10 október 2024

/

Úrskurður nr. 1005/2024


Hinn 10. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1005/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030041

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. mars 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. febrúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 9. apríl 2023. Samkvæmt lögregluskýrslu talar kærandi enga ensku.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. október 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í borginni [...] í Aragua fylki í Venesúela. Kærandi hafi búið gjaldfrjálst í íbúð í eigu móður sinnar. Í heimaríki hafi kærandi verið í sambúð og hann eigi þar tvö börn, [...] ára son og [...] ára dóttur. Í Venesúela hafi kærandi starfað hjá fyrirtæki sem framleiði bjór og matvöru. Fjölskyldan hafi dvalið í Perú í fjögur ár og þar hafði kærandi gilt atvinnuleyfi og starfaði sem sendill. Sonur kæranda sem hafi fæðst í Perú sé með ríkisborgararétt þar í landi en börnin dvelji nú ólöglega í Síle ásamt móður sinni. Þá séu móðir og amma kæranda búsettar í Venesúela. Kærandi greindi frá því að andleg og líkamleg heilsa hans og barna hans sé góð. Kærandi kvaðst vera skráður kaþólskrar trúar en iðki ekki þá trú. Kærandi hafi hvorki verið dæmdur fyrir glæp né mál höfðað gegn honum en kærandi óttist að vera settur í fangelsi vegna stjórnmálaskoðana sinna.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa flúið Venesúela vegna ástæðuríks ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða aðila á vegum stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærandi telur sig vera í minnihluta vegna stjórnmálaskoðana sinna og vegna þess að fáir á hans svæði styðji þann stjórnmálaflokk sem hann styðji.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa tekið þátt í starfi stjórnmálaflokksins Primero Justicia frá árinu 2015. Kærandi hafi gegnt stöðu skipuleggjanda (e. coordinator) og hlutverk hans hafi meðal annars falist í því að hvetja nýtt fólk til að taka þátt í starfi flokksins og útskýra flokksstarfið fyrir þeim. Staða kæranda innan flokksins hafi verið sjálfboðaliðastaða sem meðlimir flokksins hafi kosið hann til að gegna. Staðan hafi verið tiltölulega háttsett innan flokksins en þó hafi aðrar stöður verið háttsettari. Einnig hafi kærandi tekið þátt í mótmælum og mótmælagöngum gegn stjórnvöldum í heimalandi sínu. Engu að síður svaraði kærandi því neitandi að hann hafi verið virkur í þágu ákveðins málsstaðar í heimalandi sínu. Kærandi kvaðst ekki hafa farið í framboð en kærandi hafi verið þekktur í sínu fylki og einnig innan flokksins á landvísu vegna stöðu sinnar innan flokksins Primero Justicia og starfa hans fyrir flokkinn.

Kærandi kvaðst vera í minnihluta vegna stjórnmálaskoðana sinna en fáir í nærumhverfi kæranda hafi stutt flokkinn Primero Justicia, það hafi aðeins verið kærandi og fjölskylda hans, en fjölskylda kæranda hafi sýnt honum stuðning og tekið einhvern þátt í starfi flokksins. Eftir því sem vægi kæranda innan flokksins hafi aukist, og af því að kærandi hafi verið búsettur á svæði þar sem fáir studdu flokkinn, hafi kærandi jafnframt byrjað að finna fyrir meiri andstöðu í nágrenni sínu.

Árið 2017 hafi stjórnmálaflokkurinn Primero Justicia hafið sérstaka herferð og í kjölfarið hafi Colectivos farið að áreita og ráðast gegn meðlimum flokksins, þar á meðal kæranda. Kærandi greindi frá því að honum og fjölskyldu hans hafi borist líflátshótanir. Um hafi verið að ræða bréf þar sem tekið hafi verið fram að ef kærandi héldi áfram þá myndi eitthvað gerast. Einnig hafi verið þrýst á kæranda og fjölskyldu hans að styðja við ráðandi stjórnvöld. Vinir kæranda og samflokksmenn hafi boðist til að aðstoða kæranda við að komast til Perú en kærandi hafi afþakkað í þeirri von að eitthvað myndi breytast í Venesúela. Raunin hafi hins vegar orðið önnur en ástandið hafi versnað árið 2017.

Kærandi greindi frá nokkrum atvikum sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki vegna stjórnmálaþátttöku sinnar. Í eitt sinn hafi tveir einstaklingar öskrað á kæranda úr bifreið sinni að kærandi væri svikari landsins. Skemmdarverk hafi þá verið framin á eignum kæranda, steinum hafi verið kastað í heimili hans og bifreið með þeim afleiðingum að gluggi á heimili hans og rúða í bifreið hans hafi brotnað. Kærandi hafi lent í slysi árin 2015 og 2016. Bifreið hafi verið keyrt utan í kæranda fyrir utan vinnustað hans þegar hann hafi verið á mótorhjóli í eigu vinnuveitanda síns, með þeim afleiðingum að kærandi féll af hjólinu og slasaðist á fæti. Kærandi kvaðst hafa vitað að bifreiðin sem ekið hafi verið á hann hafi verið í eigu Colectivos þar sem öskrað hafi verið á hann úr umræddri bifreið. Kærandi hafi þurft að fara í aðgerð á fæti í kjölfar atburðarins. Hann hafi getað greitt fyrir heilbrigðisþjónustuna með aðstoð fjölskyldu og vina og hefur kærandi við meðferð málsins lagt fram mynd af læknanótu.

Kærandi ákvað í desember 2017 að flýja til Perú ásamt fjölskyldu sinni. Fjölskyldan hafi farið með strætisvagni til Perú í febrúar eða mars árið 2018. Fjölskyldan hafi farið með strætisvagni til þess að yfirvöld yrðu ekki vör við þau í gegnum kerfið. Fjölskyldan hafi dvalið í Perú í fjögur ár, árin 2018-2021. Kærandi hafi haft gilt atvinnuleyfi í Perú á þeim tíma og starfað sem sendill. Atvinnuleyfið hafi verið hægt að endurnýja árlega.

Kærandi greindi frá því að hann hafi hins vegar ekki verið jafn öruggur í Perú og hann hafi talið sig vera. Þar hafi kæranda einnig verið ógnað og hann verið fórnarlamb ofbeldis. Kærandi greindi frá því að hann hafi verið barinn, slökkt hafi verið í sígarettum á líkama hans og honum hafi verið rænt árið 2020 og haldið föngnum í þrjá daga. Kærandi hafi verið á leið heim til sín í Perú þegar honum hafi verið rænt. Kærandi hafi verið krafinn um lausnargjald sem hann hafi ekki getað greitt. Honum hafi þó verið sleppt þremur dögum síðar, nöktum, í nágrenni heimilis síns. Þrátt fyrir að kærandi hafi verið krafinn um lausnargjald telur kærandi ástæðu þess að honum hafi verið rænt ekki hafa verið fjárhagslega heldur til þess að hræða kæranda frá því að halda stjórnmálastarfi sínu áfram. Kærandi kvaðst hafa verið virkur á samfélagsmiðlum í Perú og taldi umrædda aðila hafa fundið sig í gegnum samfélagsmiðla. Kærandi telur þá sem rændu honum annað hvort hafa verið Colectivos eða glæpagengið Tren de Aragua, sem hafi ítök í allri suður Ameríku. Kærandi hafi, í kjölfar þess að honum var rænt, hætt á samfélagsmiðlum og lagt fram kvörtun hjá lögreglunni í Perú. Lögreglan hafi hins vegar sagst ekki taka við kvörtunum frá ríkisborgurum Venesúela, heldur þyrftu þeir að leggja fram kvörtun í Venesúela. Eftir að kærandi hafi komið til Íslands hafi hann byrjað aftur á samfélagsmiðlum og taki nú þátt í störfum flokksins Primero Justicia frá Íslandi.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi, í kjölfar þess að sér hafi verið rænt í Perú, farið með fjölskylduna ólöglega til Síle. Kona kæranda og börn dvelji þar enn en kærandi hafi farið aftur til Venesúela og síðan til Íslands. Kærandi hafi dvalið í Venesúela frá janúar til apríl árið 2023 til þess að safna peningum. Kærandi hafi verið í felum, flutt á milli staða og fengið aðstoð frá vinum sínum. Kærandi hafi selt eignir sínar, þar á meðal fjölskyldubílinn, til þess að fjármagna ferðalag sitt til Íslands.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að ömmu hans hafi eitt sinn verið ógnað árið 2021 þegar hún hafi verið á leið til vinnu. Við það hafi hún hræðst og hlaupið af stað en þá hafi verið keyrt á hana. Kærandi telur stjórnmálaþátttöku sína vera ástæðu þess að ömmu hans hafi verið ógnað. Hún hafi ekki lagt fram kvörtun hjá lögreglunni því hún hafi ekki vitað yfir hverjum hún ætti að kvarta. Hún hafi jafnframt eitt sinn verið barin í höfuðið og þurfi að taka lyf vegna hás blóðþrýstings, hún fái meðferð en ekki aðgang að lyfjum.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 7. mars 2024. Greinargerð barst kærunefnd 12. mars 2024. Viðbótargögn bárust kærunefnd 19. mars 2024. Hinn 18. september 2024 barst kærunefnd tilkynning um nýjan talsmann kæranda. Viðbótargreinargerð og fylgigögn bárust frá nýjum talsmanni kæranda 22. september 2024. Hinn 30. september 2024 sendi kærunefnd tölvubréf til talsmanns kæranda og svör kæranda bárust kærunefnd 3. október 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerð til Útlendingastofnunar, dags. 30. október 2023,eraðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í borginni [...] í Aragua fylki í Venesúela. Hann sé ríkisborgari Venesúela og móðir kæranda og amma hans búi enn í Venesúela. Maki kæranda dvelji nú ólöglega ásamt börnum þeirra tveimur í Síle en þar á undan hafi fjölskyldan dvalið í fjögur ár í Perú. Kærandi hafi laumast aftur til Venesúela árið 2023 til þess að safna nægu fé til þess að yfirgefa landið aftur og kærandi hafi þurft að fara huldu höfði á þeim tíma. Kærandi hafi frá árinu 2015 verið meðlimur í stjórnmálaflokknum Primero Justicia og hafi gegnt stöðu skipuleggjanda innan flokksins. Staðan sé staðsett nokkuð ofarlega í skipuriti flokksins. Kærandi hafi lagt fram gögn er staðfesta eigi aðild hans í flokknum, mynd af skjali, dags. 7. október 2023, frá flokknum Primero Justicia til staðfestingar á stöðu kæranda innan flokksins, hópmynd af meðlimum flokksins, ódagsett, og pólitíska auglýsingu eða skilaboð umsækjanda í nafni flokksins, ódagsetta.

Kveikjan að inngöngu kæranda í flokkinn hafi verið bág staða mannréttinda í Venesúela og árið 2017 hafi umsækjandi og flokkurinn markvisst hafið baráttu sína gegn Maduro. Síðan þá hafi kærandi sætt ofsóknum sökum stjórnmálaskoðana sinna og þátttöku þar að lútandi af hendi Colectivos. Þess vegna hafi kærandi neyðst til að flýja ásamt fjölskyldu sinni til Perú árið 2018, enda hafi þeim borist fjölmargar hótanir, þar á meðal líflátshótanir. Jafnframt hafi bifreið eitt sinn verið ekið utan í kæranda þegar hann hafi verið á mótorhjóli með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Kærandi hefur lagt fram afrit af læknisgagni vegna atviksins.

Áhrif og ítök Colectivos kveður kærandi hafa elt sig til Perú og honum hafi eitt sinn verið haldið föngnum í þrjá daga og beittur ofbeldi áður en honum hafi verið sleppt lausum. Kærandi hafði haldið áfram starfi sínu fyrir flokkinn Primero Justicia frá Perú og telur að með því að honum hafi verið rænt hafi stjórnvöld í heimaríki verið að senda honum skýr skilaboð.

Kærandi byggir á því að hann geti ekki snúið aftur til Venesúela því þar sé öryggi hans og fjölskyldunnar í mikilli hættu á meðan núverandi stjórnvöld séu við völd. Kærandi sinni hlutverki sínu sem skipuleggjandi innan flokksins frá Íslandi og hefur lagt fram skjáskot af WhatsApp hópum flokksins Primero Justicia til staðfestingar á því.

Í greinargerð til kærunefndar, dags. 11. mars 2024, taldi kærandi sig knúinn til þess að árétta ákveðin atriði. Kærandi mótmælir því að Útlendingastofnun leggi til grundvallar í ákvörðun sinni að ástandið í Venesúela fari batnandi. Margt bendi til þess að ástandið í Venesúela hafi þvert á móti versnað. Um málsástæður, lagarök og forsögu kæranda að öðru og frekara leytivísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar.

Í viðbótargreinargerð til kærunefndar, dags. 22. september 2024, greinir kærandi frá því að hann hafi nýverið verið þátttakandi í mótmælum á Íslandi og myndefni af kæranda, í afmörkuðum og fámennum hópi, hafi verið sjónvarpað á ríkisrekinni sjónvarpsstöð í Venesúela. Um hafi verið að ræða sjónvarpsþátt sem innanríkis-, dómsmála- og friðarmálaráðherra Venesúela hafi staðið fyrir og ráðherrann hafi úthrópað kæranda, ásamt öðrum er þar hafi verið sýndir, sem „stuðningsmann hryðjuverkamanna“ í beinni útsendingu á ríkisrekinni sjónvarpsrás. Ljósmynd og myndband af þátttöku kæranda í mótmælum á Íslandi 17. og 28. ágúst sl. hafi þannig borist í venesúelska fjölmiðla. Að því er kærandi best veit hafi hann enn ekki verið nafngreindur en myndir af honum hafi birst víðsvegar og auðvelt sé að auðkenna kæranda af myndefninu. Jafnframt hafi sá sem hafi unnið sjónvarpsefnið talið þá einstaklinga sem birtast á myndinni, sem bendi til þess að rýnt hafi verið í myndina. Kærandi byggir á því að dreifing á upplýsingum um þátttöku hans í mótmælum gegn venesúelsku ríkisstjórninni geri hann að skotmarki yfirvalda og hægt sé að auðkenna kæranda á myndefninu. Kærandi hafi afar greinilega náð athygli stjórnvalda. Í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti og þá vísar kærandi til frekari alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna stjórnmálaskoðana sinna. Yfirvöld telji kæranda mótfallinn þeim og ótti kæranda við ofsóknir umræddra yfirvalda sé sannanlega ástæðuríkur. Þar sem ofsóknirnar á hendur kæranda hafi falist í aðgerðum stjórnvalda sé hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að hann setjist að annars staðar í Venesúela, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Auknar líkur séu á því að kærandi eigi í hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu vegna stjórnmálaskoðana, nú þegar stjórnvöld hafi auðkennt hann. Kærandi vísar jafnframt til þess að í Venesúela ríki enn gríðarleg mannúðarkrísa, eymd, landlægt óöryggi og volæði. Einnig verði að taka tillit til persónulegra aðstæðna kæranda í Venesúela og þess veruleika sem bíði hans þar.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ríka þörf fyrir vernd þar sem staða hans, heilt á litið, sé þess eðlis og nái því alvarleikastigi að sanngjarnt og eðlilegt sé að honum verði veitt dvalarleyfi hérlendis af mannúðarástæðum. Almennar og félagslegar aðstæður hans hafi breyst til hins verra í Venesúela þar sem hann hafi nýlega verið auðkenndur sem stjórnarandstæðingur fyrir framan venesúelsku þjóðina og valdamikill ráðherra sérstaklega tilkynnt og fullyrt að hann sé stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka. Hann megi því m.a. búast við auknum erfiðleikum við að sækja grunnþjónustu, s.s. mataraðstoð, sem sé ekki úthlutað til stjórnarandstæðinga.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til lögmætrar meðferðar að nýju.

Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 1. október 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 3. október 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 3. október 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahófs myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun í júlí 2024 höfðu um 530 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 520 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 eru glæpasamtökin Tren de Aragua valdamestu og stærstu glæpasamtökin í Venesúela og teygja anga sína til fjölda landa í Suður-Ameríku, m.a. Kólumbíu, Ekvador, Perú, Bólivíu og Chile. Helsti stjórnandi samtakanna gangi undir nafninu „Niño“ Guerrero en hann hafi liðþjálfa sér til aðstoðar til að stjórna starfsemi samtakanna. Helsta brotastarfsemi samtakanna feli í sér ólöglega námuvinnslu, ólögleg viðskipti með fíkniefni og vopn, mansal, mannrán, fjárkúgun, þvingaðar nýliðaskráningar, morð og rán. Samtökin fái einnig staðbundna glæpahópa til að framkvæma sum afbrot fyrir þau eða leyfi glæpahópum að nota nafn samtakanna í sinni starfsemi. Þungamiðja stjórnar samtakanna hafi áður verið í Tocorón fangelsinu í Aragua fylki en í september 2023 hafi stjórnvöld í Venesúela tekið yfir stjórn fangelsisins aftur. Stjórnanda samtakanna, Héctor Guerrero, hafi þó tekist að sleppa. Samtökin hafa einnig haft viðveru fylkjunum Carabobo, Sucre, Bolívar, Guárico og Lara í Venesúela.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda eða aðila á vegum stjórnvalda vegna þátttöku sinnar í stjórnmálaflokknum Primero Justicia.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa gengið til liðs við stjórnmálaflokkinn Primero Justicia árið 2015. Kærandi hafi gegnt stöðu skipuleggjanda innan flokksins og hlutverk hans hafi meðal annars falist í því að hvetja nýtt fólk til að taka þátt í flokknum og útskýra starf flokksins fyrir þeim. Um hafi verið að ræða sjálfboðaliðastöðu sem sé tiltölulega háttsett innan flokksins þrátt fyrir að aðrar stöður innan flokksins séu háttsettari. Vegna þeirrar stöðu kæranda hafi hann verið þekktur í sínu fylki og innan flokksins á landvísu. Þá hafi kærandi tekið þátt í mótmælum og mótmælagöngum. Árið 2017 hafi kærandi og flokkurinn markvisst hafið herferð sína gegn ráðandi stjórnvöldum. Í kjölfarið hafi Colectivos farið að áreita meðlimi flokksins og ráðast gegn þeim, þar á meðal kæranda. Kæranda og fjölskyldu hans hafi borist líflátshótanir, þeim ógnað og þrýst á þau að styðja við ráðandi stjórnvöld. Eitt sinn hafi verið öskrað á kæranda að hann væri svikari og skemmdarverk hafi verið framin á bifreið kæranda og heimili. Keyrt hafi verið á kæranda meðan hann hafi verið á mótorhjóli og hann þurft að fara í aðgerð á fæti eftir það. Kærandi hafi vitað að bifreiðin sem ekið var á hann hafi verið í eigu Colectivos því þeir sem voru í bílnum hafi kallað kæranda svikara. Kærandi hafi flúið ásamt fjölskyldu sinni til Perú í febrúar eða mars árið 2018 og dvalið þar í fjögur ár eða til ársins 2021. Í Perú hafi kærandi hins vegar einnig orðið fyrir ofbeldi og honum rænt árið 2020 og haldið föngnum í þrjá daga. Eftir það atvik hafi kærandi farið með fjölskyldu sína ólöglega til Síle. Kona kæranda og börn dvelji þar enn en kærandi hafi dvalið í Venesúela frá janúar til apríl árið 2023 og síðan farið til Íslands. Jafnframt hafi ömmu kæranda eitt sinn verið ógnað, að því er kærandi telur vegna stjórnmálaskoðana kæranda. Að mati kæranda hafi það verið Colectivos sem hafi ógnað ömmu hans. Kærandi telji áhrif og ítök Colectivos hafa elt sig til Perú og að stjórnvöld í heimalandi kæranda hafi verið að senda kæranda skýr skilaboð þegar honum hafi verið rænt, þar sem kærandi hafi í Perú haldið áfram starfi sínu fyrir flokkinn Primero Justicia.

Í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar lýsti kærandi atvikum máls með sama hætti og fram kemur í viðtali hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn sem hann kvað sýna fram á þátttöku sína í flokknum Primero Justicia. Þar á meðal yfirlýsingu sem kærandi kveður vera frá Primero Justicia samtökunum, dags. 7. október 2023, til staðfestingar á stjórnmálaþátttöku hans. Umrædd yfirlýsing virðist vera undirrituð af forseta Primero Justicia í Aragua fylki í Venesúela og bendir til þess að kærandi hafi verið virkur meðlimur í flokknum frá árinu 2015. Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að kærandi hafi setið í stjórn sveitarfélagsins [...] innan Aragua í Venesúela og hafi tekið þátt í framkvæmd ýmissa stjórnmála- og félagslegra aðgerða á vegum flokksins. Kærandi lagði þá jafnframt fram ódagsetta hópmynd sem hann kveður vera af meðlimum flokksins Primero Justicia og hefur hann teiknað grænan hring í kringum andlit sitt á umræddri mynd. Kærandi lagði jafnframt fram afrit af því er virðist vera einhvers konar auglýsing þar sem sjá má mynd af kæranda og nafn hans undir formerkjum Primero Justicia flokksins og skjáskot af einhvers konar samfélagsmiðlahópi sem virðist tengjast umræddum flokki.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi einnig fram ýmis gögn, m.a. aðra yfirlýsingu frá Primero Justicia, dags. 12. mars 2024, sem ber jafnframt með sér að vera undirrituð af forseta flokksins í Aragua fylki. Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að kærandi hafi verið fórnarlamb ýmissa atvika sem hafi ógnað heilsu hans og jafnvel frelsi. Kærandi lagði jafnframt fram persónulegt erindi, dags. 20. mars 2024, þar sem hann greinir frá ástæðum flótta síns frá heimaríki. Í umræddu erindi kemur m.a. fram að kosningar í landinu hafi átt sér stað í október árið 2018. Í kjölfar þeirra hafi kæranda verið rænt í Venesúela og haldið í þrjá daga, ránið hafi m.a. orðið til þess að fjölskylda hans hafi ákveðið að flýja frá Venesúela til Perú.

Umrætt erindi kæranda er í ósamræmi við skýra og ítarlega frásögn hans í viðtali hjá Útlendingastofnun og greinargerð hans til stofnunarinnar þar sem skýrt og ítrekað kemur fram að kæranda hafi verið rænt í Perú árið 2020 og haldið í þrjá daga, hann hafi leitað þar til lögreglunnar vegna atviksins en lögregla hafi ekki viljað taka við kæru frá venesúelskum ríkisborgara. Kærandi greindi jafnframt frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa ekki orðið fyrir líkamlegu ofbeldi í Venesúela heldur einungis hótunum, andlegu ofbeldi og hræðsluáróðri. Þessi breytta frásögn kæranda kom því fyrst fram í fyrrgreindu erindi hans sem lagt var fram hjá kærunefnd 19. mars 2024 en hvorki í kæru til kærunefndar eða í greinargerð til nefndarinnar.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 30. september 2024, gaf nefndin kæranda færi á að útskýra nánar umrædda breytingu á frásögn sinni. Svar kæranda barst kærunefnd 3. október 2024. Þar greindi kærandi frá því að honum hafi vissulega verið rænt í Venesúela af Colectivos eftir kosningarnar. Kærandi hafi verið tekinn úr húsi sínu fyrir framan fjölskyldu sína, eiginkonu og dóttur, sem hafi á þeim tíma verið ung. Stjórnvöld í Venesúela styðji við glæpagengin og lögreglan hunsi það sem þau geri vegna spillingar og séu samsek stjórn Maduro. Kærandi hafi verið laminn oft í röð, hann hafi í nokkra daga verið færður á milli staða án þess að vita áfangastaðinn. Kæranda hafi að lokum verið sleppt nöktum og hafi tekist að komast heim og ákveðið í kjölfarið með eiginkonu sinni að fara frá Venesúela.

Framangreind svör kæranda veita ekki skýringar á því misræmi sem birtist í frásögn hans. Dregur það úr trúverðugleika þeirrar breyttu frásagnar kæranda að frásögn hans í viðtali hjá Útlendingastofnun og greinargerð til stofnunarinnar hafi verið skýr, hnitmiðuð og kærandi hafi ítrekað verið spurður út í atvikið bæði í viðtalinu sjálfu og í samantekt í lok viðtalsins. Verður því ekki lagt til grundvallar að kæranda hafi verið rænt í Venesúela.

Kærunefnd gaf kæranda þá jafnframt færi á að skýra nánar frá hlutverki sínu innan flokksins Primero Justicia og af hverju hann teldi sig vera meira áberandi en aðra flokksmenn í slíkri stöðu. Kærunefnd óskaði þá eftir því að kærandi veitti skýringar á því hvenær, hvar og í hvaða samhengi sú auglýsing sem kærandi lagði fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun hafi verið birt. Þá óskaði kærunefnd jafnframt eftir því að kærandi gerði betri grein fyrir því slysi sem hann greindi frá því að hafa orðið fyrir árin 2015 og 2016. Í svörum kæranda, dags. 3. október 2024, kemur fram að kærandi hafi verið og sé virkur fyrir flokkinn Primero Justicia og hafi þar séð um skipulagningu stjórnmála og flutninga- eða vörustjórnunar. Eitt helsta verkefnið sem skipti máli fyrir það mál sem hér sé til meðferðar hafi að mati kæranda verið að ráðleggja stjórnarandstöðufólki um nýjar leiðir og aðgerðir sem ætti að framkvæma. Einnig að taka þátt í mismunandi stjórnmálalegum herferðum gegn stjórn Nicolas Maduro og að mæta á mismunandi mótmæli og mótmælagöngur til stuðnings þess að endurheimta lýðveldið í Venesúela. Framangreind störf kæranda hafi verið ástæða ofsókna stjórnvalda í hans garð og kærandi hafi þurft að yfirgefa landið til þess að vernda líkamlega friðhelgi sína. Kærandi lýsti því þá að í Perú hafi glæpagengið Tren de Aragua fundið hann. Gengið hafi borið kennsl á kæranda og lamið hann. Kærandi hafi þurft að fara á spítala í [...] og hafi fyllt út skýrslu vegna atviksins.Kærandi hafi farið til lögreglunnar í Perú til þess að tilkynna um árásina en lögreglan hafi ekki tekið tillit til kvörtunarinnar og hafi ekki skráð kvörtunina vegna útlendingahaturs gagnvart fólki frá Venesúela. Í svörum kæranda varðandi umrædda auglýsingu kemur fram að um hafi verið að ræða mynd til heiðurs kæranda sem sé til innan flokksins, til stuðnings kæranda sem skipuleggjanda og aktívista. Kærandi greindi ekki frá því hvort eða hvar myndinni hafi verið dreift. Svar kæranda ber þó ekki með sér að um hafi verið að ræða auglýsingu sem dreift hafi verið á opinberan hátt. Hún hafi frekar, miðað við framburð kæranda, verið til heiðurs starfa hans fyrir flokkinn Primero Justicia. Þó sé ekki ástæða til að ætla að hún hafi vakið athygli stjórnvalda sérstaklega eða að kærandi sé í sérstakri hættu vegna hennar. Kærandi greindi þá nánar frá þeim slysum sem hann hafi lent í árin 2015 og 2016. Kærandi greindi frá því að það hefði viljandi verið keyrt á hann þegar hann hafi verið að fara frá flokkshúsi Primero Justicia. Stuðningsmenn Maduro stjórnarinnar hafi borið kennsl á kæranda og þess vegna keyrt á hann. Kærandi hafi tilkynnt atvikið til lögreglunnar í Aragua en lögreglan sé spillt og hafi ekkert gert. Kærandi hafi þurft að liggja á spítala í mánuð eftir atvikið og farið í skurðaðgerð á fæti vegna atviksins. Kærandi hefur lagt fram afrit af ódagsettri læknaskýrslu vegna atviksins og myndir af sér á heilbrigðisstofnun.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að kærandi hafi tekið þátt í starfi stjórnarandstöðuflokksins Primero Justicia í heimaríki, gegnt stöðu skipuleggjanda innan flokksins og tekið þátt í mótmælum. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku, refsingu eða verða fyrir áreiti vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi aðspurður vera þekktur á sínu heimasvæði og að fólk í flokknum þekkti hvort annað. Kæranda og fjölskylda hans væru í minnihluta á heimasvæði sínu því færri á því svæði styðji umræddan flokk. Kærandi greindi frá því að í Venesúela hafi honum og fjölskyldu hans verið hótað. Árið 2015 og 2016 hafi verið keyrt á kæranda þegar hann hafi verið á mótorhjóli. Hann hafi vitað að umræddir aðilar hafi verið Collectivos því þeir hafi kallað hann svikara. Tveir einstaklingar hafi þá eitt sinn keyrt framhjá honum, kallað hann svikara og kastað steinum í hús hans og bíl með þeim afleiðingum að rúður hafi brotnað. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa verið fórnarlamb líkamlegs ofbeldis í Venesúela heldur andlegs ofbeldis. Umræddir aðilar hafi viljað hræða kæranda. Slysið árið 2015 eða 2016 hafi verið eina líkamlega ofbeldið sem kærandi hafi orðið fyrir í Venesúela. Kærandi kvaðst þá hafa verið virkur á samfélagsmiðlum í Perú og því hafi venesúelsk yfirvöld fundið hann og rænt honum árið 2020.

Með vísan til frásagnar kæranda og gagna málsins er ekki hægt að útiloka að kærandi hafi orðið fyrir einhverju áreiti glæpahópa í heimaríki en heimildir benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki kæranda sem stundi glæpi á við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Frásögn kæranda og gögn málsins benda þó ekki til þess að kærandi sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda vegna stjórnmálaþátttöku sinnar eða að hann hafi notið meiri athygli en aðrir þeir sem tekið hafi þátt í starfi stjórnarandstöðuflokka eða tekið þátt í mótmælum í heimaríki hans á síðastliðnum árum. Þeir atburðir sem kærandi hefur greint frá að hafa orðið fyrir í Venesúela áttu sér stað á árunum 2015 til 2017. Kærandi greindi sjálfur frá því að hafa ekki orðið fyrir líkamlegu ofbeldi í Venesúela heldur hafi hann orðið fyrir munnlegum hótunum sem virðast ekki hafa haft afleiðingar í för með sér sem talist geta til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga, og er ekkert sem bendir til þess að hann eigi slíkt á hættu. Kærandi hafi getað snúið aftur til Venesúela í janúar árið 2023 og dvalið þar í fjóra mánuði. Þrátt fyrir að kærandi hafi greint frá því að hafa farið huldu höfði á þeim tíma hafi hann getað dvalið í sínu heimafylki, unnið fyrir sér, safnað sér fyrir ferðinni til Íslands, sótt um nýtt vegabréf hjá stjórnvöldum í mars 2023 og flogið úr landi í gegnum Karakas án þess að verða fyrir áreiti stjórnvalda eða annarra aðila. Bendir það ekki til þess að kærandi sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda eða að hann eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda eða aðila á vegum stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna.

Kærandi hefur við meðferð málsins lagt fram myndband úr sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela og telur að hægt sé að bera kennsl á hann við mótmæli hér á landi í umræddu myndbandi. Telur kærandi að dreifing á upplýsingum um þátttöku hans í mótmælum gegn venesúelsku ríkisstjórninni geri hann að skotmarki yfirvalda. Myndefnið bendi til þess að sá sem hafi unnið það hafi farið yfir myndefnið og borið kennsl á ákveðna einstaklinga sem mætt hafi á mótmælin, þar á meðal kæranda. Nafn kæranda sé þó ekki komið í dreifingu. Kærunefnd hefur horft á tilvísaðan þátt innanríkisráðherra og kynnt sér efni hans. Í þættinum er fjallað um mótmæli víðsvegar um heiminn og stutt myndbrot eða stutt birting mynda sýnd af mótmælendum. Þátturinn ber það ekki með sér að verið sé að úthúða mótmælendum sem stuðningsmönnum hryðjuverkamanna heldur sé verið að benda á það hve fáir hafi mætt á þau mótmæli sem sýnt hafi verið frá í þættinum og virðist lítið úr þeim gert. Í þættinum eru mótmælendur ekki nafngreindir og ekki hvatt til sérstakra aðgerða gagnvart þeim einstaklingum er þar birtast. Þá kemur ekkert fram í þættinum sem bendir til þess að umræddir aðilar séu í sérstakri hættu á ofsóknum yfirvalda í Venesúela frekar en aðrir þeir þúsundir mótmælenda sem mótmælt hafa ríkjandi stjórnvöldum í landinu síðastliðin ár. Í viðbótargreinargerð kæranda kemur fram að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 17. september 2024 sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti. Vísar kærunefnd til þess að í umræddri skýrslu er umfjöllun um sjónvarpsþáttinn í sambandi við svokallaða Tuntun aðgerð stjórnvalda í Venesúela. Í skýrslunni kemur fram að í þættinum hafi birst myndefni af handtökum vegna aðgerðarinnar, m.a. til að dreifa hræðsluáróðri og skapa skelfingu meðal íbúa landsins. Kærandi vísar jafnframt til skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 þar sem fram komi að fylgni sé á milli birtinga í sjónvarpsþættinum og handtaka í kjölfarið. Í skýrslunni kemur fram að á tímabilinu 2019 til 2021 hafi verið fylgni á milli myndbirtinga í fjölmiðlum og handtaka og gæsluvarðhalds í Venesúela. Samkvæmt skýrslunni taka niðurstöður rannsóknar sem hún byggir á þeim einstaklingum sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi á fyrrnefndum árum og leiddi í ljós að um 65% þeirra höfðu á einhverjum tímapunkti verið teknir fyrir í fyrrnefndum sjónvarpsþætti ráðherra. Framangreind rannsókn og niðurstöður hennar staðfesta það þó ekki að allur sá fjöldi einstaklinga sem kemur fyrir í þættinum eigi í beinni hættu á að verða handteknir af þeim sökum eða eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda í Venesúela.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera viss um að sér verði ekki hleypt inn í Venesúela af flugvellinum yrði hann sendur til baka. Hann telji stjórnvöld vera að fylgjast með sér og muni vita að hann hafi snúið aftur ef vegabréfið hans greinist í kerfinu. Líkt og að framan hefur verið rakið er það niðurstaða kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu ofsóknir stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna. Með vísan til heimilda um heimaríki kæranda um framkvæmd og endursendingar almennt til Venesúela verður jafnframt ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka. Kærandi gat sótt um vegabréf í Venesúela í mars 2023 og flogið úr landið í gegnum flugvöllinn í Karakas án þess að verða fyrir áreiti stjórnvalda og er ekkert sem bendir til þess að hann eigi slíkt áreiti á hættu við komuna til landsins að nýju.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann eigi rétt á viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á þeim grundvelli að í Venesúela ríki enn gríðarleg mannúðarkrísa, eymd, landlægt óöryggi og volæði. Taka verði tillit til persónulegra aðstæðna kæranda í Venesúela og þess veruleika sem bíður kæranda verði honum gert að snúa aftur til heimalands síns.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðu kæranda um stjórnmálaþátttöku hans og sjónvarpsþáttar innanríkisráðherra sem kærandi vísar til.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í borginni [...] í Aragua fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er fylkið í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 9. apríl 2023. Frá því kærandi sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, 10. október 2024, eru liðnir rúmlega 18 mánuðir. Kærandi hefur því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er um í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita honum dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74 gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd staðfest. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd er staðfest.

The Directorate of Immigration is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners. The decision of the Directorate related to his application for international protection is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir