01 október 2024
/
Úrskurður nr. 962/2024
Hinn 1. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 962/2024 í stjórnsýslumáli nr. KNU24060048
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 7. júní 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur. [...] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. maí 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik og frásögn kæranda
Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 10. júní 2023, kom kærandi til landsins frá Spáni og bar upp beiðni um alþjóðlega vernd sama dag. Kærandi kom hingað til lands með foreldrum sínum, föðurömmu og bróður og var barn að aldri þegar ákvörðun Útlendingastofnunar var kveðin upp. Í lögregluskýrslu kemur fram að kærandi og fjölskyldumeðlimir séu án skilríkja. Þau sæki um vernd hér á landi þar sem verið sé að ofsækja föður kæranda fyrir að ljóstra upp um glæpsamlega starfsemi stjórnmálamanns í heimaríki þeirra. Fjölskyldan hafi engin tengsl við Ísland en hafi greitt smyglara til að smygla sér til Þýskalands en þau hafi endað á Íslandi. Foreldrar kæranda hafi greitt smyglaranum 40 þúsund dollara fyrir að flytja þau. Þau eigi ekki sakaferil og enga sögu um herþjálfun. Faðir hans sé með [...] og með [...] (e. enlarged prostrate).
Kærandi kom til svokallaðs barnaviðtals hjá Útlendingastofnun 14. mars 2024 og kvað helstu ástæður flótta síns vera vandræði sem faðir hans hafi lent í vegna vinnu sinnar. Vandamálin hafi byrjað um fimm mánuðum áður en þau hafi yfirgefið landið.
Með ákvörðun, dags. 23. maí 2024, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu. Með greinargerð hefur kærandi lagt fram ýmis gögn. Þeirra á meðal eru skýrsla sálfræðings frá 5. júní 2024 um skort á aðgengi að lyfjum í heimaríki, nánari skýringar frá föður kæranda, afrit skilríkja en frumritum var skilað til Útlendingastofnunar, gögn um kæru móður vegna ofbeldis ásamt yfirlýsingu, og talskilaboð frá 21. apríl 2023 með hótunum gagnvart föður kæranda og fjölskyldu hans frá óþekktu númeri.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og tekið tillit til allra sjónarmiða er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í Sulaymaniyah í Kúrdistan, Írak og hafi verið búsettur þar með fjölskyldu sinni er þau hafi flúið heimaríki. Kærandi og fjölskylda hans hafi sótt um vernd hér á landi þar sem faðir kæranda hafi ljóstrað upp um glæpsamlega starfsemi og spillingu í heimaríki þeirra. Hann hafi starfað við að skoða vörubíla á vegum tollayfirvalda við borgarmörk Sulaymanyah og séð í einum vörubílnum fíkniefni og sprengiefni sem hafi ekki verið gerð upptæk við tollskoðun á landamærunum við Íran. Hann hafi sagt yfirmanni sínum frá þessu og varningurinn hafi í framhaldinu verið gerður upptækur. Í kjölfarið hafi faðir kæranda fengið símtöl með hótunum í garð hans og fjölskyldu hans. Þau hafi óttast að þeim yrði rænt eða þau drepin og heimili þeirra sprengt í loft upp. Þau hafi ekki þorað að leita til lögreglunnar vegna alvarlegra hótana frá fyrrgreindum aðilum um afleiðingar þess að þau myndu gera slíkt. Þá glími faðir kæranda við alvarleg andleg veikindi og hafi verið greindur með [...] og [...]. Andlegri heilsu hans hafi farið verulega hrakandi vegna þessara hótana, alvarlegs áreitis og ástandsins í heimaríki. Hann hafi þurft að hætta að vinna og orðið fyrir mismunun, kúgun og ofsóknum vegna veikinda sinna. Faðir kæranda hafi ekki haft aðgang að viðunandi heilbrigðisþjónustu í heimaríki vegna veikinda sinna og hafi ekki getað nálgast lyf með fullnægjandi hætti. [...] í fyrirliggjandi ákvörðunum um aðgengi að viðunandi heilbrigðisþjónustu sé harðlega mótmælt. Þá hafi móðir kæranda greint frá því að í heimaríki hafi bróðir hennar beitt hana alvarlegu ofbeldi sem hún hafi kært til yfirvalda í heimaríki. Móðir kæranda hafi lagt fram kæru vegna ofbeldis bróður hennar en einnig vegna ofbeldis og hótana föður kæranda gagnvart sér. Af framburði móður kæranda og gögnum sé ljóst að faðir kæranda hafi ítrekað beitt hana ofbeldi en hann glími við alvarleg [...]. Þá kemur fram í yfirlýsingu M og gögnum málsins að M hafi verið ofbeldishneigður og hótað eiginkonu sinni og móður og beitt móður sína líkamlegu ofbeldi. Kærandi telji ómögulegt að yfirvöld í Írak muni veita honum og fjölskyldu hans vernd. Þá geti fjölskyldan ekki séð fyrir sér og yrði á götunni yrði henni gert að snúa aftur til heimaríkis enda geti faðir kæranda ekki unnið sökum veikinda sinna. Í ljósi alvarlegrar stöðu kvenna í Írak geti móðir kæranda ekki fengið viðunandi vernd og aðstoð frá yfirvöldum vegna þess ofbeldis og hótana sem hún hafi orðið fyrir í heimaríki. Kærandi sé [...] og stóli á stuðning og framfærslu fjölskyldu sinnar hér á landi og í heimaríki.
Í greinargerð er vísað til landaskýrslna og mati Útlendingastofnunar á aðstæðum kæranda mótmælt. Gerðar eru athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar vegna framburðar foreldra kæranda en stofnunin hafi ekki tekið tillit til andlegra veikinda föður kæranda. Þá eru gerðar athugasemdir við að Útlendingastofnun telji ósamræmi milli lögregluskýrslu og framburðar í viðtali hjá stofnuninni og í viðtali hjá Útlendingastofnun varðandi ástæðu flótta, draga úr trúverðugleika frásagnar þeirra. Að mati kæranda hafi verið lagðar óhóflegar sönnunarkröfur á kæranda og fjölskyldu hans um að ótti þeirra sé rökstuddur og ástæðuríkur.
Ljóst sé að horfa beri sérstaklega til hagsmuna kæranda út frá því sem sé barni fyrir bestu, enda hafi hann verið barn að aldri þegar hann hafi sótt um vernd og þegar ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið tekin.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 1. mgr. 37. gr. laganna þar sem kærandi og fjölskylda hans hafi flúið heimaríki sitt vegna verulegs ótta um líf sitt vegna hótana og ofsókna og almenns ástands ásamt andlegri heilsu föður kæranda. Aðstæður í landinu séu afar óöruggar og kærandi og fjölskylda geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Írak.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 37. gr. laganna vegna alvarlegs og óöruggs ástands í Írak. Kærandi og fjölskylda hans eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Öryggisástand sé mjög ótryggt, m.a. vegna þess að þar hafi hersveitir á vegum yfirvalda framið mannréttindabrot gegn almennum borgurum.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir ákvæði 74. gr. laganna þar sem kærandi og fjölskylda hans séu í alvarlegri hættu á að verða fyrir ofsóknum og illri og vanvirðandi meðferð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá séu aðstæður kvenna í Írak bágbornar. Móðir kæranda geti ekki séð fyrir fjölskyldunni þar í landi í ljósi aðstæðna fjölskyldunnar og einkum í ljósi þess að faðir kæranda glími við alvarleg veikindi sem geri það að verkum að hann geti ekki stundað atvinnu. Þá hafi faðir kæranda ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki vegna veikindanna. Ljóst sé að ofbeldi föður kæranda í garð móður hans yrði áframhaldandi fái hann ekki viðunandi meðferð vegna [...] sinna.
Með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Verður því við mat á umsóknum að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili. Hafi því verið leyst úr auðkenni hans á grundvelli mats á trúverðugleika. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi kveðist vera fæddur í Sulaymaniyah, Kúrdistan í Írak. Hann tali Sorani sem sé eitt af þremur tungumálum Kúrda. Þótti ljóst að hann væri írakskur ríkisborgari þó auðkenni hans teldist ósannað. Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærandi sé írakskur ríkisborgari frá K.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- ACLED Factsheet – US strikes and counter-strikes in the Middle East (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), uppfært 4. febrúar 2024);
- Annual Report on International Religious Freedom: Iraq (Covering 2022) (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- Asaib Ahl al-Haq (Counter Extremism Project, Asaib Ahl al-Haq | Counter Extremism Project, sótt af vefsíðu 21. febrúar 2023);
- Country Guidance: Iraq (European Union Agency for Asylum (EUAA), 29. júní 2022);
- Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Union Agency for Asylum (EUAA), júní 2022);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Targeting of Individuals (European Asylum Support Office, mars 2019);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Actors of protection (UK Home Office, desember 2020);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, október 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Medical and healthcare provision (UK Home Office, janúar 2021);
- Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Religious minorities (UK Home Office, júlí 2021);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Security situation (UK Home Office, nóvember 2022);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
- Country Report on Terrorism 2022 (US Department of State, 30. nóvember 2023);
- Country Report on Terrorism 2021 (US Department of State, 27. febrúar 2023);
- Det politiska läget och säkerhetsutvecklingen 2022 till augusti 2023 (Migrationsverket, 19. september 2023);
- DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 16. janúar 2023);
- Education in Iraq. Impact of Covid-19, protests, and pre-existing cries on needs (Acaps, 9. nóvember 2020);
- Ekteskap i Irak (inkludert i KRI) (Landinfo, 25. apríl 2023);
- Freedom in the World 2023 – Iraq (Freedom House, 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNHCR, janúar 2024);
- Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
- Iraq – Security situation (European Union Agency, 28. maí 2024);
- Iraq – Targeting of Individuals (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
- Relevant Country of Origin Information to Assist with the Application of UNHCR’s Country Guidance on Iraq - Ability of Iraqis to Legally Access and Settle Durably in Proposed Areas of Internal Relocation (UNHCR, nóvember 2022);
- Report on the human rights situation covering 2022 (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
- The Muqawama and Its Enemies – Shifting Patterns in Iran-Backed Shiite Militia Activity in Iraq (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), 23. maí 2023);
- The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 5. september 2024);
- UNHCR Fact Sheet – Iraq (UNHCR, ágúst 2023);
- United Nations Sustainable Development Cooperation Framework IRAQ (United Nations, 6. september 2021);
- Upplýsingasíða United States Institute of Peace (Iraq Timeline: Since the 2003 War United States Institute of Peace (usip.org), sótt 25. september 2024) og
- World Report 2024 – Iraq (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.
Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.
Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003, hafi nýir leiðtogar Íraks átt í erfiðleikum með að marka lýðræðislega stefnu eftir áratuga einræði og hafi einkum tvær aðgerðir átt veigamikinn þátt í því. Í fyrsta lagi hafi ákvörðun Bandaríkjanna um að útiloka Baath-flokkinn, sem hafi lengi verið við völd og hvernig það hafi verið útfært, frá stjórn ríkisins skapað pólitískt tómarúm. Í öðru lagi hafi sú aðgerð að leysa upp her landsins og útiloka hundruð þúsunda þjálfaðra manna frá störfum við varnir ríkisins, án þess að koma á fót öðrum valkostum, skilið eftir öryggistóm. Í kjölfarið hafi Írak mátt þola borgarastyrjöld, pólitíska ringulreið, víðtæka spillingu, spennu á milli flokka og öfgahópa sem hafi hertekið þriðjung landsins. Við þessa atburði hafi hið pólitíska valdajafnvægi sem ríkt hafði undir stjórn súnníta um aldir riðlast verulega. Sjítar hafi krafist forsætisráðuneytisins og haft nægilegt vald til að stjórna helstu ráðuneytum. Þá hafi í fyrsta skipti verið kúrdískur forseti í Írak og Kúrdar, sem lengi höfðu krafist sjálfsstjórnar frá Bagdad, orðið hluti af ríkinu. Stjórnarskráin viðurkenni sjálfstjórn Kúrdistan héraðs (KRG) og formlega stöðu Peshmerga herafla hennar. Súnnítar, sem höfðu drottnað yfir ríkinu undir stjórn Saddams, hafi haldið lykilstöðu forseta þingsins en misst aðrar valdastöður. Árið 2011 ákváðu Bandaríkin að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópi súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og endurnefndu þau sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Samtökin séu einnig þekkt sem ISIL (Islamic State in Iraq and the Levant (ISIL)) og Daesh (hér eftir verður notað Daesh). Í júní 2014 hafi Daesh náð þriðjungi landsins á sitt vald og hafi leiðtogi Daesh, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg Íraks, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá Daesh. Í desember 2017 lýsti Haider al-Abadi forsætisráðherra yfir sigri gegn Daesh. Í skýrslu EASO frá 2019 er fjallað um aukin yfirráð yfirvalda í Írak í kjölfar þess að sigur hafi verið unninn á Daesh. Fram kemur að íröksk yfirvöld geti, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklinga, almennt veitt fullnægjandi vernd í Bagdad og í suðurhluta landsins. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 að öryggi í Bagdad og nærliggjandi svæðum sé tryggt af írakska hernum, lögreglunni, hersveitum PMF (e. Popular Mobilization Forces) og ýmsum sjía hersveitum.
Í framangreindum gögnum kemur þá fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður- og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.
Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis KRI.Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og hafi ekki viðurkennt niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan KRI og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRI en það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í kosningum sem fram fóru þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum. Í kosningum sem fram fóru í október 2021 hafi KDP haldið stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins en kosningabandalagið Bandalag til breytinga (e. Alliance Towards Reform) hafi tryggt sér flest þingsæti.
Í framangreindum gögnum kemur fram að þrátt fyrir að heiðurstengt ofbeldi sé refsivert samkvæmt landslögum þá sé það nokkuð útbreitt í menningu KRI. Heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna. Írakar tilheyri mismunandi ættbálkum og lifi eftir fornum ættbálkasiðum, venjum og lögum, en hefðbundin fjölskyldugildi séu rótgróin í menningunni. Séu konur í miklum meirihluta þeirra sem verði þolendur heiðursglæpa og þá yfirleitt fyrir að hafa, að mati fjölskyldna þeirra, fært skömm yfir fjölskylduna með einhverjum hætti. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda enn fremur til þess að í Kúrdistan sé þekkt að konur séu neyddar í hjónabönd af ýmsum ástæðum.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslu EUAA frá 2022, er fjallað um erfiða stöðu kvenna í Írak. Fram kemur að efnahagsþvinganir og langvarandi átök hafi leitt til þess að lífsgæði þeirra hafi farið versnandi. Karllæg gildi séu ríkjandi í Írak og skortur sé á umræðu um réttindi kvenna og getu þeirra til að taka frekar þátt í samfélaginu. Konur séu jaðarsettar á mörgum sviðum samfélagsins og hafi mætt margvíslegum hindrunum, þ.á m. hvað varðar aðgengi að vinnumarkaði og heilbrigðiskerfi. Þá hafi margvísleg mannréttindabrot beinst að konum, þ. á m. kynferðis- og heimilisofbeldi, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og þvinguð hjónabönd. Konur hafi veigrað sér við að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna þessa, m.a. vegna viðmóts yfirvalda í garð kvenna, og séu málin því oft leyst innan viðkomandi fjölskyldu eða ættbálks. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og skýrslu EUAA frá 2022 virða íröksk lög og venjur almennt ekki ferðafrelsi kvenna og koma lög t.a.m. í veg fyrir að þær geti sótt um vegabréf án samþykkis karlkyns forráðamanns eða lögmanns. Þá geti konur ekki fengið útgefin persónuskilríki, sem krafist sé fyrir aðgang að opinberri þjónustu, mataraðstoð, heilsugæslu, atvinnu, menntun og húsnæði, án samþykkis karlkyns ættingja. Konur í Írak séu berskjaldaðar fyrir ýmis konar misnotkun af hálfu vinnuveitenda. Einstæðar og fráskildar konur, ekkjur og konur á vergangi séu sérstaklega viðkvæmar fyrir félagslegum fordómum, efnahagslegri misnotkun, mismunun í tengslum við vinnuskilyrði og varnarlausar gagnvart nauðungarvinnu. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi ótryggt félagshagfræðilegt ástand í Írak óhófleg áhrif á konur, ásamt fólki sem búi við fötlun, sem eigi oft erfiðara með að fá vinnu og lifa sjálfstætt sökum stofnana- og menningarlegra hindrana. Yfirvöld í Írak hafi gerst aðili að alþjóðlegum samningum um réttindi kvenna, s.s. samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1986 um afnám allrar mismununar gagnvart konum (e. UN´s Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination Against Women, CEDAW), en hafi gert fyrirvara við nokkur af helstu ákvæðum samningsins. Þá hafi yfirvöld komið á fót aðgerðaráætlun um stöðu kvenna í Írak (e. National Acition Plan concerning women for 2014-2018, NAP), sem byggð er á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2014. Fyrrnefnd aðgerðaráætlun hafi átt að ná fram því markmiði að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og bæta réttindi þeirra en skort hafi á útfærslu og framkvæmd áætlunarinnar.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árin 2022 og 2023 og skýrslu Mannréttindavaktarinnar (e. Human Rights Watch) fyrir sama tímabil kemur fram að þrátt fyrir að stjórnarskrá Íraks banni allt ofbeldi og misnotkun innan fjölskyldunnar þá tilgreini refsilög landsins heimilisofbeldi ekki sérstaklega og lögin heimili eiginmönnum að aga eiginkonur sínar og börn innan ákveðinna marka sem séu nánar tilgreind í lögum og venjum. Innanríkisráðuneyti Íraks haldi úti 16 fjölskylduverndareiningum innan lögreglunnar, sem að staðsettar séu í sérhúsnæði við lögreglustöðvar víðsvegar um landið. Þessum einingum sé ætlað að leysa úr deilum innan heimilisins og vera öruggur staður fyrir þolendur kynferðis- og kynbundins ofbeldis. Einingarnar hafi þó verið gagnrýndar fyrir að leggja áherslu á að slík mál séu leyst með sátt innan fjölskyldunnar. Þá hafi frjáls félagasamtök fullyrt að þolendur veigri sér við að leita aðstoðar innan þessara eininga af ótta við að lögreglan greini fjölskyldum þeirra frá. Enn fremur hafi sumir ættbálkar bannað sínum meðlimum að leita til þessara eininga eftir aðstoð þar sem að heimilisofbeldi sé einkamál fjölskyldunnar. Í skýrslu EUAA um Írak frá árinu 2022 kemur fram að fá neyðarskýli séu í landinu sem konur geti leitað til neyðist þær til að yfirgefa heimili sitt vegna ofbeldis. Stjórnvöld hafi m.a. gripið til þess úrræðis að hýsa konur í fangelsum vegna skorts á skýlum. Flest neyðarskýli sé að finna í stærri borgum og séu rekin af sjálfboðaliðum. Konur sem dvelji þar geti verið í viðkvæmri stöðu þar sem þær hafi ekki stuðning karlkyns ættingja. Þá lendi konur í erfiðleikum við að leita réttar síns vegna neikvæðra viðhorfa lögreglu- og opinberra starfsmanna gagnvart konum og skorti á þekkingu um réttindi kvenna. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að í Kúrdistan sé heimiliofbeldi bannað með lögum, þ.m.t. líkamlegt og sálrænt ofbeldi, hótanir og nauðganir í hjónabandi. Sérstök löggæslustofnun rannsaki kynbundið ofbeldi og þá starfi innan dómskerfisins sérstök sáttamiðlunarnefnd fyrir fjölskyldur. Tvö einkarekin skýli séu starfrækt og fjögur á vegum stjórnvalda sem veiti vernd og stuðning fyrir konur sem séu þolendur kynbundins ofbeldis og mansals. Takmarkað pláss sé þó í skýlunum og samkvæmt frjálsum félagasamtökum sé sálrænn stuðningur takmarkaður. Frjáls félagasamtök séu lykilaðilar í starfsemi skýlanna og veiti m.a. lögfræðilega ráðgjöf.
Í skýrslu EUAA frá maí 2024 kemur fram að Sulaymaniyah hérað sé stærsta hérað í Kúrdistan í norður Írak. Fram kemur að Sulaymaniyah sé stjórnað af PUK sem stjórni Peshmerga og öryggissveitum hafi haft hersveitir undir stjórn PUK. Þá sé sérstakur hópur gegn hryðjuverkum (Counter-Terrorism Group, CTG), í samstarfi við Bandaríkin með höfuðstöðvar í Sulaymaniyah. Í aðgerðum sínum gegn ISIL hafi þeir verið grunaðir um samstarf við YPG (People´s Protection Units), hóps em tyrknesk stjórnvöld telji vinna með sýrlenska legg PKK. ISIL hafi samkvæmt skýrslunni litla viðveru í Kúrdistan.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Ættbálkurinn beri almennt hins vegar ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa séu staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála.
Í skýrslu Alþjóða fólksflutningsstofnunarinnar (IOM) frá árinu 2019 kemur fram að yfirvöld tryggi öllum börnum rétt á endurgjaldslausri menntun frá sex ára aldri. Fjölskyldur sem snúi aftur til Íraks eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðrum löndum geti sótt um aðstoð hjá stofnuninni við enduraðlögun. Í skýrslu EASO frá árinu 2020 kemur fram að það séu ýmsar hindranir að aðgengi að menntun fyrir börn á innri flótta og börn sem séu búsett á svæðum sem hafi verið undir stjórn Daesh. Í skýrslu ástralska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að opinber fræðsla sé gjaldfrjáls á öllum stigum en sé yfirleitt léleg. Menntun sé skylda til loka sjötta bekkjar í Írak. Þrátt fyrir að engir einkaskólar hafi verið starfandi fyrir árið 2003 séu nú um 1.200 starfandi einkaskólar með leyfi frá menntamálaráðuneytinu. Einkaskólar séu oft betri en opinberir skólar en hafi há skólagjöld og séu því aðeins á færi efnameiri einstaklinga. Innritunarhlutfall stúlkna hafi aukist á undanförnum áratugum en sé enn um það bil sex prósentum lægra en drengja í grunnskóla og 25 prósentum lægra í framhaldsskóla.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um alþjóðlega vernd á þeim erfiðleikum sem faðir hans hafi orðið fyrir í heimaríki í tengslum við starf sitt hjá tollyfirvöldum. Faðir hans hafi orðið vitni að því að verið væri að flytja ólöglegan varning og látið yfirmann sinn vita af því. Í kjölfarið hafi föður kæranda borist hótanir.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans og foreldra hans, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.
Foreldrar kæranda hafa lagt fram fjölda gagna hjá stjórnvöldum við málsmeðferðina. Lögðu þau fram viðbótargögn til kærunefndar 4. júlí 2024 með sjúkraskrá föður hans og viðbótargögn 16. ágúst 2024 með gögnum varðandi heimilisofbeldi föður hans á hendur móður, m.a. lögregluskýrsla dags. 26. ágúst 2017 og áverkavottorð vegna meiðsla móður. Þá voru lögð fram gögn frá skóla, dags. 1. maí 2023 um að ótilgreindir aðilar hafi verið að leita að kæranda og bróður hans.
Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að óttast ofsóknir af hálfu írakskra yfirvalda sem gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að kærandi eigi slíkar ofsóknir á hættu.
Kærunefnd hefur tekið afstöðu til málsástæðna föður kæranda í úrskurði sínum nr. 960/2024, dags. 1. október 2024. Var það mat kærunefndar að ekki hefði verið sýnt fram á að yfirvöld í Írak skorti vilja eða getu til að veita þeim viðeigandi aðstoð eða vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Hafi foreldrar kæranda því ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau eða bróðir kæranda hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga. Með vísan í þá niðurstöðu verður lagt til grundvallar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta ofsóknum í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna atvika sem tengjast starfi föður hans í heimaríki. Þá er ekkert annað í gögnum málsins eða framburði kæranda sem bendir til þess að aðstæður hans falli að skilyrðum 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Við málsmeðferð mála kæranda og fjölskyldu hans hjá stjórnvöldum hafa verið lögð fram ýmis gögn er varða veikindi föður hans og þá hefur móðir kæranda greint frá því að faðir kæranda hafi beitt kæranda ofbeldi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi ekki frá því ofbeldi en hann greindi frá veikindum föður hans og af framlögðum gögnum má ráða að kærandi hafi að einhverju leyti aðstoðað föður sinn og móður vegna veikinda föður hans. Er að mati kærunefndar ekki ástæða til þess að efast um að faðir kæranda kunni að hafa beitt kæranda ofbeldi líkt og móðir hans hefur greint frá. Með vísan í framangreindar heimildir um Írak verður þó lagt til grundvallar að kæranda standi til boða raunhæf vernd yfirvalda vegna heimilisofbeldis.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga. Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í borginni Sulaymaniyah, Kúridstan í Írak.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.
Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum í skýrslu EUAA frá 2024 kemur fram að tyrknesk stjórnvöld hafi reglulega framkvæmt aðgerðir gegn PKK og þau hafi færst í aukana á undanförnum árum. Nokkrir almennir borgarar hafi verið drepnir eða meiddir í dróna árásum. Á tímabilinu 1. febrúar 2023 til 31. mars 2024 hafi verið skráðir 127 öryggisviðburðir af vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project). Þau gögn sýna að ástandið sé ótryggt á sumum svæðum. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Sulaymaniyah séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann send aftur þangað eða að hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda er ljóst að aðstæður hans falla ekki undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi sem ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa , sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann og fjölskylda hans muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Almennt ástand í heimaríki sé afar bágborið og áframhaldandi ofsóknir bíði föður kæranda snúi þau aftur til heimaríkis.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu í Kúrdistan til öruggari svæða. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Af gögnum málsins er ljóst að kærandi er almennt heilsuhraustur. Verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærandi hafi ríka þörf á vernd á grundvelli heilbrigðisástæðna, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Móðir kæranda greindi frá atviki þar sem faðir kæranda hafi beitt hana líkamlegu ofbeldi í heimaríki árið 2017 og lagði hún fram gögn varðandi það. Af gögnum málsins verður ráðið að hún hafi leitað til lögreglu og annarra stjórnvalda vegna ofbeldisins og fengið aðstoð. Móðir kæranda greindi sjálf frá því að hún hafi fyrirgefið honum og að hann glími við alvarleg veikindi. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum um aðstæður móður kæranda, kæranda og bróður hans. Í svari komi fram að faðir kæranda ætti það til að veikjast og vera aggressífur og hafi beitt fjölskyldu sína ofbeldi, einnig hér á landi, sem hafi m.a. leitt til þess að faðir kæranda hafi farið í innlögn á bráðageðdeild Landspítalans.
Í gögnum málsins kemur fram að faðir kæranda hafi unnið fyrir tollayfirvöld í um 17 ár og móðir hans hafi unnið skrifstofustarf á stjórnvaldsskrifstofu og að þau hafi leigt íbúð í eigu ömmu kæranda. Greindu foreldrar kæranda frá því að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum og keypt lyf vegna veikinda sinna. Í greinargerð er því haldið fram að kærandi muni vera í erfiðum félagslegum aðstæðum í heimaríki þar sem faðir hans hafi hætt í vinnu sinni áður en þau hafi komið hingað til lands og vegna veikinda hans geti hann ekki unnið. Ljóst sé að ofbeldi föður kæranda í garð móður hans yrði áframhaldandi fái hann ekki viðunandi meðferð vegna [...] sinna. Kærandi sé nýorðinn [...] og hann stóli á stuðning og framfærslu fjölskyldu sinnar. Í viðtali Útlendingastofnunar við kærandi greindi hann frá því að honum hafi liðið vel í heimaríki, hafi gengið í skóla og stundað íþróttir. Með vísan í umfjöllun varðandi 1. mgr. 37. gr. er ljóst að kærandi og móðir hans geti leitað aðstoðar stjórnvalda og annarra aðila í heimaríki telji þau ástæðu til þess. Kærandi eigi bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að fjölskyldan hafi getað framfleytt sér í heimaríki og er það mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að þau verði ekki fær um það við endurkomu til heimaríkis. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 10. júní 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stendur því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 10. júní 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Foreldrum kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var þeim gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Foreldrar kváðust ekki hafa tengsl við Schengen ríki.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi og foreldrar hans hafa gefið um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Í ákvörðunarorðum í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir