07 nóvember 2024
/
Úrskurður nr. 1113/2024
Hinn 7. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1113/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040046
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. apríl 2024 kærði […], fd[…], ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. mars 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik og frásögn kæranda
Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 15. maí 2023, kom kærandi til landsins sama dag og bar upp beiðni um alþjóðlega vernd. Kvaðst kærandi vera fæddur í Mógadisjú í Sómalíu. Hann hafi farið til Kenía og verið á Ítalíu í níu daga. Hann sé að gera meistararitgerð um almenna heilsu fólks og í læknanámi. Hann hafi ekki gegnt herþjónustu. Hann hafi ekki unnið í lögreglu en unnið að öryggismálum með lögreglu. Hann hafi ákveðið að fara frá Sómalíu vegna ofsókna sem hann hafi orðið fyrir og valið Ísland. Hann hafi ekki sótt um hæli annars staðar né eigi ættingja búsetta á Íslandi, en eigi ættingja sem búi í Þýskalandi og í Englandi. Fólk frá Kenía hafi tekið vegabréfið hans og látið hann fá annað með mynd sem líktist honum.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 1. júní 2023 og kvað helstu ástæður flótta síns vera hættu í heimaríki sem hann sé í vegna hótana og skotárásar meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Kærandi kvaðst fæddur og uppalinn í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, hvar hann hafi jafnframt búið áður en hann hafi flúið heimaríki sitt 20. febrúar 2023. Þá hafi hann flúið til Naíróbí í Kenía og dvalið þar til 5. maí 2023 þegar hann hafi flogið til Ítalíu. Kærandi greindi frá því að hann hafi stundað nám í læknisfræði, lokið grunnámi árið 2018 og hafið meistaranám í lýðheilsufræðum sem hann hafi lokið í mars 2023. Kærandi kvaðst tilheyra Hawyie ættbálknum sem væri meirihluta ættbálkur, hann væri við góða heilsu og ætti systkini í Mógadisjú. Kærandi kvað ástæðu flótta vera að í september 2018 hafi bróðir hans látist í sprengjuárás Al-Shabaab hryðjuverkasamtakanna. Bróðir hans hafi starfað fyrir skattayfirvöld og í kjölfar andláts hans hafi kærandi tekið við starfi bróður síns. Starf hans hafi falist í eftirliti í mörgum hverfum innan Mógadisjú. Kærandi kvaðst ekki hafa greint fjölskyldumeðlimum sínum frá því að hann hafi tekið yfir starf bróður síns. Kærandi hafi unnið í starfi bróður síns í þrjú ár og í lok árs 2022 þegar hann hafi verið að ljúka meistaranámi sínu hafi meðlimir Al-Shabaab haft samband við hann hótað honum að þeir myndu myrða hann. Meðlimir Al-Shabaab hafi kvaðst vita hvar kærandi ynni og hafa aðrar upplýsingar um hann svo sem hvar hann færi til að biðja. Lögregla hafi hvatt hann til að flytja sig um set sem hann hafi gert en honum hafi borist hótanir á ný í febrúar 2023. Kærandi hafi á ný leitað til lögreglu vegna hótananna sem hafi sagt kæranda að númerið sem væri á bakvið skilaboðin væri skráð í Buaale í Mið-Júba héraði. Tveim dögum síðar hafi tveir meðlimir Al-Shabaab á mótorhjóli keyrt fram hjá kæranda nálægt heimili hans og skotið að kæranda. Kærandi hafi þá ekki þorað að fara heim til sín og gist á hóteli og leitað aðstoðar frænda síns sem væri búsettur í Sádi-Arabíu sem hafi aðstoðað kæranda við að flýja úr landi.
Með ákvörðun, dags. 21. mars 2024, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 4. apríl 2024. Greinargerð barst kærunefnd 17. apríl 2024. Frekari gögn bárust kærunefnd 12. maí 2024 og frumrit þeirra 28. október 2024. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum frá kæranda með tölvubréfi dags. 24. október 2024 svör kæranda bárust kærunefnd 29. október s.á.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og tekið tillit til allra sjónarmiða er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að bróðir hans hafi verið myrtur af meðlimum Al-Shabaab í sjálfsvígssprengjuárás 10. september 2018. Bróðir hans hafi starfað fyrir stjórnvöld og kærandi hafi í kjölfarið verið skipaður í hans stöðu. Kærandi hafi greint frá því að hafa lifað tiltölulega öruggu lífi næstu árin en undir lok ársins 2022 hafi honum borist hótanir frá Al-Shabaab. Kærandi hafi ítrekað leitað eftir aðstoð lögreglunnar og farið í felur en hann hafi orðið fyrir árás og tekist að flýja með naumindum. Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, einkum hvað varðar rannsókn og mat á trúverðugleika frásagnar kæranda. Kærandi byggir á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar með því að telja framvísun falsaðra skilríkja draga úr trúverðugleika þeirra skjala og skilríkja sem kærandi hafi lagt fram. Vísar kærandi til 31. gr. flóttamannasamnings sem geri ráð fyrir tilvist falsaðra skilríkja og refsileysi þess að framvísa þeim. Þá hafi kærandi lagt fram fjölda gagna sem styðji auðkenni hans og frásögn. Kærandi vísar til þess að umsækjendur sem hafi sætt afskiptum meðlima Al-Shabaab án þess að lögð hafi verið fram gögn til stuðnings hafið fengið vernd hjá íslenskum stjórnvöldum og vísar hann til úrskurða kærunefndar nr. 57/2023 og 374/2023 og 208/2022 því til stuðnings. Kærandi telur Útlendingastofnun ekki hafa verið kleift að draga í efa störf kæranda og hefði getað haft samband við atvinnurekanda hans hefði stofnunin talið tilefni til frekari staðfestingar. Kærandi geri athugasemd við að Útlendingastofnun kveði Al-Shabaab alla jafna ekki gera lágt setta opinbera starfsmenn eða lágt setta meðlimi alþjóðlegra- og frjálsra félagasamtaka að skotmarki sínu. Kærandi hafi lagt fram gögn um að hann hafi starfað fyrir þarlend stjórnvöld með bréfum og skírteinum. Heimildirnar bendi til þess að einstaklingar sem starfi fyrir stjórnvöld eigi á hættu að verða skotmörk samtakanna. Vísar kærandi til þess að kærunefnd útlendingamála hafi áður komist að þeirri niðurstöðu að hægt sé að leggja til grundvallar að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi sætt afskiptum af hálfu meðlima Al-Shabaab, þrátt fyrir að það væru ekki lögð fram nein gögn til stuðnings frásögninni. Ljóst sé að atvik í máli þessu séu betur sönnuð. Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi virt að vettugi gögn kæranda, svo sem starfsmannaskírteini sem hægt væri að sannreyna með rafrænum hætti. Framburður hans hafi verið stöðugur og skýr. Í hinni kærðu ákvörðun hafi frásögn kæranda um skotárás af hálfu Al-Shabaab verið talin óskýr og ótrúverðug. Hafi að mati kæranda því verið full ástæða fyrir stofnunina að kalla hann til framhaldsviðtals til þess að bæta þar úr. Með því að komast að niðurstöðu um að frásögn kæranda sé ótrúverðug en gera ekki tilraun til að afla gagna og finna trúverðugleikamerkjum stað í landaupplýsingum sé málsmeðferð Útlendingastofnunar háð annmarka sem varði ógildingar hennar.
Í greinargerð er vísað til landaskýrslna um aðstæður í Sómalíu.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 1. mgr. 37. gr. laganna þar sem hann óttist hryðjuverkahópinn Al-Shabaab í Sómalíu. Framlögð gögn og frásögn kæranda hafi verið virt að vettugi. Kærandi hafi verið starfsmaður þarlendra stjórnvalda. Heimildir beri með sér að hryðjuverkasamtökin geri opinbera starfsmenn að skotmarki sínu og myrði fjölda einstaklinga. Nauðsynlegt sé að tekið sé tillit til eðlis starfs hans. Stjórnvöld geti ekki veitt vernd gegn ofsóknum Al-Shabaab.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 37. gr. laganna þar sem raunveruleg hætta steðji að honum sem almennum borgara vegna handahófskenndra árása og hryðjuverka á heimasvæði hans. Vegna heimsvæðis kæranda þurfi minna að koma til í tengslum við einstaklingsbundið mat á aðstæðum aðila svo hægt sé að sýna fram á að hann kunni að eiga í hættu á skaða. Frásögn kæranda sé trúverðug, hafi ekki tekið nokkrum breytingum og eigi sér stoð í heimildum.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir ákvæði 74. gr. laganna þar sem kærandi uppfylli skilyrði ákvæðisins vegna erfiðra almennra og félagslega erfiðra aðstæðna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar. Útlendingastofnun hafi lagt sig fram við að draga fram ótrúverðugleika í frásögn kæranda í stað þess að leggja til grundvallar trúverðug gögn og frásögn hans. Þá hafi stofnunin ekki leitað eftir staðfestingu eða frekari skýringum á því sem talið hafi verið óskýrt eða ótrúverðugt.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun og tekur undir með kæranda að hafi Útlendingastofnun talið frásögn kæranda ekki nægilega skýra eða nákvæma hefði stofnuninni verið í lófa lagið að bæta úr þeim annmarka, t.a.m. með því að senda spurningar eða kalla kæranda til frekara viðtals. Eins og hér stendur sérstaklega á verður þó ekki séð að framangreindur annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Kærunefnd hefur með málsmeðferð sinni bætt úr umræddum annmarka og þykir því ekki ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Verður því við mat á umsóknum að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um hvernig meta skuli hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Viðkomandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn viðkomandi að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi lagt fram afrit af sómölsku vegabréfi og sómalskt kennivottorð, ásamt afritum af bankayfirliti, útskriftarskírteinum og skjölum um veitingu starfs til að sanna á sér deili. Með vísan til þess að um afrit væri að ræða og að í minnisblaði Skilríkjarannsóknastofu lögreglunnar á Suðurnesjum frá maí 2022 væri ráðlagt að setja almennan fyrirvara við áreiðanleika sómalskra skjala sem staðfesta eigi deili á einstaklingum hafi Útlendingastofnun ekki talið að kærandi hefði sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika. Fram kemur að við komuna til landsins hafi kærandi ekki verið með sómalskt vegabréf meðferðis en hafi framvísað afriti af því á síðari stigum málsins. Kærandi hafi greint frá því að smyglari hafi gefið honum falsað vegabréf og tekið vegabréf hans. Fullyrðing kæranda um öflun falsaðra skjala og skort á skilríkjum hafi að mati Útlendingastofnunar verið talin draga úr trúverðugleika annarra framlagðra skjala. Teldi stofnunin því líkindi til þess að önnur framlögð gögn kynnu að vera ótrúverðug. Var niðurstaða Útlendingastofnunar sú að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst.
Að því er varðar tilvísun kæranda til 31. gr. Flóttamannasamningsins, sbr. 32. gr. laga um útlendinga, skal tekið fram með ákvæðinu er viðurkennt að einstaklingur kunni að vera í slíkum aðstæðum að hann neyðist til að leggja á flótta án þess að hafa tiltæk skilríki. Þá njóta einstaklingar einnig verndar 31. gr. ef þeir neyðast til að nota fölsuð skilríki á ferðalagi sínu. Þetta undanþiggur þó ekki umsækjendur trúverðugleikamati og taldi Útlendingastofnun eins og áður greinir frásögn kæranda um aðdraganda og ástæður þess að hann lagði fram fölsuð skilríki og að hann hefði ekki tiltæk rétt skilríki draga úr trúverðugleika annarra skjala.
Við meðferð máls kæranda hjá kærunefnd hefur hann lagt fram frumrit útrunnins sómalsks vegabréfs og kennivottorð sem gefin eru út af sómölskum yfirvöldum. Að auki hefur kærandi lagt fram tvö önnur ótilgreind skilríki sem má ætla að séu námsmannaskírteini og vinnutengt skírteini. Kærunefnd sendi vegabréf kæranda í áreiðanleikakönnun og upplýsingar bárust með skilríkjarannsóknarskýrslu dags. 27. október 2024, þar sem fram kom að engin merki fölsunar væru að sjá á vegabréfinu.
Opinber gögn frá Sómalíu eru almennt metin ótraust þar sem almannaskráningu þar í landi er verulega ábótavant og útgáfa falsaðra skjala er algeng, líkt og ítarlega var fjallað um í úrskurði kærunefndar nr. 297/2020, dags. 10. september 2020. Hafa stjórnvöld annarra ríkja, svo sem kanadíska innflytjendaráðið, metið það svo að vegabréf útgefin af sómölskum yfirvöldum séu ekki áreiðanleg, meðal annars þar sem engir trúverðugir eða sannarlegir skráningaraðilar séu til útgáfu aðalskjala, svo sem fæðingarvottorða eða skrá yfir staðsetningu á ríkisborgararétti. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um almannaskráningu í Sómalíu og áreiðanleika skjala útgefinna þar í landi almennt er það mat kærunefndar að framlögð gögn séu ekki til þess fallin að staðfesta auðkenni kæranda. Kærunefnd leggur því til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari en að öðru leyti sé auðkenni hans óþekkt.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practicies – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
- 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
- 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
- Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
- Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
- Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, . september 2022);
- Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. . september 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
- Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
- Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- Somalia: Rekruttering til al-Shabaab (Landinfo, 17. október 2022);
- Somalia: The Security situation in Mogadishu and al-shabaab’s influence in the city, (Landinfo, 8. september 2022);
- Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 23. október 2024);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í júní 2019);
- Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, 10. september 2021) og
- World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins hafi mikilvægi aðildar að tilteknum ættbálki breyst á undanförnum árum í höfuðborginni Mógadisjú. Hlutverk ættbálksins hafi í auknum mæli færst frá því að verja stöðu ættbálksins yfir í hlutverk félagslegrar aðstoðar og stuðnings. Þá sé lítið um ættbálkaerjur í Mógadisjú og afkoma meðlima minnihlutaættbálka ráðist ekki af aðild þeirra að ættbálkinum. Þá sé ólíklegt að einstaklingar sem tilheyri meirihlutaættbálki í landinu eða undirættbálki geti sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir við endurkomu til Sómalíu á þeim grundvelli einum að tilheyra þeim hópi.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2022, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna hótana og skotárásar hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurriti af viðtali við hann hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að í september 2018 hafi bróðir hans verið myrtur í sjálfsmorðsárás meðlims Al-Shabaab. Í kjölfarið hafi kærandi tekið við stöðu hans hjá skattayfirvöldum. Í lok árs 2022 hafi Al-Shabaab haft samband og byrjað að hóta honum. Á þeim árum hafi enginn í fjölskyldu hans vitað að hann væri að vinna fyrir skattayfirvöld enda hafi hann ekki viljað segja fjölskyldumeðlimum sínum frá því vegna bróður síns, sem hafi látist. Al-Shabaab hafi á ný haft samband við kæranda og hótað honum lífláti í febrúar 2023. Í bæði skiptin hafi hann leitað aðstoðar lögreglu en lögreglan hafi aðeins veitt honum ráðleggingar um að fara huldu höfði. Stuttu síðar hafi Al-Shabaab ráðist að honum 13. febrúar 2023 og kvaðst hann hafa orðið fyrir skotárás af hálfu tveggja manna á mótorhjóli en sloppið undan með aðstoð tuk tuk bílstjóra síns.
Kærandi hefur lagt fram fjölda gagna til stuðnings frásögn sinni. Þeirra á meðal eru gögn um að hann hafi stundað meistaranám í háskóla á tímabilinu sem hann kveðst hafa starfað hjá skattayfirvöldum og að á tímabilinu janúar 2018 til janúar 2019 hafi hann verið í verknámi á sjúkrahúsi. Kærunefnd taldi ástæðu til að óska eftir frekari upplýsingum frá kæranda um störf hans fyrir skattayfirvöld og hvað hafi falist í starfinu, nám hans og hví hann hafi verið ráðinn í starf bróður síns. Í svari, sem barst kærunefnd 29. október 2024, greindi kærandi frá því að hans hlutverk hafi verið að hafa umsjón með daglegri starfsemi umdæma sem annist skattlagningu, greina frá vandamálum til skattstjóra, tryggja og tilkynna tekjur umdæma til skattstjóra og önnur verkefni. Aðspurður hvort hann hafi unnið fulla vinnu kvaðst hann hafa unnið fulla vinnu fyrstu tvo mánuðina. Hann hafi tekið við vinnu bróður síns þegar hann hafi verið á síðasta mánuði verknáms í grunnnámi á spítala. Hann hafi síðan byrjað í meistaranámi með vinnu árið 2020. Í vottorði sem kærandi lagði fram kemur fram að hann hafi klárað lokaritgerð og varið hana í mars 2023 en kærandi greindi því að hafa dvalið í Naíróbí í Kenía þá. Kvaðst kærandi hafa gert varið ritgerð sína í gegnum fjarfundarbúnað. Aðspurður hvers vegna hann hafi tekið yfir starf bróður síns, sem hann hafi ekki haft menntun til að sinna, kvaðst kærandi hafa unnið sjálfboðaliðavinnu fyrir sveitarfélagið Mógadisjú og öðlast reynslu um skattamál og því eftir nokkurra mánaða starfsþjálfun sýnt að hann hafi verið fær um að sinna því starfi. Aðspurður hvers vegna hann hafi þá haft annan starfstitil heldur en bróðir hans, ef hann hafi tekið við starfi hans, kvað kærandi að þegar nýr starfsmaður byrji hjá Benadir, byrji þeir sem almennir starfsmenn til að fá betri almenna þekkingu á verkefnum. Hann hafi fljótlega sýnt að hann væri fær um að sinna starfinu og tekið við starfi bróður síns.
Kærandi lagði fram tvær lögregluskýrslur sem virðast vera framburðarskýrslur hans hjá lögreglu og af þýðingu verður ráðið að kærandi hafi ekki kunnað deili á þeim sem hafi hótað honum. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum um þetta atriði og í svari til kærunefndar, kvaðst kærandi hafa nefnt við lögreglu að um meðlimi Al-Shabaab hafi verið að ræða en að hann viti ekki hvers vegna það hafi ekki komið fram í skýrslunni. Þá óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um það hvernig kærandi hafi aflað þeirra frumgagna sem hann hafi lagt fram til kærunefndar útlendingamála. Í svari kæranda kemur fram að þegar hann hafi flúið frá Sómalíu til Kenía og hafi hann hringt í vin sem hafi verið nágranni hans heima og deilt atvikinu með honum og sagt honum að hann hafi yfirgefið landið. Kærandi hafi beðið hann um að fara heim til sín og taka verðmæti. Þegar lögmaður hans hafi beðið hann um að afla frumgagna hafi hann haft samband við vin sinn á ný og beðið hann um að senda sér þau.
Með hliðsjón af gögnum málsins, þ.e. gögnum um menntun kæranda er ekki unnt að útiloka að hann hafi stundað nám og starfað í heimaríki. Af gögnum sem kærandi hefur lagt fram verður ráðið að hann hafi menntun og starfsþjálfun á heilbrigðisvísindasviði. Frásögn hans um að hann hafi tekið við starfi bróður síns þykir ótrúverðug einkum í ljósi þess að þegar hann á að hafa tekið við því starfi hafi hann stundað fullt nám í háskóla og þess að hann hafi ekki haft menntun eða starfsreynslu sem nýst gæti í slíku starfi og er vandséð að einstaklingur í stöðu kæranda skyldi ráðinn til þess að taka við starfi sem bróðir hans hafi aðeins sinnt í nokkra mánuði áður en hann lést. Þó verður ekki, með vísan til framlagðra gagna, útilokað að kærandi hafi starfað sem almennur starfsmaður hjá skattayfirvöldum.
Af framangreindum heimildum verður ráðið að Al-Shabaab beini spjótum sínum fyrst og fremst að háttsettum aðilum svo sem stjórnmálamönnum, ættbálkaleiðtogum, starfsmönnum AMISOM, starfsmönnum alþjóðlegra samtaka, liðhlaupum Al-Shabaab, fjölmiðlamönnum sem hafi gagnrýnt samtökin og fyrirtækjaeigendum sem neiti að greiða verndartolla til samtakanna. Ólíklegt sé að almennir borgarar sem tengist hvorki yfirvöldum né alþjóðasamtökum stafi sérstök hætta af Al-Shabaab. Við mat á því hvort líklegt sé að einstaklingur með tengsl við stjórnvöld eigi á hættu að sæta ofsóknum vegna starfs sinna þurfi að líta til einstaklingsbundinna atvika, svo sem stöðu, verkefni, uppruna og virkni Al-Shabaab á svæðinu. Líkt og áður hefur komið fram greindi kærandi frá því að bróðir hans hafi starfað fyrir sómölsk yfirvöld. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá því í september 2022 kemur fram að einstaklingar sem áður hafi starfað fyrir sómalska ríkið hafi verið beittir ofbeldi og jafnvel teknir af lífi. Ekkert kemur þó fram um að einstaklingar með tengsl við fyrrum starfsmenn séu sérstök skotmörk Al-Shabaab.
Af frásögn kæranda og mati á trúverðugleika frásagnar hans af störfum fyrir skattayfirvöld verður ekki talið að hann hafi sýnt fram á að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab umfram aðra í heimaríki vegna atvinnu hans eða að hann hafi mátt þola eða eiga á hættu ofsóknir af þeirra hálfu. Þá bera framlagðar lögregluskýrslur ekki með sér að kærandi hafi vitað hverjir hafi sent honum skilaboð með hótunum og eru skýringar um að sá hluti frásagnar kæranda hafi ekki verið ritaður niður í lögregluskýrslu að mati kærunefndar ótrúverðugar. Þótt ekki verði ekki útilokað að kærandi kunni að hafa sætt áreiti af hálfu ótilgreindra aðila í heimaríki verður ekki talið að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab. Horfir kærunefnd einnig til þess að kærandi kveðst hafa starfað fyrir stjórnvöld í rúmlega fjögur ár áður en hann hafi fengið hótanir. Þá verður ekki ráðið af framlögðum gögnum um þá árás sem kærandi kveður bróður sinn hafa látist í að hún hafi beinst sérstaklega að bróður kæranda en hafi verið sprengjuárás sem samtökin hafi staðið að baki og beinst að ákveðnu svæði þar sem mikið hafi verið um opinbera starfsmenn. Að framangreindu virtu verður ekki lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu meðlima Al-Shabaab.
Þá lítur kærunefnd til þess að kærandi hefur greint frá því að tilheyra meirihlutaættbálk í heimaríki auk þess sem hann hafi verið búsettur á svæði þar sem sómölsk stjórnvöld fara með yfirráð og benda heimildir til þess að ástandið í Mógadisjú sé slíkt að stjórnvöld hafi almennt stjórn á svæðinu.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að aðstæður í heimaríki hans séu slíkar að veita beri honum viðbótarvernd.
Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hann sé í hættu í heimaríki vegna þess að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab vegna starfa sinna fyrir sómölsk stjórnvöld eða vegna tengsla bróður hans við stjórnvöld í Sómalíu. Við meðferð málsins hefur verið lagt til grundvallar að kærandi komi frá Mógadisjú og að hann hafi verið búsettur þar þangað til hann hafi yfirgefið heimaríki sitt. Verður því horft til aðstæðna í Mógadisjú við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í máli K.A.B. gegn Svíþjóð (mál nr. 886/11) frá 17. febrúar 2014 og R.H. gegn Svíþjóð (mál nr. 4601/14) frá 1. febrúar 2016 kemur fram að almennt öryggisástand Í Mógadisjú hafi farið batnandi á undanförnum árum eftir að stjórnvöld höfðu náð yfirráðum í borginni. Þá var það afstaða dómsins að aðgengilegar landaupplýsingar bentu ekki til þess að aðstæður í borginni væru slíkar að íbúar í borginni væru almennt í hættu á að sæta meðferð sem færi gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Því myndi endursending einstaklinga til Sómalíu ekki brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda ekki til þess að aðstæður í Mógadisjú hafi breyst til hins verra eða séu slíkar að kærandi muni eiga á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þá er það jafnframt mat kærunefndar að með vísan til trúverðugleikamats að ekkert gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður kæranda leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð snúi hann til baka til heimaríkis.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann muni búa við erfiðar almennar og félagslegar aðstæður verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri almennt við góða líkamlega og andlega heilsu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Verður því ekki talið að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi er ungur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því og lagt fram gögn um að hann hafi gengið í skóla og sé menntaður í heilbrigðisvísindum. Þá hefur kærandi greint frá því að hann eigi systkini, móður og aðra ættingja sem séu búsett í Mógadisjú. Aðspurður kvaðst kærandi geta átt venjulegt félagslíf í Mógadisjú en að hann óttaðist um stöðu sína vegna öryggisástandsins. Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að hann hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 15. maí 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 15. maí 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Aðspurður hvort hann hefði tengsl við Ísland eða önnur Schengen ríki kvaðst kærandi eiga frændsystkin í Þýskalandi og í Bretlandi. Þá kvaðst kærandi telja brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir í máli hans enda hafi hann flúið Sómalíu vegna ótta um öryggi sitt og líf og að hann sé enn með vandamál þar í landi.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.
Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sindri M. Stephensen