12 nóvember 2024
/
Úrskurður nr. 1107/2024
Hinn 12. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1107/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040167
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 26. apríl 2024 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn karlmanns er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa honum frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar, sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Einnig er þess krafist að kæranda verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 25. mars 2024. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 26. mars 2024 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn m.a. af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 4. apríl 2024 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 23. apríl 2024, kom fram að honum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns 23. júní 2023 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. júní 2026. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 19. apríl 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til viðtökuríkis. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst greinargerð kæranda 3. maí 2024. Viðbótargögn bárust 3. og 25. júní 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst þannig að kærandi sé palestínskur ríkisborgari og einhleypur. Kærandi glími við ýmis konar heilsufarsvandamál m.a. líkamleg einkenni sökum árásar sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki sínu af hálfu nafngreinds frænda. Þá sé andleg heilsa kæranda bágborin, hann hafi ekki heyrt í fjölskyldu sinni í einhvern tíma og bróðir hans hafi látið lífið í stríðsátökum í Palestínu. Kærandi þjáist af [...] sem hrjái hann daglega en hann hafi ekki getað sótt sér aðstoð vegna þessa þar sem hann hafi ekki fjárhagslega burði til að greiða fyrir aðstoð sérfræðinga. Þá glími kærandi við [...]. Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi þurft að lifa við vanvirðandi og ómannúðlegar aðstæður í Grikklandi. Hann hafi lifað á götunni, betlað sér til matar og hvorki haft aðgang að sturtu eða vatni. Afleiðingar þess hafi verið þær að hann hafi fengið slæm útbrot sem leitt hafi til [...]. Kærandi hafi hvorki fengið húsnæði né framfærslu frá yfirvöldum í Grikklandi. Kærandi hafi reynt eftir bestu getu að bæta lífskjör sín í Grikklandi, leitað sér að atvinnu, sótt um skattnúmer og kennitölu, en alls staðar komið að lokuðum dyrum. Hann hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu, hafi mætt miklum fordómum sem arabi í Grikklandi og orðið ítrekað fyrir aðkasti, m.a. hafi verið kastað í hann steinum. Eftir komu kæranda til Grikklands hafi frændi hans komið þangað í þeim tilgangi að ráða kæranda bana. Hafi það annars vegar verið vegna ástarsambands kæranda við frænku frænda hans en einnig hafi frændi kæranda falið kæranda að útvega sér lyf sem ekki hafi tekist. Kærandi hafi náð að flýja til annarrar eyju á Grikklandi en frændi hans hafi elt hann þangað. Frændi kæranda eigi vandamenn úti um allt Grikkland og víðar í Evrópu sem virðast vera tilbúnir að aðstoða við að ráða kæranda bana. Kærandi hafi leitað ítrekað til lögreglu vegna frænda síns en lögreglan hafi ekki verið reiðubúin til að aðstoða kæranda. Kærandi hafi fengið hótanir í gegnum samskiptaforrit. Kærandi óttist um líf sitt og endursendingu til Grikklands.
Í greinargerð er vísað til landaskýrslna og mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Grikklandi mótmælt.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem ekki sé um virka alþjóðlega vernd að ræða því grundvallarréttindi kæranda hafi ekki verið virt í Grikklandi.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna þar sem sérstakar ástæður mæli með því að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Kærunefnd beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér, bæði líkamlegar og andlegar. Kærunefnd beri að meta hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, skv. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að aðstæður hans í Grikklandi falli undir 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Útlendingastofnun hafi ekki farið að málsmeðferðarreglum þar sem ekki hafi farið fram greining á sérþörfum og stöðu kæranda, sbr. 25. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi átt tíma hjá sálfræðingi 5. maí og hjá lækni 30. maí 2024, eftir dagsetningu ákvörðunarinnar.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna þar sem endursending kæranda til Grikklands myndi fela í sér brot gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Líta verði til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli A.D. gegn Grikklandi frá 4. apríl 2023 þar sem dómstóllinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi brotið gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Dagana 3. og 25. júní 2024 bárust kærunefnd viðbótarathugasemdir ásamt fylgigögnum. Hinn 3. júní bárust þrjár hljóðupptökur með hótunum á arabísku sem kærandi kvaðst hafa fengið frá fjölskyldumeðlimum sínum í Grikklandi í gegnum samskiptaforrit. Hinn 25. júní 2024 barst kærunefnd bréf frá kæranda sem fylgdu sjúkragögn frá Göngudeild sóttvarna fyrir tímabilið 26. mars til 20. júní 2024. Í þeim gögnum komi fram að kærandi glími við mjög slæma andlega heilsu og hafi bráðaaðilar verið kallaðir í búsetuúrræði hans vegna þess. Þá hafi kærandi verið lagður inn á bráðageðdeild Landspítalans þar sem hann hafi dvalið í tvo daga. Einnig komi fram að kærandi glími við alvarlega [...]. Kærandi ítrekar að taka eigi umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ekkert liggi fyrir um að Útlendingastofnun hafi aflað nauðsynlegra gagna um ástand andlegrar heilsu kæranda, sérstaklega í því ljósi að kærandi hafi verið lagður inn á bráðageðdeild Landspítalans, glími við mikla [...], minnisleysi, kvíða og sjálfsvígshugsanir. Kærandi ítrekar þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð hans varðandi rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá byggir kærandi á því að ekki sé unnt að senda hann aftur til Grikklands vegna heilsufars hans, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Byggt á því að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.
4 Umsókn um alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er [...] karlmaður sem er staddur einsamall hér á landi. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki 14. júní 2023, hlaut hana 23. júní 2023 og dvaldi þar, í Belgíu og í Þýskalandi, til ársins 2024 þegar hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 25. mars 2024. Kærandi lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Belgíu 1. september 2023 og í Þýskalandi 26. október 2023. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi ekki haft aðgengi að húsnæði, framfærslu og atvinnu í Grikklandi eftir að honum var veitt alþjóðleg vernd. Þá hafi hann þurft að greiða fyrir læknisþjónustu í Grikklandi. Kærandi hafi orðið fyrir fordómum af hálfu almennings og steinum hafi verið kastað í hann. Kærandi hafi leitað margsinnis til lögreglu þar í landi vegna hótana frænda síns í sinn garð. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að kærandi sé greindur með [...] og [...].
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
- umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 23. júní 2023 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. júní 2026. Sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi telst virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ekki hefur verið sýnt fram á annað.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur nefndin jafnframt kynnt sér þær heimildir sem kærandi vísa til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.
- 2023 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
- Annual Review of The Human Rights Situation of Lesbian, Gay, Bisexual, Trans and Intersex People in Europe and Central Asia 2023 (The International Lesbian, Gay, Bisexual, Trans and Intersex Association, ILGA, 29. febrúar 2024);
- Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2024);
- Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, mars 2023);
- Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
- Freedom in the World 2024 – Greece (Freedom House,mars 2024);
- Racist Violence Report Network: Annual Report 2023 (The UN Refugee Agency, 23. apríl 2024);
- Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
- Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
- Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
- Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/) og
- World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).
Grikkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Grikkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 9. ágúst 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Grikkland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 6. október 1988 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi árið 1997 og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1985 og barnasáttmálann árið 1993. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 5. apríl 1960.
Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.
Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá júní 2024 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi, sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku, hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Allir eigi rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.
Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.
Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.
Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar.
Á heimasíðu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi þurfi viðkomandi að fara á næstu skattstofu og leggja fram umsókn. Umsóknareyðublaðið sé á grísku og sé bæði aðgengilegt á skattstofunum sjálfum og á rafrænu formi. Með umsókn þurfi að leggja fram frumrit og afrit af dvalarleyfi ásamt sönnun á búsetu. Varðandi útgáfu almannatrygginganúmera skuli leggja fram umsókn hjá skrifstofu almannatrygginga AMKA eða í þjónustumiðstöð borgarbúa KEP. Með umsókn skuli framvísa gildu dvalarleyfisskírteini og sönnun á búsetu. Reynsla einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi af því að sækja um almannatrygginganúmer sé mismunandi. Afgreiðsla sé í sumum tilvikum fljótvirk en í öðrum tilvikum óski yfirvöld eftir frekari gögnum. Hægt sé að fá aðstoð frá frjálsum félagasamtökum við umsóknarferlið, bæði varðandi útgáfu skatt- og almannatrygginganúmera.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá hafi borið á kvörtunum óskráðra innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd um ofbeldi við brottvísunaraðgerðir (e. pushbacks) grískra yfirvalda við landamærin. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram að grísk stjórnvöld hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, lögsækja og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot eða spillingu. Hins vegar hafi frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir gagnrýnt stjórnvöld fyrir skort á rannsókn og öðrum aðgerðum vegna ásakana um ofbeldi og illa meðferð lögreglu við brottvísunaraðgerðir á umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Grikklandi. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að 20. júlí 2022 hafi verið samþykkt lagabreyting sem hafi sett á fót sérstakt embætti innan ráðuneytisins um fólksflutninga og alþjóðlega vernd (e. Minstry of Migration and Asylum) til að hafa eftirlit með vernd mannréttinda við málsmeðferðir umsókna um alþjóðlega vernd. Með breytingunni hafi jafnframt verið innleitt verklag um að vísa kvörtunum til stofnunarinnar (e. National Transparency Authority, NTA) og þá hafi verið stofnuð sérstök nefnd innan ráðuneytisins sem hefur það hlutverk að tryggja að grundvallarréttindi séu virt og að samræmis sé gætt á milli innlendra laga og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins um landmæraeftirlit. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi fyrir gildistöku laga nr. 68/2024 til breytinga á lögum um útlendinga en samkvæmt 5. gr. breytingarlaganna var 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga felld úr gildi. Samkvæmt lagaskilum 14. gr. breytingarlaganna gildir umrædd breyting ekki um meðferð umsókna sem bárust fyrir gildistöku laganna og verður því tekin afstaða til ákvæðisins í þessum kafla. Hið sama á við um 32. gr., 32. gr. a, 32. gr. b, 32. gr. c og 32. gr. d reglugerðar um útlendinga sem felld voru úr gildi með breytingarreglugerð nr. 1069/2024. Í 1. málsl. þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjanda, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi er tæplega [...] karlmaður. Í viðtali greindi kærandi frá því að glíma við andlegar og líkamlegar afleiðingar árásar sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki og af völdum ofbeldis frænda síns í viðtökuríki. Andleg líðan væri slæm. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. apríl 2024, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga. Þá liggur fyrir afrit af samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna fyrir tímabilið 26. mars til 20. júní 2024. Þar kemur fram að kærandi hafi verið greindur með [...] og [...]. Þá kemur fram að kærandi hafi verið lagður inn á bráðageðdeild um miðjan maí 2024 og verið útskrifaður eftir tvo daga, ekki metinn í sjálfsvígshættu en með [...]. Í samskiptaseðli sálfræðings á Göngudeild sóttvarna dags. 4. júní 2024 kemur fram að kærandi hafi verið lagður inn spítala þegar hann hafi fengið fregnir af því að foreldrar hans hafi látist í heimaríki. Þá hafi kærandi hitt sálfræðinginn í þrjú önnur skipti á fyrrgreindu tímabili.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 8. apríl 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 30. apríl 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd 25. júní 2024. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki en hafa þurft að greiða fyrir hana. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið atvinnu eða félagslega aðstoð í í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og ríkisborgarar landsins þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja sér þá þjónustu, eins og áður sagði. Í því sambandi hefur verið litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Eru aðstæður kæranda ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Skilyrði fyrir styrknum er m.a. að framvísa leigusamningi eða í tilviki heimilislausra, vottorði um heimilisleysi frá gistiskýli eða sveitarfélagi. Jafnframt er ljóst að kærandi hafi einungis dvalið í rúma tvo mánuði í Grikklandi eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd í landinu. Ekki verður talið að kærandi hafi gert fullnægjandi reka að því að sækjast eftir réttindum sínum þar í landi.
Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi heilbrigður og vinnufær. Kærandi greindi frá því að vera með skattnúmer en ekki almannatrygginganúmer í Grikklandi. Ekki eru forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þar á meðal sækja um almannatrygginganúmer, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.
Kærandi hefur borið fyrir sig að óttast frænda sinn sem sé staddur í Grikklandi og önnur skyldmenni í Evrópu. Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir fordómum í Grikklandi. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Kærandi greindi frá því að hafa oft leitað til lögreglu í Grikklandi vegna hótana frænda síns. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Kærandi telur að kærunefnd beri að meta hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, skv. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga. Áréttað er að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga er ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki farið að málsmeðferðarreglum þar sem ekki hafi farið fram greining á sérþörfum og stöðu kæranda sbr. 25. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi hafi átt tíma hjá sálfræðingi 5. maí og hjá lækni 30. maí 2024. Með vísan til þeirra gagna sem kærandi hefur lagt fram hjá kærunefnd telst mál hans hafa verið nægjanlega upplýst hjá Útlendingastofnun samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 25. gr. laga um útlendinga og er ekki ástæða til að gera athugasemd við rannsókn stofnunarinnar hvað þetta varðar.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hans ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 8. apríl 2024 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 25. mars 2024 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð viðtökuríkis og aðbúnaður umsækjanda þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Gögn málsins bera með sér að við meðferð stjórnvalda í viðtökuríki sé lagt einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Grikklandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Kærandi vísar til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli A.D. gegn Grikklandi frá 4. apríl 2023 þar sem dómstóllinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi brotið gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá vísar kærandi til þess að dómur Mannréttindadómstólsins í máli A.D. gegn Grikklandi (nr. 55363/19) frá 4. apríl 2023 bendi til þess að grundvallarmannréttindi handhafa alþjóðlegrar verndar séu ekki tryggð í Grikklandi. Dómstóllinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi brotið gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Fyrrgreindur dómur varðar aðbúnað barnshafandi konu sem var umsækjandi um alþjóðlega vernd í flóttamannabúðum í Grikklandi árið 2019. Var það m.a. niðurstaða dómsins að grísk yfirvöld hafi ekki gert ráðstafanir til að mæta þörfum hennar hvað varðar grunnþjónustu vegna meðgöngu hennar og var því m.a. um brot að ræða gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Umræddur dómur hefur ekki þýðingu í máli kæranda þar sem aðstæður málsaðila eru ólíkar og málin því ekki sambærileg.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Brottvísun og endurkomubann
5.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar brottfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 25. mars 2024. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Umsækjandi kvað það ósanngjarnt að vera brottvísað og ákveðið endurkomubann því betra væri að deyja en að vera brottvísað frá landinu.
Í greinargerð til kærunefndar er byggt á því að brottvísun frá Íslandi og endurkomubann myndi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga, í ljósi sérstakra atvika málsins og þess að staða kæranda sé afar viðkvæm vegna yfirvofandi hótana um líflát og aðstæðna hans í Grikklandi.
Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda í Grikklandi telst brottvísun hans frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar brottfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar brottfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar brottfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur án tafar.
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður