07 nóvember 2024
/
Úrskurður nr. 1099/2024
Hinn 7. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1099/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23110083
Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 16. nóvember 2023 kærði einstaklingur sem kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. nóvember 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Svíþjóð og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 20. maí 2023. Kvaðst kærandi hafa farið frá Mógadisjú til Tyrklands í ágúst 2021. Í september 2022 hafi hann farið fótgangandi til Grikklands og þaðan strax til Svíþjóðar. Kærandi hafi verið á leið til Kanada þegar hann hafi komið til Íslands. Kærandi greindi frá því vera fæddur [...] og eiga foreldra, sjö systur og þrjá bræður í heimaríki en elsti bróðir hans væri látinn. Kærandi kvaðst vera að sækja um alþjóðlega vernd þar sem það sé ekkert öryggi í Sómalíu og ekkert líf. Í skýrslu kemur fram að kærandi tali ágæta ensku.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 18. október 2023 ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því að vera fæddur […]. Kærandi greindi frá því að vera fæddur í Mógadisjú og uppalinn í borginni [...] í [...] umdæmi þar sem hann hafi verið búsettur áður en hann hafi flúið heimaríki 21. ágúst 2021. Kærandi hafi verið búsettur í […] hverfinu í [...]. Kærandi hafi flúði heimaríki og farið til Tyrklands þar sem hann hafi dvalist í um eitt ár. Eftir það hafi kærandi dvalið í Grikklandi í um átta mánuði og þá fimm daga í Svíþjóð. Hann hafi ekki sótt um alþjóðlega vernd í framangreindum löndum. Kærandi kvaðst vera við góða líkamlega og andlega heilsu en þegar hann stundi hlaup og aðra þjálfun verði hann andstuttur og fái [...]. Kærandi greindi frá því að tilheyra minnihlutaættbálknum Gabooye og undirættbálknum Muse Dheriye. Kærandi hafi gengið í […] skólann þar sem hann hafi sætt mismunun af hálfu kennara og annarra nemenda vegna ættbálkaraðildar sinnar. Þegar kærandi hafi verið í sjöunda bekk hafi verið ráðist á kæranda og hann handleggsbrotnað. Síðar sama dag hafi föður kæranda verið tilkynnt að kærandi væri rekinn úr skólanum. Kærandi hafi reynt að leita sér læknishjálpar vegna handleggsbrotsins en læknar sem hafi þekkt fjölskylduna hafi neitað að aðstoða hann. Kærandi kvaðst ekki hafa getað farið til einkalækna. Kærandi kvað meðlimi ættbálks hans ekki eiga á hættu að vera drepnir í heimaríki heldur væri þeim mismunað. Í kjölfar þess að kærandi hafi verið rekinn úr skólanum hafi hann hafið nám í trúarskóla. Kennari hans í skólanum hafi starfað með hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab og einn föstudag, 5. júlí 2021, þegar kærandi hafi verið í bænastund í moskunni hafi kennarinn hans boðið honum til veislu á heimili sínu. Heima hjá kennaranum hafi þrír grímuklæddir meðlimir Al-Shabaab beðið kæranda og miðað á hann byssu. Þeir hafi skipað kæranda að bíða á heimili kennarans, sem hann hafi gert í þrjár klukkustundir, en svo bundið fyrir augu hans, keyrt með hann í lítið hús fyrir utan borgina [...] þar sem kærandi hafi verið pyntaður og haldið föngnum í einn mánuð. Síðar í viðtali greindi kærandi frá því að honum einum hafi verið haldið í húsi í 20 daga en þá hafi hann verið færður í annað hús. Þar hafi honum verið haldið föngnum í tíu daga ásamt fimm öðrum nafngreindum einstaklingum sem kærandi hafi ekki þekkt fyrir. Þrír grímuklæddir einstaklingar hafi reglulega komið inn til þeirra og frætt þá um málstað samtakanna. Kærandi hafi einnig verið pyntaður, köldu vatni skvett á hann, poki settur yfir höfuð hans og hann barinn með prikum. Meginástæða þess að kæranda hafi verið rænt og honum haldið föngnum hafi verið til að fá kæranda til að ganga til liðs við Al-Shabaab og verða hermaður þeirra. Kærandi hafi ekki verið bundinn og herbergið sem hann hafi dvalið í hafi ekki verið læst. Kvöld eitt, eftir um mánuð, hafi kæranda tekist að flýja. Á miðnætti hafi allir verið sofandi og fáir verðir á vakt og hafi kærandi hlaupið út úr húsinu sem honum hafi verið haldið í. Hann hafi flúið inn í frumskóginn og það hafi tekið hann um klukkustund að ganga inn í borgina [...]. Kærandi hafi dvalið í um fimm daga í [...] og faðir hans hafi bannað honum að fara út úr húsi. Á þessum fimm dögum hafi meðlimir Al-Shabaab drepið 17 ára bróður kæranda í misgripum fyrir kæranda. Kærandi hafi verið að færa bróður sínum mat á rakarastofu í eigu fjölskyldunnar nærri heimili kæranda þegar kærandi hafi séð þrjá menn hlaupa í burtu. Hann hafi síðan komið að bróður sínum látnum á rakarastofunni. Faðir kæranda hafi kallað til lögreglu þegar hann hafi komið á staðinn. Nokkrum dögum síðar hafi fjölskyldan jarðað bróður kæranda og kærandi síðan farið með föður sínum til Mógadisjú þar sem þeir hafi dvalið hjá vini föður hans í 10 daga áður en kærandi hafi flúið heimaríki. Kærandi kvað sómölsk yfirvöld vera með yfirráð í heimaborg hans og að það væri óalgengt að meðlimir Al-Shabaab rændu fólki á svæðum þar sem stjórnvöld færu með stjórn en að það gæti komið fyrir. Kærandi greindi frá því að eiga nákomna ættingja í [...] og að foreldrar hans, sjö systur og tveir bræður væru á lífi. Kærandi hafi ekki verið í sambandi við fjölskyldu sína frá því að hann hafi flúið frá heimaríki. Þegar kærandi hafi verið í Tyrklandi hafi hann fengið upplýsingar um að rakarastofan og heimili hans væru tóm og hann hafi ekki vitneskju um hvar fjölskylda hans sé.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 16. nóvember 2023. Með tölvubréfi, dags. 27. nóvember 2023, barst kærunefnd tilkynning um að nýr lögmaður hafi tekið við málinu. Greinargerð barst kærunefnd 1. desember 2023. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kæranda með tölvubréfi 24. október 2024 og svör bárust 29. október s.á. Viðbótargögn bárust kærunefnd 31. október 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kæranda til kærunefndar er vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar hvað málsatvik varðar. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi sagt fæðingardag sinn vera […]. Kærandi hafi fæðst í Mógadisjú og væri uppalinn í borginni [...] frá tveggja ára aldri. Kærandi hafi búið í […] hverfinu í [...] þar til hann hafi flúið heimaríki. Kærandi hafi farið til Tyrklands og dvalið þar í ár. Þá hafi hann farið til Grikklands og dvalið þar í um átta mánuði og í Svíþjóð í fimm daga áður en hann hafi komið til Íslands. Kærandi tilheyri minnihlutaættbálknum Gabooye, undirættbálknum Muse Dheriye, og hafi sætt mismunun og fordómum vegna þess. Eftir sjö ára skólagöngu hafi kærandi verið barinn með stól og hann handleggsbrotnað. Eftir þetta atvik hafi kæranda verið bannað að mæta aftur í skólann. Kærandi hafi ekki getað fengið læknisaðstoð eftir atvikið vegna ættbálkaaðildar sinnar. Kærandi hafi flúið heimaríki vegna þess að meðlimir hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab hafi reynt að fá kæranda til að ganga til liðs við samtökin. Kennari kæranda hafi boðið honum til veislu 5. júlí 2021 þar sem þrír meðlimir hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab hafi beðið eftir kæranda, beint byssu að höfði hans, bundið fyrir augu hans og farið með hann í þjálfunarbúðir fyrir samtökin. Þeir hafi haldið kæranda í einn mánuð, pyntað hann og reynt að heilaþvo hann. Kæranda hafi verið haldið í tuttugu daga á einum stað og þá hafi hann verið fluttur á annan stað þar sem hafi einnig verið fimm aðrir einstaklingar. Kæranda hafi tekist að flýja úr búðunum um miðja nótt þegar verðir hafi ekki verið til staðar. Hann hafi flúið út í skóg og séð ljósin í borginni og fylgt þeim heim. Þá hafi eldri bróðir kæranda verið myrtur á rakarastofu í eigu fjölskyldunnar. Kærandi hafi séð þrjá menn hlaupa í burtu og séð bróður sinn liggja í blóði sínu á rakarastofunni. Kærandi hafi ekki heyrt í fjölskyldu sinni eftir að hann yfirgaf heimaríki en hafi heyrt í nágranna sem hafi sagt að heimili hans stæði autt. Líkamleg og andlega heilsa kæranda sé almennt góð en hann fái þyngsli fyrir lungun þegar hann stundi hlaup.
Í greinargerð kæranda til kærunefndar er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Sómalíu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Trúverðugleikamatið sé háð verulegum ógildingarannmörkum í ljósi rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá sé innbyrðis samræmi í framburði hans eða í hið minnsta eigi þau atriði sem í fyrstu virðist vera í ósamræmi sér trúverðugar skýringar. Kærandi vísar einkum til mats á trúverðugleika hvað varðar fæðingardag hans, þvingaðri aðild að hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab, flótta úr haldi samtakanna og ættbálkatengsla kæranda. Kærandi vísar til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings. Kærandi vísar til þess að lítið hafi verið fjallað um atburðarrás er varði mismunun og áreiti vegna ættbálkaraðildar kæranda. Kærandi hafi lýst reynslu sinni í heimalandi og einstaklingsbundnum þáttum sem falli að kjarna 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga sem ekki hafi verið til úrlausnar undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og eins hafi ekki verið fjallað um aðild kæranda að minnihluta ættbálk undir 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun handvalið atvik úr frásögn kæranda til þess að draga úr trúverðugleika hans og virt önnur mikilvæg atriði sem eigi sér stoð í hlutlægum gögnum að vettugi. Þá gagnrýnir kærandi þær sönnunarkröfur sem lagðar hafi verið hann af hálfu Útlendingastofnunar. Skýr fordæmi séu fyrir því að einstaklingar hafi ekki lagt fram gögn um ofsóknir af hálfu Al-Shabaab en hafi þrátt fyrir það fengið alþjóðlega vernd.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann sé flóttamaður skv. skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a til c- liðum 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðildar að þjóðfélagshóp, stjórnmálaskoðana, trúarbragða og þjóðernis. Kærandi hafi verið þvingaður til aðildar að hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab, sé þolandi ofbeldisglæpa samtakanna og aðili minnihlutaættbálks sem ekki njóti verndar í Sómalíu. Kærandi hafi komið sér undan þvingaðri aðild að Al-Shabaab sem geti leitt til dauðarefsingar. Þá hafi kærandi orðið fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð af hálfu samtakanna. Nýliðaskráningar samtakanna beinist aðallega að drengjum á táningsaldri líkt og kæranda og flestir séu ráðnir í gegnum skóla sem séu undir stjórn eða yfirráðum samtakanna. Kærandi hafi einnig orðið fyrir mismunun og fordómum vegna ættbálkaraðildar sinnar í Sómalíu. Þá hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana vegna flótta undan þvinguðu starfi fyrir Al-Shabaab og mögulegar afleiðingar þess og á grundvelli þjóðernis vegna aðildar sinnar að minnihluta ættbálki. Alvarleikaþröskuldi 38. gr. laga um útlendinga sé fullnægt þar sem þvinguð vinna og mögulegar refsingar sem kærandi eigi yfir höfði sér séu gróf mannréttindabrot. Þá liggi fyrir að kærandi geti ekki hlotið vernd frá yfirvöldum í Sómalíu þar sem þau séu sjálf valdur af ofsóknunum. Ljóst sé að hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab teljist til samtaka sem stjórni ríkinu eða verulegum hluta landssvæðis þess og beiti ofsóknum í skjóli refsileysis í landinu. Þá séu stjórnvöld veikburða í samanburði við ofsóknaraðila kæranda.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Meta verði stöðu hans með hliðsjón af viðeigandi upplýsingum um Sómalíu, en ekki einskorða úrlausn á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga við trúverðugleikamat í máli kæranda. Kærandi hafi lýst reynslu sinni í heimalandi og einstaklingsbundnum þáttum sem falli að kjarna 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þ.e. þvingaðrar aðildar að Al-Shabaab, ómannúðleg og vanvirðandi meðferð af hálfu meðlima samtakanna og ótta við að vera tekin af lífi fyrir að koma sér hjá þvingaðri aðild að samtökunum. Hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab hafi áhrif á nærliggjandi svæðum þó að sómölsk stjórnvöld fari með yfirráð í heimaborg kæranda, [...]. Meta þurfi málið á grundvelli jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga í ljósi framkvæmdar um að veita umsækjendum frá mið- og suður Sómalíu viðbótarvernd, uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings.
Með hliðsjón af málsatvikum í máli kæranda og landaupplýsingum telur kærandi að krafan um innri flutning sé hvorki raunhæf né sanngjörn fyrir hann.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til athugasemda við ákvæðið þar sem fram komi að með almennum aðstæðum sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, viðvarandi mannréttindabrot eða það þegar yfirvöld veita ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldi eða glæpum. Allt framangreint eigi við í máli kæranda. Kærandi sé aðili að minnihlutaættbálki í heimaríki. Þrátt fyrir að eiga stóra fjölskyldu í heimaríki telur kærandi það ekki jafngilda félagslegu stuðningsneti. Þá séu möguleikar kæranda á vernd stjórnvalda takmarkaðir.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknareglu í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Trúverðugleikamat sé háð verulegum ógildingarannmörkum einkum hvað varði mat á trúverðugleika upplýsinga kæranda um fæðingardag sinn, þvingaðri aðild að hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab, flótta úr haldi samtakanna og ættbálkatengsl kæranda. Kærandi vísar til þess að lítið hafi verið fjallað um atburðarrás er varði mismunun og áreiti vegna ættbálkaaðildar kæranda, einstaklingsbundna þætti undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og aðild kæranda að minnihlutaættbálki undir 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun handvalið atvik úr frásögn kæranda til þess að draga úr trúverðugleika hans og virt önnur mikilvæg atriði sem eigi sér stoð í hlutlægum gögnum að vettugi. Þá gagnrýnir kærandi þær sönnunarkröfur sem lagðar hafi verið á hann af hálfu Útlendingastofnunar. Þá þurfi að meta málið á grundvelli jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga í ljósi framkvæmdar um að veita umsækjendum frá mið- og suður Sómalíu viðbótarvernd, uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Hvað varðar vísan kæranda til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar með vísan í úrskurði kærunefndar í málum einstaklinga frá mið- og suður Sómalíu ítrekar kærunefnd að við mat á því hvort einstaklingur eigi rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi fer ávallt fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum og mat á trúverðugleika frásagnar. Aðstæður í tilvísuðum úrskurðum eru ekki að öllu leyti sambærilegar aðstæðum í máli kæranda og hafa því ekki fordæmisgildi. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun að öðru leyti sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á honum deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari þó að öðru leyti sé auðkenni hans óþekkt.
Mat á aldri, sbr. 113. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 26. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ef grunur vaknar um að umsækjandi sem segist vera fylgdarlaust barn sé lögráða, og að ekki er hægt að staðfesta það á óyggjandi hátt, skuli gerð, eins fljótt og kostur er, aldursgreining samkvæmt 113. gr. laganna. Í 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ef grunur leiki á að umsækjandi um alþjóðlega vernd eða umsækjandi um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar villi á sér heimildir við meðferð máls eða segi rangt til um aldur við meðferð máls geti viðkomandi stjórnvald lagt fyrir útlending að hann gangist undir líkamsrannsókn til þess að ákvarða aldur hans. Niðurstaða úr slíkri líkamsrannsókn skuli metin í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn umsækjanda í hag. Í 1. mgr. 40. gr. reglugerðar um útlendinga, sbr. 3. mgr. 113. gr. laga um útlendinga, kemur jafnframt fram að við ákvörðun á aldri skuli fara fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar af ævi hans en auk þess megi beita líkamsrannsókn til greiningar á aldri. Leiki grunur á að umsækjandi segi rangt til um aldur skuli framkvæma líkamsrannsókn til greiningar.
Samkvæmt framansögðu hefur löggjafinn ákveðið að stjórnvöld á sviði útlendingamála skuli beita tilteknum rannsóknaraðferðum þegar upplýsa þarf um aldur umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þá hefur löggjafinn jafnframt ákveðið að mat á aldri skuli vera heildstætt og vera byggt, eftir atvikum, á fleiri gögnum en líkamsrannsókn.
Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að vera fæddur […] og […] en lagði engin gögn fram sem staðfestu auðkenni hans. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun var kæranda leiðbeint um að leggja fram gögn sem staðfestu fæðingardag hans. Kvaðst kærandi ekki getað útvegað slík gögn. Hinn 21. júní 2023 mætti kærandi ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum til Útlendingastofnunar og veitti samþykki fyrir aldursgreiningu. Kærandi undirgekkst aldursgreiningu 14. júlí 2023, sem fólst í stafrænni röntgenbreiðmynd og sérmynd af jöxlum og framtönnum. Þá var tekin röntgenmynd af hönd og úlnlið kæranda. Í niðurstöðum aldursgreiningar, dags. 25. júlí 2023, kemur fram að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá kemur fram að þroskaferli allra endajaxla kæranda sé lokið og allar tennur séu til staðar og í bitsnertingu. Samkvæmt aldursgreiningu af beinvexti handar og úlnliðs sé kærandi 19 ára eða eldri. Langtíma vannæring geti seinkað beinþroska og hefur þá þau áhrif að fullum beinþroska sé náð seinna á ævinni og þeir einstaklingar þá greindir yngri en þeir eru í raun. Hjá kæranda hafi fullum samruna beinenda verið náð. Hinn 4. ágúst 2023 hafi talsmanni kæranda verið sendar niðurstöður úr aldursgreiningu. Andmæli kæranda við aldursgreiningu bárust Útlendingastofnun 10. ágúst 2023. Hinn 16. ágúst 2023 hafi kynning á niðurstöðum á aldursgreiningu verið sendar til kæranda þar sem fram hafi komið að með hliðsjón af niðurstöðum aldursgreiningar, gögnum málsins og þess að kærandi hafi ekki getað lagt fram skilríki sem sanni á honum deili eða aldri hans var það mat Útlendingastofnunar að farið yrði með mál hans sem mál fullorðins einstaklings.
Líkt og fram kemur í niðurstöðunum eru umræddir tannlæknar sérmenntaðir í aldursgreiningum og hafa þá sérfræðikunnáttu sem þarf til að greina úr röntgenmyndum af tönnum og beinum. Þá vísar kærunefnd til framangreindrar niðurstöðu aldursgreiningar þar sem fram kemur að fullum beinþroska hafi verið náð. Vannæring geti haft áhrif á aldursgreiningu en leiði þá frekar til þess að viðkomandi sé metinn yngri en hann raunverulega er. Auk þess verður ekki annað ráðið en að niðurstöður sérfræðilegs mats á þroskastigi tanna, handa og úlnliðs séu byggðar á ályktunum fagmanna af læknisfræðilegum gögnum. Líkt og fram kemur í aldursgreiningarskýrslu kæranda er nokkrum rannsóknaraðferðum beitt til að aldursgreina umsækjendur og eru þau viðmið sem lögð eru til grundvallar talin gefa raunsanna mynd af aldri barna og unglinga. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn umræddum fullyrðingum sínum til stuðnings. Samkvæmt niðurstöðu aldursgreiningarinnar hníga öll rök að því að kærandi sé eldri en 18 ára.
Þegar litið er með heildstæðum hætti til gagna málsins, einkum aldursgreiningar, telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé eldri en 18 ára. Þá verður að mati kærunefndar, ekki talið að vafi leiki þar á í skilningi 2. málsl. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practicies – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
- 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
- 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
- Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
- Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
- Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, . september 2022);
- Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. . september 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
- Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
- Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- Somalia: Rekruttering til al-Shabaab (Landinfo, 17. október 2022);
- Somalia: The Security situation in Mogadishu and al-shabaab’s influence in the city, (Landinfo, 8. september 2022);
- Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 23. október 2024);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í júní 2019);
- Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, 10. september 2021) og
- World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2023 er Sómalía eitt hættulegasta land í heimi fyrir börn. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 öðlast barn sómalskt ríkisfang við fæðingu ef faðir barnsins er sómalskur ríkisborgari. Börn sómalskra mæðra geti öðlast sómalskt ríkisfang eftir tvö ár. Lágt hlutfall fæðinga sé skráð í landinu. Samkvæmt skýrslunni mæla sómölsk lög fyrir um endurgjaldslausa grunnmenntun barna. Þrátt fyrir það sé menntun ekki endurgjaldslaus. Jafnframt séu börn ekki skyldug til að ganga í skóla og á mörgum svæðum innan Sómalíu hafi börn ekki aðgang að skóla. Nærri tveir þriðju hlutar barna á skólaaldri gangi ekki í skóla, m.a. af öryggisástæðum, vegna fátæktar og skorts á skólum. Þá þurfi börn oft að þola barnaþrælkun vegna fátæktar fjölskyldunnar, auk þess sem stúlkubörn séu þvinguð í hjónaband samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2023. Barnaníð og kynferðisbrot gegn börnum, þ.m.t. nauðgun, sé alvarlegt vandamál. Engin lög séu í Sómalíu sem leggi bann við eða vinni gegn ofbeldi gagnvart börnum, þ.m.t. barnaníði. Ennfremur hafi sómölsk stjórnvöld ekki tekið nein skref til að berjast gegn misnotkun barna. Börn séu meðal helstu fórnarlamba samfélagslegs ofbeldis (e. societal violence) í Sómalíu. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2022 eru börn á innri flótta í Sómalíu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Börn og konur sem dvelji í flóttamannabúðum í Sómalíu eigi sérstaklega á hættu nauðganir af hálfu vopnaðra manna, þ. á m. hermanna.
Samkvæmt skýrslu aðalframkvæmdastjóra sem lögð var fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, dags. 15. júní 2023, bitna þurrkar og átök í landinu verst á konum og börnum sem séu rúmlega 80% þeirra sem séu á innri flótta. Þá sé talið að um 1,7 milljón barna á skólaaldri séu á vergangi og að einungis 20% þeirra hafi aðgang að grunnmenntun. Frá 8. febrúar 2023 til 31. maí 2023 hafi 482 brot gegn 376 börnum verið tilkynnt til sérstaks starfshóps um eftirlit með alvarlegum brotum gegn börnum. Tilkynnt hafi verið um tólf árásir á skóla og tíu árásir á sjúkrahús. Þá hafi verið tilkynnt um 139 börn sem hafi verið þvinguð til liðs við ólöglega vopnaða hópa, 145 börn sem hafi verið rænt, 43 börn sem hafi verið myrt, 79 börn sem hafi verið limlest og 50 stúlkur sem beittar hafi verið kynferðisofbeldi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá ágúst 2023 geta börn í Sómalíu sætt athöfnum sem eru svo alvarlegar í eðli sínu að þær jafngilda ofsóknum, t.a.m. kynferðisofbeldi, mansali og barnaþrælkun. Þegar athafnir séu hins vegar eingöngu mismunun í eðli sínu skuli einstaklingsbundið mat á því hvort slíkt geti talist ofsóknir taka mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafnanna eða því hvort þær stafi af samsafni athafna. Einstaklingsbundið mat skuli m.a. taka mið af búsetusvæði barnsins innan Sómalíu, fjölskylduhögum þess og þeim stuðningi sem barninu standi til boða frá fjölskyldu og ættbálki. Svipaða umfjöllun er að finna í afstöðu Flóttamannastofnunar til fólks á flótta frá Sómalíu frá september 2022.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að Madhibaan og Muuse Diriye hafi verið nefndir Midgan en því hafi síðan verið skipt út fyrir Gabooye. Í dag sé Gabooye notað sem samheiti yfir hópana tvo, Madhibaan og Muuse Diriye. Fram kemur að þjóðfélagshópurinn sé fjölmennasti minnihlutahópur atvinnulífsins í norðvestur hluta Sómalíu. Meðlimir þjóðfélagshópsins séu jafnframt búsettir í Eþíópíu, Puntlandi, Sómalílandi og suðurhluta Sómalíu. Þjóðfélagshópurinn teljist til viðkvæmra hópa í landinu og flestir meðlimir hans séu verkafólk, t.d. skósmiðir, sútarar og hárskerar. Meðlimir þjóðfélagshópsins njóti takmarkaðrar verndar um alla Sómalíu og sæti áreitni og kúgun í skjóli refsileysis, einkum í Sómalílandi og Suður-Sómalíu. Þá skorti meðlimi Gabooye aðgang að formlegri menntun, efnahagslegum auðlindum og séu að mestu útilokaðir frá stjórnmálum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2022 er hjónaband á milli meðlima minnihlutahópa, m.a. Madhibaan, og meðlima meirihlutaættbálka forboðinn. Hjónabönd milli meirihlutaættbálka og minnihlutahópa í Mógadisjú og Kismayo valdi ekki eins miklum erfiðleikum eins og annars staðar í Sómalíu. Opinberar stofnanir sem sé stjórnað af meirihlutaættbálkum veiti meðlimum minnihlutahópanna ekki vernd gegn óréttlæti eða brotum sem þeir hafi mátt þola.
Í skýrslu Landinfo frá október 2022 er fjallað um nýliðunaraðferðir Al-Shabaab samtakanna. Fram kemur í skýrslunni að Al-Shabaab samtökin noti ýmsar aðferðir til að ráða hermenn og stuðningsmenn. Séu aðferðir við ráðningar mismunandi eftir tíma og stað og endurspegli hernaðarþarfir hópsins sem og hver styrkur samtakanna sé gegn hersveitum ættbálka og öðrum sem séu tryggir yfirvöldum. Landinfo greinir frá því í skýrslunni að heimildir gefi til kynna að samtökin reyni aðallega að fá unglinga og unga karlmenn til liðs við sig á svæðum þar sem samtökin hafi ákveðna stjórn á eða séu virk. Framangreind skýrsla og skýrsla EUAA frá 2023, benda til þess að markhópur Al-Shabaab séu aðallega drengir og ungir karlmenn á aldrinum 12-24 ára. Al-Shabaab miði enn að nýliðun drengja og unglinga í gegnum menntakerfið á svæðum sem þeir stjórni eða hafi veruleg áhrif á. Al-Shabaab krefjist þess að ættir greiði fyrir íslamskar stofnanir á vegum Al-Shabaab og útvegi ákveðinn fjölda nemanda á hverju ári. Fjöldi nemanda sé ekki fastur heldur miðaður við þörf Al-Shabaab hverju sinni. Dæmigerð aðferð við slíka ráðningu sé að Al-Shabaab hafi samband við öldunga í ættbálkum á staðnum og fram fari samningaviðræður um hversu marga drengi ættin muni senda til Al-Shabaab. Heimildarmenn hafi greint frá því að þeir reyni að dreifa byrgðum á milli hinna ýmsu undirætta og fjölskyldna. Þá geti áhrifamiklar ættir varið sig fyrir slíkum ráðningu, t.d. með því að greiða bætur til Al-Shabaab í formi reiðufjár eða vopna. Þá hafi efnaðri fjölskyldur borgað fátækari fjölskyldum fyrir að senda börnin sín í stað þeirra. Heimildir bendi þó til þess að slíkar framkvæmdir við ráðningar eigi sér síður stað á kjarnasvæðum Al-Shabaab, líkt og í mið-Juba. Ungt fólk sem alist upp þar sem Al-Shabaab hafi óumdeilanlega yfirráð sé að miklu leyti berskjaldað fyrir hugmyndafræði Al-Shabaab þar sem samtökin séu líkt og ríkisvald sem hafi rétt til að ráða hermenn. Íbúar á slíkum kjarnasvæðum hafi því síður möguleika á að forðast eða þagga niður ákvörðun samtakanna um ráðningu. Þá hafi þeim sem neiti beiðni samtakanna um að ráða yngri fjölskyldumeðlimi til samtakanna verið hótað og þeir stimplaðir sem vantrúarmenn sem hafni íslamstrú og lögum. Sumir hafi verið drepnir sem viðvörun fyrir aðra í samfélaginu.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2022, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu þvingaða aðild og ofsóknir af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab í heimaríki. Þá byggir kærandi jafnframt á því að hann tilheyri minnihlutaættbálki í heimaríki og eigi á hættu mismunun og ofsóknir á þeim grundvelli.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið fæddur í Mógadisjú og uppalinn og búsettur í borginni [...] í [...] þar til hann hafi flúið frá heimaríki. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í desember 2021, frá janúar 2023 og júlí 2024, fara ATMIS eða sómölsk yfirvöld með yfirráð í borginni.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 18. október 2023, greindi kærandi frá því að vera fæddur [...]. Eftir að kærandi hafi verið rekinn úr skóla í sjöunda bekk hafi hann hafið nám í trúarlegum skóla. Kennari hans í þeim skóla hafi haft tengsl við hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab. Heima hjá kennaranum hafi kæranda verið rænt af meðlimum Al-Shabaab sem hafi haldið honum föngnum á tveimur stöðum, pyntað hann og reynt að heilaþvo hann í mánuð áður en honum hafi tekist að flýja. Eftir að kærandi hafi flúið frá Al-Shabaab hafi þrír menn drepið bróður kæranda á rakarastofu í eigu fjölskyldu kæranda í misgripum fyrir kæranda.
Með tölvubréfi, dags. 24. október 2024, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri upplýsingum um frásögn kæranda, einkum hvað varðar nám kæranda í trúarskólanum, aðstæður í kringum brottnám, frelsissviptingu og flótta kæranda frá Al-Shabaab og um morðið á bróður kæranda. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 29. október 2024, greindi kærandi m.a. frá því að hann hafa hætt í […] skólanum þegar hann hafi verið 12 ára, árið 2018 og byrjað í trúarlega skólanum […] í [...] borg árið 2020 og verið þar í um eitt ár. Kærandi kvaðst ekki vita hvort að allir kennararnir í trúarskólanum hafi verið meðlimir Al-Shabaab þ.e. hvort að skólinn væri rekin af samtökunum. Kærandi greindi frá því að kennari hans í trúarskólanum hafi búið í […] í [...]. Kennarinn hafi ekki boðið fleiri einstaklingum eða nemendum úr skólanum í veisluna heim til kennarans. Kærandi hafi vitað að það hafi verið meðlimir Al-Shabaab sem hafi beðið hans heima hjá kennaranum af því að þeir hafi sagst vera meðlimir samtakanna. Kærandi kvaðst telja að meðlimir Al-Shabaab hafi rænt honum einum því að kærandi hafi sagt í skólanum að hann vildi verða ráðherra í framtíðinni en kennarinn hans hafi sagt við hann að ríkisstjórnin væri ekki góð og að þeir væru ekki múslimar. Því hafi meðlimir Al-Shabaab þurft að heilaþvo hann og notfæra sér kæranda. Kærandi greindi frá því að það hafi verið um fimmtán mínútna akstur á milli staðanna tveggja þar sem hann hafi verið í haldi. Það hafi verið þrír einstaklingar sem hafi rænt kæranda, tveir hafi pyntað kæranda og einn hafi lesið fyrir hann úr bókum. Kærandi hafi aldrei séð andlit þessara einstaklinga, þeir hafi allir verið með grímur og hann vissi ekki hvort það hafi alltaf verið sömu einstaklingarnir sem hafi rænt honum, pyntað og reynt að heilaþvo hann. Kærandi kvaðst ekki vita af hverju hinir einstaklingarnir sem hafi verið í haldi hafi ekki flúið með honum. Kærandi kvaðst hafa komið inn í […] hverfið í borginni [...] þegar hann hafi flúið. Kærandi greindi frá því að hann vissi að það hafi verið meðlimir Al-Shabaab sem hafi drepið bróður hans því að þeir hafi hringt í fjölskyldu kæranda eftir að hann hafi flúið og hótað að drepa kæranda. Meðlimir Al-Shabaab hafi fengið upplýsingar um heimilisfang hans hjá kennaranum og þannig vitað hver kærandi væri. Kærandi kvaðst ekki vita hvort það hafi verið sömu einstaklingar sem rændu honum og drápu bróður hans því að ræningjar hafi verið með grímur og hann hafi ekki séð andlit morðingja bróður síns. Kærandi greindi frá því að bróðir hans hafi verið jarðaður daginn eftir að hann hafi verið drepinn og að kærandi hafi ekki verið viðstaddur jarðarförina. Kærandi greindi frá því að flestir spítalar séu ríkisreknir í heimaborg hans og að hann hefði ekki getað fengið læknisþjónustu eftir handleggsbrotið þrátt fyrir að geta greitt fyrir hana, en gaf ekki frekari skýringar á því.
Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun og kærunefnd og í umsókn hans um alþjóðlega vernd gætir misræmis í frásögn kæranda um aldur hans, hvaða mánaðardag hann sé fæddur og hvaða ár og líkt og að framan er rakið hefur mat á aldri kæranda leitt í ljós að hann sé eldri en hann hefur gefið upp. Er það ósamræmi til þess fallið að draga úr trúverðugleika kæranda. Þá er fjölmargt í heildarfrásögn kæranda draga úr trúverðugleika hennar, einkum hvað varðar áreiti, ofbeldi og frelsissviptingu kæranda af hálfu meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab til að fá kæranda til að ganga til liðs við samtökin. Þá voru svör kæranda við spurningum nefndarinnar stutt og ónákvæm. Kærandi hefur greint frá því að meðlimir hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab hafi rænt honum einum, pyntað hann og reynt að heilaþvo hann til að fá hann til að ganga til liðs við samtökin vegna þess að kærandi hafi sagt frá því í trúarskólanum að hann vildi verða ráðherra. Í ljósi framangreindra landaupplýsinga um nýliðunaraðferðir hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab telur kærunefnd það ótrúverðugt að þrír eða fleiri meðlimir samtakanna hafi gert kæranda að sérstöku skotmarki, rænt kæranda einum og haldið í 30 daga auk þess að drepa bróður hans af framangreindri ástæðu einni. Þá er það ekki í samræmi við heimildir að Al-Shabaab hafi gert slíkt í borginni [...], borg sem er að fullu undir stjórn sómalskra stjórnvalda og hefur verið síðustu ár. Ennfremur er frásögn kæranda af flótta sínum frá samtökunum ekki í samræmi við þá áherslu hans á að Al-Shabaab hafi talið kæranda sérstakan og mikilvægt að leiða hann á réttan veg innan samtakanna.
Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats er það niðurstaða kærunefndar að frásögn kæranda af því að honum hafi verið rænt og haldið föngnum af meðlimum Al-Shabaab í þeim tilgangi að neyða hann til að ganga til liðs við samtökin sé að öllu leyti ótrúverðug. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að útiloka að bróðir kæranda sé látinn en í ljósi framangreinds trúverðugleikamats og heimilda um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að andlát hans tengist ekki því sem reifað er í framangreindri frásögn kæranda. Þá verður af framangreindum heimildum ekki talið að kærandi eigi á hættu að vera þvingaður til að ganga til liðs við hryðjuverkahópinn Al-Shabaab eða sæta öðru áreiti af þeirra hálfu í heimaborg kæranda, [...], þar sem hann greindi frá því að hafa búið með fjölskyldu sinni enda fara samtökin ekki með yfirráð á svæðinu.
Kærandi hefur einnig greint frá því að tilheyra minnihlutaættbálkinum Gaboyee og undirættbálknum Muse Dheriye. Frásögn kæranda um mismunun og áreiti meðlima Gaboyee minnihlutaættbálksins í Sómalíu fær stoð í heimildum og er ekki ástæða til að draga þennan þátt frásagnar kæranda í efa. Kærandi greindi frá því að hafa sætt áreiti vegna aðildar sinnar að ættbálkinum. Verður sú meðferð sem kærandi kveðst hafa sætt í heimaríki þó ekki talin ná því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður meðlima Gaboyee ættbálksins er það mat kærunefndar að aðstæður hans séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir vegna aðildar sinnar að minnihlutaættbálkinum Gaboyee í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi telur verða að meta stöðu hans með hliðsjón af viðeigandi upplýsingum um Sómalíu, en ekki einskorða úrlausn á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga við trúverðugleikamat í máli kæranda. Kærandi hafi lýst reynslu sinni í heimalandi og einstaklingsbundnum þáttum sem falli að kjarna 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þ.e. þvinguð aðild að Al-Shabaab, ómannúðleg og vanvirðandi meðferð af hálfu meðlima samtakanna og ótta við að vera tekin af lífi fyrir að koma sér undan þvingaðri aðild að samtökunum. Hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab hafi áhrif á nærliggjandi svæðum þó að sómölsk stjórnvöld fari með yfirráð í heimaborg kæranda, [...].
Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hann eigi í hættu á að vera þvingaður til að starfa fyrir hryðjuverkahópinn Al-Shabaab, sé í sérstakri hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab eða vegna aðildar að minnihlutaættbálki. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar við úrlausn máls kæranda að kærandi hafi verið búsettur í [...] í [...] í suður Sómalíu þegar hann hafi yfirgefið heimaríki sitt, þar sem hann hafi búið frá tveggja ára aldri. Verður því horft til aðstæðna í [...] við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara sómölsk stjórnvöld eða ATMIS með full yfirráð yfir heimaborg kæranda [...]. Samkvæmt skýrslu EUAA leiðir viðvera einstaklings ein og sér í [...] umdæmi ekki til þess að viðkomandi teljist eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega á hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði honum gert að fara aftur til [...] umdæmis. Með vísan til framangreinds og fyrirliggjandi gagna málsins verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hans fyrir þeirri hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Jafnframt er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í svipaðri stöðu og hann fyrir þvingaðri ráðningu af hálfu Al-Shabaab eða ofsókna af hálfu Al-Shabaab.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Ljóst er að Sómalía glímir við ýmsa erfiðleika er tengjast almennu öryggistástandi í landinu sem og efnahag landsins og hafa stjórnvöld í landinu unnið að því með aðstoð alþjóðlegra aðila að bæta úr en enn sé langt í land. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það þó niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda þar nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi greindi frá því að verða andstuttur og finna fyrir einkennum astma þegar hann stundaði hlaup eða aðra hreyfingu. Kærandi hafi ekki verið greindur með astma né taki lyf að staðaldri.
Kærandi lagði fram afrit af nótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 18. mars til 30. október 2024. Í nótunum kemur m.a. fram að kærandi taki inn lyf við astma. Þá sé kærandi með einkenni [...] og [...]. Kæranda sé ráðlagt að fara meira út á meðal fólks, þá hafi honum verið gefin tími hjá lækni að ósk kæranda til að fá svefntöflur.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta og aðgengi að lyfjum í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi er ungur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga fjölskyldu í heimaborg sinni og að eiga foreldra og systkini þó hann viti ekki hvar þau séu nákvæmlega stödd. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 20. maí 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki á Schengen-svæðinu. Þá kvað kærandi brottvísun og endurkomubann ekki vera ósanngjarnar ráðstafanir þar sem yfirvöld geti ákveðið hvort þeir veiti honum vernd eða ekki.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sindri M. Stephensen