01 október 2024
/
Úrskurður nr. 996/2024
Hinn 1. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 996/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24070110 og KNU24070111
Kæra [...]og [...]
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 9. júlí 2024 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgarar Indlands (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.
Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðnir þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsóknum, dags. 19. júní 2024, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 11 daga dvöl frá 25. ágúst til 4. september 2024. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2024. Hinn 9. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kærendum.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærendur telja sig hafa skilað inn öllum umbeðnum gögnum og uppfylla skilyrði til að fá útgefnar vegabréfsáritanir. Í símaviðtali hafi kærandi M ekið bifreið sinni og ekki haft upplýsingar um ferðalagið við höndina.
Ekki voru lögð fram ný gögn á kærustigi.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í máli kærenda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlunina hafi verið áreiðanlegar. Ákvörðunum fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókanir hafi ekki verið hægt að staðfesta. Hótelbókanir hafi ekki passað við ferðaáætlun. Kærendur hafi ekki getað veitt áreiðanleg svör í símaviðtali. Verulegur vafi væri uppi um að kærendur hygðust ferðast til Íslands. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kærenda.
Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Samkvæmt framangreindu var ekki unnt að staðfesta flugbókanir kærenda. Á kærustigi hefur ekki verið bætt úr framangreindum annmarka. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki getað fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar og rökstudd ástæða hafi verði til að draga í efa áreiðanleika framburðar kærenda, sbr. ii. tölul. og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar og ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda og réttmæti upplýsinga sem þau veittu, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður