10 október 2024
/
Úrskurður nr. 1001/2024
Hinn 10. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1001/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24080180 og KNU24080181
Kæra [...]. á ákvörðunum Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 30. ágúst 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Kólumbíu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 16. ágúst 2024, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Kólumbíu og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 20. apríl 2023. Kváðust kærendur hafa farið frá Kólumbíu 17. apríl 2023 vegna þess að einstaklingar úr glæpahópnum Grupo Armado Al Margen de La Ley (ELN) hafi hótað þeim lífláti ef þau greiddu ekki háa fjárhæð. Kærendur hafi tekið hótunum alvarlega. Kærendur hafi sótt um vernd hér á landi þar sem þau hafi talið ólíklegra að meðlimir úr ELN myndu finna þau hér. K hafi sótt um vernd í Belgíu í janúar 2022 en hún hafi hætt við umsóknina og farið aftur til Kólumbíu í nóvember 2022. M hafi ekki sótt um alþjóðlega vernd annars staðar. Kærendur kváðust einungis hafa ríkisborgararétt í Kólumbíu og að enginn úr fjölskyldu þeirra hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. K kvaðst hafa átt fyrirtæki sem hafi selt vefnaðarvöru í fatnað. K hafi þurft að selja fyrirtækið og mamma M hafi einnig lánað þeim til að eiga fyrir flugmiðum til Íslands. Kærendur kváðust hafa búið í borginni […] í Norte de Santander héraði í Kólumbíu og hafa 10 evrur meðferðis. K kvaðst hafa lokið menntaskóla og M kvaðst hafi klárað þrjú ár í tæknifræði í háskóla. Kærendur kváðust vera heilsuhraust.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 19. júlí 2023 ásamt löglærðum talmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur greindu frá því að hafa verið fædd og uppalin í [...] í Norte de Santander í Kólumbíu þar sem þau hafi búið þar til þau hafi flúið til Íslands í apríl 2023. Kærendur greindu frá því að tilheyra hvorki sérstöku þjóðarbroti né minnihlutahópi í heimaríki. Þá hafi kærendur hvorki verið aðilar að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. K greindi frá því að hún hafi átt verslun í Kólumbíu sem seldi föt og efni í fatnað. Fjárhagstaða K hafi verið góð og hún sé ekki skuldug. K greindi frá því að hafa átt venjulegt líf í Kólumbíu þar til í nóvember 2021. Dagana 18. til 25. nóvember hafi henni borist hótanir og reynt hafi verið að kúga af henni fé í símtölum og skilaboðum. K hafi verið 18 ára og séð um rekstur á eignum móður sinnar og það hafi verið ástæða fjárkúgananna. K hafi ekki tekið þessu alvarlega í byrjun þar sem að tilraunir til fjárkúgunar séu algengar í Kólumbíu. K hafi farið að taka þessu alvarlega þegar hún hafi séð að skilaboðin væru frá ELN. Hinn 25. nóvember 2021 hafi K fengið mjög ógnandi símtal. K hafi kært hótanir til lögreglu 29. nóvember 2021. Móðir K hafi verið mjög hrædd um hana og sent hana til að búa hjá fjölskyldumeðlimum. Í desember 2021 hafi K flúið til Belgíu og sótt um alþjóðlega vernd í janúar 2022. Hinn 27. mars 2022 hafi K fengið tölvubréf frá lögreglunni í Kólumbíu um að ekkert yrði gert í málinu sem hún hafi kært. K greindi frá því að lögreglan og yfirvöld í Kólumbíu starfi með þeim einstaklingum sem hún hafi verið að kæra og að glæpahópar fái allar upplýsingar um einstaklinga sem hafi lagt fram kæru á hendur þeim. Þannig væri það alls staðar í Kólumbíu. K hafi byrjað í fjarsambandi með M 23. ágúst 2022. Lífið hafi verið erfitt fyrir K sem hafi verið nýorðin 18 ára og fjarri heimaríki sínu. K hafi verið komin með [...], hún hafi farið til [...] í Belgíu og fengið [...] hjá geðlækni. Þegar K hafi ekki enn fengið svör frá belgískum yfirvöldum hafi hún viljað vera með manninum sínum og fólkinu sem hún elskaði og hún hafi ákveðið að draga til baka umsókn sína um alþjóðlega vernd í Belgíu 4. október 2022. K hafi haldið að hlutir færu að róast í Kólumbíu, þetta væri grafið og gleymt og að staðan þar væri orðin í lagi. K hafi snúið til baka til heimaríkis 14. nóvember 2022. K hafi fengið aðstoð við að halda áfram með fyrirtækið sem hún hafi verið með og í desember 2022 hafi hún skráð sig hjá skattayfirvöldum í Kólumbíu og á fyrirtækjaskrá. Fyrirtæki hennar hafi gengið vel og innkoman hafi verið góð. M hafi stutt hana og hún hafi haldið að lífið væri orðið eðlilegt að nýju. M og K hafi gift sig 31. mars 2023 og 10. apríl hafi henni aftur byrjað að berast hótanir í símtölum og skilaboðum. M hafi einnig borist hótanir. Peningaupphæð sem glæpahópur hafi farið fram á hafi verið orðin miklu hærri og þau hafi ekki getað borgað. Kærendur hafi ákveðið að flytja til móður M og 12 apríl 2023 hafi þau kært þetta til lögreglunnar. Hinn 13. apríl 2023 hafi K fengið ógnandi og dónalegt símtal um að þeir vissu hvar kærendur væru stödd og hvar þau byggju og ef kærendur myndu ekki greiða glæpahópnum yrðu þau drepin. Kærendur hafi keypt flugmiða til Spánar 17. apríl 2023 og komið þaðan til Íslands 20. apríl 2023. Kærendur hafi valið að koma til Íslands því landið sé langt frá Kólumbíu og ekki margir viti af því. Kærendur vonist til þess að landið sé nógu langt í burtu svo glæpahópurinn finna þau ekki. K greindi frá því að hún, sem ung kona, vilji einnig ná markmiðum sínum hér, læra, vinna og nýta hæfileika sína og þekkingu til að eiga betra líf hér á landi. K greindi frá því að það hafi komið skýrt fram í skilaboðum og símtölum til hennar að um væri að ræða meðlimi glæpahópsins ELN. Ástæður fyrir því að reynt hafi verið að kúga fé af K hafi verið að glæpahópar fái upplýsingar um bankareikninga og hreyfingar hjá fólki frá yfirvöldum og sjái hverjum gangi vel. K sé ekki fyrsti einstaklingar sem lendi í þessu, það hafi ýmis fyrirtæki lent í sprengjuárásum. Efni hótananna hafi verið krafa um að greiða tiltekna peningaupphæð og þeim hafi verið hótað lífláti og að K yrði rænt. Kærandi hafi fengið fyrstu hótunina 18. nóvember 2021 og síðustu hótunina 14. apríl 2023. K hafi borist þrjú símtöl og um 5 skilaboð í heildina, en það hafi verið fullt af ósvöruðum símtölum einnig. Kærandi hafi tekið myndband af síðasta símtali sem hún hafi fengið 14. apríl 2023. Meðlimir ELN hafi krafist 15.000.000 kólumbískra pesóa og það hafi átt að greiða með millifærslu á einhvern bankareikning. K greindi frá því að hún hafi aldrei greitt glæpahópnum peninga. K greindi frá því að það séu yfir 100 glæpahópar í fylkinu hún bjó í, en mest áberandi hafi verið ELN og Tren de Aragua. Síðarnefndi hópurinn sé glæpahópur frá Venesúela og hafi verið að berjast um yfirráð við ELN á svæðinu. Í heimahéraði kærenda hafi verið útgöngubann milli klukkan 10 á kvöldin og fimm á morgnanna til að koma í veg fyrir að leigumorðingjar nái til fólks. Á einni viku hafi verið 18 dauðsföll vegna leigumorðingja frá glæpahópum í heimaborg K. K greindi frá því að FARC hafi yfirráð á heimasvæði hennar en að mati K sé það ELN sem hafi mestu yfirráðin. K greindi frá því að hún hafi ekki orðið fyrir ofbeldi af hálfu meðlima glæpahópa en þeir hafi elt hana, reynt að kúga af henni fé og sent henni hótanir. K greindi frá því að kærendum hafi ekki verið veitt lögregluvernd í heimaríki en þau hafi óskað eftir henni þegar þau hafi kært hótanir til lögreglu. K greindi frá því að 18 ára einstaklingi, sem hún hafi þekkt til, hafi verið rænt af meðlimum glæpahóps, myrtur og bútaður niður þegar K hafi verið 7 ára. Líkamsleifar hans hafi verið skildar eftir við gamla kirkju við landamæri Kólumbíu og Venesúela. K greindi frá því að óttast alla glæpahópa í heimaríki og ríkisstjórnina, en núverandi forseti Kólumbíu hafi verið meðlimur skæruliðahópsins M19. Kærandi greindi frá því að óttast um líf sitt og að verða fyrir ofbeldi snúi hún aftur til heimaríkis. Ef hún hefði verið áfram í Kólumbíu væri hún dauð núna af því að hún hafi ekki greitt fjármuni til ELN og búið væri að sprengja upp verslunina hennar. K telji sig ekki vera örugga neins staðar í heimaríki þar sem glæpahópar séu um allt land. K kvað fjölskyldu sína ekki vera í hættu í augnablikinu og að hún sé í sambandi við þau. K kvaðst ekki geta framfleytt sér í heimaríki, atvinnumöguleikar hennar yrðu engir og að yfirvöld gætu enga aðstoð veitt.
M greindi frá því að hafa fengið [...] þegar hann var 13 ára. M hafi verið í meðferð í fimm ár og á fimmta árinu hafi hann fengið [...]. M hafi farið í [...] vegna æxlisins. M hafi útskrifast úr öllum læknismeðferðum þegar hann hafi verið 22 ára og hafi ekki þurft á frekari meðferð að halda. M hafi hins vegar farið í árlegt eftirlit og blóðfrumuprufu. M greindi frá því að þjónustan hafi verið aðgengileg í heimaríki þegar hann hafi þurft á henni að halda en nú sé heilbrigðiskerfið ekki í lagi. M greindi frá því að hann hafi verið aðili að sjúkratryggingakerfinu (s. Entidades Promotoras de Saldud (EPS)) í Kólumbíu. M greindi frá því að hann væri mjög stressaður þar sem hann eigi erfiðar minningar um veikindin og nú vegna líflátshótana. M greindi frá því að ástæður flótta hans frá heimaríki séu tengdar K. K hafi verið hótað lífláti og reynt hafi verið að kúga af henni fé. Þegar M og K hafi byrjað saman þá hafi honum einnig farið að berast hótanir. M hafi stutt K fjárhagslega þegar hún hafi komið til baka frá Belgíu. Hinn 19. nóvember 2022 hafi þau opnað verslunina þeirra. Kærendur hafi lifað venjulegu lífi framan af en 12 apríl 2023 hafi það breyst. M greindi frá því að honum hafi borist símtal þar sem meðlimir ELN hafi krafist 15.000.000 kólumbískra pesóa greiðslu og það hafi bara verið byrjunin. Honum hafi borist mörg símtöl en að hann hafi einungis svarað tveimur þeirra. Kærendur hafi ákveðið að kæra hótanirnar. Það hafi ekkert gerst með fyrri kæru K vegna þess að ríkisstjórnin sé svo spillt og eftir að þau hafi kært hafi þau ákveðið að bíða ekki eftir neinu heldur að yfirgefa heimaríki strax. Kærendur hafi séð mótorhjól vera að fylgjast með þeim. Kærendur hafi ekki verið þau einu sem hafi lent í þessu, þetta sé daglegt brauð í Kólumbíu. M greindi frá því að vini hans hafi verið rænt, krafist hafi verið lausnargjalds sem hafi verið borgað en hann hafi engu að síður verið myrtur og honum skilað í hundrað bitum. M greindi frá því að það hafi verið útgöngubann í gildi í heimaborg hans til að lækka morð- og glæpatíðni en síðustu 15 daga hafi 20 manns verið drepnir. Glæpahópurinn ELN sé í stanslausum átökum við glæpahópinn Tren de Aragua um að ná stjórn á svæðum við landamæri Kólumbíu og Venesúela. Glæpahópunum sé alveg sama um mannslíf, þeir hafi einungis áhuga á völdum og peningum. Vegna þessa hafi kærendur tekið þá ákvörðun að flýja, byrja upp á nýtt og eiga möguleika á að lifa í staðinn fyrir að deyja þarna. M greindi frá því að geðheilsa K sé tæp því henni finnist enn einhverjir vera að elta þau. M greindi frá því að hótanirnar hafi í fyrstu falið í sér að reynt hafi verið að kúga fé af kærendum, þá hafi fjárhæðin hækkað. Hótanirnar hafi snúist um að ræna kærendum og að lokum hafi þeim verið hótað lífláti. M greindi frá því að ef fólk hlýði glæpahópum og greiði sé það orðið fast og losni ekki við meðlimi glæpahópsins. Glæpahópurinn viti alltaf hversu mikils fólk aflar, hvaða eignir það eigi og hafi upplýsingar um fjölskyldur þeirra. M hafi fyrst borist hótun 12. apríl og síðasta hótun hafi borist 15. apríl 2023. Hótanirnar hafi farið fram í símtölum eða í smáskilaboðum. M hafi fengið þrjú símtöl, sem hann hafi svarað, og um sex skilaboð. M greindi frá því að hafa hvorki þekkt símanúmer sem hafi hringt né þá einstaklinga sem hafi verið að hóta þeim. Meðlimir glæpahópsins hafi sagst vita hvar þau ættu heima, hvað þau væru að gera og að þeir hefðu vitneskju um fjölskyldur þeirra. Hótanirnar hafi beinst meira að K en M vegna verslunarinnar sem hún hafi verið með og þeirra eigna sem móðir hennar hafi átt. Kærendur hafi tekið upp eitt símtal sem þeim hafi borist. M greindi frá því að meðlimir glæpahópsins hafi viljað fá millifærslu fyrir 15.000.000 kólumbískum pesóum í gegnum smáforritið Nequi sem tengist við símanúmer, en M hafi ekki borgað þeim. M kvað þau hafa verið skotmark meðlima ELN vegna upplýsinga sem þeir hafi haft um verslun K, eiginfjárstöðu hennar og eignir móður hennar. K hafi rekið fata- og textílverslun í heimaríki, fyrirtæki sem þau hafi stofnað þegar K hafi komið aftur frá Belgíu. M greindi frá því að kærendur hafi ekki fengið lögregluvernd í heimaríki en þau hafi óskað eftir því. M greindi frá því að hann og fjölskylda hans hafi aldrei verið beitt ofbeldi af hálfu meðlima glæpahópa í heimaríki. M kvaðst óttast glæpahópinn ELN í heimaríki af því að hann viti hvað hópurinn geti gert, hafi gert og muni gera. M kvaðst óttast um líf sitt og um að vera beittur ofbeldi vegna þess sem hafi hent kærendur. M vilji ekki vera einn enn sem lendi í þessu og vegna þess að hann hafi séð hversu mikið fjölskyldur þjáist vegna misþyrminga glæpahópa sem taki hverja krónu af fólki í lausnargjald og myrði engu að síður fjölskyldumeðlimi þeirra. Meðlimir glæpahópsins ELN hafi látið þau vita að þeir stæðu að baki hótunum og hafi tekið fulla ábyrgð á skilaboðunum sem þeir hafi sent, þeir hafi kynnt sig eins og meðlimir ELN. Þetta hafi alltaf verið sami glæpahópurinn sem stjórni öllu í heimafylki kærenda, séu sterkastir núna og séu með menn í öllum stöðum, í lögreglu, hernum, ríkisstjórn, þingi og alls staðar. Fjármunir sem þeir hafi krafist hafi verið til framfærslu fyrir málsstað hópsins. ELN hafi sett fána sinn og sprengjur með skammstöfun sinni út um allt. Glæpahópurinn vilji sýna ríkisstjórninni að hann sé búinn að vera þarna í 50 ár og hafi ekki enn náðst. M greindi frá því að lögreglan fari ekki inn á tiltekin svæði á ákveðnum dögum þar sem þá sé verið að smygla fíkniefnum. ELN stjórni þremur brúm sem snúi að landamærum Kólumbíu og Venesúela. Hver einasti trukkur sem fari yfir landamærin þurfi að borga annars sé hann sprengdur, þess vegna sé borgað. M greindi frá því að ELN sé með yfirráð á heimasvæði hans. Þá greindi M frá því að það hafi verið brotist inn til hans og hann rændur. Fjölskyldan hafi ekki getað kært því að þá myndi ræninginn sjá M og hann eða fjölskylda ræningjans geti þá ráðist á M og fjölskyldu hans.
M greindi frá því að fjölskylda hans væri ekki í hættu í heimaríki af því að M sé farinn langt í burtu. M kvaðst telja að hann yrði pyntaður og misþyrmt af meðlimum ELN ef hann sneri aftur til heimaríkis og að það yrði mikil þjáning fyrir mæður kærenda að upplifa það. M greindi frá því að hann geti ekki búið annars staðar í heimaríki þar sem glæpahópurinn sé alls staðar og sé stærstur í fíkniefnaflutningum og smygli. Þá geti yfirvöld ekki veitt honum vernd. M greindi frá því að geta ekki framfleytt sér í heimaríki, hann yrði atvinnulaus og ríkið myndi ekki veita honum aðstoð. M gæti ekki leitað sér heilbrigðisþjónustu þar sem hún sé orðin svo slæm. M greindi frá því að vera í sambandi við móður sína í heimaríki. Móðir hans hafi það gott, hún sé við góða heilsu og sé enn að vinna úti. Ekki hafi verið reynt að kúga fé af móður hans því að meðlimir glæpahópsins viti að hún eigi bara lítið hús en enga peninga. Þeir viti hverja þeir eigi að fjárkúga og hverja ekki.
Kærendur lögðu fram fjölda gagna við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Kærendur lögðu fram afrit af skattframtali, bankaupplýsingum og hjúskaparvottorði, afrit af tveimur tilkynningum til héraðssaksóknara og erindi saksóknara vegna fyrri tilkynningar, myndband af síma þar sem tekið er upp símtal, skjáskot af fréttum af ástandi í heimabæ kærenda og heilsufarsgögnum M.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 30. ágúst 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda 19. september 2024. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kærendum með tölvubréfi, dags. 26. september 2024. Svar og viðbótargögn bárust kærunefnd 30. september 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi verið fædd og uppalin í […] í norður Santander í Kólumbíu þar sem þau hafi verið búsett þegar þau hafi flúið til Íslands. M hafi verið með [...] þegar hann hafi verið 13 ára, hafi verið fimm ár í meðferð og á fimmta árinu hafi hann fengið [...]. M hafi útskrifast úr öllum læknismeðferðum þegar hann hafi verið 22 ára og hafi ekki þurft að fá meðferð síðan. M hafi séð vini sína lenda í ofsóknum í Kólumbíu auk þeirra ofsókna sem kærendur hafi lent í. M óttist sérstaklega að K verði rænt og [...]. Mikil átök sé á milli ELN og Tren de Aragua til að ná stjórn á landamærum Kólumbíu og Venesúela en heimasvæði kærenda sé einmitt rétt við landamærin. ELN hafi sem stendur stjórn á heimasvæði kærenda í norður Santander. K hafi átt fata- og textílverslun í Kólumbíu. K hafi að mestu átt eðlilegt líf í Kólumbíu með þeim fyrirvara að almennt ástand þar sé hræðilegt. Vikuna 18. - 25. nóvember 2021 hafi K byrjað að berast hótanir í skilaboðum og símtölum. Í byrjun hafi hún ekki tekið þeim alvarlega því slíkar fjárkúganir hafi verið algengar í heimaríki hennar. Þegar K hafi séð að skilaboð komu frá ELN hafi hún tekið þessu alvarlega og móðir hennar hafi sent hana til að búa með ættingjum. Á þessum tíma hafi K verið einungis 18 ára og hafi verið mjög óttaslegin. Hinn 25. nóvember 2021 hafi K fengið mjög ógnandi símtal sem hún hafi kært til lögreglunnar 29. nóvember 2021. Kærandi og móðir hennar hafi þá flúið til Belgíu í gegnum Frakkland. K hafi sótt um alþjóðlega vernd í Belgíu í janúar 2022. Hinn 27. mars 2022, stuttu eftir fyrsta viðtal hjá yfirvöldum í Belgíu, hafi K fengið tölvupóst frá lögreglunni í Kólumbíu um að búið væri að taka ákvörðun í máli hennar þar. Hinn 23. ágúst 2022 hafi kærendur hafið fjarsamband. Þessir atburðir hafi reynst K erfiðir og hafi hún leitað sér aðstoðar [...] í Belgíu og verið uppáskrifuð [...]. Í ljósi slæmrar andlegrar heilsu K hafi hún ekki séð sér annað fært en að snúa til baka til Kólumbíu til að vera með M og fjölskyldu sinni. K hafi snúið aftur til Kólumbíu 14. nóvember 2022 og um stund hafi hótanirnar hætt. Hinn 19. desember 2022 hafi K skráð sig aftur hjá skattayfirvöldum í heimaríki og kærendur hafi gift sig 31. mars 2023. Hinn 10. apríl 2023 hafi hótanir frá ELN hafist á ný, bæði í símtölum og í skilaboðum. Í þetta skipti hafi báðum kærendum borist hótanir, upphæð sem krafist hafi verið orðin töluvert hærri og þau hafi ekki getað borgað. Kærendur hafi flutt til móður M til að reyna fela sig fyrir glæpamönnunum. Kærendur hafi lagt fram kæru 12. apríl 2022 og óskað eftir lögregluvernd sem þau hafi ekki fengið. Daginn eftir hafi K borist hótanir um að glæpamenn vissu hvar kærendur byggju og hótað þeim lífláti ef þau myndu ekki borga. Kærendur hafi ekki séð sér annað fært en að flýja heimaríki og komu til Íslands 21. apríl 2023.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbíu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Kærendur árétta að mat á trúverðugleika sé ólögfest mat stjórnvalda og að í lögum um útlendinga séu engin ákvæði um framkvæmd þess en það verði að samræmast þeim verklagsreglum sem komi fram í leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Kærendur hafi lagt fram fjölmörg gögn til stuðnings frásögn sinni og telja sig hafa uppfyllt kröfur um að frásögn og framlögð gögn eigi stoð í hlutlægum heimildum. Kærendur hafi sýnt fram á með stöðugum og nákvæmum frásögnum og framlögðum gögnum að þeirra bíði ofsóknir í heimaríki. Kærendur hafna trúverðugleikamati Útlendingastofnunar og telja að með því að veita ekki frásögnum þeirra og gögnum vægi hafi verið brotið gegn rannsóknarreglu útlendinga- og stjórnsýsluréttar. Af því leiði að ógilda beri ákvarðanir Útlendingastofnunar.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þau séu flóttamenn samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að þau hafi ástæðuríkan ótta á ofsóknum af hálfu aðila sem séu nefndir í a- til c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðildar að þjóðfélagshópum. Þar að auki telja kærendur að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í heimaríki. Kærendur byggja á ástæðuríkum ótta á grundvelli aðildar að þjóðfélagshóp skv. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga í ljósi reynslu sinnar af hótunum og ofbeldi af hálfu glæpamanna og glæpahópa enda sé ljóst samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna að þolendur slíks ofbeldis geti myndað tiltekinn þjóðfélagshóp. Þær ofsóknir sem kærendur hafi reynslu af falli undir a-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga enda hafi kærendur m.a. lýst líkamlegu ofbeldi sem og aðgerðum stjórnvalda, lögreglu og dómstóla, sbr. b-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vegna huglægs ótta um athafnaleysi gagnvart þeim brotum sem þau hafi staðið frammi fyrir. Auk þess óttist kærendur synjun á notkun réttarúrræða sem leiði til óhóflegrar og mismunandi refsingar, sbr. d-liður 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á framangreint er byggt á því að samsafn athafna varði við ofsóknir í máli kærenda sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Um sé að ræða ástæðuríkan huglægan ótta kærenda á grundvelli d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sem í eðli sínu varði við b- og c-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi með gagnaframlagningu sýnt fram á að ótti þeirra sé hlutlægur en einnig verði að telja að þau hafi auk þess verulega ríkan huglægan ótta á ofsóknum í ljósi þess sem kærendur hafi þegar upplifað. Fyrir liggi að kærendur hafi ekki og geti ekki hlotið vernd yfirvalda í heimaríki, enda séu yfirvöld sjálf valdur af ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga m.a. með vilja- og getuleysi á því að veita þeim vernd og með tengslum sínum við ofsóknaraðila kærenda.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því við mat á því hvort að 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt beri að hafa hliðsjón af 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrá nr. 33/1944 þar sem lagt er bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og refsingu. Mannréttindadómstóll Evrópu hafi talið að nægilegt sé að draga þá ályktun af lýsingu á sönnuðum athöfnum að þær séu til þess fallnar að valda þeirri þjáningu og tilfinningu sem felist í ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð þ.e. kvíða, vanmátt, lítillækkun og skömm sbr. athugasemdir í frumvarpi sem varð að stjórnarskipunarlögum nr. 97/1995. Kærendur vísa í frumvarp með breytingalögum nr. 115/2010 sem lögfestu ákvæði um viðbótarvernd og afmörkun viðbótarverndar í 2. gr. e og 15. gr. tilskipunar Evrópubandalagsins nr. 2004/83/EB frá 29. apríl 2004 með áorðnum breytingum. Kærendur bendi á að ofbeldi og hótanir, sem þau hafi gefið skýra og stöðuga frásögn um, falli beint að kjarna 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi lýst ótryggu öryggisástandi vegna einstaklingbundinna þátta og hafi fulla ástæðu til að óttast refsingar og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sérstaklega vegna fyrrum upplifana þeirra. Vanræksla á að taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda varði við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1992, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þar að auki verði að meta stöðu kærenda með hliðsjón af öllum viðeigandi heimildum um Kólumbíu þar sem óöruggt ástand hafi ríkt í fjölda ára. Ekki sé hægt að ætlast til þess með sanngjörnum hætti að þau leiti sér verndar stjórnvalda í heimaríki. Með hliðsjón af framangreindu telji kærendur sig uppfylla skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærendur benda á að flutningur innanlands sé ekki meginregla í alþjóðlegri flóttamannalöggjöf, þar sem þess sé ekki krafist að einstaklingar sem sæti ofsóknum útiloki alla möguleika í heimaríki sínu, enda er umsókn um alþjóðlega vernd ekki lokaúrræði. Enn fremur kemur fram að þar sem stjórnvöld séu valdur að ofsóknum skuli gengið út frá því að raunverulega vernd sé ekki að fá í neinum hluta landsins. Flutningur kærenda innanlands myndi hafa í för með sér aðstæður sem ekki teljist öruggar. Flutningur innan Kólumbíu sé hvorki raunhæfur né sanngjarn kostur fyrir kærendur.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærendur vísa til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Þá geti langvarandi stríðsástand eins fallið þar undir. Fyrir liggi að ELN hafi verið sakað um stríðsglæpi og hafi staðið að mannréttindabrotum á borð við morð, mannshvörf og nauðganir. Þá geti yfirvöld ekki veitt þegnum sínum nægilega vernd gegn ofbeldi og glæpum líkt og komi skýrlega fram í tilviki kærenda. Nú liggi fyrir erfiðar og lífshættulegar aðstæður kærenda og því sé ekki talið tækt að senda þau aftur til Kólumbíu. Heimildir hermi að ástand mannréttindamála í Kólumbíu sé afar bágborið. Um erfiðar efnahagslegar- og félagslegar aðstæður sé að ræða auk almenns ótryggs ástands í landinu og ríkjandi mannréttindabrot. Ástandið hafi þegar valdið kærendum ómældri þjáningu, ótta og óöryggi sem jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Auk þess telja kærendur raunhæfa ástæðu til að ætla að þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð þar sem langvarandi ótryggt ástand hafi ríkt í heimaríki. Þá sé fyrirséð að möguleikar kæranda á vernd yfirvalda séu nærri útilokaðir. Þegar litið sé til framangreinds þyki ljóst að kærendur uppfylli skilyrði mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur telja að með endursendingu þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga vegna annmarka á trúverðugleikamati sem leiði til þess að fella verði ákvarðanirnar úr gildi.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og ákvæði laga um útlendinga. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu kólumbískir ríkisborgarar.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Report on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 County Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2023 Report on International Human Rights Freedom: Columbia (US Department of State, 30. júní 2024);
- ACLED Dashboard, 24. febrúar 2022 – 24. febrúar 2023.
- Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia, Cundinamarca (ACLED Dashboard, 3. mars 2023);
- Colombia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 2023);
- Colombia: Events of 2023 (Human Rights Watch 2024);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
- Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
- Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 2. janúar 2024);
- Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 31. janúar 2024);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 9. september 2024);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. September 2024);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
- Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
- Resolution 2573(2023) (United Nations Security Council, 11. janúar 2023);
- Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
- The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 24. september 2024);
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia? (The Dialogue, 8. febrúar 2023);
- World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
- World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, sótt 26. september 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System | International Insurance, sótt 26. september 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army).Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin ilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN dags. 20. febrúar 2024 sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 10,5% árið 2022 og minnkaði frá árinu 2021 er það var 14,3%. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum sé heilbrigðiskerfið í Kólumbíu með þeim bestu í heiminum og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er Kólumbía í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu rekur heilbrigðiskerfið sjúkratryggingar sem beri heitið Entidades Promotoras de Salud (EPS). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.
Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Ofbeldi gegn konum og nauðganir, þ. á m. nauðganir í hjónaböndum, séu vandamál í landinu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jafnrétti kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20 prósent þingsæta í hverri þingdeild sé í höndum kvenna og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi lög verið samþykkt sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum varðandi þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi lög verið sett árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um 21 til 50 ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu kemur m.a. fram að stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sé starfrækt í landinu. Stofnunin vinni að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra og reki svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum landsins. Skrifstofa umboðsmanns standi auk þess vörð um mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sé hægt að tilkynna kynbundið ofbeldi. Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá 2023 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hafi áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna almenns ástands. Þá byggja kærendur umsókn sína á að þau séu í hættu í heimaríki vegna ofríkis, hótana og fjárkúgunar af hálfu glæpahópsins ELN. Kærendur óttist um líf sitt, þau geti ekki treyst á vernd yfirvalda og geti ekki flutt sig um set og verið örugg í heimaríki.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa fæðst, alist upp og búið í borginni [...] í Norte de Santander héraði í Kólumbíu áður en þau hafi flúið heimaríki. K greindi frá hótunum og tilraun til að kúga af henni fé árið 2021 og kærendur greindu frá tilraun til að kúga af þeim fé og líflátshótunum árið 2023 af hálfu meðlima glæpahópsins ELN.
Til stuðnings umsókn sinni lögðu kærendur fram upptöku sem þau kveða vera upptöku af símtali frá meðlimum glæpahópsins ELN, afrit af tveimur kærum til héraðssaksóknara, dags. 29. nóvember 2021 og 12. apríl 2023 og svar héraðssaksóknara við fyrri kærunni, dags. 27. mars 2022. Fyrri kæran ber með sér að vera handskrifað kærueyðublað dags. 29. nóvember 2021. Texti kærunnar ber með sér að hún hafi verið lögð fram til skrifstofu ríkissaksóknara (s. Fiscalía General De La Nacion) í Norte de Santander og beinist að ótilgreindum einstaklingum. Í símtali sem K hafi borist hafi þeir kynnt sig sem meðlimir ólöglegs glæpahóps. Svar ríkissaksóknara, dags. 27. mars 2022, ber með sér að hið kærða athæfi falli ekki undir ákvæði 347. gr. hegningarlaga. Hinar kærðu hótanir hafi ekki verið gerðar í þeim tilgangi að valda ótta, kvíða eða hræðslu meðal almennings líkt og framangreint ákvæði kveði á um. Átt hafi sér stað alvarlegar hótanir gegn einstakling sem ógni þó ekki allsherjarreglu og friði svo að það kalli á rannsókn af hálfu ríkissaksóknara. Þar sem framangreind kæra varðaði ekki ákvæðið var kæranda beint til lögreglu (s. Inspecciones de Policia) til að leysa úr framangreindum hótunum þar sem framangreint heyri undir valdsvið þeirra. Síðari kæra, dags. 12. apríl 2023, ber einnig með sér að vera til ríkissaksóknara. Kæran ber með sér að hún beinist gegn ótilgreindum meðlimum ólöglegs glæpahóps (ELN). Í frásögn kærenda kemur fram að þeim hafi borist hótun þar sem að nafngreindur einstaklingur frá ELN hafi gert tilraun til að kúga fé af kærendum. Séu kærendur því orðin hernaðarleg skotmörk ELN, þeim hafi verið skipað að yfirgefa heimaborg og heimahérað sitt, ellegar muni þau deyja. Þá ber kæran með sér að kærendur óski eftir rannsókn á athæfi glæpahópsins og að kærendum verði veittar verndarráðstafanir. Kærendur lögðu jafnframt fram yfirlit bankareiknings í eigu K fyrir tímabilið 31. desember 2022 til 31. mars 2023 og staðfest afrit skráningar K fyrir skattnúmeri, dags. 19. nóvember 2022, vegna reksturs sem hún hafi byrjað 3. janúar 2022.
Með tölvubréfi, dags. 26. september 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum um efni framangreindra fylgiskjala, einkum hvort K hafi leitað til lögreglu vegna hótana sem henni hafi borist árið 2021 líkt og ríkissaksóknari hafi leiðbeint um og hvort að kærendur geti lagt fram afrit af skilaboðum sem þeim hafi borist í apríl 2023. Í svörum kærenda, sem bárust kærunefndinni 30. september 2024, kemur fram að kærandi hafi farið til ríkissaksóknara (s. Fiscalía General De La Nacion) til að leggja fram kvörtun þar sem kæra hennar hafi heyrt undir valdsvið þess embættis. K hafi verið nýorðin 18 ára og hafði yfirgefið heimaríki af ótta. Þegar K hafi fengið tölvubréf frá framangreindu embætti árið 2022 hafi málinu verið vísað frá. Að mati K hafi það verið gert vegna þess að hún hafi ekki verið lengur í heimaríki og hafði ekki haft nein samskipti við yfirvöld. Þá greindi K frá því að hún hafi leitað til lögreglu sem hafi ráðlagt henni að leggja fram kæru hjá ríkissaksóknara (s. Fiscalía General De La Nacion). K greindi frá því að hafa lagt fram skilaboð með kæru sinni árið 2023 þar sem lífi kærenda og öryggi hafi verið ógnað. Með svörum til kærunefndar lögðu kærendur m.a. fram afrit af smáskilaboðum og tveimur WhatsApp skilaboðum. Smáskilaboðin eru dagsett 18., 19. og 22. nóvember 2021. Texti skilaboðanna ber m.a. með sér að vera beint til K, þar sem nafn K og móður hennar er nefnt í skilaboðunum, og að eiga að vera frá ELN sem krefst greiðslu 10 eða 12 milljón kólumbískra pesóa. Whatsapp skilaboðin eru ódagsett og eru úr sama símanúmeri. Texti fyrri WhatsApp skilaboðanna ber m.a. með sér að vera beint að kærendum, að þau séu hernaðarskotmörk ELN (s. Ejercito De Liberacion Nacional), eigi að yfirgefa [...] ellegar verði þau drepin. Texti seinni skilaboðanna ber m.a. með sér að vera frá nafngreindum aðila innan ELN og fela í sér hótanir vegna þess að kærendur hafi ekki verið samvinnuþýð. Fram kemur hvar rekstur kærenda sé staðsettur og ef þau séu ekki samvinnuþýð muni valdi vera beitt og þeim rænt. Í lok beggja skilaboðanna kemur fram það sem virðist vera almenn fullyrðing á þá leið að þeir verslunareigendur sem ekki séu samvinnuþýðir muni deyja. Með tölvubréfi, dags. 2. október 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum um hótanir sem K hafi borist árið 2021, aðstæður móður K, aðkomu K að rekstri móður sinnar og rekstur sem kærendur hafi verið með í Kólumbíu. Í svörum kærenda, sem bárust kærunefndinni 7. október 2024, kemur m.a. fram að K eigi móður og bróður í heimaríki. K hafi verið stjórnandi í rekstri móður sinnar. K hafi vitað af því 18. nóvember 2021 að það hafi verið ELN sem hafi staðið að baki hótunum árið 2021. Móðir K hafi flutt, skipt um símanúmer og lokað rekstri sínum vegna fjárkúgunartilrauna árið 2021. Móðir K hafi síðan þá borist hótanir í síma og síðast borist hótun fyrir um sex mánuðum. Þá hafi móðir K verið rænd og eigum hennar verið stolið. Þess vegna hafi móðir K flutt á nafngreint heimilisfang fyrir mánuði síðan þar sem sé öryggisgæsla. Móðir K sé fimmtug og hafi aldrei flutt frá Kólumbíu vegna hræðslu við að byrja nýtt líf annars staðar og þá hafi hún verið of hrædd til að tilkynna glæpi vegna ástandsins í Kólumbíu. Þá kemur fram að kærendur hafi verið með verslun á nafngreindum stað. Þau hafi skráð reksturinn hjá yfirvöldum 19. nóvember 2022 og byrjað rekstur 3. janúar 2023. Kærendur hafi mest unnið með peninga í rekstrinum og fjármunir sem hafi tengst rekstrinum hafi farið í gegnum persónulegan reikning K. Þá kom fram að það hafi verið sonur stjúpmóður K sem hafi verið rænt og hann myrtur þegar K hafi verið sjö ára. Vinur M hafi verið myrtur af glæpahópnum ELN í ágúst 2017. Kærendur lögðu m.a fram tvö myndbönd sem virðast vera úr verslun, skjáskot af myndum sem bera með sér að verið sé að selja skó og virðist merkt nafngreindri verslun, skjáskot af staðsetningu nafngreindrar verslunar í heimaborg kærenda á netinu, sjálfsmynd af konu í verslun með texta um að tiltekin flík sem hún klæðist sé til og kvittun sem ber með sér að uppgefið heimilisfang móður K sé í heimaborg kærenda [...] í Kólumbíu.
Að mati kærunefndar gætir misræmis í frásögn kærenda í viðtölum hjá Útlendingastofnun og í framlögðum gögnum. Þar má helst vísa til verslunar sem kærendur greina frá að hafa rekið og hótana sem þeim hafi borist vegna rekstursins.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hafa verið í Belgíu frá desember 2021 til 14. nóvember 2022. Hinn 19. desember 2022 hafi hún skráð sig hjá skattinum og á fyrirtækjaskrá. M greindi frá því að þau hafi byrjað með verslun 19. nóvember 2022. Í svörum frá kærendum, sem bárust kærunefnd 7 október 2024, greindu kærendur frá því að hafa hafið skráð verslun sína í fyrirtækjaskrá 19. nóvember 2022 og hafið rekstur 3. janúar 2023. Í skjali sem kærendur lögðu fram við meðferð mála síns hjá kærunefnd og ber með sér að vera staðfest afrit skráningar K fyrir skattnúmeri, dags. 19. nóvember 2022, kemur fram að rekstur hafi verið virkur frá 3. janúar 2022, ári áður en kærendur greina frá að hafa hafið verslun og á þeim tíma sem K greinir frá því að hafa verið búsett í Belgíu. Í svörum frá kærenda, sem bárust kærunefnd 7. október 2024, kemur fram heimilisfang verslunar sem kærendur greindu frá að hafa rekið. Í WhatsApp skilaboðum sem kærendur lögðu fram við meðferð mála þeirra hjá kærunefnd, sem þau kveða vera frá glæpahópnum ELN, kemur m.a. fram að þeir viti hvar rekstur þeirra sé staðsettur. Þá kemur fram heimilisfang í skilaboðum sem er ekki það sama og kærendur gáfu upp í framangreindum svörum til kærunefndar. Framangreint misræmi er til þess fallið að draga úr trúverðugleika frásagna kærenda um að þau hafi rekið verslun í heimaríki árið 2023.
Kærendur lögðu einnig fram yfirlit bankareiknings í eigu K fyrir tímabilið 31. desember 2022 til 31. mars 2023. Í svörum frá kærendum, sem bárust kærunefnd 7. október 2024, greindu kærendur frá því að hafa einkum unnið með reiðufé í búðinni og að greiðslur í tengslum við fyrirtækið hafi farið í gegnum persónulegan reikning K. Af framangreindu yfirliti verður ekki ráðið að færslur á því tengist starfsemi verslunar eða annars reksturs og er það því ekki til þess fallið að styðja við frásagnir kærenda. Kærendur lögðu einnig m.a. fram tvö myndbönd sem sýna upptökur af skóm og öðrum fatnaði í hillum og á slám, skjáskot af myndum sem bera með sér að verið sé að selja skó og vera merktar nafngreindri verslun, skjáskot af staðsetningu nafngreindrar verslunar í heimaborg kærenda á netinu og sjálfsmynd af konu í verslun með texta um að tiltekin flík sem hún klæðist sé til í verslun. Af framangreindum skjáskotum verður ekki ráðið að um sömu verslun sé að ræða enda er nafn verslana á skjáskotum ekki það sama. Þá er ekki hægt að sjá í hvaða verslun myndirnar eru teknar. Framangreind yfirlit, myndbönd og myndir hafa því lítið sönnunargildi.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 19. júlí 2023, greindi K frá því að hafa byrjað að fá skilaboð 18. nóvember 2021, þar sem reynt hafi verið að kúga af henni fé og henni hafi verið hótað. K hafi ekki haft miklar áhyggjur af þessum hótunum til að byrja með en þegar hún hafi vitað að skilaboðin væru frá glæpahópnum ELN þá hafi hún farið að taka þeim alvarlega. Við meðferð mála sinna hjá kærunefnd lögðu kærendur m.a. fram afrit af smáskilaboðum, dags. 18., 19. og 20. nóvember 2021. Í texta skilaboða sem eru dagsett 18. nóvember kemur fram nafn glæpahópsins ELN. Í svörum kærenda til kærunefndar greinir K frá því að hafa vitað að skilaboðin hafi verið frá glæpahópnum ELN 18. nóvember 2021, þegar hún kvaðst hafa fengið fyrstu skilaboðin. Að mati kærunefndar er framangreint misræmi til þess fallið að draga úr trúverðugleika K.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hafa byrjað aftur að berast símtöl og skilaboð 10. apríl 2023 frá glæpahópnum ELN þar sem gerð hafi verið tilraun til að fjárkúga hana og henni hafi verið hótað. K greindi frá því að fyrstu dagana í apríl hafi þeim borist hótanir og þau hafi ákveðið að kæra þær 12. apríl 2023, daginn eftir að K hafi fengið annað símtal sem hafi verið mjög ógnvekjandi og dónalegt. K greindi frá því að hún hafi ekki verið fyrsti einstaklingurinn sem hafi lent í þessu. Glæpahópar hafi aðgengi að bankaupplýsingum og hreyfingum og sjái hvaða einstaklingum gangi vel, það hefðu alls konar fyrirtæki lent í sprengjuárás. K greindi frá því að henni hafi fyrst borist hótanir 18. nóvember 2021 og hafi borist þrjú símtöl og sex skilaboð í heildina. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að líf kærenda hafi breyst 12. apríl 2023. Meðlimir glæpahópsins ELN hafi fyrst reynt að kúga fé af kærendum, hafi síðan hækkað upphæðina og hótað þeim lífláti. M hafi fengið fyrstu hótunina 12. apríl og síðustu hótun 15. apríl 2023. Fyrst hafi verið hringt í M, en hann hafi einungis svarað tveimur símtölum. Síðar í viðtali greinir M frá því að hafa svarað þremur símtölum og hafa fengið sex skilaboð. M greindi frá því að afmælisdagurinn hans, 8. apríl 2023, hafi verið hrein martröð því K hafi þá þegar borist hótanir frá glæpahópnum ELN. Af framangreindu er ljóst að misræmis gætir um það m.a. hvenær K hafi byrjað að berast hótanir og hversu oft þeim hafi borist hótanir alls og dregur það úr trúverðugleika þeirra.
Til stuðnings umsókn sinni lögðu kærendur fram upptöku sem þau kveða vera upptöku af símtali frá meðlimum glæpahópsins ELN. Við meðferð mála sinna hjá kærunefnd lögðu kærendur m.a. fram afrit af ódagsettum skilaboðum af samskiptaforritinu WhatsApp sem hafi komið úr sama símanúmeri. Í þeim koma fram hótanir gegn kærendum, að kærendur séu hernaðarleg skotmörk, og skipun um að kærendur skuli yfirgefa heimasvæði sitt. Í texta skilaboðanna kemur einnig fram að sendandi viti staðsetningu reksturs þeirra og heimilisfang. Myndbandsupptaka af símtalinu og skilaboðin bera ekki með sér til hvers símtalið og skilaboðin hafi verið. Þá er ekki hægt að fullyrða af þeim upplýsingum sem liggja fyrir að símtalið og skilaboðin hafi verið frá meðlimum glæpahópsins ELN eða öðrum glæpahópi í heimaríki kærenda. Líkt og að framan greinir er heimilisfangið í framangreindum skilaboðum heldur ekki í samræmi við það heimilisfang sem kærendur gáfu upp á verslun sinni í heimaríki. Hafa því framangreint símtal og skilaboð lítið sönnunargildi.
Við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hafa fengið skilaboð í nóvember árið 2021 vegna starfs hennar í rekstri móður sinnar. Við meðferð mála sinna hjá kærunefnd lögðu kærendur m.a. fram skilaboð sem eru dagsett í nóvember 2021 sem bera með sér að hafa einnig beinst að móður K. Í svörum kærenda, sem bárust kærunefnd 7. október 2024, kemur fram að móðir K hafi lokað rekstri sínum í kjölfar fjárkúgunartilraunanna, flutt og skipt um símanúmer. Þá kemur fram að móðir K hafi síðast fengið hótanir fyrir um sex mánuðum síðan, í apríl 2024, og að einnig hafi verið brotist inn til móður K. Þess vegna hafi hún flutt fyrir um mánuði síðan, í september 2024. Af framangreindu má ráða að móðir K hafi búið í sama bæ í heimaríki að því er virðist óáreitt þar til hún hafi flutt fyrir um mánuði síðan. Verður að teljast ótrúverðugt að hótanir sem móður K kunna að hafa borist í apríl 2024 og innbrot sem kann að hafa átt sér stað á heimili móður K sé í tengslum við rekstur sem móðir K hafi lokað í kjölfar fjárkúgunartilraunanna í nóvember 2021.
Í ljósi heimilda um heimaríki kærenda og stöðu glæpahópa þar í landi telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að móðir K hafi verið í rekstri og að K hafi starfað fyrir móður sína árið 2021. Þá telur kærunefnd ekki hægt að útiloka að K kunni að hafa borist hótanir eða reynt hafi verið að kúga af henni fé í tengslum við framangreint starf sitt hjá móður sinni árið 2021. Í ljósi framangreinds mats á trúverðugleika frásagna kærenda hafa kærendur hins vegar ekki leitt líkum að því að þau hafi verið í rekstri eftir að K flutti aftur til Kólumbíu í nóvember 2022 og að þeim hafi borist hótanir frá glæpahópi vegna rekstursins eða af öðrum ástæðum. Verður framangreint því ekki lagt til grundvallar við úrlausn málsins.
Kærendur lögðu fram afrit af tveimur kærum sem K kvaðst hafa lagt fram hjá ríkissaksóknara i Kólumbíu annars vegar árið 2021 og hins vegar stuttu áður en þau hafi flúið frá heimaríki í apríl 2023. Kærendur lögðu einnig fram svar ríkissaksóknara við fyrri kæru K þar sem fram kemur að málefni kæru heyri ekki undir embætti ríkislögmanns og K er ráðlagt að leita með kæru til lögreglunnar til að fá leyst úr málinu. Af framburði kærenda til kærunefndar má ráða að K hafi ekki leitað til lögreglu eftir að henni hafi borist svar ríkissaksóknara. Þrátt fyrir að skýrslur og önnur gögn bendi til þess að ítök ELN glæpahópsins séu sterk í Norte de Santender héraði, þaðan sem kærendur koma og þolendur glæpa séu oft á tíðum hræddir vegna refsileysis og hefndaraðgerða leggi þeir fram kæru til yfirvalda verður í ljósi framangreinds mats á trúverðugleika kærenda ekki talið þau séu sérstakt skotmark glæpahópsins ELN eða annars glæpahóps í heimaríki og séu af þeim sökum í meiri hættu en aðrir íbúar á að sæta ofsóknum af hálfu glæpahópa í heimaríki. Í þessu tilliti lítur kærunefnd einnig til þess að móðir K sem kærendur kváðu hafa verið með rekstur í heimaríki til ársins 2021 og vera fjárhagslega vel stæða er búsett í heimaborg kærenda í Kólumbíu og virðist hafa búið þar að mestu óáreitt.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að það hafi verið brotist inn á heimili hans og hann rændur. Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga frásögn M í efa hvað þetta varðar. Innbrot og rán sem M greinir frá virðast þó hafa verið einangrað atvik sem ekki hafi beinst að persónu M og hafi ekki haft frekari afleiðingar fyrir hann. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá kærunefnd greindi M m.a. frá því að óttast að glæpahópar ræni og [...] K ef þau snúi til baka til heimaríkis. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bara með sér að konur geti orðið fyrir kynbundu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Þá kemur fram að árið 2014 hafi verið sett lög til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldi að réttvísi. Skrifstofa umboðsmanns standi vörð um mannréttindi bæði þolenda og geranda þegar um kynbundið ofbeldi sé að ræða m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Neyðarlínur séu starfræktar þar sem hægt sé að tilkynna kynbundið ofbeldi. Í ljósi framangreinds trúverðugleikamats verði ekki lagt til grundvallar að K sé í annarri eða verri stöðu en aðrar konur á svæðinu og sé ekki í sérstakri hættu á að sæta áreiti eða meðferð á grundvelli kyns sins sem nái því marki að teljast ofsóknir. Er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Kólumbíu geti almennt veitt vernd gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds verður gengið út frá því að K standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda vegna áreitis telji hún þörf á slíku.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því við mat á því hvort að 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt beri að hafa hliðsjón af 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrá nr. 33/1944 þar sem lagt er bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og refsingu. Kærendur bendi á að ofbeldi og hótanir sem þau hafi gefið skýra og stöðuga frásögum um falli beint að kjarna 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi lýst ótryggu öryggisástandi vegna einstaklingbundinna þátta og hafi fulla ástæðu til að óttast refsingar og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sérstaklega vegna fyrrum upplifana þeirra. Þar að auki verði að meta stöðu kærenda með hliðsjón af öllum viðeigandi heimildum um Kólumbíu þar sem óöruggt ástand hafi ríkt í fjölda ára. Ekki sé hægt að ætlast til þess með sanngjörnum hætti að þau leiti sér verndar stjórnvalda í heimaríki. Með hliðsjón af framangreindu telji kærendur sig uppfylla skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að kærendur eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærendur til baka.
Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í borginni […] í Notre de Santander héraði í Kólumbíu. Líkt og áður greinir eru glæpahópar öflugir á heimasvæði kærenda. Skýrslur og önnur gögn benda til þess að ítök ELN glæpahópsins séu sterk í Norte de Santender héraði, þaðan sem kærendur koma og þolendur glæpa séu oft á tíðum hræddir vegna refsileysis og hefndaraðgerða leggi þeir fram kæru til yfirvalda. Þá hafi aðrir stórir glæpahópar frá Venesúela sótt fram og náð ítökum á svæðinu. Heimildir benda þó ekki til þess að aðstæður á svæðinu séu slíkar að hver sem þar sé staddur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og aðstæður í heimaríki er það niðurstaða kærunefndar að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái ekki því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 19. júlí 2023, greindi M frá því að hafa fengið [...] (s. [...]) þegar hann var 13 ára og æxli (s. [...]) í vinstra eyra fimm árum síðar. Kærandi hafi fengið lyfja- og [...] við framangreindum sjúkdómum í heimaríki og útskrifast úr öllum meðferðum þegar hann hafi verið 22 ára. M hafi verið í árlegu eftirliti í heimaríki vegna hvítblæðisins. M kvaðst að öðru leyti vera heilsuhraustur, örlítið stressaður og að hann ætti erfiðar minningar um sjúkrahúslegu í æsku. M greindi frá því að nú væri heilbrigðiskerfið orðið svo slæmt að hann gæti ekki fengið sömu meðferð í dag við þessum veikindum. M greindi frá því að vera aðili að sjúkratryggingakerfinu í heimaríki. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 19. júlí 2023, greindi K frá því að vera heilsuhraust en örlítið stressuð. K greindi frá því að hafa liðið illa, hitt [...] og farið á [...] þegar hún hafi dvalist í Belgíu. K hafi hætt að taka lyfin þegar hún hafi snúið aftur til Kólumbíu. K kvaðst stundum verða kvíðin en ekki mjög mikið þar sem nú hafi hún M hjá sér.
Við meðferð mála þeirra hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram heilsufarsgögn frá heimaríki, dags. árin 2004 til 2023, um veikindi og eftirfylgni veikinda hjá M.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 19. júlí 2023, greindu kærendur frá því að hafa rekið fata- og textíl verslun í heimaríki sem hafi vegnað vel. M greindi frá því að atvinnumöguleikar hans yrðu engir og að hann yrði atvinnulaus ef hann sneri aftur til heimaríkis. M greindi frá því að hvorki yfirvöld né aðrir gætu aðstoðað hann. M kvaðst eiga móður og bróður í heimaríki. Greindi M frá því að skulda móður sinni 12 milljónir kólumbískra pesóa sem hún hafi lánað kærendum fyrir flugmiðum til Íslands. K greindi frá því að fjárhagur hennar sé góður, hafi verið góður í heimaríki og að hún sé ekki skuldug. K greindi frá því að hún gæti ekki framfleytt sér og ekki fengið neina aðstoð við framfærslu ef hún sneri aftur til baka til heimaríkis. K greindi frá því að það yrði erfitt að byrja upp á nýtt þar sem hún ætti ekkert í heimaríki. K greindi frá því að vera í sambandi við fjölskyldu sína í heimaríki.
Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 20. apríl 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun.
Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur greindu frá því að hafa engin tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærendur kváðu brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir því þau séu í lífshættu og vilji fá að lifa lífinu.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir