07 nóvember 2024
/
Úrskurður nr. 1062/2024
Hinn 7. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1062/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23090042
Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 11. september 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Auk þess gerir kærandi kröfu um veitingu dvalarleyfis á grundvelli 75. gr. laga um útlendinga.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Sómalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. maí 2023. Kvaðst kærandi hafa komið með nafngreindum einstaklingi, Y, til landsins með flugi frá Ítalíu 16. maí 2023. Kærandi hafi hitt Y á Ítalíu og borgað honum 4000 dollara til að koma kæranda til Íslands. Kærandi hafi afhent Y flugmiða, skilríki og vegabréfið sitt á flugvellinum og Y hafi gefið honum farsíma. Kærandi hafi ekki vitað hvort Y hafi viljað að kærandi gerði eitthvað ólöglegt, en Y hafi hótað kæranda og kærandi minnst á mansal við lögreglu. Kærandi hafi farið frá Sómalíu í maí 2023 og sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi til að öðlast betra líf. Kærandi kvaðst vera giftur og eiga tvö börn í Sómalíu. Kærandi hafi ekki sakarferil í Sómalíu eða öðru landi og hafi ekki hlotið herþjálfun.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 10. ágúst 2023 ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því hafa greitt smyglara, Y, 4000 dollara fyrir að fara með sig til Íslands. Kærandi ætti ekki og hafi aldrei átt vegabréf. Y hafi tekið allt af kæranda og ekki verið í sambandi við Y frá komunni til landsins. Kærandi greindi frá því að hafa fæðst í [...] í Sómalíu en vera uppalinn og hafa búið í Mógadisjú þar til hann hafi flúið heimaríki í maí 2023. Kærandi greindi frá því að hafa starfað sem samskiptafulltrúi og samhæfingarfulltrúi hjá nafngreindu einkareknu fjarskiptafyrirtæki í Mógadisjú, X. Starf kæranda hafi falist í því að selja netaðgang og símakort. Kærandi greindi frá því að vera með bakkalár gráðu í viðskiptafræði. Kærandi hafa búið einn í húsi sem hann hafi leigt í Mógadisjú. Kærandi kvaðst eiga eiginkonu og tvö börn í Sómalíu auk tveggja barna frá fyrra hjónabandi. Kærandi greindi frá því að fjölskylda hans hafi verið búsett á dreifbýlissvæði í Sómalíu þegar hann hafi flúið þaðan. Kærandi viti ekki hvar þau séu nú og sé ekki í sambandi við þau. Kærandi greindi frá því að tilheyra ættbálknum Darood og undirættbálknum Majeerteen. Kærandi greindi frá því að undirættbálkar Majeerteen væru í minnihluta en kvaðst sjálfur ekki tilheyra minnihlutaættbálk í heimaríki. Kærandi greindi frá því að vera við góða andlega heilsu. Kærandi greindi frá því að hafa flúið frá heimaríki þar sem honum hafi borist hótanir frá meðlimum hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab í tengslum við störf sín hjá fyrirtækinu X. Kæranda hafi borist símtal frá meðlimum Al-Shabaab þar sem þeir hafi sakað hann um að vera ríkisstarfsmaður og uppljóstrari, að vera ekki múslimi og hótað honum lífláti. Síðar í viðtali greindi kærandi frá því að öll samskipti meðlima samtakanna hafi borist honum í textaskilaboðum. Í janúar 2020 hafi meðlimur Al-Shabaab komið fyrir sprengju á skrifstofu kæranda. Margir samstarfsfélagar kæranda hafi látist í sprengingunni og hann slasast á vinstri fæti og fengið eiturefni í augun eftir sprenginguna og finni mikið til í augunum. Kærandi hafi jafnað sig af sárum sínum og byrjað aftur að vinna. Í framhaldi þess hafi kæranda borist þrjú skilaboð frá meðlimum Al-Shabaab og ráðist hafi verið á kæranda fyrir utan heimili hans og skotið á útidyrahurð á heimili hans. Kærandi greindi frá því að hafa fengið alls fjögur textaskilaboð frá meðlimum Al-Shabaab þar sem honum hafi verið hótað lífláti, honum tjáð að hann væri undir eftirliti og reynt hafi verið að kúga út úr honum fé. Kærandi telji að honum hafi borist fyrstu skilaboðin í nóvember 2019 og síðustu skilaboðin í mars 2023 þegar meðlimir Al-Shbaab hafi krafist þess að kærandi færi frá heimaríki. Kærandi greindi frá því að hafa ekki greitt meðlimum glæpahópsins. Kærandi kvaðst í fyrsta lagi telja að meðlimir Al-Shabaab hafi verið á eftir honum þar sem hann hafi verið að vinna hjá X og vegna þess að það hafi verið birt mynd af kæranda með sómalska forsetanum og forsætiráðherranum á samfélagsmiðlum í febrúar 2017. Síðar í viðtali greindi kærandi frá því að hann teldi ástæðu hótananna vera að hann hafi starfað á röngum stöðum og verið ráðgjafi í málefnum ungmenna á sómalska þinginu. Þá greindi kærandi frá því að meðlimir Al-Shabaab hafi sakað hann um að vinna fyrir svikara (e. infidels) og að yfirvöld og þingið hafi verið að vinna að því að viðurkenna LGBTQ samfélagið. Vinnuveitandi kæranda hafi verið skotmark þeirra. Kærandi kvaðst vita að skilaboð kæmu frá meðlimum Al-Shabaab byggt á því hvernig þeir senda fólki skilaboð. Kærandi greindi frá því að fyrirtækið X sæi yfirvöldum fyrir þjónustu en hefði ekki önnur tengsl við stjórnvöld. Kærandi kvaðst hafa verið í felum síðan hann fékk fyrstu skilaboð frá meðlimum Al-Shabaab og að hann hafi unnið á mismunandi starfsstöðum. Hann hafi m.a. starfað á skrifstofu forsetabústaðarins. Kærandi hafi byrjað að starfa þar árið 2018 og starfað á mismunandi starfsstöðum þar á árunum 2018 til 2023. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi starfað fyrir forsætisráðuneytið og í stjórnarráðinu (e. State House) þar sem hann hafi verið tæknilegur ráðgjafi í fjarskiptamálum. Kærandi hafi verið sendur af fyrirtækinu X til að tengja netaðgang og afhenda síma. Kærandi kvaðst einungis hafa fengið greidd laun frá fyrirtækinu X og að hann hafi flúið áður en yfirvöld hafi byrjað að greiða honum laun. Starf hans hafi verið á milli fyrirtækisins X og yfirvalda. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi ekki leitað sér aðstoðar sómalskra yfirvalda af því að hann væri að flýja frá yfirvöldum. Sumir starfsmenn yfirvalda leiki tveimur skjöldum og vinni einnig fyrir hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab.
Við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram fjölda gagna. Kærandi lagði m.a. fram ljósmyndir af fjölda skírteina. Myndirnar eru af fjórum starfsskírteinum útgefnum af sómalska þinginu á árunum 2019 til 2023, tveimur starfsskírteinum frá forsetahöllina (e. Villa Somalia) útgefnum á árunum 2022 til 2023, tveimur gestapössum í stjórnarráðið útgefnum árin 2019 og 2020, starfsskírteini á forsetaskrifstofu útgefið árið 2023, óskýr mynd af starfsmannaskírteini frá forsætisráðuneytinu útgefið árið 2019 og tveimur starfsmannaskírteinum frá fyrirtækinu X sem runnu út í mars 2020 og ágúst 2022. Nafn starfsmannsins á nokkrum af framangreindum skírteinum og gestapössum eru ólík stafsetningu á því nafni sem kærandi hefur gefið upp. Þá lagði kærandi fram skjáskot af fjórum skilaboðum á sómölsku og þýðingar á þeim, ljósmynd af bréfum útgefnum af herþjónustu forseta Sómalíu dags. 3. desember 2018, ljósmyndir af kæranda með tveimur nafngreindum einstaklingum, ljósmynd af kæranda í forsætisráðuneytinu og ljósmyndir frá skrifstofu hans, ljósmyndir af kæranda með fótlegg í gifsi, í hjólastól og í röntgentæki, ljósmyndir af hurð sem liggur á skrifstofugólfi þar sem eru sprungur í veggjum og pappír á gólfum og ljósmynd af gati á bláu yfirborði, myndband sem sýnir ónýtan tölvuskjá og myndband af afgreiðsluhúsnæði þar sem gluggar liggja brotnir á gólfum ásamt öðrum hlutum í húsnæðinu. Þá lagði kærandi fram afrit af tveimur fréttum, annars vegar um loftsprengjuárás keníska hersins á Al-Shabaab í Saakow þorpi í mið-Júba fylki þar sem innviðir fyrirtækisins X hafi eyðilagst og frétt um sprengingu við fjarskiptaturn fyrirtækisins X í Galmudug í Sómalíu.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. september 2023. Greinargerð barst kærunefnd 25. september 2023.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi fæðst í [...] í Sómalíu og að hann hafi alist upp og dvalið í tvo áratugi í Mógadisjú. Smyglari hafi aðstoðað kæranda við að koma til landsins og tekið vegabréf hans í sínar vörslur. Kærandi tilheyri Darood ættbálknum og undirættbálknum Majeerteen. Kærandi eigi fjögur börn, tvö með núverandi eiginkonu sinni. Kærandi óttist hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab í heimaríki. Kærandi hafi móttekið fjögur textaskilaboð frá meðlimum Al-Shabaab sem hafi innihaldið líflátshótanir og fjárkúganir. Kæranda hafi borist fyrstu skilaboðin í nóvember 2019 og síðustu í mars 2023. Kærandi hafi slasast í sprengingu sem Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á og hafi átt sér stað í upphafi árs 2020. Meðlimir Al-Shabaab hafi hleypt af byssu fyrir utan heimili kæranda með þeim afleiðingum að útidyrahurðin hafi skemmst. Kærandi telji áreitið tilkomið vegna starfa hans fyrir fyrirtækið X sem hafi m.a. selt nettengingar og símakort. Þá hafi ljósmyndir af kæranda með forseta og forsætisráðherra Sómalíu birst á netinu og vakið athygli hjá meðlimum hryðjuverkasamtakanna. Kærandi hafi starfað í húsnæði forseta Sómalíu og í sómalska þinghúsinu. Þá hafi hann sinnt tæknilegum verkefnum fyrir fyrirtækið X og unnið sem tæknistjóri m.a. á skrifstofu forsætisráðherra. Kærandi hafi litið á sig sem opinberan starfsmann.
Í greinargerð kæranda er vísað til umfjöllunar í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar og landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Sómalíu mótmælt. Kærandi vísar til nýlegra heimilda um ástandið í höfuðborginni Mógadisjú og um hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.
Kærandi telur ákvörðun Útlendingastofnunar háða slíkum annmörkum að það varði við ógildingu. Rannsókn stofnunarinnar í málinu hafa verið áfátt. Skort hafi á að gerð hafi verið fullnægjandi rannsókn m.a. á þeirri hættu sem fyrirtækinu X og starfsmönnum þeirra stafi af hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab, tengslum fyrirtækisins X við sómölsk stjórnvöld og þeirri vernd sem stjórnvöld geti veitt honum gegn ofsóknum. Kærandi vísar til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings. Í ákvörðuninni hafi ekki verið framkvæmt einstaklingsbundið mat á aðstæðum kæranda, s.s. sprengingunni á skrifstofu kæranda, skotárásinni á heimili hans og að kærandi hafi tilheyrt minnihlutaættbálki. Þá hafi ekki verið litið á málsatvik með heildstæðum hætti og skoðað hverjum kæranda stafi ógn af snúi hann aftur til heimaríkis sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Mat Útlendingastofnunar á öryggisástandi í Mógadisjú og því hvort kærandi sé skotmark hryðjuverkasamtakanna hafi verið háð annmörkum og brotið í bága við rannsóknarreglu og réttmætisreglu stjórnsýsluréttar. Kærandi vísar til þess að í trúverðugleikmati hafi Útlendingastofnun veitt því vægi að svör kæranda hafi verið stuttorð. Hafi stofnunin átt að gera kæranda grein fyrir því í samræmi við leiðbeiningaskyldu.
Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 57/2023 og vísar til þess að í úrskurðaframkvæmd séu skýr dæmi þess að einstaklingar sem ekki hafi lagt fram gögn um ofsóknir af hálfu hryðjuverksamtakanna Al-Shabaab hafi verið veitt vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Beri því að veita honum vernd á grundvelli jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem kærandi eigi ekki að fá óhagstæðari málalok en í framangreindum úrskurði.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda uppfylli hann skilyrði alþjóðlegrar verndar sbr. 1. mgr. 37. gr., 1. til 4. mgr. 38. gr. og 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga. Kærandi tilheyri þjóðfélagshópi í skilningi d. liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sem starfsmaður í þágu stjórnvalda í Sómalíu og að hafa sinnt atvinnu sem geri hann að sérstöku skotmarki Al-Shabaab. Heimildir beri með sér að hryðjuverkasamtökin hafi þegar bannað starfsemi fyrirtækisins X, gert opinbera og fyrrverandi opinbera starfsmenn að skotmarki sínu og myrt fjölda einstaklinga sem falli undir þann hóp. Kærandi hafi vitneskju um og hafi verið vitni að slíkum ofsóknum í garð opinberra starfsmanna. Kærandi hafi lagt fram fjölda gagna sem sýni að hann hafi starfað í þágu yfirvalda og á skrifstofum þeirra. Þeir atburðir sem kærandi hafi greint frá í viðtali hjá Útlendingastofnun aðgreini hann frá öðrum borgurum Sómalíu, bakgrunnur hans, staða og vinnutengsl hafi verið ástæða þess að honum hafi verið ógnað og honum borist hótanir fjórum sinnum frá Al-Shabaab. Kærandi hafi sinnt störfum á háttsettum opinberum skrifstofum í Sómalíu og verið á myndum á samfélagsmiðlum með æðstu ráðamönnum landsins þ.e. helstu skotmörkum Al-Shabaab. Kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. þar sem hann hafi verið samsamaður við stjórnvöld í atvinnu sinni. Kærandi tilheyri einnig minnihlutaættbálki í Sómalíu. Þá líti Al-Shabaab með neikvæðum hætti á þá sem dvalist hafi utan landsteinanna og kærandi eigi því á frekari hættu á að verða fyrir ofsóknum samtakanna. Þá telji kærandi sig geta lent í vandræðum vegna þess að Al-Shabaab hafi reynt að kúga út úr kæranda fé og stjórnvöld hóti refsiaðgerðum vegna þeirra sem aðstoði samtökin fjárhagslega. Kærandi telur að stjórnvöld geti ekki veitt honum vernd gegn ofsóknum í heimaríki. Vernd ættbálks hans sé veik í samanburði við Al-Shabaab og stjórnvöld séu það einnig.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til almenns öryggisástands í Sómalíu og vísar í landaupplýsingar máli sínu til stuðnings. Hætta steðji að almennum borgurum vegna handahófskenndra árása og hryðjuverkaárása í landinu. Kærandi telji engan vafa leika á trúverðugleika frásagnar sinnar í ljósi hlutlægra gagna um ástandið í Sómalíu. Kærandi eigi á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis og beri því að veita honum viðbótarvernd sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til rökstuðnings undir aðalkröfu og bendir á meta þurfi hvaða áhrif sprengingin, skotárásin og hótanirnar gætu haft m.t.t. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá tilheyri kærandi minnihlutaættbálki sem gefa þurfi vægi við mat um það hvort 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi við.
Að mati kæranda er flutningur innanlands hvorki viðeigandi né sanngjörn krafa. Kærandi tilheyri minnihlutahópi og sé ekki viss um hagi fjölskyldu sinnar í Sómalíu, þ.m.t. búsetu hennar.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi telji að landaupplýsingar beri með sér að almennar aðstæður í heimaríki hans séu erfiðar. Yfirstandandi séu mestu og alvarlegustu þurrkar í Sómalíu sem hafi leitt til þess að lífsviðurværi milljóna sé horfið. Hefur framangreint þýðingu fyrir þjóðfélagsstöðu kæranda í landinu. Kærandi hafi verið í vinnusambandi við fyrirtæki sem sé í sterkum tengslum við sómölsk stjórnvöld og markað honum ákveðna stöðu í þjóðfélaginu. Starfssamband hans vinni gegn honum í Sómalíu. Kærandi sé án stuðningsnets, hann viti ekki hvar eiginkona hans og börn séu, og hann tilheyri minnihlutaættbálki. Verndarþörf kæranda sé því rík.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að vera veitt dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals, sbr. 75. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá aðstæðum sem beri einkenni mansals og hafi greint frá því að nafngreindur maður, Y, hafi aðstoðað kæranda við að koma til Íslands og hann hafi hótað honum. Kærandi hafi einnig minnst á mansal við lögregluna er hann sótti um alþjóðlega vernd. Mansalsteymi lögreglunnar sé ekki með rannsókn í gangi hvað framangreint varðar en það sé ekki skilyrði þess að veitt sé dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins.
Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu 10.gr. nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, réttmætisreglu stjórnsýsluréttar og leiðbeiningarskyldu.
Kærunefnd bendir á að kæranda gafst kostur á að koma á framfæri öllum sínum málsástæðum í ítarlegu viðtali hjá Útlendingastofnun, þá hafði kærandi tækifæri til að leggja fram frekari gögn við meðferð málsins hjá kærunefnd. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Tekur kærunefnd undir það með kæranda að rökstuðningi Útlendingastofnunar hafi að einhverju leyti verið ábótavant, einkum varðandi umfjöllun um frásögn kæranda af sprengjuárás á skrifstofu hans og byssuskoti í útidyrahurð. Kærunefnd hefur bætt úr framangreindum annmörkum við málsmeðferð sína og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að þeir annmarkar hafi ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Hvað varðar tilvísun kæranda til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar með vísan í úrskurði kærunefndar ítrekar kærunefnd að við mat á því hvort einstaklingur eigi rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi fer ávallt fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum og mat á trúverðugleika frásagnar. Aðstæður í tilvísuðum úrskurði eru þá ekki að öllu leyti sambærileg máli kæranda og hefur því ekki fordæmisgildi. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á sér deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari sem hafi verið búsettur í höfuðborg landsins Mógadisjú.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023)
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
- Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, . september 2022);
- Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. . september 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
- Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- Somalia: The Security situation in Mogadishu and al-shabaab’s influence in the city, (Landinfo, 8. september 2022);
- Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 24. apríl 2024);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í júní 2019);
- Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, 10. september 2021) og
- World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr. Í skýrslu EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að Al-Shabaab geri einstaklinga sem starfi fyrir sómölsk stjórnvöld, herlið stjórnvalda og sem samtökin ætli að hafi tengsl við stjórnvöld og/eða alþjóðlega aðila að skotmörkum sínum. Einkum séu það einstaklingar sem séu háttsettir innan stjórnvalda eða herliða sem séu skotmörkin en við mat á því hvort að einstaklingur sem gegni lægri stöðum hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir þurfi m.a. að horfa til starfsskyldna, sýnileika í störfum, starfssvæði og ítaka Al-Shabaab á svæðinu.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gabooye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab vegna atvinnu sinnar. Kærandi telur sig eiga á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna tilrauna til fjárkúgunar af hálfu Al-Shabaab og ofsókna af hálfu Al-Shabaab vegna þess að hann hafi farið frá Sómalíu. Þá tilheyri kærandi minnihlutahópi.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið uppalinn og búsettur í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í desember 2021, frá janúar 2023 og júlí 2024, fara ATMIS eða sómölsk yfirvöld með yfirráð í borginni.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að tilheyra ættbálknum Darood og undirættbálknum Marjareeteen. Kærandi hafi starfað fyrir fjarskiptafyrirtækið X við að selja netaðgang og símkort. Kærandi hafi flúið frá heimaríki vegna þess að honum hafi borist hótanir frá hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab í tengslum við störf sín hjá fyrirtækinu X og vegna þess að það hafi birst mynd af honum með forseta og forsætisráðherra Sómalíu á samfélagsmiðlum árið 2017. Meðlimir Al-Shabaab hafi komið fyrir sprengju á skrifstofu kæranda og hafi kærandi slasast í sprengingunni og margir samstarfsfélagar hans látið lífið. Þá hafi meðlimir Al-Shabaab ráðist að kæranda og skotið á útidyrahurð á heimili hans. Kærandi greindi frá því að hafa starfað í forsetabústaðnum, í forsætisráðinu, stjórnarráðinu og verið ráðgjafi á sómalska þinginu.
Með tölvubréfi, dags. 11. október 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda m.a. um störf kæranda, hótanir frá Al-Shabaab og ættbálkartengsl kæranda. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 15. október 2024, greindi kærandi frá því að starf hans hjá X hafi verið þjónustuveitandi þar sem hann hafi séð starfsmönnum yfirvalda fyrir netaðgangi og farsímakortum. Kærandi greindi frá því að hafa byrjað að vinna fyrir fyrirtækið X árið 2018 og hafi líka byrjað að vinna fyrir yfirvöld það ár þar sem að fyrirtækið X hafi útvíkkað starfsemi sína. Kærandi hafi verið á milli þessara geira í fimm ár. Þá hafi hann starfað sem ráðgjafi í málefnum ungmenna af og til í hlutastarfi fyrir sómalska þingið og þessar skrifstofur séu staðsettar á sama stað. Kærandi hafi verið samræmingarfulltrúi og þjónustuveitandi fyrir hönd fyrirtækisins X og yfirvalda. Kærandi hafi unnið í fimm ár samtals á framangreindum stöðum. Kærandi hafi starfað fyrir hönd fyrirtækisins X á mismunandi starfstöðvum sómalskra yfirvalda og fengið greitt frá fyrirtækinu X. Þá hafi kærandi átt rétt á og honum verið lofað að hann fengi greiðslur fyrir starf sitt fyrir sómalska þingið en hann hafi aldrei fengið neitt greitt. Kærandi greindi frá því að framlögð starfsmannaskírteini tengdust þeim starfstöðvum yfirvalda sem hann hafi starfað á fyrir hönd fyrirtækisins X. Kærandi greindi frá því að honum hafi borist skilaboð frá hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab á tímabilinu nóvember 2019 til mars 2023. Kærandi kvaðst leggja fram ítarlegri skilaboð þar sem númer sendanda kæmi fram. Hann myndi ekki nákvæmar dagsetningar um það hvenær honum hafi borist öll skilaboðin, einungis að honum hafi borist fyrstu skilaboð í nóvember 2019 og hafi borist skilaboð þar til í mars 2023. Kærandi gaf upp símanúmer sendanda. Kærandi greindi frá því að sprengjuárás hafi verið gerð á skrifstofu hans í [...], [...], um miðjan janúar 2020 og árás á heimili hans hafi verið 12. febrúar 2023. Þessar árásir hafi verið ástæða þess að kærandi ákvað að flýja heimaríki. Kærandi hafi slasast illa á vinstri fæti og hann hafi fengið eiturefni í augun í sprengingunni. Kærandi kvaðst telja að sprenging hafi beinst að honum og að hann viti að það hafi verið meðlimir Al-Shabaab sem hafi komið sprengjunni fyrir þar sem þeir hafi þegar hótað honum lífláti nokkrum sinnum og hann hafi ekki átt neina óvini sem hafi getað gert þetta. Kærandi gæti ekki lagt fram frekari gögn um sprenginguna á skrifstofu hans en hann hafi gert nú þegar. Kærandi hafi verið skotmark Al-Shabaab vegna þess að hann hafi starfað með ríkisstjórninni sem samtökin telji ekki vera réttu megin í íslam trú. Kærandi hafi því verið álitinn svikari sem ætti að drepa. Þá hafi kærandi borið út boðskap um frið og starfað við að sameina ungmenni sem sé í andstöðu við það sem Al-Shabaab hafi boðað. Al-Shabaab hafi séð kæranda sem ógn við sig, skipað honum að hætta og yfirgefa landið annars yrði hann drepinn. Kærandi greindi frá því að hann hafi falið sig og búið í mismunandi hverfum innan borgarinnar hjá vinum sínum og samstarfsmönnum frá því að honum hafi borist fyrsta hótun frá meðlimum Al-Shabaab í nóvember 2019 og þar til hann hafi flúið heimaríki í maí 2023 en hann hafi haldið áfram að starfa fyrir fyrirtækið X allan þennan tíma. Kærandi greindi frá því að hann viti ekki hvar fjölskylda hans sé stödd í heimaríki og að hann hafi ekki verið í sambandi við þau. Hvað varðar spurningu um misræmi á milli viðtals hjá Útlendingastofnun og greinargerðar um hvort að kærandi hafi tilheyrt minnihluta eða meirihluta ættbálki í heimaríki vísaði kærandi til greinargerðar sinnar til kærunefndar. Með svörum sínum til kærunefndar lagði kærandi fram skjáskot af fjórum skilaboðum, á ensku, sem virðast hafa verið framsendar á sama tíma. Þá kemur hvorki fram símanúmer sendanda né ítarlegri upplýsingar um skilaboðin.
Með tölvubréfi, dags. 22. október 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda m.a. um störf og menntun hans, fjölskyldu hans og framlögð gögn. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 28. október 2024, greindi kærandi frá því að það misræmi sem mætti finna á nöfnum í starfsmannaskírteinum hans hjá fyrirtækinu X og hjá yfirvöldum mætti skýra með því að þau notuðu bæði sómölsku og ensku á skírteinin. Þá væri það val hvort að einstaklingur vildi að fjórða nafn sitt kæmi fram á skírteinum. Sómalska nafn hans væri […] og enska nafnið væri […]. Kærandi greindi frá fullu nafni eiginkonu sinnar og fjögurra barna. Eiginkona hans og börn hafi búið með honum þar til að árásir hafi beinst að honum og þau hafi flutt út á land í desember 2019, eftir að kæranda hafi borist hótunarskilaboð. Þau hafi flutt vegna óöryggis um stöðu kæranda þegar honum hafi borist hótanir frá Al-Shabaab. Kærandi hafi verið í sambandi við þau áður en hann hafi flúið heimaríki. Kærandi kvað starf sitt sem ráðgjafi fyrir þingið hafa falist í að skipuleggja litla íþróttaviðburði fyrir ungmenni og að reyna útvega að fótbolta og búninga fyrir ungmenni til að halda þeim frá ofbeldi. Kærandi kvaðst hafa hitt fólk í öðrum störfum sínum sem ynnu að því að skapa tækifæri fyrir ungmenni og kærandi hafi sagt þeim hvers ungmenni þörfnuðust. Kærandi hafi byrjað að starfa í þinginu í apríl 2018 þar til í mars 2023, hann hafi starfað tvo daga í viku í fimm ár. Kærandi lagði einnig fram afrit af tveimur smáskilaboðum, annað dags. 4. maí 2023, sem kærandi kveður sýna fram á greiðslu launa frá fyrirtækinu X. Kærandi kvaðst hafa tapað fjölda skjala í sprengingu á skrifstofu hans og því gæti hann ekki lagt fram gögn hvað varðar menntun sína.
Kærunefnd telur misræmis gæta í frásögn kæranda og framlögðum gögnum sem dregur úr trúverðugleika hans, einkum hvað varðar þær hótanir og áreiti sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir af hálfu meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab og tengsl þess við störf kæranda. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa starfað fyrir fyrirtækið X á árunum 2018 til 2023. Kærandi lagði fram ljósmyndir af tveimur starfsmannaskírteinum sem bera með sér að vera gefin út af fyrirtækinu X og hafa annars vegar runnið út 26. mars 2020 og 18. ágúst 2022. Nafn einstaklings þess sem skírteinin eru gefin út á er ekki ritað á sama hátt og það nafn sem kærandi hefur gefið upp hjá lögreglu og Útlendingastofnun í umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Þá er nafnið heldur ekki ritað í samræmi við þann rithátt sem kærandi gaf upp í svörum til kærunefndar. Framangreind skírteini hafi því takmarkað sönnunargildi um að kærandi hafi starfað hjá fyrirtækinu X á árunum 2018 til 2023. Þá lagði kærandi fram afrit af tveimur skilaboðum frá banka sem hann kveður sýna fram á launagreiðslur frá fyrirtækinu X. Í texta seinni skilaboða kemur fram nafn fyrirtækisins X. Af skilaboðum er hins vegar ekki hægt að sjá hver er móttakandi skilaboðanna eða hvort að um launagreiðslu sé að ræða. Hafa framangreind skilaboð því ekkert sönnunargildi um þá frásögn kæranda um að hann hafi starfað hjá fyrirtækinu X.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi annars vegar frá því að honum hafi borist símtal frá meðlimum Al-Shabaab þar sem honum hafi verið hótað lífláti þegar hann hafi starfað hjá fyrirtækinu X og hins vegar að öll samskipti hans við meðlimi Al-Shabaab hafi farið fram í símaskilaboðum. Kærandi greindi frá því að hafa fengið alls fjögur skilaboð frá meðlimum Al-Shabaab, þau fyrstu í nóvember 2019, önnur og þriðju hafi komið þegar hann hafi snúið aftur til vinnu eftir sprengingu á skrifstofu hans í janúar 2020, og síðustu skilaboðin í mars 2023. Við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun lagði kærandi skjáskot af fjórum skilaboðum á sómölsku máli sínu til stuðning. Með svörum sínum til kærunefndar lagði kærandi fram skjáskot af fjórum framsendum skilaboðum á ensku. Texti skilaboðanna ber með sér að vera hótanir af hálfu Al-Shabaab til viðtakanda. Af framlögðum afritum verður ekki séð hvaða daga skilaboð voru send og hvorki í hvaða símanúmer þau hafi verið send né úr hvaða símanúmeri þau hafi verið send. Af fyrri framlögðum afritum bera þrjú af fjórum skilaboðum með sér að hafa verið send á tveimur mínútum innan sama dags sem er ekki í samræmi við frásögn kæranda. Í síðar framlögðu afriti eru skilaboðin á ensku og bera með sér að hafa öll verið framsend á sama tíma. Hafa því framangreind skilaboð ekkert sönnunargildi hvað varðar frásögn kæranda af því að honum hafi borist hótanir.
Að mati kærunefndar gætir einnig misræmis í frásögn kæranda og framlögðum gögnum af því að meðlimir Al-Shabaab hafi komið fyrir sprengju á skrifstofu hans í janúar 2020 og hafi ráðist að heimili kæranda og skotið á útidyrahurð á heimili hans í febrúar 2023. Í viðtali hjá kærunefnd og svörum til kærunefndar greindi kærandi frá því að hafa ekki flúið heimaríki fyrr en í maí 2023 af því að hann hafi falið sig, starfað á mismunandi stöðum, þó öllum innan forsetabústaðarins, og búið á mismunandi stöðum í Mógadisjú frá því honum hafi borist fyrsta hótun frá meðlimum Al-Shabaab í nóvember 2019. Kærandi hafi hins vegar allan tímann starfað hjá fyrirtækinu X. Að mati kærunefndar verður að telja ólíklegt miðað við frásögn kæranda um að Al-Shabaab hafi fengið upplýsingar um hann frá opinberum starfsmönnum að meðlimir Al-Shabaab hefðu ekki getað fundið út hvar kærandi starfaði og bjó. Framangreind frásögn um að kærandi hafi ekki flúið heimaríki fyrr en í maí 2023 þar sem hann hafi búið á mismunandi stöðum og falið sig fyrir meðlimum Al-Shabaab er heldur ekki í samræmi við þá frásögn kæranda að árás hafi verið gerð á heimili hans í febrúar 2023. Frásögnin bendir þvert á móti til þess að meðlimir Al-Shabaab eigi að hafa fundið kæranda þremur mánuðum áður en hann hafi flúið landið.
Kærandi gaf ekki greinargóð svör við spurningum kærunefndar um hvað hafi nákvæmlega falist í störfum hans fyrir tilgreindar stofnanir yfirvalda annað en að hann hafi starfað fyrir hönd fyrirtækisins X og séð ríkisstarfsmönnum fyrir nettengingu og farsímakortum. Framburður kæranda ber því ekki með sér að hann hafi starfað fyrir yfirvöld á þeirra starfsstöðum í lengri tíma en sem tekur að veita framangreinda þjónustu. Í greinargerð kæranda er því haldið fram að sterk tengsl séu á milli fyrirtækisins X og sómalskra yfirvalda. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi hins vegar frá því að fyrirtækið X hafi veitt þjónustu til sómalskra yfirvalda en að fyrirtækið hafi ekki haft frekari tengsl við stjórnvöld. Við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram tvær myndir og tvö myndbönd sem kærandi kveður vera af skrifstofu hans eftir sprengingu í janúar 2020. Kærandi lagði einnig fram ljósmynd af sér á skrifstofu sinni. Af samanburði framangreindra ljósmyndanna verður ekki séð að um sömu skrifstofu sé að ræða en ekki er hægt að útiloka það. Á fyrrnefndum tveimur ljósmyndum og öðru myndbandi verður heldur ekki séð hvar skrifstofan er staðsett, hvaða fyrirtæki hún tilheyri og hvort að skemmdir séu afleiðingar af sprengingu í húsnæðinu. Þá verður ekki séð hvenær umræddar myndir voru teknar. Þá lagði kærandi fram myndband af því sem virðist vera húsnæði m.a. með afgreiðsluborðum þar sem gluggar liggja brotnir á gólfum ásamt öðrum hlutum húsnæðisins. Myndbandið ber með sér að geta verið af starfstöð fyrirtækisins X og að það hafi orðið mikil eyðilegging á húsnæðinu. Það verður hins vegar ekki séð hvar umrædd starfstöð hafi verið eða hvenær myndbandið hafi verið tekið. Þá lagði kærandi einnig fram ljósmyndir af sér með fótlegg í gifsi, í hjólastól og í röntgentæki, áverkar sem hann kveðst hafa fengið í sprengingu. Af ljósmyndum verður ekki ráðið hvenær þær hafa verið teknar og hvort þær tengist áverkum sem kærandi kveðst hafa fengið í sprengingu á skrifstofu sinni árið 2020. Hafa framangreindar ljósmyndir og myndbönd því takmarkað sönnunargildi. Þá lagði kærandi fram afrit af fréttum tengdum fyrirtækinu X, annars vegar um loftsprengjuárás keníska hersins á Al-Shabaab í Saakow þorpinu í Mið-Júba fylki þar sem innviðir fyrirtækisins X hafi eyðilagst og sprengingu á fjarskiptaturn fyrirtækisins X í Galmudug í Sómalíu í kjölfar árásar Al-Shabaab á stjórnarherinn. Framangreindar fréttir fjalla um eyðileggingu á innviðum fyrirtækisins X í öðrum borgum en heimaborg kæranda. Þá bera fréttir ekki með sér að fyrirtækið X hafi verið sérstakt skotmark í árásunum, heldur hafi verið um að ræða árásir á milli sómalska hersins, keníska hersins og Al-Shabaab á fyrrgreindum stöðum.
Þá lagði kærandi fram mynd af því sem hann kveður vera gat eftir byssuskot í útidyrahurð á heimili sínu eftir árás Al-Shabaab í febrúar 2023. Af myndinni er hvorki hægt að ráða hvenær eða hvar myndin var tekin né að yfirborðið á myndinni sé útidyrahurð og að gatið sé eftir byssuskot.
Kærandi lagði fram myndir af sér ásamt nafngreindum mönnum sem hann kveður vera forseta og forsætisráðherra Sómalíu. Af myndunum verður ekki ráðið að þær hafi verið birtar á samfélagsmiðlum líkt og kærandi greindi frá í viðtali sínu og kvað hafa verið eina af ástæðum þess að hann sætti hótunum af hálfu meðlima Al-Shabaab. Þá lagði kærandi ekki fram gögn sem styðja við þá staðhæfingu s.s. tengla á vefsvæði þar sem myndirnar áttu að hafa birst. Jafnframt skilaði svokölluð öfug myndaleit (e. Reverse image search) kærunefndar á veraldarvefnum engum niðurstöðum um að framangreindar tvær myndir hafi verið birtar á vefmiðlum. Verður því ekki lagt til grundvallar að þær hafi birst á vefnum og leitt til þess að Al-Shabaab hafi tengt kæranda á þann hátt við stjórnvöld.
Þá lagði kærandi fram ljósmyndir nokkurra starfsskírteina sem hann kveður útgefin af sómalska þinginu, fyrirtækinu X og öðrum opinberum stofnunum á árunum 2019-2023. Á öllum skírteinunum er mynd sem ætla má að sé af kæranda, en nafn einstaklings þess sem skírteinið er gefið út á er ritað í mörgum útgáfum og er í fæstum tilvikum það sama og er ekki einu sinni ritað á sama hátt á milli útgáfuára sama aðila. Í svörum til kærunefndar gefur kærandi þær skýringar að nafn hans hafi verið ritað á sómölsku eða ensku á skírteinin og gefur upp rithátt nafns síns á báðum tungumálum. Af framlögðum skírteinum má hins vegar sjá að ritháttur nafns á nokkrum skírteinanna er mismunandi, m.a. starfsmannaskírteina, sem samræmist ekki útskýringum kæranda um tvo mismunandi rithætti. Er sönnunargildi ljósmynda þessara skírteina því takmarkað. Einungis eitt af framlögðu skírteinum kveður á um að kærandi hafi sinnt starfi ráðgjafa í málefnum ungmenna og það skírteini var útgefið 1. mars 2023 eða um tveimur mánuðum áður en kærandi flúði frá heimaríki. Þá var kærandi ekki skýr í frásögn sinni í viðtali hjá Útlendingastofnun eða í svörum sínum til kærunefndar um það í hverju rágjafastarf hans fyrir þingið hafi falist eða hvort það hafi verið ráðgjöf við þingið sjálft eða ungmenni. Þá er með öllu óljóst hvenær kærandi hafi sinnt því starfi. Framangreint dregur úr trúverðugleika frásagnar kæranda um að hótanir frá Al-Shabaab hafi tengst starfi kæranda sem ráðgjafi varðandi málefni ungmenna og tómstundastarfs.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að tilheyra ættbálknum Darrod og undirættbálknum Majeerteen. Kærandi greindi frá því að ættbálkar sem væru neðar í ættbálkatré en Marjeerteen tilheyrðu minnihluta. Kærandi kvaðst aðspurður ekki tilheyra minnihluta ættbálki. Í greinargerð kæranda til kærunefndar er því borið við að kærandi tilheyri minnihlutaættbálki í heimaríki. Í ljósi misræmis á milli viðtals hjá Útlendingastofnun og greinargerðar kæranda óskaði kærunefnd eftir útskýringum á framangreindu misræmi. Af svörum til kærunefndar verður ráðið að talsmaður hafi ekki borið spurningar kærunefndar er vörðuðu ættbálk hans undir kæranda heldur var vísað til greinargerðar til nefndarinnar. Kærunefnd óskaði eftir skýringum talsmanns á þessu og innti eftir því hvort talsmaður hefði rætt þessi mál við umbjóðanda sinn. Talsmaður kæranda kvaðst hafa verið í sambandi við kæranda og að ekki sé um misræmi að ræða og vísar til svara kæranda hjá Útlendingastofnun. Verður því aðeins byggt á framburði kæranda hvað þetta varðar og ekki lagt til grundvallar að kærandi tilheyri minnihlutaættbálki í heimaríki eða að hann hafi sætt eða eigi á hættu að sæta mismunun eða öðru áreiti á þeim grundvelli í heimaríki sínu. Í greinargerð er jafnframt fullyrt að kærandi hafi lagt fram gögn til stuðnings menntun sinni í heimaríki, kærandi lagði engin slík gögn fram og er því einnig um rangfærslur hvað það varðar í greinargerð.
Með hliðsjón af framburði kæranda og gögnum málsins, þ.e. gögnum um störf kæranda, er ekki unnt að útiloka að kærandi hafi starfað sem almennur starfsmaður fyrir fyrirtækið X á einhverjum tímapunkti, hafi sinnt tímabundnum verkefnum á skrifstofum yfirvalda í heimaríki og að hann hafi verið ráðgjafi í málefnum ungmenna í sómalska þinginu frá mars 2023 þar til hann flúði frá heimaríki í maí sama ár. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé af. Líkt og að framan greinir lagði kærandi fram tvær fréttir sem hann kveður sýna fram á að fyrirtækið X hafi verið skotmark hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Framangreindar fréttir fjalla um eyðileggingu á innviðum fyrirtækisins X í öðrum borgum en heimaborg kæranda og bera ekki með sér að fyrirtækið X hafi verið sérstakt skotmark í þessum árásunum. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu fyrirtækisins X eru starfsmenn þess rúmlega 35.000. Þá bera upplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér ekki með sér að Al-Shabaab geri almenna starfsmenn fyrirtækisins X að skotmörkum sínum. Í ljósi alls framangreinds hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab umfram aðra í heimaríki vegna atvinnu hans eða af öðrum ástæðum eða að hann hafi mátt þola eða eigi á hættu ofsóknir af þeirra hálfu vegna framangreinds eða vegna þess að hann snúi til baka til heimaríkis. Þá lítur kærunefnd til þess að kærandi hefur greint frá því að tilheyra meirihlutaættbálk í heimaríki auk þess sem hann hafi veri búsettur á svæði þar sem sómölsk stjórnvöld fara með yfirráð og benda heimildir til þess að ástandið í Mógadisjú sé slíkt að stjórnvöld hafi almennt stjórn á svæðinu. Þá sé ekkert sem bendir til þess í frásögn kæranda að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda fyrir að fjármagna hryðjuverkastarfsemi vegna fjárkúgana af hálfu Al-Shabaab líkt og fram kemur í greinargerð kæranda til kærunefndar. Í þessu samhengi er til þess að líta að kærandi kvaðst hafa starfað hjá fyrirtækinu X við að veita þjónustu til yfirvalda og sem fulltrúi í málefnum ungmenna í sómalska þinginu þar til að hann hafi flúið land í maí 2023.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á slæmu almennu öryggisástandi í Sómalíu. Hætta steðji að almennum borgurum vegna handahófskenndra árása og hryðjuverkaárása í landinu. Kærandi telur engan vafa leika á trúverðugleika frásagnar sinnar í ljósi hlutlægra gagna um ástandið í Sómalíu. Kærandi eigi á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis og beri því að veita honum viðbótarvernd sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til rökstuðnings fyrir aðalkröfu og bendir á meta þurfi hvaða áhrif sprengingin, skotárásin og hótanirnar gætu haft m.t.t. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá tilheyri kærandi minnihlutaættbálki sem gefa þurfi vægi við mat um það hvort 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi við.
Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar frásögn kæranda um að hann sé í hættu í heimaríki vegna hættu á ofsóknum af hálfu meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar við úrlausn máls kæranda að kærandi hafi verið búsettur í Mógadisjú þegar hann hafi yfirgefið heimaríki sitt og hafi búið þar mestan hluta ævi sinnar. Verður því horft til aðstæðna í Mógadisjú við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í máli K.A.B. gegn Svíþjóð (mál nr. 886/11) frá 17. febrúar 2014 og R.H. gegn Svíþjóð (mál nr. 4601/14) frá 1. febrúar 2016 kemur fram að almennt öryggisástand í Mógadisjú hafi farið batnandi á undanförnum árum eftir að stjórnvöld höfðu náð yfirráðum í borginni. Þá var það afstaða dómsins að aðgengilegar landaupplýsingar bentu ekki til þess að aðstæður í borginni væru slíkar að íbúar í borginni væru almennt í hættu á að sæta meðferð sem færi gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Því myndi endursending einstaklinga til Sómalíu ekki brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda ekki til þess að aðstæður í Mógadisjú hafi breyst til hins verra eða séu slíkar að kærandi muni eiga á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Verður því ekki talið að ástæða sé til að ætla að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki af þeim sökum. Þá er það jafnframt mat kærunefndar, af virtum gögnum málsins og upplýsingum um aðstæður í Sómalíu, að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis snúi hann til baka til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Ljóst er að Sómalía glímir við ýmsa erfiðleika er tengjast almennu öryggistástandi í landinu sem og efnahag landsins og hafa stjórnvöld í landinu unnið að því með aðstoð alþjóðlegra aðila að bæta úr en enn sé langt í land. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það þó niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda þar nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða andlega heilsu. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi slasast á fæti og hefði verki í honum. Kærandi hafi fengið eiturefni í augun í sprengingu og hann fyndi til í augunum.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá lítur kærunefnd til þess að samkvæmt framlögðum gögnum naut M heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann vissi ekki hvar eiginkona sín og börn væru staðsett. Kærandi hafi gengið í háskóla og hefði bakkalár gráðu í viðskiptafræði. Kærandi hafi sinnt starfi í einkareknu fjarskiptafyrirtæki og hafi verið fulltrúi í sómalska þinginu þegar hann yfirgaf heimaríki. Kærandi hafi búið í einbýlishúsi í Mógadisjú sem hann hafi leigt. Kærandi greindi einnig frá því að tilheyra meirihluta ættbálki.
Af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 18. maí 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
6.4 Dvalarleyfi vegna mansals eða gruns þar um - 75. laga um útlendinga
Samkvæmt ákvæði 75. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals dvalarleyfi í allt að níu mánuði þótt skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna sé ekki fullnægt. Í athugasemdum við fyrrgreint ákvæði í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að stuðla að því að fórnarlamb mansals fái tækifæri til að ná bata og losna undan áhrifum þeirra sem stunda mansal. Veiting dvalarleyfisins sé óháð því hvort lögreglurannsókn fari fram en dvalarleyfinu sé m.a. ætlað að gefa hugsanlegu fórnarlambi svigrúm til þess að taka upplýsta ákvörðun um samstarf við yfirvöld við rannsókn málsins. Efni ákvæðisins ber með sér að því sé ætlað að veita þeim einstaklingum tímabundið dvalarleyfi sem nýlega hafa losnað undan mansali eða eru enn undir áhrifum þeirra sem stunda mansal.
Í umsókn kæranda um alþjóðlega vernd, dags. 18. mars 2023, kemur fram að kærandi hafi ferðast til Íslands frá Ítalíu með nafngreindum einstaklingi, Y, sem hafi tekið flugmiða, skilríki og vegabréf hans á flugvellinum og látið hann hafa farsíma. Kærandi kvaðst ekki vita hvort að Y hafi viljað að hann gerði eitthvað ólöglegt en að hann hafi hótað honum og kærandi hafi talað um mansal. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. ágúst 2023, greindi kærandi frá því að smyglari hafi aðstoðað hann við að koma til landsins en tekið allt af kæranda við komu til landsins. Kærandi hafi greitt smyglaranum 4000 dollara fyrir aðstoðina. Kærandi kvaðst ekki skulda Y neitt og ekki vera í neinu sambandi við hann. Í greinargerð kæranda til kærunefndar er vísað til viðtals hjá Útlendingastofnun og umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem kærandi hafi greint frá aðstæðum sem bæru einkenni mansals. Vísað er til ákvörðunar Útlendingastofnunar um að stofnunin hafi haft samband við mansalsteymi lögreglunnar sem hafi upplýst stofnunina um að engin rannsókn væri í gangi á því hvort að kærandi væri hugsanlegt fórnarlamb mansals. Kærandi vísar til athugasemda að baki 75. gr. laga um útlendinga þar sem fram komi að veiting dvalarleyfis á grundvelli ákvæðisins sé óháð því hvort að lögreglurannsókn hafi farið fram. Með tölvubréfi, dags. 11. október 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda, hvað framangreint varðar. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 15. október 2024, má sjá að talsmaður hafi ekki borið þá spurningu undir kæranda sjálfan og vísaði til greinargerðar sinnar til nefndarinnar.
Af framburði kæranda má ráða að hann hafi greitt Y til að aðstoða sig við að koma til Íslands og að kærandi hvorki skuldi Y né hafi verið í frekara samband við hann eftir komu til landsins. Af þeim upplýsingum sem kærandi hefur veitt um samskipti sín við Y verður ekki ráðið að tilgangur Y hafi verið að misnota kæranda í einhverjum þeim tilgangi sem greinir í ákvæði 227. gr a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eða að kærandi sé undir áhrifum Y að einhverju leyti. Samkvæmt gögnum málsins er heldur engin rannsókn í gangi á meintu mansali kæranda. Þá er sá umþóttunartími sem ákvæði 75. gr. laga um útlendinga er ætlað að gefa mögulegum fórnarlömbum mansals liðinn. Að mati kærunefndar, með vísan til framangreinds og annarra gagna málsins, er því ekki grundvöllur fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 75. gr. laga um útlendinga.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í andmælum kæranda kom fram að hann hefði ekki tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi kvað brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér og að hann myndi frekar deyja úr of háum blóðþrýstingi en að fara aftur til Sómalíu.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sindri M. Stephensen