsufar hans, s.s. hvort hann hafi leitað til læknis í viðtökuríki, hvernig honum hafi liðið undanfarið og hvaða áhrif þeir atburðir sem hann hafi orðið fyrir hafi haft á líf hans. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda er ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari hans og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hans enda er ekkert sem bendir til þess að hann glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Var málsmeðferð Útlendingastofnunar í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 5. júlí 2023, var kæranda einnig leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn voru lögð fram við meðferð málsins hjá kærunefnd. Er því varakröfu kæranda hafnað. Farið hefur verið yfir hina kærðu ákvörðun og er ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.
Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga er ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hans ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 27. mars 2024 kvaðst kærandi ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 30. október 2023. Ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst íslenskum stjórnvöldum. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.
Gögn málsins bera með sér að meðferð stjórnvalda í viðtökuríki leggi einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Við framangreint mat hefur m.a. verið litið til þess að landslög í Bandaríkjunum veita umsækjendum vernd gegn endursendingu einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá hafa bandarísk stjórnvöld fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, auk þess sem bann sé lagt við pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð í viðaukum við stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í viðtökuríki fyrir landsrétti sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Bandaríkjunum og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Brottvísun og endurkomubann
5.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 30. október 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun og endurkomubanni frá Íslandi í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi frá því að eiga frændfólk á Ítalíu. Þá taldi hann að um ósanngjarna ráðstöfun væri að ræða vegna þess að hann væri hér á landi til að fá hjálp. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda í Bandaríkjunum telst brottvísun hans frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 1. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið. Endurkomubann fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan þess frests.
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir
Sandra Hlíf Ocares