05 desember 2024

/

Úrskurður nr. 1202/2024


Hinn 5. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1202/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24050002

Kæra […] og barna hennar á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. apríl 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 15. apríl 2024, um að synja henni og börnum hennar, […], fd. […] (hér eftir A[…], fd. […] (hér eftir B), […], fd. […] (hér eftir C), […], fd. […] (hér eftir D) og […], fd. […] (hér eftir E), ríkisborgurum Nígeríu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og börn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Kærandi kom til Íslands ásamt þrem börnum 24. júlí 2022 og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börnin sama dag. Kærandi og börn hennar A, B og C séu handhafar dvalarleyfis á Spáni og hafi kærandi verið búsett þar í landinu frá 2004.

Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 27. október 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 15. nóvember 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru framangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 29. nóvember 2022. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 92/2023, dags 16. febrúar 2023 voru ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 15. nóvember 2022 staðfestar.

Endurtekin umsókn kæranda barst kærunefnd útlendingamála 25. júlí 2023. Með bréfi, dags. 23. ágúst 2023 var fallist á beiðni kæranda um að fresta réttaráhrifum á úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 92/2023, meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 25. júlí 2023 ásamt fylgigögnum. Kærandi kom í viðtal hjá kærunefnd 3. október 2023 ásamt talsmanni sínum. Viðbótargögn bárust 16. október 2023. Með úrskurði kærunefndar nr. 622/2023, dags. 3. nóvember 2023, var fallist á endurupptöku í máli kæranda og var Útlendingastofnun gert að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Kærandi og börn hennar, A, B og C komu í viðtöl hjá Útlendingastofnun 14. desember 2023 ásamt talsmanni sínum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 14. desember 2023 kvað kærandi að hún hefði haft dvalarleyfi á Spáni en að það hefði runnið út á ágúst 2023. Hún hafi fæðst í [...] í Edo fylki, og búið þar þangað til hún hafi flúið frá Nígeríu árið 2004. Móðir hennar hafi beitt hana kynfæralimlestingu þegar hún hafi verið 12 ára. Hún eigi í heildina 13 systkini, átta alsystkini og sex hálfsystur, en þrjú hafi dáið. Faðir hennar hafi látist þegar hún hafi verið 14 ára og frá þeim tíma hafi fjölskyldan átt erfitt og glímt við sára fátækt. Henni hafi ítrekað verið ógnað og þegar hún hafi verið 14-15 ára gömul hafi henni verið [...] af þremur mönnum. Skömmu síðar hafi móðir hennar ætlað að þvinga hana til að undirgangast kynfæralimlestingu aftur en þá hafi hún flúið og dvalið ein á götum [...] við mikið harðræði þar til að hún hafi flúið landið og farið til Spánar. Kærandi hafi kynnst manni sem hafi lofað henni vinnu á hárgreiðslustofu á Spáni. Hann hafi þó logið að henni og neytt hana til að stunda vændi, sem hún hafi gert fyrstu árin sín á Spáni. Hún hafi náð að flýja vændið og kynnst nígerískum manni sem hún hafi gifst. Hann hafi beitt hana og son þeirra, A , ofbeldi. síðar þegar hún hafi losnað undan oki hans hafi hún glímt við erfiðleika vegna kærasta síns og síðar barnsföðurs, sem hafi einnig beitt hana ofbeldi. Kærandi eigi tvo barnsfeður sem búi í Nígeríu. Hún sé ekki í sambandi við þá og viti ekki hver afstaða þeirra sé til kynfæralimlestinga.

Kærandi kveðst vera hrædd við barnsfeður sína í Nígeríu þar sem þeir hafi beitt hana og börn hennar líkamlegu ofbeldi, þegar hún hafi farið aftur til Nígeríu árin 2019 og 2022. Aðspurð kvaðst hún hafa farið fjórum sinnum til Nígeríu. Árið 2015 hafi hún farið í einn mánuð að hitta systkini sín og 2017 í tvær vikur þegar amma hennar hafi dáið. Hún hafi ekki hitt fjölskyldu sína síðan og ekki talað við móður sína í þeirri ferð. Árið 2019 hafi hún ásamt A og B farið í einn mánuð til að hitta barnsföður kæranda og árið 2022 hafi hún, A, B og C farið í þrjá mánuði til að hitta barnsföður kæranda. Aðspurð hvort kærandi hafi ekki verið hrædd um að dætur hennar yrðu beittar kynfæralimlestingum færi hún með þær til Nígeríu kvað kærandi að þegar hún hafi ferðast með þær hafi hún ekki farið og hitt móður sína. Þá kvaðst kærandi ekki hafa leitað til lögreglunnar í Nígeríu vegna þess ofbeldis sem hún hafi upplifað þar sem lögreglan sé spillt. Kærandi kvaðst óttast kynfæralimlestingar og almennt ástand í Nígeríu.

Í viðtali sínu greindi A frá ofbeldi sem hann hafi verið beittur af hálfu föður og stjúpföður auk eineltis, erfiðra félagslegra aðstæðna og vanlíðanar á Spáni. Í viðtali greindi A frá því öryggi og vellíðan sem hann fyndi fyrir hér á landi. Hér sé honum ekki strítt og fái nægan mat. Hann þekki þá ekki til móðurfjölskyldu sinnar í Nígeríu og hafi aðeins heimsótt þar barnsföður móður sinnar. Sá maður hafi beitt hann ítrekuðu ofbeldi. Í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun greindi B frá vinatengslum sem hún hafi byggt upp hér á landi, í skóla og íþróttum. Hér fái hún nóg að borða meðan hún hafi upplifað mikla erfiðleika á Spáni. Hún greindi frá því að hafa heimsótt Nígeríu en að hún hafi orðið þar fyrir miklu ofbeldi af hálfu barnsföður móður sinnar. Þá sé hún ekki í neinum samskiptum við fjölskyldumeðlimi sína þar í landi.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum yngstu barna kæranda, C, D og E, kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar móður þeirra.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 15. apríl 2024, var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 30. apríl 2024. Greinargerð barst kærunefnd 18. nóvember 2024 ásamt fylgigögnum. Kærunefnd hefur einnig aflað gagna frá barnaverndaryfirvöldum.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er m.a. vísað til tveggja greinargerða kæranda til Útlendingastofnunar og viðtals hennar 14. desember 2023 hjá stofnuninni, hvað málavexti varðar sem og fyrirliggjandi gagna sem úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 622/2023 frá 3. nóvember 2023 byggist á. Í greinargerðum kæranda til Útlendingastofnunar og kærunefndar kemur m.a. fram að frásögn hennar hafi breyst að nokkru leyti og orðið fyllri í síðari viðtali kæranda. Ljóst sé að frásögn kæranda fær stuðning í gögnum sérfræðinga sem lögð hafi verið fram í málsmeðferð umsókna hennar hjá íslenskum stjórnvöldum. Kærandi hafi lagt fram fjöldamörg gögn sem styðja frásögn hennar. Þá hafi kærandi glímt við mikil og alvarleg [...]. B hafi verið beitt [...] og líkamlegu ofbeldi af hálfu stjúpföður síns. Hún hafi verið beitt harðræði af móður sinni og auk þess hafi hún borið ábyrgð á fjölskyldu sinni. Þá hafi B nú í nokkrum tíma verið vistuð í úrræði á vegum barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar í kjölfar [...] móður hennar. Þá glími A við andleg og félagsleg vandamál. Hann hafi verið beittur harðræði af móður sinni og ofbeldi af hálfu föður síns og stjúpföður. Hann hafi verið vistaður í úrræði á vegum barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar í kjölfar [...] móður hans. Yngstu börn kæranda hafi nú verið um tíma í fóstri hjá fjölskyldu á vegum barnaverndarþjónustu og fyrirséð að þeir verði þar áfram næstu mánuði vegna [...] móður. Þeir hafi sýnt [...] þrátt fyrir ungan aldur. Þá hafi E þurft að gangast undir [...] og bíði annarrar. Vísað er til umsagna barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar. Ljóst sé að fjölskyldan muni þurfa mikinn stuðning. Þá hafi viðhorf kæranda til kynfæralimlestinga verið óljóst, m.a. vegna ummæla varðandi umskurð sem hún hafi greint frá að hún hafi látið framkvæma á A á einkastofu á Spáni.

Kærandi vísar til þess að brottvísun barna kæranda frá Íslandi þjóni ekki hagsmunum þeirra. Í Nígeríu bíði þeirra ekkert annað en öryggisleysi, óvissa fátækt og skortur. Þá þarfnist þau umönnunar og öryggis sem þau fái hér á landi. Þá þurfi kærandi áframhaldandi stuðning og fræðslu, svo öryggi, velferð og félagslegum þroska þeirra verði tryggt.

Kærandi krefst þess að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að B og C standi frammi fyrir raunverulegri hættu á ofsóknum vegna kyns síns. Fjölskylda þeirra í Nígeríu sé sárafátæk og muni ekki geta stutt við þær frekar og veitt þeim nokkra vernd. Líklegt sé að B og C verði þvert á móti fyrir kynfæralimlestingum verði þær sendar til Nígeríu. Þá sé ekki loku fyrir það skotið D og E séu einnig í hættu á að sæta kynfæralimlestingum.

Varakröfu sína um viðbótarvernd byggir kærandi á því að almennar aðstæður í Nígeríu, sérstaklega m.t.t. forsögu kæranda, kyns hennar og B og C, bestu hagsmuna barnsins, skortur á stuðningsneti sem og sú hefð fjölskyldu kæranda að kynfæralimlesta fjölskyldumeðlimi neyðist kærandi og börn hennar að leita til þeirra og vopnuð átök í landinu leiði til sömu niðurstöðu. Það sé raunhæf hætta á að kærandi og börn hennar láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Nígeríu. Einnig sé raunhæf hætta á að þau verði þar fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis s.s. vegna átaka nígerískra stjórnvalda við Boko Haram.

Þá eigi kærandi og börn hennar rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi og D hafi ríka þörf á vernd vegna heilbrigðisástæðna. Þá sé skortur á geðheilbrigðisaðstoð í Nígeríu. Þá þurfi þau mikinn stuðning vegna erfiðra félagslegra aðstæðna, þau eigi ekkert öruggt bakland. Staða kvenna sé auk þess viðkvæm í Nígeríu en almennar aðstæður séu einnig bágbornar.

Þrautaþrautavarakrafa sé að lokum byggð á því að ósanngjarnt sé að þeim verði gert að sæta brottvísun og endurkomubanni til Íslands og Evrópu. Gengið sé gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensk stjórnsýsluréttar ætli stjórnvöld að nota sér neyð þeirra og góða trú til þess að gera þau að fordæmi sínu svo þau nái því markmið að fækka umsóknum um alþjóðlega vernd frá Nígeríu.

Með endursendingu kæranda og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

4.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

4.3 Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi fyrir sig, A, B og C. Þá kemur fram í gögnum málsins að D og E hafi fæðst hér á landi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti.

Samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu öðlast einstaklingur ríkisborgararétt þar í landi við fæðingu ef a.m.k. annað foreldri hefur nígerískan ríkisborgararétt. Ljóst er að kærandi er nígerískur ríkisborgari.

Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærandi og börn hennar séu nígerískir ríkisborgarar.

4.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2023 Trafficking in Persons Report – Nigeria (U.S. Department of State, 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
  • Childs Rights Act Tracker (Partners West Africa Nigeria, https://www.partnersnigeria.org/childs-rights-law-tracker/ sótt 22. nóvember 2023);
  • Country Guidance: Nigeria – Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, júní 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (UK Home Office, júlí 2022);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
  • Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
  • DFAT Country Information Report - Nigeria (Austalian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
  • EASO COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 4. júní 2017);
  • EASO COI Report – Nigeria – Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2024);
  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returnees of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria – Country Focus (EUAA, júlí 2024);
  • Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
  • Nigeria 2021 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
  • Nigeria: Country Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
  • Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, 3. júní 2021);
  • Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Preferred Methods of Male Neonatal Circumcision Among Mothers in Lagos Nigeria (J West African College Surg, apríl 2011);
  • Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
  • Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
  • The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
  • The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 8. júlí 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 23. nóvember 2023);
  • Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019);
  • Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018) og
  • World Report 2024 – Nigeria: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2024 má rekja helstu orsakir dauðsfalla og ofbeldis í Nígeríu til glæpastarfsemi. Þar á eftir komi pólitísk átök, trúarleg málefni og umferðaslys. Öryggisástandið sé hvað verst í norðurhluta Nígeríu vegna átaka hryðjuverkahópa, landátaka og aðgerða nígerískra stjórnvalda gegn uppreisnarmönnum. Í suðurhluta Nígeríu megi aðallega rekja dauðsföll til glæpa og þjóðernis- og samfélagslegs ágreinings. Á tímabilinu desember 2022 til júní 2023 hafi Sameinuðu þjóðirnar greint frá fækkun hryðjuverkaárása og dauðsfalla sem rekja megi til sameiginlegra aðgerða nígerískra stjórnvalda og Multinational Joint Task Force MNJTF gegn Boko Haram, afvopnunar fyrrverandi hermanna og stuðningsmanna Boko Haram og átaka á milli Boko Haram og ISWAP. Heimildir bendi þó til þess að stórfelldar árásir haldi áfram að eiga sér stað og vopnaðar vígasveitir starfi áfram í norðurhluta Nígeríu. Árásir íslamskra hryðjuverkahópa á borð við Boko Haram, ISWAP og Ansaru og aðgerðir nígerískra stjórnvalda gegn þessum hópum hafi valdið 2.212 dauðsföllum árið 2023, þ. á m. dauðsföllum óbreyttra borgara. Það sé þó fækkun um 898 dauðsföll frá árinu 2022. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 og ACLED frá 2024 var hryðjuverkahópurinn Boko Haram, einnig þekktur sem JAS, stofnaður árið 2002 og er einn valdamesti vopnaði vígahópurinn í Nígeríu. Markmið hópsins sé að skipta nígeríska ríkinu út fyrir íslamskt ríki og byggir hópurinn á strangri túlkun á Sharia-lögum. Meginhluti starfsemi hópsins hafi verið friðsæl og ofbeldislaus fyrir árið 2009 en í kjölfar þess að skólastúlkum hafi verið rænt í Chibok árið 2014, hafi hópurinn vakið heimsathygli og verið þekktur sem banvænasti hryðjuverkahópur heims. Síðan þá hafi hópurinn stækkað til nágrannalanda Nígeríu, Kamerún, Tsjad og Níger og hertekið landsvæði. Hópurinn hafi verið í uppreisn á árunum 2014 til 2015 og náð stjórn yfir mikilvægum landsvæðum í norðausturhluta Nígeríu. Nígerísk stjórnvöld og samstarfsmenn þeirra hafi allt frá árinu 2015 barist gegn vígahópnum sem hafi leitt til þess að dregið hafi úr starfsemi hópsins og hann misst yfirráðasvæði. Árið 2016 hafi Boko Haram skipst í tvær fylkingar, JAS og ISWAP og í maí 2021 hafi leiðtogi Boko Haram/JAS verið drepinn í átökum milli JAS og ISWAP. Allt frá þeim tíma hafi átt sér stað átök á milli beggja fylkinga vegna yfirráða landsvæða.

Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021), með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Samkvæmt vefsíðu Partners West Africa Nigeria hafa nú 34 af 36 fylkjum Nígeríu tekið lögin í gildi þ. á m. Edo fylki og Lagos fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega átta þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjálfbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Í skýrslu frá apríl 2011 er farið yfir rannsókn sem var framkvæmd í Lagos varðandi umskurð drengja. Þar kemur fram að umskurður drengja sé afar algengur í Afríku sunnan Sahara og séu um 85% drengja umskornir. Aðalástæða þess að mæður láti umskera drengbörn sín sé vegna hefða eða trúar. Í suðurhluta Nígeríu sé umskurður framkvæmdur fljótlega eftir fæðingu. Menntað heilbrigðisstarfsfólk framkvæmi þær aðgerðir í flestum tilfellum en einnig séu dæmi um að „umskurðarmenn“ framkvæmi slíkar aðgerðir hafi læknar neitað að framkvæma aðgerðina.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslu EASO frá árinu 2022 kemur fram að Nígería hafi gerst aðili að Maputo viðaukanum við mannréttindasáttmála Afríkuríkja árið 2003. Þar með hafi ríkið gengist undir skyldu til þess að tryggja þolendum kynbundins ofbeldis aðgengi að innlendum og svæðisbundnum dómstólum til þess að leita réttar síns. Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlög samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EASO frá árinu 2021 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)), sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Samkvæmt skýrslu EASO frá apríl 2021 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu neyðarsjóðs Evrópusambandsins fyrir Afríku frá 16. desember 2021 kemur fram að verkefnið hafi aðstoðað um 106 þúsund manns við að snúa aftur til heimkynna sinna í Afríku á öruggan hátt.

4.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna kynbundinna ofsókna.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar og eldri barna hennar hjá Útlendingastofnun, dags. 14. desember 2023, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Við meðferð máls kæranda á fyrri stigum byggði hún umsókn sína á bágum efnahagslegum aðstæðum í heimaríki. Á síðari stigum greindi hún frá því að helstu ástæður flótta síns væru að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofbeldis sem hún hafi verið beitt af hálfu barnsfeðra sinna og fjölskyldu hennar. Kærandi kvaðst hafa misst föður sinn ung að árum og í kjölfarið þurft að vinna, m.a. við að selja ávexti á götunni. Hún hafi verið beitt kynfæralimlestingum þegar hún hafi verið 12 ára gömul og þegar móðir hennar hafi ætlað að gera það aftur þegar kærandi hafi verið 15 ára, hafi hún flúið. Í kjölfarið hafi hún verið beitt blekkingum til að fara til Spánar, undir því yfirskini að hún ætti að vinna á hárgreiðslustofu. Hún hafi verið þvinguð til að stunda vændi um eins og hálfs árs skeið. Þá hafi hún verið beitt ítrekuðu kynferðisofbeldi á leiðinni. Kærandi hafi síðar eignast börn með nígerískum manni sem hafi beitt hann ofbeldi. Hún hafi eignast börn með öðrum nígerískum manni sem hafi einnig beitt hana og börn hennar ofbeldi.

Kærandi lagði fram ýmis gögn við meðferð málsins. Meðal annars gögn varðandi [...] sín en einnig gögn er varða inngrip og aðstoð barnaverndaryfirvalda til handa kæranda og barna hennar. Í gögnum málsins kemur fram að […]á Spáni. Einnig hafi hún verið beitt líkamlegu ofbeldi af hálfu stjúpföður síns fyrrverandi. Í gögnum málsins kemur fram að hún hafi farið tvær ferðir til Nígeríu, fyrst 10. ágúst 2018 þegar hún hafi farið í skólafrí ásamt bekkjarsystur sinni og móður hennar, vinkonu kæranda, svo þann 17. janúar 2019 vegna sýkingar í kynfærum. Í greinargerð kæranda kemur fram að B hafi að minnsta kosti verði beitt harðræði af móður sinni. Hún hafi þurft að taka ábyrgð á fjölskyldu sinni langt umfram aldur og þroska. Í gögnum málsins kemur fram að A glími við erfið andleg og félagsleg vandamál. Hann hafi einnig verið beittur harðræði af móður sinni og beittur ofbeldi af hálfu föður síns og stjúpföður síns fyrrverandi. A, B og C hafi um nokkurt skeið verið vistuð í úrræði á vegum barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar í kjölfar [...] kæranda. D og E hafi um nokkurn tíma verið í fóstri hjá fjölskyldu á vegum barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar og sé fyrirséð að þeir verði þar áfram næstu mánuði vegna [...] móður. D hafi þurft að gangast undir [...] og bíði þess að komast í þá næstu.

Í ljósi heimilda um heimaríki kæranda er ekki ástæða til að útiloka að kærandi kunni á einhverjum tímapunkti að hafa verið þolandi mansals og vændis. Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Samkvæmt skýrslu EUAA frá október 2021 geta þolendur mansals átt á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi eða endurtekið mansal. Ekki séu allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Fram kemur að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram þar sem tekið sé mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samsafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir beri að taka tillit til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, aldurs þolanda, fjölskylduaðstæðna þolanda, t.d. hvort um sé að ræða einstæða konu, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda, aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki og þátttöku fjölskyldu þolanda í mansalinu. Ekki er fjallað um vægi hvers og eins áhættuþáttar við mat á því hvort þolandi mansals geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir eða hversu margir áhættuþættir verði að vera til staðar svo að leggja megi slíkt mat til grundvallar.

Að mati kærunefndar verður ekki talið að kæranda stafi hætta af aðilum sem hafi hagnýtt hana til þess að stunda vændi í dag enda verður ráðið af frásögn hennar að hún hafi aðeins neyðst til að stunda vændi fyrsta eina og hálfa árið sem hún hafi búið á Spáni og hafi losnað undan ánauðinni árið 2005 eða 2006. Þá er ekkert sem bendir til þess að þeir aðilar hafi slík völd eða ítök í Nígeríu að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar þarlendra yfirvalda telji hún þörf á því. Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að þeir sæti almennt ekki ofsóknum við heimkomu og að til staðar séu innviðir í heimaríki kæranda sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals og að sækja gerendur til saka. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Það er mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETAHT og lögreglu, telji hún þörf á því. Að mati kærunefndar hefur því ekki verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hún kunni að hafa verið þolandi mansals.

Auk framangreinds greindi kærandi frá því að hafa sætt kynfæralimlestingum í heimaríki sínu af hendi móður sinnar. Kærandi hafi flúið frá móður sinni þegar hún hafi ætlað að limlesta hana aftur. Í greinargerð er byggt á því að afstaða kæranda til kynfæralimlestinga hafi ekki verið skýr og er m.a. vísað til gagna frá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar 28. október 2024 þar sem kemur fram að kærandi hafi óskað eftir upplýsingum um mögulegan […]á einkastofu á Spáni. Bendi þessi afstaða móður til þess að hún sé alls ekki fráhverf því að […], jafnvel B og C. Í viðtali hjá Útlendingastofnun var kærandi afar skýr með það að hún væri […]og vilji ekki að […]. Þá sé hún ekki í sambandi við barnsfeður sína og viti ekki hver afstaða þeirra sé […].

Líkt og að framan greinir er umskurður á konum og stúlkum refsiverður verknaður samkvæmt nígerískum alríkislögum. Lögin gilda hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafa samþykkt svipuð lög sem leggja bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði síðast búsetu. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-25%. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra. Þrátt fyrir að aðrir ættingjar geti haft áhrif á þá ákvörðun sé það mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis. Fyrir liggur að kærandi er mótfallin kynfæralimlestingum dætra sinna og þá kvaðst kærandi ekki hafa verið í samskiptum við móður sína frá því að hún yfirgaf heimaríki sitt árið 2004 en væri í samskiptum við systkini sín. Með vísan til landaupplýsinga verður ekki ráðið að ástæða sé til að ætla að B og C hafi ástæðuríkan ótta við að verða þolendur umskurðar í heimaríki sínu gegn vilja móður sinnar. Hvað varðar afstöðu kæranda til umskurðar á sonum sínum þá vísar kærunefnd til þess að umskurður drengja er ekki refsiverður á Íslandi og þrátt fyrir að sjaldgæft sé að hann sé framkvæmdur hér á landi og hafi komið upp tilfelli um slíkt, m.a. af læknisfræðilegum ástæðum. Umskurður drengja er þá töluvert algengur í Afríku og hinum vestræna heimi þrátt fyrir að ekki séu allir sammála um að hann skuli framkvæmdur nema af læknisfræðilegum ástæðum. Þá er ljóst að umskurður drengja er ekki viðlíka inngrip í líkama drengja og tilgangur umskurðar er ekki hinn sami og með kynfæralimlestingum stúlkna og kvenna. Verður því afstaða kæranda hvað varðar umskurð sona hennar ekki talin leiða til þess að afstaða hennar til kynfæralimlestingar dætra hennar verði talin óljós. Það er því mat kærunefndar að B og C eigi ekki á hættu kynfæralimlestingar.

Þá kemur fram í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda , m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hún geti ekki notið verndar lögreglu telji hún þörf á því.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda, A og B og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd móður sinnar sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings hennar. Þá hefur kærandi greint frá því að hún eigi talsverðan fjölda systkina í heimaríki sem af frásögn hennar má ráða að hún sé í samskiptum við og geti þá stutt við kæranda og börn hennar fari þau til baka. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu að sæta ofsóknum í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

4.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fædd og uppalin í [...] í Edo fylki og hafa verið búsett þar alla tíð þar til hún hafi yfirgefið heimaríki sitt og farið til Spánar árið 2004. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í [...] eða Edo fylki séu slíkar að kærandi eða börn hennar eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Nígeríu.

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að frásögn kæranda um að hún eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eigi ekki við rök að styðjast og vísast til þeirrar umfjöllunar. Að öðru leyti er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hennar leiði til þess að hún eða börn hennar eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barna hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

4.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi og börn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

5 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

5.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

5.2 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu, að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 38. og 39. gr. laganna. Ef um er að ræða barn skal þó miða við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a-til d-lið 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi er, ekki liggi fyrir ástæða sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 25. júlí 2022 en þeim umsóknum var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 15. nóvember 2022, sem staðfestar voru með úrskurði kærunefndar nr. 92/2023, dags. 16. febrúar 2023. Kærandi og börn hennar lögðu inn endurteknar umsóknir hjá kærunefnd 25. júlí 2023. Í breytingarlögum nr. 14/2023 kemur fram að endurtekin umsókn telst ekki framhald fyrri umsóknar í skilningi 2. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 74. gr. laganna og miðast því málsmeðferðartími við dagsetningu endurteknu umsóknanna. Kærandi og börn hennar hafa ekki enn fengið niðurstöðu í máli sínu hjá kærunefnd útlendingamála. Frá því kærandi og börn hennar lögðu inn endurteknar umsóknir hjá kærunefnd þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, dags. 5. desember 2024, eru liðnir rúmlega 16 mánuðir. Börn kæranda teljast því ekki hafa fengið niðurstöðu í málum sínum á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita börnum kæranda dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Að mati kærunefndar uppfylla börn kæranda skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Að öllu framangreindu virtu er lagt fyrir Útlendingastofnun að veita börnum kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í ljósi meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar er rétt að veita kæranda einnig dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um aðrar kröfur kæranda.

6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar hvað varðar umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kæranda varðandi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd eru staðfestar. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decisions of the Directorate of Immigration related to the appellant´s application for international protection is affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant and her children a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir