01 október 2024
/
Úrskurður nr. 960/2024
Hinn 1. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 960/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24060043 og KNU24060042
Kæra […], […] og barns á ákvörðunum Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 7. júní 2024 kærðu einstaklingar er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir K) og […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir M), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. maí 2024, um að synja þeim og barni þeirra, […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgara Írak um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd á sama tíma fyrir eldra barn sitt sem varð 18 ára í málsmeðferð stjórnvalda. Fjallað er um niðurstöðu kærunefndar í máli hans í sjálfstæðum úrskurði nefndarinnar nr. 962/2024. Úrskurður í máli kærenda og barns þeirra tekur mið af því í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik og frásögn kærenda
Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 10. júní 2023, komu kærendur hingað til lands og báru upp beiðni um alþjóðlega vernd sama dag. Kærendur komu hingað til lands með móður M og tveimur börnum. Í lögregluskýrslu kemur fram að kærendur og fjölskyldumeðlimir þeirra séu án skilríkja. Þau sæki um vernd hér á landi vegna ofsókna gagnvart M í heimaríki fyrir að ljóstra upp um glæpsamlega starfsemi stjórnmálamanns. Fjölskyldan hafi engin tengsl við Ísland en hafi greitt smyglara fyrir að smygla þeim til Þýskalands en þau hafi endað á Íslandi. Kærendur hafi greitt smyglaranum 40 þúsund dollara fyrir að flytja þau. Kærendur eigi ekki sakaferil og enga sögu um herþjálfun. Móðir M sé með astma og hjartavandamál. Þá glími M við með [...] (e. enlarged prostrate).
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 4. mars 2024 og kváðu helstu ástæður flótta síns vera hættu í heimaríki vegna ofsókna tengdum starfi M. Þar kemur m.a. fram að þau séu fædd og uppalin í Sulaymaniyah í Kúrdistan, Írak og hafi verið búsett þar með fjölskyldu sinni áður en þau hafi flúið heimaríki. Kærendur hafi sótt um vernd hér á landi þar sem M hafi ljóstrað upp um glæpsamlega starfsemi og spillingu í heimaríki þeirra. Hann hafi starfað við að skoða vörubíla á vegum tollyfirvalda við borgarmörk Sulaymaniyah í Kúrdistan og séð í einum vörubílnum fíkniefni og sprengiefni sem hafi ekki verið gerð upptæk við tollskoðun á landamærunum við Íran. Hann hafi sagt yfirmanni sínum frá þessu og varningurinn hafi í framhaldinu verið gerður upptækur. Í kjölfarið hafi M fengið símtöl með hótunum í garð hans og fjölskyldu hans. Kærendur hafi óttast að þeim yrði rænt eða þau drepin og heimili þeirra sprengt í loft upp. Þau hafi ekki þorað að leita til lögreglunnar vegna alvarlegra hótana frá fyrrgreindum aðilum. Þá hafi synir þeirra greint þeim frá því að svartur bíll hafi elt þá á leið þeirra í skólann. K óttist að aðilar tengdir ISIS muni ræna börnum þeirra. M hafi fengið símtöl um nætur frá leyninúmeri. Þau hafi ákveðið að flýja um sex mánuðum eftir að þeim fór að berast framangreindar hótanir. M hafi verið kvíðinn og hræddur um að einhver myndi drepa hann og þess vegna hafi þau ekki leitað til lögreglunnar. K kvaðst ekki vita hvert framhald málsins hefði verið og gæti ekki lagt fram gögn varðandi þetta. K kvað M glíma við alvarleg geðræn veikindi og það hafi versnað vegna þessara hótana. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst M glíma við minnisleysi vegna veikinda sinna en hafi lýst því að hann hafi fengið hótanir í kjölfar atviks í vinnu, þar sem hann hafi fundið ólöglegan varning. Hann telji ekki að þau geti leitað til lögreglu vegna þessa vandamála. Hann telji auk þess að hann geti ekki fengið vinnu vegna veikinda sinna. Andlegri heilsu hans hafi hrakað verulega vegna þessara hótana, alvarlegs áreitis og ástandsins í heimaríki. Hann hafi þurft að hætta að vinna og orðið fyrir mismunun, kúgun og ofsóknum vegna veikinda sinna. M hafi ekki haft aðgang að viðunandi heilbrigðisþjónustu í heimaríki og hafi ekki getað nálgast lyf vegna veikinda sinna með fullnægjandi hætti.
A kom til barnaviðtals hjá Útlendingastofnun 14. mars 2024 og kvaðst hafa lifað venjulegu lífi í heimaríki og verið leiður þegar þau hafi þurft að flýja Írak. Hann telji ástæðu fyrir flótta vera vegna þess að pabbi hans hafi verið í vandræðum og fólk hafi verið að móðga hann út á götu og að fólk hafi hótað honum símleiðis.
Með ákvörðunum, dags. 23. maí 2024, synjaði Útlendingastofnun kærendum og A um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum og barni þeirra var jafnframt brottvísað frá landinu og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 7. júní 2024. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 24. júní 2024. Með greinargerð hafa kærendur lagt fram ýmis gögn. Þeirra á meðal eru skýrsla sálfræðings í Írak, dags. 5. júní 2024, nánari skýringar frá M, afrit skilríkja en frumritum hafi verið skilað til Útlendingastofnunar, gögn um kæru K vegna ofbeldis ásamt yfirlýsingu hennar og talskilaboð frá 21. apríl 2023 með hótunum gagnvart M og fjölskyldu hans frá óþekktu númeri. Kærunefnd óskaði eftir nánari upplýsingum frá kærendum með tölvubréfi, dags. 17. september 2024 og 20. september 2024 bárust svör frá kærendum.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og tekið tillit til allra sjónarmiða er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í sameiginlegri greinargerð kærenda og A er aðstæðum þeirra lýst. Þar kemur fram að M hafi þurft að hætta að vinna og orðið fyrir mismunun, kúgun og ofsóknum vegna veikinda sinna. M hafi ekki haft aðgang að viðunandi heilbrigðisþjónustu í heimaríki og hafi ekki getað nálgast lyf vegna veikinda sinna með fullnægjandi hætti. Ályktunum Útlendingastofnunar í fyrirliggjandi ákvörðunum um aðgengi að viðunandi heilbrigðisþjónustu er harðlega mótmælt. Þá hafi K greint frá því að í heimaríki hafi bróðir hennar og M beitt hana alvarlegu ofbeldi og hún hafi kært ofbeldið til yfirvalda í heimaríki. Af framburði móður M og gögnum sé ljóst að hún hafi einnig ítrekað verið beitt ofbeldi af M en hann glími við alvarleg geðræn veikindi. Þá kemur fram í yfirlýsingu M og gögnum málsins að komið hafi fyrir að hann hafi ógnað K og móður sinni með hníf. Hann hafi hótað K og móður sinni og beitt móður sína líkamlegu ofbeldi. Í greinargerð kemur fram að K hafi ekki skýrt frá þessu ofbeldi á fyrri stigum af ótta um afleiðingar þess fyrir hana heima fyrir. M glími við alvarleg geðræn veikindi og hann hafi sjálfur greint frá sínum þætti í því ofbeldi og stöðu fjölskyldunnar. Kærendur telji ómögulegt að yfirvöld í Írak muni veita þeim fullnægjandi aðstoð og vernd. Þá geti fjölskyldan ekki séð fyrir sér og yrði á götunni yrði henni gert að snúa aftur til heimaríkis enda geti M ekki unnið sökum veikinda sinna. Í ljósi alvarlegrar stöðu kvenna í Írak geti K auk þess ekki fengið viðunandi vernd og aðstoð frá yfirvöldum vegna þess ofbeldis og hótana sem hún hafi orðið fyrir í heimaríki og standi frammi fyrir verði fjölskyldunni gert að snúa þangað aftur.
Í greinargerð er vísað til landaskýrslna og mati Útlendingastofnunar á aðstæðum kærenda og A mótmælt. Gerðar eru athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar vegna framburðar kærenda. Þá hafi stofnunin ekki tekið tillit til andlegra veikinda M við matið. Þá eru gerðar athugasemdir við að Útlendingastofnun telji ósamræmi milli lögregluskýrslu og framburðar í viðtali hjá stofnuninni og í viðtali hjá Útlendingastofnun varðandi ástæðu flótta, draga úr trúverðugleika frásagnar þeirra. Að mati kærenda hafi verið lagðar óhóflegar sönnunarkröfur á kærendur um að ótti þeirra sé rökstuddur og ástæðuríkur.
Horfa beri sérstaklega til hagsmuna A út frá því sem sé barni fyrir bestu sbr. 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda og A falli undir 1. mgr. 37. gr. laganna þar sem kærendur og fjölskylda þeirra hafi flúið heimaríki sitt vegna verulegs ótta um líf sitt vegna hótana og ofsókna og almenns ástands og slæmrar geðheilsu M. Gróf mannréttindabrot viðgangist í Írak og aðstæður kvenna séu bágbornar. Þá geti M ekki fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Aðstæður í landinu séu afar óöruggar og kærendur og fjölskylda þeirra geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Írak.
Kærendur telji aðstæður þeirra falla undir 2. mgr. 37. gr. laganna vegna alvarlegs og óöruggs ástands í Írak. Kærendur og fjölskylda þeirra eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Öryggisástand sé mjög ótryggt, m.a. vegna þess að þar hafi hersveitir á vegum yfirvalda framið mannréttindabrot gegn almennum borgurum.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir ákvæði 74. gr. laganna þar sem kærendur og fjölskylda þeirra séu í alvarlegri hættu á ofsóknum og illri og vanvirðandi meðferð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. K geti ekki séð fyrir fjölskyldunni þar í landi í ljósi aðstæðna þeirra og einkum í ljósi þess að M glími við alvarleg veikindi sem komi í veg fyrir að hann geti stundað vinnu. Ljóst sé að ofbeldi M í garð K yrði áframhaldandi fái hann ekki viðunandi meðferð vegna geðrænna veikinda sinna.
Með endursendingu kærenda og A til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Verður því við mat á umsóknum að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur hafi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili. Hafi því verið leyst úr auðkenni þeirra á grundvelli mats á trúverðugleika. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur kveðast fædd í Sulaymaniyah, í Kúrdistan í Írak og þá sé A einnig fæddur þar. Þau tali Sorani sem sé eitt af þremur tungumálum Kúrda. Var því lagt til grundvallar að kærendur og A væru ríkisborgarar Írak þó auðkenni þeirra teldist ósannað. Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærendur og A séu írakskir ríkisborgarar, frá Kúrdistan í Írak.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- ACLED Factsheet – US strikes and counter-strikes in the Middle East (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), uppfært 4. febrúar 2024);
- Annual Report on International Religious Freedom: Iraq (Covering 2022)(U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- Asaib Ahl al-Haq (Counter Extremism Project, Asaib Ahl al-Haq | Counter Extremism Project, sótt af vefsíðu 21. febrúar 2023);
- Country Guidance: Iraq (European Union Agency for Asylum (EUAA), 29. júní 2022);
- Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Union Agency for Asylum (EUAA), júní 2022);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Targeting of Individuals (European Asylum Support Office, mars 2019);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Actors of protection (UK Home Office, desember 2020);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, október 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Medical and healthcare provision (UK Home Office, janúar 2021);
- Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Religious minorities (UK Home Office, júlí 2021);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Security situation (UK Home Office, nóvember 2022);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
- Country Report on Terrorism 2022 (US Department of State, 30. nóvember 2023);
- Country Report on Terrorism 2021 (US Department of State, 27. febrúar 2023);
- Det politiska läget och säkerhetsutvecklingen 2022 till augusti 2023 (Migrationsverket, 19. september 2023);
- DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 16. janúar 2023);
- Education in Iraq. Impact of Covid-19, protests, and pre-existing cries on needs (Acaps, 9. nóvember 2020);
- Ekteskap i Irak (inkludert i KRI) (Landinfo, 25. apríl 2023);
- Freedom in the World 2023 – Iraq (Freedom House, 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNHCR, janúar 2024);
- Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
- Iraq – Security situation (European Union Agency, 28. maí 2024);
- Iraq – Targeting of Individuals (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
- Relevant Country of Origin Information to Assist with the Application of UNHCR’s Country Guidance on Iraq - Ability of Iraqis to Legally Access and Settle Durably in Proposed Areas of Internal Relocation (UNHCR, nóvember 2022);
- Report on the human rights situation covering 2022 (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
- The Muqawama and Its Enemies – Shifting Patterns in Iran-Backed Shiite Militia Activity in Iraq (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), 23. maí 2023);
- The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 5. september 2024);
- UNHCR Fact Sheet – Iraq (UNHCR, ágúst 2023);
- United Nations Sustainable Development Cooperation Framework IRAQ (United Nations, 6. september 2021);
- Upplýsingasíða United States Institute of Peace (Iraq Timeline: Since the 2003 War United States Institute of Peace (usip.org), sótt 25. september 2024) og
- World Report 2024 – Iraq (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.
Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.
Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003, hafi nýir leiðtogar Íraks átt í erfiðleikum með að marka lýðræðislega stefnu eftir áratuga einræði og hafi einkum tvær aðgerðir átt veigamikinn þátt í því. Í fyrsta lagi hafi ákvörðun Bandaríkjanna um að útiloka Baath-flokkinn, sem hafi lengi verið við völd og hvernig það hafi verið útfært, frá stjórn ríkisins skapað pólitískt tómarúm. Í öðru lagi hafi sú aðgerð að leysa upp her landsins og útiloka hundruð þúsunda þjálfaðra manna frá störfum við varnir ríkisins, án þess að koma á fót öðrum valkostum, skilið eftir öryggistóm. Í kjölfarið hafi Írak mátt þola borgarastyrjöld, pólitíska ringulreið, víðtæka spillingu, spennu á milli flokka og öfgahópa sem hafi hertekið þriðjung landsins. Við þessa atburði hafi hið pólitíska valdajafnvægi sem ríkt hafði undir stjórn súnníta um aldir riðlast verulega. Sjítar hafi krafist forsætisráðuneytisins og haft nægilegt vald til að stjórna helstu ráðuneytum. Þá hafi í fyrsta skipti verið kúrdískur forseti í Írak og Kúrdar, sem lengi höfðu krafist sjálfsstjórnar frá Bagdad, orðið hluti af ríkinu. Stjórnarskráin viðurkenni sjálfstjórn Kúrdistan héraðs (KRG) og formlega stöðu Peshmerga herafla hennar. Súnnítar, sem höfðu drottnað yfir ríkinu undir stjórn Saddams, hafi haldið lykilstöðu forseta þingsins en misst aðrar valdastöður. Árið 2011 ákváðu Bandaríkin að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópi súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og endurnefndu þau sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Samtökin séu einnig þekkt sem ISIL (Islamic State in Iraq and the Levant (ISIL)) og Daesh (hér eftir verður notað Daesh). Í júní 2014 hafi Daesh náð þriðjungi landsins á sitt vald og hafi leiðtogi Daesh, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg Íraks, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá Daesh. Í desember 2017 lýsti Haider al-Abadi forsætisráðherra yfir sigri gegn Daesh. Í skýrslu EASO frá 2019 er fjallað um aukin yfirráð yfirvalda í Írak í kjölfar þess að sigur hafi verið unninn á Daesh. Fram kemur að íröksk yfirvöld geti, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklinga, almennt veitt fullnægjandi vernd í Bagdad og í suðurhluta landsins. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 að öryggi í Bagdad og nærliggjandi svæðum sé tryggt af írakska hernum, lögreglunni, hersveitum PMF (e. Popular Mobilization Forces) og ýmsum sjía hersveitum.
Í framangreindum gögnum kemur þá fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfsstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður- og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.
Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis KRI.Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og hafi ekki viðurkennt niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan KRI og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRI en það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í kosningum sem fram fóru þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum. Í kosningum sem fram fóru í október 2021 hafi KDP haldið stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins en kosningabandalagið Bandalag til breytinga (e. Alliance Towards Reform) hafi tryggt sér flest þingsæti.
Í framangreindum gögnum kemur fram að þrátt fyrir að heiðurstengt ofbeldi sé refsivert samkvæmt landslögum þá sé það nokkuð útbreitt í menningu KRI. Heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna. Írakar tilheyri mismunandi ættbálkum og lifi eftir fornum ættbálkasiðum, venjum og lögum, en hefðbundin fjölskyldugildi séu rótgróin í menningunni. Séu konur í miklum meirihluta þeirra sem verði þolendur heiðursglæpa og þá yfirleitt fyrir að hafa, að mati fjölskyldna þeirra, fært skömm yfir fjölskylduna með einhverjum hætti. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda enn fremur til þess að í Kúrdistan sé þekkt að konur séu neyddar í hjónabönd af ýmsum ástæðum.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslu EUAA frá 2022, er fjallað um erfiða stöðu kvenna í Írak. Fram kemur að efnahagsþvinganir og langvarandi átök hafi leitt til þess að lífsgæði þeirra hafi farið versnandi. Karllæg gildi séu ríkjandi í Írak og skortur sé á umræðu um réttindi kvenna og getu þeirra til að taka frekar þátt í samfélaginu. Konur séu jaðarsettar á mörgum sviðum samfélagsins og hafi mætt margvíslegum hindrunum, þ.á.m. hvað varðar aðgengi að vinnumarkaði og heilbrigðiskerfi. Þá hafi margvísleg mannréttindabrot beinst að konum, þ.á m. kynferðis- og heimilisofbeldi, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og þvinguð hjónabönd. Konur hafi veigrað sér við að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna þessa, m.a. vegna viðmóts yfirvalda í garð kvenna, og séu málin því oft leyst innan viðkomandi fjölskyldu eða ættbálks. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og skýrslu EUAA frá 2022 virða íröksk lög og venjur almennt ekki ferðafrelsi kvenna og koma lög t.a.m. í veg fyrir að þær geti sótt um vegabréf án samþykkis karlkyns forráðamanns eða lögmanns. Þá geti konur ekki fengið útgefin persónuskilríki, sem krafist sé fyrir aðgang að opinberri þjónustu, mataraðstoð, heilsugæslu, atvinnu, menntun og húsnæði, án samþykkis karlkyns ættingja. Konur í Írak séu berskjaldaðar fyrir ýmis konar misnotkun af hálfu vinnuveitenda. Einstæðar og fráskildar konur, ekkjur og konur á vergangi séu sérstaklega viðkvæmar fyrir félagslegum fordómum, efnahagslegri misnotkun, mismunun í tengslum við vinnuskilyrði og varnarlausar gagnvart nauðungarvinnu. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 202 hafi ótryggt félagshagfræðilegt ástand í Írak óhófleg áhrif á konur, ásamt fólki sem búi við fötlun, sem eigi oft erfiðara með að fá vinnu og lifa sjálfstætt sökum stofnana- og menningarlegra hindrana. Yfirvöld í Írak hafi gerst aðili að alþjóðlegum samningum um réttindi kvenna, s.s. samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1986 um afnám allrar mismununar gagnvart konum (e. UN´s Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination Against Women, CEDAW), en hafi gert fyrirvara við nokkur af helstu ákvæðum samningsins. Þá hafi yfirvöld komið á fót aðgerðaráætlun um stöðu kvenna í Írak (e. National Acition Plan concerning women for 2014-2018, NAP), sem byggð er á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2014. Fyrrnefnd aðgerðaráætlun hafi átt að ná fram því markmiði að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og bæta réttindi þeirra en skort hafi á útfærslu og framkvæmd áætlunarinnar.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árin 2022 og 2023 og skýrslu Mannréttindavaktarinnar (e. Human Rights Watch) fyrir sama tímabil kemur fram að þrátt fyrir að stjórnarskrá Íraks banni allt ofbeldi og misnotkun innan fjölskyldunnar þá tilgreini refsilög landsins heimilisofbeldi ekki sérstaklega og lögin heimili eiginmönnum að aga eiginkonur sínar og börn innan ákveðinna marka sem séu nánar tilgreind í lögum og venjum. Innanríkisráðuneyti Íraks haldi úti 16 fjölskylduverndareiningum innan lögreglunnar, sem að staðsettar séu í sérhúsnæði við lögreglustöðvar víðsvegar um landið. Þessum einingum sé ætlað að leysa úr deilum innan heimilisins og vera öruggur staður fyrir þolendur kynferðis- og kynbundins ofbeldis. Einingarnar hafi þó verið gagnrýndar fyrir að leggja áherslu á að slík mál séu leyst með sátt innan fjölskyldunnar. Þá hafi frjáls félagasamtök fullyrt að þolendur veigri sér við að leita aðstoðar innan þessara eininga af ótta við að lögreglan greini fjölskyldum þeirra frá. Enn fremur hafi sumir ættbálkar bannað sínum meðlimum að leita til þessara eininga eftir aðstoð þar sem að heimilisofbeldi sé einkamál fjölskyldunnar. Í skýrslu EUAA um Írak frá árinu 2022 kemur fram að fá neyðarskýli séu í landinu sem konur geti leitað til neyðist þær til að yfirgefa heimili sitt vegna ofbeldis. Stjórnvöld hafi m.a. gripið til þess úrræðis að hýsa konur í fangelsum vegna skorts á skýlum. Flest neyðarskýli sé að finna í stærri borgum og séu rekin af sjálfboðaliðum. Konur sem dvelji þar geti verið í viðkvæmri stöðu þar sem þær hafi ekki stuðning karlkyns ættingja. Þá lendi konur í erfiðleikum við að leita réttar síns vegna neikvæðra viðhorfa lögreglu- og opinberra starfsmanna gagnvart konum og skorti á þekkingu um réttindi kvenna. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að í Kúrdistan sé heimiliofbeldi bannað með lögum, þ.m.t. líkamlegt og sálrænt ofbeldi, hótanir og nauðganir í hjónabandi. Sérstök löggæslustofnun rannsaki kynbundið ofbeldi og þá starfi innan dómskerfisins sérstök sáttamiðlunarnefnd fyrir fjölskyldur. Tvö einkarekin skýli séu starfrækt og fjögur á vegum stjórnvalda sem veiti vernd og stuðning fyrir konur sem séu þolendur kynbundins ofbeldis og mansals. Takmarkað pláss sé þó í skýlunum og samkvæmt frjálsum félagasamtökum sé sálrænn stuðningur takmarkaður. Frjáls félagasamtök séu lykilaðilar í starfsemi skýlanna og veiti m.a. lögfræðilega ráðgjöf.
Í skýrslu EUAA frá maí 2024 kemur fram að Sulaymaniyah héraði sé stærsta hérað í Kúrdistan í norður Írak. Fram kemur að Sulaymaniyah sé stjórnað af PUK sem stjórni Peshmerga og öryggissveitum hafi haft hersveitir undir stjórn PUK. Þá sé sérstakur hópur gegn hryðjuverkum (Counter-Terrorism Group, CTG), í samstarfi við Bandaríkin með höfuðstöðvar í Sulaymaniyah. Í aðgerðum sínum gegn ISIL hafi þeir verið grunaðir um samstarf við YPG (People´s Protection Units), hóp sem tyrknesk stjórnvöld telji vinna með sýrlenska legg PKK. ISIL hafi samkvæmt skýrslunni litla viðveru í Kúrdistan.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Ættbálkurinn beri almennt hins vegar ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa séu staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála.
Í skýrslu Alþjóða fólksflutningsstofnunarinnar (IOM) frá árinu 2019 kemur fram að yfirvöld tryggi öllum börnum rétt á endurgjaldslausri menntun frá sex ára aldri. Fjölskyldur sem snúi aftur til Íraks eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðrum löndum geti sótt um aðstoð hjá stofnuninni við enduraðlögun. Í skýrslu EASO frá árinu 2020 kemur fram að það séu ýmsar hindranir að aðgengi að menntun fyrir börn á innri flótta og börn sem séu búsett á svæðum sem hafi verið undir stjórn Daesh. Í skýrslu ástralska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að opinber fræðsla sé gjaldfrjáls á öllum stigum en sé yfirleitt léleg. Menntun sé skylda til loka sjötta bekkjar í Írak. Þrátt fyrir að engir einkaskólar hafi verið starfandi fyrir árið 2003 séu nú um 1.200 starfandi einkaskólar með leyfi frá menntamálaráðuneytinu. Einkaskólar séu oft betri en opinberir skólar en hafi há skólagjöld og séu því aðeins á færi efnameiri einstaklinga. Innritunarhlutfall stúlkna hafi aukist á undanförnum áratugum en sé enn um það bil sex prósentum lægra en drengja í grunnskóla og 25 prósentum lægra í framhaldsskóla.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um alþjóðlega vernd á þeim erfiðleikum sem M hafi orðið fyrir í heimaríki í tengslum við starf sitt hjá tollyfirvöldum. Hann hafi orðið vitni að því að verið væri að flytja ólöglegan varning og látið yfirmann sinn vita af því. Í kjölfarið hafi hann fengið hótanir.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda og A.
Kærendur hafa lagt fram fjölda gagna hjá stjórnvöldum sem flest varða heilsufar M en jafnframt gögn varðandi ofbeldi sem K hafi þolað af hendi M og bróður sínum. Hefur m.a. verið lögð fram afrit af lögregluskýrslu dags. 26. ágúst 2017 og áverkavottorði með sömu dagsetningu. Þá voru lögð fram gögn frá skóla, dags. 1. maí 2023 um að ótilgreindir aðilar hafi verið að leita að börnum kærenda. Kærunefnd óskaði eftir nánari upplýsingum um framangreind gögn sem voru fyrst lögð fram á kærustigi. Kvað K að bróðir hennar og M hafi ráðist á hana og hafi verið handteknir í kjölfar kæru hennar og setið í fangelsi í nokkra daga en verið sleppt gegn tryggingu fram að réttarhöldum. Bróðir hennar hafi verið mjög reiður út í hana. Hann sé áfengissjúklingur og eitt kvöld hafi hann verið drukkinn og stungið mann á krá. Hann hafi farið í fangelsi í kjölfarið og verið í fangelsi í meira en fimm ár. K hafi fyrirgefið eiginmanni sínum þar sem hann sé faðir barnanna og glími við geðræn veikindi. K óttist hins vegar bróður sinn sem búi í Sulaymaniyah og gangi um með byssu. K greindi frá því að hún eigi tvær systur og einn bróður í heimaríki en báðir foreldrar hennar séu látnir. Eftir atburði árið 2017 hafi M beitt hana og börn þeirra ofbeldi. Eftir að þau hafi fengið synjun hjá Útlendingastofnun hafi geðheilsu hans hrakað og hann ráðist á hana nokkrum sinnum. Eftir það hafi hann farið í innlögn á bráðageðdeild Landspítala. K óttist bróður sinn í heimaríki auk þess sem hún sé hrædd vegna vandræða sem M hafi átt í í tengslum við starf hans.
K hefur greint frá því að M og bróðir hennar hafi beitt hana ofbeldi í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna, líkt of að framan er rakið, að staða kvenna í Írak sé erfið. Konur eigi á hættu að verða fyrir áreiti, mismunun og ofbeldi vegna kyns síns, þ. á m. af hendi sambúðarmaka eða eiginmanns. Há tíðni heimilisofbeldis og heiðursglæpa sé áhyggjuefni og þolendur veigri sér við að leita aðstoðar yfirvalda, m.a. vegna viðmóts þeirra í garð kvenna. Þá standi konur í Írak frammi fyrir ýmsum hindrunum og áskorunum sem geti haft neikvæð áhrif á getu þeirra og möguleika til að taka fullan og jafnan þátt á við karlmenn í stjórnmálalegum, félagslegum og fjárhagslegum sviðum samfélagsins. Að mati kærunefndar benda gögnin hins vegar ekki til þess að konur í Írak eigi á hættu mismunun eða áreiti vegna kyns sem nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. , sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá kemur í gögnunum fram að íbúum í Kúrdistan standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða, þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Auk þess hefur K leitað aðstoðar og fengið vernd og stuðning löggæsluyfirvalda í Kúrdistan. Auk þess er K heimilt að sækja um skilnað frá eiginmanni sínum í heimaríki þrátt fyrir takmarkanir. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að K og A eigi þess kost að leitað aðstoðar og verndar yfirvalda, telji þau sig þurfa þess.
Frásagnir kærenda, einkum M, í viðtölum hjá Útlendingastofnun voru óskýr um atriði er vörðuðu atvik sem þau kváðu hafa leitt til flótta þeirra frá heimaríki. Þá var misræmi um ýmis atriði á milli frásagna K og M. Á það einkum við um tímalínu atburða og hvert hótanir hinna ótilgreindu aðila hafi borist. Þá lögðu kærendur fram starfsmannaskírteini vegna starfa M en nafnið á skilríkinu er [...] sem er ekki í samræmi við uppgefið nafn hans hér á landi. Kærunefnd telur þó, m.a. annars í ljósi veikinda M, ekki ástæðu til að efast um að M hafi unnið hjá tollyfirvöldum í Írak, hafi fundið grunsamlega sendingu og gert yfirmanni sínum viðvart og í kjölfarið borist hótanir ótilgreindra aðila. Engu að síður hefur M ekki leitt að því líkum að þeir aðilar sem hafi haft uppi hótanir við hann séu valdamiklir eða með tengsl við yfirvöld sem valdi því að hann geti ekki leitað aðstoðar og verndar þeirra. Við það mat hefur kærunefnd litið til þess að kærendur kváðust ekki vita um hvaða aðila væri að ræða og þau hafi búið í heimaríki um sex mánaða skeið eftir umrætt atvik án þess að verða fyrir frekar áreiti. Við málsmeðferð hjá kærunefnd lögðu kærendur fram talskilaboð sem þau kváðu K hafa borist. Í tölvubréfi kærunefndar, dags. 17. september 2024 óskaði kærunefnd eftir skýringum á framangreindu gagni. Í svörum kærenda, dags. 20. september s.á. kemur fram að kærendur viti ekki hver hafi sent talskilaboðin en þar sé K og fjölskyldu hennar hótað lífláti. Hún hafi ekki lagt fram skilaboðin fyrr því hún hafi ekki talið það nauðsynlegt. Af svörum kærenda verður ekki ráðið að framlögð skilaboð renni stoðum undir málsástæðu þeirra um að þau geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki. Þótt fallast megi á að skilvirkni löggæsluyfirvalda sé ábótavant í heimaríki kærenda verður ekki talið að þau geti ekki leitað eftir og fengið vernd, telji þau að þau séu í hættu.
Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að óttast ofsóknir af hálfu írakskra yfirvalda sem gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að kærendur eigi slíkar ofsóknir á hættu. Þrátt fyrir að gögn um Írak beri það með sér að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla geti verið að einhverju leyti ábótavant þá er það mat kærunefndar að kærendur geti leitað til yfirvalda telji þau ástæðu til þess. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að yfirvöld í Írak skorti vilja eða getu til að veita kærendum viðeigandi aðstoð eða vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Í viðtali sínu 14. mars 2024 og kvaðst A hafa lifað venjulegu lífi í heimaríki og verið leiður þegar þau hafi þurft að flýja Írak. Var sjónarmiðum barnsins A nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hans sjálfs auk hagsmunagæslu talsmanns. Óskað var eftir nánari upplýsingum um hagi barna kærenda, hvort þeir hafi mátt þola ofbeldi í heimaríki af hendi föður. Af svörum verður ráðið að kærendur og börn þeirra hafi mátt þola mikla erfiðleika vegna geðrænna veikinda M. Ljóst sé að hann þarfnist mikillar eftirfylgni ásamt lyfjum. Af gögnum málsins er ljóst að hann hafi sótt sér aðstoð og tekið lyf vegna veikinda sinna í heimaríki um árabil. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að A fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Kærunefnd horfir m.a. til þess að barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem hafa verið vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá beri gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki auk þess sem honum stendur til boða vernd og aðstoð yfirvalda þurfi hann á henni að halda. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins, að það sé því fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau eða barn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga. Er því ljóst að kærendur og barn þeirra uppfylla ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur kveða aðstæður í Írak afar óöruggar. Hersveitir á vegum yfirvalda hafi framið alvarleg mannréttindabrot gegn almennum borgurum, mikill fjöldi írakskra borgara hafi þurft að flýja átök víðsvegar um landið ásamt því að spilling sé mikið vandamál þar í landi. Kærendur og A geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Írak þar sem þau séu ófær um að vernda íbúa landsins gegn átökunum sem þar geisi og ástandinu sem þar ríki.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að vera fædd og uppalin í borginni Sulaymaniyah, Kúrdistan í Írak. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum í skýrslu EUAA frá 2024 kemur fram að tyrknesk stjórnvöld hafi reglulega framkvæmt aðgerðir gegn PKK og þau hafi færst í aukana á undanförnum árum. Nokkrir almennir borgarar hafi verið drepnir eða meiddir í dróna árásum. Á tímabilinu 1. febrúar 2023 til 31. mars 2024 hafi verið skráðir 127 öryggisviðburðir af vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project). Þau gögn sýna að ástandið sé ótryggt á sumum svæðum. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Sulaymaniyah séu slíkar að kærendur eða börn þeirra eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur þangað eða að þau verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda og A er ljóst að aðstæður þeirra falla ekki undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau og börn þeirra muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Almennt ástand í heimaríki sé afar bágborið og áframhaldandi ofsóknir bíði kærenda snúi þau aftur til heimaríkis. Þá sé K í viðkvæmri stöðu sem kona.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kærenda þá teljist svæðið þar sem kærendur höfðu búsetu í Kúrdistan til öruggari svæða. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barns þeirra er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda og barns þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í gögnum málsins kemur fram að M glími við alvarleg geðræn veikindi. Við meðferð málsins hafa kærendur lagt fram fjölda heilsufarsgagna vegna M. Í nótum frá Landspítala og sjúkraskrá kemur fram að kærandi glími við flókinn geðvanda, mögulega [...] og [...] og [...]. Í nótum kemur fram að hann hafi glímt við lækkað geðslag, reiði og svefnleysi. Hann hafi verið í innlögn á geðdeild 7. til 11. júlí 2024. Við útskrift hafi verið brýnt fyrir honum að passa svefn og taka lyf. Í heilsufarsgögnum frá sálfræðingi í Írak sem kærendur hafa lagt fram, dags. 5. júní 2024 kemur fram að skortur sé á lyfjum í heimaríki. M hafi í nánari skýringum greint frá því að óskýrleiki í frásögn hans af atvikum megi rekja til minnistaps og alvarlegra geðrænna veikinda sinna. Hann sé meðvitaður um áhrif veikinda sinna á líf sitt og fjölskyldu sinnar og hann hafi á stundum í manísku ástandi verið óútreiknanlegur og hvatvís, jafnvel ofbeldishneigður. Hann telji brýnt að hann fái þá aðstoð sem hann þurfi til að vernda fjölskylduna. Vegna veikindanna hafi hann ítrekað komið sér í hættulegar aðstæður án þess að gefa afleiðingum þess gaum. Oft hafi hann safnað himinháum skuldum sem fjölskyldumeðlimir hans hafi þurft að greiða. Áður en hann hafi flúið hafi fjölskyldan lifað við ótta og streitu. Þá vísi M til fordóma og útilokunar sem einstaklingar með geðsjúkdóma búi við. Fram hefur komið að hann hafi verið greindur með veikindin í heimaríki fyrir um tíu árum. Hann hafi tekið lyf sem hafi verið kostnaðarsöm. Kærendur hafa greint frá því að M hafi verið í vinnu hjá sama vinnuveitanda í 16 eða 17 ár. Þá hafi hann haft aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum í heimaríki en lyfin hafi verið dýr. Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að hann þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. K greindi frá því að hún væri heilsuhraust og liði ágætlega andlega, þá væri A heilsuhraustur en þurfi gleraugu. Gleraugun sem A hafi fengið í heimaríki hafi ekki verið nógu góð en hann hafi fengið betri gleraugu hér á landi. Verður því ekki séð að kærendur og A hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli heilbrigðisástæðna, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
K hefur greint frá atviki þar sem M hafi beitt hana líkamlegu ofbeldi í heimaríki árið 2017 og lagt fram gögn varðandi það. Af gögnum málsins verður ráðið að K hafi leitað til lögreglu og annarra stjórnvalda vegna ofbeldisins og fengið aðstoð. K greindi sjálf frá því að hún hafi fyrirgefið honum og að hann glími við alvarleg veikindi. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum um aðstæður K og barna þeirra þar sem hún hafði ekki greint frá þessu í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. Í svari kvað K að M ætti það til að veikjast og vera aggressífur og hafi beitt fjölskyldu sína ofbeldi, einnig hér á landi, sem hafi m.a. leitt til þess að hann hafi farið í innlögn á bráðageðdeild Landspítalans. Með vísan í umfjöllun varðandi 1. mgr. 37. gr. er ljóst að K og A geta leitað aðstoðar stjórnvalda og annarra aðila í heimaríki telji þau ástæðu til þess vegna framkomu M í garð þeirra og vegna hótana af hálfu bróður K.
Kærendur hafa greint frá félagslegum aðstæðum sínum. Þau hafa greint frá því að M hafi unnið fyrir tollayfirvöld og K hafi unnið skrifstofustarf á stjórnvaldsskrifstofu og leigt íbúð á heimili í eigu móður M. Þau hafi getað framfleytt sér og keypt lyf vegna veikinda sinna. Kærendur telji að þau muni vera í erfiðum félagslegum aðstæðum í heimaríki þar sem M hafi hætt í vinnu sinni áður en þau hafi komið hingað til lands og vegna veikinda hans gæti hann ekki unnið. Í viðtali Útlendingastofnunar við A greindi hann frá því að honum hafi liðið vel í heimaríki, hafi gengið í skóla og stundað íþróttir. K greindi frá því að hún eigi systkini en foreldrar hennar séu látnir. Hún hafi lent í útistöðum við bróður sinn og hún sé hrædd við hann. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki og er það mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að þau verði ekki fær um það við endurkomu til heimaríkis. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kærenda og A við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Kúrdistan við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Hvorki almennar aðstæður í Kúrdistan né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og A dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 10. júní 2023 fyrir sig og barn sitt og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stendur því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 10. júní 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og A um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur greindu frá því að hafa engin tengsl innan Schengen-svæðisins.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þau er gefinn.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum brottvísað og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir