29 nóvember 2024
/
Úrskurður nr. 1189/2024
Hinn 29. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1189/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040169
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 26. apríl barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn konu er kveðst heita [...], vera fædd [...], [...] eða [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa henni frá landinu.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 5. mars 2024. Við meðferð málsins hefur kærandi ekki lagt fram skilríki. Við skoðun stjórnvalda kom í ljós að kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun til Ítalíu. Hinn 12. mars 2024 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 2. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 11. apríl 2024, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hefur fengið útgefna vegabréfsáritun til viðtökuríkis. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 15. mars 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 19. apríl 2024 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði send til viðtökuríkis. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 19. apríl 2024 og barst greinargerð kæranda 10. maí 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst þannig að kærandi sé flóttamaður frá Afganistan, hugsanlegt fórnarlamb mansals og í einstaklega viðkvæmri stöðu. Í viðtali hafi hún greint frá ofbeldi og hvernig staðið hafi verið að flutningi hennar frá Afganistan til Ítalíu, sem ekki sé hægt að túlka öðruvísi en að hún sé fórnarlamb mansals. Fyrrverandi eiginmaður hennar hafi verið tekinn af lífi. Kærandi óttist um afdrif barna sinna. Hún hafi verið auðvelt fórnarlamb glæpamanns. Kærandi hafi lagt allt sitt traust á mann sem hafi fyllt út öll skjöl vegna ferðalagsins til Ítalíu. Þegar til Ítalíu hafi verið komið hafi kærandi spurt manninn hvenær von væri á börnum hennar. Maðurinn hafi sagst aðeins hafa áhuga á henni og þá hafi kæranda orðið ljóst að hún hafi verið blekkt. Maðurinn hafi beitt hana miklu ofbeldi og bannað henni að fara út fyrir hússins dyr. Hún hafi verið neydd til að þrífa húsnæðið og elda mat og verið þræll mannsins. Með hjálp nágrannakonu hafi kæranda tekist að flýja þessar aðstæður og komast til Íslands. Kærandi hafi engin tengsl við Ítalíu og eigi þar ekkert bakland. Hún hafi ekki haft forsendur eða getu til þess að leita ásjár lögreglu eða annarra stofnana. Kærandi tali eingöngu afgönsku og sé ólæs og óskrifandi. Fram hafi komið að umræddur maður hafi níðst á kæranda og beitt hana margvíslegu ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu. Kærandi hafi haft takmarkaða vitneskju um ferðalagið frá Afganistan til Ítalíu eða í hvaða borg hún hafi dvalið. Verði kærandi send til Ítalíu sé líklegt að hún komist aftur í hendur geranda síns eða annarra einstaklinga sem gætu nýtt sér einstaklega viðkvæma stöðu kæranda.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna þar sem sérstakar ástæður séu uppi í máli kæranda. Þá sé kærandi einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, hugsanlega fórnarlamb mansals, sem kunni að eiga rétt á vernd með vísan til 38. gr. laga um útlendinga, eða dvalarleyfi á grundvelli 75. gr. eða 76. gr. sömu laga. Vísað er til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga til stuðnings kröfu kæranda um að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar. Kærandi sé í gríðarlega viðkvæmri stöðu og ljóst að hún muni eiga mjög erfitt uppdráttar í viðtökuríki þar sem gerandi hennar haldi þar til. Lagt sé fyrir kærunefnd að hún ræki rannsóknarskyldu sína og kanni aðstæður kæranda í viðtökuríki með nákvæmum hætti. Jafnframt sé lagt fyrir kærunefnd að kanna sérstaklega félagslegar aðstæður kæranda sjálfs sem og líkamlegt og andlegt heilbrigði hennar. Kærandi lýsi alvarlegum [...] sem hún hafi glímt við frá því að eiginmaður hennar hafi verið tekinn af lífi, þá hafi hún gríðarlegar áhyggjur af börnum sínum sem hafi orðið eftir í Afganistan. Ljóst sé að kærandi sé í mjög veikri stöðu og muni hún eiga mjög erfitt uppdráttar í viðtökuríki, þar sem hún hafi ekkert aðgengi að húsnæði og litla sem enga möguleika á atvinnuþátttöku. Líklega sé hún fórnarlamb mansals og ekki ólíklegt að hún geti lent í klóm þeirra sem fluttu hana til Ítalíu á nýjan leik snúi hún þangað aftur.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna þar sem ýmsum spurningum um aðstæður kæranda á Ítalíu hafi ekki verið svarað. Þá hafi á síðari misserum verulega syrt í álinn í málefnum flóttafólks á Ítalíu almennt, landið sé ekki í stakk búið til þess að takast á við vandann. Innviðir séu ekki fyrir hendi í landinu og ekkert félagslegt net til þess að sinna þeim fjölda sem hafi sótt um vernd í landinu og fengið. Staðan hafi hríðversnað á mjög stuttum tíma og mikilvægt að kallað sé eftir uppfærðum upplýsingum um þessa stöðu með nákvæmum og skýrum hætti. Kærandi hafi þann stutta tíma sem hún hafi verið á Ítalíu búið við mjög vanvirðandi aðstæður. Kærandi óttist frekara ofbeldi verði henni snúið þangað aftur.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum þar sem Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað ástandið á Ítalíu nægjanlega vel.
4 Umsókn um alþjóðlega vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins er varða landamæraeftirlit og umsóknir um alþjóðlega vernd eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er rúmlega [...] kona sem er stödd einsömul hér á landi. Kærandi kveðst vera ólæs og óskrifandi. Kærandi eigi 8 börn, sjö í heimaríki og eitt í Íran. Eiginmaður kæranda og faðir barna hennar hafi verið tekinn af Talibönum í heimaríki og ekki spurst til hans síðan. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun sem ferðamaður til Ítalíu fyrir tímabilið 18. janúar 2024 til 17. janúar 2025. Við meðferð málsins hefur kærandi ekki lagt fram vegabréf eða önnur skilríki. Í upplýsingakerfi vegna útgáfu vegabréfsáritunar til handa kæranda kemur fram að kærandi hafi fengið útgefið afganskt vegabréf 22. ágúst 2023 og sótt um það í Íran. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi í fyrstu aldrei hafa komið til Ítalíu og kannaðist ekki við að hafa sótt um vegabréfsáritun þangað. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að hafa farið til Ítalíu frá heimaríki með manni sem hún hafði þá nýlega kynnst í heimaríki og hafið hagkvæmnishjónaband með sem þó hafi ekki verið löglegt hjónaband. Fljótlega eftir komuna til Ítalíu hafi slitnað upp úr sambandinu. Eiginmaður kæranda hafi beitt kæranda ofbeldi. Þá hafi hann ekki staðið við loforð um að börn kæranda sameinuðust þeim á Ítalíu. Kærandi kvaðst aðallega hafa verið inni á heimilinu, séð um þrif á heimilinu og verið hrædd við að fara út. Þá hafi eiginmaður kæranda ekki viljað að hún færi út af heimilinu. Kærandi hafi dvalið í 1-2 mánuði á Ítalíu en nágrannakona hennar hafi aðstoðað hana við að komast til Þýskalands og þaðan til Íslands.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Ítalíu á umsókn kæranda er byggt á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hefur fengið útgefna vegabréfsáritun til viðtökuríkis. Af þeim sökum skal kærandi endursend til Ítalíu enda bera ítölsk yfirvöld ábyrgð á umsókn hennar samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Italy (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- 2023 Trafficking in Persons Report: Italy (United States Department of State, 2023);
- Amnesty International Report 2022/2023 – Italy (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
- Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 10. júlí 2024);
- Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2019);
- Freedom in the World 2024 – Italy (Freedom House, mars 2023);
- Italy: A new system of reception and integration (European Web Site on Integration - Migrant Integration Information and good practices, 25. janúar 2021);
- Italy: How has the reception system for asylum seekers and refugees changed (European Web Site on Integration - Migration Integration Information and good practices, 4. febrúar 2021);
- Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, janúar 2020);
- Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
- Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
- The ELENA Index (Elena, European legal network on asylum og European Council on Refugees and Exiles, uppfært febrúar 2019);
- Upplýsingar af vefsíðu European Union Agency for Asylum (https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_23_4503);
- Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar (https://help.unhcr.org/italy/services/violence/);
- Upplýsingar af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_23_4503);
- UNHCR Guidelines L’identificazione delle vittime di tratta tra i richiedenti protezione internazionale e procedure di referral (UNCHR, janúar 2021);
- Upplýsingar af vefsíðu Amnesty International (www.amnesty.org);
- Upplýsingar af vefsíðu um heimilisofbeldis (https://www.differenzadonna.org/en/centri-antiviolenza-en-translation/);
- Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/en/);
- Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights(www.hatecrime.osce.org/italy) og
- World Report 2024 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Ítalía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá er Ítalía aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ítalía hefur fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og barnasáttmálann. Þá er Ítalía aðili að Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.
Í skýrslu European Council on Refugee and Exciles (ECRE) kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni geti hann áfrýjað þeirri niðurstöðu. Þá eigi hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá kemur fram í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni hjá ítölskum yfirvöldum, eigi þess kost að leggja fram viðbótarumsókn á grundvelli nýrra gagna í máli þeirra hjá lögreglunni og njóti þá sömu almennu réttinda og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, séu frjáls félagasamtök til staðar sem veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veiti gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu.
Í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Ef engin pláss eru til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum séu til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnist CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar hafi upphaflega einungis verið ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meirihluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Gagnrýnt hefur verið að umræddar miðstöðvar séu yfirfullar, á afskekktum svæðum og að þar skorti hreinlæti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku ný lög nr. 130/2020 gildi árið 2020 á Ítalíu sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of reception and integration). Búsetuúrræðinu hafi verið skipt í tvennt; annars vegar móttökumiðstöðvar og búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og hins vegar búsetuúrræði og þjónustu fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Samkvæmt lagabreytingum sem tóku gildi í maí 2023 verður móttökukerfinu SAI breytt í undirkerfi og er einungis ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar.
Af framangreindum gögnum, s.s. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar geti greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taki ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geti þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fari mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafi haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur heilbrigðisráðuneytis Ítalíu um þjónustu handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.
Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfi þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fái þeir útgefið tryggingarkort sem veiti þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna, s.s. val á barnalækni. Þá geri tryggingakortið umsækjendum kleift að verða sér út um tiltekið vottorð til þess að fá aðgang að leikskóla. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta geri þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fái aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafi lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, jafnt ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.
Af fyrrnefndum skýrslum, s.s. skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins og samtakanna Human Rights Watch, verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu. Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í kjölfar sendifarar til Ítalíu sem farið var í árið 2019 til þess að meta aukna mismunun á grundvelli kynþáttar, kemur fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar og tilkynnt hvers kyns mismunun í gegnum vefsíðu hennar. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori (OSCAD)) sem vinni náið með UNAR. Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Þær tilkynningar sem teljist geta falið í sér glæpsamlegt athæfi séu áframsendar lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Dómstólar landsins standi styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd hluta löggjafar um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Þá kemur fram á vefsíðu Flóttamannastofnunar að stuðningsþjónustur fyrir þolendur afbrota séu óháð ríkisborgararétti, stöðu, kyni, kynþætti eða trú. Frjáls félagasamtök veiti þolendum afbrota stuðning og húsaskjól. Jafnframt séu neyðarlínur opnar allan sólarhringinn fyrir þolendur ofbeldis sem þurfi aðstoð og tímabundinn dvalarstað og sérstök neyðarlína fyrir þolendur mansals og kynbundins ofbeldis. Þá séu sérstakar neyðarlínur fyrir þolendur heimilisofbeldis sem opnar séu allan sólarhringinn. Framangreindar neyðarlínur aðstoði þolendur ofbeldis óháð ríkisfangi, stöðu og þjóðerni. Þá séu til staðar sérstakar miðstöðvar sem veiti þolendum heimilisofbeldis hjálp, m.a. gistiaðstöðu fyrir þolendur og börn þeirra, lögfræði- og félagsráðgjöf, sjálfshjálparhópa og sérstakar neyðarlínu fyrir þolendur eltihrella (e. stalking helpline).
Framangreindar skýrslur, s.s. skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal og skýrsla sérfræðinga um aðgerðir gegn mansali (GRETA), bera með sér að þrátt fyrir að mansal sé vandamál á Ítalíu þá hafi ítölsk stjórnvöld sýnt verulega viðleitni í baráttunni gegn mansali. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal er þeim löndum sem skýrslan tekur til skoðunar raðað í fjóra mismunandi flokka í samræmi við viðmið laga um vernd þolenda mansals (e. Trafficking Victims Act (TVPA)). Í skýrslunni kemur fram að uppröðunin snúi að því hversu langt stjórnvöld viðkomandi landa gangi til að mæta þeim lágmarksviðmiðum sem TVPA mæli fyrir um. Í skýrslunni kemur fram að ítölsk stjórnvöld séu í flokki 2 og að þrátt fyrir að þau uppfylli ekki að öllu leyti umrædd lágmarksviðmið þá hafi þau sýnt aukna viðleitni í baráttunni gegn mansali á árinu 2021, s.s. með því að bera kennsl á og aðstoða þolendur, auka fjármagn til umönnunar þolenda, þjálfun löggæslufólks og aukinni alþjóðlegri samvinnu. Af skýrslunum má jafnframt sjá að skimað sé eftir þolendum mansals í samstarfi við frjáls félagasamtök, lögreglu og starfsfólk útlendingayfirvalda auk þess sem að þeir sem hafi gerst brotlegir séu sóttir til saka. Þá séu ítölsk stjórnvöld í samstarfi við frjáls félagasamtök og alþjóðleg samtök um að veita þolendum íverustað og þjónustu.
Ítölsk stjórnvöld sendu frá sér beiðni 5. desember 2022, þar sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins voru beðin um að stöðva tímabundið endursendingar til Ítalíu vegna álags á móttökukerfið þar í landi. Í samræmi við ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sett fram tíu skrefa aðgerðaráætlun, dags. 17. september 2023, vegna aðstæðna á eyjunni Lampedusa á Ítalíu. Í henni felist m.a. aukinn stuðningur frá stofnun Evrópusambandsins um alþjóðlega vernd (European Union Asylum Agency, EUAA) og evrópsku landamæra- og strandgæslunni (Frontex) til að stjórna miklum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd og styðja við flutning fólks frá Lampedusa til annarra aðildarríkja, sem lýst hafi yfir vilja til að taka yfir ábyrgð umsókna. Þá vinni EUAA að undirbúningi aukins viðbúnaðar m.a. með fjölgun starfsfólks á Suður-Ítalíu og öðrum stöðum sem þörf sé á.
4.5 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi fyrir gildistöku laga nr. 68/2024 til breytinga á lögum um útlendinga en samkvæmt 5. gr. breytingarlaganna var 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga felld úr gildi. Samkvæmt lagaskilum 14. gr. breytingarlaganna gildir umrædd breyting ekki um meðferð umsókna sem bárust fyrir gildistöku laganna og verður því tekin afstaða til ákvæðisins í þessum kafla. Hið sama á við um 32. gr., 32. gr. a, 32. gr. b, 32. gr. c og 32. gr. d reglugerðar um útlendinga sem felld voru úr gildi með breytingarreglugerð nr. 1069/2024. Í 1. málsl. þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.
Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:
Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjanda, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.
Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.
Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Kærandi greindi frá andlegum erfiðleikum sem hafi leitt til vandamála í maga. Eftir að eiginmaður hennar og barnsfaðir var tekinn af Talibönum í heimaríki hafi kærandi upplifað [...]. Í málinu liggur fyrir vottorð, dags. 21. mars 2024, frá Göngudeild sóttvarna þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 15. mars 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 30. apríl 2024 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kæranda er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Verður því að líta svo á að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kæranda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærandi hefur borið fyrir sig að óttast fyrrum eiginmann sinn á Ítalíu. Þá greindi hún frá því að hafa verið þolandi mansals m.a. af hendi hans. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Heimildir bera með sér að lögreglan á Ítalíu hafi skilvirk úrræði fyrir þolendur mansals og vændis. Þá hafi ítölsk yfirvöld á síðustu árum lagt áherslu á að draga úr tíðni mansals í landinu og aukið stuðning við þolendur. Þolendur mansals geti haft samband við sérstaka neyðarlínu sem opin sé allan sólarhringinn á öllum tungumálum. Einnig veiti hjálparsamtök þolendum mansals á Ítalíu ýmsa aðstoð, m.a. húsnæði og stuðning. Þá séu einnig til staðar sérstakar móttökumiðstöðvar fyrir þolendur heimilisofbeldis sem veiti þolendum og börnum þeirra ýmsa aðstoð. Gögn málsins bera ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.
Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Þá eru þær aðstæður sem hafi verið til staðar í móttökukerfinu á Ítalíu undanfarið tímabundnar. Umræddar landaupplýsingar beri ekki annað með sér en að ítölsk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, bera ekki með sér að hún muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hún geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.
Kærandi telur að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga fer mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fram hjá Útlendingastofnun, er ekki kæranlegt til kærunefndar og hefur ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda verður umsókn hennar ekki tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. mars ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Kærandi lagði fram umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi 5. mars 2024 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á þeim grundvelli.
4.6 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð viðtökuríkis og aðbúnaður umsækjanda þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Gögn málsins bera með sér að við meðferð stjórnvalda í viðtökuríki sé lagt einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekkert bendir til að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Ítalíu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda eru ekki slíkar að endursending hennar þangað verði talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Þá eru ekki fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæla gegn endursendingu kæranda til Ítalíu. Þá er ekki fallist á með kæranda að aðstæður hennar þar feli í sér ofsóknir í skilningi flóttamannahugtaksins gagnvart kæranda.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði á Ítalíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hún eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 5. mars 2024 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal flutt til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum þar sem Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað ástandið á Ítalíu nægjanlega vel.
Aðstæður sem bíða kæranda við endursendingu til Ítalíu hafa verið rannsakaðar á tveimur stjórnsýslustigum með hliðsjón af nýjustu landaupplýsingum um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Er málsástæðu kæranda hafnað.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir
Gunnar Páll Baldvinsson