23 október 2024

/

Úrskurður nr. 1060/2024


Hinn 23. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1060/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090143

Beiðni [...] um endurupptöku

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 707/2024, dags. 18. júlí 2024, var staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2024, um að synja umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Sýrlands (hér eftir kærandi), um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda 19. júní 2024.

Kærandi óskaði eftir endurupptöku málsins með tölvubréfi til kærunefndar útlendingamála, dags. 23. september 2024.

Beiðni kæranda um endurupptöku byggist á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Ráða má af beiðni kæranda um endurupptöku samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga að hún telji að ákvörðun í máli hennar hafi verið byggð á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, auk þess sem að atvik hafi breyst verulega frá því úrskurður kærunefndar var kveðinn upp.

Í endurupptökubeiðni vekur kærandi athygli á þremur málsástæðum sem hún telji valda því að úrskurður kærunefndar skuli endurupptekinn. Í fyrsta lagi vísar kærandi til eigin heilsufars með hliðsjón af læknisvottorði, dags. 1. ágúst 2024, sem kærandi lagði fram samhliða endurupptökubeiðni. Í öðru lagi vísar kærandi til framfærslugagna og leggur fram færsluyfirlit frá greiðslusendingarfyrirtæki, dags. 6. nóvember 2022, 10. júní 2022 og 12. janúar 2023. Yfirlitin eru á arabísku og þeim fylgdu ekki þýðingar, að undanskilinni nafngreiningu kæranda sem viðtakanda, og dóttur kæranda sem sendanda. Í þriðja lagi vísar kærandi til aðstæðna í Sýrlandi sem kærandi lýsir sem óstöðugum og hættulegum og kveðst hún vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna þeirra. Á hinn bóginn vísar kærandi til fjölskyldumeðlima á Íslandi og ber fyrir sig að það valdi þeim óþarfa hugarangri að kæranda sé ekki veitt dvalarleyfi hér á landi.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Með úrskurði nr. 707/2024, dags. 18. júlí 2024, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd komst að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda væru ekki þess eðlis að henni yrði veitt dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 1 og 4. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Var þá einkum horft til þess að kærandi væri fullorðinn einstaklingur sem hefði verið búsett í heimaríki alla sína ævi og væri auk þess heilsuhraust og vinnufær. Leit nefndin m.a. til þess að ekkert benti til þess að umönnunarsjónarmið mæltu með veitingu dvalarleyfis. Í úrskurði sínum fjallaði kærunefnd sérstaklega um framfærslu kæranda en fram kom að kærandi hefði þegið fjármuni frá dóttur sinni og maka hennar, ýmist með aðstoð þriðja manns eða í heimsóknum dóttur kæranda. Fyrir lágu gögn sem voru ótraust að forminu til auk þess sem efnislegt ósamræmi var í gögnum sem kærandi hafði lagt fram.

Við meðferð beiðni kæranda um endurupptöku lagði hún fram læknisvottorð sem sýnir fram á heilsufarslega getu hennar til þess að stunda atvinnu. Með skjalinu fylgdi þýðing og vottun lögbókanda. Að auki lagði kærandi fram gögn sem hún lýsti sem færsluyfirlitum frá greiðslusendingarfyrirtæki. Um er að ræða málsástæðu og fylgigögn sem samræmast ekki fyrri framburði kæranda fyrir kærunefnd og hjá Útlendingastofnun.

Leggja má þann skilning í beiðni kæranda að hún byggi endurupptökubeiðni sína á því að ákvörðun í máli hennar hafi byggt á ófullnægjandi og röngum upplýsingum um málsatvik og hins vegar að atvik hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin í máli hans, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur farið yfir beiðni kæranda um endurupptöku með hliðsjón af fyrirliggjandi fylgiskjölum. Beiðni kæranda grundvallast einkum á framfærslusjónarmiðum sem kærandi telur bætt úr með tilliti til fyrirliggjandi færsluyfirlita. Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda, dags. 18. júlí 2024, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli sérstakra tengsla við landið væru ekki uppfyllt, sbr. 1. og 4. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Framfærslugögn kæranda voru meðal atriða sem kærunefnd fjallaði um við úrlausn málsins en voru ekki eina ástæða synjunar. Það var niðurstaða nefndarinnar að gögnin væru haldin annmörkum er lutu að ótrúverðugleika og efnislegu ósamræmi og var því ekki byggt á þeim við úrlausn málsins. Þau gögn sem kærandi lagði fram samhliða endurupptökubeiðni sinni samræmast ekki fyrri framburði kæranda varðandi framfærslu sína og ýta því enn frekar undir ótrúverðugleika í frásögn hvað varðar framfærslu. Þá bætir vottorð læknis hvað varðar heilsufar kæranda og getu hennar til vinnu engu við enda var lagt til grundvallar í úrskurði kærunefndar að hún væri heilsuhraust og vinnufær.

Að teknu tilliti til þeirra gagna sem kærandi hefur lagt fram við meðferð endurupptökumálsins hjá kærunefnd og þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að atvik málsins hafi breyst svo verulega að tilefni sé til að endurupptaka fyrri úrskurð nefndarinnar. Í ljósi framangreinds er það jafnframt niðurstaða kærunefndar að ekki sé hægt að fallast á að úrskurður kærunefndar útlendingamála hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um endurupptöku málsins því hafnað.


Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The request of the appellant to re-examine the case is denied.

Valgerður María Sigurðardóttir

Sandra Hlíf Ocares

Gunnar Páll Baldvinsson