05 nóvember 2024

/

Úrskurður nr. 1201/2024


Hinn 5. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1201/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24050157

Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. maí 2024 kærði einstaklingur sem kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21 maí 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Róm og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 6. júlí 2023. Kvaðst kærandi vera sómalskur ríkisborgari. Kærandi kvaðst hafa farið frá Sómalíu 10. ágúst 2022 og farið til Tyrklands þar sem hann hafi dvalið í sjö mánuði. Þaðan hafi hann farið með rútu til Grikklands og þaðan til Rómar. Frændi hans frá Sómalíu hafi greitt flugfarið. Kærandi hafi ferðast á fölsuðum skilríkjum sem smyglari hafi tekið af honum áður en hann hafi farið í flug frá Ítalíu til Íslands.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 20. og 22. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur [...]. Kærandi greindi frá því að vera fæddur og uppalinn í […] í [...] héraði á Bay landsvæðinu í Sómalíu þar sem hann hafi búið þar til hann hafi flúið heimaríki 10. ágúst 2022. Kærandi hafi flúið heimaríki og flogið til Tyrklands þar sem hann hafi dvalist í um eitt ár. Eftir það hafi kærandi dvalið í Grikklandi í þrjá mánuði. Kærandi hafi ekki dvalið á Ítalíu en líklega farið í tengiflugi þaðan til Íslands. Hann hafi ekki sótt um alþjóðlega vernd í framangreindum löndum vegna þess að það hafi verið vandamál í Tyrklandi og hann hafi ekki reynt í hinum löndunum. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að hann hafi reynt mörgum sinnum að sækja um vernd en að hann hafi ekki mátt það. Þá hafi annað fólk sem hafi sótt um vernd ekki fengið neina hjálp og ekki hann heldur. Kærandi hafi dvalið ólöglega í Tyrklandi og Grikklandi og ekki stundað þar atvinnu. Kærandi greindi frá því að hafa átt sómalskt vegabréf sem hann hafi verið með á ferðalögum sínum en hafa týnt því í Grikklandi. Kærandi kvaðst vera við góða andlega og líkamlega heilsu og ekki taka nein lyf að staðaldri. Kærandi greindi frá því að eiga móður, yngri bróður og systur í heimaríki. Kærandi hafi búið með fjölskyldu sinni í heimaríki í íbúð sem hafi verið í eigu föður kæranda. Faðir kæranda hafi verið gamall og með háan blóðþrýsting og látist af náttúrulegum orsökum árið 2016. Kærandi greindi frá því að hafa starfað sem matreiðslumaður á veitingastað í borginni [...]. Kærandi greindi frá því að tilheyra Mirifle hluta höfuðættbálksins Rahanwayn, ættbálknum Siyeed, Eemid, einum af fjórum hlutum undirættbálksins Boqolhora. Kærandi kvað höfuðættbálknum Rahanwayn vera skipt í marga hluta og að ættbálkur kæranda sé í minnihluta í heimaríki en hann væri ekki sá ættbálkur sem sætti mismunun á svæðinu. Kærandi kvað meginástæðu þess að hann hafi flúið heimaríki vera vegna illrar meðferðar sem hann hafi sætt vegna ættbálkaaðildar sinnar. Kærandi hafi sætt illri meðferð frá öðrum ættbálkum í störfum sínum, einkum frá ættbálknum Hariin. Kærandi greindi frá því að hafa verið í sambandi með nafngreindri ungri konu sem tilheyrði ættbálknum Hariin frá 13. júní 2020. Þá hafi kærandi ákveðið að kvænast henni og hafi hinn 13. júlí 2022 sent vini og fjölskyldumeðlimi til að kynna sig fyrir fjölskyldu hennar og biðja um hönd hennar. Síðar greindi kærandi frá því að hann hafi sent fjóra nafngreinda frændur sína og Sheika. Fjölskylda unnustu hans hafi hafnað bónorði kæranda vegna þess að hann tilheyrði lægra settum ættbálki. Kærandi greindi frá því að unnusta hans hafi látist árið 2023. Aðspurður hvort það hafi átt sér stað eftir að hann hafi yfirgefið Sómalíu greindi kærandi frá því að það hafi gerst þegar hann hafi verið að yfirgefa Sómalíu. Kærandi leiðrétti þá frásögn sína og kvaðst hafa yfirgefið [...] 26. júlí 2022 og farið frá Mógadisjú í ágúst 2022 og að eiginkona hans hafi dáið árið 2022, nánar tiltekið 26. júlí 2022. Kærandi greindi frá því að þegar fjölskylda hennar hafi hafnað bónorði hans þá hafi kærandi og unnusta hans ákveðið að gifta sig í leyni. Þau hafi gift sig 23. júlí 2022 í Isha í [...] í húsi vinar kæranda. Eftir athöfnina hafi þau snúið til baka í hús fjölskyldu kæranda. Fjölskylda hennar hafi komist að ráðahagnum og ráðist á þau eina nóttina. Árásarmenn hafi skotið að húsi þeirra og ein byssukúlan hafi farið í eiginkonu hans og hún dáið. Síðar greindi kærandi frá því að árásarmennirnir hafi komið inn í húsið en ekki inn í herbergi þeirra og hafið skothríð. Móðir kæranda og systir hafi verið í húsinu á sama tíma og ekki særst. Árásarmennirnir hafi viljað drepa bæði kæranda og eiginkonu hans. Kærandi kvaðst ekki hafa séð árásarmennina. Kærandi hafi flúið þá um nóttina, farið út úr borginni og fengið far með flutningabíl til Mógadisjú þar sem hann hafi verið þar til hann hafi flúið landið í ágúst 2022. Kærandi hafi búið hjá einstaklingi sem bílstjóri flutningabílsins hafi kynnt hann fyrir. Aðspurður kvaðst kærandi ekki geta lagt fram nein gögn eða annað frásögn sinni til staðfestingar. Kærandi kvaðst óttast fjölskyldu eiginkonu sinnar í heimaríki. Kærandi kvaðst aldrei hafa hitt fjölskyldumeðlimi eiginkonu sinnar, hann hafi einungis séð foreldra hennar úr fjarlægð. Fjölskylda eiginkonu kæranda þekkti ekki kæranda og hafi einungis vitað af honum þega ættingjar hans hafi borið upp bónorð hans við þau. Kærandi greindi frá því að eftir atvikið hafi fjölskylda kæranda flúið frá Sómalíu, en hann viti ekki hvort það hafi verið til Eþíópíu, Kenía eða Djibútí. Kærandi hafi ekki verið í sambandi við fjölskyldu sína síðan hann hafi verið í Mógadisjú. Kærandi hafi heyrt frá nágrönnum í [...] að fjölskylda hans hafi flúið frá Sómalíu. Kærandi kvaðst eiga ættingja og vini í [...] í Sómalíu.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 24. maí 2024. Kærunefnd barst ekki greinargerð frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 15. nóvember 2024, óskaði kærunefnd eftir greinargerð frá kæranda. Með tölvubréfi samdægurs greindi talsmaður kæranda frá því að hann hygðist ekki leggja fram greinargerð í málinu. Með tölvubréfi, dags. 26. nóvember 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum í málinu. Kærunefnd bárust ekki umbeðnar upplýsingar og gögn frá kæranda.

3 Greinargerð til kærunefndar

Kærandi hefur ekki lagt fram greinargerð við meðferð málsins hjá kærunefnd. Nefndin hefur þó farið yfir gögn málsins og tekið tillit til allra sjónarmiða sem koma fram.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á sér deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari sem hafi verið búsettur í þorpinu Berdale í Baidoa héraði.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practicies – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
  • 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
  • Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
  • DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
  • EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
  • Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
  • Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, . september 2022);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
  • Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
  • Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. . september 2013);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
  • Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
  • Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
  • Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
  • Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
  • Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
  • Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
  • Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
  • Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
  • Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
  • Somalia: The Security situation in Mogadishu and al-shabaab’s influence in the city, (Landinfo, 8. september 2022);
  • Somalia: Ekteskap og skilsmisse (Landinfo, 26. ágúst 2024);
  • Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
  • Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
  • South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
  • South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
  • The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 23. október 2024);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
  • UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
  • Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í júní 2019);
  • Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, 10. september 2021) og
  • Who are the Digil and Mirafle Clan in Somalia (Weejidow, vefsíða https://waajid.wordpress.com/who-are-the-digil-mirifle-clan-in-somalia/, sótt 25. nóvember 2024);
  • World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.

Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í júní 2023 eru meðlimir Rahanweyn ættbálksins aðallega búsettir í héruðunum Bay, Bakool og Gedo, á milli ánna Shabelle og Jubba og starfi aðallega við búskap. Ættinni sé skipt upp í tvær stórar ættir, Digil og Mirifle. Að hluta til sé litið á ættbálkinn sem lágsettan ættbálk af meðlimum annarra ættbálka, en hann tilheyri meirihlutaættbálkum. Ættbálkurinn sé fjölmennur og meðlimir hans geti gengið í hjónaband með meðlimum Hawiye og Darood. Þá hafi ættbálkurinn öðlast virðingu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi stofnað sína eigin hersveit og svæðisstjórn. Meðlimir Rahanweyn hafi jafnframt gegnt áhrifamiklum stöðum innan ríkisstjórnar Sómalíu. Meðlimir ættbálksins hafi þó mátt sæta mismunun af hálfu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi sest að á stöðum þar sem aðrir ættbálkar séu ríkjandi.

Í skýrslu Landinfo frá 26. ágúst 2024, kemur fram að leynileg hjónabönd séu algeng og almennt samþykkt í Sómalíu. Slík hjónabönd eigi sér stað án samþykkis fjölskyldna hjónaefnanna, annað hvort þar sem fjölskyldan viti ekki af fyrirhuguðum hjúskap eða fjölskyldan hafi hafnað bónorðinu. Til að slíkur hjúskapur sé löglegur verði hjónaefni að ferðast tiltekna vegalengd fjarri heimili sínu, samkvæmt hefð sé slíkt ferðalag um þriggja daga ferð á kameldýri (um 90 kílómetrar), þó að vegalengd geti farið eftir vilja þess einstaklings sem gefi hjónaefnin saman. Brúðhjónin séu gefin saman af Sheik eða öðrum trúarlegum leiðtoga. Tveir vottar verði að vera viðstaddir hjónavígslu og það þurfi að vera fyrir hendi hjúskaparsamningur (s. nikaah). Þar sem fjölskyldur séu ekki viðstaddar greiði brúðguminn ekki gjald fyrir brúðina. Talið sé að leynihjónabönd séu orðin algengari af fjárhagslegum ástæðum. Venju samkvæmt myndu hjónin tilkynna fjölskyldum sínum um hjúskapinn þegar þau snúi aftur heim. Ef hjónin tilkynni ekki fjölskyldum sínum um hjúskapinn geti þau ekki búið saman.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2022, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu fjölskyldu látinnar eiginkonu sinnar þar sem hann tilheyri lægra settum ættbálki í heimaríki. Þá byggir kærandi umsókn sína á því að hann eigi á hættu ofsóknir og mismunun í heimaríki þar sem hann tilheyri minnihlutaættbálki.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið fæddur, uppalinn og búsettur í þorpinu […] í [...] héraði á Bay landsvæðinu í Sómalíu þar til hann hafi flúið frá heimaríki í ágúst 2022. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í desember 2021, janúar 2023 og júlí 2024, fara ATMIS eða sómölsk yfirvöld með yfirráð í borginni.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 20. og 22. nóvember 2023, greindi kærandi frá því að tilheyra Mirifle hluta höfuðættbálksins Rahanwayn, ættbálknum Siyeed, og ættbálknum Eemid, einum af fjórum hlutum undirættbálksins Boqolhora. Kærandi kvað ættbálk sinn vera í minnihluta en ekki sæta mismunun í heimaríki. Kærandi greindi frá því að hann hafi sætt slæmri meðferð frá öðrum ættbálkum, einkum ættbálknum Hariin. Kærandi greindi frá því að hafa verið í sambandi með nafngreindri konu af ættbálknum Hariin frá árinu 2020. Í júlí 2022 hafi kærandi sent fjölskyldumeðlimi sína til að biðja um hönd hennar en fjölskylda hennar hafi hafnað bónorðinu vegna þess að þau hafi talið kæranda tilheyra ættbálki sem væri lægra settur en þeirra. Kærandi og unnusta hans hafi kvænst í leyni og þegar fjölskylda hennar hafi komist að því hafi þau komið heim til kæranda og eiginkonu hans, hafið skothríð og myrt eiginkonu kæranda.

Kærunefnd telur ýmislegt í heildarfrásögn kæranda draga úr trúverðugleika hennar, einkum hvað varðar leynilegt hjónaband hans, meinta skotárás fjölskyldu eiginkonu hans og tímasetningar atburða. Þá telur kærunefnd þýðingarmikla hluta frásagnar kæranda ekki í samræmi við landaupplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér við vinnslu málsins. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafi farið frá Sómalíu 10. ágúst 2022 og að eiginkona hans hafi dáið árið 2023 þegar hann hafi verið að fara frá Sómalíu. Aðspurður nánar út í tímasetningar þessara atburða breytti kærandi frásögn sinni og kvaðst hafa farið frá heimasvæði sínu [...] í júlí 2022 og frá Sómalíu í ágúst 2022 og kvað eiginkonu sína hafa dáið árið 2022 og síðar 26. júlí 2022. Þá greindi kærandi frá því að eftir að þau hafi gift sig í leyni 23. júlí 2022 hafi fjölskylda eiginkonu hans komist að því að þau byggju á fjölskylduheimili kæranda og hafi ráðist á þau 26. júlí 2022 um nóttina. Árásarmennirnir hafi skotið að húsinu og ein byssukúlan hafi hæft eiginkonu hans og hún látist. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að árásarmennirnir hafi komið inn í húsið, en ekki inni í herbergið þeirra sem hafi verið lokað, og hafið skothríð fyrir utan herbergi þeirra. Kærandi kvað tilgang árásarmannanna hafa verið að drepa þau bæði en ekki að fara inn í herbergi þeirra. Eiginkona kæranda hafi látist í árásinni en kærandi, móðir hans og systir, sem einnig hafi verið staddar í húsinu, hafi ekki særst. Kærandi kvaðst fyrst ekki muna hversu margir árásarmennirnir hafa verið en aðspurður kvaðst hann síðar ekki hafa vitað hversu margir þeir hafi verið þar sem hann hafi ekki séð þá. Kærandi greindi einnig frá því að hann hafi sent fjölskyldumeðlimi sína og Sheika til fjölskyldu eiginkonu hans og borið upp bónorð fyrir hans hönd eftir tveggja ára samband þeirra. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi aldrei verið kynntur fyrir neinum fjölskyldumeðlimum eiginkonu sinnar, hann hafi einungis séð tengdaforeldra sína úr fjarlægð og þau hafi vitað af honum en aldrei séð kæranda á þessum tveimur árum sem hann og eiginkona hans hafi verið í sambandi. Þá var frásögn kæranda um hvenær fjölskylda hans hafi flúið heimaríki og hvernig hann hafi vitað, hvort og hvenær þau hafi farið eða að þau væru á lífi nokkuð á reiki. Að mati kærunefndar dregur framangreint verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda um samband hans við eiginkonu sína, meint bónorð kæranda og höfnun fjölskyldu eiginkonu hans, dauða eiginkonu hans og meinta skotárás fjölskyldu hennar á hjónin.

Kærandi greindi frá því að eiginkona hans hafi búið í […] hverfinu í [...] héraði. Kærandi og eiginkona hans hafi gift sig í leyni 23. júlí 2022 hjá vini kæranda í […] hverfinu í [...]. Kærandi greindi frá því að það hafi engar myndir verið teknar af þessu tilefni og að hann gæti ekki lagt fram nein gögn tengdum hjúskapnum eða eiginkonu hans. Í ljósi landaheimilda um leynileg hjónabönd í Sómalíu telur kærunefnd ótrúverðugt að kærandi geti ekki lagt fram nein gögn um hjúskapinn, líkt og hjúskaparsamning, að hann geti ekki lagt fram myndir eða önnur gögn um eiginkonu sína sem hann kvaðst hafa verið í sambandi við í rúmlega tvö ár og að brúðkaup þeirra hafi farið fram í heimahéraði kæranda og eiginkonu hans. Kærandi greindi einnig frá því að tilheyra Mirifle hluta höfuðættbálksins Rahanwayn, ættbálknum Siyeed, Eemid, einum af fjórum hlutum undirættbálksins Boqolhora og að eiginkona hans hafi tilheyrt ættbálknum Hariin. Kærandi greindi frá því að ástæða þess að fjölskylda eiginkonu hans hafi hafnað bónorði hans og að endingu hafið skothríð á heimili þeirra og myrt eiginkonu hans vegna leynilegs hjúskapar þeirra hafa verið að kærandi tilheyrði lægra settum ættbálki en eiginkona hans. Af þeim landaupplýsingum sem kærunefnd hefur kynnt sér við meðferð málsins tilheyrir ættbálkur eiginkonu hans einnig Mirafle hluta höfuðættbálsins Rahanwayn og ættbálknum Shiyeed og er ættbálkur hennar því jafnstæður Boqolhora ættbálknum sem kærandi tilheyrir innan Rahanwayn höfuðættbálksins. Í ljósi landaheimilda um ættbálkaskipulag í Sómalíu telur kærunefnd ótrúverðugt að bónorði kæranda hafi verið hafnað af fjölskyldu eiginkonu hans vegna þess að kærandi tilheyrði lægra settum ættbálki og þau hafi þurft að gifta sig í leyni vegna þess.

Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats er það niðurstaða kærunefndar að frásögn kæranda um að hann hafi gengið í leynilegt hjónaband með eiginkonu sinni vegna þess að fjölskylda hennar hafi hafnað bónorði hans, að fjölskyldumeðlimir hennar hafi síðan fundið þau á heimili kæranda, hafið þar skothríð fyrir utan herbergi þeirra og myrt eiginkonu hans og að hann, móðir hans og systir hafi öll sloppið ósærð að öllu leyti ótrúverðuga. Þó er ekki ástæða til að útiloka að kærandi hafi verið kvæntur og að eiginkona hans sé látin. Eins er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi tilheyri Mirifle hluta höfuðættbálksins Rahanwayn, ættbálknum Siyeed og einum af fjórum hlutum undirættbálksins Boqolhora, Eemid.

Líkt og að framan greinir kvaðst kærandi tilheyra Rahanwayn höfuðættbálknum í heimaríki og að ættbálkur hans sé í minnihluta. Samkvæmt skýrslu EUAA frá því í júní 2022 er ættbálkurinn einn af fimm höfuðættbálkum Sómalíu ásamt Dir, Isaaq, Darood, og Hawiye. Þá skiptist Rahanweyn höfuðættbálkurinn upp í tvo stóra flokka, Digil og Mirifle. Kærandi hefur greint frá því að tilheyra ættbáknum Boqolhora sem fellur Siyeed ættbálkinn undir Mirifle. Heimildir benda til þess að Rahanweyn sé fjölmennur ættbálkur og að hann sé í meirihluta í Bay umdæmi. Meðlimir Mirifle ættbálksins séu aðallega búsettir í norðurhluta landsvæðisins og Digil ættbálksins í suðurhluta svæðisins. Í [...] höfuðborginni og […], heimabæ kæranda, sé Mirifle ættbálkurinn í meirihluta. Heimildir benda til þess að þrátt fyrir að ættbálkurinn sé meirihlutaættbálkur hafi meðlimir ættbálksins mátt sæta mismunun þegar þeir hafi sest að á svæðum þar sem aðrir höfuðættbálkar séu ríkjandi. Kærandi kveðst hins vegar koma frá svæði þar sem Rahanweyn ættbálkurinn er í meirihluta. Þá hefur kærandi ekki greint frá því að hafa orðið fyrir mismunun eða eiga á hættu mismunun sem nær því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður meðlima Rahanweyn ættbálksins er það mat kærunefndar að aðstæður hans séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki af öðrum ástæðum.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi vísar til þess að ástandið og stéttarskipting ættbálka í Sómalíu sé með þeim hætti að hann eigi í raunhæfri hættu að sæta pyntingum og ómannúðlegri meðferð í heimaríki. Hættan stafi frá þeim sem hafi unnið fjölskyldu hans mein. Kærandi eigi á hættu að sæta dauðrefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa til baka til heimaríkis. Kærandi sé orðin að skotmarki í ágreiningi milli ættbálka þar í landi vegna hjónabands en slíkt megi í réttu kalla ættbálkastríð. Að mati kæranda geti yfirvöld í Sómalíu ekki veitt honum eða fjölskyldu hans nauðsynlega vernd til að koma í veg fyrir ofbeldi og mismunun gagnvart honum og ættbálki hans almennt.

Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hann eigi í hættu í sérstakri hættu vegna ofsókna af hálfu ættbálks eiginkonu hans eða vegna aðildar að minnihlutaættbálki almennt. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar að kærandi hafi verið búsettur í þorpinu […] í [...] héraði á Bay landsvæðinu í Sómalíu þegar hann hafi yfirgefið heimaríki sitt, þar sem hann hafi búið allt sitt líf. Verður því horft til aðstæðna í […] við mat á því hvort að aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara sómölsk stjórnvöld eða ATMIS með full yfirráð yfir heimaþorpi kæranda […]. Samkvæmt skýrslu EUAA leiðir viðvera einstaklings ein og sér á Bay landsvæðinu ekki til þess að viðkomandi teljist eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði honum gert að fara aftur til Bay landsvæðisins. Með vísan til framangreinds og fyrirliggjandi gagna málsins verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hans fyrir þeirri hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Jafnframt er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í svipaðri stöðu og hann fyrir áreiti eða mismunun á grundvelli ættbálkaaðildar hans.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Ljóst er að Sómalía glímir við ýmsa erfiðleika er tengjast almennu öryggistástandi í landinu sem og efnahag landsins og hafa stjórnvöld í landinu unnið að því með aðstoð alþjóðlegra aðila að bæta úr en enn sé langt í land. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það þó niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda þar nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu og taka engin lyf að staðaldri.

Af framburði kæranda verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi er ungur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga ættingja í heimaborg sinni og að eiga móður og systkini þó hann viti ekki hvar þau séu nákvæmlega stödd. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 6. júlí 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi kvað brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir þar sem hann hafi flúið heimaríki til Íslands til að leita eftir vernd.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir