13 nóvember 2024

/

Úrskurður nr. 1147/2024


Hinn 13. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1147/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100024

Endurtekin umsókn í máli [...]og barns hennar

  1. Málsatvik

Hinn 26. september 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 21. maí 2024, um að synja [...], fd. [...] (hér eftir kærandi), ríkisborgara Venesúela, og barni hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Úrskurður kærunefndar var birtur kæranda samdægurs og 7. október 2024 barst kærunefnd endurtekin umsókn kæranda.

Beiðni kæranda um endurtekna umsókn byggir á 35. gr. a laga um útlendinga.

  1. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir á því að forsendur í málum kæranda og A hafi breyst á meðan málin voru til meðferðar hjá kærunefnd. Kærandi hafi skilið við eiginmann sinn og hafi hún og A verið flutt í annað úrræði. Því sé hún í aukinni hættu þar sem ofbeldismenn verði oft hættulegri þegar makar þeirra reyni að skilja við þá. Þá sé kærandi í sérstakri hættu þar sem hún og fyrrverandi eiginmaður hennar séu drúsar. Í samfélagi drúsa séu heiðursglæpir vel þekktir. Sé því ástæða til þess að taka sérstaka afstöðu til stöðu kæranda í heimaríki vegna sérstakrar hættu á að hún verði fórnarlamb heiðursglæpa/heiðursmorðs. Vísar kærandi til heimilda um samfélag drúsa og stöðu kvenna innan þess. Kærandi vísar til þess að kærandi hafi leitað sér aðstoðar hjá Bjarkarhlíð en það hafi ekki komið skýrlega fram í úrskurði kærunefndar.

  1. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
  2. Endurtekin umsókn kæranda samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.

Samkvæmt upplýsingum um málsmeðferð í máli kæranda sem bárust kærunefnd frá Heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun 7. október 2024 eru kærandi og A stödd á landinu og því fyrra skilyrði 35. gr. a laga um útlendinga uppfyllt.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda og A 26. september 2024. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og A uppfylltu ekki skilyrði 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ættu því ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og A væri ekki með þeim hætti að veita bæri þeim dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvartaði yfir því að í úrskurði kærunefndar hafi verið fullyrt að kærandi hafi ekki svarað spurningum kærunefndar um hvort hún hafi leitað til lögreglu í Venesúela eða á Íslandi vegna ofbeldisins, eða hvort hún hafi farið í viðtal hjá Bjarkarhlíð og fengið þar stuðning og ráðgjöf eða hjá samstarfsaðilum Bjarkarhlíðar. Í tölvupósti frá kærunefnd til talsmanns kæranda, dags. 17. september, voru umræddar spurningar ítrekaðar og gefinn tveggja daga frestur til að svara. Ekkert svar barst áður en úrskurður kærunefndar var kveðinn upp 27. september 2024 og er sú staðhæfing rétt. Þá byggir kærandi á því að ekki hafi verið litið sérstaklega til stöðu hennar sem drúsi. Kærunefnd lagði til grundvallar frásögn kærandi um að hún hefði sætt ofbeldi af hálfu maka síns og hygðist leita eftir skilnaði við hann og voru aðstæður hennar og A í heimaríki metnar á þeim grundvelli og sérstaklega litið til stöðu hennar sem konu og drúsa við það mat. Þau gögn sem kærandi vísar til í greinargerð sinni eru ekki til þess fallin að breyta fyrra mati kærunefndar.

Það er mat kærunefndar að framangreindar upplýsingar í máli kæranda leiði ekki til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsóknir hennar og A samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga og telur kærunefnd því skilyrði ákvæðis 35. gr. a laga um útlendinga ekki vera uppfyllt.

Að framangreindu virtu er kröfu kæranda um endurtekna umsókn vísað frá.


Úrskurðarorð:

Endurtekinni umsókn kæranda er vísað frá.

The appellant’s subsequent application is dismissed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Þorsteinn Gunnarsson, formaður